Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-424/2008:

Ákæruvaldið

(Dröfn Kærnested fulltrúi)

gegn

Ragnari

Davíð Bjarnasyni

Mál

þetta, sem dómtekið var 23. júlí sl. er höfðað með ákæru útgefinni af

lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 25. mars 2008 á hendur ákærða, Ragnari

Davíð Bjarnasyni, kt. [...], Meðalholti 4, Reykjavík fyrir eftirtalin brot framin á árinu 2007:

I.

Fíkniefnalagabrot:

1.

Aðfaranótt miðvikudagsins 25. júlí, í bifreiðinni BR-125 á Linnetstíg til móts

við Héraðsdóm Reykjaness í Hafnarfirði, haft í vörslum sínum 1,96 g af

maríhúana, sem lögregla fann við leit.

2.

Þriðjudaginn 23. október, að Stelkshólum 8 í Reykjavík, haft í vörslum sínum

51,78 g af amfetamíni.

Eru þessi brot talin varða

við 2. gr., sbr. 5. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. og 6.

gr. sömu laga, að því er varðar meðferð ákærða á maríhúana, sbr. lög nr.

13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um

ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð

nr. 848/2002.

II.

Umferðarlagabrot, með

því að hafa á sama tíma og greinir í ákærulið I.1, ekið bifreiðinni BR-125 án

þess að hafa endurnýjað ökuréttindi, suður Reykjavíkurveg í Hafnarfirði þar til

lögregla stöðvaði akstur bifreiðarinnar á Linnetstíg.

Er þetta brot talið varða

við 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987.

III.

Er þess krafist að

ákærði verði dæmdur til refsingar og jafnframt að 51,78 g af amfetamíni og 1,96

g af maríhúana, sem lögregla lagði hald á, verði gerð upptæk samkvæmt 6. mgr.

5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.

Hinn 23. júlí

sl. var sakamálið nr. 962/2008 sameinað þessu máli en þar er ákærða gefið að

Ávana- og fíkniefni. Umferðarlagabrot.

Ákærði sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot og umferðarlagabrot. Með brotum sínum rauf hann skilyrði reynslulausnar. Refsing 18 mánaða fangelsi.

Mál þetta, sem dómtekið var 23. júlí sl. er höfðað með ákæru útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 25. mars 2008 á hendur ákærða, Ragnari Davíð Bjarnasyni, kt. [...], Meðalholti 4, Reykjavík fyrir eftirtalin brot framin á árinu 2007:

I.

Fíkniefnalagabrot:

  1. Aðfaranótt miðvikudagsins 25. júlí, í bifreiðinni BR-125 á Linnetstíg til móts við Héraðsdóm Reykjaness í Hafnarfirði, haft í vörslum sínum 1,96 g af maríhúana, sem lögregla fann við leit.
  2. Þriðjudaginn 23. október, að Stelkshólum 8 í Reykjavík, haft í vörslum sínum 51,78 g af amfetamíni.

    Eru þessi brot talin varða við 2. gr., sbr. 5. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. og 6. gr. sömu laga, að því er varðar meðferð ákærða á maríhúana, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.

II.

Umferðarlagabrot, með því að hafa á sama tíma og greinir í ákærulið I.1, ekið bifreiðinni BR-125 án þess að hafa endurnýjað ökuréttindi, suður Reykjavíkurveg í Hafnarfirði þar til lögregla stöðvaði akstur bifreiðarinnar á Linnetstíg.

Er þetta brot talið varða við 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987.

III.

Er þess krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og jafnframt að 51,78 g af amfetamíni og 1,96 g af maríhúana, sem lögregla lagði hald á, verði gerð upptæk samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.

Hinn 23. júlí sl. var sakamálið nr. 962/2008 sameinað þessu máli en þar er ákærða gefið að sök með ákæru útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 8. júlí sl., fíkniefnalagabrot, með því að hafa fimmtudaginn 12. júní 2008 í fangageymslu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu að Hverfisgötu 113 í Reykjavík, haft í vörslum sínum 13,71 g af kókaíni, sem lögregla fann við leit á ákærða.

Er brot þetta talið varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.

Er þess krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og jafnframt að framangreind fíkniefni, sem lögregla lagði hald á, verði gerð upptæk samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.

Af hálfu verjanda ákærða er krafist vægustu refsingar er lög leyfa.

Farið var með mál þetta samkvæmt 125. gr. laga nr. 19/1991 og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákærum.

Ákærði er fæddur í nóvember 1982. Þann 23. júní 1999 var ákærði dæmdur í 2 mánaða fangelsi, skilorðsbundið í 3 ár, fyrir brot gegn 1. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga. Hinn 25. janúar sl. var ákærði dæmdur í 10 mánaða fangelsi, þar af 8 mánuði skilorðsbundna í 3 ár, fyrir brot gegn 252. gr. almennra hegningarlaga. Var skilorðsdómurinn frá 23. júní 1999 tekinn upp og ákærða gerð refsing í einu lagi fyrir bæði brotin. Hinn 21. september 2000 var ákærða gert að sæta fangelsi í 3 ár og 6 mánuði fyrir brot gegn brot gegn 1. mgr. 106. gr., 211. gr., sbr. 20. gr. og 217. gr. almennra hegningarlaga. Um hegningarauka við dóminn frá 25. janúar sl. var að ræða og var skilorðshluti þess dóms tekinn upp og ákærða gerð refsing í einu lagi fyrir bæði málin. Þann 19. nóvember 2000 var ákærði dæmdur í 6 mánaða fangelsi fyrir brot gegn 2. mgr. 218. gr. laga nr. 19/1940. Ákærði gekkst undir viðurlagaákvörðun 3. desember 2002 fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni. Ákærði var 6. mars 2003 dæmdur í 2ja ára og 6 mánaða fangelsi fyrir brot gegn 248. gr., sbr. 20. gr. og 155. gr. laga nr. 19/1940. Var þá tekin upp reynslulausn ákærða frá 26. desember 2001. Ákærða var veitt reynslulausn af dóminum frá 6. mars þann 22. desember 2005 í tvö ár á eftirstöðvum refsingar 450 dögum. Þá gekkst ákærði undir viðurlagaákvörðun 31. júlí 2006 fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni. Ákærði hefur með brotum sínum samkvæmt ákæru 25. mars 2008 rofið skilorð reynslulausnarinnar frá 22. desember 2005. Refsing sú sem ákærði hefur nú til unnið fer fram úr sektum. Verður því að taka reynslulausnina upp og dæma ákærða refsingu í einu lagi, sbr. 77. gr. laga nr. 19/1940. Þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 18 mánuði, sem í ljósi sakaferils ákærða þykir ekki fært að skilorðsbinda að neinu leyti.

Með vísan til lagaákvæða í ákæru eru upptæk gerð til ríkissjóðs 51,78 g af amfetamíni, 1,96 g af maríhúana og 13,71 g af kókaíni, sem lögregla lagði hald á við rannsókn málsins.

Ákærði greiði sakarkostnað samkvæmt yfirlitum um sakarkostnað og málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, að viðbættum virðisaukaskatti, með þeim hætti er í dómsorði greinir.

Af hálfu ákæruvalds flutti málið Dröfn Kærnested fulltrúi lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu.

D ó m s o r ð :

Ákærði, Ragnar Davíð Bjarnason, sæti fangelsi í 18 mánuði.

Upptæk eru gerð til ríkissjóðs 51,78 g af amfetamíni, 1,96 g af maríhúana og 13,71 g af kókaíni, sem lögregla lagði hald á við rannsókn málsins.

Ákærði greiði 428.663 krónur í sakarkostnað, þar með talin málsvarnarþóknun skipaðs verjanda ákærða, Sveins Andra Sveinssonar hæstaréttarlögmanns, 198.702 krónur.

Símon Sigvaldason.