Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-191/2018:

Ákæruvaldið

(Kristmundur Stefán Einarsson saksóknarfulltrúi)

gegn

Pétri Þór Birgissyni

Fangelsi. Játningarmál. Skilorðsrof. Umferðarlagabrot.

Ákærði var sakfelldur fyrir að hafa ítrekað ekið sviptur ökurétti. Var hann dæmdur til að sæta fangelsi í 17 mánuði. Með brotum sínum rauf ákærði skilorð eldri dóms og var skilorðsbundinn hluti refsingar þess dóms tekinn upp og honum dæmd refsing í einu lagi.

Mál þetta, sem dómtekið var í dag, er höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum   á   höfuðborgarsvæðinu   10.   apríl   2018,   á   hendur   Pétri   Þór Birgissyni, kt. 000000-0000,           Arnarsmára 28, 201 Kópavogi, fyrir eftirtalin umferðarlagabrot á árunum 2016 og 2017:

I.

Með því að hafa, laugardaginn 10. desember 2016, ekið bifreiðinni [---] sviptur ökurétti norður Mýrargötu í Reykjavík að Seljavegi, uns aksturinn var stöðvaður skömmu síðar.

Telst brot þetta varða við 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987.

II.

Með því að hafa, föstudaginn 5. maí 2017, ekið bifreiðinni [---] sviptur ökurétti um Bústaðaveg í Reykjavík, við Sogaveg, uns aksturinn var stöðvaður skömmu síðar.

Telst brot þetta varða við 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987.

III.

Með því að hafa, miðvikudaginn 21. júní 2017, ekið bifreiðinni [---] sviptur ökurétti   vestur   Engihjalla   í   Kópavogi,   móts   við   hús   nr.   1,   uns   aksturinn   var stöðvaður skömmu síðar.

Telst brot þetta varða við 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987.

IV.

Með því að hafa, fimmtudaginn 17. ágúst 2017, ekið bifreiðinni [---] sviptur ökurétti um Gullinbrú í Reykjavík, við Stórhöfða, uns aksturinn var stöðvaður skömmu síðar.

Telst brot þetta varða við 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987.

V.

Með því að hafa, þriðjudaginn 5. desember 2017, ekið bifreiðinni [---] sviptur ökurétti suður Suðurlandsveg á Selfossi, við bensínstöð Orkunnar, uns aksturinn var stöðvaður skömmu síðar.

Telst brot þetta varða við 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

Verjandi   ákærða   krefst   vægustu   refsingar   sem   lög   leyfa   og   hæfilegrar þóknunar sér til handa.

Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga. Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru. Ákærði   er   fæddur   í   ágúst   1981.   Samkvæmt   framlögðu   sakavottorði, dagsettu 6. apríl 2018, á ákærði að baki nokkurn sakaferil sem nær aftur til ársins 1997. Hefur hann margítrekað verið fundinn sekur um að aka sviptur ökurétti. Nú síðast var hann sakfelldur fyrir sviptingarbrot með dómi Héraðsdóms Reykjaness, uppkveðnum 21. maí 2015. Var hann dæmdur til að sæta fangelsi í fjóra mánuði. Ákærði   var   dæmdur   í   60   daga   fangelsi,   skilorðsbundið   í   tvö   ár,   fyrir fíkniefnalagabrot, 27. september 2016. Með brotum sínum nú hefur ákærði rofið framangreint skilorð og verður refsingin því tekin upp og ákærða gerð refsing í einu lagi,   sbr.   60.   og   77.   gr.   almennra   hegningarlaga   nr.   19/1940.   Ákærði   er   nú sakfelldur fyrir að hafa í alls fimm skipti á tímabilinu 10. desember 2016 til 5. desember 2017 ekið sviptur ökurétti. Með   hliðsjón   af   framangreindu,   sakarefni   málsins   og   dómvenju   þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 17 mánuði. Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Ómars R. Valdimarssonar lögmanns, 126.480 krónur. Engan annan sakarkostnað leiddi af meðferð málsins. Af   hálfu   ákæruvaldsins   flutti   málið   Kristmundur   Stefán   Einarsson saksóknarfulltrúi. Lilja Rún Sigurðardóttir, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóminn.

D Ó M S O R Ð:

Ákærði, Pétur Þór Birgisson, sæti fangelsi í 17 mánuði. Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Ómars R. Valdimarssonar lögmanns, 126.480 krónur.

Lilja Rún Sigurðardóttir