Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 27. mars 2019.
Mál nr. S-155/2019:
Ákæruvaldið
(Haukur Gunnarsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Ingunni Mýrdal Guðmundsdóttur
Mál
þetta, sem dómtekið var í dag, er höfðað með ákæru, útgefinni af
lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 26. febrúar 2019, á hendur Ingunni
Mýrdal Guðmundsdóttur, kt. 000000-0000,
[...]
, Reykjavík, fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa
þriðjudaginn 23. október 2018 ekið bifreiðinni
[...]
svipt ökurétti, undir
áhrifum áfengis og óhæf til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og
fíkniefna (í blóði mældist vínandamagn 0,94‰ og tetrahýdrókannabínól 18 ng/ml)
um Njarðargötu í Reykjavík uns hún stöðvaði bifreiðina við hringtorg á
Njarðargötu og Sóleyjargötu og fór af vettvangi fótgangandi.
Telst
brot þetta varða við 1., sbr. 2. mgr. 45. gr., 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a. og
Lykilorð
Akstur án ökuréttar. Ávana- og fíkniefni. Fangelsi. Ítrekun. Ölvunarakstur. Umferðarlagabrot. Útivist.
Útdráttur
Ákærða var sakfelld fyrir að aka undir áhrifum áfengis og ávana- og fíkniefni, svipt ökurétti. Var hún dæmd til að sæta fangelsi í 60 daga.
Mál þetta, sem dómtekið var í dag, er höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 26. febrúar 2019, á hendur Ingunni Mýrdal Guðmundsdóttur, kt. 000000-0000, [...], Reykjavík, fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa þriðjudaginn 23. október 2018 ekið bifreiðinni [...] svipt ökurétti, undir áhrifum áfengis og óhæf til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist vínandamagn 0,94‰ og tetrahýdrókannabínól 18 ng/ml) um Njarðargötu í Reykjavík uns hún stöðvaði bifreiðina við hringtorg á Njarðargötu og Sóleyjargötu og fór af vettvangi fótgangandi.
Telst brot þetta varða við 1., sbr. 2. mgr. 45. gr., 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr., allt sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.
Þess er krafist að ákærða verði dæmd til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 101. og 102. gr. laga nr. 50/1987, sbr. 25. og 26. gr. laga nr. 44/1993, sbr. 18. gr. laga nr. 66/2006.
Ákærða sótti ekki þing við þingfestingu málsins og hafði ekki boðað forföll en hafði verið birt ákæra og fyrirkall. Verður málið dæmt samkvæmt heimild í a-lið 1. mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála enda var þess getið í fyrirkallinu að þannig gæti farið um meðferð málsins.
Með vísan til framanritaðs og til rannsóknargagna málsins telst framangreind háttsemi sönnuð og er hún rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.
Ákærða er fædd í október 1983. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 20. febrúar 2019, á ákærða sakaferil að baki. Meðal annars gekkst ákærða undir greiðslu sektar með sátt hjá embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu hinn 26. nóvember 2012 fyrir að aka undir áhrifum áfengis og án þess að hafa öðlast ökuréttindi. Þá var ákærða dæmd í tveggja mánaða fangelsi með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur hinn 26. apríl 2016, meðal annars fyrir þjófnað, vörslur fíkniefna og fyrir að aka undir áhrifum áfengis og ávana- og fíkniefna, án þess að hafa öðlast ökurétt. Nú síðast var ákærða dæmd í 30 daga fangelsi með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur hinn 31. maí 2017 fyrir vörslur fíkniefna, og fyrir að aka undir áhrifum áfengis- og ávana- og fíkniefna, svipt ökurétti. Sakavottorð ákærðu hefur að öðru leyti ekki þýðingu í málinu. Við ákvörðun refsingar hér verður þannig við það miðað að ákærða gerist nú sek um að aka undir áhrifum áfengis- og/eða ávana- og fíkniefna í fjórða sinn og svipt ökurétti í annað sinn.
Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni málsins og dómvenju, þykir refsing ákærðu hæfilega ákveðin fangelsi í 60 daga.
Með vísan til lagaákvæða í ákæru er ákærða áréttuð ævilöng svipting ökuréttar ákærðu frá birtingu dómsins að telja.
Ákærða greiði 147.018 krónur í sakarkostnað.
Þórhildur Líndal, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóminn.
D Ó M S O R Ð:
Ákærða, Ingunn Mýrdal Guðmundsdóttir, sæti fangelsi í 60 daga.
Áréttuð er ævilöng svipting ökuréttar ákærðu frá birtingu dómsins að telja.
Ákærða 147.018 krónur í sakarkostnað.
Þórhildur Líndal