Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 27. febrúar 2019.
Mál nr. S-15/2019:
Ákæruvaldið
(Kristmundur Stefán Einarsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Jóni Aroni Óskarssyni
Mál
(Steinbergur Finnbogason lögmaður)
Lykilorð
Akstur án ökuréttar. Fangelsi. Ítrekun. Umferðarlagabrot. Útivist.
Útdráttur
Ákærði var sakfelldur fyrir að aka sviptur ökurétti. Var hann dæmdur til að sæta fangelsi í 60 daga.
Mál þetta, sem dómtekið var í dag, er höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 15. janúar 2019, á hendur Jóni Aroni Óskarssyni, kt. [...],[...], Kópavogi, fyrir umferðarlagabrot í Reykjavík með því að hafa að kvöldi miðvikudagsins 4. apríl 2018 ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti um Gullinbrú við Stórhöfða, uns aksturinn var stöðvaður skömmu síðar.
Telst brot þetta varða við 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.
Hvorki ákærði né verjandi hans sóttu þing í dag og höfðu ekki boðað forföll en verjandi ákærða hafði sótt þing fyrir hönd ákærða við þingfestingu málsins og óskað eftir fresti til dagsins í dag. Verður málið því dæmt samkvæmt heimild í a-lið 1. mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, enda var þess getið í fyrirkallinu að þannig gæti farið um meðferð málsins.
Með vísan til framanritaðs og til rannsóknargagna málsins telst framangreind háttsemi sönnuð og er hún rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.
Ákærði er fæddur [...] og er í máli þessu sakfelldur fyrir að aka sviptur ökurétti. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 10. janúar 2019, á ákærði sakaferil að baki og hefur meðal annars nokkrum sinnum gerst sekur um að aka sviptur ökurétti. Með dómi Héraðsdóms Suðurlands, dagsettum 24. október 2013, var ákærða gert að greiða sekt meðal annars fyrir að aka undir áhrifum áfengis, sviptur ökurétti. Þá gekkst ákærði einnig undir greiðslu sektar með sátt lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu hinn 12. júní 2015 fyrir að aka sviptur ökurétti. Nú síðast var ákærði dæmdur í 60 daga fangelsi í Héraðsdómi Austurlands hinn 15. desember 2015 fyrir að aka undir áhrifum áfengis, sviptur ökurétti. Samkvæmt framangreindu verður þannig við ákvörðun refsingar í málinu við það miðað að ákærði gerist nú sekur um að aka sviptur ökurétti í fjórða skipti.
Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni málsins og dómvenju og þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 60 daga.
Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Steinbergs Finnbogasonar lögmanns, 105.400 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti.
Þórhildur Líndal, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóminn.
D Ó M S O R Ð:
Ákærði, Jón Aron Óskarsson, sæti fangelsi í 60 daga.
Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Steinbergs Finnbogasonar lögmanns, 105.400 krónur.
Þórhildur Líndal