Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. E-12434/2009:

Landsbanki

Íslands hf.

(Valur Árnason hdl)

gegn

NVN

ehf. og

Einari

Erni Jónssyni

I

(Guðjón Ármann Jónsson hrl)

Hlutabréf. Sjálfskuldarábyrgð. Skuldamál.

Stefndi N dæmdur til að greiða stefnanda skuld vegna afleiðuviðskipta. Þá var stefndi E dæmdur til að greiða tiltekna fjárhæð in solidum með N vegna sjálfskuldarábyrgðar sem hann hafði gengist við til tryggingar skuldum N við stefnanda.

I

Mál þetta, sem dómtekið var 2. nóvember sl., er höfðað fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur af  Landsbanka Íslands hf., Austurstræti 16, Reykjavík, með stefnu birtri 30. október 2009 á hendur NVN ehf., (áður Norðurver ehf.), Laufásvegi 77, Reykjavík og Einari Erni Jónssyni, sama stað.

Endanlegar dómkröfur stefnanda eru að hinu stefnda félagi verði gert að greiða honum 995.552.310 kr. ásamt dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu af 386.159.137 kr. frá 29. febrúar til 28. mars 2008, af 925.716.276 kr. frá 28. mars 2008 til 29. apríl 2008 og af 995.552.310 kr. frá 29. apríl 2008 til greiðsludags gegn afhendingu 27.332.590,60 hluta í Landsbanka Íslands hf. Er krafist vaxtavaxta samkvæmt 12. gr. laga nr. 39/2001 um vexti og verðtryggingu. Þá krefst stefnandi þess að stefnda Einari Erni verði gert að greiða stefnanda 250.000 krónur in soldium með hinu stefnda félagi, ásamt dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu af þeirri fjárhæð frá 5. desember 2009 til greiðsludags. Enn fremur krefst stefnandi málskostnaðar úr hendi stefndu. Er krafist virðisaukaskatts af málflutningsþóknun.

Stefndu krefjast þess aðallega að málinu verði vísað frá dómi, til vara krefjast þeir sýknu en til þrautavara lækkunar krafna. Þá krefjast þeir málskostnaðar úr hendi stefnanda. Er krafist virðisaukaskatts af málflutningsþóknun.

II

Málavextir

Stefnandi og stefndi NVN ehf. gerðu með sér fimm framvirka samninga um kaup félagsins á samtals 27.057.180,60 hlutum í stefnanda. Samningarnir bera fyrirsögnina: „Hlutabréf – Staðfesting á framvirkum samningi.“ Eru þeir fylltir út á stöðluðu formi þar sem skilmálar voru í tveimur hlutum, annars vegar „A. Lýsing á samningi“ og hins vegar „B. Ákvæði samnings“. Í lýsingu samkvæmt A-hluta kemur fram hver sé samningsdagur og gjalddagi, seljandi væri stefnandi og kaupandi stefndi NVN ehf. og seld væru hlutabréf í stefnanda, hve margir hlutir, með ákveðnu „viðmiðunargengi í upphafi“. Vextir voru ákveðin tiltekin % að viðbættu 1,75 % og „framvirkt gengi“ tiltekið og út frá því reiknuð samningsfjárhæð í íslenskum krónum. Samkvæmt B-hluta samningsins, lið I, skuldbatt stefnandi sig til að selja kaupanda framangreind hlutabréf á gjalddaga. Jafnframt skuldbatt seljandi sig á gjalddaga til að afhenda kaupanda framangreint nafnverð hlutabréfa. Í lið II sagði: „Á gjalddaga leggur kaupandi inn á viðskiptareikning seljanda framangreinda samningsfjárhæð.“ Í lið II kom jafnframt fram að óskaði viðskiptamaður eftir því að framlengja samning á gjalddaga, þyrftu aðilar að semja um það sérstaklega. Þá sagði í lið VIII að auk ákvæða samningsins giltu um hann, að því marki sem við ættu, ákvæði í svonefndum rammasamningi stefnanda um markaðsviðskipti og í almennum skilmálum Sambands íslenskra viðskiptabanka og sparisjóða um vaxta- og gjaldmiðlaskipti. Loks sagði í lið XI: „Jafnframt staðfestir mótaðili LÍ að hann hafi kynnt sér eðli framvirkra samninga og notið sérfræðiráðgjafar utan Landsbanka Íslands áður en hann undirritaði samninginn.“

Í öllum tilvikum er um að ræða framlengingu málsaðila á fyrri samningum sama efnis. Nánar tiltekið er um að ræða:

·         Samning með auðkennisnúmerinu 7675-3, dagsettan 30. nóvember 2007, um 5.000.000 hluta á framvirka genginu 38,7486, samningsfjárhæð 193.743.238 kr., með gjalddaga 29. febrúar 2008.

·         Samning með auðkennisnúmerinu 7804-3, dagsettan 30. nóvember 2007, um 5.000.000 hluta á framvirka genginu 38,4832, samningsfjárhæð 192.415.899 kr., með gjalddaga 29. febrúar 2008.

·         Samning með auðkennisnúmerinu 10508-1, dagsettan 28. desember 2007, um 4.726.688,60 hluti á framvirku genginu 35,9654, samningsfjárhæð 169.997.455 kr., með gjalddaga 28. mars 2008.

·         Samning með auðkennisnúmerinu 10666-1, dagsettan 28. desember  2007, um 10.275.410 hluti á framvirka genginu 35,9654, samningsfjárhæð 369.559.684 kr., með gjalddaga 28. mars 2008.

·         Samning með auðkennisnúmerinu 7121-4, dagsettan 29. janúar 2009, um 2.055.082 hluti á genginu 33,9675, samningsfjárhæð 69.806.034 kr., með gjalddaga 29. apríl 2008.

Samningarnir eru óundirritaðir að öðru leyti en því að stefndi Einar Örn undirritaði fyrir hönd hins stefnda félags samninga dagsetta 30. nóvember 2007.

Á gjalddaga hinna umdeildu samninga efndi hvorugur aðilanna skyldur sínar samkvæmt þeim.

Það athugast að í stefnukröfu misritaðist fjöldi hluta í stefnanda sem hann hyggist afhenda stefnda NVN ehf. gegn greiðslu umkrafinnar fjárhæðar, þ.e. hann hyggst afhenda fleiri hluti en um var samið.

Hinn 18. október 2007 undirritaði stefndi Einar Örn, sem jafnframt er stjórnarformaður hins stefnda félags, sjálfskuldarábyrgð á öllum skuldum NVN ehf. við stefnanda, allt að 250.000.000 kr.

Samkvæmt gögnum málsins höfðu stefnandi og hið stefnda félaga áður átt viðskipti með sambærilega fjármálagerninga. Stefndi Einar Örn undirritaði 17. mars 2006, fyrir hönd félagsins, almenna skilmála fyrir markaðsviðskipti hjá stefnanda. Í þessum skilmálum kemur fram að þau gildi um öll markaðsviðskipti milli bankans og viðskiptamanns, þ.e. hins stefnda félags, svo sem skammtímalánveitingar, gjaldeyrisviðskipti, afleiðuviðskipti og kaup og sölu verðbréfa. Skilmálarnir gildi hvort heldur sem viðskiptin eigi sér stað í gegnum síma, veraldarvefinn eða á annan hátt. Um framkvæmd einstakra viðskipta á grundvelli skilmálanna skyldu gerðir skriflegir samningar með nánari ákvæðum um sérgreinda skilmála, lánskjör og endurgreiðslu. Beiðni um viðskipti skyldi komið á framfæri við bankann með símbréfi, tölvupósti eða símtali, en staðfesta bæri alla samninga skriflega nema um væri að ræða svokölluð stundarviðskipti með gjaldeyri. Átti bankinn að koma skriflegum samningum í hendur viðskiptamanns, sem bæri að undirrita þá og skila þeim aftur til bankans innan sjö daga. Um þörf á tryggingum við upphaf viðskiptanna skyldi farið eftir mati bankans, en tekið var fram að honum væri heimilt að krefjast viðbótartrygginga færi tap viðskiptamanns yfir helming af andvirði trygginga og bæri þeim síðarnefnda að meginreglu að verða við slíkri kröfu innan sjö daga. Ákvæði voru um skuldajöfnun (nettun) samninga en bankanum var heimilt, en ekki skylt, væru skuldbindingar viðskiptamanns gjaldfelldar, að beita skuldajöfnuði innan samninga sem féllu undir þessa skilmála þannig að hagnaður og tap hvors aðila fyrir sig væri gert upp í einu lagi. Sérstök fyrirmæli voru um vanefndir og þess meðal annars getið að yrðu þær verulegar af hendi viðskiptamanns væri áfrýjanda heimilt en þó aldrei skylt að gjaldfella eða loka samningi. Skilgreint var í nokkrum liðum hvað teldist til verulegra vanefnda. Þar á meðal voru vanskil við viðskiptamann sem ekki var bætt úr, vanhöld á að leggja fram tryggingar og frumrit samninga innan sjö daga frá dagsetningu samnings. Var kveðið á um að bankanum bæri að tilkynna viðskiptamanni um gjaldfellingu skuldbindingar eða lokun samnings af slíkum ástæðum, en bankinn myndi þá annast útreikning á hagnaði eða tapi af samningi og markaðsverðmæti trygginga og skyldi slíkur útreikningur sendur viðskiptamanni innan fimmtán daga krefðist hann þess. Með undirritun skilmálanna lýsti viðskiptamaður því yfir að sér væri ljóst að markaðsviðskiptin gætu verið sérstaklega áhættusöm. Viðskiptamanni bæri því að afla sér ráðgjafar utanaðkomandi sérfræðinga teldi hann hennar þörf. Auk þess var tekið fram að viðskiptamaður gerði sér grein fyrir því að í markaðsviðskiptum bankans fælist ekki viðskiptavakt. Af því leiddi að bankinn ábyrgðist ekki tilkynningar til viðskiptamanns um stöðu samninga eða lokun þeirra við ákveðin mörk. Það væri því á ábyrgð viðskiptamanns að fylgjast með stöðu og þróun þeirra samninga sem hann hefði gert við bankann.

Fjármálaeftirlitið ákvað 7. október 2008 að taka yfir vald hluthafafundar stefnanda og víkja stjórn hans frá störfum þegar í stað. Var stefnanda jafnframt skipuð skilanefnd, sem tók við öllum heimildum stjórnar hans samkvæmt ákvæðum laga nr. 2/1995 um hlutafélög. Skyldi hún meðal annars sjá um rekstur félagsins og hafa umsjón með allri meðferð eigna þess.

Stefnandi sendi stefnda NVN ehf., hinn 12. febrúar 2009, tilkynningu vegna afleiðu- og gjaldeyrisviðskipta við stefnanda. Þar kemur fram að á yfirlitum sem fylgdu væri að finna alla samninga hans við stefnanda. Annað yfirlitanna hafði að geyma yfirlit yfir lokaða eða gjaldfallna samninga en staðan á þeim miðaðist við lokunardag/gjalddaga þeirra. Var hinna umdeildu samninga getið í yfirlitinu auk tveggja annarra samninga sem hið stefnda félag hafði gert vegna kaupa á hlutabréfum í Hf. Eimskipafélagi Íslands. Var gjaldfallin greiðsla („markaðsvirði“) vegna samningana um kaup á hlutum í stefnda sögð samtals 239.012.310 kr. Var stefnda veittur 14 daga greiðslufrestur frá dagsetningu tilkynningarinnar til að ganga frá greiðslu eða semja um greiðslu ella áskildi stefnandi sér rétt til að innheimta kröfuna með aðstoð lögmanns. Þá var stefnda NVN ehf. send greiðsluáskorun stefnanda 17. mars 2009 og innheimtubréf 25. júní sama ár þar sem krafist var greiðslu á 253.258.029 kr. auk vaxta og kostnaðar, en hluti þeirrar fjárhæðar, 239.012.310 kr., var vegna hinna fimm umdeildu samninga um kaup á hlutum í stefnda. Yfirlit yfir samningana fylgdu þessum kröfubréfum. Stefnandi ritaði stefnda NVN ehf. bréf 20. október 2009 þar sem félaginu var gefinn var kostur á að ,,gera upp þá samninga sem liggja að baki skuld yðar samkvæmt aðalefni sínu, gegn útgáfu afsals undirliggjandi verðmæta“. Stefndi NVN ehf. varð ekki við áskorunum stefnanda og höfðaði stefnandi þá mál þetta. Í stefnu kemur fram að stefnufjárhæðin, sem beinist að stefnda NVN ehf., 995.552.310 krónur, sé ,,samningsfjárhæð“ þeirra fimm samninga sem áður greinir, en krafan gegn stefnda Einari Erni sé reist á ábyrgðaryfirlýsingu hans.

Meðal gagna málsins er enn fremur yfirlýsing stefnda Einars Arnar fyrir hönd hins stefnda félags, dagsett 5. desember 2007, þar sem hann staðfestir að hann hefði kynnt sér efni bréfs stefnanda, frá 23. október sama ár, vegna breytinga á lögum nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti. Með undirrituninni samþykkti hann m.a. flokkun félagsins sem fagfjárfestis.

Hið stefnda félag er, samkvæmt framlögðu vottorði, sagt vera eignarhaldsfélag og tilgangur þess séu kaup og sala fasteigna og lausafjármuna, útleiga eigna, verðbréfaviðskipti, inn- og útflutningur, kaup og sala veiðileyfa, sala ráðgjafar á þessum sviðum og annar skyldur rekstur.

Stefndi Einar Örn er með verslunarpróf frá Verslunarskóla Íslands. Auk þess að vera stjórnarmaður hins stefnda félags var hann einn eigenda og sat um árabil í stjórn eignarhaldsfélagsins Saxhóls ehf. Af hálfu stefndu eru gerðar athugasemdir við málatilbúnað stefnanda í stefnu. Telja þeir  skjöl, sem lögð hafi verið fram með stefnu og byggt sé á, í besta falli drög að samningum. Ekkert þeirra sé undirritað af stefnanda og aðeins tvö þeirra af hálfu hins stefnda félags. Hin þrjú séu algjörlega óundirrituð. Stefndu vísa til þess að í svokölluðum MiFID reglum, sem innleiddar hafi verið á Íslandi með setningu laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti og tekið hafi gildi 1. nóvember 2007, skömmu fyrir dagsetningu meintra samninga, sé enn frekar hnykkt á þeim atriðum og kröfum sem varði samninga fjármálafyrirtækja um fjármálagerninga við viðskiptavini sína sem þar séu flokkaðir nánar eftir starfa þeirra og eðli. Í stefnu komi ekkert fram um hvernig hið stefnda félag hafi verið flokkað samkvæmt þeim reglum. Enn fremur benda stefndu á að í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis, um aðdraganda og orsakir falls íslensku bankanna 2008, komi fram mörg og veigamikil ákvæði um innri starfsemi þeirra, þ.m.t. stefnanda, sem fæstir virðist hafa haft hugarflug til að láta sér detta í hug. Hvað málshöfðun þessa varði megi þó vísa til 12. kafla skýrslunnar, um verðbréfamarkaðinn, þar sem nefndin hafi komist að þeirri niðurstöðu að hlutir í stefnanda hafi verið taldir verðmeiri en þeir hafi verið í raun og nýir hluthafar á þeim tíma hafi keypt hluti á of háu verði.

Skýrslu fyrir dómi gáfu stefndi Einar Örn Jónsson, stjórnarformaður hins stefnda félags, Steinþór Gunnarsson, Arnar Jónsson, Jón Otti Jónsson, Árni Maríasson, Erla Hrönn Aðalgeirsdóttir, núverandi og fyrrverandi starfsmenn stefnanda, og Knútur Þórhallsson, endurskoðandi stefnda NVN ehf.

III

Málsástæður stefnanda

Af hálfu stefnanda er vísað til þess að skuld hins stefnda félags við hann, samkvæmt þeim samningum sem um ræðir, sé 995.522.310 kr. Byggir stefnandi á því að félagið hafi skuldbundið sig til að leggja kaupverðið á samtals 27.057.180,60 hlutum í stefnanda, þ.e. svonefnda samningsfjárhæð, inn á reikning stefnanda á gjalddaga samninganna. Stefndi Einar Örn hafi tekið á sig sjálfskuldarábyrgð á allt að 250.000.000 kr. og sé hann því krafinn um greiðslu á þeirri fjárhæð vegna skulda félagsins.

Stefnandi mótmælir því að umræddir samningar hafi ekki skuldbindingargildi. Um sé að ræða skriflega staðfestingu á samkomulagi sem komist hafi á milli verðbréfamiðlara og hins stefnda félags. Stefndu rugli saman hugtökunum skriflegur samningur og undirritaður samningur. Þá hafi það verið venja í viðskiptum aðila að samningar væru ekki alltaf undirritaðir. Liggi fyrir að stefndi NVN ehf. hafi áður fengið greiddan hagnað samkvæmt samningum sem ekki hafi verið undirritaðir. Bendir stefnandi á að hann hafi sent stefnda Einari Erni kröfu um viðbótartryggingu (veðkall) vegna viðskipta við stefnanda og þá hafi stefndi sjálfur óskað eftir yfirlitum þar sem hinna umdeildu samninga hafi verið getið. Aldrei hafi hið stefnda félag haldið því fram að það væri ekki bundið af samningunum. Þótt samningarnir hafi ekki verið undirritaðir af hálfu bankans skuldbindi þeir samt sem áður stefnda. Stefnandi sjálfur beri það ekki fyrir sig að samningar séu ekki skuldbindandi fyrir hann.

Stefnandi vísar til þess að samningarnir hafi verið dæmigerðir fyrir þá afleiðusamninga sem hafi tíðkast fyrir hrun. Framvirkur samningur um hlutabréf sé í eðli sínu mjög einfaldur en uppgjör hans fari eftir gengi hlutabréfanna, þ.e. mismun á gengi þegar samningurinn hafi komist á og þegar hann sé gerður upp. Stefndi Einar Örn hafi í mörg ár komið að fyrirtækjarekstri og ætti því að vera kunnugur viðskiptum með hlutabréf.

Stefnandi vísar til þess að í greinargerð stefndu hafi ekki verið á því byggt að stefndi hafi ekki verið fagfjárfestir. Einungis sé vísað almennt til svokallaðra MiFID-reglna en ekki til þess hvaða afleiðingar röng skráning ætti að hafa að lögum. Telur hann að málsástæða stefndu hvað þetta varðar sé of seint fram komin. Verði ekki fallist á það leiði hugsanleg röng skráning ekki til þess að samningarnir teljist óskuldbindandi.

Stefnandi vísar á bug þeim málsástæðum að samningarnir séu ólögmætir á grundvelli ákvæða laga nr. 7/1936 um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga.

Stefnandi vísar til þess að innheimtubréf til hins stefnda félags hafi gert ráð fyrir svokallaðri nettun samninga, eins og heimilt hafi verið samkvæmt hinum almennu skilmálum, en í máli þessu sé krafist greiðslu samkvæmt ákvæðum samningsins, þ.e samningsfjárhæðar. Telur stefnandi sig ekki bundinn við fyrri innheimtubréf enda hafi þeim ekki verið svarað.

Stefnandi mótmælir sérstaklega að stefndu geti komið að nýjum málsástæðum eins og hann virðist gera í dómsskjali sem hann lagði fram í upphafi aðalmeðferðar.

Um lagarök vísar stefnandi til almennra reglna samninga- og kröfuréttar um efndir samninga og fjárskuldbindinga. Kröfu um dráttarvexti styður hann við 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu. Krafa stefnanda um málskostnað styðst við 129. og 130. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála.

Málsástæður stefndu

Frávísunarkrafa stefndu byggist á e og f lið 1. mgr.  80. gr. laga um  meðferð einkamála nr. 91/1991. Telja stefndu að málavaxtalýsing, kröfugerð og röksemdir, lagatilvitnanir og allt það sem áskilið er í tilvitnaðri lagagrein sé í skötulíki í málatilbúnaði stefnanda og allsendis ófullnægjandi til að byggja málarekstur á. Þá telja stefndu að endalega stefnukröfu megi lesa þannig að heildarstefnufjárhæð sé 1.245.552.310 kr. þar sem til viðbótar kröfu að fjárhæð 995.552.310 kr. á hendur hinu stefnda félagi sé krafist 250.000.000 kr. úr hendur stefnda Einari Erni in solidum með félaginu. Sé stefnufjárhæðin í meginatriðum röng og því ætti að vísa málinu frá vegna óljósrar kröfugerðar.

Stefnda NVN ehf. byggir sýknukröfu sína á því að ekki sé til að dreifa lögformlegum samningum milli aðila að baki kröfum stefnanda. Þau viðskipti sem kröfurnar byggist á, og hafi verið kölluð framvirkir samningar hér á landi, séu í eðli sínu með þeim hætti og þeirri óvissu, nánast happadrætti eins og sýnt hafi sig. Vel þurfi að vanda til samninganna svo gildir séu enda margskonar óvissa í þeim um uppgjörsfjárhæðir fyrir báða aðila. Af þeim sökum séu slíkum samningum sett ítarleg skilyrði í lögum um fjármálafyrirtæki sem leggi ríkar kröfur á þá aðila sem þess lags viðskipti mega stunda, sér í lagi ef gerð eru fyrir eigin reikning eins og við eigi í þessu máli og þá þeim mun frekar í verslun með eigin bréf. Af skilmálum stefnanda og framlögðum kröfuskjölum megi leiða að ekki hafi verið komnir á bindandi samningar milli aðila og engar fjárhagslegar tilfæringar eða skuldbindingar verið gerðar slíku samfara. Þá hafi ekki verið sýnt fram að þar til bærir aðilar, samkvæmt reglum stefnanda, hafi tekið þær ákvarðanir sem teknar hafi verið eða undirgengist þær skuldbindingar, m.a. um lánafyrirgreiðslu stefnanda, þar með talið um lánafyrirgreiðslu út á eigin hlutabréf. Engu breyti þó aðilar hafi áður átt í einhverjum fyrri viðskiptum sem lokið sé og að pottur kunni að hafa verið brotinn í formgerð þeirra. Telur stefndi að umkrafðir samningar hafi ekki komist á milli aðila, séu ekki skriflegir, ekki undirritaðir og ekki með lögformlegum hætti og ekki bindandi fyrir stefnda. Jafnframt telur hann að meintir samningar hafi verið gerðir án vitundar og samþykkis stefnda. Líta verði svo á að um sjálftöku eða sjálfsafgreiðslu stefnanda hafi verið að ræða og þá á hvaða verði sem er enda liggi ekkert fyrir um að söluverð á hverjum tíma hafi verið markaðsverð, því síður rétt markaðsverð.

Stefndi NVN ehf. telur að samningar, ef á hefðu komist, séu ólögmætir, sbr. ákvæði laga nr. 7/1936 um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga. Ljóst sé nú að stefnanda hafi verið kunnar rangar verðskráningar þeirra bréfa sem hann hafi selt og skv. MiFID reglum, sbr. lög 108/2007, hafi upplýsingar verið ónógar. Meintur seljandi og milligönguaðili um sölu hafi verið einn og sami aðili, þ.e. stefnandi, og því ljóst að hann hafi verið vinnuveitandi þeirra starfsmanna sem að hinum meintu viðskiptum hafi komið og beri sem slíkur húsbóndaábyrgð á gjörðum þeirra, m.a. varðandi það að beita stefnda blekkingum í hinum meintu viðskiptum með þeirri markaðsmisnotkun sem hann hafi nú orðið uppvís að. Þessi staða mála hafi gert ríkari kröfur stefnanda um allt form og efni samninga ásamt kröfu um meiri upplýsingar til stefnda. Hjá stefnanda hafi verið til staðar þekking um verðmæti hlutabréfanna og ofmat þeirra sem haldið hafi verið frá stefnda með þeim hætti að sviksamlegt verði að telja, sbr. ákvæði almennra hegningalaga nr. 19/1940.

Varakröfu sína um lækkun krafna byggir stefndi NVN ehf. á kröfugerð stefnanda sjálfs og framlögðum gögnum slitastjórnar og fyrri kröfum um meinta skuld stefnda. Fyrir liggi að gjalddagar meintra samninga hafi verið í febrúar, mars og apríl 2008. Ekkert sé fram komið í stefnu um það að stefnandi hafi á þessum tíma horft til þess að beita ákvæðum í hinum meintu samningum (grein IX) eða skuldajöfnun, nettun samninga, sbr. 4. gr. almennra skilmála stefnanda eða í raun leitað neinna annarra úrræða til lausnar þessara viðskipta, þegar til greiðslufalls hafi komið. Þá liggi ekkert fyrir um að stefnandi hafi boðið fram greiðslu hlutabréfanna af sinni hálfu á meintum gjalddögum samninganna.

Stefndi Einar Arnar kveðst byggja á öllum sömu málsástæðum og rökum og meðstefndi en auk þess öðru fremur á að umkrafðir samningar hafi aldrei komist á. Þar með sé engri skuld til að dreifa hjá meðstefnda en meint skuld byggist á ábyrgð á skuld á grundvelli undirritaðs samkomulags. Í annan stað vísar hann til þess að samningar sem greiðsluábyrgðar sé krafist fyrir hafi verið ólöglegir og fái því ekki staðist. Óbein ábyrgð, með þeim hætti sem til hafi verið stofnað með framlögðu samkomulagi og að þeirri fjárhæð, sé í alla staði óeðlileg. Hefði verið í verkahring stefnanda að gera stefnda rækilega grein fyrir því hvað þýddi í raun fyrir einstakling að takast slíkt á hendur án þess að nokkuð lægi frekar fyrir um þekkingu hans og getu til að efna. Telur stefndi þetta alfarið stangast á við ákvæði MiFID reglna skv. lögum 108/2007 sem í gildi hafi verið gengin þegar til meintra skuldbindinga vegna ábyrgðarinnar hafi verið stofnað. Stefndi vísar enn fremur til ákvæða laga nr. 7/1936 um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga kröfu sinni til stuðnings enda sé brostin forsenda fyrir gildi nefnds samnings um ábyrgð hans.

Stefndu mótmæla kröfum stefnanda um tildæmdan virðisaukaskatt af málskostnaði. Stefnandi sé fjármálastofnun og því undanskilinn greiðslu virðisaukaskatts. Málshöfðun, sem ein tegund innheimtu, og sem unnin sé af starfsmönnum stefnanda, þó lögmannsréttindi hafi, sé því í engu frábrugðin annarri reglulegri starfsemi slíkra starfsmanna í þágu stefnanda.

Um lagarök vísa stefndu til meginreglna samninga og kröfuréttar um réttar efndir samninga og fjárskuldbindinga sem og einkamálalaga nr. 91/1991, einkum 80. gr. 1. mgr. Þá vísa þeir til laga nr. 7/1936 um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga, einkum greina 30, 33, 36 og 38, til laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007 einkum til 1., 2., 5., 8., 9., 10., 14., 15., 16., 18. og 19. gr. laganna. sbr. áður lög 33/2003, einkum til 2. kafla laganna um réttindi og skyldur, til reglugerðar um fjárfestingavernd og viðskiptahætti fjármálafyrirtækja nr. 995/2007 og ákvæða og reglugerðar um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005. Loks vísa stefndu til ákvæða almennra hegningarlaga nr. 19/1940, einkum greinar 19 ásamt greinum 248-249 sem og grein 261. Málskostnaðarkrafa stefndu er byggð á 129. og 130. gr. einkamálalaga 91/1991. Krafa um virðisaukaskatt er byggð á lögum um virðisaukaskatt nr. 50/1988 enda hvorugur stefndu virðisaukaskattsskyldur aðili.

IV

Niðurstaða

Í máli þessu deila aðilar um gildi fimm framvirkra samninga um kaup stefnda NVN ehf. á samtals 27.057.180,60 hlutum í stefnanda. Enn fremur er deilt um gildi yfirlýsingar stefnda Einars Arnar um sjálfskuldarábyrgð á skuldum meðstefnda. Umræddir samningar voru gerðir 30. nóvember 2007, 28. desember 2007 og 29. janúar 2008 og voru allir með gjalddaga um þremur mánuðum síðar. Samkvæmt ákvæði samninganna skuldbatt stefnandi sig til að selja stefnda framangreinda hluti og hið stefnda félag skuldbatt sig til að inna af hendi kaupverðið (samningsfjárhæð) á gjalddaga samninganna sem var ákveðinn þremur mánuðum eftir gerð þeirra. Í öllum tilvikum var um að ræða endurnýjun samhljóða samninga, þ.e. um kaup á tilteknum hlutum í stefnanda, en samningsfjárhæð var misjöfn sem skýrðist af breyttu gengi hlutanna. Í málavaxtalýsingakafla dóms þessa er nánar gerð grein fyrir samningunum, hinum almennu skilmálum sem giltu í viðskiptum milli aðila og því að stefndi Einar Örn hafði samþykkt flokkun félagsins sem fagfjárfestis.

Um frávísunarkröfu

Með úrskurði uppkveðnum 30. mars sl. var kröfu stefndu um frávísun málsins hafnað. Stefndu byggja m.a. á því að þegar stefnukrafan sé lesin í heild sinni sé verið að krefjast greiðslu samtals á 1.245.552.310 kr., þ.e. 995.552.310 kr. úr hendi stefnda NVN ehf. og 250.000.000 kr. úr hendi stefnda Einars Arnar. Þótt fallast megi á það með stefndu að stefnukrafan á hendur stefnda Einari Erni hefði mátt vera skýrari, er til þess að líta að forsendur hennar eru skýrðar í stefnu og endanlegri kröfugerð stefnanda. Málið er að þessu leyti fullreifað af stefnanda hálfu og verður ekki séð að stefndu hafi verið gert erfitt fyrir um varnir af þessum sökum. Er því hafnað ítrekaðri kröfu stefndu um frávísun málsins.

Um sýknukröfu

Sýknukrafa stefnda byggist í fyrsta lagi á því að engir skuldbindandi samningar hafi komist á milli aðila. Vísar hann m.a. í því samhengi til þess að samningarnir séu ekki undirritaðir af báðum aðilum. Séu þeir því ekki skuldbindandi fyrir hið stefnda félag. Það að samningarnir hafi ekki verið undirritaðir sé ekki í samræmi við þá almennu skilmála fyrir markaðsviðskipti sem gilt hafi í viðskiptum aðila.

Vegna þessa er rétt að líta til fordæmis Hæstaréttar Íslands í máli nr. 93/2011, frá 24. nóvember sl., þar sem sambærilegt álitaefni var til úrlausnar. Þar taldi rétturinn að niðurstaða málsins gæti ekki ráðist af því einu að viðskiptamaðurinn hefði ekki undirritað samning um þau viðskipti sem deilt var um hvort komist hefðu á. Vísaði rétturinn m.a. til þess að lög nr. 33/2003 um verðbréfaviðskipti (nú lög nr. 108/2007) leiddu ekki til þess að viðskiptamanni og fjármálafyrirtæki bæri að gera skriflega samninga um einstök viðskipti sín. Það ósamræmi, sem væri innbyrðis milli hinna almennu skilmála, sem voru samhljóða þeim sem um ræðir í máli þessu, yrði óhjákvæmilega að valda því að þar teldist ekki hafa verið kveðið skýrt á um skyldu til að gera einstaka viðskiptasamninga milli aðilanna skriflega svo að afleiðingar gæti haft fyrir gildi þeirra. Umrætt ósamræmi fólst í því að í 2. grein skilmálanna var kveðið á um að allir samningar skyldu staðfestir skriflega nema um væri að ræða stundarviðskipti með gjaldeyri. Þá bæri bankanum að senda frumrit allra samninga, sem samkvæmt þessu ætti að gera skriflega, til viðskiptamanns, sem væri skylt að koma þeim undirrituðum til bankans innan sjö daga frá samningsgerð. Í ákvæðum 7. greinar skilmálanna um vanefndir og heimildir bankans til að gjaldfella skuldbindingar viðskiptamanns sagði á hinn bóginn að bankanum væri heimilt, en undir engum kringumstæðum skylt, að gjaldfella eða loka samningi, meðal annars ef frumrit samninga hefði ekki borist bankanum innan 7 daga frá dagsetningu samnings eða fyrir gjalddaga, ef hann væri hann innan þeirra tímamarka. Með vísan til þessa fordæmis Hæstaréttar verður ekki fallist á að hinir umdeildu samningar í máli þessu séu ekki skuldbindandi fyrir hið stefnda félag af þeirri ástæðu einni að þeir séu ekki undirritaðir fyrir hönd félagsins og stefnanda.

Kemur því til skoðunar hvort stefnanda hafi tekist sönnun fyrir því að samningarnir hafi komist á.

Af hálfu stefnanda hefur því verið haldið fram að það hafi verið venja í viðskiptum aðila að samningar væru ekki undirritaðir en hefðu samt sem áður verið taldir gildir. Því til staðfestingar lagði stefnandi fram tvo sambærilega samninga og þá sem um er deilt í máli þessu en þeir bera auðkennisnúmerið 5862-2 og 5497-5. Voru þeir ekki undirritaðir af hálfu aðila. Samkvæmt yfirliti stefnanda voru þeir samt sem áður gerðir upp til hagsbóta fyrir hið stefnda félag árið 2007, hinn síðarnefndi með rúmlega 53 milljón króna hagnaði fyrir félagið.

Í aðilaskýrslu sinni fyrir dómi bar stefndi Einari Örn að viðskipti hans fyrir hönd hins stefnda félags við stefnanda hefðu venjulega gengið þannig fyrir sig að starfsmaður verðbréfamiðlunar stefnanda, Steinþór Gunnarsson, hefði haft samband við sig og þeir síðan gert munnlega samninga. Í kjölfarið hefðu skriflegir samningar verið undirritaðir af beggja hálfu. Taldi Einar Örn sig ekki hafa samþykkt þá samninga sem um er deilt í máli þessu þar sem þeir hefðu ekki verið undirritaðir af hálfu beggja aðila. Þó svo fyrir lægi að hann hefði undirritað tvo af samningunum fimm væri það ekki trygging fyrir því að viðskiptin hefðu gengið eftir þar sem komið hefði fyrir að hætt hefði verið við samninga sem þeir Steinþór höfðu samið um.

Í framburði framangreinds Steinþórs kom fram að eftir að hann, fyrir hönd stefnda, og stefndi Einar Örn hefðu gert með sér munnlega samninga hefði Steinþór sent „pöntun inn í kerfið“ og aðrir starfsmenn stefnanda hefðu séð um að klára samninginn, m.a. ákveða kjör á lánum og senda hann til viðskiptamanns til undirritunar. Minntist Steinþór þess ekki að bankinn hefði nokkurn tíma hrokkið frá samningi. Sama kom fram í framburði annarra starfsmanna stefnanda sem skýrslu gáfu fyrir dóminum. Þá skýrðu þeir frá því að sambærilegir samningar hefðu ekki verið undirritaðir af hálfu stefnanda nema viðskiptavinur hefði óskaði sérstaklega eftir því.

Af hálfu stefnanda voru lagðir fram tölvupóstar vegna samskipta starfsmanna hans við stefnda Einar Örn vegna viðskipta málsaðila. Er hinna umdeildu samninga getið í þeim.

Með tölvupósti stefnanda 10. desember 2007 var stefnda Einari Erni send krafa um viðbótartryggingu vegna viðskipta við stefnanda, þ.e. svokallað veðkall. Þar er að finna yfirlit yfir þá framvirku hlutabréfasamninga sem voru í gildi milli hins stefnda félags og stefnanda þann dag, m.a. tvo samninga um framvirk kaup félagsins á hlutum í stefnda, dagsetta 30. nóvember 2007, er bera auðkennisnúmerin 7840-3 og 7675-3, en þeir eru meðal þeirra samninga sem um er deilt í máli þessu. Hinn 9. janúar 2008 var veðkallið ítrekað. Til viðbótar við framangreinda samninga frá 30. nóvember 2007 var getið um tvo samninga frá 28. desember 2007, er bera auðkennisnúmerið 10508-1 og 10666-1, en þeir eru líka meðal hinna umdeildu samninga. Hinn 7. febrúar 2008 var Einari Erni aftur sent veðkall með tölvupósti stefnanda. Til viðbótar við framangreinda samninga var getið um samning frá 29. janúar 2008, er ber auðkennisnúmerið 7121-4, en hann er enn fremur meðal hinna umdeildu samninga. Voru stefnda Einari Erni þannig send veðköll þar sem allra hinna umdeildu samninga var getið. Liggur ekkert fyrir í gögnum málsins um að hann hafi andmælt gildi þessara samninga. Þvert á móti sendi hann tölvupósta til Steinþórs Gunnarssonar 9. og 10. febrúar 2008, þar sem hann ræðir m.a. um að hann þurfi að „losa um bréf í Landsbankanum“.

Með tölvupósti Steinþórs Gunnarssonar til stefnda Einars Arnar, dagsettum 4. febrúar 2008, var hann beðinn um að undirrita og faxa samninga. Samkvæmt viðhengjum sem fylgdu tölvupóstinum var um að ræða samninga með auðkennisnúmerin 10666-1, 10508-1 og 7121-4 en það eru þeir samningar sem um er deilt í málinu og ekki eru undirritaðir að neinu leyti. Síðar sama dag svarar stefndi Einar Örn tölvupósti Steinþórs með þeim orðum að hann „sé erlendis fram á miðvikudag faxlaus kem til þín þá og kvitta“. Samningarnir voru ekki undirritaðir af hálfu Einars Arnar í kjölfar þessa svarpósts hans. Þá liggur fyrir í málinu tölvupóstur starfsmanns stefnanda, dagsettur 26. ágúst 2008, til hans, þar sem ítrekuð er beiðni um að samningar, með sömu auðkennisnúmerum, verði undirritaðir og sendir stefnanda í símbréfi. Liggur ekki fyrir í gögnum málsins að stefndi Einar Örn hafi borið fyrir sig að hann teldi hið stefnda félag ekki bundið af umræddum samningum.

Með tölvupósti stefnda Einars Arnar, dagsettum 18. september 2008, óskaði hann eftir því við stefnanda að teknir yrðu saman allir samningar sem í gildi væru milli hins stefnda félags og stefnanda. Stefnandi varð við beiðninni og sendi honum yfirlit yfir samningana og tryggingar hins stefnda félags. Á því koma fram hinir fimm umdeildu samningar um kaup hins stefnda félags á hlutum í stefnanda. Hér liggur heldur ekki fyrir að stefndi Einar Örn hafi borið fyrir sig að hann teldi félagið ekki bundið af samningunum.

Stefnandi hefur lagt fram samninga er bera sömu auðkennisnúmer og samningar þeir sem um er deilt í málinu, þ.e. upphaflega samninga og samninga um endurnýjun. Þannig eru samningar nr. 10508-0 nr. 10666-0 og nr. 7121-1 undirritaðir af stefnda Einari Erni. Óumdeilt er að upphaflegur samningur er alltaf með númerinu 0 fyrir aftan auðkennisnúmerið (bandstrik og 0) en í hvert sinn sem viðkomandi samningur er endurnýjaður hækkar það númer um einn tölustaf. Verður því ekki annað ráðið en að stefndi Einar Örn hafi samþykkt samningana þótt ekki liggi fyrir undirritun hans á endurnýjun þeirra. Hefðu þeir ekki verið endurnýjaðir hefði hið stefnda félag þurft að gera þá upp, þ.e. samningunum hefði verið lokað, en ekkert hefur komið fram um að það hafi verið gert.

Með vísan til alls framangreinds verður að telja sannað að samningar þeir sem um er deilt í málinu hafi komist á milli stefnanda og hins stefnda félags, enda bar félagið ekki fyrir sig fyrr en eftir málshöfðun þessa að þeir hefðu ekki skuldbindingargildi.

Í öðru lagi byggir stefndi NVN ehf. sýknukröfu sína á því að samningunum, hafi þeir komist á, beri að víkja til hliðar á grundvelli 30., 33., 36. og 38. gr. laga nr. 7/1936 um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga. Vísar hann í því samhengi m.a. til þess að hið stefnda félag hafi ranglega verið flokkað af stefnanda sem fagfjárfestir. Af hálfu stefnanda var þessari málsástæðu mótmælt sem of seint fram kominni. Í greinargerð stefndu í málinu er sérstaklega vísað til þess að ekkert komi fram í stefnu um hvernig hið stefnda félag hafi verið flokkað samkvæmt svokölluðum MiFID reglum, sem innleiddar hafi verið á Íslandi með setningu laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti. Þótt málatilbúnaður stefndu hefði mátt vera skýrari að þessu leyti verður að telja að dóminum sé heimilt að taka afstöðu til þessarar málsástæðu stefndu. Um þetta atriði liggur hins vegar fyrir skýrt fordæmi Hæstaréttar Íslands í málinu nr. 638/2010, frá 24. janúar sl., þar sem rétturinn komst að þeirri niðurstöðu í sambærilegu máli að í lögum nr. 108/2007 væru engar reglur um ógildi samnings vegna þess annmarka að viðskiptamaður stefnanda væri ranglega flokkaður sem fagfjárfestir og gætu því slík málalok ekki komið til álita af þeim ástæðum einum. Skiptir því ekki máli um niðurstöðu máls þessa hvort hið stefnda félag hafi ranglega verið flokkað sem fagfjárfestir eður ei og verður ekki fallist á sýknukröfu á þessari forsendu.

Stefndi vísar enn fremur til þess að samningarnir séu ólögmætir þar sem stefnanda hafi verið kunnar rangar verðskráningar þeirra bréfa sem hann hafi selt og skv. MiFID reglum, sbr. lög 108/2007, hafi upplýsingar verið ónógar. Ofmat hlutabréfanna, sem haldið hafi verið frá stefnda, sé með þeim hætti að sviksamlegt verði að telja, sbr. ákvæði almennra hegningalaga nr. 19/1940. Vísar stefndi í þessu samhengi til skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis um aðdraganda og orsakir falls íslensku bankanna 2008. Stefndu hafa ekki fært fram frekari sönnun fyrir staðhæfingu sinni að þessu leyti og er réttmæti hennar því ósannað, sbr. og dóm Hæstaréttar Íslands í málinu nr. 561/2010 frá 7. apríl sl. Verður ekki fallist á sýknukröfu á þessum forsendum.

Samkvæmt öllu framanröktu verður lagt til grundvallar að skuldbindandi samningar hafi komist á milli aðila og að þeir séu gildir.

Um varakröfu

Stefndi NVN ehf. hefur til stuðnings varakröfu sinni vísað til þess að stefnandi hafi, áður en til málshöfðunar kom, sent honum kröfur að mun lægri fjárhæð en stefnukrafa máls þessa hljóðar upp á. Ekkert sé fram komið í stefnu um að stefnandi hafi á þessum tíma horft til þess að beita ákvæðum í hinum meintu samningum (grein IX) eða skuldajöfnun samninga, sbr. 4. gr. almennra skilmála stefnanda eða í raun leitað neinna annarra úrræða til lausnar þessara viðskipta, þegar til greiðslufalls hafi komið.

Eins og fram hefur komið var stefnanda heimilt en ekki skylt, samkvæmt 4. gr. hinna almennu samningsskilmála um viðskipti aðila, að beita skuldajöfnuði milli allra samninga sem féllu undir skilmálana þannig að hagnaður og tap hvors aðila um sig væri gert upp í einu lagi. Hið stefnda félag svaraði ekki áskorunum stefnanda um að gera upp samninga með þeim hætti. Verður ekki séð að það eigi neinn rétt til þess að samningarnir verði gerðir upp samkvæmt 4. gr. skilmálanna.

Ber því að fallast á kröfu stefnanda um að stefndi NVN ehf. greiði stefnanda 995.552.310 kr. ásamt dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu af 386.159.137 kr. frá 29. febrúar til 28. mars 2008, af 925.716.276 kr. frá 28. mars 2008 til 2008 og af 995.552.310 kr. frá 29. apríl 2008 til greiðsludags gegn afhendingu 27.332.590,60 hluta í stefnanda. Stefnandi hefur jafnframt krafist vaxtavaxta, sbr. 12. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu. Í umræddu ákvæði er mælt fyrir um það að sé vaxtatímabil lengra en tólf mánuðir án þess að vextirnir séu greiddir skuli þeir lagðir við höfuðstól og nýir vextir reiknaðir af samanlagðri fjárhæð. Því þykir ekki ástæða til að kveða sérstaklega á um þetta í dómi.

Um sýknukröfu stefnda Einars Arnar

Stefndi Einar Örn gekkst hinn 18. október 2007 undir sjálfskuldarábyrgð vegna skulda meðstefnda við stefnanda, allt að 250.000.000 kr. Um var að ræða hækkun á fyrri sjálfskuldarábyrgð stefnda um 100 milljónir króna sem var til komin vegna beiðni hins stefnda félags um hækkun og framlengingu afleiðuramma félagsins. Stefndi byggir sýknukröfu sína, hvað varðar ábyrgðarskuldbindingu þessa, á því að til framangreindrar ábyrgðar hans hafi verið stofnað með þeim hætti og að þeirri fjárhæð að í alla staði sé óeðlilegt og hefði verið í verkahring stefnanda að gera honum rækilega grein fyrir því hvað þýddi í raun fyrir einstakling að takast slíkt á hendur án þess að nokkuð lægi frekar fyrir um þekkingu hans og getu til að efna. Í greinargerð var af hálfu stefnanda vísað til ákvæða MiFID reglna skv. lögum 108/2007 og ákvæða laga nr. 7/1936 um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga þar sem brostin sé forsenda fyrir gildi nefnds samnings um ábyrgð hans.

Stefndi var stjórnarformaður og eigandi hins stefnda einkahlutafélags sem er eignarhaldsfélag og hefur m.a. þann tilgang að kaupa og selja fasteignir og lausafjármuni, leigja út eignir og eiga verðbréfaviðskipti. Þá sat stefndi í stjórn eignarhaldsfélagsins Saxhóls ehf. um árabil. Verður því að ætla að hann hafi verið kunnugur þeim viðskiptum sem um ræddi og honum fullljós sú áhætta sem hann tók með sjálfskuldarábyrgðinni. Enn fremur var honum, sem stjórnarformanni hins stefnda félags, kunnugt um eignarstöðu félagsins og því ekki þörf á upplýsingagjöf stefnanda til hans um mat á greiðslugetu þess. Þá ber að horfa til þess að samkvæmt yfirliti starfsmanns stefnanda, dags. 15. október 2007, var stefndi einn eigenda Saxhóls ehf., sem sagt var „gríðarlega sterkt eignarhaldsfélag“. Stefndi hefur ekki lagt gögn sem hrekja þá staðhæfingu eða gögn sem sýna fram á að hann hafi ekki verið borgunarmaður fyrir umræddri ábyrgð er til hennar var stofnað.

Með hliðsjón af framangreindu verður ekki talið að forsendur séu til þess að fallast á að til ábyrgðarinnar hafi verið stofnað með þeim hætti að stefnandi geti ekki borið hana fyrir sig. Verður stefndi því dæmdur til að greiða stefnanda 250.000.000 kr. in soldium með hinu stefnda félagi, af tildæmdri kröfu, 995.552.310 kr., ásamt dráttarvöxtum, samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu, af þeirri fjárhæð frá 5. desember 2009 til greiðsludags.

Með vísan til 1. mgr. 130. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála ber að dæma stefndu til að greiða stefnanda málskostnað. Mál þetta var þingfest 5. nóvember 2009 en því hefur ítrekað verið frestað, oftast að beiðni stefndu. Hafa verið haldin yfir 30 þinghöld í málinu frá þingfestingu, þ.m.t. um kröfur stefndu um málskostnaðartryggingu, um frávísun og um að dómari víki sæti. Með hliðsjón af framangreindu, þeim hagsmunum sem um er deilt og því að annað samkynja mál milli stefnanda og hins stefnda félags var rekið samhliða þessu máli fyrir dóminum þykir málskostnaður hæfilega ákveðinn 1.000.000 kr. Hefur þá verið tekið tillit til virðisaukaskatts en innheimtustarfsemi stefnanda er ekki undanskilin greiðslu á virðisaukaskatti þar sem hún er í samkeppni við atvinnufyrirtæki, sbr. 2. gr. reglugerðar nr. 562/1989 um virðisaukaskatt af eigin þjónustu og úttekt til eigin nota innan óskattskyldra fyrirtækja og stofnana. Enn fremur hefur verið höfð hliðsjón af því að stefnandi hefur höfðað annað samkynja mál á hendur stefnda NVN ehf. sem rekið var samhliða þessu máli.

Kolbrún Sævarsdóttir, settur héraðsdómari, kvað upp dóminn.

D Ó M S O R Ð

Hafnað er frávísunarkröfu stefndu, NVN ehf. og Einars Arnar Jónssonar.

Stefndi, NVN ehf., greiði stefnanda, Landsbanka Íslands hf., 995.552.310 kr. ásamt dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu af 386.159.137 kr. frá 29. febrúar til 28. mars 2008, af 925.716.276 kr. frá 28. mars 2008 til 29. apríl 2008 og af 995.552.310 kr. frá 29. apríl 2008 til greiðsludags gegn afhendingu 27.332.590,60 hluta í Landsbanka Íslands hf. Þar af greiði stefndi Einari Örn stefnanda 250.000.000 kr. in soldium með hinu stefnda félagi, ásamt dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu af þeirri fjárhæð frá 5. desember 2009 til greiðsludags.

Stefndu greiði stefnanda 1.000.000 kr. í málskostnað.

Kolbrún Sævarsdóttir

Heimildaskrá

Dómaskrá