Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-854/2016:

Sýkna.

Sýknað af broti gegn 233. gr. a almennra hegningarlaga.

fyrir hatursorðræðu, með því að hafa þriðjudaginn 21. apríl 2015 skrifað og birt eftirfarandi ummæli við frétt sem birtist á fréttavefnum visir.is og bar yfirskriftina „Vill útskýra hinsegin fræðslu fyrir hlustendum Útvarps Sögu“; „Við hlustendur útvarps Sögu kærum okkur ekki um neinar fjandans útskýringar Óskars Steins á þessari kynvillu. Þetta er ógeðslegt. Að innræta í börn hvernig kynvillingar eðla sig í rúminu. Óskar Steinn getur þess vegna setið heima hjá sér heldur en að troða sér inn á útvarp Sögu. Þvílíkt ógeð.“ sem fólu í sér ógnun, háð, rógburð og smánun á opinberum vettvangi í garð ótiltekins hóps manna hér á landi vegna kynhneigðar og kynvitundar þeirra.

Telst þetta varða við 233. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar.“

Verjandi ákærða krefst aðallega sýknu, til vara, komi til sakfellingar að ákærða verði ekki gerð refsing, og til þrautavara vægustu refsingar sem lög leyfa. Þess er krafist að málskostnaður, þar með talin málsvarnarlaun, verði greidd úr ríkissjóði samkvæmt framlagðri tímaskýrslu.

Með bréfi, dagsettu 26. apríl 2015, var lögð fram kæra fyrir hönd Samtakanna 78 - félags hinsegin fólks á Íslandi, á hendur ákærða vegna háttseminnar sem í ákæru greinir.

Með bréfi lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, dagsettu 8. september 2015, var kærunni vísað frá embættinu þar sem ekki þótti grundvöllur til að hefja rannsókn á hinum meintu brotum. Var í þessu sambandi vísað til 4. mgr. 52. gr. laga nr. 88/2008, um meðferð sakamála.

Ríkissaksóknara barst hinn 3. nóvember 2015 kæra Samtakanna 78 þar sem krafist var endurskoðunar á ákvörðun lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu um að vísa kærunni frá samanber ofangreint. Í greinargerð ríkissaksóknara segir að í skýringum lögreglustjóra fyrir ákvörðun sinni segi meðal annar svo: „Lögreglu barst kæra í málinu þann 27. apríl sl. á hendur A vegna ærumeiðinga og brota gegn friðhelgi einkalífs, með því að hafa ráðist opinberlega með háði, rógi og smánun á hóp ónafngreindra manna vegna kynhneigðar og/eða kynvitundar þeirra, með nánar tilgreindum ummælum sem sjá má í kæru. Er það mat lögreglu að ummælin falli innan marka tjáningarfrelsis einstaklinga, sem verndað er með 73. gr. stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944, og teljist því ekki refsiverð skv. 233. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Var því tekin ákvörðun um að vísa málinu frá á grundvelli 4. mgr. 52. gr. laga nr. 88/2008.“

Hinn 6. nóvember 2016 felldi ríkissaksóknari ákvörðun lögreglustjórans um að vísa kærunni frá úr gildi og lagði fyrir lögreglustjórann að taka málið til rannsóknar.

Í kæru Samtakanna 78 til lögreglu og síðar til ríkissaksóknara var brot ákærða talið varða við 233. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Tekin var skýrsla af ákærða hjá lögreglunni 10. mars 2016 og skýrði hann þá skrif sín.

Nú verður framburður ákærða fyrir dómi rakinn en vitni voru ekki leidd Ákærði neitar sök. Hann kvaðst hafa skrifað og birt ummælin sem um ræðir í ákæru eins og þar greinir. Hann kvað tilefnið og aðdraganda skrifanna að rekja til samþykktar bæjarstjórnar Hafnarfjarðar frá 15. apríl 2015. Hann hafi fylgst með umræðunni og haft áhuga á málefninu og tekið þátt í skoðanaskiptum og skrifað um þetta þar sem hann hafi verið ósáttur. Hvorki hafi vakað fyrir sér með skrifunum né hafi hann reiknað með því að þau hefðu þau áhrif sem lýst er í niðurlagi ákærunnar og í 233. gr. a almennra hegningarlaga. Skrifin hafi ekkert með þá hópa að gera sem lýst er í 233. gr. a almennra hegningarlaga. Ákærði hafi aðeins tekið þátt í umræðu um þessi málefni sem hann hafi iðulega gert og verið frjálst að gera. Ákærði kvað þennan tjáningarmáta þann eina sem honum sé fær vegna fötlunar og skýrði hann þetta nánar.

Niðurstaða

Ákærði neitar sök.

Sannað er með framburði ákærða fyrir dómi og með öðrum gögnum málsins að ákærði skrifaði og birti ummælin sem í ákæru greinir á fréttavefnum visir.is hinn 24. apríl 2015 eins og í ákæru greinir.

Í 233. gr. a almennra hegningarlaga segir að hver sem opinberlega hæðist að, rógber eða smánar eða ógnar mannorði eða hópi manna með ummælum eða annarskonar tjáningu, svo sem með myndum eða táknum vegna þjóðernis, litarháttar, kynþáttar, trúarbragða, kynhneigðar eða kynvitundar eða breiðir slíkt út, skuli sæta sektum eða fangelsi allt að tveimur árum.

Það að birta hin tilvitnuðu skrif á á fréttavefnum visir.is, eins og ákærði gerði, er opinber umfjöllun í skilningi 233. gr. a almennra hegningarlaga og eru því uppfyllt skilyrði greinarinnar um opinbera umfjöllun.

Í 73. gr. stjórnarskrárinnar segir að hver maður eigi rétt á að láta í ljós hugsanir sínar en ábyrgjast verði hann þær fyrir dómi. Í 2. mgr. 73. gr. stjórnarskrárinnar segir að tjáningarfrelsi megi aðeins setja skorður með lögum í þágu allsherjarreglu eða öryggis ríkisins, til verndar heilsu eða siðgæði manna eða vegna réttinda eða mannorðs annarra enda teljist þær nauðsynlegar og samrýmast lýðræðishefðum. Sambærilegt ákvæði til verndar tjáningarfrelsinu er að finna í 10. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Í 2. mgr. 10. gr. mannréttindasáttmálans er fjallað um takmarkanir á tjáningarfrelsi. Þar segir að mæla verði fyrir um takmarkanir tjáningarfrelsis í lögum og þær þurfi að vera nauðsynlegar í lýðræðislegu þjóðfélagi eða vegna þjóðaröryggis, landvarna eða almannaheilla til að fyrra glundroða eða glæpum, til verndar heilsu eða siðgæði manna, mannorði eða réttindum og til þess að koma í veg fyrir uppljóstran trúnaðarmála eða til að tryggja vald og óhlutdrægni dómstóla.

Ráða má af þessu að mikilsverð málefni þarf til að heimilt sé að skerða tjáningarfrelsið og þær ströngu kröfur renna ásamt öðrum lögskýringarsjónarmiðum stoðum undir það að túlka beri 233. gr. a almennra hegningarlaga þröngri lögskýringu.

Í ákærunni er ekki getið um það hvert var tilefni skrifanna sem ákært er vegna en ákærði lýsti því fyrir dóminum að skrifin hefðu verið tilkomin vegna athugasemda og umræðu sem urðu í tilefni samþykktar bæjarstjórnar Hafnarfjarðar 15. apríl 2015. Samhengisins vegna og til að setja það sem skrifað var í samhengi er rétt að lýsa tillögunni sem var tilefni skrifanna. Í tillögunni segir meðal annars: „[...].að farið verði í átak í eflingu hinseginfræðslu og -ráðgjafar í gunnskólum Hafnarfjarðar. Hafnarfjarðarbær leitist við að gera samstarfssamning við Samtökin 78 um þróun námsefnis fyrir öll stig grunnskóla, frá 1 til 10 bekkjar og sérfræðingar Samtakanna haldi námsskeið fyrir alla starfsmenn grunnskóla Hafnarfjarðar. Nemendum í unglingadeildum grunnskóla verði sömuleiðis gert kleift að sækja einstaklingsráðgjöf hjá sérfræðingum Samtakanna án endurgjalds.“

Ákærði lýsti tilefni skrifanna eins og rakið var og kvaðst með þeim hafa tekið þátt í frjálsri umræðu eins og lýst var.

Þó að tjáningarfrelsi megi setja skorður með lögum eins og lýst er í 2. mgr. 73. gr. stjórnarskrárinnar er tjáningarfrelsi opinber umræða og frjáls skoðanaskipti ein af undirstöðum lýðræðisþjóðfélags. Opinber umræða um hvað eina í lýðræðisþjóðfélagi hefur iðulega í för með sér ýmiss konar óþægindi fyrir einstaklinga og eða hópa fólks. Fólk móðgast, hneykslast, eða reiðist, telur á sig hallað, telur á sér brotið og svo framvegis. Þetta er óhjákvæmilegur fylgisfiskur opinberrar umræðu í lýðræðisþjóðfélagi. Hin tilvitnuðu ummæli samkvæmt ákæru kunna að vera þessu marki brennd og hafa þessi áhrif en grundvallarrétturinn um tjáningarfrelsi sem tryggður er í 73. gr. stjórnarskrárinnar og 2. mgr. 10 gr. mannréttindasáttmála Evrópu tryggir ákærða réttinn til að tjá sig eins og hann gerði. Eins og rakið var ber að túlka 233. gr. a almennra hegningarlaga þröngt. Meta verður skrif ákærða út frá tilefninu en þau voru í raun hluti af þjóðfélagsumræðu um málefni þar sem skoðanir voru skiptar. Þegar skrifin eru virt með þessi sjónarmið sem rakin voru í huga og að túlka ber 233. gr. a almennra hegningarlaga þröngt er það mat dómsins að ekkert í skrifunum sé þannig að virða beri þau sem brot gegn 233. gr. a almennra hegningarlaga.

Ásetningur er saknæmisskilyrði samkvæmt 233. gr. a almennra hegningarlaga. Það er mat dómsins að gegn eindreginni neitun ákærða sé ósannað að hann hafi haft ásetning til að hafa þau áhrif með skrifum sínum sem tekin eru upp í ákæruna eða að hann hafi mátt reikna með því að þau hefðu þau áhrif sem þar er lýst og í niðurlagi ákærunnar.

Samkvæmt öllu ofanrituðu er það mat dómsins að ákærði hafi ekki gerst brotlegur við 233. gr. a almennra hegningarlaga með skrifum sínum sem rakin eru í ákæru. Þá er ásetningur hans ósannaður. Ber samkvæmt þessu að sýkna ákærða og dæma að allur sakarkostnaður greiðist úr ríkissjóði þar með talin 922.250 króna málsvarnarlaun Ásgeirs Þórs Árnasonar hæstaréttarlögmanns að meðtöldum virðisaukaskatti.

María Káradóttir aðstoðarsaksóknari flutti málið fyrir ákæruvaldið.

Guðjón St. Marteinsson héraðsdómari kveður upp dóminn.

Dómsorð:

Ákærði, A, er sýknaður af kröfum ákæruvaldsins.

Allur sakarkostnaður greiðist úr ríkissjóði þar með talin 922.250 króna málsvarnarlaun Ásgeirs Þórs Árnasonar hæstaréttarlögmanns Guðjón St. Marteinsson

Heimildaskrá