Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 1. febrúar 2017.
Mál nr. S-4/2017:
Ákæruvaldið
(Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Kestutis Kiskevicius
Lykilorð
Fangelsi. Játningarmál. Skilorð. Skilorðsbundnir dómar. Þjófnaður.
Útdráttur
Ákærði sakfelldur fyrir þjófnað og umferðarlagabrot.
lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 10. janúar 2017, á hendur Kestutis Kiskevicius, kt. 000000-0000, Grundartanga 23, Mosfellsbæ, fyrir eftirtalin brot:
- Umferðarlagabrot, með því að hafa fimmtudaginn 17. nóvember 2016 ekið bifreiðinni JP-222 án þess að hafa öðlast ökurétt austur Vesturlandsveg í Reykjavík, við Húsasmiðjuna, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn og að hafa ekið bifreiðinni umrætt sinn án þess að hún væri í lögmæltu ástandi en stöðuljós loguðu ekki aftan á bifreiðinni.
Telst brot þetta varða við 1. mgr. 48. gr. og 1., sbr. 2. og 3. mgr. 59. gr., allt sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 með áorðnum breytingum.
- Þjófnað, með því að hafa laugardaginn 3. desember 2016 í verslun Krónunnar, Háholti 13-15, Mosfellsbæ, í félagi við Daiva Kiskeviciene stolið mat- og snyrtivörum að verðmæti kr. 25.328.
Telst brot þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Ákærði krefst vægustu refsingar sem lög leyfa.
Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.
Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og er háttsemin réttilega heimfærð til refsiákvæða í ákæru.
Ákærði er fæddur í janúar 1974. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 3. janúar 2017, var honum, 7. júlí 2016, gert að sæta sektarrefsingu með lögreglustjórasátt vegna þjófnaðarbrots.
Að því virtu og með hliðsjón af sakarefni þessa máls þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 30 daga en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa að haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Engan sakarkostnað leiddi af meðferð málsins.
Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Katrín Ólöf Einarsdóttir aðstoðarsaksóknari.
Lilja Rún Sigurðardóttir, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóminn.
D Ó M S O R Ð:
Ákærði, Kestutis Kiskevicius, sæti fangelsi í 30 daga en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Lilja Rún Sigurðardóttir