Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 17. desember 2018.
Mál nr. S-846/2018:
Ákæruvaldið
(Súsanna Björg Fróðadóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Nadeem Maqbool
(Páll Rúnar M. Kristjánsson lögmaður)
Lykilorð
Fangelsi. Játningarmál. Skilorðsbundnir dómar. Skjalafals.
Útdráttur
Ákærði sakfelldur fyrir skjalafals, brot á lögum um útlendinga og lögum um atvinnuréttindi útlendinga. Var hann dæmdur til að sæta fangelsi í 5 mánuði, skilorðsbundið til tveggja ára.
Mál þetta, sem dómtekið var í dag, er höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á Suðurnesjum 17. desember 2018, á hendur Nadeem Maqbool, f.d. [...], ríkisborgara [...], fyrir skjalafals og misnotkun skjala, brot gegn lögum um útlendinga og brot á lögum um atvinnuréttindi útlendinga sem hér greinir:
I.
Fyrir skjalafals með eftirfarandi hætti: i. Með því að hafa, þann 20. júní 2017, sótt um kennitölu til Þjóðskrár hjá Íslandsbanka hf., kt. 000000-0000, í nafni [...], fd. [...], ríkisborgara [...] og í blekkingarskyni, framvísað breytifölsuðu bresku vegabréfi nr. [...], á nafni [...], fd. [...], með gildistíma frá 19.11.2010 til 19.11.2020. ii. Með því að hafa, þann 18. ágúst 2017 undirritað og lagt inn til Þjóðskrár, umsókn vegna starfsráðningar, fyrir ríkisborgara evrópska efnahagssvæðisins (EEA/EFTA) um staðfestingu á réttmætri dvöl á Íslandi lengur en þrjá mánuði, í nafni sama aðila, [...], kt. 000000-0000, og í blekkingaskyni, framvísað breytifölsuðu bresku vegabréfi nr. [...], á nafni [...], fd. [...], með gildistíma frá 19.11.2010 til 19.11.2020. iii. Með því að hafa, þann 18. ágúst 2017, lagt fram til Þjóðskrár, í blekkingarskyni, sem fylgigagn sbr. lið ii að ofan, starfssamningi við [...] ehf. [...], Reykjavík, á nafni sama aðila, [...], dags. [...], undirrituðum af ákærða og fulltrúa atvinnurekanda.
Telst þessi háttsemi ákærða varða við 1. mgr. 155. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
II.
Fyrir skjalafals og misnotkun skjala, með því að hafa, mánudaginn 22. október 2018, framvísað, við afskipti lögreglu af honum á vinnustað hans, veitingastaðnum [...],[...], Reykjavík, í blekkingarskyni, fölsuðu [...] ökuskírteini, á nafni [...], kt. 000000-0000, með gildistíma frá 08.02.2017 til 07.02.2027 og debetkorti ánöfnuðu á sama aðila.
Telst þessi háttsemi ákærða varða við 1. mgr. 155. gr. og 1. mgr. 157. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
III.
Fyrir skjalafals, með því að hafa, mánudaginn 22. október 2018, framvísað í framhaldi af afskiptum lögreglu vegna ákæruliðar II., að Skipholti 40, Reykjavík, í blekkingaskyni, breytifölsuðu bresku vegabréfi nr. [...], á nafni [...], fd. [...], með gildistíma frá 19.11.2010 til 19.11.2010.
Telst þessi háttsemi ákærða varða við 1. mgr. 155. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
IV.
Fyrir brot gegn lögum um útlendinga og lögum um atvinnuréttindi útlendingar, með því að hafa; i. Frá 23. ágúst 2017, dvalið í heimildarleysi á Íslandi, án áritana og dvalarleyfis, en ákærði kom sér í ágúst 2017 undan flutningi úr landi eftir að honum var synjað um alþjóðlega vernd. ii. Á tímabilinu frá júní 2017 til september 2018 starfað hér á landi, án heimildar, á persónuauðkennum [...], fd. [...],[...] ríkisborgara, með íslensku kt. 000000-0000, sem hann aflaði sbr. ákærulið I., sem hér greinir;
| Tímabil | Vinnustaður | Kt. Vinnustaðar |
|---|---|---|
| Júní 2017 | [...] | 000000-0000 |
| Júlí 2017 | [...] | 000000-0000 |
| Ágúst 2017 | [...] | 000000-0000 |
| Ágúst 2017 | [...] | 000000-0000 |
| September 2017 | [...] | 000000-0000 |
| September 2017 | [...] | 000000-0000 |
| September 2017 | [...] | 000000-0000 |
| Október 2017 | [...] | 000000-0000 |
| Október 2017 | [...] | 000000-0000 |
| Október 2017 | [...] | 000000-0000 |
| Nóvember 2017 | [...] | 000000-0000 |
| Nóvember 2017 | [...] | 000000-0000 |
| Desember 2017 | HOLD veitingar ehf. | 000000-0000 |
| Janúar 2018 | HOLD veitingar ehf. | 000000-0000 |
| Febrúar 2018 | HOLD veitingar ehf. | 000000-0000 |
| Mars 2018 | HOLD veitingar ehf. | 610916-0740 |
| Apríl 2018 | HOLD veitingar ehf. | 610916-0740 |
| Maí 2018 | HOLD veitingar ehf. | 610916-0740 |
| Júní 2018 | HOLD veitingar ehf. | 610916-0740 |
| Júlí 2018 | HOLD veitingar ehf. | 610916-0740 |
| Ágúst 2018 | HOLD veitingar ehf. | 610916-0740 |
| September 2018 | HOLD veitingar ehf. | 610916-0740 |
Telst þessi háttsemi ákærða í lið IV.i varða við 1. mgr. 49. gr. og 50. gr., sbr. a. lið 116. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og í lið IV.ii varða við 4. mgr. 6. gr., sbr. a. lið 1. mgr. 27. gr. laga nr. 97/2002 um atvinnuréttindi útlendinga.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.
Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.
Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.
Verjandi ákærða krefst vægustu refsingar er lög leyfa og gerir ekki kröfu um þóknun sér til handa.
Ákærði er fæddur þann [...]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði dagsettu 17. desember 2018, hefur hann ekki áður gerst sekur um refsivert brot.
Við ákvörðun refsingar er litið til þess að ákærði hefur gengist greiðlega við broti sínu fyrir dómi og verður það virt honum til málsbóta.
Með hliðsjón af framangreindu, 77. gr. almennra hegningarlaga og sakarefni málsins þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 5 mánuði, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955. Komi til afplánunar refsivistar ákærða skal draga frá henni gæsluvarðhald sem hann sætti með fullri dagatölu, sbr. 76. gr. almennra hegningarlaga, eins og nánar greinir í dómsorði.
Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns á rannsóknarstigi, Halldóru Aðalsteinsdóttur lögmanns, 147.560 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti.
Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Súsanna Björg Fróðadóttir aðstoðarsaksóknari. Benedikt Smári Skúlason, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóminn.
D Ó M S O R Ð:
Ákærði, Nadeem Maqbool, sæti fangelsi í 5 mánuði en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955. Komi til afplánunar refsivistar ákærða Nadeem Maqbool skal draga frá henni gæsluvarðhald sem hann hefur sætt frá 23. október 2018 vegna málsins.
Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns á rannsóknarstigi, Halldóru Aðalsteinsdóttur lögmanns, 147.560 krónur.