Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 6. apríl 2017.
Mál nr. S-193/2017:
D Ó M
U R
Reykjavíkur fimmtudaginn 6. apríl 2017
í
máli nr. S-193/2017:
Ákæruvaldið
(Sigrún Inga Guðnadóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Þórarni Helga
Agnarssyni
(Ómar R. Valdimarsson hdl)
Lykilorð
Fangelsi. Skaðabætur. Þjófnaður. Umferðarlagabrot.
Útdráttur
Ákærði dæmdur í 6 mánaða fangelsi og sviptingu ökuréttinda fyrir þjófnaði og umferðalagabrot.
Mál þetta, sem dómtekið var 4. apríl síðastliðinn, var höfðað með ákæru lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, útgefinni 21. mars síðastliðinn, á hendur Þórarni Helga Agnarssyni, Snæfellsbæ, „fyrir eftirtalin brot framin í Reykjavík á árinu 2016 nema annað sé tekið fram:
- Þjófnað, með því að hafa föstudaginn 16. október 2015, í verslun ELKO í Skeifunni, í félagi við annan aðila, stolið minniskubb að verðmæti kr. 8.895.
- Þjófnað, með því að hafa sunnudaginn 17. apríl, í félagi við annan aðila brotist inn í íbúðarhúsnæði að Lagargötu 2, með því að brjóta upp útidyrahurð og stolið þaðan tveimur tölvum, myndavél, bakpoka, tveimur borvélum, rafmagnssög og 66°N úlpu.
- Þjófnað, með því að hafa fimmtudaginn 13. október, í verslun Hagkaup, Litlatúni, Garðabæ, stolið ilmvatni að verðmæti kr. 9.849.
- Umferðarlagabrot, með því að hafa mánudaginn 17. október, ekið bifreiðinni RP-469 sviptur ökurétti og ófær um að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist 1000 ng/ml af amfetamín) út úr bifreiðastæði við Langholtsveg 55 og á bifreiðina HO-K06 sem ekið var vestur Langholtsveg og akstur stöðvaðist, en lögregla kom á vettvang skömmu síðar.
Teljast brot í liðum 1-3 varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og brot í lið 4 við 1. mgr. 48. gr. og 1. sbr. 2. mgr. 45. gr. a. sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 101. og 102. gr. laga nr. 50/1987, sbr. 25. og 26. gr. laga nr. 44/1993, sbr. 18. gr. laga nr. 66/2006.
Einkaréttarkrafa:
Þá gerir Finnur Árnason, kt. 000000-0000 fyrir hönd Haga hf., kt. 000000- 0000, Hagasmára 1, 201 Kópavogi vegna 3. töluliðs, kröfu um að ákærða verð gert að greiða kröfuhafa skaðabætur samtals að fjárhæð 9.849, auk vaxta samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga nr. 38/2001, frá þeim degi er hið bótaskylda atvik átti sér stað, eða hinn 13.10.2016, og þar til mánuður er liðinn frá birtingu kröfunnar, en síðan dráttarvexti, sbr. 9. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001, frá þeim degi til greiðsludags.“
Við þingfestingu málsins féll sækjandinn frá ákærulið 2.
Ákærði hefur fyrir dómi skýlaust játað að hafa framið brot þau sem honum eru gefin að sök í ákærunni svo breyttri og er játning hans studd sakargögnum. Það eru því efni til að leggja dóm á málið samkvæmt 1. mgr. 164. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008. Samkvæmt þessu verður ákærði sakfelldur fyrir brotin sem eru réttilega færð til refsiákvæða í ákærunni.
Samkvæmt sakavottorði ákærða var hann fyrst sektaður og sviptur ökurétti fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna 22. nóvember 2007. Síðan þá hefur hann sex sinnum verið dæmdur fyrir að aka undir áhrifum áfengis og fíkniefna og verið sviptur ökurétti. Þá hefur honum auk þess verið refsað fyrir að aka sviptur ökurétti. Ákærði var sviptur ökurétti ævilangt í desember 2010 og hefur sú svipting síðan verið áréttuð í dómum. Síðast var ákærði dæmdur í 8 mánaða fangelsi 6. október 2010 fyrir þjófnað og önnur hegningarlagabrot, akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna og að aka sviptur ökurétti.
Refsing ákærða verður ákveðin samkvæmt 77. gr. almennra hegningarlaga og er hún hæfileg 6 mánaða fangelsi. Þá verður áréttuð ævilöng svipting ökuréttinda.
Ákærði hefur krafist frávísunar bótakröfunnar og byggir á því að ekkert tjón hafi hlotist af þjófnaðarbroti hans þar eð þýfið hafi komist til skila. Samkvæmt lögregluskýrslu, sem tekin var á vettvangi og ákærði undirritar, kvaðst hann hafa tekið þýfið úr umbúðum og hent því frá sér. Það er því ekki fallist á það með ákærða að ekki hafi hlotist tjón af verknaði hans og er frávísunarkröfunni hafnað. Bótakrafan verður tekin til greina með vöxtum eins og í dómsorði segir. Það athugast að ekki verður séð að ákærða hafi verið birt bótakrafan fyrr en við þingfestingu málsins og miðast upphaf dráttarvaxta það þann dag er liðnir voru 30 dagar frá þingfestingardegi. Loks verður ákærði dæmdur til að greiða sakarkostnað og málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Ómars R. Valdimarssonar hdl., að meðtöldum virðisaukaskatti, eins og í dómsorði segir.
Arngrímur Ísberg héraðsdómari kveður upp dóminn.
D ó m s o r ð :
Ákærði, Þórarinn Helgi Agnarsson, sæti fangelsi í 6 mánuði. Ákærði er sviptur ökurétti ævilangt.
Ákærði greiði Högum hf. 9.849 krónur með vöxtum samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga nr. 38/2001 frá 13. október 2016 til 4. maí 2017, en með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags. Ákærði greiði 97.057 krónur í sakarkostnað og málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Ómars R. Valdimarssonar hdl., 210.800 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.
Arngrímur Ísberg