Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 23. maí 2019.
Mál nr. E-2088/2018:
D Ó M U R
nr. E-2088/2018:
Lánasjóður íslenskra
námsmanna
(Árni Þórólfur Árnason lögmaður)
gegn
Victoriu Nunez Cavazos,
Stefáni Hjálmarssyni,
Árna Hjálmarssyni,
Lilju Björk Hjálmarsdóttur,
Smára Hjálmarssyni og
Guðjóni Hjálmarssyni
Mál
þetta, sem dómtekið var 2. apríl 2019, höfðaði Lánasjóður íslenskra námsmanna,
Borgartúni 21, Reykjavík, með stefnu birtri 14. og 28. febrúar, 7. mars og 16.
maí 2018. Stefndu eru Victoria Nunez Cavazos og Stefán Hjálmarsson, bæði til
heimilis að Tronesveien 14, 4307 Sandnes, Noregi, Árni Hjálmarsson,
Alekärrsvägen 9, Surte, Svíþjóð, Lilja Björk Hjálmarsdóttir, Jöklaseli 31,
Reykjavík, Smári Hjálmarsson, Bogabraut 950, Reykjanesbæ, og Guðjón
Hjálmarsson, Engjahlíð 1, Hafnarfirði.
Stefnandi
gerir þær dómkröfur að stefndu verði dæmd til að greiða honum óskipt 7.519.761
krónu, með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001, af 123.505
krónum frá 1. mars 2014 til 1. mars 2015, af 248.285 krónum frá þeim degi til
13. febrúar 2017, og af 7.519.761 krónu frá þeim degi til greiðsludags. Þá
krefst stefnandi málskostnaðar úr hendi stefndu, að teknu tilliti til
virðisaukaskatts.
Stefndu
Árni Hjálmarsson, Lilja Björk Hjálmarsdóttir, Smári Hjálmarsson og Guðjón
Hjálmarsson krefjast sýknu af öllum dómkröfum stefnanda, auk málskostnaðar, að
teknu tilliti til virðisaukaskatts.
Stefndu,
Victoria Nunez Cavazos og Stefán Hjálmarsson, sóttu ekki þing við þingfestingu
málins og hafa ekki látið málið til sín taka.
I
Málsatvik
Helstu málsatvik
eru þau að stefnda Victoria Nunez Cavasos tók námslán hjá stefnanda og gaf af
því tilefni út skuldabréf nr. G-070547. Skuldabréfið sjálft er ódagsett en
stefnandi kveður það hafa verið útgefið þann 1. febrúar 2007. Halldóra
Stefánsdóttir, tengdamóðir Victoriu og móðir stefnda Stefáns Hjálmarssonar, tók
á sig sjálfskuldarábyrgð á greiðslu lánsins með undirritun á skuldabréfið,
fyrir fjárhæð allt að 1.500.000 krónur miðað við grunnvísitölu 258,9. Halldóra
tók á sig frekari sjálfskuldarábyrgð vegna lánsins með undirritun yfirlýsinga
um viðbótarábyrgð, þann 3. október 2007 fyrir 1.000.000 króna m.v.
grunnvísitölu 258,9, þann 31. október 2007 fyrir 1.500.000 krónum m.v,.
grunnvísitölu 271,0 og loks þann 9. apríl 2008 fyrir 1.000.000 króna m.v.
grunnvísitölu 271,0.
Halldóra
lést 17. desember 2011 og sat þá í óskiptu búi eftir eiginmann sinn, Hjálmar
Kristinsson, sem lést 13. júní 2010. Hjálmar heitinn var faðir stefndu, annarra
en Victoriu, en ekkert þeirra er sammæðra hinum. Hjónin gerðu erfðaskrá 30.
janúar 1991 þar sem kveðið var á um, í samræmi við 8. gr. erfðalaga nr. 8/1962,
sbr. 3. gr. laga nr. 48/1989, að það þeirra sem lengur lifði hefði heimild til
þess að sitja í óskiptu búi til andláts síns eða svo lengi sem það óskaði, án
þess að afla þyrfti samþykkis annarra erfingja. Leyfi til setu í óskiptu búi
var gefið út 4. ágúst 2010.
Stefnandi
kveður fyrsta gjalddaga námslánsins hafa verið 1. mars 2011. Afborganir þess
hafi verið í vanskilum frá 1. mars 2014 og hafi lánið verið gjaldfellt 13.
janúar 2017 samkvæmt heimild í skuldabréfinu sjálfu og í samræmi við lög nr.
21/1992 um Lánasjóð íslenskra námsmanna og almennar reglur kröfuréttar. Þá hafi
gjaldfallnar afborganir numið samtals 248.285 krónum, en eftirstöðvar lánsins
(Árni Vilhjálmsson lögmaður)
Lykilorð
Dánarbú. Lögskýring. Sjálfskuldarábyrgð. Skuldamál.
Útdráttur
Lánasjóður íslenskra námsmanna krafðist þess að stefndu, þ.e. skuldara, maka hennar og fjórum hálfsystkinum hans, yrði gert að greiða í sameiningu skuld vegna námsláns. Skuldarinn sjálfur og maki hennar tóku ekki til varna en það gerðu hin stefndu, sem krafin voru um greiðslu skuldarinnar vegna sjálfskuldarábyrgðar sem þau höfðu tekist á hendur við einkaskipti á dánarbúi tengdamóður skuldarans, en hún hafði verið ábyrgðarmaður að námsláninu og sat við andlát sitt í óskiptu búi eftir eiginmann sinn, föður annarra stefndu en skuldarans. Byggðu þau stefndu sem tóku til varna á því að þau væru ekki erfingjar ábyrgðarmannsins, tengdamóður skuldarans, en túlka yrði 97. gr. laga nr. 20/1991 í ljósi erfðalaga nr. 8/1962. Á það féllst dómurinn ekki. Þá var ekki á það fallist að stefnandi hefði vanrækt svo verulega tilkynningaskyldu sína í skilningi 2. mgr. 7. gr. laga nr. 32/2009 að leiða ætti til brottfalls ábyrgðar þeirra. Mótmæli við dráttarvaxtakröfu, sem byggðu á 3. mgr. sömu lagagreinar, voru heldur ekki tekin til greina. Loks var ekki fallist á að skilyrði væru til að víkja ábyrgðarskuldbindingu þeirra til hliðar með vísan til 36. gr. laga nr. 7/1936. Í ljósi skýrrar yfirlýsingar sinnar um sjálfskuldarábyrgð, bæði í umsókn um leyfi til einkaskipta og við lok einkaskipta, voru þessi stefndu því dæmd til greiðslu skuldarinnar, sameiginlega með þeim stefndu sem ekki tóku til varna.
Mál þetta, sem dómtekið var 2. apríl 2019, höfðaði Lánasjóður íslenskra námsmanna, Borgartúni 21, Reykjavík, með stefnu birtri 14. og 28. febrúar, 7. mars og 16. maí 2018. Stefndu eru Victoria Nunez Cavazos og Stefán Hjálmarsson, bæði til heimilis að Tronesveien 14, 4307 Sandnes, Noregi, Árni Hjálmarsson, Alekärrsvägen 9, Surte, Svíþjóð, Lilja Björk Hjálmarsdóttir, Jöklaseli 31, Reykjavík, Smári Hjálmarsson, Bogabraut 950, Reykjanesbæ, og Guðjón Hjálmarsson, Engjahlíð 1, Hafnarfirði. Stefnandi gerir þær dómkröfur að stefndu verði dæmd til að greiða honum óskipt 7.519.761 krónu, með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001, af 123.505 krónum frá 1. mars 2014 til 1. mars 2015, af 248.285 krónum frá þeim degi til 13. febrúar 2017, og af 7.519.761 krónu frá þeim degi til greiðsludags. Þá krefst stefnandi málskostnaðar úr hendi stefndu, að teknu tilliti til virðisaukaskatts. Stefndu Árni Hjálmarsson, Lilja Björk Hjálmarsdóttir, Smári Hjálmarsson og Guðjón Hjálmarsson krefjast sýknu af öllum dómkröfum stefnanda, auk málskostnaðar, að teknu tilliti til virðisaukaskatts. Stefndu, Victoria Nunez Cavazos og Stefán Hjálmarsson, sóttu ekki þing við þingfestingu málins og hafa ekki látið málið til sín taka.
I
Málsatvik
Helstu málsatvik eru þau að stefnda Victoria Nunez Cavasos tók námslán hjá stefnanda og gaf af því tilefni út skuldabréf nr. G-070547. Skuldabréfið sjálft er ódagsett en stefnandi kveður það hafa verið útgefið þann 1. febrúar 2007. Halldóra Stefánsdóttir, tengdamóðir Victoriu og móðir stefnda Stefáns Hjálmarssonar, tók á sig sjálfskuldarábyrgð á greiðslu lánsins með undirritun á skuldabréfið, fyrir fjárhæð allt að 1.500.000 krónur miðað við grunnvísitölu 258,9. Halldóra tók á sig frekari sjálfskuldarábyrgð vegna lánsins með undirritun yfirlýsinga um viðbótarábyrgð, þann 3. október 2007 fyrir 1.000.000 króna m.v. grunnvísitölu 258,9, þann 31. október 2007 fyrir 1.500.000 krónum m.v,. grunnvísitölu 271,0 og loks þann 9. apríl 2008 fyrir 1.000.000 króna m.v. grunnvísitölu 271,0. Halldóra lést 17. desember 2011 og sat þá í óskiptu búi eftir eiginmann sinn, Hjálmar Kristinsson, sem lést 13. júní 2010. Hjálmar heitinn var faðir stefndu, annarra en Victoriu, en ekkert þeirra er sammæðra hinum. Hjónin gerðu erfðaskrá 30. janúar 1991 þar sem kveðið var á um, í samræmi við 8. gr. erfðalaga nr. 8/1962, sbr. 3. gr. laga nr. 48/1989, að það þeirra sem lengur lifði hefði heimild til þess að sitja í óskiptu búi til andláts síns eða svo lengi sem það óskaði, án þess að afla þyrfti samþykkis annarra erfingja. Leyfi til setu í óskiptu búi var gefið út 4. ágúst 2010. Stefnandi kveður fyrsta gjalddaga námslánsins hafa verið 1. mars 2011. Afborganir þess hafi verið í vanskilum frá 1. mars 2014 og hafi lánið verið gjaldfellt 13. janúar 2017 samkvæmt heimild í skuldabréfinu sjálfu og í samræmi við lög nr. 21/1992 um Lánasjóð íslenskra námsmanna og almennar reglur kröfuréttar. Þá hafi gjaldfallnar afborganir numið samtals 248.285 krónum, en eftirstöðvar lánsins þá verið 7.271.475 krónur, uppreiknað miðað við vísitölu þann dag 438,4 og 1% vexti. Samkvæmt yfirliti um framvindu skipta á dánarbúi Halldóru veitti sýslumaðurinn í Keflavík lögerfingjum, þ.e. öllum stefndu öðrum en Victoriu, leyfi til einkaskipta þann 30. apríl 2012 en einkaskiptum lauk 7. febrúar 2013. Er ekki um það deilt að þessi stefndu rituðu undir beiðni um leyfi til einkaskipta í mars og apríl 2012, þar sem því var lýst yfir „að erfingjar taka að sér sjálfskuldarábyrgð, einn fyrir alla og allir fyrir einn, á öllum skuldbindingum búsins og gjöldum sem fylgja skiptum og arftöku.“ Jafnframt veittu þau stefnda Stefáni Hjálmarssyni umboð til að koma fram af þeirra hálfu og í nafni dánarbúsins í samskiptum við aðra, þar á meðal við ráðstöfun eigna, viðtöku andvirðis þeirra, opinbera skýrslugerð og til að taka við tilkynningum í þeirra þágu vegna dánarbúsins. Í málinu er deilt um það hvort þau stefndu sem tekið hafa til varna í málinu beri að réttum lögum sjálfskuldarábyrgð á námsláni þessu. Við aðalmeðferð málsins gáfu Árni Hjálmarsson og Lilja Björk Hjálmarsdóttir aðilaskýrslu, en auk þess gaf eiginmaður Lilju Bjarkar skýrslu sem vitni.
II
Málsástæður stefnanda
Í stefnu eru málsástæður stefnanda raktar samhliða lýsingu málsatvika, en hér verða helstu málsástæður raktar. Stefnandi bendir á að fjárkrafa máls þessa sé tilkomin vegna námsláns stefndu Victoriu sem hún hafi fengið greitt út á árinu 2011. Stefnda hafi við útgáfu skuldabréfs nr. G-070547 þann 1. febrúar 2007 gengist undir skilmála lánsins, sem séu í samræmi við ákvæði laga nr. 21/1992 um Lánasjóð íslenskra námsmanna. Lánið sé verðtryggt miðað við vísitölu neysluverðs og beri breytilega vexti, sem séu 1% samkvæmt ákvæðum reglugerðar nr. 478/2011 um Lánasjóð íslenskra námsmanna og reiknist frá námslokum sem stefnandi ákvarði. Við námslok stefndu 29. júní 2011 hafi skuldabréfið verið fyllt út með heildarfjárhæð lánsins, 5.177.178 krónur, miðað við grunnvísitölu 310,0, eins og stefnda hafi heimilað stefnanda við undirritun skuldabréfsins. Hafi endurgreiðsla lánsins átt að hefjast tveimur árum eftir námslok og fara fram í tvennu lagi, annars vegar með fastri ársgreiðslu með gjalddaga 1. mars ár hvert, er taka skyldi breytingum í hlutfalli við vísitölu neysluverðs, og hins vegar með tekjutengdri ársgreiðslu með gjalddaga 1. september ár hvert, sem sé ákveðið hlutfall af tekjustofni lánþega árið á undan, að frádreginni föstu greiðslunni. Stefnandi bendir á að ábyrgðarmaðurinn, Halldóra Stefánsdóttir, hafi við andlát sitt setið í óskiptu búi eftir eiginmann sinn, Hjálmar Kristinsson, föður allra stefndu annarra en Victoriu. Sýslumaðurinn í Keflavík hafi veitt lögerfingjum leyfi til einkaskipta 30. apríl 2012 og hafi einkaskiptum á búinu lokið 7. febrúar 2013, samkvæmt yfirliti um framvindu skipta, en lögerfingjar séu stefndu Stefán Hjálmarsson, Árni Hjálmarsson, Lilja Björk Hjálmarsdóttir, Smári Hjálmarsson og Guðjón Hjálmarsson. Stefnandi byggir á því að samkvæmt 97. gr. laga nr. 20/1991 um skipti á dánarbúum o.fl. beri erfingjar, einn fyrir alla og allir fyrir einn, ábyrgð á skuldbindingum dánarbús eftir að einkaskiptum er lokið. Stefnandi mótmæli þeim vörnum stefndu Árna, Lilju Bjarkar, Smára og Guðjóns að þau hafi ekki verið erfingjar Halldóru heldur einungis eiginmanns hennar, Hjálmars heitins, sem röngum. Ákvæði 97. gr. laga nr. 20/1991 kveði fortakslaust á um óskipta ábyrgð erfingja á skuldbindingum dánarbús eftir að einkaskiptum er lokið. Í ljósi einkaskipta á dánarbúi Halldóru, sem setið hafði í óskiptu búi eftir eiginmann sinn, Hjálmar, hafi stefndu, börn Hjálmars heitins, þannig tekið á sig óskipta ábyrgð á öllum skuldbindingum sem á dánarbúinu hvíldu, þar á meðal skuldbindingu samkvæmt ábyrgð sem Halldóra gekkst í gagnvart stefnanda og sem kröfur stefnanda á hendur þessum stefndu séu byggðar á. Nánari sundurliðun kröfunnar sé sem hér segir:
Gjaldfallin afborgun dags. 01.03.2014 kr. 123.505,- dags.
01.03.2015 kr. 124.780,- Samtals kr. 248.285,- Gjaldfallnar eftirstöðvar 13.01.2017 kr.
7.271.476,- Samtals kr. 7.519.761,- Dómkrafan á hendur aðalskuldara með dráttarvöxtum á þingfestingardegi sé 8.997.781 króna. Halldóra Stefánsdóttir hafi tekist á hendur sjálfskuldarábyrgð fyrir samtals allt að 8.421.073 krónur, uppreiknað miðað við vísitölu neysluverðs í janúar 2018, 446,0 stig. Erfingjum dánarbúsins, stefndu Stefáni, Árna, Lilju Björk, Smára og Guðjóni, sé því stefnt til greiðslu skuldarinnar í heild óskipt með aðalskuldara lánsins, stefndu Victoriu. Þess sé krafist að við ákvörðun málskostnaðar verði tekið tillit til þess kostnaðar sem hlotist hafi af þýðingu stefnunnar vegna birtingar hennar á hendur stefndu Victoriu og Stefáni í Noregi og stefnda Árna í Svíþjóð auk kostnaðar af stefnubirtingu að því leyti sem hann reynist hærri en almennt sé hér á landi. Stefnandi tekur fram að hann sé ekki virðisaukaskattsskyldur aðili og geri því kröfu um að við ákvörðun málskostnaðar verði tekið tillit til skyldu til greiðslu virðisaukaskatts af þóknun lögmanns. Um lagarök segir í stefnu að mál þetta sé höfðað og rekið samkvæmt XVII. kafla laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Stefnandi vísi til laga nr. 21/1992 um Lánasjóð íslenskra námsmanna, með síðari breytingum, sem og til viðeigandi reglugerða og úthlutunarreglna settra á grundvelli laganna. Þá sé enn fremur vísað til almennra reglna kröfu- og samningaréttarins um greiðslu fjárskuldbindinga. Um dráttarvaxtakröfu sé vísað til III. og V. kafla laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu. Varðandi varnarþing sé vísað til 3. mgr. 42. gr. laga nr. 91/1991 en málið sé rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur samkvæmt sérstöku ákvæði í skuldabréfinu sjálfu, sbr. einnig lög nr. 7/2011 um Lúganósamninginn um dómsvald o.fl. Varðandi kröfu um málskostnað vísi stefnandi til 129. og 130. gr. laga nr. 91/1991. Um kröfu um virðisaukaskatt á málskostnað sé vísað til laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt. Þá sé jafnframt vísað til laga nr. 20/1991 um skipti á dánarbúum o.fl., einkum til 97. gr. laganna.
III
Málsástæður stefndu Árna, Lilju Bjarkar, Smára og Guðjóns
Í greinargerð eru málsástæður stefndu Árna, Lilju Bjarkar, Smára og Guðjóns raktar samhliða lýsingu málsatvika, en hér verða helstu málsástæður þeirra raktar.
Aðildarskortur
Stefndu byggja í fyrsta lagi á því að sýkna beri þau af kröfum stefnanda vegna aðildarskorts. Skýrt sé af erfðalögum nr. 8/1962, sbr. 1. gr. laganna, að þau séu ekki lögerfingjar Halldóru Stefánsdóttur ábyrgðarmanns. Halldóra hafi haft leyfi samkvæmt erfðaskrá til setu í óskiptu búi föður stefndu, Hjálmars Kristinssonar, án samþykkis stefndu. Jafnframt hafi fulltrúi sýslumannsins í Keflavík kosið að ljúka skiptum á dánarbúi Hjálmars Kristinssonar, föður stefndu, með einni sameiginlegri skiptagerð við einkaskipti á dánarbúi Halldóru Stefánsdóttur, með þeim afleiðingum að stefndu séu ranglega skráð sem lögerfingjar og börn Halldóru ábyrgðarmanns í upplýsingakerfum sýslumanns. Þessi atvik málsins, sem stefndu hafi reynt að fá leiðrétt, geri stefndu hins vegar ekki að lögerfingjum Halldóru í skilningi erfðalaga. Af því leiði, að mati stefndu, að þau geti ekki talist erfingjar við einkaskipti dánarbús Halldóru Stefánsdóttur ábyrgðarmanns í skilningi 97. gr. laga nr. 20/1991, sem beri óskipta ábyrgð á skuldbindingum dánarbús hennar í skilningi ákvæðisins. Því beri þessum stefndu engin skylda til þess að greiða fjárkröfu stefnanda, enda hafi þau ekki erft og beri enga ábyrgð á þessari skuldbindingu dánarbús Halldóru gagnvart stefnanda. Beri því að sýkna stefndu vegna aðildarskorts, sbr. 2. mgr. 16. gr. laga um meðferð einkamála nr. 91/1991. Af erfðafjárskýrslu megi skýrlega sjá að stefndu hafi aðeins erft föður sinn, Hjálmar Kristinsson, ólíkt stefnda, Stefáni Hjálmarssyni, sem erft hafi móður sína, Halldóru, að fullu en hann sé maki lántaka, stefndu Victoriu. Það að skiptum á dánarbúum þeirra Hjálmars og Halldóru hafi verið lokið með einni sameiginlegri erfðafjárskýrslu, sem virðist ígildi skiptagerðar, samkvæmt leiðbeiningum og ákvörðun fulltrúa sýslumannsins í Keflavík, breyti ekki framangreindri staðreynd.
Ábyrgðarskuldbindingin er fallin niður fyrir vanrækslu á tilkynningarskyldu og tómlæti Stefndu byggja á því að stefnandi hafi ekki tilkynnt stefndu um ábyrgðarskuldbindingu málsins, hvorki við upphaf einkaskipta 30. apríl 2012, undir skiptunum sjálfum, né þegar þeim lauk hinn 7. febrúar 2013 er yfirfærsla ábyrgðarinnar til meintra erfingja á að hafa átt sér stað vegna einkaskipta á dánarbúi ábyrgðarmanns.
Samkvæmt síðustu málsgrein í tilkynningu til stefndu Victoriu um lokun skuldabréfs, dags. 18. janúar 2013, hafi tilkynningin einnig átt að sendast til ábyrgðarmanna og hefði því átt að berast dánarbúi Halldóru og með þeim hætti til stefndu, en einkaskiptum var þá ólokið. Engin slík tilkynning hafi borist dánarbúinu eða stefndu, en stefndu byggja á því að upplýsingarnar hefðu haft lykiláhrif á framgang einkaskiptanna. Raunar leiki verulegur vafi á því að tilkynning um frágang skuldabréfs nr. G-070547 hafi nokkurn tímann verið send lántaka og ætluðum ábyrgðarmönnum, þar sem einungis hafi verið lögð fram tilkynning sem snerti ótengt skuldabréf nr. G-116021. Þá hafi innheimtubréf til lántaka, stefndu Victoriu, vegna vanskila, dags. 10. júní 2014, einnig verið send ábyrgðarmanni, samkvæmt efni bréfsins. Á þessum tímapunkti hafi tæpt eitt og hálft ár verið liðið frá því að einkaskiptum á dánarbúum málsins lauk, en stefndu hafi enga slíka innheimtuviðvörun fengið eftir því sem þau komist næst. Stefnandi virðist því annaðhvort ekki hafa litið á stefndu sem ábyrgðarmenn á þeim tímapunkti eða hafa vanrækt að tilkynna þeim um vanskilin. Stefndu virðist fyrst hafa verið tilkynnt um yfirfærslu ábyrgðar málsins til þeirra sem erfingja og um vanskil námslánsins með bréfi Gjaldskila, dags. 11. maí 2015, rúmum þremur árum frá upphafi einkaskipta og rúmum tveimur árum frá lokum þeirra, en þá hafi jafnframt verið liðin um tvö og hálft ár frá frágangi skuldabréfsins hinn 18. janúar 2013. Stefnandi hafi þannig vanrækt verulega að tilkynna ætluðum erfingjum Halldóru um yfirfærslu þeirra skuldbindinga og réttinda sem mál þetta varði. Halldóra Stefánsdóttir virðist hafa undirritað ábyrgðaryfirlýsingar sínar á árunum 2007 og 2008, eins og áður sagði. Lög nr. 32/2009 um ábyrgðarmenn gildi að meginreglu til um ábyrgðir sem stofnað hafi verið til fyrir gildistöku laganna, sbr. 12. gr. þeirra. Benda stefndu á að í 7. gr. laganna sé fjallað um tilkynningarskyldu lánveitanda gagnvart ábyrgðarmanni. Megintilgangur ákvæðisins samkvæmt lögskýringargögnum sé að lánveitandi upplýsi ábyrgðarmann um öll þau atvik sem áhrif hafi á forsendur ábyrgðar, ábyrgðarmanni í óhag. Með vísan til framangreinds telji stefndu að stefnandi hafi vanrækt tilkynningarskyldu sína samkvæmt 7. gr. laga nr. 32/2009, með því að senda ekki tilkynningar til dánarbús Halldóru og/eða stefndu sem ætlaðra erfingja, við upphaf einkaskipta, frágang og lokun skuldabréfs lántaka, við vanskil lántaka, og við lok einkaskipta þegar meint yfirfærsla ábyrgðar málsins eigi að hafa átt sér stað. Þá virðist stefnandi hafa vanrækt að senda til dánarbúsins og/eða stefndu árlegar tilkynningar um stöðu láns og ábyrgða frá upphafi einkaskipta og fram að vanskilum lántaka árið 2014. Þessi vanræksla sé að mati stefndu veruleg, en ábyrgðarmaður skuli vera skaðlaus af vanrækslu lánveitanda á tilkynningarskyldu og falli ábyrgð niður sé slík vanræksla veruleg, sbr. 2. mgr. 7. gr. laganna. Stefndu vísa einnig til þess að stefnandi sé stjórnvald í skilningi stjórnsýslulaga nr. 37/1993, sbr. 1. gr. laganna. Stefnandi hafi ákveðið að beina ábyrgðarskuldbindingu málsins að stefndu og virðist þá hafa ákveðið að skrá stefndu sem ábyrgðarmenn á námsláni málsins í upplýsingakerfum lánasjóðsins. Á stefnanda hafi þá hvílt skylda til rannsóknar, leiðbeiningar og meðalhófs, sbr. 7., 10. og 12. gr. stjórnsýslulaga. Vanræksla stefnanda á því að senda fullnægjandi og tímanlegar tilkynningar, eins og fjallað hafi verið um hér að að framan, hafi brotið í bága við framangreindar reglur stjórnsýsluréttar að mati stefndu. Af framangreindu leiði að þau eignarréttindi stefnanda sem felist í ábyrgðarskuldbindingunni séu fallin niður að áliti stefndu, bæði samkvæmt 2. mgr. 7. gr. laga nr. 32/2009 um afleiðingar vanrækslu á tilkynningarskyldu til ábyrgðarmanna og samkvæmt meginreglum kröfuréttar um tómlæti.
Ábyrgðarskuldbindingunni beri að víkja til hliðar sökum ósanngirni, sbr. 36. gr. samningalaga. Sakarefni málsins varði meðal annars fjölskyldu- og erfðarétt. Fjölskylduaðstæður stefndu Árna, Lilju, Smára og Guðjóns hafi verið óhefðbundnar vegna lítilla tengsla þeirra við föður sinn, Hjálmar Kristinsson, og við ábyrgðarmanninn Halldóru Stefánsdóttur, barnsmóður hans og síðar eiginkonu. Stefndu hafi hvorki þekkt föður sinn né Halldóru og hafi raunar ekki þekkt hvert til annars fyrr en eftir að innheimtuaðgerðir stefnanda hófust. Stefnda Stefáni Hjálmarssyni, maka lántaka, stefndu Victoriu, hafi sem sameiginlegu barni Halldóru og Hjálmars, og vegna náinna tengsla hans við hjónin, verið falið að sjá um skipti á dánarbúum þeirra í samráði við fulltrúa sýslumannsins í Keflavík. Stefndu hafi engar upplýsingar haft um eignir og skuldir Halldóru og Hjálmars aðrar en þær sem fram komu á erfðafjárskýrslu sem útbúin hafi verið af Stefáni og sýslumanni, þar sem í engu hafi verið getið um ábyrgðarskuldbindinguna. Samkvæmt sameiginlegri erfðafjárskýrslu fyrir hjónin hafi stefndi og lántaki Stefán Hjálmarsson einn erft móður sína Halldóru. Arfur stefnda Stefáns, 60% arfshlutur sem samanstóð af öllum hlut Halldóru í eignum þeirra hjóna (50%), og fimmtungshlut í helmingseign Hjálmars (10%), hafi numið 3.357.494 krónum. Stefndu Árni, Lilja, Smári og Guðjón hafi hins vegar aðeins erft föður sinn Hjálmar, ásamt stefnda Stefáni (50% af eignum til skiptanna) og hafi hvert þeirra fyrir sig því fengið 10% arfshlut að fjárhæð 559.582 krónur. Stefnandi krefjist greiðslu úr hendi allra stefndu óskipt þar sem maki stefnda Stefáns, lántaki Victoria, hafi komið námsláni sínu í vanskil. Ef fallist yrði á málatilbúnað stefnanda og túlkun hans á 97. gr. skiptalaga hefði slík túlkun í för með sér að erfingjum látins einstaklings yrði skylt að taka á sig ábyrgðarskuldbindingar sem stofnað var til af óskyldri eiginkonu viðkomandi, þrátt fyrir að teljast ekki lögerfingjar eiginkonunnar í skilningi erfðalaga, og þrátt fyrir að raunverulegur lögerfingi hennar hefði erft allar eignir hennar við búskipti. Slík beiting 97. gr. skiptalaga fái ekki að staðist að mati stefndu og sé í hið minnsta verulega ósanngjörn gagnvart erfingjum hins skammlífara hjóna þegar hið langlífara situr í óskiptu búi hins án samþykkis einkabarna hins skammlífara. Framangreind túlkun 97. gr. skiptalaga sé að mati stefndu jafnframt ósamrýmanleg meginreglu hjúskaparlaga eins og hún birtist í 68. gr. laganna, að annað hjóna geti ekki skuldbundið hitt með samningsgerð, nema með heimild í samningi eða lögum. Til viðbótar framangreindu telji stefndu að stefnandi hafi vanrækt tilkynningarskyldu sína samkvæmt lögum um ábyrgðarmenn nr. 32/2009. Loks árétta stefndu að stefnandi sé lánasjóður og einn stærsti lánveitandi landsins, en lánasafn hans nemi um 223 milljörðum króna. Verulegur aðstöðumunur sé með aðilum málsins. Annars vegar hafi verið verulegur aðstöðumunur með stefnanda og Halldóru er hún gekkst í sjálfskuldarábyrgð fyrir son sinn, stefnda Stefán, 6. júlí 2009, er hún var á sjötugsaldri. Hins vegar sé verulegur aðstöðumunur með stefnanda og stefndu. Á því tímabili er einkaskipti fóru fram á dánarbúum Halldóru og Hjálmars, og allt þar til stefnandi ákvað að beina ábyrgðarskuldbindingu málsins að stefndu í maí 2015, hafi stefnandi verið í kjöraðstöðu til að afla upplýsinga um stöðu ábyrgðar Halldóru, og fullnægja tilkynningarskyldu sinni í þeim efnum. Stefndu hafi aftur á móti engar upplýsingar haft um eignir og skuldir Halldóru og Hjálmars. Hefði stefnandi sinnt tilkynningar- og upplýsingaskyldu sinni, og hefði jafnræði verið með aðilum í málinu, þá hefði legið fyrir við einkaskiptin að skuldbindingar dánarbúa málsins væru mun hærri en eignir og hefðu einkaskipti þá aldrei farið fram. Með vísan til allra atvika málsins og framangreinds rökstuðnings telji stefndu Árni, Lilja, Smári og Guðjón það verulega ósanngjarnt af hálfu stefnanda að bera fyrir sig ábyrgðarskuldbindingu málsins gagnvart þeim. Stefndu byggi því einnig á þeirri málsástæðu að víkja eigi ábyrgð málsins til hliðar í heild sinni, sbr. 1. mgr. 36. gr. laga um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga nr. 7/1936. Stefndu mótmæla kröfu stefnanda um dráttarvexti, með vísan til framangreindra málsástæðna og 3. mgr. 7. gr. laga nr. 32/2009, enda hafi þeim sem ætluðum ábyrgðarmönnum ekki verið gefinn kostur á að greiða afborganir lántaka á þeim tímabilum sem tilgreind séu í dráttarvaxtakröfu í stefnu. Um lagarök er í stefnu vísað til erfðalaga nr. 8/1962, laga um ábyrgðarmenn nr. 32/2009, stjórnsýslulaga nr. 37/1993, laga um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga nr. 7/1936, og loks til meginreglna kröfu- og eignarréttar um tómlæti. Krafa um málskostnað sé reist á 129. og 130. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála.
IV
Niðurstaða
Við þingfestingu málsins 21. júní 2018 var ekki sótt þing af hálfu stefndu Victoriu Nunez Cavazos og Stefáns Hjálmarssonar, þrátt fyrir löglega stefnubirtingu. Ber því samkvæmt 1. mgr. 96. gr. laga nr. 91/1991 að dæma málið eftir kröfum og málatilbúnaði stefnanda að því leyti sem er samrýmanlegt framkomnum gögnum, nema gallar séu á málinu sem varða frávísun án kröfu. Fjárkrafa stefnanda á hendur stefndu Victoriu er samkvæmt skuldabréfi. Fjárkrafa stefnanda á hendur stefnda Stefáni er samkvæmt yfirlýsingu hans um sjálfskuldarábyrgð með öðrum erfingjum á öllum skuldbindingum dánarbús foreldra hans, þar með á þeirri sjálfskuldarábyrgð sem móðir hans hafði gengist í vegna umrædds skuldabréfs. Málið er réttilega höfðað á umsömdu varnarþingi samkvæmt skuldabréfinu, sbr. 3. mgr. 42. gr. laga nr. 91/1991, en auk þess á varnarþingsregla 1. mgr. sömu greinar við, sbr. 1. mgr. 32. gr. sömu laga. Samkvæmt 1. mgr. 5. gr. laga nr. 150/2007 um fyrningu kröfuréttinda fyrnast kröfur samkvæmt skuldabréfi á tíu árum og reiknast fyrningarfrestur gagnvart ábyrgðarmanni eftir sömu reglum og gilda um aðalkröfuna, sbr. 7. gr. sömu laga. Um fyrningu kröfu um dráttarvexti gildir fjögurra ára fyrningarfrestur eftir meginreglu 3. gr. sömu laga. Málið var höfðað 14. febrúar 2018 og eru kröfur um dráttarvexti því ófyrndar. Ekki verður annað séð en að dómkröfur stefnanda gagnvart þessum stefndu samræmist framkomnum gögnum og eru engir gallar á málinu sem varða frávísun þess án kröfu. Verða stefndu Victoria og Stefán því dæmd til að greiða stefnanda óskipt stefnufjárhæðina, með dráttarvöxtum, eins og nánar greinir í dómsorði.
Stefndu Árni, Lilja Björk, Smári og Guðjón, hafa tekið til varna.
Í stefnu segir að málið sé rekið samkvæmt XVII. kafla laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, en í ákvæðum þess kafla felast takmarkanir við því hvaða vörnum verður komið að í skuldabréfamáli. Stefnandi gaf þó yfirlýsingu fyrir dómi, í samræmi við 1. mgr. 119. gr. laganna, um að hann samþykkti að frekari varnir, þ.e. allar varnir sem stefndu hafa teflt fram, komist að í málinu. Stefndu byggja kröfu sína um sýknu í fyrsta lagi á aðildarskorti, eins og nánar er rakið í kafla III hér að framan. Í málflutningi kom fram að stefndu telji dóma Hæstaréttar Íslands, þar sem fallist hefur verið á að erfingjar látins sjálfskuldarábyrgðarmanns, hvers búi hefur verið skipt einkaskiptum, beri ábyrgð á skuldbindingum hans gagnvart stefnanda, svo sem í máli nr. 229/2015, ekki hafa fordæmisgildi í þessu máli. Málsatvik í þessu máli séu ólík atvikum í dómum réttarins að því leyti að stefndu hafi ekki tekið arf eftir Halldóru Stefánsdóttur, heldur einungis föður sinn, Hjálmar Kristinsson. Hjálmar hafi sem hið skammlífara þeirra hjóna aldrei tekið á sig ábyrgðarskuldbindingu Halldóru. Þar af leiðandi geti erfingjar hans ekki borið ábyrgð á þeirri skuldbindingu hennar, en túlka verði 97. gr. laga nr. 20/1991 um skipti á dánarbúum o.fl., einkum orðið „erfingjar“, í ljósi erfðalaga nr. 8/1962. Það er skilyrði þess að sýslumaður gefi út leyfi til einkaskipta, „að erfingjar hafi tekið að sér sjálfskuldarábyrgð, einn fyrir alla og allir fyrir einn, á öllum skuldbindingum sem kunna að hvíla á búinu og gjöldum sem leiða af skiptunum eða arftöku“, sbr. 5. tölulið 1. mgr. 28. gr. laga nr. 20/1991. Þá er ákvæði 97. gr. laganna svohljóðandi: „Eftir að einkaskiptum er lokið bera erfingjar einn fyrir alla og allir fyrir einn ábyrgð á skuldbindingum búsins án tillits til þess hvort þeim var kunnugt um þær áður en skiptum var lokið.“ Orðalag þessa lagaákvæðis er fortakslaust um sameiginlega ábyrgð erfingja á skuldbindingum dánarbús þegar einkaskipti þess hafa farið fram og er ekkert í lögskýringargögnum að baki því sem styður þann skilning stefndu að ábyrgð erfingja fari eftir arfshlutfalli þeirra. Stefndu stóð til boða að krefjast opinberra skipta á óskiptu dánarbúi Halldóru og föður þeirra, treystu þau því ekki að fullnægjandi upplýsingar lægju fyrir um skuldir og ábyrgðarskuldbindingar hennar, sbr. 38. gr. laga nr. 20/1991. Enn fremur áttu þau þess kost að láta uppi þá afstöðu sína við sýslumann, svo sýslumaður hæfist handa við að krefjast opinberra skipta, sbr. 37. gr. sömu laga. Þá áttu þau þess kost samkvæmt 24. gr. laganna að óska heimildar sýslumanns til að afla upplýsinga hjá öðrum um eignir bús og skuldastöðu í krafti valdheimilda hans, sbr. 10. gr. laganna, teldu þau sig ekki geta aflað fullnægjandi upplýsinga um skuldir og ábyrgðir búsins með öðrum hætti. Stefndu neyttu ekki framangreindra úrræða heldur undirrituðu, ásamt stefnda Stefáni Hjálmarssyni, í mars og apríl 2012, beiðni um útgáfu leyfis til einkaskipta, þar sem þau lýstu því yfir að þau sem erfingjar hvors hinna látnu tækju að sér sjálfskuldarábyrgð, einn fyrir alla og allir fyrir einn, á öllum skuldbindingum dánarbúsins. Veitti sýslumaður leyfið 30. apríl það ár og lauk einkaskiptum 6. febrúar 2013 með undirritun þeirra undir yfirlýsingu sama efnis á erfðafjárskýrslu vegna dánarbús beggja hjónanna, en slík erfðafjárskýrsla getur talist ígildi skiptagerðar, sbr. 4. mgr. 93. gr. laga nr. 20/1991. Stefndu draga ekki í efa gildi undirritana sinna undir framangreindar yfirlýsingar og verður ekki annað séð af þessum skjölum en að stefndu hafi með þeim tekið á sig ábyrgð á öllum skuldbindingum hins óskipta bús, alls óháð hlutfalli erfðaréttar þeirra í búinu. Samkvæmt framanrituðu verður að hafna málsástæðu stefndu um aðildarskort. Í öðru lagi byggja stefndu á því að ábyrgðarskuldbinding þeirra sé fallin niður fyrir verulega vanrækslu á tilkynningarskyldu, sbr. 2. mgr. 7. gr. laga nr. 32/2009 um ábyrgðarmenn og meginreglur kröfuréttar um tómlæti. Í framangreindri beiðni um leyfi til einkaskipta sem stefndu undirrituðu veittu þau stefnda Stefáni Hjálmarssyni umboð til að koma fram af hálfu þeirra og í nafni dánarbúsins í samskiptum við aðra, þar á meðal til að taka við tilkynningum í þeirra þágu vegna dánarbúsins. Gátu þau því ekki vænst þess að þeim sjálfum bærust tilkynningar vegna dánarbúsins á meðan einkaskiptum var ólokið. Skiptum lauk 7. febrúar 2013 en vanskil lánsins hófust í mars 2014. Stefndu var með bréfi, dags. 11. maí 2015, tilkynnt að lánið væri í vanskilum, um stöðu þess og fjárhæð gjaldfallinna afborgana, og að krafan myndi eftirleiðis beinast að þeim vegna ábyrgðar þeirra sem erfingja dánarbús sem lokið hefði verið með einkaskiptum. Eins og fyrr sagði stóðu stefndu önnur úrræði til boða en að óska eftir leyfi til einkaskipta. Það hvíldi á þeim sjálfum að afla viðhlítandi upplýsinga um skuldir og ábyrgðir dánarbúsins, áður en þó tókust á hendur þá sjálfskuldarábyrgð sem leyfi til einkaskipta fylgir lögum samkvæmt. Stefnanda verður ekki kennt um vanhöld á þeirri upplýsingaöflun. Stefndu hafa ekki sýnt fram á að stefnandi hafi við beitingu tryggingarréttinda sinna valdið þeim sem ábyrgðarmönnum öðrum og meiri skaða en bættur verði með úrræðum 3. og 4. mgr. 7. gr. laga nr. 32/2009, sbr. til hliðsjónar dóm Hæstaréttar Íslands frá 5. nóvember 2015 í máli nr. 229/2015. Verður því ekki talið um svo verulega vanrækslu að ræða að leiða eigi til niðurfalls ábyrgðarskuldbindingar, sbr. 2. mgr. 7. gr. laganna. Meginreglur kröfuréttar um tómlæti geta ekki leitt til annarrar niðurstöðu. Hið sama verður sagt um reglur stjórnsýslulaga nr. 37/1993, sem stefndu byggja á að hafi verið brotnar með vanrækslu stefnanda um að senda fullnægjandi og tímanlegar tilkynningar. Verður framangreindum málsástæðum því öllum hafnað. Stefndu byggja í þriðja lagi á því að víkja beri ábyrgðarskuldbindingunni til hliðar sökum ósanngirni, með vísan til 36. gr. laga nr. 7/1936.
Í því efni benda stefndu á að þau hafi ekkert þekkt föður sinn og því síður eiginkonu hans, Halldóru heitna eða hálfbróður sinn, stefnda Stefán Hjálmarsson. Þá hafi þau aðeins erft föður sinn, ólíkt stefnda Stefáni sem erft hafi bæði móður sína og föður. Þessar aðstæður varða ekki stefnanda og verður ekki séð hvernig þær geti gert það að verkum að ósanngjarnt sé af stefnanda að bera fyrir sig ábyrgðarskuldbindingu Halldóru heitinnar og þá ábyrgð sem stefndu tóku á sig á skuldum hins óskipta dánarbús með einkaskiptum þess, en á þeirri ákvörðun bera stefndu sjálf ábyrgð, eins og fyrr sagði, og geta ekki varpað henni á stefnda vegna skorts á tímanlegum tilkynningum. Í þessu efni hefur meginregla 68. gr. hjúskaparlaga enga þýðingu.
Þá byggja stefndu á því að verulegur aðstöðumunur hafi verið með stefnanda, sem sé einn stærsti lánveitandi landsins, og Halldóru sem var um sextugt við undirritun ábyrgðaryfirlýsinganna. Það eitt og sér er ekki fullnægjandi til þess að ósanngjarnt geti talist af stefnanda að bera fyrir sig ábyrgðarskuldbindinguna Einnig benda stefndu á að aðstöðumunur sé með þeim og stefnanda, vegna þess að stefnandi hafi verið í „kjöraðstöðu“ til að afla upplýsinga um stöðu ábyrgðar Halldóru og fullnægja tilkynningarskyldu sinni, en stefndu hafi engar upplýsingar haft um eignir og skuldir dánarbús Halldóru og föður þeirra, aðrar en þær sem hálfbróðir þeirra, stefndi Stefán, aflaði. Hvað það varðar skal endurtekið að stefndu geta ekki varpað á stefnanda eigin ábyrgð á öflun upplýsinga um stöðu dánarbúsins hvað skuldir og ábyrgðir snertir. Að öllu framanrituðu virtu í heild verður ekki á það fallist að ósanngjarnt geti talist eða andstætt góðri viðskiptavenju, sbr. 36. gr. laga nr. 7/1936, að stefnandi beri fyrir sig ábyrgðarskuldbindingu Halldóru heitinnar og þá ábyrgð sem stefndu tóku á sig á skuldum dánarbúsins með einkaskiptum þess.
Í greinargerð stefndu er dráttarvaxtakröfu sérstaklega mótmælt. Ekki verður á þau mótmæli fallist enda hefðu stefndu, eftir viðtöku tilkynningar stefnanda, dags. 11. maí 2015, sem áður var nefnd, getað boðið fram greiðslu gjaldfallinna afborgana, ásamt áföllnum vöxtum, verðbótum og kostnaði. Þar sem þau gerðu það ekki geta þau ekki borið fyrir sig 3. mgr. 7. gr. laga nr. 32/2009.
Samkvæmt framanrituðu, og þar sem öllum málsástæðum stefndu hefur verið hafnað, ber að fallast á dómkröfu stefnanda um að stefndu verði öll dæmd til að greiða honum óskipt stefnufjárhæðina, ásamt dráttarvöxtum eins og krafist er og nánar greinir í dómsorði.
Eftir úrslitum málsins, sbr. 1. mgr. 130. gr. laga nr. 91/1991, verður stefndu Árna, Lilju Björk, Smára og Guðjóni Hjálmarsbörnum gert að greiða stefnanda málskostnað óskipt, sem þykir hæfilega ákveðinn með þeirri fjárhæð sem í dómsorði greinir, að teknu tilliti til virðisaukaskatts. Þar af verða stefndu Victoria Nunez Cavazos og Stefán Hjálmarsson, sem ekki tóku til varna, dæmd til að greiða hluta málskostnaðar óskipt með öðrum stefndu. Við ákvörðun málskostnaðar stefndu, annarra en Victoriu, hefur verið litið til málskostnaðarákvörðunar í öðru máli sem flutt var og dæmt er samhliða þessu máli, þ.e. mál nr. E-206/2018, sbr. 4. mgr. 130. gr. sömu laga. Hildur Briem héraðsdómari kveður upp dóm þennan, að gættu ákvæði 1. mgr. 115. gr. laga nr. 91/1991, en dómsuppsaga dróst vegna embættisanna dómara og helgidaga. Af hálfu stefnanda flutti málið Árni Þórólfur Árnason lögmaður, en Árni Vilhjálmsson lögmaður flutti málið af hálfu þeirra stefndu sem tóku til varna.
Dómsorð:
Stefndu, Victoria Nunez Cavazos, Stefán Hjálmarsson, Árni Hjálmarsson, Lilja Björk Hjálmarsdóttir, Smári Hjálmarsson og Guðjón Hjálmarsson, greiði stefnanda, Lánasjóði íslenskra námsmanna, óskipt 7.519.761 krónu, með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001, af 123.505 krónum frá 1. mars 2014 til 1. mars 2015, af 248.285 krónum frá þeim degi til 13. febrúar 2017, og af 7.519.761 krónu frá þeim degi til greiðsludags. Stefndu Árni Hjálmarsson, Lilja Björk Hjálmarsdóttir, Smári Hjálmarsson og Guðjón Hjálmarsson greiði stefnanda óskipt 550.000 krónur í málskostnað, en þar af greiði stefnda Victoria Nunez Cavazos 220.000 krónur og stefndi Stefán Hjálmarsson 125.000 krónur óskipt með öðrum stefndu í málskostnað til stefnanda.
Hildur Briem