Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 29. júní 2012.
Mál nr. S-1577/2011:
Ákæruvaldið
(Katrín Ólöf Einarsdóttir fulltrúi)
gegn
Hilmari Grétari Sigþórssyni
I
Málið, sem dómtekið
var 21. júní síðastliðinn, var höfðað með ákæru lögreglustjórans á
höfuðborgarsvæðinu, útgefinni 18. mars 2011 á hendur „Hilmari Grétari
Sigþórssyni, Reykjavík, fyrir eftirtalin hegningarlagabrot:
I
Fyrir gripdeild, með því að hafa, fimmtudaginn 1. apríl
2010, innandyra í veitingastaðnum Hressingarskálanum við Austurstræti 20 í
Reykjavík, tekið kökusneið ófrjálsri hendi og borðað hana og síðan tekið
glerkrukku sem innihélt nokkur sælgætisstykki og farið með krukkuna út af
veitingastaðnum, samtals að verðmæti kr. 6.400.
Telst brot þetta varða við 245. gr. almennra
hegningarlaga nr. 19/1940.
II
Fyrir líkamsárás, með því að hafa,
fimmtudaginn 1. apríl 2010, utandyra í Pósthússtræti í Reykjavík á móts við
veitingastaðinn Kaffi París, slegið Wayne Paul Sant, kt. 000000-0000,
starfsmann Hressingarskálans sem gerði tilraun til að stöðva ákærða í kjölfar
gripdeildarbrots í I. lið ákæru, hnefahöggi í andlitið, með þeim afleiðingum að
hann hlaut brot á kinnkjálkabeinum og brot á augnbotni hægra megin,
nefbeinabrot, opin sár á hægri hlið andlitsins, mar á hægra augnloki og
augnsvæði og 5 tennur brotnuðu í efri og neðri góm.
Telst
brot þetta varða við 1. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr.
11. gr. laga nr. 20/1981.
III
Fyrir þjófnað, með því að hafa, mánudaginn 14. mars 2011,
í verslun Krónunnar við Bíldshöfða 20 í Reykjavík, stolið matvöru og vítamínum,
samtals að verðmæti kr. 9.142 en ákærði var stöðvaður eftir útgöngu úr
versluninni.
Telst brot þetta varða við 244. gr. almennra
hegningarlaga nr. 19/1940.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og
til greiðslu alls sakarkostnaðar.
Einkaréttarkrafa:
Vegna ákæruliðar II. gerir Bergrún Elín Benediktsdóttir
hdl., f.h. Wayne Paul Sant, kröfu um að ákærði verði dæmdur til greiðslu skaða-
og miskabóta samtals að fjárhæð kr. 474.253, með vöxtum skv. 8. gr. vaxtalaga
nr. 38/2001 frá 1. apríl 2010 en síðan með dráttarvöxtum skv. 9. gr., sbr. 1.
mgr. 6. gr. vaxtalaga. Áskilinn er réttur til að leggja fram kröfu um
kostnað vegna tannviðgerða en skv. vottorði Sigurðar Björgvinssonar tannlæknis
er kostnaður vegna þeirra metinn á um kr. 260.000 miðað við verðlag 1. júlí
2010. Einnig er þess krafist að ákærða verði gert að greiða málskostnað
brotaþola að skaðlausu, samkvæmt síðar framlögðum reikningi, að viðbættum
virðisaukaskatti.“
Ákærði
neitar sök í ákærulið II og krefst sýknu af honum, en játar sök að öðru leyti
og krefst vægustu refsingar. Þess er krafist að sakarkostnaður, þar með talin
málsvarnarlaun, verði greiddur úr ríkissjóði. Ákærði krefst þess að skaðabótakröfunni
verði vísað frá dómi.
II
Málavextir varðandi
þann þátt málsins þar sem ákærði neitar sök verða nú reifaðir en að öðru leyti
er vísað til ákæru, sbr. 3. mgr. 183. gr. laga nr. 88/2008.
Lögreglumenn voru
sendir að Hressingarskálanum að kvöldi 1. apríl 2010, en tilkynnt hafði verið
um þjófnað þar. Á vettvangi hittu þeir fyrir brotaþola sem kvað mann hafa
(Sveinn Andri Sveinsson hrl)
Lykilorð
Fangelsi. Líkamsárás. Miskabætur. Þjófnaður.
Útdráttur
Ákærði dæmdur í 3 mánaða fangelsi og til greiðslu miskabóta fyrir líkamsárás og þjófnað.
I
Málið, sem dómtekið var 21. júní síðastliðinn, var höfðað með ákæru lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, útgefinni 18. mars 2011 á hendur „Hilmari Grétari Sigþórssyni, Reykjavík, fyrir eftirtalin hegningarlagabrot:
I
Fyrir gripdeild, með því að hafa, fimmtudaginn 1. apríl 2010, innandyra í veitingastaðnum Hressingarskálanum við Austurstræti 20 í Reykjavík, tekið kökusneið ófrjálsri hendi og borðað hana og síðan tekið glerkrukku sem innihélt nokkur sælgætisstykki og farið með krukkuna út af veitingastaðnum, samtals að verðmæti kr. 6.400.
Telst brot þetta varða við 245. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
II
Fyrir líkamsárás, með því að hafa, fimmtudaginn 1. apríl 2010, utandyra í Pósthússtræti í Reykjavík á móts við veitingastaðinn Kaffi París, slegið Wayne Paul Sant, kt. 000000-0000, starfsmann Hressingarskálans sem gerði tilraun til að stöðva ákærða í kjölfar gripdeildarbrots í I. lið ákæru, hnefahöggi í andlitið, með þeim afleiðingum að hann hlaut brot á kinnkjálkabeinum og brot á augnbotni hægra megin, nefbeinabrot, opin sár á hægri hlið andlitsins, mar á hægra augnloki og augnsvæði og 5 tennur brotnuðu í efri og neðri góm.
Telst brot þetta varða við 1. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 11. gr. laga nr. 20/1981.
III
Fyrir þjófnað, með því að hafa, mánudaginn 14. mars 2011, í verslun Krónunnar við Bíldshöfða 20 í Reykjavík, stolið matvöru og vítamínum, samtals að verðmæti kr. 9.142 en ákærði var stöðvaður eftir útgöngu úr versluninni.
Telst brot þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.
Einkaréttarkrafa:
Vegna ákæruliðar II. gerir Bergrún Elín Benediktsdóttir hdl., f.h. Wayne Paul Sant, kröfu um að ákærði verði dæmdur til greiðslu skaða- og miskabóta samtals að fjárhæð kr. 474.253, með vöxtum skv. 8. gr. vaxtalaga nr. 38/2001 frá 1. apríl 2010 en síðan með dráttarvöxtum skv. 9. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr. vaxtalaga. Áskilinn er réttur til að leggja fram kröfu um kostnað vegna tannviðgerða en skv. vottorði Sigurðar Björgvinssonar tannlæknis er kostnaður vegna þeirra metinn á um kr. 260.000 miðað við verðlag 1. júlí 2010. Einnig er þess krafist að ákærða verði gert að greiða málskostnað brotaþola að skaðlausu, samkvæmt síðar framlögðum reikningi, að viðbættum virðisaukaskatti.“
Ákærði neitar sök í ákærulið II og krefst sýknu af honum, en játar sök að öðru leyti og krefst vægustu refsingar. Þess er krafist að sakarkostnaður, þar með talin málsvarnarlaun, verði greiddur úr ríkissjóði. Ákærði krefst þess að skaðabótakröfunni verði vísað frá dómi.
II
Málavextir varðandi þann þátt málsins þar sem ákærði neitar sök verða nú reifaðir en að öðru leyti er vísað til ákæru, sbr. 3. mgr. 183. gr. laga nr. 88/2008.
Lögreglumenn voru sendir að Hressingarskálanum að kvöldi 1. apríl 2010, en tilkynnt hafði verið um þjófnað þar. Á vettvangi hittu þeir fyrir brotaþola sem kvað mann hafa stolið glerkrukku af veitingastaðnum og hefði hann fylgt manninum eftir. Hann hefði náð tali af honum í Pósthússtræti rétt vestan Austurstrætis. Þar hefði maðurinn grýtt krukkunni að sér, en hún hefði fallið í gangstéttina og brotnað og síðan hefði hann slegið sig í andlitið. Annað vitni kvað mann hafa komið inn á veitingastaðinn og byrjað að borða matvæli sem voru í krukku á barborði. Þegar það gerði athugasemdir við þetta hefði maðurinn gengið út með krukkuna og brotaþoli farið á eftir honum. Brotaþoli hafi svo komið til baka með áverka í andliti.
Brotaþoli leitaði á slysadeild og í vottorði þaðan segir að hann hafi verið „við eðlilega meðvitund. Hann var með mjög mikla bólgu yfir hægra kinnbeini og hægra auga var nærri sokkið í bólgu. Hann var sem sagt með mikið glóðarauga. Einnig blæddi örlítið úr augntótt hægra augans. Hann var með mikla bólgu yfir nefinu sem einnig virtist skakkt til vinstri. Hann var einnig með tvo skurði á hægri kinn, annan undir auganu um 3 cm langan og hinn 2 cm langan meðfram nefi.“ Brotaþoli kom aftur á slysadeild daginn eftir og var þá greindur með brot á augnbotni. Hann leitaði til tannlæknis 7. apríl og samkvæmt vottorði hans voru 5 tennur brotnar, það er framtönn hægra megin og framtönn vinstra megin, jaxl vinstra megin og forjaxl sömu megin og framtönn vinstra megin í neðri góm.
Við yfirheyrslu hjá lögreglu kvaðst ákærði hafa átt laun inni hjá fyrirtækinu og hafi ætlað að ræða þau mál þennan dag. Hann hafi hins vegar ekki fengið áheyrn og því tekið krukkuna til að vekja athygli á máli sínu og farið með hana. Þegar hann hafi verið staddur á horni Pósthússtrætis og Austurstrætis hafi maður komið aftan að sér og ráðist á sig. Hann kvaðst hafa séð sig tilneyddan að verja hendur sínar og snúið sér við og slegið manninn eitt hnefahögg í andlitið.
III
Við skýrslutöku fyrir dómi fyrir aðalmeðferð játaði ákærði sök í I. og II. lið ákæru en neitaði sök í þeim þriðja. Hann kvaðst hafa komið inn á Hressingarskálann til að innheimta skuld og tekið þar krukku eins og lýst er í I. ákærulið og farið með hana út. Maður hafi elt sig og talað ensku. Hann hafi svo ráðist á sig með því að kýla sig í hnakkann og bakið. Þetta hafi verið á mótum Pósthússtrætis og Austurstrætis og þá hafi hann misst krukkuna. Ákærði kvaðst hafa snúið sér við og slegið manninn eitt högg í andlitið í sjálfsvörn, enda hefði maðurinn ráðist á sig. Hann kvað þetta hafa verið laust högg og það ekki getað brotið brotaþola eins og lýst er í ákæru. Í raun hafi verið um ósjálfráð viðbrögð sín að ræða við árás mannsins. Ákærði kvað manninn hafa fallið á rassinn við höggið frá sér og stutt sig með höndunum. Hann hafi svo risið strax á fætur og haldið áfram að elta sig.
Brotaþoli bar að hann hafi á þessum tíma verið að vinna á veitingastað sem er við hlið Hressingarskálans. Að kvöldi fimmtudagsins 1. apríl 2010 hafi starfsfólk þar kallað á sig til aðstoðar, en staðirnir eru í eigu sama aðila. Þar hafði starfsfólk sagt að það ætti í vandræðum með mann sem héldi því fram að bróðir eiganda staðarins skuldaði sér peninga. Þetta endaði með því að maðurinn tók krukku með súkkulaði í og fór á brott. Brotaþoli kvaðst hafa elt hann vestur götuna, en þá hafði þegar verið kallað á lögreglu. Við bókaverslun Eymundsson kvaðst brotaþoli hafa náð athygli mannsins og reynt að ræða við hann, en maðurinn hefði endurtekið það sem hann hafði sagt um skuldina og hótað sér meiðslum. Maðurinn hefði svo haldið áfram í átt að Kaffi París og hefði hann elt hann og eins hefði starfsstúlka af Hressingarskálanum komið á eftir sér. Þegar maðurinn varð var við að þau héldu áfram að elta hann hefði hann hent glerkrukkunni að sér og svo strax á eftir slegið sig með hægri hendi í andlitið og hefði höggið komið á kinnbein fyrir neðan hægra auga. Brotaþoli kvaðst ekki hafa fallið og reynt að fylgjast með manninum en hann hefði komist undan. Hann kvaðst ekki hafa veist að manninum og hann því ekki slegið sig í sjálfsvörn. Síðar hefði hann svo verið fluttur á slysadeild.
Stúlka, sem starfaði á Hressingarskálanum, kvað mann hafa komið inn og sagt bróður eigandans skulda sér peninga. Maðurinn var til vandræða og kvaðst hún hafa hringt á lögregluna. Einnig hefði hún snúið sér til brotaþola og beðið hann um aðstoð við að halda manninum á staðnum. Þegar hún kom til baka hefði maðurinn verið kominn út og skömmu síðar hlaupið á brott og brotaþoli á eftir honum og svo hún á eftir þeim. Þau hefðu hlaupið vestur götuna og beygðu mennirnir fyrir hornið inn í Pósthússtræti gegnt Kaffi París. Þegar hún hefði komið fyrir hornið kvaðst hún hafa séð manninn kýla brotaþola í andlitið. Brotaþoli hefði farið á eftir manninum en snúið síðan til baka að veitingastaðnum eins og hún hefði gert. Hann hefði verið mjög blóðugur og borið önnur ummerki um áverka í andliti.
Önnur starfsstúlka bar að maður hefði komið inn á staðinn og farið að tala um skuld. Hann hefði síðan tekið krukku af barnum og hlaupið út. Annað kvaðst hún ekki hafa séð en brotaþoli hefði hlaupið á eftir manninum til að reyna að ná krukkunni. Næst kvaðst hún hafa komið að brotaþola þar sem hann var allur blóðugur og með áverka en svo hefði hann ekki verið þegar hann fór út.
Læknirinn, sem tók á móti brotaþola á slysadeild og ritar framangreint vottorð, staðfesti það. Læknirinn kvað áverka brotaþola geta hafa stafað af einu þungu hnefahöggi. Þá kvað hann áverka ekki eingöngu koma fram á staðnum sem höggið kemur á heldur geti þeir komið fram þar í kring.
Tannlæknir, sem brotaþoli leitaði til, staðfesti að tennur hans hefðu brotnað eins og að framan greinir. Hann kvaðst ekki hafa gert við allar tennurnar og væri peningaleysi brotaþola líklega um að kenna. Tannlæknirinn kvað tennurnar hafa getað brotnað við líkamsárásina, enda skelli tennur saman við svona högg.
IV
Ákærði hefur skýlaust játað það sem honum er gefið að sök í ákæruliðum I og III og verður hann sakfelldur fyrir þau brot sem eru rétt færð til refsiákvæðis í ákærunni.
Í kaflanum hér að framan var rakinn framburður ákærða, brotaþola og vitna um það sem gerðist og er ákæruefnið í II. lið ákæru. Samkvæmt því, sem þar kom fram, hljóp brotaþoli á eftir ákærða sem hafði tekið glerkrukku ófrjálsri hendi í Hressingarskálanum. Brotaþoli heldur því fram að ákærði hafi slegið sig og hefði höggið komið á kinnbein fyrir neðan hægra auga. Þessi framburður hans fær stuðning í framburði starfsstúlku og læknisvottorði eins og rakið var. Þá hefur ákærði viðurkennt að hafa slegið brotaþola en bar því við að hafa gert það í sjálfsvörn. Eins hefur hann haldið því fram að höggið hafi ekki verið svo þungt að það hafi getað valdið brotaþola þeim áverkum sem hann er ákærður fyrir að hafa valdið honum. Með framburði brotaþola og stúlkunnar og viðurkenningu ákærða er sannað að ákærði sló brotaþola eins og honum er gefið að sök. Læknar hafa staðfest að áverkar brotaþola geti stafað af einu höggi. Samkvæmt þessu telur dómurinn sannað að ákærði hafi gerst sekur um líkamsárás eins og honum er gefið að sök í þessum lið ákærunnar og er brot ákærða þar rétt fært til refsiákvæðis. Ekkert er fram komið í málinu sem styður fullyrðingu ákærða um að hann hafi slegið brotaþola í sjálfsvörn og verður að hafna þeirri staðhæfingu hans.
Ákærði var dæmdur í 4 mánaða skilorðsbundið fangelsi 2003 fyrir brot gegn valdstjórninni og líkamsárás. Hann var dæmdur í 60 daga skilorðsbundið fangelsi 2008 fyrir fíkniefnalagabrot og 2009 í 90 daga fangelsi fyrir sams konar brot. Refsing hans nú, með hliðsjón af 77. gr. almennra hegningarlaga, er hæfilega ákveðin fangelsi í 3 mánuði.
Brotaþoli krefst miskabóta að fjárhæð 400.000 krónur og bóta vegna útlagðs kostnaðar að fjárhæð 74.253. Þá áskildi hann sér rétt til að leggja fram kröfu vegna tannlæknakostnaðar, en þar eð það hefur ekki verið gert kemur sú krafa ekki frekar til álita við úrlausn málsins. Brotaþoli hefur lagt fram kvittanir fyrir kostnaði að fjárhæð 49.903 krónur og verður ákærði dæmdur til að greiða honum þá fjárhæð og 300.000 krónur í miskabætur með vöxtum og málskostnað eins og í dómsorði greinir. Það athugast að ákærða var birt bótakrafan 7. mars 2011 og miðast upphafstími dráttarvaxta við þann dag er liðnir voru 30 dagar frá þeim degi.
Samkvæmt yfirliti yfir sakarkostnað er hann 41.400 krónur. Áður en aðalmeðferð hófst lagði sækjandi fram flugfarmiða brotaþola að fjárhæð 322,44 bresk pund og ljósrit af tveimur miðum sem bera með sér að vera fyrir leigubílakostnaði, hvor að fjárhæð 20 bresk pund. Með vísun til 1. mgr. 216. gr. laga nr. 88/2008 verður ákærði dæmdur til að greiða kostnað samkvæmt yfirlitinu og farseðil brotaþola en miðarnir sem eiga að sýna kostnað við leigubíla uppfylla ekki þær kröfur sem gera verður til reikninga fyrir leigubílaakstri. Á miðunum er gert ráð fyrir að skráð sé númer bíls og undirskrift bílstjóra en þessi atriði vantar á báða miðana. Þá er annar miðinn fyrir akstri 27. júní og því væntanlega áætlun. Það verður því að hafna því að fella þessa fjárhæð undir sakarkostnað. Þá verður ákærði og dæmdur til að greiða málsvarnarlaun verjanda síns að meðtöldum virðisaukaskatti eins og nánar greinir í dómsorði.
Arngrímur Ísberg héraðsdómari kvað upp dóminn.
D Ó M S O R Ð :
Ákærði, Hilmar Grétar Sigþórsson, sæti fangelsi í 3 mánuði.
Ákærði greiði Wayne Paul Sant 349.903 krónur með vöxtum samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga nr. 38/2001 frá 1. apríl 2010 til 7. apríl 2011 en með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags og 200.000 krónur í málskostnað.
Ákærði greiði 105.056 krónur í sakarkostnað og málsvarnarlaun verjanda síns, Sveins Andra Sveinssonar hrl., 251.000 krónur.
Arngrímur Ísberg