Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 28. febrúar 2012.
Mál nr. S-1607/2011:
Ákæruvaldið
(Kolbrún Benediktsdóttir saksóknari)
gegn
Armando Luis Rodriguez,
Guðna Guillermo Gorozpe
Halldóri Arnari Karlssyni og
Róbert Arnarsyni
Mál
þetta, sem dómtekið var 6. febrúar sl., er höfðað af ríkissaksóknara með ákæru
á hendur Armando Luis Rodriguez, kt. 000000-0000, Sléttahrauni 27, Reykjavík,
Guðna Guillermo Gorozpe, kt. 000000-0000, Smiðjustíg 4, Reykjavík, Halldóri
Arnari Karlssyni, kt. 000000-0000, Þórðarsveig 34, Reykjavík og Róbert
Arnarsyni, kt. 000000-0000, Blöndubakka 10, Reykjavík. Er málið upphaflega
höfðað gegn ákærðu, Armando Luis, Guðna Guillermo og Halldóri Arnari með ákæru
24. október 2011 fyrir sérstaklega
hættulega líkamsárás, með því að hafa aðfaranótt föstudagsins 7. maí 2010 í
Þingholtsstræti og nokkru síðar í Bankastræti til móts við veitingastaðinn
Sólon í Reykjavík, í félagi veist að Mazaris Anagnostopoulos með ofbeldi, meðal
annars með ítrekuðum höggum og spörkum víðsvegar í líkama hans, höfuð og andlit.
Af þessu hlaut Mazaris 2 cm langt sár aftan á höfði, nefbrot, mar og
yfirborðsáverka á andlit og yfirborðsáverka á kvið, bak, mjaðmagrind og á
hendi.
Háttsemi
ákærðu er talin varða við 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940,
sbr. 11. gr. laga nr. 20/1981.
Þess
er krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar og greiðslu alls
sakarkostnaðar.
Þá er málið einnig
höfðað með ákæru lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu 6. september 2011 á
hendur Róbert Arnarsyni og Halldóri Arnari Karlssyni, en málin voru sameinuð
undir rekstri málsins. Í þeirri ákæru er ákærðu gefið að sök líkamsárás í
félagi, með því að hafa að kvöldi mánudagsins 27. desember 2010, á og við
veitingastaðinn English Pub, Austurstræti 12, Reykjavík, veist að Árna Þór
Guðmundssyni, kt. 000000-0000, sem þar var að aðstoða starfsmann staðarins sem
hafði lent í átökum við ákærðu, en ákærðu veittu Árna Þór ítrekuð hnefahögg og
spörk, auk þess sem þeir keyrðu höfuð hans með afli í millivegg úr plexigleri
utan við staðinn, allt með þeim afleiðingum að hann hlaut djúpan skurð á
innanverða vör ásamt bólgum á báðum vörum, tognun á brjóstkassa og dreifða
yfirborðsáverka auk þess sem gervigómur hans brotnaði.
Er þetta talið varða
við 1. mgr. 217. gr. laga nr. 19/1940, sbr. 10. gr. laga nr. 20/1981.
Er þess krafist að
ákærðu verði dæmdir til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.
Árni Þór Guðmundsson
krefst þess að ákærðu verði óskipt dæmdir til greiðslu á skaðbótum að fjárhæð
1.302.193 krónur ásamt vöxtum frá 27. desember 2010 í samræmi við 8. gr.
vaxtalaga nr. 38/2001 og dráttarvaxta samkvæmt 1. mgr. 6. gr. sömu laga frá því
mánuður er liðinn frá dagsetningu bótakröfunnar.
Ákærðu neita allir
sök. Verjendur ákærðu krefjast vægustu refsingar er lög leyfa og málsvarnarlauna
sér til handa
.
Ákæra 24. október 2011.
Aðfaranótt
föstudagsins 7. maí 2010 kl. 02.58 fékk lögregla tilkynningu um að ráðist hafi
verið á mann í Bankastræti í Reykjavík. Í frumskýrslu kemur fram að tilkynnandi
hafi greint frá því að hann hafi heyrt öskur og hótanir. Í skýrslunni kemur
Lykilorð
Útdráttur
Fjórir karlmenn sakfelldir fyrir líkamsárásir. Refsingar tveggja ákærðu fangelsi í 2 ár, þess þriðja í 16 mánuði og þess fjórða í 6 mánuði.
Mál þetta, sem dómtekið var 6. febrúar sl., er höfðað af ríkissaksóknara með ákæru á hendur Armando Luis Rodriguez, kt. 000000-0000, Sléttahrauni 27, Reykjavík, Guðna Guillermo Gorozpe, kt. 000000-0000, Smiðjustíg 4, Reykjavík, Halldóri Arnari Karlssyni, kt. 000000-0000, Þórðarsveig 34, Reykjavík og Róbert Arnarsyni, kt. 000000-0000, Blöndubakka 10, Reykjavík. Er málið upphaflega höfðað gegn ákærðu, Armando Luis, Guðna Guillermo og Halldóri Arnari með ákæru 24. október 2011 fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, með því að hafa aðfaranótt föstudagsins 7. maí 2010 í Þingholtsstræti og nokkru síðar í Bankastræti til móts við veitingastaðinn Sólon í Reykjavík, í félagi veist að Mazaris Anagnostopoulos með ofbeldi, meðal annars með ítrekuðum höggum og spörkum víðsvegar í líkama hans, höfuð og andlit. Af þessu hlaut Mazaris 2 cm langt sár aftan á höfði, nefbrot, mar og yfirborðsáverka á andlit og yfirborðsáverka á kvið, bak, mjaðmagrind og á hendi.
Háttsemi ákærðu er talin varða við 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 11. gr. laga nr. 20/1981.
Þess er krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar.
Þá er málið einnig höfðað með ákæru lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu 6. september 2011 á hendur Róbert Arnarsyni og Halldóri Arnari Karlssyni, en málin voru sameinuð undir rekstri málsins. Í þeirri ákæru er ákærðu gefið að sök líkamsárás í félagi, með því að hafa að kvöldi mánudagsins 27. desember 2010, á og við veitingastaðinn English Pub, Austurstræti 12, Reykjavík, veist að Árna Þór Guðmundssyni, kt. 000000-0000, sem þar var að aðstoða starfsmann staðarins sem hafði lent í átökum við ákærðu, en ákærðu veittu Árna Þór ítrekuð hnefahögg og spörk, auk þess sem þeir keyrðu höfuð hans með afli í millivegg úr plexigleri utan við staðinn, allt með þeim afleiðingum að hann hlaut djúpan skurð á innanverða vör ásamt bólgum á báðum vörum, tognun á brjóstkassa og dreifða yfirborðsáverka auk þess sem gervigómur hans brotnaði.
Er þetta talið varða við 1. mgr. 217. gr. laga nr. 19/1940, sbr. 10. gr. laga nr. 20/1981.
Er þess krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.
Árni Þór Guðmundsson krefst þess að ákærðu verði óskipt dæmdir til greiðslu á skaðbótum að fjárhæð 1.302.193 krónur ásamt vöxtum frá 27. desember 2010 í samræmi við 8. gr. vaxtalaga nr. 38/2001 og dráttarvaxta samkvæmt 1. mgr. 6. gr. sömu laga frá því mánuður er liðinn frá dagsetningu bótakröfunnar.
Ákærðu neita allir sök. Verjendur ákærðu krefjast vægustu refsingar er lög leyfa og málsvarnarlauna sér til handa.
Ákæra 24. október 2011.
Aðfaranótt föstudagsins 7. maí 2010 kl. 02.58 fékk lögregla tilkynningu um að ráðist hafi verið á mann í Bankastræti í Reykjavík. Í frumskýrslu kemur fram að tilkynnandi hafi greint frá því að hann hafi heyrt öskur og hótanir. Í skýrslunni kemur fram að skömmu síðar hafi borist önnur tilkynning en í þeirri hafi komið fram að árásarmennirnir hafi farið á brott í bifreið með skráningarnúmerið PD-474. Í skýrslunni er þess getið að þrír lögreglumenn hafi stöðvað för bifreiðarinnar á Sóleyjargötu. Tveir lögreglumenn hafi farið í Bankastræti en er lögreglumenn hafi borið að garði hafi sjúkrabifreið verið komin á staðinn og sjúkraflutningamenn verið að huga að þeim er ráðist hafi verið á. Í frumskýrslu er rakið að svo virðist sem þrír menn, ákærðu Armando Luis Rodriguez, Guðni Guillermo Gorozpe og Halldór Arnar Karlsson, hafi ráðist á brotaþolann Mazaris Anagnostopoulos með ofbeldi eftir einhver orðaskipti á milli þeirra við Þingholtsstræti 3 – 5. Brotaþoli hafi átt leið þar um en hann hafi dvalið á hóteli við Laugaveg og verið á göngu um borgina. Ákærðu hafi elt brotaþola upp Bankastræti og látið einhver högg dynja á honum. Á móts við veitingastaðinn Sólon í Bankastræti hafi brotaþoli fallið í götuna vegna ágangs ákærðu og þeir látið spörk og högg dynja á honum. Brotaþoli hafi verið blóðugur í andliti, bólginn og blár. Hafi vitni lýst því að brotaþoli hafi ítrekað biðlað um að árásarmennirnir sýndu sér miskunn.
Í frumskýrslu eru rakin atvik er lögreglumenn stöðvuðu akstur bifreiðar með skráningarnúmerið PD-474 á Sóleyjargötu. Fram kemur að skömmu áður en bifreiðin hafi verið stöðvuð hafi stúlka, Silja Sif Kristinsdóttir, yfirgefið bifreiðina og hlaupið á brott frá henni. Stuttu síðar hafi einn ákærðu, Halldór Arnar, einnig hlaupið frá bifreiðinni og hafi hann reynt að klifra yfir vegg norðan við Sóleyjargötu. Lögreglumenn hafi stöðvað flótta þeirra beggja. Ákærðu, Armando Luis og Guðni Guillermo, hafi verið inni í bifreiðinni og þeir verið handteknir. Ákærði, Armando Luis, hafi verið í framsæti bifreiðarinnar hægra megin en ákærði, Guðni Guillermo, í aftursæti bifreiðarinnar. Ökumaður bifreiðarinnar hafi verið Daníel Þór Marteinsson, en auk hans og ákærðu hafi einnig verið í bifreiðinni Thelma Dögg Pedersen og Silja Sif Kristinsdóttir.
Í skýrslunni er rakið að lögreglumenn hafi rætt við nokkur vitni á vettvangi. Starfsmenn á veitingastaðnum Prikinu í Bankastræti hafi gefið sig fram við lögreglu, en um hafi verið að ræða Sigurvin Jón Halldórsson og Agötu Ýr Gunnarsdóttur. Hafi þau greint lögreglu frá því að þrír menn hafi elt brotaþola og ráðist á hann við veitingastaðinn Sólon. Hafi þau séð mennina sparka í höfuð brotaþola þar sem hann hafi legið í jörðinni. Ekki hafi þau getað gefið greinargóða lýsingu á árásarmönnunum. Þá hafi Geoffrey Hundtington-Williams, starfsmaður á Prikinu, einnig gefið sig fram. Hafi hann lýst því að hann hafi hlaupið út er hann hafi heyrt hróp. Hafi hann séð þrjá aðila elta mann. Hafi hann hlaupið út af veitingastaðnum og séð mennina láta höggin dynja á manninum sem við það hafi fallið í götuna. Þá hafi þeir ítrekað sparkað í andlit mannsins. Geoffrey hafi lýst mönnunum þannig að einn þeirra hafi verið dökkhærður og í rauðum bol með mikið húðflúr á armi. Annar hafi verið í hvítri peysu með hettu. Sá hafi verið svolítið breiður að sjá en hann hafi haft sig mikið í frammi. Ekki hafi Geoffrey getað lýst þeim þriðja. Þá kemur fram að lögregla hafi rætt við Atla Frey Arason og Kristján Friðrik Gunnlaugsson sem hafi lýst því að þeir hafi verið á göngu í Bankastræti við Ingólfsstræti. Hafi þeir séð þrjá menn elta einn. Einn árásarmannanna hafi verið í rauðum bol og með húðflúr en annar í hvítri hettupeysu. Ekki hafi þeir getað lýst þeim þriðja. Þeir hafi séð árásarmennina beita hnefum á brotaþola. Um leið hafi brotaþoli ítrekað beðið árásarmennina um að hætta. Við eitt sparkið eða höggið hafi brotaþoli fallið í jörðina og árásarmennirnir eftir það ítrekað sparkað í líkama og höfuð brotaþolans. Sá árásarmannanna sem hafi verið í hvítu peysunni hafi haft sig mest í frammi en hann hafi ítrekað sparkað í höfuð brotaþola. Þegar starfsmaður af Prikinu hafi komið hrópandi út af veitingastaðnum hafi árásarmennirnir hætt árásinni og hlaupið niður Bankastræti.
Í frumskýrslu kemur fram að lögreglumaður hafi farið á slysadeild og rætt þar við brotaþola. Hafi brotþoli greint frá því að hann hafi fengið sér göngutúr í bænum og gengið niður Laugaveg. Hann hafi síðan ákveðið að beygja til vinstri og þar inn götu. Þá hafi komið að honum þrír menn. Hafi þeir gengið í veg fyrir hann og hindrað för hans. Hafi brotaþoli reynt að komast fram hjá þeim en þeir sagt að þeir myndu ekki hleypa honum framhjá nema að hann myndi greiða þeim tiltekna fjárhæð í verndargjald. Hafi hann ekki fallist á það og reynt að halda förinni áfram. Sá er haft hafi sig mest í frammi hafi verið með bjórglas í hendi. Sá hafi verið þrekvaxinn, dökkhærður og í hvítum bol. Annar mannanna hafi verið sköllóttur, nokkuð þrekvaxinn og í svörtum bol. Ekki hafi brotaþoli treyst sér til að lýsa þriðja manninum. Hafi brotaþoli óttast að sá árásarmannanna er haft hafi sig mestu í frammi og haldið hafi á bjórglasinu myndi beita glasinu gagnvart brotaþola. Hafi brotaþoli því tekið glasið úr hendi hans og fleygt því frá sér. Um leið hafi mennirnir ráðist á brotaþola með höggum og spörkum. Hafi þeir náð að leggja brotaþola í jörðina þar sem þeir hafi haldið áfram barsmíðunum. Skömmu síðar hafi fólk komið að og mennirnir hætt atlögunni. Hafi brotaþoli greint frá því að hann hafi reynt að verjast atlögunni eftir mætti með því að bera hendur fyrir andlit sitt á meðan höggin hafi dunið á honum. Hafi brotaþoli sagt að hann væri ferðamaður á Íslandi og væri hann á leið af landi brott næstkomandi miðvikudag. Myndi hann koma á lögreglustöð og leggja fram kæru á hendur árásarmönnunum fyrir líkamsárás.
Fram kemur að rætt hafi verið við ákærðu á lögreglustöð. Er tekið fram að þeir hafi allir verið undir áhrifum áfengis og sennilega einnig fíkniefna. Hafi þeir lítið viljað tjá sig um málið. Hafi ákærði, Armando Luis, sagt að hann væri saklaus. Ákærði, Guðni Guillermo, hafi viðurkennt að hafa verið á vettvangi en ekki séð neina líkamsárás. Föt ákærða, Halldórs Arnars, hafi verið blóðug, en bæði hafi verið blóð á hettupeysu hans og skóm er hann hafi verið í.
Steinunn G. H. Jónsdóttir sérfræðingur á slysa- og bráðadeild Landspítala háskólasjúkrahúss hefur 8. júní 2010 ritað læknisvottorð vegna komu brotaþola á deildina 7. maí 2010 kl. 04.55. Í vottorðinu kemur meðal annars fram að brotaþoli hafi ekki virst undir áhrifum áfengis. Hafi hann gefið greinargóða lýsingu. Hafi hann lýst því að hann hafi orðið fyrir líkamsárás af hálfu þriggja manna. Hafi þeir komið aftan að honum og veitt honum ítrekuð hnefahögg, auk þess sem þeir hafi sparkað í hann. Hafi brotaþoli fallið í jörðina og árásarmennirnir haldið áfram að veita honum högg í kvið, bak, háls, höfuð og andlit. Í vottorðinu kemur fram að töluverð bólga hafi verið í kringum vinstra auga, bæði neðan og ofan við augað. Einnig hafi hann verið bólginn yfir nefi vinstra megin. Á höfði aftanverðu hafi hann verið með stjörnulaga sár, um 2 cm langt hið lengsta. Aftan til á baki hægra megin hafi verið roðablettur, líklega eftir endurtekin högg. Á hægri hendi hafi hann verið með yfirborðssár, einkum yfir hnúum. Ekki hafi verið grunur um nein beinbrot. Sár á höfði hafi verið staðdeyft og því lokað með tveim sporum. Brotaþoli hafi aftur komið á deildina næsta dag. Hafi hann lýst því að hann væri með höfuðverk og óljósar sjóntruflanir. Einnig hafi honum liðið mjög illa andlega. Hafi hann verið mjög áhyggjufullur um að hafa mögulega hlotið höfuðkúpubrot eða áverka á heila. Hafi hann grátið í viðtalinu. Hann hafi verið með áberandi glóðarauga sem náð hafi yfir hálft andlit vinstra megin. Einnig hafi virst vera skekkja á nefi yfir til vinstri. Hafi verið tekin sneiðmynd af höfði, en hún hvorki sýnt innvortis blæðingar né höfuðkúpubrot. Hins vegar hafi nefbeinabrot verið staðfest. Í niðurstöðu er tekið fram að batahorfur væru góðar og að brotaþoli myndi ná sér að fullu af áverkum. Það væri hins vegar töluverð andleg áraun að verða fyrir árás af því tagi er brotaþoli hafi orðið fyrir og finni sumir fyrir streitueinkennum og hræðslu í þó nokkurn tíma á eftir.
Brotaþoli mætti á lögreglustöð 7. maí 2010 og lagði fram kæru á hendur ákærðu fyrir líkamsárás. Viðstaddir skýrslutökuna voru tilnefndur réttargæslumaður brotaþola og grískur túlkur. Brotaþoli lýsti atvikum þannig að hann hafi verið á gistiheimili við Laugaveg í Reykjavík. Hafi hann farið út til að fá sér frískt loft og í þeim erindagjörðum gengið niður Laugaveg og inn hliðargötu til vinstri. Þar hafi þrír karlmenn gengið í veg fyrir brotaþola og neitað að hleypta brotaþola í gegn nema hann greiddi þeim verndargjald. Hafi brotaþoli neitað að verða við því og reynt að halda för sinni áfram. Hafi mennirnir áfram gengið í veg fyrir brotaþola.
Sá er haft hafi sig mest í frammi hafi haldið á glerglasi en sá hafi byrjað að ýta við brotaþola. Kvaðst brotaþoli hafa orðið hræddur um að sá myndi beita glasinu og skaða með því brotaþola. Hafi brotaþoli náð glasinu af manninum og hent því í burtu. Við það hafi mennirnir ráðist á brotaþola með höggum og spörkum. Sá árásarmannanna sem haldið hafi á glasinu hafi verið þrekvaxinn um 185 cm á hæð, dökkhærður og klæddur í hvítan bol og ljósar buxur. Annar árásarmaður hafi verið sköllóttur, um 180 cm á hæð, nokkuð þrekvaxinn og klæddur í svartan bol og bláar gallabuxur. Ekki hafi brotaþoli treyst sér til að lýsa þeim þriðja. Árásarmennirnir hafi náð að koma brotaþola í götuna og látið högg og spörk dynja á brotaþola. Hafi þeir allir tekið þátt í árásinni, en sá dökkhærði hafi þó haft sig mest í frammi. Hafi brotaþoli reynt að verjast höggunum eftir mætti með því að bera hendur fyrir höfuð sér og reyna að öskra eins hátt og hann hafi getað. Hafi árásarmennirnir hætt árásinni er vegfarandi hafi komið að og hringt eftir aðstoð lögreglu. Hafi þeir farið inn í bifreið sem hafi verið ekið aðeins áfram en síðan bakkað í átt að brotaþola. Hafi árásarmennirnir farið út úr bifreiðinni og haldið áfram að berja brotaþola og sparka í hann þar sem brotaþoli hafi legið í götunni. Fleiri vegfarendur hafi drifið að og þeir rekið árásarmennina á brott. Hafi þeir farið aftur upp í sömu bifreið og áður og bifreiðinni verið ekið á brott.
Í rannsóknargögnum málsins eru ljósmyndir er rannsóknarlögreglumaður hefur tekið af brotaþola á lögreglustöð 7. maí 2010.
Í málinu liggur frammi staðfesting frá Europool frá 19. janúar 2012 þar sem gerð er grein fyrir því að móðir brotaþola hafi upplýst símleiðis að brotaþoli hafi látist 14. desember 2012 í úthverfi Rómar á Ítalíu.
Ákærðu voru allir vistaðir í fangageymslum lögreglu eftir handtöku. Þeir gáfu allir skýrslu hjá lögreglu næsta dag eftir dvöl í fangageymslu. Þá gáfu þeir allir skýrslu við aðalmeðferð málsins.
Ákærði, Armando Luis, lýsti því hjá lögreglu að hann hafi, ásamt meðákærðu, verið á Hótel Þingholti í Þingholtsstræti. Með þeim hafi verð fleira fólk. Hafi ákærði farið út af hótelinu ásamt Thelmu Dögg Pedersen, Silju Sif Kristinsdóttur og Daníel Þór Marteinssyni. Hafi ákærði heyrt einhver læti utandyra, sem ákærði hafi ekki skipt sér af heldur farið beint inn í bifreið er ákærði og samferðafólk hans hafi verið á. Skömmu síðar hafi meðákærðu komið inn í bifreiðina. Bifreiðinni hafi verið ekið út í Bankastræti. Þá hafi einhver komið hlaupandi að bifreiðinni og verið með ógnandi tilburði líkt og hann ætlaði að sparka í bifreið ákærðu. Ákærðu hafi við þetta farið út úr bifreiðinni. Hafi ákærði engan þátt tekið í árás á þennan mann en ákærði kvaðst ekki vilja tjá sig um meðákærðu. Hafi ákærði verið undir áhrifum áfengis. Í lögregluskýrslunni er tekið fram að ákærði hafi verið með áberandi húðflúr og klæddur í rauðan bol. Þá hafi hann verið dökkhærður. Er borið var undir ákærða að vitni hafi lýst einum árásarmanninum þannig að komi heim og saman við útlit og klæðnað ákærða kvaðst ákærði hafa verið á staðnum og fólk eflaust séð ákærða þar. Hafi það gert ráð fyrir að ákærði væri þátttakandi. Fyrir dómi lýsti ákærði atvikum þannig að hann, ásamt meðákærðu, hafi verið að skemmta sér á Hótel Þingholti. Vinur ákærðu, Daníel Þór Marteinsson, hafi komið á staðinn á bifreið til að ná í þá. Hafi ákærðu farið inn í bifreiðina og Daníel Þór ekið henni í Bankastræti. Þar hafi bifreiðinni verið lagt og ákærðu farið út. Talsverð læti hafi verið í miðbæ Reykjavíkur þessa nótt en ákærðu hafi verið að skemmta sér. Ekki hafi ákærði sjálfur lent í neinum átökum þessa nótt.
Hafi ákærði verið klæddur í rauðan bol. Hafi hann verið undir áhrifum áfengis. Ákærði kvaðst ekki minnast þess að hafa hitt fyrir einhvern einstakling fyrir utan hótel í Þingholtsstræti.
Ákærði, Guðni Guillermo, var spurður að því hjá lögreglu hvort hann hafi tekið þátt í árás á brotaþola. Ákærði svaraði því til að ,,Ég var þarna á staðnum vissulega, en tók engan þátt í árásinni. Ég vil ekki tjá mig um gjörðir annarra.“ Kvað ákærði vel geta staðist að hann hafi verið í bifreið og Bankastræti og að hann hafi farið út úr bifreiðinni. Hann hafi hins vegar engan þátt tekið í átökum. Fyrir dómi lýsti ákærði atvikum þannig að hann hafi verið á Hótel Þingholti að skemmta sér ásamt meðákærðu og fleira fólki. Hafi ákærðu farið út af hótelinu og hitt þar fyrir einhvern mann. Sá hafi sennilega verið útlendingur. Ekki hafi ákærði rætt neitt við þann mann. Meðákærði, Halldór Arnar, hafi hins vegar boðið þessum manni drykk. Ákærði kvaðst þá sjálfur hafa farið að ræða við stúlku á staðnum. Skyndilega hafi ákærði heyrt eitthvað brothljóð og í því séð þennan mann hlaupa á brott. Ákærði hafi farið inn í bifreið sem átt hafi að flytja ákærðu á brott. Þeirri bifreið hafi Daníel Þór ekið, en auk hans hafi verið í bifreiðinni Thelma Dögg og Silja Sif. Fljótlega eftir að bifreiðinni var ekið af stað hafi hún verið stöðvuð við veitingastaðinn Sólon í Bankastræti. Þar hafi ákærðu farið út úr bifreiðinni. Ákærði kvaðst ekki hafa tekið eftir neinu sérstöku við það tækifæri. Mikið af fólki hafi verið á staðnum og ákærði heyrt einhver læti. Hann hafi hins vegar ekki séð nein átök. Ákærðu hafi farið aftur inn í bifreiðina og Daníel Þór haldið för áfram. Lögregla hafi stöðvað bifreiðina í Sóleyjargötu. Ákærði kvaðst ekki kannast við að hafa séð blóð í fatnaði meðákærða, Halldórs Arnars, þessa nótt. Hafi ákærði verið undir áhrifum áfengis. Hann myndi atvik þó vel. Ákærði, Halldór Arnar, lýsti atvikum þannig hjá lögreglu að hann hafi greint sinn, ásamt meðákærðu, verið á Hótel Þingholti í Þingholtsstræti. Hafi ákærðu yfirgefið staðinn og mætt þessum manni. Hafi ákærði haldið á glasi með áfengi í. Hafi hann reynt að bjóða manninum að drekka, en maðurinn þá gripið glasið og fleygt því í götuna. Hafi glasið brotnað við það. Hafi ákærða fundist maðurinn ógnandi og af þeim ástæðum slegið til hans. Hafi virst sem maðurinn vildi ekki láta sér segjast og meðákærðu því komið í málið. Hafi ákærði líklega slegið manninn niður, en meðákærði, Guðni Guillermo, þá orðið undir manninum. Hafi ákærði í framhaldi tekið manninn kverkataki aftanfrá uns maðurinn hafi bandað frá sér í uppgjöf. Þá hafi ákærði sleppt manninum og ákærðu farið inn í bifreið sem komin hafi verið á staðinn til að ná í ákærðu. Hafi ökumaður bifreiðarinnar ekið henni í Bankastræti. Í Bankastræti hafi þessi maður aftur verið kominn og gert sig líklegan til að sparka í bifreiðina. Hafi ákærðu þá allir farið út úr bifreiðinni og ,,tókum í hann“. Þá fyrst hafi verið sparkað í manninn. Gæti ákærði ekki sagt hvort hann hafi sjálfur sparkað í manninn og vildi hann ekki tjá sig um félaga sína. Kvaðst ákærði þetta kvöld hafa verið klæddur í hvíta hettupeysu, grænar buxur og íþróttaskó. Blóð í fatnaði ákærða væri úr þessum manni. Kvaðst ákærði hafa verið fullur þessa nótt og hafi hann vitað að lögregla myndi handtaka ákærða. Af þeim ástæðum hafi hann reynt að flýja úr bifreiðinni í Sóleyjargötu. Ákærði kvaðst örugglega hafa valdið einhverjum af þeim áverkum er brotaþoli hafi greinst með eftir atlöguna. Fyrir dómi lýsti ákærði atvikum þannig að ákærði hafi komið út af hótelinu í Þingholtsstræti og þá verið með glas í hendi. Þá hafi útlendingur komið á móti honum. Kvaðst ákærði hafa boðið honum í glas. Útlendingurinn hafi hafnað boðinu. Hafi ákærði lagt nokkuð að honum að þiggja boðið og útlendingurinn þá tekið glasið úr hendi ákærða og hent því í götuna.
Kvaðst ákærði hafa orðið pirraður vegna þessa. Í því hafi meðákærði, Guðni Guillermo, komið að. Ákærði kvaðst hafa lamið þennan mann í götuna og í kjölfarið tekið hann með hálstaki ofan af meðákærða, Guðna Guillermo, sem hafi fallið í götuna með manninum. Við þetta hafi maðurinn fengið gat á höfuðið og blóð úr honum komið í fatnað ákærða. Í framhaldi þessa hafi ákærðu allir farið inn í bifreið sem hafi verið komin til að sækja ákærðu. Þessi útlendingur hafi þá sparkað í bifreiðina og í kjölfarið hlaupið á brott. Ökumaður bifreiðar þeirrar er ákærðu hafi verið á hafi stöðvað aksturinn í Bankastræti. Þar hafi ákærðu allir farið út úr bifreiðinni. Með ákærðu í för hafi verið Daníel Þór, Thelma Dögg og Silja Sif. Þau hafi öll gengið um Bankastrætið og orðið viðskila hvort við annað. Fólk hafi síðan safnast saman fyrir utan veitingastaðinn Prikið í Bankastræti. Ekki hafi ákærði séð þennan útlending þar og ekki lent í neinum frekari átökum við hann heldur en í Þingholtsstrætinu. Ákærði kvaðst ekki hafa sparkað í brotaþola þessa nótt. Ákærði kvað rangt eftir sér haft í lögregluskýrslum að því marki sem framburði hans þar og við aðalmeðferð málsins bæri ekki saman. Ákærði hafi verið meira í tökum við þennan mann. Hafi hann ekki slegið hann og ekki sparkað í hann.
Atli Freyr Arason kvaðst hafa verið fyrir framan veitingastaðinn Sólon í Bankastræti þessa nótt. Hafi Atli séð kýlingar og slagsmál í Bankastræti. Með Atla þessa nótt hafi verið Kristján Friðrik Gunnlaugsson. Hafi Atli og Kristján viljað stöðva slagsmálin en svo hafi virst sem þrír til fimm menn væru að ráðast á útlending. Í upphafi hafi útlendingurinn staðið en eftir einhver högg hafi hann fallið í götuna. Er Atli hafi komið að slagsmálunum hafi hópurinn tvístrast. Atli kvaðst hafa rætt við lögreglumenn á vettvangi og gefið þeim lýsingu á atvikum. Væri sú lýsing rétt.
Kristján Friðrik Gunnlaugsson kvaðst hafa verið á staðnum þessa nótt. Hafi maður verið laminn í Bankastræti og viðkomandi fallið í götuna. Kvaðst Kristján ekki telja að hann hafi séð er viðkomandi var laminn. Hafi hann séð einhverja hlaupa á brott af vettvangi. Sá er fallið hafi í götuna hafi verið fluttur á brott af vettvangi með sjúkrabifreið.
Agatha Ýr Gunnarsdóttir kvaðst hafa starfað á veitingastaðnum Prikinu í Bankastræti. Er borið var undir Agöthu að hún hafi greint lögreglumanni frá því að þrír menn hafi staðið að árás á einn í Bankastrætinu aðfaranótt föstudagsins 7. maí 2010 kvaðst Agatha staðfesta að það væri rétt. Kvaðst hún hafa hlúð að brotaþolanum eftir atlöguna til að reyna að stöðva blæðingu úr höfði hans.
Martijn Van Alpehn kvaðst hafa gengið upp Bankastræti þegar maður í miklu uppnámi hafi komið á móti honum. Sá hafi verið blóðugur í andlit og óskað eftir því að Martijn myndi hringja í lögreglu og sjúkrabifreið. Hafi Martijn hringt í kjölfarið. Maðurinn hafi lýst því að menn hefðu slegið hann niður og að hann þyrfti aðstoð vegna þess. Eftir það hafi bifreið komið í áttina að þeim og maðurinn sagt að þar væru á ferð þeir er hefðu ráðist á sig. Kvaðst Martijn þá hafa ákveðið að fara yfir á götuna hinu megin og reynt að fá þennan mann með sér. Það síðasta sem Martijn hafi séð hafi verið þar sem maðurinn hafi verið við bifreið þessara manna. Hafi hann þá aftur hringt í Neyðarlínuna vegna málsins. Martijn kvaðst muna eftir því að lögreglumaður hafi rætt við sig um málið. Hafi hann þá munað atvikin betur. Samkvæmt rannsóknargögnum málsins hafði lögreglumaður símasamband við Martijn 15. desember 2010. Hefur lögreglumaður þá eftir Martijn að árásarþoli hafi komið blóðugur á móti honum í Þingholtsstræti en Martijn hafi verið að koma frá Bankastræti. Hafi lítilli bifreið verið ekið greitt að þeim og árásarþolinn virst hræddur við þá sem voru í bifreiðinni. Hafi árásarþoli hlaupið niður að horni Bankastrætis þar sem bifreiðin hafi stöðvast og maður farið út úr henni og á eftir árásarþola. Hafi Martijn þá hringt í lögreglu. Ekki hafi hann séð barsmíðar er átt hafi sér stað í framhaldi.
Geoffrey Hundtington-Williams kvaðst hafa verið við vinnu á veitingastaðnum Prikinu en vaktinni hafi rétt verið lokið. Hafi hann heyrt hróp fyrir utan staðinn sem beint hafi athyglinni að átökum fyrir utan. Geoffrey kvaðst hafa gefið þá lýsingu á atvikum er fram komi í skýrslu lögreglumanns um símaviðtal við Geoffrey 15. desember 2010. Þar er greint frá því að Geoffrey hafi séð þrjá menn elta árásarþola og kýla hann niður og sparka í hann í kjölfarið. Hafi Geoffrey þá hlaupið til. Hafi Geoffrey þótt minnistætt að einn árásarmannanna hafi verið dökkhærður með sítt hár og í rauðum bol og með mikið húðflúr. Árásarmennirnir hafi horfið á braut er fólk hafi drifið að. Fyrir dómi lýsti Geoffrey því að hann hafi hugað að brotaþola þar sem hann hafi legið eftir í götunni. Hafi ekki verið auðvelt að ná sambandi við hann vegna ástands hans.
Sigurvin Jón Halldórsson kvaðst hafa verið að vinna á veitingastaðnum Prikinu þessa nótt. Er honum hafi verið litið út hafi hann séð þar sem tveir menn hafi verið að lemja þann þriðja. Um 10 til 15 metrar hafi verið á milli Sigurjóns og átakanna þegar þetta var. Hafi Sigurvin rokið út í þeim tilgangi að stöðva slagsmálin. Árásarþoli hafi staðið uppréttur í upphafi átakanna en fallið við einhver höggin. Einhverjir árásarmannanna hafi veist að honum liggjandi, en tveir þeirra hafi stappað ofan á honum. Að atlögunni lokinni hafi árásarmennirnir farið niður Bankastrætið. Árásarþola hafi verið ráðlagt að liggja áfram í götunni þar sem blóð hafi runnið undan höfði hans. Atlaga árásarmannanna gagnvart brotaþola hafi verið harkaleg og því væri hún Sigurvin minnisstæð. Hafi hann verið í sjokki á eftir. Er undir Sigurvin var borið að í frumskýrslu lögreglu er haft eftir honum að þrír menn hafi veist að einum kvaðst Sigurvin í dag einungis muna eftir að þeir hafi verið tveir.
Thelma Dögg Pedersen kvaðst, ásamt Silju Sif og Daníel Þór, hafa verið að skemmta sér í miðbæ Reykjavíkur umrædda nótt. Hafi þau um nóttina hitt ákærðu niður í miðbæ. Þegar kvöldið hafi verið á enda hafi þau, ásamt ákærðu, verið stödd á hóteli í Þingholtsstræti. Á einhverjum tímapunkti hafi Silja Sif og Daníel Þór farið en síðan komið aftur til að sækja ákærðu. Daníel Þór hafi ekið bifreiðinni frá hótelinu og niður í Bankastræti. Þau hafi þá verið sex saman í bifreiðinni, en fyrir utan ákærðu hafi verið í henni Thelma Dögg, Silja Sif og Daníel Þór. Á einhverjum tímapunkti hafi einhver sparkað í bifreiðina og ákærðu þá farið út úr henni. Þau hin hafi verið áfram inni í bifreiðinni. Einhverju síðar hafi ákærðu komið aftur inn í bifreiðina. Stuttu síðar hafi lögregla stöðvað akstur bifreiðarinnar. Thelma Dögg kvaðst ekki hafa séð nein átök þessa nótt. Þá hafi ekki verið rætt um nein átök eftir að ákærðu hafi komið inn í bifreiðina á nýjan leik.
Silja Sif Kristinsdóttir kvaðst hafa verið að skemmta sér þessa nótt með vinkonum sínum. Um nóttina hafi hún hitt ákærðu við hótel í miðbæ Reykjavíkur. Daníel Þór hafi sótt þau að hótelinu en þaðan hafi hann ekið bifreiðinni niður í Bankastræti. Silja kvaðst hafa vitað að einhver slagsmál hafi átt sér stað á milli ákærðu, Guðna Guillermo, Halldórs Arnars og einhvers drengs. Eitthvað hafi verið á milli ákærða, Guðna Guillermo og þessa drengs. Í kjölfarið hafi ákærði, Halldór Arnar, tekið drenginn ofan af ákærða, Guðna Guillermo. Hafi hún ekki séð þau átök frekar eða hvort einhver högg eða spörk hafi verið veitt. Í Bankastræti á móts við veitingastaðinn Sólon hafi þessi drengur sparkað í bifreið er þau hafi verið á og ákærðu þá farið út úr bifreiðinni og farið eitthvað upp eftir í átt að Laugavegi. Talsvert af fólki hafi verið á staðnum. Hafi hún séð að einhverjar ryskingar eða átök hafi verið fyrir aftan bifreiðina. Ekki hafi hún séð hvort ákærðu hafi verið í þeim hópi.
Daníel Þór Marteinsson kvaðst hafa verið með Thelmu Dögg og Silju Sif þessa nótt. Á einhverjum tímapunkti hafi þau verið stödd við hótel í Þingholtsstræti. Hafi Daníel séð þar sem útlendingur hafi verið að reyna að tjá sig við ákærðu. Þessi maður hafi sparkað í bifreið Daníels og ákærðu þá rætt við drenginn. Ekki hafi Daníel séð nein átök á milli ákærðu og þessa drengs.
Anthoula Mazaris, móðir brotaþola, kvað son sinn hafa verið námsmann, þó svo hann hafi að einhverju leyti unnið hjá föður sínum. Hafi hann ferðast um Evrópu og meðal annars ákveðið að fara einn til Íslands til að sjá eldfjöllin á Íslandi. Frá Íslandi hafi hann farið í maí 2010 og þá haldið til Belgíu. Þaðan hafi hann farið til Grikklands, þar sem hún hafi hitt hann. Þá hafi brotaþoli verið bólginn um nef og augu. Einnig hafi honum liðið illa í baki. Þá hafi hann verið illa farinn andlega. Hann hafi verið óttasleginn og liðið mjög illa. Hafi Anthoula viljað að sonur hennar færi til læknis í Grikklandi, en það hafi hann ekki viljað.
Steinunn G. H. Jónsdóttir læknir staðfesti læknisvottorð sitt á meðal rannsóknargagna málsins og skýrði einstök atriði því tengt. Hafi hún sjálf skoðað brotaþola. Hafi sú lýsing sem brotaþoli hafi gefið henni á atvikum komið heim og saman við þá áverka er hann hafi greinst með. Ekki sé auðvelt að greina áverka eftir því hvort þeir hafi verið veittir með hnefahöggum eða spörkum. Hafi brotaþoli ekki verið undir áhrifum áfengis. Hafi hann gefið greinargóða lýsingu á atburðum. Þá hafi verið greinilegt að honum hafi liðið mjög illa.
Guðmundur Stefán Sigurðsson rannsóknarlögreglumaður staðfesti þátt sinn í rannsókn málsins. Kvaðst Guðmundur hafa tekið skýrslu af brotaþola hjá lögreglu. Túlkur hafi aðstoðað við skýrslutökuna. Eftir að skýrslan hafi verið rituð niður og þýdd fyrir brotaþola hafi brotaþoli ritað undir hana. Vottur hafi verið viðstaddur skýrslutökuna.
Þórður Kormáksson fyrrverandi rannsóknarlögreglumaður staðfesti sinn þátt í rannsókn málsins. Kvaðst Þórður hafa tekið framburðarskýrslur af ákærðu í kjölfar vistunar þeirra í fangageymslu. Hafi hann haft þann háttinn á að þegar framburður væri skráður innan gæsalappa væri Þórður að skrá framburð niður eins og viðkomandi hafi orðað hlutina. Slíkur framburður ætti ekki að vera rangt skráður niður. Þá hafi ákærðu ekki haft uppi neinar athugasemdir varðandi skýrslurnar er þeir hafi ritað undir þær. Ákærði, Halldór Arnar, hafi í skýrslutökunni játað á sig árás á brotaþola. Þórður kvaðst hafa ritað undir skýrslu af brotaþola sem vottur að skýrslutökunni. Hafi hann setið inni og hlustað á meðan skýrslutakan hafi farið fram. Brotaþoli hafi verið illa á sig kominn andlega en hann hafi grátið mikið á meðan á skýrslugjöfinni stóð. Hafi hann verið í miklu áfalli.
Niðurstaða:
Ákærðu er gefin að sök sérstaklega hættuleg líkamsárás, með því að hafa aðfaranótt föstudagsins 7. maí 2010 í Þingholtsstræti og nokkru síðar í Bankastræti í Reykjavík í félagi veist að brotþola með ofbeldi sem nánar er lýst í ákæru, sem og afleiðingum háttseminnar. Eru brot ákærðu talin varða við 2. mgr. 218. gr. laga nr. 19/1940. Ákærðu neita allir sök. Synja ákærðu, Armando Luis og Guðni Guillermo, fyrir að hafa ráðist á brotaþola, en viðurkenna að hafa verið að skemmta sér á þessum tíma í miðbæ Reykjavíkur. Þá hefur ákærði, Guðni Guillermo, borið að útlendingur hafi verið fyrir utan hótel í miðbænum sem meðákærðu hafi rætt við. Ákærði, Halldór Arnar, hefur einnig neitað sök. Hann hefur viðurkennt að hafa slegið brotaþola í götuna eftir að brotaþoli hafi slegið glas úr hendi ákærða. Við þetta hafi brotaþoli fallið í götuna og fengið gat á höfuðið. Hafi hann fallið yfir meðákærða, Guðna Guillermo. Ákærði hafi tekið brotaþola hálstaki til að losa hann ofan af meðákærða. Til annarra átaka hafi ekki komið. Fyrir lögreglu bar ákærði hins vegar um atvik í Þingholtsstræti með sama hætti og fyrir dómi. Að því er varðar atlöguna í Bankastræti viðurkenndi hann að ákærðu hafi allir farið út úr bifreiðinni er brotaþoli hafi sparkað í bifreiðina og að ákærðu hafi tekið í brotaþola. Þá fyrst hafi verið sparkað í manninn. Hafi ákærði örugglega valdið einhverjum af þeim áverkum er brotaþoli hafi greinst með.
Brotaþoli gaf skýrslu hjá lögreglu á rannsóknarstigi málsins. Staðhæfði hann að ákærðu hafi veist að honum í félagi í Þingholtsstræti og að þeir hafi aftur veist að honum í félagi í Bankastræti þar sem þeir hafi allið slegið brotaþola og sparkað í hann liggjandi. Kom brotaþoli ekki fyrir dóm við aðalmeðferð málsins til skýrslugjafar en fyrir dóminum liggja staðfestar upplýsingar lögregluyfirvalda um að brotaþoli hafi látist í 14. desember sl. Nokkur vitni hafa komið fyrir dóminn og borið um atvik þessa nótt. Atli Freyr Arason kvaðst hafa verið fyrir framan veitingastaðinn Sólon í Bankastræti þessa nótt og hafa séð kýlingar og slagsmál í Bankastræti. Svo hafi virst sem þrír til fimm menn væru að ráðast á útlending. Í upphafi hafi útlendingurinn staðið en eftir einhver högg hafi hann fallið í götuna. Agatha Ýr Gunnarsdóttir bar að þrír menn hafi staðið að árás á einn í Bankastræti. Geoffrey Hundtington-Williams kvaðst hafa séð þrjá menn elta brotaþola og kýla hann niður og sparka í hann í kjölfarið. Hafi Geoffrey þótt minnistætt að einn árásarmannanna hafi verið dökkhærður með sítt hár og í rauðum bol og með mikið húðflúr. Sigurvin Jón Halldórsson kvaðst hafa rokið út í þeim tilgangi að stöðva slagsmálin. Brotaþoli hafi staðið uppréttur í upphafi átakanna en fallið við einhver höggin. Einhverjir árásarmannanna hafi veist að honum liggjandi, en tveir þeirra hafi stappað ofan á honum. Atlaga árásarmannanna hafi verið harkaleg og Sigurvin minnisstæð. Í frumskýrslu lögreglu er haft eftir öllum ofangreindum vitnum eftir stutt samtal við þau á vettvangi að þrír menn hafi veist að einum þessa nótt í Bankastræti. Hafi árásarmennirnir lamið manninn og sparkað í höfuð hans eftir að hann hafi fallið í götuna.
Ákærðu voru allir handteknir síðar þessa sömu nótt á leið frá vettvangi. Vitni hafa lýst því að einn árásarmannanna hafi verið klæddur í hvíta hettupeysu. Samkvæmt gögnum málsins var blóð í þeim fatnaði er ákærði, Halldór Arnar, var klæddur í við handtöku. Var hann þá meðal annars klæddur í hvíta hettupeysu. Þá hafa vitni einnig lýst því að annar árásarmaður hafi verið dökkhærður, í rauðum bol og með áberandi húðflúr. Í lögregluskýrslu er tekin var af ákærða, Armando Luis, eftir vistun í fangageymslu er skráð að ákærði hafi verið dökkhærður, í rauðum bol og með áberandi húðflúr. Lögreglumenn er skýrslu tóku af ákærða, Halldóri Arnari, hjá lögreglu hafa komið fyrir dóminn og staðfest skýrslu ákærða rétta. Hefur ákærði ekki gefið trúverðuga skýringu á breyttum framburði sínum fyrir dómi, en þar hefur hann synjað fyrir að hafa veist að brotaþola í Bankastræti. Verður framburður ákærða hjá lögreglu lagður til grundvallar niðurstöðu.
Með hliðsjón af því sem hér að ofan greinir, framburði vitna sem staðhæfa að árásarmennirnir hafi verið þrír og að þeir hafi slegið brotaþola og sparkað í hann liggjandi, þ. á m. höfuð hans, fyrirliggjandi áverkavottorðs sem ótvírætt þykir benda til þess að brotaþoli hafi verið sleginn víðsvegar í líkama og sparkað í höfuð hans, þess að lýsing vitna á fatnaði árásarmannanna kemur heim og saman við fatnað ákærðu, Armando Luis og Halldórs Arnars, þykir dóminum komin fram lögfull sönnun um að ákærðu hafi í félagi veist að brotaþola með þeim hætti er í ákæru er lýst og með þeim afleiðingum er þar greinir. Með því að hafa staðið þrír saman að atlögunni, sem fólst í því að slá brotaþola ítrekað hnefahögg í líkama og höfuð og sparka í höfuð brotaþola þar sem brotaþoli lá í götunni, eru ákærðu sekir um sérstaklega hættulega líkamsárás. Með hliðsjón af því verða ákærðu sakfelldir samkvæmt ákæru og er háttsemin þar rétt heimfærð til refsiákvæða.
Ákæra 6. september 2011.
Að kvöldi mánudagsins 27. desember 2010 kl. 23.34 var tilkynnt um slagsmál á og við veitingastaðinn Enblish Pub í Austurstræti í Reykjavík. Er lögreglumenn komu á staðinn lá Árni Þór Guðmundsson, brotaþoli í máli þessu, mikið slasaður aftanvert við staðinn. Var lögreglumönnum gerð grein fyrir því að árásarmennirnir hafi farið inn á veitingastaðinn Hvítu Perluna við Austurstræti. Fram kemur að lögreglumenn hafi farið inn á þann stað en ekki fundið árásarmennina. Í framhaldi hafi lögreglumenn skoðað myndbandsupptökur af atburðinum úr eftirlitsmyndavél er staðsett hafi verið utandyra. Þar hafi mátt greina að ákærði, Halldór Arnar, hafi haft sig mikið í frammi og slegið frá sér. Þá kemur fram að greina hafi mátt mann sem tekið hafi atburðinn upp á myndbandsupptökuvél. Skyndilega hafi hópur manna farið að þeim manni. Á staðnum hafi verið rætt við Einar Örn Sigurðsson, sem hafi starfað á veitingastaðnum sem barþjónn. Hafi Einar greint frá því að ákærði, Halldór Arnar, hafi verið með vinum sínum inni á staðnum og látið dólgslega. Hafi Einar reynt að fá þá út af staðnum en ákærði og vinir hans slegið til Einars. Þá hafi farið af stað slagsmál sem færst hafi út fyrir. Hafi mennirnir verið búnir að króa Einar af úti og verið að slá hann er brotaþoli hafi komið Einari til aðstoðar. Hafi brotaþoli verið laminn fyrir vikið. Hafi Einar náð að losa sig og starfsmenn veitingastaðarins náð að læsa útihurð staðarins og halda mönnunum þannig úti. Árásarmennirnir hafi síðan yfirgefið staðinn er lögreglu hafi borið að garði. Einhverjir hafi farið inn á veitingastaðinn Hvítu Perluna. Í frumskýrslu lögreglu kemur fram að Einar hafi verið bólginn á kinnbeini og á vinstri hendi. Á staðnum hafi verið rætt við Helenu Hermannsdóttur, sem unnið hafi á English Pub. Hafi hún greint frá því að ákærði, Halldór Arnar, og vinir hans hafi verið með læti inni á staðnum, en ákærða hafi hún kannast við og þekkt með nafni. Samstarfsmaður hennar, Einar Örn, hafi reynt að fá ákærða og félaga hans út af staðnum en þeir þá byrjað að lemja Einar. Þá hafi slagsmál farið af stað. Ákærði, Halldór Arnar, hafi haft sig mest í frammi, en ákærði, Róbert, hafi einnig verið æstur. Slagsmálin hafi farið út fyrir staðinn, en þar hafi sérstaklega ákærði, Halldór Arnar, haldið áfram að lemja Einar. Hafi brotaþoli farið að skipta sér af og náð einhverjum af Einari. Hafi brotaþoli þá verið laminn sjálfur. Helena hafi fundið mynd á internetinu af ákærða, Halldóri Arnari, sem hún hafi látið lögreglu í té. Á þeirri mynd hafi einnig mátt sjá ákærða, Róbert. Ekki hafi Helena munað eftir nafni ákærða, Róberts, á þeirri stundu. Hafi hún tjáð lögreglu að ákærði, Róbert, hafi haft sig mikið í frammi. Á vettvangi hafi verið rætt við brotaþola. Hafi hann greint frá því að hann hafi ætlað að aðstoða Einar, þar sem menn hafi verið að lemja hann. Við það hafi brotaþoli verið laminn nokkur högg í andlitið. Hafi verið farið með brotaþola á slysadeild, en þangað hafi hann verið fluttur með sjúkrabifreið. Hafi hann verið mjög vankaður eftir árásina. Skömmu eftir þetta hafi lögreglumenn farið að veitingastaðnum Hvítu Perlunni en þar hafi verið tilkynnt um mann sem hafi fallið í tröppu. Á staðnum hafi lögreglumenn hitt fyrir ákærða, Halldór Arnar, og hafi hann verið handtekinn vegna málsins. Hafi hann verið mjög ölvaður og greinilega undir áhrifum örvandi efna. Ákærði hafi í byrjun verið rólegur. Er ákærði hafi verið kominn út af staðnum hafi einhver þar fyrir utan bent á ákærða og sagt að hann væri sá sem mest hafi verið að berja frá sér. Í frumskýrslu lögreglu kemur fram að síðar hafi orðið ljóst að ákærði, Róbert, hafi slasast inni á Hvítu Perlunni og hafi hann sjálfur farið á slysadeild.
Brotaþoli mætti á lögreglustöð 10. febrúar 2011 og lagði fram kæru á hendur ákærðu fyrir líkamsárás.
Hlynur Þorsteinsson sérfræðingur á slysa- og bráðadeild Landspítala háskólasjúkrahúss hefur 25. febrúar 2011 ritað læknisvottorð vegna komu brotaþola á deildina. Í vottorðinu kemur meðal annars fram að brotaþoli hafi við skoðun verið tannlaus, en hann hafi komið með gervigóm sem hafi brotnað í tvennt. Hafi hann verið með nokkuð djúpan skurð innanvert á efri vör og verulega bólgu í vörum, bæði þeirri efri og þeirri neðri. Hann hafi verið greindur með tognun í brjóstkassa og með dreifða yfirborðsáverka. Sár innan á vör hafi verið saumað. Brotaþoli hafi leitað á deildina á ný 5. janúar 2011 vegna vaxandi verkja í hægri síðu. Ekki hafi komið fram brot í rifbeinum við sneiðmyndarannsókn.
Ákærði, Róbert, gaf skýrslu hjá lögreglu 5. maí 2011 og fyrir dómi við aðalmeðferð málsins. Ákærði kvaðst hafa farið á veitingastaðinn English Pub umrætt sinn. Inni á staðnum hafi ákærði rekist utan í einhvern og einhverjar kýtingar farið af stað. Ákærði hafi verið nokkuð ölvaður þetta kvöld og myndi hann því atvik ekki vel. Einhver læti hafi farið af stað fyrir utan staðinn og hafi ákærði ýtt einhverjum frá sér. Ákærði hafi verið í för með meðákærða þetta kvöld. Ákærði kvaðst kannast við einhver læti við dyravörð staðarins, sem hafi reynt að henda ákærða út af staðnum. Engin slagsmál hafi átt sér stað. Ákærði kvaðst ekki kannast við þá lýsingu á atvikum er fram komi í ákæru. Þá kvaðst ákærði ekki kannast við brotaþola. Ákærði kvaðst hafa farið inn á veitingastaðinn Hvítu Perluna síðar þetta kvöld og hafa fengið högg á höfuðið þar inni við að detta niður stiga. Hafi hann þurft að leita á slysadeild vegna þessa.
Ákærði, Halldór Arnar, var yfirheyrður eftir dvöl í fangageymslu. Þá gaf hann skýrslu við aðalmeðferð málsins fyrir dómi. Kvaðst hann þetta kvöld, ásamt meðákærða, hafa farið á veitingastaðinn English Pub. Meðákærði hafi lent í einhverjum kýtingum við stráka inni á staðnum, sem ákærði hafi blandað sér í. Þá hafi dyravörður tekið ákærða hálstaki og hafi ákærði slegið til dyravarðarins tvisvar sinnum með flötum lófa. Með þeim hætti hafi ákærða tekist að losa sig. Þá hafi slagsmál byrjað sem borist hafi út fyrir staðinn. Mikið af fólki hafi verið á svæðinu. Ákærði kvaðst hafa verið hálf vankaður eftir hálstakið og ekki séð hlutina vel. Kvaðst hann einungis hafa lent í átökunum við dyraverðina en engan annan. Ákærði kvaðst ekki kannast við þá lýsingu á atvikum er fram kæmu í ákæru. Ákærði kvaðst hafa drukkið áfengi þetta kvöld.
Brotaþoli kvaðst hafa verið fyrir utan veitingastaðinn þetta kvöld að fá sér að reykja. Hafi hann veitt athygli slagsmálum og séð barþjón af English Pub, Einar Örn, vera kominn í götuna þar sem hann hafi verið laminn og í hann sparkað. Hafi brotaþoli ákveðið að ganga á milli og sagt við árásarmennina að þetta væri ekki þess virði. Það næsta er brotaþoli myndi væri að hann hafi verið að ranka við sér og þá verið alblóðugur. Myndi hann einungis eftir að hafa fengið eitt högg beint í andlitið en við það hafi hann dottið út. Afleiðingar árásarinnar hafi verið þær að gervigómur brotaþola hafi brotnað og hann fengið ýmsa líkamlega áverka. Hafi hann átt erfitt með sjón á vinstra auga í kjölfar árásarinnar. Þá hafi hann glímt við sálarstríð í kjölfar atburðarins. Hafi hann fengið nokkurs konar andlegt áfall. Brotaþoli kvaðst ekki hafa drukkið mikið áfengi þetta kvöld.
Einar Örn Sigurðsson kvaðst hafa starfað sem barþjónn á English Pub þetta kvöld. Hafi hann heyrt einhvern hávaða og hróp inni á staðnum. Finnur Þór Þráinsson, starfsmaður á frívakt, hafi farið til ákærðu í kjölfarið og Einar fylgt á eftir. Slagsmál hafi farið af stað og Einar reynt að taka ákærðu með sér út af staðnum í gegnum nálægar dyr með því að ýta hópnum út. Í kjölfarið hafi ákærðu ráðist báðir að Einari með höggum og spörkum en Einar hafi fallið í jörðina við atlöguna. Hafi Einar legið á grúfu á jörðinni. Á svæðinu hafi einnig verið Finnur Þór og Orri Sigurðsson, annar starfsmaður English Pub. Brotaþoli hafi verið fyrir utan staðinn, en hann hafi Einar þekkt. Brotaþoli hafi náð að trufla ákærðu þannig að Einar hafi náð að komast á fætur. Ákærðu hafi þá ráðist á brotaþola þar sem annar þeirra hafi haldið brotaþola á meðan hinn hafi kýlt hann. Síðan hafi þeir tekið brotaþola og þeir í sameiningu fleygt honum tvisvar til þrisvar sinnum í millivegg úr plexígleri er hafi verið utan við staðinn. Í þeim atgangi hafi þeir haldið um bak og öxl brotaþola þannig að andlit og nef brotaþola hafi komið fyrst í millivegginn. Greinilegt hafi verið að við það hafi tönn brotnað í brotaþola en hann hafi orðið alblóðugur við þetta. Einar kvaðst hafa staðið hinu megin við millivegginn og séð þetta greinilega. Einhver þriðji maður hafi verið á staðnum sem hvatt hafi ákærðu áfram, en sá hafi sjálfur engan þátt tekið í árásinni. Hafi Einar séð að ákærðu hafi verið mjög sterkir og hættulegir og því brugðið á það ráð að koma fólki aftur inn á veitingastaðinn og ásamt Finni Þór náð að loka hurðinni. Í þeim atgangi hafi Einar aftur verið laminn af ákærðu og höggið komið í gagnaugað. Brotaþola hafi þeim tekist að taka með sér inn. Í þessum átökum hafi því einungis tekið þátt Einar, brotaþoli, Finnur Þór og síðan ákærðu. Talsverður fólksfjöldi hafi verið fyrir utan staðinn en enginn af þeim tekið þátt í átökunum. Einar kvaðst ekki hafa þekkt ákærðu fyrir atburðinn. Hann hafi hins vegar tekið þátt í því að aðstoða lögreglu við að finna út hverjir þeir hafi verið. Í lögregluskýrslu staðhæfði Einar að það væri alveg ljóst að ákærðu hafi báðir verið að verki í atlögunni gagnvart brotaþola en Einar hafi séð þegar þeir hafi kýlt hann og barið og síðan keyrt hann saman í millivegginn. Þá lýsti Einar því að hann hafi farið með lögreglu inn á veitingastaðinn Hvítu Perluna þar sem lögregla hafi handtekið ákærða, Halldór Arnar.
Finnur Þór Þráinsson kvaðst hafa verið á English Pub þetta kvöld þar sem hann væri alla jafnan starfsmaður. Þetta kvöld hafi hann þó ekki verið við störf. Hafi Finnur orðið var við einhvern skarkala inni á staðnum Austurvallamegin. Hafi einhver átök verið í gangi sem borist hafi út af staðnum. Hafi Finnur farið út og reynt að róa mannskapinn. Hafi einhver gripið í Finn og hann fengið högg. Kvaðst Finnur hafa séð þegar brotaþoli hafi sennilega ætlað að stöðva atlögu gagnvart starfsmönnum staðarins. Þá hafi hann séð er brotaþola hafi verið hent í millivegginn fyrir utan. Finnur kvaðst hafa gefið lögregluskýrslu vegna málsins á sínum tíma. Þá hafi hann munað atvik betur. Er undir Finn var borið að við yfirheyrslu lögreglu 29. mars 2011 hafi hann greint frá því að árásarmennirnir hafi verið komnir með brotaþola á milli sín og keyrt hann af öllu afli með höfuðið í millivegginn úr plexígleri staðfesti hann að sú lýsing væri rétt. Þá staðfesti Finnur að við sömu yfirheyrslu hafi hann borið að hann hafi séð er lögregla hafi handtekið annan árásarmannanna á veitingastaðnum Hvítu Perlunni en sá hafi haft sig mest í frammi.
Helena Hermannsdóttir kvaðst hafa starfað á English Pub þetta kvöld. Hópur manna hafi komið inn á staðinn. Tveir starfsmenn staðarins, Einar Örn og Orri, hafi vegna óláta vísað þessum mönnum út af staðnum bakdyramegin. Einar hafi reynt að ræða við mennina og hafi Helena kannast við einn þeirra sem ákærða, Halldór Arnar, á þessum tíma. Hafi ákærði, Halldór Arnar, orðið eitthvað rólegri en þá hafi annar maður komið að og verið mjög æstur. Sá hafi reynt að lemja Einar Örn og náð að koma einhverjum höggum á hann. Brotaþoli hafi blandað sér í málið og ætlað að ganga á milli. Þegar þar var komið hafi Helena reynt að hringja í lögreglu því hún hafi áttað sig á því að starfsmenn staðarins væru of fáliðaðir í átökunum. Þá hafi hún reynt að loka hurð staðarins til að átökin bærust ekki aftur inn. Helena kvaðst hafa séð er ákærði, Halldór Arnar, og þrír aðrir hafi lamið brotaþola, en ákærði og annar til hafi haft sig mestu í frammi. Hafi hún örugglega einnig séð einhver spörk frá ákærða, Halldóri Arnari, og öðrum. Óhugnanlegt hafi verið að horfa á atlöguna. Hafi Helena séð brotaþola lenda í jörðinni. Hafi hann verið tekinn upp og lagður niður inni á veitingastaðnum á meðan beðið hafi verið eftir sjúkraliði. Hafi hún ekki séð er brotaþoli hafi verið keyrður í millivegginn. Helena kvaðst hafa aðstoðað lögreglu við að finna út hverjir árásarmennirnir væru. Hafi hún farið á internetið og þar fundið mynd af ákærða, Halldóri Arnari. Hún hafi einnig verið með í för er lögregla hafi farið inn á veitingastaðinn Hvítu Perluna til að handtaka ákærða, Halldór Arnar. Ákærðu hafi verið tveir saman þetta kvöld og tveir aðrir með þeim. Hinir tveir hafi verið í því að hvetja til slagsmálanna. Hafi Helenu virst sem ákærði, Halldór Arnar, hafi verið leiðtoginn þetta kvöld. Ákærði, Róbert, hafi hins vegar komið öllu af stað. Væri enginn vafi í huga Helenar að ákærðu hefðu báðir veist að brotaþola. Er Helena gaf skýrslu hjá lögreglu 29. mars 2011 lýsti hún því að er Helena hafi reynt að koma fólki inn á staðinn aftur í þeim tilgangi að loka staðnum hafi hún séð brotaþola reyna að aðstoða Einar en þá hafi ákærðu ráðist á brotaþola og gengið í skrokk á honum með höggum og spörkum og hafi verið greinilegt að ganga hafi átt frá honum. Hafi stórséð á brotaþola á eftir. Hafi Helena farið inn og hringt á lögreglu á meðan starfsmenn staðarins hafi komið brotaþola í öruggt skjól innandyra.
Orri Sigurðsson kvaðst óljóst muna atvik. Ekki var tekin af honum lögregluskýrsla við rannsókn málsins. Kvaðst Orri muna eftir því að starfsmenn staðarins hafi hent einhverjum út af staðnum vegna slagsmála. Þá kvaðst Orri muna eftir því að brotaþoli hafi verið með brotna tönn eftir átök sem átt hafi sér stað. Hafi Orri kannast við ákærðu. Ekki hafi hann hins vegar séð þegar brotaþoli hafi verið laminn þar sem Orri hafi þá verið kominn inn á staðinn.
Birgir Baldursson kvaðst hafa verið starfsmaður á English Pub á þessu tímabili en þetta kvöld hafi hann ekki verið að vinna. Hafi hann verið nýkominn inn á staðinn er Helena Hermannsdóttir hafi komið og sagt að einhverjir væru að lemja Einar Örn. Kvaðst Birgir hafa hlaupið af stað og tekið eftir brotaþola, sem hafi verið alblóðugur. Á sama tíma hafi hann séð Einar Örn fyrir utan staðinn reyna að koma fólki aftur inn á staðinn til að unnt væri að loka útidyrahurð að staðnum. Hafi hann þá veitt athygli þeim mönnum sem ráðist hafi á brotaþola. Miðað við ástand þessara manna hafi þeir ekki verið með réttu ráði. Útlendingur hafi verið að taka upp á myndband utandyra. Hafi mennirnir fari að honum og hótað honum lífláti nema hann myndi eyða því er hann hefði tekið upp. Kvaðst Birgir ekki hafa verið vitni að því er brotaþoli hafi verið laminn. Hann hafi hins vegar séð ákærðu slá frá sér fyrir utan staðinn.
Guðmundur Helgi Sigurðsson kvaðst ekki muna eftir málinu eða þekkja ákærðu. Hafi hann verið í talsverðri óreglu er atvik málsins hafi átt sér stað. Kvaðst hann ekki minnast þess í dag að lögreglumenn hafi rætt við hann á vettvangi.
Hlynur Þorsteinsson læknir staðfesti læknisvottorð sitt á meðal gagna málsins. Hafi áverkar þeir er brotaþoli hafi fengið samrýmst því að brotaþoli hafi orðið fyrir höggum og spörkum. Hafi Hlynur sjálfur skoðað brotaþola.
Niðurstaða:
Ákærðu er gefin að sök líkamsárás, með því að hafa að kvöldi mánudagsins 27. desember 2010 á og við veitingastaðinn English Pub í Austurstræti í Reykjavík veist að brotaþola, en ákærðu er gefið að sök að hafa veitt brotaþola hnefahögg og spörk, auk þess að hafa keyrt höfuð hans með afli í millivegg úr plexígleri utan við staðinn. Afleiðingar árásarinnar koma fram í ákæru, en brotið er talið varða við 1. mgr. 217. gr. laga nr. 19/1940. Ákærðu neita báðir sök. Hafa þeir viðurkennt að hafa verið á staðnum þetta kvöld. Hefur ákærði, Halldór Arnar, viðurkennt að hafa slegið dyravörð með flötum lófa er dyravörðurinn hafi tekið ákærða hálstaki. Hafi það verið inni á veitingastaðnum og gert í þeim tilgangi að losa takið. Ákærði synjar fyrir að hafa veist með ofbeldi að brotaþola. Ákærði, Róbert, neitar alfarið sök.
Fyrir dóminn hafa komið nokkur vitni. Tvö þeirra, Einar Örn Sigurðsson og Helena Hermannsdóttir voru starfandi á veitingastaðnum English Pub þetta kvöld, en það þriðja, Finnur Þór Þráinsson, var á frívakt og aðstoðaði starfsmenn á staðnum í þeim átökum er áttu sér stað. Vitnin Einar Örn og Finnur Þór hafa bæði staðhæft að þau hafi séð þar sem ákærðu hafi í sameiningu veist að brotaþola, fyrst með höggum og spörkum en síðan hafi þeir báðir tekið í brotaþola og keyrt höfuð hans í millivegg úr plexígleri fyrir utan staðinn. Hafa báðir jafnframt staðhæft að hafa fylgst með því er lögregla hafi handtekið ákærða, Halldór Arnar, síðar um nóttina, en hann hafi verið annar árásarmannanna. Vitnið Helena bar einnig fyrir lögreglu að hún hafi séð þegar ákærði, Halldór Arnar, í félagi við annan árásarmann hafi veist að brotaþola með höggum og spörkum.
Við mat á niðurstöðu er til framburða vitnanna Einars Arnar, Finns Þórs og Helenar að líta. Með hliðsjón af þeim er fram komin lögfull sönnun fyrir því að ákærði, Halldór Arnar, hafi veist að brotaþola með þeim hætti er í ákæru greinir og þeim afleiðingum er þar koma fram. Fram er komið að vitni þessu þekktu ekki deili á ákærða, Róbert, á þessum tíma. Var hann auk þess ekki handtekinn þetta kvöld, en hann leitaði á slysadeild eftir að hafa fallið í stiga inni á veitingastaðnum Hvítu Perlunni þar sem ákærði, Halldór Arnar, var handtekinn. Ofangreind vitni báru um að báðir árásarmennirnir hafi farið þangað inn. Þá hafa framangreind vitni staðhæft að tveir menn hafi staðið að atlögunni en aðrir á svæðinu verið hvetjandi og enn aðrir áhorfendur. Dómurinn hefur litið á myndbandsupptöku úr eftirlitsmyndavél fyrir utan veitingastaðinn. Þá gengu dómari og sakflytjendur á vettvang. Sjónarhorn eftirlitsmyndavélarinnar er þannig að hún hefur ekki beinst af þeim stað er árásin á brotaþola átti sér stað. Hún veitir hins vegar óræka sönnun fyrir því að ákærðu gengu báðir mjög hart fram fyrir utan veitingastaðinn og sést enginn annar lemja frá sér með viðlíka hætti. Þegar til þessa er litið þykir dóminum hafið yfir skynsamlegan vafa að ákærði, Róbert, hafi verið hinn árásarmaðurinn af tveim sem réðust gegn brotaþola þetta kvöld. Með hliðsjón af því verður ákærði, Róbert, einnig sakfelldur samkvæmt ákæru og er háttsemi hans þar rétt heimfærð til refsiákvæða.
Ákærði, Armando Luis, er fæddur í október 1985. Hann gekkst undir viðurlagaákvörðun árið 2003 vegna umferðarlagabrots. Þá gekkst hann undir sátt 2005 vegna brota gegn lögum um ávana- og fíkniefni. Á árinu 2009 var ákærði í tvígang dæmdur, fyrst fyrir eignaspjöll en síðan fyrir brot gegn 1. mgr. 218. gr. laga nr. 19/1940. Í nóvember 2010 var ákærði dæmdur fyrir brot gegn umferðarlögum. Á árinu 2011 gekkst ákærði í tvígang undir sáttir vegna brota gegn umferðarlögum.
Ákærði, Guðni Guillermo, er fæddur í mars 1979. Brotaferill ákærða hófst árið 1997. Frá því ári til ársins 2007 hefur ákærði 5 sinnum verið dæmdur fyrir brot gegn almennum hegningarlögum, umferðarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni. Þá hefur hann í þrígang gengist undir sáttir vegna brota gegn umferðarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni og einu sinni gengist undir viðurlagaákvörðun vegna brota gegn umferðarlögum. Ástæða þykir til að nefna að ákærði var 23. mars 2007 dæmdur í 4 mánaða fangelsi, þar af þrjá mánuði skilorðsbundið fyrir brot gegn valdstjórninni. Þá var hann 16. apríl sama ár dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir brot gegn 2. mgr. 218. gr. laga nr. 19/1940, 4. mgr. 220. gr., sbr. 1. mgr. 22. gr. og 1. mgr. 164. gr., sbr. 20. gr. sömu laga og öðrum tilgreindum ákvæðum almennra hegningarlaga og umferðarlaga. Loks var ákærða í dómi 19. desember 2007 ekki gerð sérstök refsing fyrir brot gegn 2. mgr. 218. gr. laga nr. 19/1940 og ákvæðum umferðarlaga.
Ákærði, Halldór Arnar, er fæddur í desember 1978. Á árinu 2003 gekkst ákærði undir viðurlagaákvörðun fyrir brot gegn 1. mgr. 217. gr. laga nr. 19/1940. Á árinu 2005 var hann dæmdur fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni. Þá var hann á árinu 2009 dæmdur fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og umferðarlögum. Hann gekkst 28. desember 2010 í tvígang undir sáttir fyrir brot gegn umferðarlögum. Loks gekkst hann 11. maí 2011 undir sátt fyrir brot gegn umferðarlögum.
Ákærði, Róbert, er fæddur í apríl 1977. Á árinu 2002 gekkst hann undir viðurlagaákvörðun vegna brota gegn umferðarlögum, tollalögum og vopnalögum. Á árinu 2009 gekkst hann undir sátt fyrir brot gegn umferðarlögum. Sama gerðist í júní 2010. Loks gekkst hann undir sátt 24. janúar 2011 fyrir brot gegn umferðarlögum.
Við ákvörðun refsingar ákærðu er í fyrsta lagi til þess að líta að ákærðu, Armando Luis, Guðni Guillermo og Halldór Arnar, hafa hér að framan verið sakfelldir fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás í félagi. Var árás ákærðu ófyrirleitin, þar sem þeir réðust þrír gegn einum. Spörkuðu þeir meðal annars í höfuð fórnarlambsins þar sem það lá í jörðinni. Til viðbótar þessu hefur ákærði, Halldór Arnar, verið sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 217. gr. laga nr. 19/1940, fyrir að hafa í félagi við meðákærða, Róbert, ráðist að manni sem var að reyna að stilla til friðar fyrir utan veitingastað í miðbæ Reykjavíkur. Var framganga þeirra gagnvart brotaþolanum harkaleg. Að því er alla ákærðu varðar verður refsing ákveðin með hliðsjón af 1., 3. og 6. tl. 1. mgr. og 2. mgr. 70. gr. laga nr. 19/1940. Þá verður við ákvörðun refsingar ákærðu, Armando Luis og Guðna Guillermo, í ljósi sakaferils þeirra, litið til ákvæða 218. gr. b laga nr. 19/1940, sbr. 71. gr., sem heimilar að hækka refsingu allt að helmingi, hafi sá sem er dæmdur sekur um brot gegn 2. mgr. 218. gr. laga nr. 19/1940 áður verið dæmdur sekur um brot gegn þeirri grein eða 1. mgr. 218. gr. laganna. Enginn ákærðu á sér nokkrar málsbætur.
Ákærði, Armando Luis, hefur með broti sínu rofið skilorð samkvæmt dómi 7. desember 2009. Verður hinn skilorðsbundni dómur nú tekinn upp og dæmdur með þeirri refsingu sem hér er ákveðin, sbr. 60. gr. laga nr. 19/1940. Þó svo brotið hafi verið framið áður en ákærði var dæmdur í dómi 24. nóvember 2011 og gekkst undir tvær sáttir á árinu 2011 hefur það ekki áhrif á ákvörðun refsingar í málinu. Með hliðsjón af öllu framansögðu sæti ákærði, Armando Luis, fangelsi í 16 mánuði. Ekki eru efni til að skilorðsbinda refsinguna.
Ákærða, Guðna Guillermo, var veitt reynslulausn 25. desember 2008 í tvö ár af eftirstöðvum refsingar 250 dögum. Ákærði hefur rofið skilorð reynslulausnarinnar og verða eftirstöðvarnar nú dæmdar með. Með hliðsjón af því og öllu ofangreindu er refsing ákærða, Guðna Guillermo, ákveðin fangelsi í 2 ár. Ekki eru efni til að skilorðsbinda refsinguna.
Þó svo brot ákærða, Halldórs Arnars, hafi verið framin áður en ákærði gekkst undir sáttir á árunum 2010 og 2011 hefur það ekki áhrif á ákvörðun refsingar eins og hér hagar til. Með hliðsjón af öllu ofangreindu er refsing ákærða, Halldórs Arnars, ákveðin fangelsi í 2 ár. Ekki eru efni til að skilorðsbinda refsinguna.
Brot ákærða, Róberts, er framið áður en ákærði gekkst undir sátt 24. janúar 2011. Þrátt fyrir það hefur það ekki áhrif á ákvörðun refsingar í málinu. Með hliðsjón af öllu framangreindu sæti ákærði, Róbert, fangelsi í 6 mánuði. Refsing ákærða verður skilorðsbundin að hluta, svo sem í dómsorði er mælt fyrir um.
Vegna ákæru 6. september 2011 krefst Árni Þór Guðmundsson þess að ákærðu, Halldór Arnar og Róbert, verði óskipt dæmdir til greiðslu á skaðbótum að fjárhæð 1.302.193 krónur ásamt vöxtum. Samanstendur krafan af kröfu um miskabætur að fjárhæð 1.000.000 krónur og útlagðan kostnað að fjárhæð 302.193 krónur. Þá er gerð krafa um málakostnað. Ákærðu hafa hér að framan verið sakfelldir fyrir líkamsárás gagnvart brotaþola. Með vísan til 26. gr. laga nr. 50/1993 á hann rétt á miskabótum vegna háttsemi ákærðu. Með hliðsjón af framferði ákærðu, afleiðingum háttseminnar og dómvenju á réttarsviðinu eru miskabætur ákveðnar 400.000 krónur. Krafa vegna góms er studd áætlun. Verður kröfunni hafnað. Sama gildir um kröfulið vegna gleraugna. Krafa vegna sjúkrakostnaðar að fjárhæð 41.949 krónur er studd reikningum. Verður sá kröfuliður tekinn til greina. Sama gildir um kröfulið vegna lyfjakostnaðar að fjárhæð 7.024 krónur og ferðakostnað að fjárhæð 3.220 krónur. Samkvæmt þessu verða ákærðu einnig dæmdir til að greiða brotaþola útlagðan kostnað að fjárhæð 52.193 krónur. Um vexti fer sem í dómsorði greinir. Þá verða ákærðu dæmdir til að greiða brotaþola málskostnað svo sem í dómsorði er mælt fyrir um.
Ákærðu, Armando Luis, Guðni Guillermo og Halldór Arnar, greiði óskipt 34.500 krónur í sakarkostnað vegna ákæru 24. október 2011. Þá greiði ákærðu, Halldór Arnar og Róbert, óskipt 34.500 krónur í sakarkostnað vegna ákæru 6. september 2011. Að öðru leyti greiði ákærðu málsvarnarlaun skipaðra verjenda sinna, að teknu tilliti til virðisaukaskatts, svo sem í dómsorði er mælt fyrir um. Brotaþolanum Mazaris Anagnostopoulos var skipaður réttargæslumaður fyrir dómi. Sú skipan var felld niður við andlát brotaþolans. Verða ákærðu, Armando Luis, Guðni Guillermo og Halldór Arnar, dæmdir til að greiða þóknun réttargæslumanns brotaþolans, eins og mælt er fyrir um í dómsorði. Hefur þá verið tekið tillit til virðisaukaskatts.
Dóm þennan kveður upp Símon Sigvaldason héraðsdómari.
D ó m s o r ð :
Ákærði, Armando Luis Rodriguez, sæti fangelsi í 16 mánuði.
Ákærði, Guðni Guillermo Gorozpe, sæti fangelsi í 2 ár.
Ákærði, Halldór Arnar Karlsson, sæti fangelsi í 2 ár.
Ákærði, Róbert Arnarson, sæti fangelsi í 6 mánuði. Fresta skal fullnustu 3ja mánaða af refsingunni og falli sá hluti hennar niður að liðnum tveim árum frá birtingu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Ákærðu, Halldór Arnar og Róbert, greiði óskipt Árna Þór Guðmundssyni skaðabætur að fjárhæð 452.193 krónur, ásamt vöxtum samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001 frá 27. desember 2010 til 5. nóvember 2011 en með dráttarvöxtum skv. 1. mgr. 6. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags. Ákærðu, Halldór Arnar og Róbert, greiði Árna Þór óskipt 260.000 krónur í málskostnað.
Ákærðu, Armando Luis, Guðni Guillermo og Halldór Arnar, greiði óskipt 34.500 krónur í sakarkostnað og þóknun réttargæslumanns brotaþola Oddgeirs Einarssonar héraðsdómslögmanns, 251.000 krónur. Ákærðu, Halldór Arnar og Róbert, greiði óskipt 34.500 krónur í sakarkostnað. Ákærði, Armando Luis, greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Páls Kristjánssonar héraðsdómslögmanns, 614.950 krónur, ákærði, Guðni Guillermo málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns Stefáns Karls Kristjánssonar héraðsdómslögmanns, 753.000 krónur, ákærði Halldór Arnar, málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Snorra Sturlusonar héraðsdómslögmanns, 753.000 krónur og ákærði, Róbert, málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns Steinbergs Finnbogasonar héraðsdómslögmanns, 502.000 krónur.
Símon Sigvaldason.