Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 8. júní 2017.
Mál nr. S-326/2017:
Ákæruvaldið
(Hildur S. Pálmadóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
A
(Jón Egilsson hdl)
Lykilorð
Fangelsi. Játningarmál. Líkamsárás. Skilorð.
Útdráttur
Ákærði sakfelldur fyrir líkamsárás.
Mál þetta, sem dómtekið var 1. júní síðastliðinn, er höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 16. maí 2017, á hendur A kt. [...], [...], Reykjavík, „fyrir líkamsárás með því að hafa fimmtudaginn 28. ágúst 2016 utan við veitingastaðinn B5, Bankastræti 5, veist að sambýliskonu og barnsmóður sinni [...], kt. [...], með því að rífa í föt hennar og kasta henni í götuna með þeim afleiðingum að hún féll á hnakkann og hlaut kúlu á höfði yfir hvirfli hægra megin og 1 cm skurð þar við.
Telst brot þetta varða við 1. mgr. 217. gr. og 218. gr. b almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 11. gr. laga nr. 20/1981.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.“
Ákærði játar sök og krefst vægustu refsingar. Hann heldur því fram að brot hans varði eingöngu við 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga og honum verði ekki jafnframt refsað fyrir brot gegn 218. gr. b sömu laga. Verjandi ákærða krefst málsvarnarlauna.
Með játningu ákærða, sem styðst við önnur gögn málsins, er sannað að hann hafi gerst sekur um þann verknað sem honum er gefinn að sök í ákæruskjalinu. Hann verður því sakfelldur fyrir það sem honum er gefið að sök í ákæruskjalinu.
Í 1. mgr. 218. gr. b almennra hegningarlaga segir að hver sem endurtekið eða á alvarlegan hátt ógnar lífi, heilsu eða velferð núverandi eða fyrrverandi maka síns eða sambúðaraðila eða annarra þeirra, sem taldir eru upp í ákvæðinu, skuli sæta refsingu þeirri sem ákveðin er í lagagreininni. Hér var um eina atlögu að ræða og var hvorki hún né afleiðingarnar alvarlegar. Samkvæmt þessu varðar brot ákærða við 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga.
Samkvæmt sakavottorði ákærða hefur honum nokkrum sinnum verið refsað fyrir ofbeldisbrot. Síðast var hann dæmdur í 6 mánaða fangelsi 2011 fyrir brot gegn 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga. Refsing hans nú er hæfilega ákveðin 60 daga fangelsi sem bundin skal skilorði eins og í dómsorði segir.
Loks verður ákærði dæmdur til að greiða sakarkostnað og málsvarnarþóknun verjanda síns sem ákveðin er með virðisaukaskatti í dómsorði.
Arngrímur Ísberg héraðsdómari kveður upp dóminn.
D Ó M S O R Ð:
Ákærði, A, sæti fangelsi í 60 daga en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dómsins, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Ákærði greiði 37.800 krónur í sakarkostnað og málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Jóns Egilssonar hrl., 168.640 krónur.
Arngrímur Ísberg 8