Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-8/2008:

Ákæruvaldið

(Ragna Bjarnadóttir fulltrúi)

gegn

Nikolajs

Smorodinovs

(Björn Lárus Bergsson hrl)

Brot gegn valdstjórninni.

Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni með því að slá lögreglumann við skyldustörf hnefahögg í andlitið með þeim afleiðingum að lögreglumaðurinn kjálkabrotnaði. Refsing fangelsi í 10 mánuði.

Mál þetta, sem dómtekið var 15. janúar sl., er höfðað með ákæru útgefinni af ríkissaksóknara 31. desember 2007 á hendur Nikolajs Smorodinovs, lettneskum ríkisborgara, kt. […], Skúlagötu 46, Reykjavík, fyrir brot gegn valdstjórninni og líkamsárás, með því að hafa aðfaranótt mánudagsins 24. desember 2007, á lögreglu stöðinni við Hverfisgötu, Reykjavík, slegið Ómar Mehmet Annisius, lögreglumann, sem þar gegndi skyldustarfi, hnefahögg í andlitið með þeim afleiðingum að hann hlaut brot á vinstra kjálkabeini.

Þetta er talið varða við 1. mgr. 106. gr. og 1. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 25/2007 og 11. gr. laga nr. 20/1981.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.

Verjandi ákærða krefst þess aðallega að ákærði verði sýknaður af kröfum ákæruvalds, en til vara að honum verði ákvörðuð vægasta refsing er lög leyfa. Þá krefst hann þess að sakarkostnaður, þ.m.t. málsvarnarlaun, verði greiddur úr ríkissjóði.

Samkvæmt skýrslu lögreglu frá aðfaranótt mánudagsins 24. desember 2007 kl. 03.01 barst lögreglumönnum tilkynning um að ,,sköllóttur” maður í ljósum buxum og í leðurjakka hafi brotist inn í bifreið fyrir utan Hverfisgötu 105 í Reykjavík. Tekið var fram að umræddur maður gengi suður Snorrabraut. Samkvæmt frumskýrslu lögreglu voru lögreglumennirnir Ómar Mehmet Annisius og Hlynur Steinn Þorvaldsson í lögreglubifreið á Hverfisgötu við Lækjargötu. Hafi þeir ekið Hverfisgötu til austurs en er komið var á Snorrabraut veitt athygli einstaklingi sem kom heim og saman við lýsingu á þeim sem hafi átt að hafa brotist inn í bifreiðina. Var för mannsins stöðvuð á Snorrabraut við Austurbæ. Tekið er fram að maðurinn, ákærði í máli þessu, hafi strax verið mjög ógnandi í framkomu og því verið færður í lögreglutök. Hafi hann hvorki skilið ensku, þýsku né íslensku. Þá hafi ákærði verið mjög ölvaður. Af þessum ástæðum hafi verið ákveðið að handtaka ákærða þar til unnt yrði að ganga úr skugga um hvort hann hafi verið á ferð við Hverfisgötu 105. Hafi ákærði verið færður inn í lögreglubifreið og fluttur á lögreglustöð við Hverfisgötu. Þar hafi ákærði verið færður fyrir varðstjóra. Ákærði hafi verið samvinnuþýður á lögreglustöðinni. Hafi hann ekki getað tjáð sig og verið erfitt að ræða við hann. Hann hafi gefið upp kennitölu sína. Er hann hafi verið færður inn viðtalsherbergi varðstjóra hafi verið tekin ákvörðun um að taka af honum handjárn þar sem ákærði hafi verið rólegur. Þar sem ölvunarástand ákærða hafi verið mikið og ekki hægt að ræða við hann um brot það sem hann hafi verið grunaður um hafi verið ákveðið að vista hann í fangageymslu. Lögreglumenn hafi fylgt ákærða í lyftu upp í fangageymslur. Þar hafi ákærði slegið frá sér með höndum en lögreglumaðurinn Hlynur Steinn gripið um hendur hans. Við það hafi ákærði hætt. Því næst hafi ákærði verið færður að innritunarborði í fangamóttöku þar sem hann hafi verið klæddur úr jakka. Þá hafi belti verið tekið af honum og leitað í vösum og munir fjarlægðir. Hafi ákærða ekki alls kostar líkað þetta og sveiflað höndum í kringum sig. Því næst hafi verið tekið um handlegg ákærða og hann leiddur að fangaklefa. Þegar ákærði og lögreglumenn hafi verið komnir að klefanum hafi lögreglumaðurinn Ómar Mehmet bent ákærða á að fara úr skóm. Hafi hann um leið bent ákærða á skó fyrir utan aðra fangaklefa. Við það hafi ákærði rokið inn í klefann og snúið baki í lögreglumenn. Lögreglumaðurinn Ómar Mehmet hafi verið næstur ákærða. Fyrir aftan Ómar hafi lögreglumaðurinn Hlynur Steinn staðið og fyrir aftan hann fangavörðurinn Jón Þorbjörnsson. Óskar Sigurpálsson varðstjóri hafi verið í afgreiðslu fangamóttöku. Ákærði hafi skyndilega snúið sér mjög snöggt við og lamið lögreglumanninn Ómar mjög þungt hnefahögg á vinstri hluta höfuðsins. Hafi Ómar hlotið sár við höggið og orðið vankaður. Hafi ákærði gert sig líklegan til frekari árásar. Hafi Hlynur Steinn stokkið á ákærða og keyrt hann upp að vegg í fangaklefanum. Hafi ákærði skollið með hnakka í vegg klefans en við það hafi komið sár á hnakka ákærða. Fangavörðurinn Jón Þorbjörnsson hafi komið Hlyn til aðstoðar og þeir í sameiningu náð að yfirbuga ákærða. Hafi ákærði barist hart á móti lögreglumönnum. Hafi ekki verið fyrr en Óskar Sigurpálsson varðstjóri hafi komið til hjálpar að tekist hafi að færa ákærða í örugg tök. Á meðan hafi ákærði skallað vegg í fangaklefa með höfði sínu. Ákærði hafi því næst verið færður úr skóm. Hann hafi síðan verið lagður í gólfið. Loks hafi fangaklefanum verið lokað. Ómar Mehmet hafi sjáanlega verið bólginn við augnbotn á vinstra auga. Þá hafi hann kvartað undan verk í eyra og kjálka. Einnig hafi hann verið með mikinn höfuðverk. Ómar hafi verið ekið á slysadeild Landspítala háskólasjúkrahúss til rannsóknar.

Ólafur Ragnar Ingimarsson sérfræðingur á slysa- og bráðadeild Landspítala háskólasjúkrahúss hefur 24. desember 2007 ritað vottorð vegna komu Ómars Mehmet Annisius á slysadeild. Fram kemur að Ómar hafi greinst með brot á vinstri ,,os zygomaticum” (kjálkabein) og þurft að fara í aðgerð vegna brotsins fyrir hádegi 24. desember. Ómar Mehmet lagði fram kæru á hendur ákærða 27. desember 2007.

Ákærði hefur skýrt svo frá að hann hafi umrætt sinn verið á leið heim er hann hafi verið stöðvaður af lögreglu. Einhver hafi ekið ákærða og viðkomandi hleypt honum út úr bifreiðinni rétt hjá lögreglustöðinni við Hverfisgötu. Þaðan hafi ákærði ætlað að ganga heim til sín að Karlagötu í Reykjavík. Kvaðst ákærði hafa verið ölvaður. Ekki kvaðst ákærði muna nánast neitt eftir atvikum. Hafi hann verið færður inn í lögreglubifreið án þess að vita ástæðu þess. Þaðan hafi honum verið ekið á lögreglustöð. Á lögreglustöðinni kvaðst ákærði ekki muna eftir öðru en að hann hafi verið laminn í höfuðið. Ekki kvaðst ákærði muna eftir að hafa slegið frá sér.

Ómar Mehmet Annisius lögreglumaður kvaðst þessa nótt hafa handtekið ákærða á Snorrabraut og fært hann á lögreglustöð. Er ákærða hafi verið vísað í fangaklefa hafi honum verið bent á að fara úr skóm. Ákærði hafi ekki sinnt því og gengið beint inn í klefann án þess að fara úr skónum. Hafi Ómar farið á eftir honum inn í klefann en fyrir aftan Ómar hafi Hlynur Steinn lögreglumaður verið. Inni í fangaklefanum hafi ákærði snúið sér snöggt við og kýlt Ómar með krepptum hnefa hægri handar. Hafi höggið komið á vinstra kinnbein Ómars. Við þetta hafi Ómar stigið skref aftur á bak. Óskar Sigurpálsson varðstjóri hafi séð að eitthvað var að og komið úr fangamóttöku. Þá hafi Hlynur Steinn og Jón Þorbjörnsson fangavörður verið búnir að ná ákærða niður. Á meðan ákærði hafi legið í gólfinu hafi hann lamið hnakkanum í gólf fangaklefans. Skór hafi verið teknir af ákærða og ákærði verið skilinn eftir í fangaklefanum. Ómar kvaðst hafa farið á slysadeild í framhaldi. Skoðun hafi leitt í ljós að Ómar hafi framan við vinstra eyra verið með brotið andlitsbein. Hafi Ómar farið í aðgerð sama dag þar sem brotið hafi verið lagað með skurðaðgerð. Ómar kvaðst eftir þetta samfellt fá höfuðverk. Þá væri hann stífur í hálsi. Væri heilsa hans almennt ekki góð þó svo hann væri kominn til vinnu.

Hlynur Steinn Þorvaldsson lögreglumaður kvaðst hafa handtekið ákærða aðfaranótt mánudagsins 24. desember 2007 ásamt lögreglumanninum Ómari Mehmet. Hafi ákærði verið grunaður um innbrot í bifreið við Hverfisgötu 105. Í framhaldi hafi hann verið færður fyrir varðstjóra á lögreglustöð. Ákveðið hafi verið að vista ákærða í fangageymslu. Er ákærði hafi verið færður að fangaklefa hafi Ómar bent ákærða á að fara úr skóm áður en hann færi inn í klefann. Um leið hafi Ómar bent á skó fyrir utan aðra fangaklefa. Við það hafi ákærði rokið inn í klefann og snúið baki í lögreglumennina. Ómar hafi farið fyrstur inn í klefann á eftir ákærða. Ákærði hafi snúið sér mjög snöggt við og kýlt Ómar mjög þungt hnefahögg og höggið komið á vinstri kinn. Ákærði hafi beitt miklu afli og fylgt högginu eftir með líkama sínum. Hafi Hlynur tekið eftir því að Ómar hafi hlotið sár við höggið og virst vankaður. Hafi ákærði gert sig líklegan til frekari árásar og Hlynur því stokkið til og tekið með vinstri hendi í hægri hendi ákærða og sett hægri framhandlegg að viðbeini hans um leið og Hlynur hafi keyrt ákærða upp að vegg í fangaklefanum. Hafi ákærði skollið með hnakka í vegginn og við það komið sár á hnakka hans. Jón Þorbjörnsson fangavörður hafi komið Hlyni til aðstoðar og þeir í sameiningu náð að yfirbuga ákærða. Hafi ákærði barist mjög hart á móti Hlyni og Jóni. Eftir að Óskar Sigurpálsson varðstjóri hafi komið til hafi tekist að halda ákærða niðri. Hafi ákærði á þessum tíma reynt að skalla í vegg með höfði sínu. Ákærði hafi verið færður úr skóm og fangaklefa því næst lokað. Hlynur kvað öruggt að ákærði hafi ekki verið með sár á höfði er hann hafi komið á lögreglustöð. Hafi áverkinn hlotist við það að Hlynur hafi keyrt hann upp að vegg.

Óskar Sigurpálsson varðstjóri kvaðst hafa verið varðstjóri í fangamóttöku er komið hafi verið með ákærða. Ákærði hafi verið grunaður um að hafa brotist inn í bifreið. Hafi hann verið mjög ölvaður er lögreglumenn hafi komið með hann á lög reglustöð. Af þeim sökum og vegna rannsóknarhagsmuna hafi Óskar ákveðið að vista ákærða í fangageymslu. Hafi Óskar farið inn á skrifstofu við fangagang á meðan lögreglumenn hafi fylgt ákærða að fangaklefa. Kvaðst Óskar síðan hafa heyrt læti og því farið fram á gang til að athuga hvað væri í gangi. Ómar Mehmet lögreglumaður hafi staðið við dyr að fangaklefa og verið mjög kvalinn að sjá. Hafi Ómar sagt að ákærði hafi lamið hann í andlitið. Hlynur Steinn og Jón hafi verið búnir að yfirbuga ákærða er Óskar hafi komið inn í klefann. Hafi Óskar lítillega aðstoðað þá. Smávægilegt sár hafi verið á hnakka ákærða. Hafi sárið komið við átök við lögreglumennina.

Jón Þorbjörnsson fangavörður kvaðst hafa gengið með ákærða og lögreglu mönnum að fangaklefa er ákærði hafi átt að fara inn í. Ákærði hafi verið áberandi ölvaður en þó ágætlega viðræðuhæfur. Ómar hafi reynt að útskýra fyrir ákærða að hann yrði að fara úr skóm áður en hann færi inn í fangaklefann. Hafi ákærði ekki sinnt því og Ómar farið á eftir honum inn í klefann til að brýna fyrir honum að fara úr skónum. Ákærði hafi skyndilega snúið sér við og í átt að Ómari. Hafi hann slegið Ómar af afli, með hægri hendi, og höggið komið í andlit Ómars. Hafi Ómar kastast til baka við höggið. Fyrstu viðbrögð Jóns og Hlyns Steins hafi verið að fara að manninum og ná honum í tök. Það hafi tekist eftir nokkuð ,,basl” en við það hafi þeir notið aðstoðar Óskars Sigurpálssonar varðstjóra. Að lokum hafi tekist að loka hurðinni að fangaklefanum. Kvaðst Jón hafa séð að Ómar hafi verið nokkuð vankaður eftir höggið. Ákærði hafi fengið sár á höfuð er hann hafi verið yfirbugaður. Eitthvað hafi blætt úr sárinu.

Geir Guðmundsson læknir kvaðst hafa komið á lögreglustöð kl. 13.40 þann 24. desember 2007 til að skoða ákærða sem verið hafi í fangageymslu. Túlkur hafi verið viðstaddur skoðunina. Komið hafi í ljós að ákærði hafi verið með kúlu á hnakka um 8 x 5 cm að stærð. Hrufl hafi verið ofan á kúlunni. Þá hafi hann kvartað um höfuðverk og verk aftanvert í hálsi. Hann hafi ekki verið með uppköst og vel vakandi er skoðun hafi farið fram. Hafi hann svarað spurningum vel. Hafi hann sagt að hann myndi ekki hvað hafi gerst. Ýmsar athuganir hafi verið gerðar á ákærða. Hafi lögreglu verið ráðlagt að fara með ákærða á slysadeild ef ætlunin hafi verið að vista hann áfram.

Niðurstaða:

Ákærði neitar sök en kveðst ekki muna atburði vel. Muni hann það eitt að hafa í samskiptum við lögreglu fengið sjálfur högg á höfuðið. Ekki kveðst hann muna eftir að hafa slegið til lögreglumanns aðfaranótt mánudagsins 24. desember 2007.

Lögreglumennirnir Ómar Mehmet Annisius og Hlynur Steinn Þorvaldsson, sem og fangavörðurinn Jón Þorbjörnsson, hafa lýst samskiptum sínum við ákærða er ákærði var færður í fangaklefa. Ber þeim öllum saman um að ákærði hafi fyrirvaralaust og án tilefnis slegið lögreglumanninn Ómar Mehmet hnefahögg í andlitið er Ómar hafi beðið ákærða um að fara úr skóm í fangaklefa. Læknisvottorð leiðir í ljós að Ómar Mehmet hlaut brot á vinstra kjálkabeini við högg ákærða. Hver sá sem ræðst með ofbeldi gegn lögreglumönnum við skyldustörf gerist með því brotlegur við 1. mgr. 106. gr. laga nr. 19/1940. Með vísan til samhljóða framburða lögreglumannanna og fangavarðar telur dómurinn sannað að ákærði hafi ráðist með ofbeldi gegn lögreglumanninum Ómari Mehmet. Afleiðingar árásarinnar eru slíkar að brotið verður einnig heimfært undir 1. mgr. 218. gr. laga nr. 19/1940.  Verður ákærði því sakfelldur samkvæmt ákæru.

Ákærði er fæddur í ágúst 1970. Gekkst hann undir viðurlagaákvörðun í júní 2007 fyrir ölvunar- og réttindaleysisakstur. Þá gekkst hann undir sátt í nóvember 2007 fyrir þjófnað. Ákærði réðst með líkamlegu ofbeldi gegn lögreglumanni sem var að gegna skyldustarfi. Voru afleiðingar þeirrar árásar alvarlegar, en lögreglumaðurinn kjálkabrotnaði við árásina og þurfti í framhaldi að gangast undir skurðaðgerð. Var þetta með öllu tilefnislaust og háttsemin sérlega ámælisverð. Með hliðsjón af því, sem og 1. og 3. tl. 1. mgr. 70. gr. laga nr. 19/1940, er refsing ákærða ákveðin fangelsi í 10 mánuði. Í ljósi háttseminnar þykir ekki ástæða til að skilorðsbinda refsinguna að neinu leyti.

Ákærði verður dæmdur til að greiða tildæmd málsvarnarlaun, að viðbættum virðisaukaskatti, sem í dómsorði greinir.

Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Ragna Bjarnadóttir fulltrúi ríkissaksóknara.

D ó m s o r ð

Ákærði, Nikolajs Smorodinovs, sæti fangelsi í 10 mánuði.

Ákærði greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Björns L. Bergssonar hæstaréttarlögmanns, 250.992 krónur.

Símon Sigvaldason.