Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-953/2008:

Ákæruvaldið

(Helgi Magnús Gunnarsson saksóknari)

gegn

Jóni, Ólafssyni,

(Ragnar Aðalsteinsson hrl)

Hreggviði, Jónssyni,

(Kristinn Bjarnason hrl)

Ragnari, Birgissyni og

(Ragnar Halldór Hall hrl)

Símoni, Ásgeiri Gunnarssyni

(Gestur Jónsson hrl)

Vanhæfi. Verjandi.

Ágreiningur um skipun verjanda.

Með ákæru ríkislögreglustjóra dagsettri 3. júlí sl. var höfðað opinbert mál á hendur ákærðu fyrir brot gegn almennum hegningarlögum með meiriháttar brotum á skatta-, bókhalds- og ársreikningalögum. Við þingfestingu málsins á dómþingi 16. júlí sl. krafðist ákærði Jón Ólafsson þess að bæði Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður og Sigurður G. Guðjónsson hæstaréttarlögmaður yrðu skipaðir verjendur sínir í málinu. Af hálfu sækjanda málsins var vakin athygli á því að svo kynni að fara að Sigurður G. Guðjónsson hæstaréttarlögmaður yrði kvaddur fyrir dóm sem vitni í málinu. Kynnu þar af leiðandi ákvæði 3. mgr. 39. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála að standa í vegi fyrir því að lögmaðurinn yrði skipaður verjandi ákærða. Tók dómari þetta atriði til úrlausnar og ákvað að fresta til dagsins í dag úrskurði um álitaefnið.

Samkvæmt 3. mgr. 39. gr. laga nr. 19/1991 má ekki skipa eða tilnefna þann mann verjanda sem kann að verða kvaddur til að bera vitni eða hefur verið skipaður mats- eða skoðunarmaður í málinu, eða er að öðru leyti svo viðriðinn mál eða aðila að hætta sé á að hann geti ekki gætt hagsmuna sakbornings sem skyldi. Samkvæmt rannsóknargögnum málsins var mánudaginn 6. nóvember 2006 tekin skýrsla af Sigurði G. Guðjónssyni hæstaréttarlögmanni í þágu rannsóknar málsins og hafði hann þá réttarstöðu grunaðs manns. Var yfirheyrslan m.a. í tengslum þá stöðu að Sigurður var fyrrverandi stjórnarmaður Norðurljósa samskiptafélags hf., Skífunnar hf. og Íslenska útvarpsfélagsins hf., en fyrir lá kæra Skattrannsóknarstjóra ríkisins vegna skattskila framangreindra lögaðila. Sigurður G. Guðjónsson hæstaréttarlögmaður hefur ekki lengur stöðu grunaðs manns og var hann ekki ákærður samhliða öðrum ákærðu vegna þeirra sakarefna er fram koma í ákæru og varða m.a. lögaðilana Norðurljós samskiptafélag hf., Skífuna hf. og Íslenska útvarpsfélagið hf. Í ljósi rannsóknar málsins hjá lögreglu er á þessu stigi málsins ekki unnt að útiloka að Sigurður verði á síðari stigum kallaður fyrir dóm sem vitni í málinu. Er því á grundvelli 3. mgr. 39. gr. laga nr. 19/1991 óheimilt að skipa hann verjanda í málinu og verður kröfu um það því hafnað.

Ú r s k u r ð a r o r ð:

Kröfu ákærða, Jóns Ólafssonar, um að Sigurður G. Guðjónsson hæstaréttarlögmaður verði skipaður verjandi ákærða, er hafnað.

Símon Sigvaldason