Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. E-1420/2011:

Skakkiturn

ehf.

(Páll Rúnar M. Kristjánsson hdl)

gegn

íslenska

ríkinu

I.

(Óskar Thorarensen hrl)

Frávísun frá héraðsdómi. Lögvarðir hagsmunir.

Máli stefnanda á hendur stefnda var vísað frá dómi þar sem stefnandi hafði ekki lengur lögvarða hagsmuni af því að fá úrlausn kröfu sinnar um ógildingu úrskurðar ríkistollanefndar.

                                                                    I.

Mál þetta, sem var tekið til úrskurðar um frávísunarkröfu stefnda 5. janúar sl., er höfðað 25. mars 2011 af Skakkaturni ehf., Laugavegi 182 í Reykjavík, gegn íslenska ríkinu.

Upphaflegar dómkröfur stefnanda voru þær að úrskurður ríkistollanefndar frá 14. október 2010 í máli nr. 2/2010 yrði felldur úr gildi. Þá gerði stefnandi kröfu um að viðurkennt yrði með dómi að tollflokka bæri iPod touch lófatölvuna í tollskrárnúmer 8471.3000. Stefnandi krafðist enn fremur málskostnaðar samkvæmt framlögðum málskostnaðarreikningi eða eftir mati dómsins.

Af hálfu stefnda var þess aðallega krafist að dómkröfu stefnanda um að viðurkennt yrði að tollflokka bæri „iPod touch lófatölvuna í tollskrárnúmer 8471.3000“ yrði vísað frá dómi en að stefndi yrði að öðru leyti sýknaður af kröfum stefnanda og hann dæmdur til að greiða stefnda málskostnað að mati réttarins. Til vara krafðist stefndi sýknu af öllum kröfum stefnanda auk málskostnaðar.

Með úrskurði 14. september 2011 var fallist á kröfu stefnda um að vísa bæri fyrrgreindri viðurkenningarkröfu stefnanda frá dómi. Málinu var fram haldið um kröfu stefnanda um að úrskurður ríkistollanefndar frá 14. október 2010 yrði felldur úr gildi. Í þinghaldi 25. nóvember 2011 var upplýst að breytingar hefðu verið gerðar á tollalögum og að tollflokkun á iPod touch hefði verið breytt í kjölfarið. Með vísan til þess gerði stefndi þá kröfu að málinu yrði vísað frá dómi auk þess sem hann krafðist málskostnaðar. Stefnandi mótmælti kröfunni og fór málflutningur fram um ágreining þennan 5. janúar 2012. Þar krefst stefnandi þess að frávísunarkröfunni verið hafnað og málið tekið til efnismeðferðar.

                                                                 II.

Stefnandi flytur inn til landsins vörur frá fyrirtækinu Apple. Hinn 8. desember 2009 lagði lögmaður stefnanda fram fyrir hönd stefnanda umsókn um bindandi álit tollstjórans í Reykjavík um tollflokkun á vörunni iPod touch. Í reit fyrir ætlað tollskrárnúmer vörunnar var skráð númerið 8471.3000. Auk þess kom fram að gert væri ráð fyrir að varan yrði „skráð sem sjálfvirk ferðagagnavinnsluvél sem vegur minna en 10 kg og feli í sér a.m.k. miðstöð, lyklaborð og skjá“. Nánari lýsing á tækinu og eiginleikum þess var að finna í umsókninni.

Með ákvörðun tollstjórans í Reykjavík 9. febrúar 2010 var komist að þeirri niðurstöðu að iPod touch væri hljóð- og myndflutningstæki í ljósi meginvirkni tækisins. Því ætti að fella það undir tollskrárnúmerið 8521.9029 með vísan til almennra reglna um túlkun tollskrár nr. 1 og 6. Stefnandi kærði þessa niðurstöðu til ríkistollanefndar. Ríkistollanefnd kvað upp úrskurð um ágreiningsefnið 14. október 2010 þar sem bindandi álit tollstjóra var staðfest.

                                                                 III.

Stefnandi byggir kröfugerð sína efnislega á því að úrskurður ríkistollanefndar sé rangur. Niðurstaðan sé í andstöðu við ákvæði tollskrár sem og túlkunarreglur tollskrárinnar sem hafi verið birt sem viðauki við tollalög nr. 88/2008. Telur stefnandi að það sé fyrst og fremst orðalag sem ráði tollflokkun. Veiti orðalag tollskrár eða túlkunarreglur ekki heimild til að leita út fyrir texta tollskrár sé það óheimilt að mati stefnanda.

Af hálfu stefnanda er því haldið fram að iPod touch uppfylli öll þau skilyrði sem tilgreind séu í lið 5 A í 74. tölul. 1. gr. auglýsingar nr. 142/2006 um breytingu á viðauka I við tollalög nr. 88/2005 með síðari breytingum, þar sem sjálfvirkum gagnavinnsluvélum er lýst. Enn fremur uppfylli tækið þau einkenni sem komi fram um slíkar vélar í alþjóðlegum samningi um samræmda vörulýsingar- og vörunúmeraskrá, sem hafi tekið gildi 1. janúar 1988 (Brusselskrá). Af þessum sökum telur stefnandi að óhjákvæmilegt sé að tollflokka vöruna sem ferðagagnavinnsluvél. Þá byggir stefnandi á því að ríkistollanefnd hafi verið óheimilt að beita huglægu mati á auglýsingum og framsetningu einstakra framleiðenda á vörunni. Einnig sé niðurstaðan í andstöðu við innlenda dómaframkvæmd sem og tilgreinda dóma Evrópudómstólsins.

Stefnandi byggir enn fremur á því að ríkistollanefnd hafi aflað gagna við meðferð málsins, sem hafi ráðið miklu um niðurstöðu þess, án þess að stefnandi hafi fengið tækifæri til að tjá sig um þau gögn. Af þeim sökum hafi verið brotið gegn andmælarétti hans samkvæmt 13. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Þá reisir stefnandi kröfur sínar á því að niðurstaða ríkistollanefndar sé í andstöðu við jafnræðisreglu 11. gr. sömu laga, þar sem aðrar lófatölvur sem uppfylli sömu hlutlægu skilyrði séu tollflokkaðar sem lófatölvur. Þá sé niðurstaðan í andstöðu við fyrri úrskurði ríkistollanefndar, sem stefnandi telur að hefðu átt að vera fordæmisgefandi.

Stefndi reisir sýknukröfu sína á því að niðurstaða tollyfirvalda um tollflokkun vörunnar iPod touch sé í samræmi við tollskrá og tollalög. Hann heldur því fram að höfuðhlutverk tækja af þessu tagi skipti aðallega máli við tollflokkun þeirra og vísar í því sambandi til athugasemda við lið 5 E í 84. kafla tollskrárinnar. Þá mótmælir stefndi því að tækið uppfylli 4. tölulið athugasemda í lið 5 A í 84. kafla tollskrárinnar, en þar sé gerð krafa um að sjálfvirkar gagnavinnsluvélar geti „framkvæmt, án mannlegra afskipta, vinnsluforrit sem gerir ráð fyrir að þær geti breytt úrvinnslu sinni með rökrænni ákvörðun á meðan á vinnslu stendur“.

Stefndi vísar til vefsíðu framleiðanda vörunnar og telur að af henni megi ráða að höfuðhlutverk iPod touch sé að hýsa og spila stafræna miðla; ljósmyndir, tónlist og hreyfimyndir og þar með leysa hinn hefðbundna iPod af hólmi. Þá telur stefndi að athugasemdir við XVI. tollflokk í tollskrá styðji þá niðurstöðu að umrætt tæki eigi að falla undir tollskrárnúmerið 8521. Meginhlutverk tækisins sé að spila tónlist og kvikmyndir og því geti hann ekki fallið undir tollskrárnúmerið 8471.3000. Þó að tækið búi yfir fleiri eiginleikum þá byggir stefndi á því að tollflokkun þess eigi að ráðast af því hlutverki sem því sé aðallega ætlað. Mótmælir stefndi því að niðurstaða tollyfirvalda sé í andstöðu við innlenda dómaframkvæmd eða dóm Evrópudómstólsins. Þá mótmælir hann því að málsmeðferð ríkistollanefndar hafi farið í bága við andmælareglu 13. gr. stjórnsýslulaga. Telur stefndi að honum hafi ekki verið skylt að bera undir stefnanda gögn sem aflað hafi verið af heimasíðu framleiðanda vörunnar sem vísað hafði verið til af hálfu stefnanda. Þá telur stefndi að ekki liggi fyrir að niðurstaðan sé í andstöðu við fyrri úrskurði ríkistollanefndar og mótmælir því að hún stangist á við 11. gr. stjórnsýslulaga.

                                                                 IV.

Eins og þegar hefur verið vikið að var í þinghaldi 25. nóvember sl. upplýst að breyting hefði verið gerð á tollalögum nr. 88/2005 eftir að málið var höfðað. Nánar tiltekið var með lögum nr. 121/2011 bætt við vöruliðinn 8521 í tollskrá nýju tollskrárnúmeri og tolltaxta, en hann hljóðar svo: „8521.9023 Tæki sem geta gengið án ytri orkugjafa og eru tengjanleg þráðlaust við netkerfi. “Almennur tollur samkvæmt tollskrá (A og A1) er ekki lagður á þessi tæki. Umrædd lög tóku gildi 1. nóvember 2011.

Í þinghaldi var einnig lögð fram umsókn frá stefnanda, sem er undirrituð af starfsmanni hans, dags. 4. nóvember 2011. Þar var óskað bindandi álits um tollflokkun á iPod Touch, en um vörulýsingu sagði í umsókninni að iPod Touch væri „lófatölva hönnuð af Apple“. Þar var síðan gerð nánari grein fyrir vörunni. Taldi umsækjandi að fella ætti tækið undir tollskrárnúmerið 8521.9023. Hinn 21. nóvember 2011 féllst tollstjórinn í Reykjavík á þá tollflokkun.

Stefndi telur að í ljósi þessara upplýsinga geti stefnandi ekki lengur haft lögvarða hagsmuni af úrlausn málsins. Í því efni skírskotar hann til þess að í málinu sé einungis til umfjöllunar krafa stefnanda um að fyrri ákvörðun tollstjórans í Reykjavík um tollflokkun vörunnar verði felld úr gildi. Þessi ákvörðun hafi verið leyst af hólmi með fyrrgreindri ákvörðun 21. nóvember sl. Eins og mál þetta sé vaxið leiti stefnandi því með kröfugerð sinni aðeins svara við lögspurningu sem stangist á við 1. mgr. 25. gr. laga nr. 91/1991. Því beri að vísa málinu frá dómi.

Stefnandi krefst þess að frávísun málsins verði hafnað. Hann telur sig enn þá hafa hagsmuni af því að dómur gangi um gildi úrskurðar ríkistollanefndar. Málið lúti að rangri tollflokkun á iPod touch. Þrátt fyrir síðari umsókn sína heldur stefnandi því fram að varan sé lófatölva, sem með réttu eigi að falla undir tollskrárnúmerið 8471.3000, en ekki afspilunartæki sem falli undir tollskrárnúmerið 8521.9023. Þetta megi raunar ráða af umsókninni, þar sem fram komi að varan sé lófatölva, en fyrir mistök starfsmanns stefnanda hafi þar verið talið að varan heyrði undir tollskrárnúmerið 8521.9023. Stefnandi hafi lengi þurft að greiða of há aðflutningsgjöld sökum þessarar röngu tollflokkunar vörunnar. Með hinni nýju tollflokkun hennar sé stefnanda ekki gert að greiða almennan toll, en aftur á móti leggist á hana 4% höfundarréttargjald. Slíkt gjald yrði ekki lagt á vöruna ef hún yrði flokkuð í tollskrá sem lófatölva. Þá byggir stefnandi á því að hin nýja ákvörðun sé á því reist að fyrri niðurstaða tollyfirvalda hafi verið rétt um að iPod touch sé ekki lófatölva.

                                                                 V.

Eins og rakið hefur verið var með úrskurði dómsins 14. september sl. fallist á kröfu stefnda um að vísa skyldi frá dómi kröfu stefnanda um viðurkenningu á því að tollflokka bæri iPod touch lófatölvuna í tollskrárnúmer 8471.3000. Af hálfu stefnanda er hvorki krafist endurgreiðslu á ætluðum ofgreiddum tollum né viðurkenningar á því að óheimilt hafi verið að leggja á hann tiltekin aðflutningsgjöld við innflutning vörunnar. Lýtur málið því einungis að gildi úrskurðar ríkistollanefndar frá 14. október 2010 um að tollflokka beri iPod touch undir tollskrárnúmerið 8521.9029. Þessi niðurstaða tollyfirvalda hefur nú verið leyst af hólmi með ákvörðun tollstjórans í Reykjavík frá 21. nóvember 2011 sem fyrr er getið. Sú ákvörðun var tekin eftir umsókn stefnanda þar sem lagt var til að iPod touch tilheyrði sama vörulið og ríkistollanefnd lagði til grundvallar en að fella bæri tækið undir tollskrárnúmerið 8521.9023, sem bætt var við tollalög með lögum nr. 121/2011, en þau tóku gildi 1. nóvember 2011. Þótt fallist yrði á kröfu stefnanda um ógildingu úrskurðar ríkistollanefndar myndi það í engu hagga þessari nýju ákvörðun tollstjóra um breytta tollflokkun vörunnar. Úrlausn um kröfu stefnanda er því ekki fallin til að leysa úr undirliggjandi ágreiningi um flokkun vörunnar í vöruliði í tollskrá. Verður að líta svo á að þeir hagsmunir sem stefnandi hafði af því að leita dóms um ógildingu úrskurðarins séu af þessum sökum ekki lengur fyrir hendi. Myndi efnisdómur um gildi hans einungis fela í sér álit um lögfræðilegt efni sem stangast á við 1. mgr. 25. gr. laga nr. 91/1991. Af þessum sökum er óhjákvæmilegt að fallast á kröfu stefnda um að vísa málinu í heild frá dómi.

Í ljósi atvika þykir rétt að hvor aðila beri sinn kostnað af rekstri málsins fyrir dómi, sbr. meginreglu 3. mgr. 130. gr. laga nr. 91/1991.

Ásmundur Helgason héraðsdómari kveður upp úrskurðinn.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð :

Máli þessu er vísað frá dómi.

Málskostnaður fellur niður.

Ásmundur Helgason (sign)

Heimildaskrá

Dómaskrá