Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 14. október 2016.
Mál nr. E-1446/2016:
E-1446/2016:
Birgir Hauksson
(Steingrímur Þormóðsson hrl)
gegn
Tryggingamiðstöðinni hf
Lykilorð
Frávísun frá héraðsdómi. Skaðabætur.
Útdráttur
Skaðabótamáli vísað frá dómi. Dómkrafan byggð á sérfræðimati sem aflað var einhliða.
Mál þetta, sem var tekið til úrskurðar 13. október 2016, er höfðað fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur af Birgi Hrafnssyni, Fiskakvísl 30, Reykjavík á hendur Tryggingamiðstöðinni hf., Síðumúla 24, Reykjavík, með stefnu birtri 2. maí 2016.
Stefnandi gerir eftirfarandi dómkröfur:
I. Að hið stefnda félag verði dæmt til að greiða stefnanda 15.284.206 krónur, með 4,5% ársvöxtum af 515.250 krónum frá slysadegi, þeim 8.5.2006, til stöðugleikadags, þess 8.11.2006, en af 15.284.206 krónum frá þeim degi til 12.5.2016, en með dráttarvöxtum, skv. 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2011 um vexti og verðtryggingu, frá þeim degi til greiðsludags. II. Einnig að hið stefnda félag verið dæmt til að greiða stefnanda 29.413.878 krónur með 4,5% ársvöxtum af 2.061.400, frá slysadegi, þeim 23.6.2009 til stöðugleikadags, þess 23.10.2009, en af 29.413.878 krónum frá þeim degi til 12.5.2016 en með dráttarvöxtum skv. 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2011 um vexti og verðtryggingu frá þeim degi til greiðsludags.
Verði ekki fallist á ofangreindar aðalkröfur stefnanda gerir stefnandi neðangreindar varakröfur. I. Að hið stefnda félag verði dæmt til að greiða stefnanda 7.308.330 krónur, með 4,5% ársvöxtum af 515.350 krónum frá slysadegi þeim 8.5.2006 til stöðugleikadags þann 8.11.2006, en af 7.308.330 krónum frá þeim degi til 12.5.2016, en með dráttarvöxtum, skv. 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2011 um vexti og verðtryggingu frá þeim degi til greiðsludags. II. Einnig að hið stefnda félag verið dæmt til að greiða stefnanda 14.932.575 krónur með 4,5% ársvöxtum af 2.061.400 krónum frá slysadegi þeim 23.6.2009 til stöðugleikadags 23.10.2009, en af 14.932.575 krónum frá þeim degi til 12.5.2016 en með dráttarvöxtum skv. 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2011 um vexti og verðtryggingu frá þeim degi til greiðsludags.
Þá er krafist málskostnaðar úr hendi stefnda eins og mál þetta væri ekki gjafsóknarmál. Stefndi krefst þess aðallega að máli þessu verði vísað frá héraðsdómi. Til vara krefst stefndi þess að verða sýknaður af öllum kröfum stefnanda í máli þessu. Til þrautavara krefst stefndi þess að dómkröfur stefnanda verði lækkaðar. Stefndi krefst þess jafnframt að stefnanda verði gert að greiða stefnda málskostnað samkvæmt málskostnaðarreikningi, sem síðar verður lagður fram, eða samkvæmt mati dómsins. Stefnandi hafnar frávísunarkröfu stefndu og krefst málskostnaðar eins og mál þetta væri ekki gjafsóknarmál. Í máli þessu er deilt um fjárkröfu stefnanda vegna afleiðinga tveggja slysa er stefnandi varð fyrir á sjó á árunum 2006 og 2009. Stefnandi aflaði upphaflega, sbr. 1. mgr. 10. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993, tveggja matsgerða þeirra Birgis G. Magnússonar hdl. og Leifs N. Dungal læknis og eru matsgerðir þeirra dagsettar 3. júlí 2007, vegna fyrra slyssins, og 12. júní 2012, vegna síðari síðara slyssins. Var niðurstaða þeirra sú að stefnandi hefði orðið fyrir 12 stiga miska og 20% varanlegri örorku vegna fyrra slyssins og 10 stiga miska og 15% varanlegri örorku vegna seinna slyssins auk þess að hafa orðið fyrir tímabundnu tjóni. Matsgerðirnar voru lagðar til grundvallar uppgjöri og kemur fram á kvittun vegna greiðslu fyrra tjónsins að hún sé fullnaðargreiðsla vegna þess slyss, en fyrirvari var gerður um varanlegar afleiðingar slyssins o.fl. við uppgjör vegna síðara slyssins.
Stefnandi telur að afleiðingar slysanna hafi bæði verið vanmetnar og farið versnandi, sbr. 11. gr. skaðabótalaga, og með matsbeiðni, dags. 7. desember 2015, óskaði stefnandi einhliða mats Hannesar Inga Guðmundssonar lögfræðings og læknanna Kristins Tómassonar og Sigurjóns Sigurðssonar til að meta á ný afleiðingar þessara tveggja slysa. Í matsgerð þeirra 7. mars 2016 var niðurstaðan sú að varanlegur miski var metinn 17 stig og varanleg örorka 30%. Vegna slyssins 23. júní 2009 var varanlegur miski metinn 30 stig og varanleg örorka 35%.
Í málinu byggir stefnandi aðalkröfu sína um bætur fyrir varanlega örorku á matsgerð sem Júlíus Valsson læknir hefur unnið fyrir Lífeyrissjóðinn Gildi. Júlíus hefur metið stefnanda 100% óvinnufæran til sjómennsku og almennra starfa frá seinna slysinu 26. júní 2009 en mat þetta er tímabundið og mun endurmat fara fram í september 2017. Varakrafan er byggð á sérfræðimatsgerðinni frá 1. mars 2016.
Þegar fyrir liggur sérfræðilegt álit um örorku- og miskastig tjónþola, eða þá læknisfræðilegu þætti sem meta þarf til þess að uppgjör bóta samkvæmt skaðabótalögum geti farið fram, getur hvor um sig, tjónþoli eða sá sem krafinn er bóta, borið álitið undir örorkunefnd, sbr. 10. gr. skaðabótalaga. Þrátt fyrir að fyrir hafi legið mat þeirra Birgis G. Magnússonar hdl. og Leifs N. Dungal læknis óskaði stefnandi hvorki eftir áliti örorkunefndar né aflaði mats dómkvaddra manna, eins og honum stóð til boða að lögum, teldi hann sig eiga frekari kröfur á hendur stefnda en reistar urðu á því mati. Þess í stað aflaði hann einhliða og án aðkomu stefnda mats þriggja manna. Vegna þess aðdraganda verður síðargreint sérfræðimat ekki lagt til grundvallar ákvörðun um hvort skilyrði séu til að taka upp að nýju ákvörðun um bætur fyrir varanlegan miska eða örorku. Fer málatilbúnaður stefndu í bága við e-lið 1. mgr. 80. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, sbr. dóma Hæstaréttar 19. nóvember 2015 í máli nr. 359/2015, 31. mars 2015 í máli nr. 639/2014 og 15. september 2016 í málinu nr. 793/2015. Er því fallist á kröfu stefnda um frávísun málsins.
Eftir atvikum þykir rétt að málskostnaður falli niður. Allur gjafsóknarkostnaður greiðist úr ríkissjóði, samanber gjafsóknarleyfi dags. 26. apríl 2016, þ.m.t. þóknun lögmanns stefnanda, Steingríms Þormóðssonar hrl., 500.000 krónur, og er þá ekki tekið tillit til virðisaukaskatts.
Sigrún Guðmundsdóttir héraðsdómari kvað upp úrskurð þennan.
ÚRSKURÐARORÐ
Málinu er vísað frá dómi.
Málskostnaður fellur niður. Gjafsóknarkostnaður stefnanda greiðist úr ríkissjóði, þ.m.t. þóknun lögmanns hans, Steingríms Þormóðssonar hrl. 500.000 kr.
Sigrún Guðmundsdóttir.