Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 23. apríl 2012.
Mál nr. E-2229/2011:
Ú R S K U R Ð
U R
máli nr. E-2229/2011:
Arion banki hf.
(Stefán Svensson hrl)
gegn
Fjármálaeftirlitinu og
Dróma hf.
Lykilorð
Frávísun frá héraðsdómi. Lögvarðir hagsmunir. Málshöfðunarfrestur. Stjórnarskrá. Stjórnvaldsákvörðun. Valdmörk. Ógilding stjórnarathafnar.
Útdráttur
Máli vísað frá dómi þar sem dómkrafa laut að úrlausnarefni er stjórnvöldum var falið að lögum að leysa úr.
Stefnandi máls þessa er Drómi hf., Lágmúla 6, Reykjavík, en stefndu Fjármálaeftirlitið, Suðurlandsbraut 32, Reykjavík og Arion banki hf., Borgartúni 19, Reykjavík.
Dómkröfur stefnanda eru þær að felld verði úr gildi ákvörðun Fjármálaeftirlitsins 4. febrúar 2011, ,,vegna ágreinings um vaxtakjör og vaxtagreiðslur milli Arion banka hf. og Dróma hf. vegna samnings um endurgreiðslu skuldar, sem gerður var í kjölfar yfirtöku Nýja Kaupþings banka hf. á innstæðum SPRON hf.“, að því er varðar niðurfellingu 1,75% vaxtaálags á REIBOR-vexti af skuld stefnda Dróma hf. við stefnanda, samkvæmt samningi um endurgreiðslu skuldar dagsettum 22. júní 2009, frá 30. júní 2010 þar til skuldin hefur verið að fullu greidd upp. Þá er krafist málskostnaðar.
Stefndi, Drómi hf., krefjast þess aðallega að málinu verði vísað frá dómi. Til vara krefst stefndi þess að ógildingarkröfu stefnanda verði hafnað. Þá krefst stefndi málskostnaðar.
Stefndi, Fjármálaeftirlitið, krefst sýknu og greiðslu málskostnaðar.
Í þessum hluta málsins er til úrlausnar frávísunarkrafa stefnda, Dróma hf. Stefnandi krefst þess að frávísunarkröfunni verði hrundið.
Málið var munnlega flutt um frávísunarkröfuna 30. mars sl. og tekið til úrskurðar að því loknu.
I
Með ákvörðun sinni 21. mars 2009 tók stefndi, Fjármálaeftirlitið, yfir vald hluthafafundar SPRON hf., vék stjórn félagsins frá störfum og skipaði skilanefnd yfir félaginu. Var ákvörðunin tekin með heimild í 100. gr. a í lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, sbr. 5. gr. laga nr. 125/2008 um heimild til fjárveitinga úr ríkissjóði vegna sérstakra ástæðna á fjármálamarkaði o.fl. Samkvæmt ákvörðuninni tók stefnandi, sem þá bar nafnið Nýi Kaupþing banki hf., yfir skuldbindingar SPRON hf. vegna innstæðna í bankanum. Einnig skyldi stefnandi yfirtaka skuldbindingar samkvæmt inn- og útflutningsábyrgðum og öðrum nánar tilgreindum ábyrgðum. Þá skyldi stofnað sérstakt hlutafélag í eigu SPRON hf. Átti það félag að taka við öllum eignum SPRON hf. og jafnframt öllum tryggingaréttindum. Félagið átti einnig að taka yfir skuldbindingar gagnvart stefnanda vegna yfirtöku á innstæðuskuldbindingum SPRON hf. Skyldi hið nýstofnaða dótturfélag gefa út skuldabréf til handa stefnanda sem endurgjald fyrir hinar yfirteknu innstæðuskuldbindingar og ábyrgjast hinar yfirteknu ábyrgðir. Þá skyldu allar eignir hins nýja dótturfélags SPRON hf. veðsettar til tryggingar fyrir skuldabréfinu sem og hlutabréf í dótturfélaginu. Þá var einnig tiltekið að tryggja skyldi að vextir skuldabréfsins stæðu undir kostnaði og áhættu vegna gjörningsins og að hagsmunir veðhafans væru tryggðir með viðeigandi skilmálum í trygginga- og lánsskjölum. Í 7. tl. ákvörðunarinnar frá 21. mars 2009 var kveðið á um það að stofnun dótturfélags, yfirfærsla eigna og útgáfa skulda- og tryggingaskjala skyldi fara fram eigi síðar en kl. 12, 6. apríl 2009. Dótturfélag þetta var stofnað og fékk heitið Drómi hf. Með ákvörðun stefnda, Fjármálaeftirlitsins, 5. apríl 2009, var fyrri ákvörðun stefnda breytt að því leyti að stofnun dótturfélags, yfirfærsla eigna og útgáfa skulda- og tryggingaskjala skyldi fara fram eigi síðar en 25. maí 2009. Ekki hafði reynst mögulegt að ljúka yfirfærslu eigna og útgáfu skulda- og tryggingarskjala á þeim tíma sem upprunalega ákvörðunin gerði ráð fyrir vegna tæknilegra vandkvæða. Stefndi, Fjármálaeftirlitið, gerði 17. apríl 2009 aðra breytingu á ákvörðun stofnunarinnar frá 21. mars 2009. Breytingin fólst m.a. í því að við 4. tl. fyrri ákvörðunar var bætt ákvæði um að ef ágreiningur væri með aðilum myndi stefndi, Fjármálaeftirlitið, skera úr honum. Stefnandi og stefndi, Drómi hf., sáu um alla skjalagerð og náðu samkomulagi um öll atriði nema það sem snéri að vaxtakjörunum. Stefndi, Fjármálaeftirlitið, gerði 25. maí 2009 enn breytingu á ákvörðun sinni frá 21. mars. Snéri breytingin að því að stofnun dótturfélags, yfirfærsla eigna og útgáfa skulda- og tryggingaskjala skyldi fara fram eigi síðar en 29. maí 2009. Þann 29. maí var frestur til stofnunar dótturfélags, yfirfærslu eigna og útgáfu skulda- og tryggingaskjala enn framlengdur með ákvörðun stefnda, Fjármálaeftirlitsins, í þetta sinn til 5. júní 2009.
Þann 29. maí 2009 höfðu aðilar ekki ná samkomulagi um vaxtakjör og vaxtagreiðslur. Barst stefnda, Fjármálaeftirlitinu, bréf 29. maí 2009, frá stefnanda þar sem fram kom að ágreiningur væri milli bankans og skilanefndar SPRON hf. um ákvörðun vaxta og heiti skjals. Einnig var í bréfinu tillaga að ákvæðum um vexti. Stefnda, Fjármálaeftirlitinu, bárust bréf frá stefnda, Dróma hf., 29 maí og 2. júní, þar kom fram að stefnandi og stefndi, Drómi hf., hefðu ekki náð samkomulagi um vaxtakjör. Einnig komu fram í bréfunum afstaða bráðabirgðastjórnar SPRON hf. til umræddra vaxtakjara. Þar sem aðilar náðu ekki ná samkomulagi um vaxtakjör tók stefndi, Fjármálaeftirlitið, ákvörðun um vaxtakjör og vaxtagreiðslur á skuldabréfinu 5. júní 2009. Varð það niðurstaða að skuldin skyldi bera ársvexti, sem skyldu vera jafnir eins mánaðar vöxtum á íslenskum millibanka markaði (REIBOR vöxtum) að viðbættu 1,75% vaxtaálagi frá þeim tíma þar til skuldin hefur verið að fullu greidd upp. Skyldu vextir reiknast frá yfirtökudegi innlána og greiðast mánaðarlega inn á reikning sem kröfuhafi tilgreinir. Í ákvörðuninni kom jafnframt fram að stefnda, Fjármálaeftirlitinu, væri heimilt að taka ákvörðunina til endurskoðunar að beiðni aðila á sex mánaða fresti og þá að teknu tilliti til aðstæðna á fjármálamarkaði, þróunar á yfirteknum innlánum, kostnaði og áhættu sem meðstefndi tæki á sig, sem og öðrum atvikum.
Í samræmi við ákvörðun stefnda, Fjármálaeftirlitsins, undirrituðu stefnandi og stefndi, Drómi hf., samning 22. júní 2009 um endurgreiðslu skuldar og veðsamninga vegna yfirtöku skuldbindinganna. Í gr. 5.1 samningsins sagði að skuldari, þ.e. Drómi hf., lofi að greiða vexti af höfuðstól skuldarinnar, eins og hún er á hverjum tíma, og „skulu þeir vera þeir vextir sem Fjármálaeftirlitið ákveður á hverjum tíma, sbr. ákvörðun þess frá 5. júní 2009, nú eins mánaðar vextir á íslenskum millibankamarkaði (REIBOR vextir) að viðbættu 1,75% álagi“. Samkvæmt gr. 5.2 samningsins skyldu vextir reiknast frá yfirtökudegi innlána þann 21. mars 2009. Vexti skyldi greiða einu sinni í mánuði þann 5. hvers mánaðar þar til skuldin væri að fullu endurgreidd. Vextir skyldu greiddir eftirá fyrir hvert vaxtatímabil fyrir sig. Að beiðni aðila sendi stefndi, Fjármálaeftirlitið, bréf 9. nóvember 2009, þar sem gerð var grein fyrir þeim forsendum sem lágu til grundvallar ákvörðuninni frá 5. júní 2009.
Stefndi, Drómi hf., sendi stjórn stefnda, Fjármálaeftirlitsins, beiðni 2. desember 2009 um endurskoðun á ákvörðun stefnda 5. júní 2009, um vaxtakjör og vaxtagreiðslur milli stefnanda og stefnda, Dróma hf. Óskaði stefndi, Fjármálaeftirlitið, eftir sjónarmiðum og athugasemdum stefnanda vegna málsins. Barst svar stefnanda 11. janúar 2010. Í kjölfarið óskaði stefndi, Fjármálaeftirlitið, eftir svörum aðila við tilteknum spurningum. Barst stefnda svar frá stefnanda með bréfi 15. febrúar 2010, og frá stefnda, Dróma hf., 28. febrúar 2010. Í bréfum stefnda, Fjármálaeftirlitsins, 7. apríl 2010, kom fram að aðstæður og forsendur hefðu skýrst frekar frá því að ákvörðun stefnda 5. júní 2009 var tekin auk þess sem frekari reynsla væri komin á þróun yfirtekinna lána. Í ljósi þess ákvað stefndi, Fjármálaeftirlitið, að veita aðilum tækifæri til að ná samningum um vaxtakjör og vaxtagreiðslur á samningi um endurgreiðslu skuldar stefnanda, eða til 28. apríl 2010. Voru frestir í kjölfarið framlengdir að beiðni aðila til 1. júní 2010. Þann 1. júní 2010 barst stefnda, Fjármálaeftirlitinu, bréf frá stefnanda þar sem m.a. var lýst áhyggjum bankans af rekstri stefnda, Dróma hf., og þróun á verðmæti eignasafns þess. Í bréfinu var lögð áhersla á að stefndi, Fjármálaeftirlitið, myndi ekki gera breytingar á vaxtakjörum samningsins áður en frekari viðræður hefðu átt sér stað milli aðila. Lýsti bankinn sig enn fremur reiðubúinn til að horfa með jákvæðum augum á afslátt á vaxtaálagi og leggja sitt af mörkum til að ná sátt í málinu. Stefndi, Fjármálaeftirlitið, hélt fund með aðilum 7. júní 2010 til að ræða um framgang viðræðna, þar sem aðilar hefðu ekki enn náð samkomulagi um vaxtakjör né lokið frágangi á höfuðstól skuldarinnar. Stefndi, Fjármálaeftirlitið, veitti því aðilum frest til 21. júní 2010 til að ná samkomulagi. Var aðilum enn fremur boðið að leggja fram frekari sjónarmið og gögn vegna málsins. Stefnda, Fjármálaeftirlitinu, barst 16. júní 2010 afrit af tillögu stefnanda um breytingu á vaxtakjörum milli stefnda, Dróma hf., og stefnanda. Kom þar fram að bankinn væri reiðubúinn að fallast á að endurskoða vaxtakjörin enda væru þau sett í samhengi við afborganir höfuðstólsins. Var lögð á það áhersla að bankanum yrði bætt það útstreymi innstæðna sem átt hefði sér stað áður en til lækkunar vaxta kæmi. Þegar því marki yrði náð var mælt fyrir um að vextir myndu lækka um 15 til 30 punkta fyrir hverja tíu milljarða sem greiddust af höfuðstólnum. Bankinn taldi enn fremur að samhliða breytingum á vaxtaálagi þyrfti að gera tilteknar breytingar á samningnum varðandi upplýsingaskyldu og uppgjör. Óskaði bankinn viðbragða stefnda, Dróma hf., við framangreindum tillögum.
Stefnda, Fjármálaeftirlitinu, barst 21. júní 2010 bréf frá stefnda, Dróma hf., þar sem gerðar voru athugasemdir við þær röksemdir sem settar höfðu verið fram af hálfu stefnanda í bréfi 15. febrúar 2010 og á fundi 7. júní 2010, auk þess sem að í bréfinu kom fram að stjórn stefnda, Dróma hf., hafði hafnað tillögum stefnanda enda fæli tillagan í sér hærri vaxtakjör en rök stæðu til auk þess sem stjórnin taldi hugmyndirnar stríða gegn ákvæðum laga um slitameðferð fjármálafyrirtækja sem áttu að koma í veg fyrir að eignir yrðu seldar á „brunaútsölu“. Með bréfi stefnda, Fjármálaeftirlitsins, 20. júlí 2010, var óskað eftir frekari upplýsingum frá stefnanda er síðar bárust frá bankanum með bréfi 6. ágúst 2010. Í bréfi bankans kom að auki fram að bankinn stefndi að því að halda fund með fyrirsvarsmönnum stefnda, Dróma hf., í því skyni að ræða tölulegar forsendur, en meðal þeirra mála sem leysa þurfti væri meðhöndlun einstakra innlána auk þess sem meta þyrfti þá yfirdrætti sem eftir hefðu orðið í bankanum. Þann 5. nóvember 2010 hittust fulltrúar stefnda, Fjármálaeftirlitsins, og stefnanda á fundi vegna málsins. Taldi bankinn í framhaldinu nauðsynlegt að koma á framfæri skriflega þeim sjónarmiðum sem höfð voru uppi af hans hálfu á fundinum. Bárust þau með bréfi 10. nóvember 2010, þar sem fram kom að samningar hefðu ekki tekist milli aðila og því væri sýnt að stefndi, Fjármálaeftirlitið, yrði að skera á hnútinn. Í bréfinu sagði enn fremur að engin rök stæðu til þess að vaxtakjörin yrðu lækkuð frá því sem nú væri. Taldi bankinn þvert á móti að hækka ætti kjörin svo að þau yrðu a.m.k. jafn há og þau væru hjá þeim aðilum sem hefðu best lánshæfi í íslensku rekstrarumhveri. Lagði bankinn því til að vaxtakjörum yrði breytt á þann veg að stefndi, Drómi hf., greiddi REIBOR að viðbættu 2,5% vaxtaálagi frá næstu ákvörðun stefnda.
Með tölvubréfi 12. nóvember 2010, gaf stefndi, Fjármálaeftirlitið, stefnda, Dróma hf., kost á að koma á framfæri sjónarmiðum sínum vegna fyrrgreinds bréfs stefnanda. Barst stefnda, Fjármálaeftirlitinu, svar frá stefnda, Dróma hf., 2. desember 2010, þar sem stefndi, Drómi hf., mótmælti sérstaklega kröfu stefnanda um hækkun á vaxtaálagi. Stefndi, Fjármálaeftirlitið, tók ákvörðun 4. febrúar 2011, um að skuld stefnda, Dróma hf., við stefnanda skyldi bera ársvexti sem skyldu vera jafnir eins mánaðar vöxtum á millibankamarkaði (REIBOR) að viðbættu 1,75% vaxtaálagi frá yfirtökudegi til og með 30. júní 2010, en án vaxtaálags frá þeim tíma þar til skuldin hefur verið að fullu greidd upp. Þá var tekið fram að stefnda, Fjármálaeftirlitinu, væri heimilt að taka ákvörðunina til endurskoðunar að beiðni aðila á 6 mánaða fresti.
Mál þetta varðar ágreining um vexti vegna samnings milli stefnanda og Dróma hf., frá 22. júní 2009, um endurgreiðslu skuldar.
II.
Sóknaraðili krefst þess að málinu verði vísað frá dómi á þeim grundvelli að í stefnu sé þess krafist að ákvörðun Fjármálaeftirlitsins frá 4. febrúar 2011, ,,vegna ágreinings um vaxtakjör og vaxtagreiðslur milli Arion banka hf. og Dróma hf. vegna samnings um endurgreiðslu skuldar, sem gerður var í kjölfar yfirtöku Nýja Kaupþings banka hf. á innstæðum SPRÐN hf.“ að því er varði niðurfellingu 1,75% vaxtaálags á REIBOR-vexti af skuld stefnda Dróma hf. við stefnanda, samkvæmt samningi um endurgreiðslu skuldar dags. 22. júní 2010, frá 30. júní 2010 þar til skuldin hefur verið að fullu greidd upp. Þannig lúti krafa varnaraðila að því að ákvörðun Fjármálaeftirlitsins frá 4. febrúar 2011 verði aðeins felld niður að hluta og breytt þannig efnislega. Því sé mótmælt að lagaheimild sé til þess að ákvörðun Fjármálaeftirlitsins sé felld niður að hluta og efnislega breytt og því verði að vísa málinu frá dómi af þeim sökum.
Ákvarðanir Fjármálaeftirlitsins séu fullnaðarákvarðanir á stjórnsýslusviði og verði þær ekki kærðar til æðra stjórnvalds. Heimild til málshöfðunar fyrir dómi í því skyni að hnekkja ákvörðun Fjármálaeftirlitsins sé að finna í lögum nr. 87/1998 um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi. Af 18. gr. laganna verði ekki annað ráðið en að höfða verði mál fyrir dómstólum í því skyni að fá ákvörðun Fjármálaeftirlitsins ógilda í heild sinni en ekki í því skyni að fá ákvörðun fellda niður að hluta til þannig að hún standi eftir að hluta til og því efnislega breytt. Ef slíkt væri heimilt væri verið að færa efnislegt vald frá stjórnvaldi sem fari með fullnaðarúrskurðarvald á ákveðnu sviði stjórnsýsluréttar til dómsvaldsins. Heimildir dómstóla liggi hins vegar fyrst og fremst í því að meta hvort Fjármálaeftirlitið hafi farið út fyrir lagaheimildir við ákvarðanir sínar og ógilda þær ákvarðanir sem ekki hefðu viðeigandi heimildir í lögum en ekki til að kveða á um efnislega skipan mála sem séu á sviði Fjármálaeftirlitsins. Slíkt yrði raunin ef fallist yrði á kröfu varnaraðila um að fella ákvörðun Fjármálaeftirlitsins að hluta til úr gildi. Um þetta megi vísa til dóms Hæstaréttar í máli nr. 327/2003. Eins og kröfugerð varnaraðila sé háttað þurfi dómurinn, ef viðurkenna eigi réttmæti kröfugerðar varnaraðila, að leggja efnislegt mat á málið og taka í því efnislega ákvörðun. Slíkt sé dóminum óheimilt. Beri því að vísa málinu frá dómi.
Sóknaraðili hafnar því að vísa beri málinu frá dómi. Ekki sé verið að gera kröfu um breytingu á stjórnvaldsákvörðun og/eða að dómstólar taki sér vald sem að lögum sé á forræði stjórnvalda. Einungis sé gerð krafa um að ákvörðunin verði felld úr gildi að hluta og þá að því er varði niðurfellingu á 1,75% vaxtaálags.
III
Svo sem fyrr var rakið tók Fjármálaeftirlitið, með ákvörðun sinni 21. mars 2009, yfir vald hluthafafundar SPRON hf., vék stjórn félagsins frá störfum og skipaði skilanefnd yfir félaginu. Fram kemur að ákvörðunin hafi verið tekin með heimild í 100. gr. a laga nr. 161/2002, sbr. 5. gr. laga nr. 125/2008. Samkvæmt ákvörðuninni skyldi hið nýstofnaða dótturfélag SPRON hf., sóknaraðili í þessum þætti málsins, gefa út skuldabréf til handa Nýja Kaupþing banka hf., sem endurgjald fyrir hinar yfirteknu innstæðuskuldbindingar og ábyrgjast hinar yfirteknu ábyrgðir. Skyldu Nýja Kaupþing banki hf. og hið nýstofnaða dótturfélag meðal annars ná saman um vaxtakjör af skuldabréfinu. Fjármálaeftirlitið gerði 17. apríl 2009 breytingu á ákvörðun stofnunarinnar frá 21. mars 2009 sem fólst m.a. í því að við 4. tl. fyrri ákvörðunar var bætt ákvæði um að ef ágreiningur væri með aðilum myndi Fjármálaeftirlitið skera úr honum. Þar sem aðilar náðu ekki samkomulagi um vaxtakjör tók Fjármálaeftirlitið ákvörðun um vaxtakjör og vaxtagreiðslur af skuldabréfinu 5. júní 2009. Í framhaldi af því eða 22. júní 2009, undirrituðu varnaraðili og sóknaraðili samning um endurgreiðslu skuldar og veðsamninga vegna yfirtöku skuldbindinganna. Skyldu vextir „vera þeir vextir sem Fjármálaeftirlitið ákveður á hverjum tíma, sbr. ákvörðun þess frá 5. júní 2009, nú eins mánaðar vextir á íslenskum millibankamarkaði (REIBOR vextir) að viðbættu 1,75% álagi frá þeim tíma þar til skuldin hefur verið að fullu greidd upp“. Skyldu vextir reiknast frá yfirtökudegi innlána þann 21. mars 2009. Fjármálaeftirlitið tók nýja ákvörðun 4. febrúar 2011 um vaxtakjör af nefndu skuldabréfi. Samkvæmt ákvörðuninni skyldi skuldin bera ársvexti sem skyldu vera jafnir eins mánaðar vöxtum á millibankamarkaði (REIBOR) að viðbættu 1,75% vaxtaálagi frá yfirtökudegi til og með 30. júní 2010, en án vaxtaálags frá þeim tíma þar til skuldin hefði að fullu verið greidd upp.
Samkvæmt 100. gr. a laga nr. 161/2002, eins og ákvæðið hljóðaði 21. mars 2009, voru Fjármálaeftirlitinu fengnar heimildir til að grípa til sérstakra ráðstafana á fjármálamarkaði í kjölfar hins svokallaða efnahagshruns haustið 2008. Samkvæmt ákvæðinu gat Fjármálaeftirlitið meðal annars tekið yfir vald hluthafafundar eða fundar stofnfjáreigenda í því skyni að taka ákvarðanir um nauðsynlegar aðgerðir, þar á meðal að takmarka ákvörðunarvald stjórnar, víkja stjórn frá að hluta til eða í heild sinni, taka yfir eignir, réttindi og skyldur fjármálafyrirtækis í heild eða að hluta eða ráðstafa slíku fyrirtæki í heild eða að hluta, meðal annars með samruna þess við annað fyrirtæki. Þessa heimild er nú að finna í VI ákvæði til bráðabirgða í lögum nr. 161/2002. Á grundvelli þessarar heimildar tók Fjármálaeftirlitið ákvörðun sína 21. mars 2009, svo sem ákvörðunin ber með sér, tvær vaxtaákvarðanir og ákvörðun varðandi úrlausn ágreinings.
Nú vill aðili ekki una ákvörðun Fjármálaeftirlitsins og getur hann þá samkvæmt 18. gr. laga nr. 87/1998 höfðað mál til ógildingar hennar fyrir dómstólum. Skal mál höfðað innan þriggja mánaða frá því að aðila var tilkynnt um ákvörðun Fjármálaeftirlitsins. Í máli þessu er ekki ágreiningur um að ákvarðanir þær er Fjármálaeftirlitið tók og mál þetta varðar voru kynntar aðilum samdægurs. Kröfur varnaraðila lúta að ákvörðun Fjármálaeftirlitsins frá 4. febrúar 2011. Mál það sem hér er til úrlausnar var höfðað með stefnu birtri 3. maí 2011 og málið því höfðað innan málshöfðunarfrests 18. gr. laga nr. 87/1998.
Dómkröfur varnaraðila lúta að því að fá úr gildi fellda hluta af ákvörðun Fjármálaeftirlitsins frá 4. febrúar 2011 að því er varðar afnám vaxtaálags eftir 30 júní 2010, en af því myndi að mati varnaraðila leiða að áður ákvarðað 1,75% vaxtaálag stæði óhaggað frá 30. júní 2010 þar til skuldin hefur að fullu verið greidd. Dómstólar skera samkvæmt 60. gr. stjórnarskrárinnar úr öllum ágreiningi um embættistakmörk yfirvalda og geta þannig ógilt ákvarðanir framkvæmdavaldshafa ef þeim er áfátt að formi eða efni. Það leiðir hins vegar af þrískiptingu ríkisvaldsins, sbr. 2. gr. stjórnarskrárinnar, að almennt er ekki á færi dómstóla að taka nýjar ákvarðanir um málefni sem stjórnvöldum eru falin með lögum og ógildanlegar kunna að vera eða gefa stjórnvöldum fyrirmæli um efnislegt innihald slíkra nýrra ákvarðana, sbr. til dæmis dóm Hæstaréttar 19. júlí 2010 í máli nr. 436/2010. Ákvarðanir Fjármálaeftirlitsins eru stjórnvaldsákvarðanir. Samkvæmt því er áður greinir varða kröfur varnaraðila hluta af ákvörðun Fjármálaeftirlitsins frá 4. febrúar 2011. Myndi kröfugerðin leiða til þess, yrði á hana fallist, að önnur efnisleg stjórnvaldsákvörðun lægi fyrir í stað þeirrar sem tekin var 4. febrúar 2011, án þess að það stjórnvald sem í hlut á kæmi að ákvörðuninni. Þar sem slíkt er samkvæmt framansögðu ekki á færi dómstóla verður málinu vísað frá dómi.
Með vísan til 2. mgr. 130. gr. laga nr. 91/1991 greiði varnaraðili sóknaraðila málskostnað svo sem í úrskurðarorði er mælt fyrir um.
Símon Sigvaldason héraðsdómari kveður upp úrskurðinn.
ÚRSKURÐARORÐ:
Máli þessu er vísað frá dómi.
Varnaraðili, Arion banki hf., greiði sóknaraðila, Dróma hf., 400.000 krónur í málskostnað.
Símon Sigvaldason