Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 15. mars 2016.
Mál nr. S-71/2016:
Ákæruvaldið
(Matthea Oddsdóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Antoni Traustasyni
Mál
(Lárus Sigurður Lárusson hdl)
Lykilorð
Skattar. Skilorðsbundið fangelsi og sekt. Virðisaukaskattur.
Útdráttur
Skattalagabrot.
Mál þetta, sem dómtekið var 11. mars sl. er höfðað með ákæru útgefinni af héraðssaksóknara 4. febrúar sl., á hendur Antoni Traustasyni, kennitala 000000- 0000, Svarthömrum 38 í Reykjavík, fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum sem stjórnarmanni, framkvæmdastjóra og prókúruhafa einkahlutafélaganna Arctic Roadtrip, kt. 000000-0000 (nú þrotabú), og Cheap Jeep, kt. 000000-0000 (nú þrotabú), með því að hafa:
- Eigi staðið skil á virðisaukaskattsskýrslum einkahlutafélagsins Arctic Roadtrip vegna uppgjörstímabilanna júlí – ágúst og nóvember – desember rekstrarárið 2011 og janúar – febrúar, mars – apríl og maí – júní rekstarárið 2012 á lögmæltum tíma og hafa eigi staðið ríkissjóði skil á virðisaukaskatti sem innheimtur var í rekstri einkahlutafélagsins vegna uppgjörstímabilanna júlí – ágúst og nóvember – desember rekstrarárið 2011 og janúar – febrúar, mars – apríl og maí – júní rekstrarárið 2012 í samræmi við fyrirmæli IX. kafla laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, samtals að fjárhæð kr. 3.359.516, sem sundurliðast sem hér greinir:
Uppgjörstímabil: Vangoldinn VSK: Árið 2011 Júlí – ágúst kr. 369.587 Nóvember – desember kr. 209.503 kr. 579.090 Árið 2012 Janúar – febrúar kr. 596.908 Mars – apríl kr. 1.515.040 Maí – júní kr. 668.478 kr. 2.780.426 Samtals: kr. 3.359.516
- Eigi staðið skil á virðisaukaskattsskýrslum einkahlutafélagsins Cheap Jeep vegna uppgjörstímabilanna maí – júní og júlí – ágúst rekstrarárið 2013 á lögmæltum tíma og hafa eigi staðið ríkissjóði skil á virðisaukaskatti sem innheimtur var í rekstri einkahlutafélagsins vegna uppgjörstímabilanna mars – apríl, maí – júní, júlí – ágúst, september – október og nóvember – desember rekstarárið 2013 og janúar – febrúar, mars – apríl og maí – júní rekstrarárið 2014, í samræmi við fyrirmæli IX. kafla laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, samtals að fjárhæð kr. 14.447.429, sem sundurliðast sem hér greinir:
Uppgjörstímabil: Vangoldinn VSK: Árið 2013 Mars – apríl kr. 970.627 Maí – júní kr. 1.701.711 Júlí – ágúst kr. 1.975.023 September – október kr. 1.604.152 Nóvember – desember kr. 1.028.457 kr. 7.279.970 Árið 2014 Janúar – febrúar kr. 870.566 Mars – apríl kr. 3.395.441 Maí – júní kr. 2.901.452 kr. 7.167.459 Samtals: kr. 14.447.429
- Eigi staðið skil ríkissjóði skil á staðgreiðslu opinberra gjalda sem haldið var eftir af launum starfsmanna einkahlutafélagsins Arctic Roadtrip vegna greiðslutímabilanna ágúst rekstrarárið 2011 til og með júlí rekstrarárið 2012, í samræmi við fyrirmæli III. kafla laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, samtals að fjárhæð kr. 7.354.275, sem sundurliðast sem hér greinir:
Greiðslutímabil: Vangoldin staðgreiðsla: Árið 2011 Ágúst kr. 1.338.598 September kr. 465.599 Október kr. 388.494 Nóvember kr. 255.836 Desember kr. 295.064 kr. 2.743.591 Árið 2012 Janúar kr. 337.685 Febrúar kr. 405.655 Mars kr. 412.762 Apríl kr. 573.983 Júní kr. 988.999 Júlí kr. 1.891.600 kr. 4.610.684 Samtals: kr. 7.354.275
- Eigi staðið skil á skilagrein einkahlutafélagsins Cheap Jeep vegna staðgreiðslu opinberra gjalda á lögmæltum tíma vegna greiðslutímabilsins maí rekstrarárið 2014 og eigi staðið ríkissjóði skil á staðgreiðslu opinberra gjalda sem haldið var eftir af launum starfsmanna einkahlutafélagsins vegna greiðslutímabilanna maí rekstrarárið 2013 til og með júlí rekstrarárið 2014, í samræmi við fyrirmæli III. kafla laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, samtals að fjárhæð kr. 7.233.443, sem sundurliðast sem hér greinir:
Greiðslutímabil: Vangoldin staðgreiðsla: Árið 2013 Maí kr. 566.970 Júní kr. 1.404.582 Júlí kr. 1.659.923 Ágúst kr. 1.048.230 September kr. 161.905 Október kr. 51.046 Nóvember kr. 81.459 Desember kr. 202.984 kr. 5.177.099 Árið 2014 Janúar kr. 162.204 Febrúar kr. 157.213 Mars kr. 35.725 Apríl kr. 32.015 Maí kr. 253.386 Júní kr. 724.014 Júlí kr. 691.787 kr. 2.056.344 Samtals: kr. 7.233.443 Framangreind brot ákærða teljast varða við 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 39/1995, sbr. einnig:
a) 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, sbr. 3. gr. laga nr. 42/1995 og 3. gr. laga nr. 134/2005, að því er varðar 1. og 2. tölulið ákæru.
b) 2. mgr. 30. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, sbr. 2. gr. laga nr. 42/1995 og 1. gr. laga nr. 134/2005, að því er varðar 3. og 4. tölulið ákæru. Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar.
Verjandi ákærða krefst vægustu refsingar sem lög leyfa og þess að hún verði alfarið skilorðsbundin auk hæfilegrar þóknunar sér til handa. Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga. Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru. Ákærði er fæddur í janúar 1975. Samkvæmt sakavottorði hefur hann ekki áður gerst sekur um refsiverðan verknað. Við ákvörðun refsingar verður litið til hreinskilnislegrar játningar hans og innborgunar til lækkunar höfuðstóls vanskila virðisaukaskatts uppgjörstímabilið mars til apríl 2013. Verður refsing ákærða ákveðin fangelsi í átta mánuði en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá deginum í dag að telja, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955. Ákærði greiði 63.000.000 króna sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dóms þessa en sæti ella fangelsi í 270 daga. Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Lárusar Sigurðar Lárussonar hdl., 306.900 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti en ekki hlaust annar kostnaður af málinu. Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Matthea Oddsdóttir saksóknarfulltrúi. Barbara Björnsdóttir héraðsdómari kveður upp þennan dóm.
D Ó M S O R Ð:
Ákærði, Anton Traustason, sæti fangelsi í átta mánuði en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955. Ákærði greiði 63.000.000 króna sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dóms þessa en sæti ella fangelsi í 270 daga. Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Lárusar Sigurðar Lárussonar hdl., 306.900 krónur.
Barbara Björnsdóttir