Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 20. febrúar 2019.
Mál nr. S-24/2019:
D Ó M U R
máli nr. S-24/2019:
Ákæruvaldið
(Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Jóhanni Vísi Gunnarssyni
Lykilorð
Ávana- og fíkniefni. Fangelsi. Skilorðsrof. Svipting ökuréttar. Þjófnaður. Umferðarlagabrot. Útivist.
Útdráttur
Ákærði var sakfelldur fyrir brot gegn umferðar-, fíkniefna- og hegningarlögum. Var hann dæmdur til að sæta fangelsi í tvo mánuði.
- Fíkniefnalagabrot, með því að hafa þriðjudaginn 13. júní 2017 að [---] í Reykjavík, haft í vörslum sínum 8,12 g af maríhúana, sem ákærði framvísaði við afskipti lögreglu.
Telst brot þetta varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.
- Umferðarlagabrot, með því að hafa miðvikudaginn 31. október 2018 ekið bifreiðinni [---] án þess að hafa endurnýjað ökuskírteini og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist amfetamín 335 ng/ml og auk þess fannst amfetamín og tetrahýdrókannabínólsýra í þvagi) um Grandatorg í Reykjavík, þar sem lögregla hafði afskipti af ákærða.
Telst brot þetta varða við 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr., allt sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.
- Þjófnað, með því að hafa þriðjudaginn 20. nóvember 2018 á Borgarbókasafninu, Tryggvagötu 15 í Reykjavík, stolið farsíma af gerðinni Samsung J5, greiðslukort í eigu [A]og lyf, að óþekktu verðmæti. Telst brot þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 101. og 102. gr. laga nr. 50/1987, sbr. 25. og 26. gr. laga nr. 44/1993, sbr. 18. gr. laga nr. 66/2006. Krafist er upptöku á 8,12 g af maríhúana, sem hald var lagt á, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.
Ákærði sótti ekki þing við þingfestingu málsins og hafði ekki boðað forföll en hafði verið birt ákæra og fyrirkall. Verður málið dæmt samkvæmt heimild í a-lið 1. mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála enda var þess getið í fyrirkallinu að þannig gæti farið um meðferð málsins.
Með vísan til framanritaðs og til rannsóknargagna málsins telst framangreind háttsemi sönnuð og er hún rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.
Ákærði er fæddur í janúar 1951. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 10. janúar 2019, á hann að baki nokkurn sakarferil. Ákærði gekkst undir sekt samkvæmt lögreglustjórasátt 22. mars 2013, fyrir þjófnað. Þá gekkst ákærði gekkst undir sekt samkvæmt lögreglustjórasátt 29. apríl 2016, fyrir fíkniefnalagabrot. Nú síðast var hann dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir þjófnaðarbrot. Var þar um að ræða hegningarauki við fyrri lögreglustjórasátt 29. apríl 2016. Ákærði var sektaður og sviptur ökurétti í 6 mánuði 16. mars 2009 fyrir ölvunarakstur. Þar áður hafði hann gengist undir sekt samkvæmt lögreglustjórasátt 16. mars 2009, vegna umferðarlagabrots. Við ákvörðun refsingar er miðað að ákærði sé nú í fyrsta sinn fundinn sekur um að aka óhæfur til að stjórna bifreið örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna.
Með þeim brotum sem ákærði er sakfelldur fyrir í þessu máli hefur hann rofið skilorð fyrrgreinds dóms frá 7. desember 2016. Þar eð refsing sú sem ákærði hefur nú unnið til fer fram úr sektum verður skilorðið dæmt upp og ákærða dæmd refsing í einu lagi, sbr. 60. gr. laga nr. 19/1940, sbr. og 77. gr. sömu laga. Með hliðsjón af sakarefni þessa máls og því sem að framan er rakið þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í tvo mánuði. Ekki þykja efni til að skilorðsbinda refsinguna.
Með vísan til lagaákvæða í ákæru er ákærði sviptur ökurétti í 12 mánuði frá birtingu dóms þessa að telja. Með vísan til lagaákvæða í ákæru eru gerð upptæk til ríkissjóðs 8,12 g af maríhúana, sem lögregla lagði hald á við rannsókn málsins. Ákærði greiði 134.355 krónur í annan sakarkostnað. Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Einar Laxness aðstoðarsaksóknari. Benedikt Smári Skúlason, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóminn.
D Ó M S O R Ð:
Ákærði, Jóhann Vísir Gunnarsson, sæti fangelsi í 2 mánuði. Ákærði er sviptur ökurétti í 12 mánuði frá birtingu dómsins að telja. Upptæk eru gerð til ríkissjóðs 8,12 g af maríhúana. Ákærði greiði 134.355 krónur í sakarkostnað.
Benedikt Smári Skúlason