Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 8. júní 2017.
Mál nr. S-229/2017:
Á
kæruvaldið
(Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Stefáni Má Guðfinnusyni
Lykilorð
Ávana- og fíkniefni. Fangelsi. Hegningarauki. Játningarmál. Svipting ökuréttar. Umferðarlagabrot.
Útdráttur
Ákærði sakfelldur fyrir umferðar- og hegningarlagabrot.
Mál þetta, sem dómtekið var 1. júní síðastliðinn, var höfðað með ákæru lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, útgefinni 28. mars síðastliðinn, á hendur Stefáni Má Guðfinnusyni, kt. [...], Hraunbæ 130, Reykjavík, fyrir eftirtalin brot:
- Umferðarlagabrot, með því að hafa sunnudaginn 20. mars 2016 ekið bifreiðinni HD-S61 sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna og vegna áhrifa slævandi lyfja (í blóði mældist afmetamín 535 ng/ml, klónazepam 15 ng/ml og tetrahýdrókannabínól 2,2 ng/ml) um Reykjanesbraut í Kópavogi, við Arnarnesveg, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.
Telst brot þetta varða við 1., sbr. 2. mgr. 44. gr., 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr., allt sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 með áorðnum breytingum.
- Umferðarlagabrot, með því að hafa þriðjudaginn 12. apríl 2016 ekið bifreiðinni TG-025 sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist amfetamín 425 ng/ml, kókaín 25 ng/ml, metýlfenídat 15 ng/ml og tetrahýdrókannabínól 1,9 ng/ml) suður Skemmuveg í Kópavogi, við Bifreiðaverkstæðið Knastás, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.
Telst brot þetta varða við 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr., allt sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 með áorðnum breytingum.
- Umferðarlagabrot, með því að hafa laugardaginn 14. apríl 2016 ekið bifreiðinni BV-L46 sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist amfetamín 700 ng/ml, MDMA 60 ng/ml og tetrahýdrókannabínól 2,1 ng/ml) um Virkisbraut í Reykjanesbæ, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.
Telst brot þetta varða við 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr., allt sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 með áorðnum breytingum.
- Umferðar- og hegningarlagabrot, með því að hafa fimmtudaginn 23. júní 2016 í blekkingarskyni sett skráningarnúmerið RA-621, sem tilheyrði hvítri bifreið af gerðinni Volkswagen Polo, á græna bifreið af gerðinni Ford Focus, sem bera átti skráningarmerkið LZ-193 og ekið henni þannig á röngum skráningarmerkjum, sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist amfetamín 655 ng/ml og tetrahýdrókannabínól 1,9 ng/ml) um Stórhöfða í Reykjavík, við Nóntorg, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.
Telst brot þetta varða við 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr., allt sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 með áorðnum breytingum og 1. mgr. 157. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 101. og 102. gr. laga nr. 50/1987, sbr. 25. og 26. gr. laga nr. 44/1993, sbr. 18. gr. laga nr. 66/2006.“
Ákærði hefur fyrir dómi skýlaust játað að hafa framið brot þau sem honum eru gefin að sök í ákærunni og er játning hans studd sakargögnum. Það eru því efni til að leggja dóm á málið samkvæmt 1. mgr. 164. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008. Samkvæmt þessu verður ákærði sakfelldur fyrir brotin sem eru réttilega færð til refsiákvæða í ákærunni.
Ákærði var dæmdur í 45 daga fangelsi 2011 fyrir að aka án þess að hafa öðlast ökuréttindi og fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna, auk annarra brota. Síðan þá hefur honum verið refsað einu sinni fyrir að aka án ökuréttinda og fjórum sinnum fyrir að aka sviptur ökurétti. Á sama tíma hefur honum verið refsað fjórum sinnum fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Þá hefur honum einnig verið refsað alloft fyrir margvísleg brot, síðast var hann dæmdur í 9 mánaða fangelsi 7. apríl 2016 fyrir fíkniefnalagabrot og hylmingu. Ákærði var sviptur ökurétti ævilangt 24. mars 2014 og hefur ekki öðlast réttindi aftur.
Ákærða verður nú gerður hegningarauki, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga, og refsing hans ákveðin samkvæmt 77. gr. sömu laga. Er hún hæfilega ákveðin 6 mánaða fangelsi. Þá verður ævilöng svipting ökuréttar ítrekuð.
Loks verður ákærði dæmdur til að greiða sakarkostnað og málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, að meðtöldum virðisaukaskatti, eins og í dómsorði segir.
Arngrímur Ísberg héraðsdómari kveður upp dóminn.
D ó m s o r ð :
Ákærði, Stefán Már Guðfinnuson, sæti fangelsi í 6 mánuði.
Ákærði er sviptur ökurétti ævilangt.
Ákærði greiði 774.520 krónur í sakarkostnað og málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Vilhjálms H. Vilhjálmssonar hrl., 105.400.
Arngrímur Ísberg (sign.)