Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 28. september 2012.
Mál nr. E-2759/2010:
Ú R S K U R Ð
U R
máli nr. E-2759/2010:
Þb. Fons hf.
(Óskar Sigurðsson hrl)
gegn
Eignarhaldsfélaginu Feng hf
Lykilorð
Málskostnaður. Niðurfelling máls.
Útdráttur
Úrskurður um niðurfellingu máls og málskostnað.
Mál þetta, sem tekið var til úrskurðar hinn 24. september sl., var höfðað fyrir dómþinginu af þrotabúi Fons hf., Höfðatorgi, Reykjavík, á hendur Eignarhaldsfélaginu Feng hf., Suðurgötu 22, Reykjavík, með stefnu áritaðri um birtingu 24. janúar 2010.
Dómkröfur stefnanda voru eftirfarandi:
A. Að rift yrði með dómi sölu á öllum hlutum Fons hf. í Astreus Ltd. til stefnda fyrir 50.002 sterlingspund hinn 18. febrúar 2009.
B. Að stefndi yrði dæmdur til að greiða stefnanda:
1) Aðallega 16.949.998 sterlingspund auk dráttarvaxta samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001, um vexti og verðtryggingu, frá 18. febrúar 2009 til greiðsludags.
2) Til vara 16.949.998 sterlingspund auk almennra vaxta samkvæmt 4. gr. laga nr. 38/2001, um vexti og verðtryggingu, frá 18. febrúar 2009 til þess dags er mánuður væri liðinn frá höfðun þessa dómsmáls en með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001, um vexti og verðtryggingu, frá þeim degi til greiðsludags.
C. Að stefndi yrði dæmdur til að greiða stefnanda málskostnað auk virðisaukaskatts samkvæmt síðar framlögðum málskostnaðarreikningi eða að mati dómsins.
Stefndi krafðist aðallega sýknu en til vara að kröfur stefnanda yrðu stórlega lækkaðar. Þá krafðist stefndi málskostnaðar úr hendi stefnanda að skaðlausu samkvæmt mati dómsins og að við ákvörðun málskostnaðar yrði tekið tillit til þess að stefndi er ekki virðisaukaskattskyldur aðili.
Mál þetta var þingfest hinn 15. apríl 2010 og frestað að ósk lögmanns stefnda til framlagningar greinargerðar til 29. júní sama ár er greinargerð var lögð fram af hálfu stefnda. Málið fór þá út af hinu reglulega dómþingi til úthlutunar til dómara og fékk dómari málsins því úthlutað til meðferðar 7. júlí s.á. Við fyrstu fyrirtöku málsins hjá dómara 16. september s.á. lagði stefnandi fram matsbeiðni og óskaðir stefndi þá eftir fresti til að kynna sér hana. Í næsta þinghaldi, 18. október s.á., lagði stefnandi til tiltekna matsmenn en stefndi óskaði eftir fresti til að taka afstöðu til tillögu stefnanda. Málið var tekið fyrir að nýju 3. nóvember s.á. og voru þá dómkvaddir tveir matsmenn til að framkvæma umbeðið mat og var málinu frestað til framlagningar matsgerðar til 31. janúar 2011. Í því þinghaldi óskaði stefnandi eftir frekari fresti þar sem vinna við matið hefði ekki hafist. Var málinu frestað enn á ný til 8. júní s.á.
Hinn 4. mars s.á. var málið hins vegar tekið fyrir að ósk stefnanda þar sem komið hafði í ljós að annar hinna dómkvöddu matsmanna var talinn vanhæfur til að sinna matsstarfanum og var hann því leystur undan störfum og annar dómkvaddur í hans stað. Var málinu síðan frestað á nýjan leik til framlagningar matsgerðar til 8. júní s.á. Þar sem matsgerð lá ekki enn fyrir síðarnefndan dag var málinu frestað að ósk stefnanda nokkrum sinnum allt til 24. september 2012 í sama skyni. Í því þinghaldi fór stefnandi fram á að mál þetta yrði fellt niður. Lögmaður stefnda krafðist málskostnaðar að mati réttarins en lögmaður stefnanda mótmælti kröfunni og krafðist þess að málskostnaður yrði felldur niður.
Með málssókn þessari hugðist stefnandi fá rift sölu á tilteknum hlutum í Astreus Ltd., með vísan til riftunarreglna laga nr. 21/1991, um gjaldþrotaskipti o.fl., sbr. 131., 141., og 142. gr. laganna. Með matsbeiðni sinni freistaði stefnandi þess að fá mat á því hvert hefði verið verðmæti Astreus Ltd. hinn 18. febrúar 2009 í kjölfar þess að stefndi hafði í greinargerð sinni mótmælt því verðmati sem skiptastjóri stefnanda hafði lagt fram í málinu. Fyrir liggur að verðmat hinna dómkvöddu matsmanna er á annan veg en þau gögn, sem stefnandi hafði lagt til grundvallar kröfugerð sinni í upphafi, og óskaði hann því eftir niðurfellingu málsins.
Þar sem stefnandi hefur óskað eftir niðurfellingu málsins verður það fellt niður með vísan til c-liðar 1. mgr. 105. gr. laga nr. 91/1991, um meðferð einkamála.
Í samræmi við meginreglu 1. mgr. 130. gr. laga nr. 91/1991 ber stefnanda að greiða stefnda málskostnað. Af hálfu stefnda hefur verið lagt fram yfirlit um kostnað hans af málarekstrinum. Þar kemur fram að haldnir hafi verið margir fundir með dómkvöddum matsmönnum og hafi einn þeirra verið haldinn í London. Að þessu virtu og með hliðsjón af umfangi málsins og fjölda fyrirtaka, þykir málskostnaðurinn hæfilega ákveðinn 2.300.000 krónur og hefur þá verið tekið tillit til virðisaukaskattsskyldu stefnda.
Arnfríður Einarsdóttir héraðsdómari kvað upp úrskurð þennan.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð :
Málið er fellt niður.
Stefnandi, þrotabú Fons ehf., greiði stefnda, Eignarhaldsfélaginu Feng hf., 2.300.000 krónur í málskostnað, að meðtöldum virðisaukaskatti.
Arnfríður Einarsdóttir