Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-256/2019:

Ákæruvaldið

(Margrét Herdís Jónsdóttir saksóknarfulltrúi)

gegn

Marinó Birni Kristinssyni og

(Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)

Sunnu Mist Óskarsdóttur

(Ólafur V. Thordersen lögmaður)

Hegningarauki. Játningarmál. Skilorðsbundnir dómar. Þjófnaður. Umferðarlagabrot.

Ákærðu sakfelld fyrir auðgunarbrot unnin í félagi og hvort í sínu lagi fyrir auðgunarbrot og/eða umferðarlagabrot. Var þeim dæmdur hegningarauki. Bæði játuðu þau brot sín skýlaust. Þau voru dæmdi í skilorðsbundið fangelsi auk sérskilyrðis.

Mál   þetta,   sem   dómtekið   var   30.   apríl   2019,   var   höfðað   með   ákæru lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, dags. 12. mars 2019 á hendur: „Marinó Birni Kristinssyni, kt. [...] [...] Reykjavík og Sunnu Mist Óskarsdóttur, kt. [...], [...] Reykjavík, fyrir eftirtalin brot framin í Reykjavík:

I.

Gegn ákærða Marinó Birni fyrir:

  1. Þjófnað með því að hafa, [...] 2017, í verslun [...], stolið 8 pakkningum af harðfisk, samtals að verðmæti kr. 12.408.

Mál 007-2017-1318

Telst þetta varða við 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

  1. Umferðarlagabrot með því að hafa, [...] 2017, ekið bifreiðinni [...] án þess að hafa öðlast ökuréttindi og óhæfur um að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist tetrahýdrókannabínól 12 ng/ml) suður [...], vestur um [...] og því næst suður [...] uns lögregla hafði afskipti af honum skömmu síðar við [...].

Mál 007-2017-22544

Telst þetta varða við 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.

  1. Umferðar- og fíkniefnalagabrot með því að hafa, [...] 2017, ekið bifreiðinni [...]  án þess að hafa öðlast ökuréttindi og óhæfur um að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist tetrahýdrókannabínól 5,7 ng/ml) austur [...] uns lögregla hafði afskipti af honum skömmu síðar og á sama tíma haft í vörslum sínum 0,94 grömm af marijúana sem ákærði framvísaði lögreglu.

Mál 007-2017-51698

Telst þetta varða við 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 og 2. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.

  1. Þjófnað með því að hafa, [...] 2017, í verslun [...], stolið [...], að verðmæti kr. 11.995.

Mál 007-2017-57303

Telst þetta varða við 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

  1. Þjófnað með því að hafa, [...] 2017, í verslun [...], stolið 11 pakkningum af harðfisk, samtals að verðmæti kr. 29.689.

Mál 007-2017-73753

Telst þetta varða við 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

II.

Gegn ákærðu Sunnu Mist fyrir þjófnað með því að hafa, [...] 2017, í verslun [...], stolið [...], samtals að verðmæti kr. 16.990.

Mál 007-2017-10822

Telst þetta varða við 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

III.

Gegn ákærðu báðum fyrir:

  1. Þjófnað með því að hafa, [...], í verslun [...], stolið [...], samtals að verðmæti kr. 48.890.

Mál 007-2017-26602

Telst þetta varða við 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

  1. Þjófnað   með   því   að   hafa,   [...]   2017,   í   verslun   [...],   stolið   þremur pakkningum af kjúklingi, samtals að verðmæti kr. 3.843.

Mál 007-2017-58332

Telst þetta varða við 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

  1. Þjófnað með því að hafa, [...] 2017, í verslun [...], stolið varningi, samtals að verðmæti kr. 1.673.

Mál 007-2017-63116

Telst þetta varða við 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

  1. Þjófnað með því að hafa, [...] 2017, í verslun [...], stolið varningi, samtals að verðmæti kr. 2.134.

Mál 007-2017-68230

Telst þetta varða við 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

  1. Þjófnað   með   því   að   hafa,   [...]   2017,   í   verslun   [...],   stolið   þremur pakkningum af nautakjöti, samtals að verðmæti kr. 6.939.

Mál 007-2017-58200

Telst þetta varða við 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Þess er krafist að ákærðu verði dæmd til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og að ákærði Marinó Björn verði dæmdur til sviptingar ökuréttar skv. 101. og 102. gr. nefndra umferðarlaga, sbr. 25. gr. laga nr. 44/1993 og 18. gr. laga nr. 66/2006. Jafnframt er þess krafist að ákærði Marinó Björn sæti upptöku á 0,94 grömmum af marijúana, samkvæmt heimild í 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974.

Einkaréttarkröfur:

  1. Vegna ákæruliðar I.5 gerir A, kt. [...], þá kröfu f.h. B, kt. [...], hér eftir nefndur kröfuhafi, að ákærði verði dæmdur til að greiða kröfuhafa skaðabætur samtals að fjárhæð   kr.   29.698,   auk   vaxta   samkvæmt   1.   mgr.   8.   gr.   laga   um   vexti   og verðtryggingu nr. 38/2001 frá þeim degi er hið bótaskylda atvik átti sér stað, eða hinn [...] 2017, og þar til mánuður er liðinn frá birtingu kröfunnar, en síðan dráttarvexti, sbr. 9. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001, frá þeim degi til greiðsludags. Jafnframt er krafist málskostnaðar að skaðlausu samkvæmt síðar framlögðum   málskostnaðarreikningi   eða   að   mati   dómsins,   að   teknu   tilliti   til virðisaukaskatts af málflutningsþóknun.
  2. Vegna ákæruliðar III.1 gerir C, kt. [...], þá kröfu að ákærða verði dæmd til að greiða kröfuhafa skaðabætur samtals að fjárhæð kr. 48.890.
  3. Vegna ákæruliðar III.2 gerir D, kt. [...], þá kröfu f.h. E, kt. [...], hér eftir nefndur kröfuhafi, að ákærðu verði dæmd til að greiða kröfuhafa skaðabætur samtals að fjárhæð   kr.   3.843,   auk   vaxta   samkvæmt   1.   mgr.   8.   gr.   laga   um   vexti   og verðtryggingu nr. 38/2001 frá þeim degi er hið bótaskylda atvik átti sér stað, eða hinn [...] 2017, og þar til mánuður er liðinn frá birtingu kröfunnar, en síðan dráttarvexti, sbr. 9. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001, frá þeim degi til greiðsludags. Jafnframt er krafist málskostnaðar að skaðlausu samkvæmt síðar framlögðum   málskostnaðarreikningi   eða   að   mati   dómsins,   að   teknu   tilliti   til virðisaukaskatts af málflutningsþóknun.
  4. Vegna ákæruliðar III.3 gerir D, kt. [...], þá kröfu f.h. E, kt. [...], hér eftir nefndur kröfuhafi, að ákærðu verði dæmd til að greiða kröfuhafa skaðabætur samtals að fjárhæð   kr.   1.673,   auk   vaxta   samkvæmt   1.   mgr.   8.   gr.   laga   um   vexti   og verðtryggingu nr. 38/2001 frá þeim degi er hið bótaskylda atvik átti sér stað, eða hinn [...] 2017, og þar til mánuður er liðinn frá birtingu kröfunnar, en síðan dráttarvexti, sbr. 9. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001, frá þeim degi til greiðsludags. Jafnframt er krafist málskostnaðar að skaðlausu samkvæmt síðar framlögðum   málskostnaðarreikningi   eða   að   mati   dómsins,   að   teknu   tilliti   til virðisaukaskatts af málflutningsþóknun.
  5. Vegna ákæruliðar III.4 gerir D, kt. [...], þá kröfu f.h. E, kt. [...], hér eftir nefndur kröfuhafi, að ákærðu verði dæmd til að greiða kröfuhafa skaðabætur samtals að fjárhæð   kr.   2.134,   auk   vaxta   samkvæmt   1.   mgr.   8.   gr.   laga   um   vexti   og verðtryggingu nr. 38/2001 frá þeim degi er hið bótaskylda atvik átti sér stað, eða hinn [...] 2017, og þar til mánuður er liðinn frá birtingu kröfunnar, en síðan dráttarvexti, sbr. 9. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001, frá þeim degi til greiðsludags. Jafnframt er krafist málskostnaðar að skaðlausu samkvæmt síðar framlögðum   málskostnaðarreikningi   eða   að   mati   dómsins,   að   teknu   tilliti   til virðisaukaskatts af málflutningsþóknun.“

    Verjendur ákærðu krefjast vægustu refsingar er lög leyfa og hæfilegrar þóknunar sér til handa. Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og verjendum ákærðu hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga. Ákærðu hafa skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærðu og öðrum gögnum málsins að þau eru sek um þá háttsemi sem þeim er gefin að sök og eru brot þeirra rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru. Ákærði Marinó er fæddur [...]. Frá því að ákærði náði 18 ára aldri hefur hann hlotið fimm refsidóma fyrir ýmis brot. Fjórir þeirra voru skilorðsbundnir en í einu tilviki var honum ekki gerð sérstök refsing. Hafa þeir því ekki ítrekunaráhrif. Síðasti refsidómur er frá 2. mars 2018, en þá var hann dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi. Var skilorðsdómur frá 24. maí 2017 þá dæmdur upp með vísan til 60. gr. almennra hegningarlaga og honum dæmdur hegningarauki. Hið sama verður gert nú og ákærða gerð refsing í einu lagi, en brot ákærða voru öll framin fyrir uppkvaðningu dóms frá 2. mars 2018. Hvað varðar umferðarlagabrot ákærða þá hefur hann ekki áður sætt refsingu fyrir slík brot. Ákærða   Sunna   Mist   hefur   eftir   að   hún   náði   18   ára   aldri   hlotið   þrjá skilorðsbundna refsidóma, í öllum tilvikum fyrir auðgunarbrot. Síðasti refsidómur er frá 2. mars 2018, en þá var hún dæmd í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi. Var skilorðsdómur frá 24. maí 2017 þá dæmdur upp og henni dæmdur hegningarauki. Hið sama verður gert nú og ákærðu gerð refsing í einu lagi, en brot ákærðu voru öll framin fyrir uppkvaðningu dóms frá 2. mars 2018.

    Við ákvörðun refsingar ákærðu ber auk 60. gr. almennra hegningarlaga að gæta 77. gr. og 78. gr. almennra hegningarlaga. Þá er til þess að líta að ákærðu hafa bæði játað brot sín greiðlega. Einnig er til þess að líta að samanlagt verðmæti þýfis var óverulegt og þau hafa samþykkt bótakröfu í málinu. Ákærðu eru ung að árum og langt er liðið frá því að þau frömdu brotin. Brotin eru öll neyslutengd og lögðu þau fram gögn sem staðfesta að þau hafi farið í meðferð á [...]. Hafa þau að eigin sögn fylgt meðferðinni eftir með því að sækja fundi auk þess sem þau fái stuðning frá ráðgjafa. Lýstu þau yfir vilja sínum til þess að snúa til betri vegar og hafa fengið húsnæði til afnota.

    Eins og áður segir er langt liðið frá því að ákærðu frömdu brotin, en það var á tímabilinu [...] 2017. Um smávægileg brot er að ræða sem voru auðrannsökuð. Ákæra var þó ekki gefin út fyrr en 12. mars 2019. Verður ákærðu ekki kennt um þennan drátt, en þau voru samvinnuþýð og játuðu brot sín nær undantekningarlaust strax á rannsóknarstigi.

    Samkvæmt framansögðu og með vísan til 4., 5. og 6. tl. 1. mgr. 70. gr. og 2. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga þykir refsing ákærða Marinós Björns hæfilega ákveðin tíu mánaða fangelsi. Með vísan til sömu ákvæða þykir refsing Sunnu Mistar hæfilega ákveðin átta mánaða fangelsi. Þá þykir rétt að fresta fullnustu refsingar ákærðu og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá birtingu dóms þessa haldi ákærðu almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955. Þegar litið er til ungs aldurs þeirra og aðstæðna er ákveðið að binda refsinguna jafnframt skilyrði samkvæmt 1. og 3. tl. 3. mgr. 57. gr. almennra hegningarlaga. Skulu ákærðu því ekki neyta áfengis eða deyfilyfja á skilorðstímanum   og   sæta   umsjón   Fangelsismálastofnunar   sem   annast   eftirlit samkvæmt 1. mgr. 83. gr. laga nr. 15/2016 um fullnustu refsinga.

    Með vísan til lagaákvæða í ákæru er ákærði Marínó Björn sviptur ökurétti í 18 mánuði frá birtingu dómsins að telja. Þá skal hann sæta upptöku á 0,94 g af maríjúana sem lögregla lagði hald á.

    Í málinu liggja fyrir einkaréttarkröfur en við þingfestingu málsins var aðeins sótt þing af hálfu C í tengslum við ákærulið III.1. Með vísan til 2. mgr. 174. gr. laga nr.   88/2008   eru   aðrar   einkaréttarkröfur   málsins   felldar   niður.   Ákærðu   hafa samþykkt kröfuna sem styðst við gögn málsins. Þar sem þau stóðu saman að brotinu bera þau ábyrgð á henni sameiginlega. Ekki er krafist vaxta af bótafjárhæð.

    Með vísan til 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 skal ákærði Marinó Björn greiða   málsvarnarþóknun   skipaðs   verjanda   síns,   Guðmundar   St.   Ragnarssonar lögmanns, 274.040 krónur, og 163.985 krónur í annan sakarkostnað samkvæmt framlögðu yfirliti. Tekið er tillit til vinnu verjandans á rannsóknarstigi. Ákærða Sunna Mist greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Ólafs V. Thordersen, 168.640   krónur.   Við   ákvörðun   þóknunar   verjenda   hefur   verið   tekið   tillit   til virðisaukaskatts og höfð hliðsjón af tímaskýrslu þeirra.

    Sigríður Hjaltested héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

D ó m s o r ð:

Ákærði, Marinó Björn Kristinsson, sæti fangelsi í tíu mánuði en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá birtingu dóms   þessa   haldi   ákærði   almennt   skilorð   57.   gr.   almennra   hegningarlaga   nr. 19/1940. Framangreind frestun skal einnig bundin skilyrði 1. og 3. tl. 3. mgr. 57. gr. almennra   hegningarlaga   og   skal   ákærði   ekki   neyta   áfengis   eða   deyfilyfja   á skilorðstímanum og sæta umsjón Fangelsismálastofnunar. Ákærði er sviptur ökurétti í 18 mánuði frá birtingu dómsins. Ákærði sæti upptöku á 0,94 g af maríjúana.

Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Guðmundar St. Ragnarssonar lögmanns, 274.040 krónur, og 163.985 krónur í annan sakarkostnað.

Ákærða, Sunna Mist Óskarsdóttir, sæti fangelsi í átta mánuði en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá birtingu dóms   þessa   haldi   ákærða   almennt   skilorð   57.   gr.   almennra   hegningarlaga   nr. 19/1940. Framangreind frestun skal einnig bundin skilyrði 1. og 3. tl. 3. mgr. 57. gr. almennra   hegningarlaga   og   skal   ákærða   ekki   neyta   áfengis   eða   deyfilyfja   á skilorðstímanum og sæta umsjón Fangelsismálastofnunar.

Ákærða Sunna Mist greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Ólafs V. Thordersen, 168.640 krónur. Ákærðu greiði sameiginlega C. 48.890 krónur.

Sigríður Hjaltested (sign.)