Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-20/2017:

Ákæruvaldið

(Emil Sigurðsson fulltrúi)

gegn

Draupni Gestssyni

(Snorri Sturluson hdl)

Fangelsi. Játningarmál. Skilorðsrof. Þjófnaður.

Ákærði sakfelldur fyrir þjófnaðarbrot. Með brotum sínum rauf hann skilorð dóms sem hann hlaut á árinu 2016.

Mál   þetta,   sem   dómtekið   var   í   dag,   er   höfðað   með   ákæru,   útgefinni   af lögreglustjóranum   á   höfuðborgarsvæðinu   17.   janúar   2017,   á   hendur   Draupni Gestssyni, kt. 000000-0000, Snælandi 2, Reykjavík, fyrir eftirtalin þjófnaðarbrot, með því að hafa:

  1. Fimmtudaginn 7. apríl 2016 í verslun Elko, Skeifunni 7 í Reykjavík, stolið Bose soundlink mini hátalara að verðmæti kr. 34.495.
  2. Fimmtudaginn   1.   september   2016   í   verslun   Cintamani,   Kringlunni   4-12   í Reykjavík, stolið regnjakka að verðmæti kr. 17.990.

    Teljast brot þessi varða við 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

    Þess   er   krafist   að   ákærði   verði   dæmdur   til   refsingar   og   greiðslu   alls sakarkostnaðar.

    Verjandi ákærða krefst vægustu refsingar sem lög leyfa og hæfilegrar þóknunar sér til handa.

    Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

    Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og er háttsemin réttilega heimfærð til refsiákvæða í ákæru.

    Ákærði er fæddur í janúar 1980. Með dómi Hæstaréttar Íslands, uppkveðnum 22. mars 2016, var hann fundinn sekur um brot gegn almennum hegningarlögum og umferðarlögum og var honum gert að sæta fangelsi í 18 mánuði, en fullnustu 15 mánaða refsingarinnar var frestað skilorðsbundið í þrjú ár. Með vísan til 60. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 verður framangreindur skilorðsdómur tekinn upp og ákærða dæmd refsing í einu lagi fyrir öll brotin.

    Með hliðsjón af framangreindu, 77. gr. og 255. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 16 mánuði. Ekki eru efni til að skilorðsbinda þá refsingu.

    Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Snorra Sturlusonar hdl., 102.300 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti.

    Engan sakarkostnað leiddi af málinu.

    Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Emil Sigurðsson fulltrúi.

    Lilja Rún Sigurðardóttir, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóminn.

D Ó M S O R Ð:

Ákærði, Draupnir Gestsson, sæti fangelsi í 16 mánuði.

Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Snorra Sturlusonar hdl., 102.300 krónur.

Lilja Rún Sigurðardóttir