Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-829/2018:

Ákæruvaldið

(Friðrik Smári Björgvinsson aðstoðarsaksóknari)

gegn

Inga Páli Bollasyni

(Björgvin Halldór Björnsson lögmaður)

Ávana- og fíkniefni. Brot gegn valdstjórninni. Hegningarauki.

Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni, lögreglulögum og lögum um ávana- og fíkniefni.

Mál þetta, sem dómtekið var 21. janúar síðastliðinn, var höfðað með ákæru héraðssaksóknara, útgefinni 6. desember síðastliðinn, á hendur Inga Páli Bollasyni, kennitala   000000-0000,   [...],   Reykjavík,   „fyrir   eftirtalin   brot   gegn   almennum hegningarlögum,   lögum   um   ávana-   og   fíkniefni   og   lögreglulögum   framin   í Reykjavík:

  1. Brot gegn valdstjórninni og lögreglulögum, með því að hafa miðvikudaginn 22. nóvember 2017 á Snorrabraut veist með ofbeldi að lögreglumanninum A, sem var við skyldustörf og sat í farþegasæti kyrrstæðrar lögreglubifreiðar, og reynt að slá hann með krepptum hnefum og hótað honum   líkamsmeiðingum   og   með   því   að   hafa   ekki   hlýtt   fyrirmælum lögreglu um að láta af háttsemi sinni og fara frá lögreglubifreiðinni og með því að hafa hindrað störf lögreglu með því að spyrna hurð lögreglubifreiðarinnar aftur og halda henni þegar lögreglumaðurinn reyndi útgöngu úr lögreglubifreiðinni.
  2. Brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, með því að hafa miðvikudaginn 22. nóvember 2017 haft í vörslum sínum 3,45 g af amfetamíni, 1,54 g af kókaíni og 0,89 g af maríjúana sem lögreglan fann við leit í klæðum hans á lögreglustöðinni við Hverfisgötu eftir handtöku.
  3. Brot gegn valdstjórninni, með því að hafa að kvöldi fimmtudagsins 4. janúar 2018 á veitingastaðnum Moe´s við Jafnasel veist með ofbeldi að lögreglumanninum B, sem var þar við skyldustörf, og m.a. klórað hann í framan og ítrekað reynt að slá hann í andlit með þeim afleiðingum að B hlaut í átökunum 5 sentimetra grunna rispu út frá vinstra munnviki, roða á vinstra eyra og eymsli aftan við eyrað, núningsáverka á hnúum löngutangar, baugfingurs og litlafingurs á hægri hendi, grunnt hrufl innanvert á vinstri olnboga, sitt hvora grunna rispu innanvert á báðum framhandleggjum og grunn hrufl framan á báðum hnjám.

    Telst   háttsemi   skv.   1.   tl.   ákæru   varða   við   1.   mgr.   106.   gr.   almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og 19. gr. lögreglulaga nr. 90/1996, háttsemi skv. 2. tl. ákæru við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 ásamt síðari breytingum og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002 og háttsemi skv. 3. tl. við 1. mgr. 106. gr. almennrar hegningarlaga nr. 19/1940.

    Þess   er   krafist   að   ákærði   verði   dæmdur   til   refsingar   og   greiðslu   alls sakarkostnaðar. Þá er krafist upptöku á 3,45 g af amfetamíni, 1,54 g af kókaíni og 0,89 g af maríjúana sem lagt var hald á sbr. 2. tl. ákæru, skv. 6. og 7. mgr. 5. gr. laga nr.   65/1974   og   2.   mgr.   14.   gr.   reglugerðar   nr.   233/2001,   sbr.   reglugerð   nr. 848/2002.“

    Ákærði hefur fyrir dómi skýlaust játað að hafa framið brot þau sem honum eru gefin að sök í ákærunni og er játning hans studd sakargögnum.  Það eru því efni til að leggja dóm á málið samkvæmt 1. mgr. 164. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.  Samkvæmt þessu verður ákærði sakfelldur fyrir brotin sem eru réttilega færð til refsiákvæða í ákærunni. Samkvæmt sakavottorði var ákærða refsað níu sinnum á árunum 2009 til 2017 fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot. Síðasti dómurinn er frá 11. september 2017 er hann var dæmdur í 90 daga fangelsi. Þá var ákærði dæmdur í 2 mánaða fangelsi 4. desember 2018 fyrir minni háttar líkamsárás og brot gegn barnaverndarlögum. Brotin   sem   ákært   er   fyrir   í   1.   og   2.   ákærulið   eru   hegningarauki   við síðastgreindan dóm, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga. Refsing ákærða verður ákveðin samkvæmt 77. gr. sömu laga og er hún hæfilega ákveðin fangelsi í fjóra mánuði sem ekki eru skilyrði til að skilorðsbinda. Fíkniefni verða gerð upptæk eins og krafist er og nánar greinir í dómsorði. Loks verður ákærði dæmdur til að greiða sakarkostnað og málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, sem ákvörðuð er að meðtöldum virðisaukaskatti í dómsorði.

    Arngrímur Ísberg héraðsdómari kveður upp dóminn.

D ó m s o r ð:

Ákærði, Ingi Páll Bollason, sæti fangelsi í fjóra mánuði. Upptæk skulu vera 3,45 g af amfetamíni, 1,54 g af kókaíni og 0,89 g af maríjúana. Ákærði greiði 40.410 krónur í sakarkostnað og málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Björgvins Halldórs Björnssonar lögmanns, 316.200 krónur.

Arngrímur Ísberg