Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 19. mars 2013.
Mál nr. S-895/2012:
Ákæruvaldið
(Ásmunda Björg Baldursdóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Benedikt Eyjólfssyni og
Bílabúð Benna ehf.
(Baldvin Hafsteinsson hrl)
Lykilorð
Sekt dæmd og fangelsi sem vararefsing.
Útdráttur
Ákærðu dæmd til greiðslu sektar vegna brots gegn lögum um ársreikninga.
Mál þetta, sem dómtekið var fimmtudaginn 21. febrúar 2013, er höfðað með ákæru, útgefinni af Sérstökum saksóknara 5. desember 2012, á hendur Benedikt Eyjólfssyni, kt. 000000-0000, Funafold 62, Reykjavík, og Bílabúð Benna ehf., kt. 000000-0000, Vagnhöfða 23, Reykjavík, fyrirsvarsmaður Benedikt Eyjólfsson, fyrir meiri háttar brot gegn ársreikningalögum, sem framkvæmdastjóri og stjórnarmaður einkahlutafélagsins Bílabúð Benna, kt. 000000-0000, Vagnhöfða 23, Reykjavík, með því að hafa vanrækt að standa skil á ársreikningum einkahlutafélagsins á lögmæltum tíma vegna áranna 2006, 2007, 2008, 2009 og 2010.
Framangreind brot ákærða, Benedikts Eyjólfssonar, eru talin varða við 2. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 39/1995, sbr. einnig 1. mgr. 121. gr. og 120. gr. laga um ársreikninga nr. 3/2006.
Framangreind brot ákærðu, Bílabúðar Benna ehf., eru talin varða við 125. gr., sbr. 1. mgr. 121. gr. og 120. gr. laga um ársreikninga nr. 3/2006.
Þess er krafist að ákærðu verði dæmd til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar.
Verjandi ákærðu krefst þess aðallega að þau verði sýknuð af kröfum ákæruvalds, til vara að refsing þeirra verði felld niður, en til þrautavara að ákærðu verði dæmd vægasta refsing er lög leyfa. Þá krefst verjandi hæfilegra málsvarnarlauna sér til handa sem greiðist úr ríkissjóði.
Málsatvik
Með bréfi, dagsettu 13. mars 2012, vísaði skattrannsóknarstjóri ríkisins máli ákærðu til Embættis sérstaks saksóknara til rannsóknar vegna meintra brota gegn ákvæðum laga um ársreikninga og almennra hegningarlaga. Í kærubréfi kemur fram að málið varði ætluð vanskil af hálfu einkahlutafélagsins Bílabúðar Benna á ársreikningum félagsins til opinberrar birtingar hjá ársreikningaskrá vegna rekstraráranna 2006, 2007, 2008, 2009 og 2010. Meðal gagna málsins er tölvubréf starfsmanns ríkisskattstjóra til starfsmanns félagsins, dagsett 16. október 2012, þar sem staðfest er að ársreikningum félagsins vegna þess tímabils sem um ræðir, hafi verið skilað til ríkisskattstjóra með skattframtölum þess, þannig að ársreikningur vegna ársins 2006 hafi verið móttekinn 14. desember 2007, en 1. október 2008 vegna ársins 2007, 14. október 2009 vegna ársins 2008, 12. september 2010 vegna ársins 2009 og 21. september vegna ársins 2011. Þá kemur fram í gögnum málsins að ársreikningunum sem um ræðir var jafnframt skilað til ársreikningaskrár eftir að rannsókn málsins hófst, síðast var ársreikningi vegna ársins 2010 skilað 18. janúar 2013. Samkvæmt tölvubréfi starfsmanns ríkisskattstjóra, dagsettu 19. febrúar 2013, fór félagið fram úr stærðarmörkum sem tilgreind eru í 2. tölulið 1. gr. laga nr. 3/2006 á því árabili sem um ræðir. Þá eru í málinu gögn frá fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra, þar sem kemur fram að ákærði, Benedikt Eyjólfsson, hafi verið skráður framkvæmdastjóri félagsins og stjórnarmaður á því tímabili sem ákæra tekur til. Ákærði neitar sök í málinu. Við aðalmeðferð málsins kvaðst hann hafa stofnað Bílabúð Benna og vera aðaleigandi félagsins. Sem framkvæmdastjóri félagsins hefði hann annast daglegan rekstur þess. Ákærði kvað ársreikninga hafa verið færða lögum samkvæmt á því tímabili sem ákæra tekur til og hafi þeim verið skilað með skattframtölum félagsins til ríkisskattstjóra. Jafnframt hefði félagið staðið skil á öllum sköttum og skyldum. Hins vegar hefði hann ekki sent ársreikningana til ársreikningaskrár eins og lög gera ráð fyrir. Ákærði kvaðst ósáttur við að vera skyldaður til þess að standa skil á ársreikningi til opinberrar birtingar. Með því væru upplýsingar um rekstur félagsins aðgengilegar samkeppnisaðilum á markaði, sem á þeim tíma sem um ræðir hefðu fyrst og fremst verið bankastofnanir. Kvaðst ákærði því hafa tekið ákvörðun um að skila ekki ársreikningum til ársreikningaskrár.
Niðurstaða
Ákærði Benedikt viðurkennir að hafa ekki staðið skil á ársreikningum til ársreikningaskrár innan þeirra tímamarka sem í 1. málslið 1. mgr. 109. gr. laga nr. 3/2006 greinir, vegna áranna 2006 til og með 2010, eins og gögn málsins bera jafnframt með sér. Hefur ákærði gert grein fyrir ástæðum þessa, sem að framan er rakið.
Ekki verður fallist á þá varnarástæðu ákærðu, sem fram kemur í framlagðri greinargerð þeirra í málinu, að með lagasetningu er skyldi ákærðu til að standa skil á ársreikningi til opinberrar birtingar, sé brotið gegn eignarrétti ákærða Benedikts. Þá hefur það ekki áhrif á refsinæmi verknaðar ákærða að Evróputilskipun um ársreikninga félaga af tiltekinni gerð, hafi verið breytt frá gildistöku laga nr. 3/2006, þannig að miðað sé við önnur stærðarmörk en í 2. tölul. 1. gr. laganna greinir. Er enda ekkert því til fyrirstöðu að strangari reglur gildi í þessu efni hér á landi.
Samkvæmt framansögðu féll einkahlutafélagið Bílabúð Benna undir gildissvið laga um ársreikninga nr. 3/2006 á því tímabili sem í ákæru greinir. Ákærði Benedikt var framkvæmdastjóri og stjórnarmaður félagsins og bar hann ábyrgð á því að skipulag og starfsemi félagsins væri í góðu horfi, sbr. 1. og 2. mgr. 44. gr. laga um einkahlutafélög nr. 138/1994. Í því fólst m.a. að honum bar, samkvæmt 1. málslið 1. mgr. 109. gr. laga nr. 3/2006, að hlutast til um að ársreikningur einkahlutafélagsins yrði sendur ársreikningaskrá eigi síðar en mánuði eftir samþykkt reiknings. Ákærði vanrækti af ásetningi þá lagaskyldu sem á honum hvíldi og hefur hann með því gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru. Í ákæru er háttsemi ákærða talin varða við 2. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með síðari breytingum, sbr. 1. mgr. 121. gr. og 120. gr. laga um ársreikninga nr. 3/2006. Í 2. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga er tilgreint hvaða brot varða refsingu samkvæmt ákvæðinu og eru brot gegn framangreindum ákvæðum laga nr. 3/2006 ekki þar á meðal. Ber því að sýkna ákærða af broti gegn 2. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga. Varðar brot ákærða Benedikts við 120. gr., sbr. 1. mgr. 121. gr. laga um ársreikninga nr. 3/2006, en brot ákærðu, Bílabúðar Benna ehf., við 125. gr., sbr. 120. gr. og 1. mgr. 121. gr. þeirra laga.
Ákærði, Benedikt Eyjólfsson, er fæddur árið 1957 og hefur hann ekki áður sætt refsingu. Fram er komið í málinu að ársreikningar félagsins vor samdir í samræmi við lög nr. 3/2006 vegna þess tímabils sem í ákæru greinir og fylgdu þeir skattframtölum þess til ríkisskattstjóra. Ákærði Benedikt kaus hins vegar að leggja ekki fram ársreikninga hjá ársreikningaskrá á þeim tíma sem lögin gera ráð fyrir og hefur hann gert grein fyrir ástæðum þess. Fyrir liggur að ársreikningum sem um ræðir hefur síðar verið skilað til ársreikningaskrár. Með hliðsjón af framansögðu þykir refsing ákærðu hæfilega ákveðin 750.000 króna sekt til ríkissjóðs, sem ákærðu greiði óskipt innan fjögurra vikna frá birtingu dóms þessa að telja, en ákærði Benedikt sæti ella fangelsi í 34 daga.
Ákærðu greiði óskipt málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Baldvins Hafsteinssonar hrl., 650.000 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.
Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Ásmunda Björg Baldursdóttir saksóknarfulltrúi.
Ragnheiður Harðardóttir héraðsdómari kveður upp dóminn.
Dómsorð:
Ákærðu, Benedikt Eyjólfsson og Bílabúð Benna ehf., greiði óskipt 750.000 króna sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá birtingu dóms þessa að telja, en ákærði Benedikt sæti ella fangelsi í 34 daga.
Ákærðu greiði óskipt málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Baldvins Hafsteinssonar hrl., 650.000 krónur.
Ragnheiður Harðardóttir