Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-262/2017:

D Ó M U R

máli nr. S-262/2017:

Ákæruvaldið

(Hrafnhildur M. Gunnarsdóttir aðstoðarsaksóknari)

gegn

Martin Gilpin

(Guðmundur Birgir Ólafsson hrl)

Brot gegn valdstjórninni.

Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni.

Mál   þetta,   sem   dómtekið   var   1.   september   sl.,   er   höfðað   með   ákæru útgefinni af héraðssaksóknara, 12. apríl 2017, á hendur Martin Gilpin, [...], fyrir brot gegn valdstjórninni, með því að hafa að kvöldi mánudagsins 30. nóvember 2015, í eldhúsi íbúðar að [...], er lögregla hugðist handtaka ákærða, veitt mótspyrnu við handtökuna og brugðið fæti aftur fyrir fætur lögreglumannsins A og kippt í þannig að hún féll aftur fyrir sig, skall með hnakka á borðbrún og datt síðan í gólfið, allt með þeim afleiðingum að hún hlaut tognun og ofreynslu á hálsi og mar og yfirborðsáverka á höfði. Er þetta talið varða við 1. mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Er   þess   krafist   að   ákærði   verði   dæmdur   til   refsingar   og   greiðslu   alls sakarkostnaðar.

Ákærði neitar sök. Verjandi ákærða krefst sýknu og að sakarkostnaður, þ.m.t. málsvarnarlaun, verði greiddur úr ríkissjóði.

Samkvæmt skýrslu lögreglu frá mánudeginum 30. nóvember 2015 fékk lögregla þann dag kl. 20.10 boð um að fara að [...] en tilkynnt hafði verið um mikil öskur í karlmanni auk þess sem tilkynnanda hafi heyrst að húsgögnum væri kastað um íbúðina. Er lögregla hafi komið á vettvang hafi hún hitt fyrir ákærða og eiginkonu hans. Þeim hafi verið gerð grein fyrir ástæðum afskipta lögreglu. Fram kemur   að   ákærði   hafi   í   upphafi   tjáð   lögreglu   að   þau   hjónin   hefðu   rifist,   en eiginkona hans talið það hafa verið ögn meira. Hafi ákvörðun verið tekin um að færa þau í sundur og ræða við þau sitt í hvoru lagi. Í viðræðum við ákærða hafi komið fram að þau hafi setið að snæðingi og allt verið með kyrrum kjörum. Eiginkona ákærða hafi skyndilega orðið brjáluð og byrjað að öskra á ákærða og verið reið yfir því að börnin væru ekki sofnuð. Hún hafi öskrað á ákærða í nokkurn tíma og í framhaldi farið að herbergi þar sem börnin hafi verið. Þau hafi verið búin að borða. Ákærði hafi kastað glasi af vatni á eftir henni. Þar með hafi málinu verið lokið og engin líkamleg átök átt sér stað.

Í viðræðum við eiginkonu ákærða hafi komið fram að hún hafi eldað fisk í kvöldmatinn. Þegar hún hafi viljað láta drengina fara að sofa hafi ákærði misst stjórn á skapi sínu þar sem hann hafi viljað að drengirnir væru vakandi á meðan ákærði væri að borða. Þau hafi farið að rífast og farið að henda borðbúnaði sem hafi brotnað. Hafi eiginkonan farið út úr herberginu enda hafi hún ekki viljað láta ákærða leggja á sig hendur. Hún hafi greint frá því að ákærði hafi áður lagt á hana hendur og þá á meðan þau hafi verið í [...]. Tvö slík mál væru á skrá hjá lögreglu ytra, en ekki það þriðja. Þær kærur sem hefðu verið sendar lögreglu hafi hún síðar dregið til baka. Fram hafi komið hjá henni að þetta kvöld hefðu þau verið búin að drekka eina hvítvínsflösku, en ákærði missti alltaf stjórn á sér þegar hann væri undir áhrifum áfengis.

Í frumskýrslu kemur fram að sá lögreglumaður er rætt hafi við eiginkonu ákærða hafi verið varðstjóri á vettvangi, en um hafi verið að ræða lögreglumanninn B. Hann hafi í framhaldi viðræðna við eiginkonuna kynnt lögreglumönnum sem rætt hafi við ákærða, að það þyrfti að handtaka hann og flytja á lögreglustöð vegna rannsóknar   málsins.   Á   þeim   tíma   hafi   lögreglumennirnir   C   varðstjóri,   A lögreglumaður og D lögreglumaður verið hjá ákærða. Lögreglumaðurinn B hafi í framhaldi rætt áfram við eiginkonu ákærða. Þegar liðið hafi á það samtal hafi B heyrt háreisti frá eldhúsi íbúðarinnar þar sem rætt hafi verið við ákærða. Hafi ákærði greinilega verið mjög ósáttur. Í skýrslunni kemur fram að lögreglumenn innan úr eldhúsi hafi óskað eftir aðstoð B þar sem ákærði hafi verið orðinn æstur. Er B hafi komið inn í eldhús hafi ákærið snúið baki í eldhúsinnréttinguna við hliðina á eldavélinni. Hafi B tekið í vinstri hönd ákærða og snúið honum við. Tilgangurinn hafi verið að koma ákærða í handjárn. Fram kemur að B hafi áður verið búinn að sjá hníf við hliðina á eldhúsvaski í íbúðinni. Ákærði hafi brugðist mjög illa við og hann streist á móti lögreglu en mjög þröngt hafi verið á vettvangi. B hafi tekið ákvörðun um að beita varnarúða og farið fyrir framan ákærða. Hafi C verið á vinstri hönd ákærða en A á þeirri hægri. Á meðan B hafi verið að taka upp úðabrúsann hafi hann heyrt mikinn dynk og séð A skella utan í eldavél í eldhúsinu. Fætur hennar hafi vísað upp og hún tekið um höfuð sitt. Stuttu síðar hafi hún farið út úr eldhúsinu en hún hafi verið óvirk eftir fallið. Hafi B og C náð tökum á ákærða og handjárnað hann. Ákærði hafi verið með sjáanlega áverka í andliti, en um hafi verið að ræða rispu á kinnbeini vinstra megin. Fram kemur að rispan hafi komið eftir tölu á skyrtu C.

Í annarri skýrslu lögreglu vegna málsins kemur fram að er ákærði hafi veitt mótspyrnu við handtöku hafi hann barist um af afli. Hafi ákærði náð að bregða fæti fyrir aftan fætur A, sem við það hafi misst jafnvægið og fallið við og rekið hnakkann í borðplötu á eldhúsinnréttingu. Hafi A leitað skjóls eftir áverka sem hún hafi fengið. Síðar hafi hún leitað á slysadeild til aðhlynningar vegna mikils svima og verkjar í hnakka sem leitt hafi niður eftir baki.

Sérfræðilæknir á Landspítala háskólasjúkrahúsi hefur 10. nóvember 2016 ritað læknisvottorð vegna komu A lögreglumanns á slysadeild þann 30. nóvember 2015, kl. 20.47. Í vottorðinu kemur fram að aftan á höfði A hafi mátt sjá aflangt mar um 5 cm langt í hársverði á hnakka. Þá hafi A verið með töluverða verki báðu megin við hryggjartinda. Hafi hún haft skerta hreyfigetu í hálshrygg, talið vegna verkja. Hafi hún greinst með tognun og ofreynslu á hálsi. Þá hafi hún verið með mar og yfirborðsáverka á höfði. Hún hafi verið höfð í eftirliti á bráðamóttöku. Við endurmat að morgni hafi hún verið með stífleika í hálsi og dálítinn höfuðverk aftan í höfði.

Heimilislæknir hefur 28. janúar 2016 ritað læknabréf vegna A Fram kemur að læknirinn hafi hitt A á heilsugæslustöð 11. desember 2015. A hafi haft eymsli í hálsi og höfuðverki eftir áverkann sem hafi verið slæmir fyrstu 4 dagana en síðan farið   batnandi   næstu   3   daga   á   eftir.   Þeir   hafi   síðan   farið   versnandi   en   á skoðunardegi   hafi   hún   verið   með   stöðugan   höfuðverk   frá   morgni.   Fengi   hún sérstaklega verki við að horfa til hægri. Þá væri hún hvellaum yfir ,,optical“ festum og hálsfestum vinstra megin. Hún hafi verið metin með tognun í hálsi. Þá hafi höfuðverkur sem hún hafi lýst verið í bland vegna heilahristings, en tognun spilað þar stórt hlutverk. Hún hafi komið aftur í skoðun 14. janúar 2016 og þá lýst daglegum einkennum frá hálsi. Höfuðverkir hafi verið nánast daglega. Sjúkraþjálfun hafi gengið hægt. Hún hafi verið aum, aðallega vinstra megin, ,,occiptalt og  yfir c2-3 centralt“ beggja vegna og lýst dofa út í lófa vinstra megin. Það væri mat læknisins að A væri hægt batnandi en treysti sér ekki strax í vinnu. Hún væri veikindaskrifuð út miðjan febrúar.

Ákærði hefur greint frá því að bankað hafi verið á dyr á íbúð hans að kvöldi mánudagsins 30. nóvember 2015. Hann hafi opnað og lögreglumenn verið mættir á svæðið. Þeir hafi spurt hvort þeir mættu koma inn fyrir. Hann hafi sagt það í lagi og hleypt þeim inn. Tveir lögreglumenn hafi í kjölfarið tekið eiginkonu hans afsíðis og rætt við hana. Aðrir tveir hafi farið með ákærða inn í eldhús og spurt hvort ekki væri allt í lagi. Ákærði hafi tjáð þeim að hann og eiginkona hans hafi verið að rífast, en allt hafi verið komið í lag er lögregla hafi mætt á svæðið. Eiginkonan hafi hrópað á ákærða og ákærði hrópað á hana á móti. Ákærði hafi orðið reiður og slegið bolla af borði. Vatn hafi verið í bollanum og hafi vatnið farið á gólfið. Eftir það hafi allt orðið hljótt. Er ákærði hafi slegið bollann um koll hafi eiginkona hans verið   komin   á   hinn   enda   gangs   í   íbúðinni.   Hann   hafi   þrifið   upp   eftir   sig. Lögreglumenn er rætt hafi við hann hafi sagt að aðrir lögreglumenn væru að ræða við eiginkonu hans og hann hafi rætt við lögreglumennina á almennum nótum á meðan. Einhverjir lögreglumenn hafi farið og aðrir komið og hafi ákærði m.a. spurt hvað væri að gerast, hvert væri vandamálið. Eftir um 20 mínútur hafi komið til þeirra lögreglumaður og sagt að það ætti að handtaka hann. Hann hafi spurt um ástæðu handtökunnar en ekkert svar fengið. Honum hafi verið sagt að gera eins og lögregla segði honum að gera. Ákærði hafi sagt lögreglu að hann gæti afhent þeim lykla að íbúðinni og farið sjálfur annað, frekar en að vera handtekinn af lögreglu. Honum   hafi   verið   synjað   um   það.   Lögreglumennirnir   hafi   ýtt   við   honum   í eldhúsinu og honum fundist þeir fara ,,inn á svæði“ sitt og hafi tjáð þeim það. Eins hafi hann óskað eftir því að haft yrði samband við [...] sendiráðið vegna málsins. Við því hafi ekki verið orðið og ákærða verið ýtt upp að eldhúsinnréttingu í eldhúsinu.   Í   því   hafi   annar   lögreglumaður   komið   aðvífandi   og   hafi   hann umsvifalaust   slegið   ákærða   í   andlitið.  Til   átaka   hafi   komið   og   ákærði   beðið lögreglumanninn   um   að   hætta.   Þegar   þarna   hafi   verið   komið   hafi   tveir lögreglumenn, karl og kona, verið hvort við sína hlið hans. Lögreglukona hafi svo staðið fyrir framan hann og hafi hún reynt að koma honum í gólfið með því að slá fæturna undan honum. Hann hafi streist á móti og reynt að rétta sig af. Við það hafi lögreglukonan fyrir framan hann dottið. Hann hafi ekki séð hvernig það gerðist. Mikið hafi gengið á. Í framhaldi hafi lögreglumaður notað úða á hann og hann þá gefist upp. Lögreglumennirnir hafi tekið fast á honum og sett handjárnin mjög þétt á   hann.   Hann   hafi   farið   þess   á   leit   að   þau   yrðu   höfð   aðeins   lausari   en lögreglumennirnir ekki orðið við því. Þeir hafi dregið hann út úr íbúðinni og farið með   hann   á   lögreglustöð.   Hann   hafi   farið   þess   á   leit   að   honum   yrði   veitt aðhlynning. Við því hafi ekki verið orðið og hann verið vistaður í fangaklefa í 16 klukkustundir áður en honum hafi verið sleppt. Hann kvaðst hafa lagt fram kæru á hendur lögreglu fyrir handtökuna og væri það mál til meðferðar. Hann hefði veitt mótspyrnu við handtökuna umrætt sinn og átökin verið nokkuð hörð en hann hafi ekki notað mikið afl sjálfur. Hann hafi ekki farið að fyrirmælum lögreglu þar sem honum hafi ekki verið gefnar upp ástæður handtökunnar. Hann kvað ekki rétt að hann hafi brugðið fæti fyrir lögreglumanninn sem fallið hefði. Börn hans og eiginkonu hans hafi verið í íbúðinni, en þau hafi verið við hinn enda gangs íbúðarinnar.

A  lögreglumaður   kvaðst   hafa   sinnt   útkalli   að   kvöldi   mánudagsins   30. nóvember   2015,   að   [...].   Tilkynning   til   lögreglu   hafi   verið   vegna   ætlaðs heimilisofbeldis. Læti og öskur hafi verið á vettvangi og lögreglumenn því beðið um annan bíl í útkallið. Samanlagt hafi fjórir lögreglumenn verið á þessum tveimur bifreiðum og hafi A verið í þeim lögreglubíl sem komið hafi til aðstoðar ásamt Birni Broddasyni varðastjóra. B varðstjóri og D lögreglumaður hafi verið í þeirri bifreið er fyrst hafi komið á vettvang. Þar sem B og D hafi fyrst sinnt útkallinu hafi þau farið með stjórn á vettvangi og þá B sem varðstjóri. Er lögreglumenn hafi knúið dyra hafi ákærði komið fram. Hann hafi verið æstur og í uppnámi. Í íbúðinni hafi að auki verið eiginkona hans og tvö börn þeirra. Er lögreglumenn hafi farið inn í íbúðina hafi ákærða og eiginkonu hans verið stíað sundur til að unnt væri að ræða við þau sitt í hvoru lagi. Þá hafi verið hugað að börnunum. A, ásamt D, hafi rætt við ákærða inni í eldhúsi. B varðstjóri hafi rætt við eiginkonu hans inni á gangi íbúðarinnar. Eftir að hafa rætt við eiginkonuna hafi B komið inn í eldhús og sagt að handtaka ætti ákærða og flytja á lögreglustöð vegna gruns um heimilisofbeldi. Handtakan væri nauðsynleg vegna frekari rannsóknar málsins. A kvaðst ekki viss um hvað ákærða hafi verið sagt en honum hafi ekki átt að geta dulist að hann væri handtekinn vegna gruns um heimilisofbeldi. Ákærði hafi verið nokkuð ölvaður og hafi hann orðið æstur við þetta og sagt að hann ætlaði ekki með lögreglu. Hann hafi streist á móti handtöku og erfitt hafi verið að ná tökum á honum. Hann hafi haldið höndum að sér til að varna því að unnt væri að handjárna hann. Á þessari stundu hafi lögreglumennirnir B, C og A verið í eldhúsinu og reynt að handtaka ákærða og haldið í sitt hvora hönd hans. B hafi tekið ákvörðun um að sprauta varnarúða á ákærða og sleppt hönd hans til að taka upp úðann. A hafi á þeirri stundu gengið að ákærða og tekið um þá hönd er B hefði sleppt en C hafi haldið um hina hönd hans. Í þessari stöðu hafi ákærði staðið með bakið upp við eldhúsinnréttinguna. Hafi hann snúið sér og sett annan fót sinn fyrir aftan báða fætur A og kippt í. A hafi fallið aftur fyrir sig og lent með höfuðið á borðbrún innréttingarinnar. Hafi Ametið það svo að ákærði hafi ætlað að fella hana. Hún hafi vankast við höggið, fengið heilahristing og fundið til mikillar ógleði. Hafi hún farið innar í íbúðina og sest þar niður til að jafna sig. Síðar um kvöldið hafi hún leitað á slysadeild til aðhlynningar. Hún væri með varanlegar afleiðingar af árásinni og  hefði verið lengi hjá sjúkraþjálfara en hún hefði ekki getað snúið höfði eða hallað því. Hún hafi farið í myndatöku og í ljós hafi komið útbunga á tveimur stöðum á hryggjarliðum í hálsi. Einnig hafi greinst taugaskemmdir. Hún hefði þurft að færa sig til í starfi innan lögreglunnar og sinnti nú störfum þar sem ekki væri gerð sama krafa til lögreglumanna um álag. Hún væri mjög oft á verkjalyfjum.

B varðstjóri kvað lögreglu hafa sinnt útkalli að [...] umrætt sinn. Tilkynning til lögreglu hafi verið á þá leið að læti væru í íbúð í húsinu. Lögregla hefði knúið dyra og ákærði svarað. Eiginkona ákærða hafi komið fram og verið í uppnámi. Rætt hafi verið við ákærða og eiginkonu hans hvort í sínu lagi. Hafi eiginkonan lýst rifrildi, en börn hafi verið á heimilinu. Þá hafi eiginkonan gert grein fyrir fyrra ofbeldi af hálfu ákærða. Í þessari stöðu hafi B tekið ákvörðun um að handtaka ákærða og færa á lögreglustöð vegna frekari rannsóknar málsins. Hafi B gert lögreglumönnum sem rætt hafi við ákærða grein fyrir þessu, en þeir hafi verið frammi í eldhúsi ásamt ákærða. Ákærði hafi orðið æstur og hafi lögreglumenn í eldhúsinu óskað eftir aðstoð B við að handtaka hann. B hafi tekið um aðra hendi ákærða til að koma henni fyrir aftan bak. Hafi ákærði veitt kröftuga mótspyrnu þó svo hann hefði ekki slegið til lögreglu. Hefði ákærða ekki átt að dyljast ástæða handtökunnar. B hafi verið búinn að sjá hníf tilsýndar í eldhúsinu og viljað tryggja að   ákærði   gripi   hann   ekki.   Þröngt   hafi   verið   í   eldhúsinu.    Ákærði   hafi   veitt mótspyrnu og ryskingar átt sér stað. B hafi sleppt hendi ákærða og farið fram fyrir hann. Þegar þar var komið hafi C varðstjóri verið við aðra hönd ákærða og A lögreglumaður hina. B hafi viljað koma í veg fyrir meiðsl og tekið ákvörðun um að nota varnarúða á ákærða. B hafi beygt sig niður til að grípa brúsann. Um leið og hann hafi litið upp hafi hann séð A falla aftur fyrir sig og fætur hennar vísað upp. Hann hafi séð fall hennar undir lokin. Ákærði hafi verið yfirbugaður í framhaldi og færður í handjárn. A hafi greinilega slasast við fallið.

C varðstjóri lýsti atvikum á þann veg að lögreglu hafi borist tilkynning um ofbeldi á heimili. Lögregla hafi knúið dyra og ákærði komið fram. Eiginkona ákærða hafi síðan einnig komið til dyra. Lögregla hafi farið inn í íbúðina til þeirra en nokkur æsingur hafi verið í gangi. Rætt hafi verið við ákærða og eiginkonu hans hvort í sínu lagi. C hafi verið annar tveggja lögreglumanna sem rætt hafi við ákærða í eldhúsi íbúðarinnar. B varðstjóri hafi verið stjórnandi á vettvangi og hafi hann rætt við eiginkonu ákærða. B hafi komið fram í eldhús og sagt að handtaka ætti ákærða vegna gruns um heimilisofbeldi. Ákærða hafi verið kynnt þetta og að ástæða handtökunnar væri grunur um heimilisofbeldi. Honum hafi verið kynntur réttur hans, svo sem ávallt væri gert. Ákærði hafi brugðist illa við þessu og ekki talið rétt að hann yrði handtekinn. Reynt hafi verið að fá ákærða til að koma með á lögreglustöð en fram að því hafi ákærði verið rólegur. Á þessum tímapunkti hafi verið tekin ákvörðun um valdbeitingu við handtöku ákærða og hafi hún endað með handalögmálum þar sem ákærði hafi veitt mótspyrnu við handtökuna. C kvaðst hafa staðið að handtökunni ásamt B. Á einhverjum tímapunkti hafi A komið inn í eldhúsið en mikið hafi gengið á. Í öllum atganginum hafi A fallið og rekið höfuðið í eldavélina í eldhúsinu. Hún hafi tekið um aðra hendi ákærða á meðan B hafi ætlað að ná í varnarúða til að sprauta á ákærða. C kvaðst ekki hafa séð hvernig A hafi fallið, en allt hafi gerst snöggt. C hafi einungis séð hana falla aftur fyrir sig eins og hún hefði misst fótanna. A hafi þurft að leita á slysadeild í framhaldinu. Hún hafi rætt um það á vettvangi að ákærði hafi brugðið fyrir hana fæti. Miðað við það sem C hafi séð hafi það vel getað verið þannig.

D lögreglumaður lýsti atvikum þannig að hún hafi sinnt útkalli lögreglu, ásamt þremur öðrum lögreglumönnum. Eftir að ákærði og eiginkona hans hafi verið skilin að hafi hún, ásamt öðrum lögreglumanni, rætt við ákærða í eldhúsi og hafi hann í upphafi verið rólegur. Er honum hafi verið tilkynnt að það ætti að handtaka hann hafi hann orðið mjög ósáttur. D, ásamt C varðstjóra, hafi tilkynnt honum um handtökuna og hafi þau gert honum grein fyrir því að þetta mál, sem rannsaka þyrfti frekar, væri ástæða handtökunnar. Í upphafi hafi verið reynt að fá ákærða sjálfviljugan á lögreglustöð en hann hafi strax orðið æstur. B hafi farið úr eldhúsinu þegar átökin hafi hafist. Hún hafi farið til B og greint honum frá því að ákærði væri ósáttur. D hafi verið hjá eiginkonu ákærða og börnunum á meðan átökin hafi átt sér stað. Hún hafi séð A koma úr eldhúsinu og hafi virst sem hún ætti erfitt með gang. A hafi sest niður og D farið til hennar. Hafi A sagt að hún hefði dottið aftur fyrir sig og að ákærði hefði viljandi kippt fótunum undan henni.

Eiginkona ákærða bar á þann veg að lögregla hafi komið á heimili hennar og ákærða að kvöldi 30. nóvember 2015. Hún hafi eldað mat þetta kvöld. Ákærði hafi verið í baði og drengir þeirra komnir í náttföt. Ákærði hafi sest niður í eldhúsinu en ekki viljað borða strax. Er hann hafi loks viljað borða hafi hún sagt að kominn væri háttatími fyrir drengina. Ákærði hafi misst stjórn á skapi sínu en hún hafi farið inn í herbergi til drengjanna til að ræða við þá. Ákærði hafi orðið eftir frammi en hún farið að brjóta saman þvott og hafi hann róast einhverju síðar. Í framhaldi hafi verið bankað og hún sagt ákærða að fara til dyra. Þar hafi lögregla verið komin. Lögreglumenn hafi komið inn og spurt þau hvort í sínu lagi hvað væri í gangi. Hún hafi sagt lögreglu hvað hefði gengið á. Þá hafi hún lýst fyrra ofbeldi af hálfu ákærða sem átt hafi sér stað á [...]. Hún hafi síðan orðið vör við að átök ættu sér   stað   frammi   í   eldhúsi.   Skömmu   síðar   hafi   lögreglukona   komið   inn,   en lögreglukonan hefði dottið frammi. Hafi hún sagt að hún hefði rekið höfuð í borðbrún og rætt um að hún þyrfti að fara á slysadeild. Eiginkonan kvað ákærða ekki hafa lagt á sig eða börnin hendur þetta kvöld og hafi hún ekki beðið um að hann yrði fjarlægður af heimilinu, en lögregla hafi ákveðið að gera það.

Fyrir dóminn komu læknar er rituðu læknisvottorð vegna A lögreglumanns og gerðu grein fyrir vottorðum sínum.

Niðurstaða:

Ákærða er gefið að sök brot gegn valdstjórninni, með því að hafa, er lögregla hugðist handtaka hann, veitt mótspyrnu við handtökuna og brugðið fæti aftur fyrir fætur lögreglumannsins, A, og kippt í þannig að hún féll aftur fyrir sig. Samkvæmt ákæru skall A með hnakka á borðbrún og datt síðan í gólfið, allt með þeim   afleiðingum   að   hún   hlaut   tognun   og   ofreynslu   á   hálsi   og   mar   og yfirborðsáverka á höfði. Er þetta talið varða við 1. mgr. 106. gr. laga nr. 19/1940. Ákærði neitar sök. Hann hefur viðurkennt að hafa veitt mótspyrnu við handtöku þetta kvöld, en ástæða þess hafi verið sú að honum hafi ekki verið gerð grein   fyrir   ástæðum   handtökunnar.   Ákærði   kvað   lögreglumann   hafa   dottið   er ákærði hafi verið handtekinn. Hafi það atvikast þannig að viðkomandi lögreglumaður hafi ætlað að fella ákærða með því að sparka undan honum fótum. Er ákærði hafi verið að reyna að rétta sig af hafi lögreglumaðurinn fallið. Lögreglumaðurinn A hefur lýst því hvernig ákærði hafi veitt mótspyrnu við handtöku. Hafi A haldið um aðra hönd ákærða en C varðstjóri hina. Á meðan hafi B varðstjóri verið að taka upp brúsa undan varnarúða. Í því hafi ákærði brugðið fæti aftur fyrir A og kippt í. Hafi hún þá fallið aftur fyrir sig. Lögreglumennirnir B og C lýsa atvikum á sama veg. Þeir lýsa því þó báðir að þeir hafi stöðu sinnar vegna ekki séð er ákærði brá fæti fyrir aftan A. Þeir hafi hins vegar séð hana falla í gólfið er lögreglumenn hafi verið að reyna að koma ákærða í handjárn. Hafi ákærði veitt kröftuga mótspyrnu. Með játningu ákærða og framburði lögreglumanna er sannað að ákærði hafi veitt harkalegt viðnám er lögreglumenn reyndu að handtaka hann. Mátti ákærða vera ljóst að slys gat hlotist af mótþróa hans við handtökuna, en hann barðist um engu að síður. Gat ákærða ekki dulist að ástæða handtökunnar var grunur um heimilisofbeldi, en lögregla hafði verið kölluð til vegna háreysti frá íbúð ákærða. Er sannað að í þessum átökum féll lögreglumaðurinn A aftur fyrir sig og slasaðist. Með þessu framferði sínu gerðist ákærði sekur um brot gegn valdstjórninni. Verður ákærði   sakfelldur   samkvæmt   ákæru   og   er   háttsemi   hans   rétt   heimfærð   til refsiákvæða í ákærunni.

Ákærði er fæddur í apríl 1966. Hann hefur ekki áður gerst sekur um refsiverða háttsemi svo kunnugt sé. Við ákvörðun refsingar er til þess að líta að sá lögreglumaður er slasaðist við handtökuna hlaut töluverða áverka við handtökuna. Með hliðsjón af þessu sæti ákærði fangelsi í 3 mánuði, sem í ljósi sakaferils ákærða þykir unnt að skilorðsbinda svo sem í dómsorði greinir.

Ákærði greiði sakarkostnað samkvæmt yfirliti og málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, sem nánar greinir í dómsorði.

Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Hrafnhildur M. Gunnarsdóttir aðstoðarsaksóknari. Símon Sigvaldason héraðsdómari kveður upp þennan dóm.

D ó m s o r ð :

Ákærði, Martin Gilpin, sæti fangelsi í 3 mánuði, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá birtingu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955. Ákærði greiði 593.550 krónur í sakarkostnað, þar með talin málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Guðmundar Birgis Ólafssonar hæstaréttarlögmanns 527.000 krónur.

Símon Sigvaldason.