Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 7. apríl 2008.
Mál nr. S-419/2008:
D Ó M U R
nr. S-419/2008:
Ákæruvaldið
(Guðjón Magnússon fulltrúi)
gegn
Kristjáni Haraldssyni,
(Sveinn Andri Sveinsson hrl)
Gylfa Jónssyni og
(Jón Höskuldsson hrl)
Unnari Þóri Lárussyni
(Kristján Stefánsson hrl)
Lykilorð
Útdráttur
Þrír karlmenn dæmdir í skilorðbundið fangelsi fyrir fjársvik og skjalafals.
Ár 2008, mánudaginn 7. apríl, er á dómþingi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem háð er í Dómhúsinu við Lækjartorg af Pétri Guðgeirssyni, héraðsdómara, kveðinn upp dómur í sakamálinu nr. 419/2008: Ákæruvaldið (Guðjón Magnússon) gegn Kristjáni Haraldssyni (Sveinn Andri Sveinsson hrl.), Gylfa Jónssyni (Jón Höskuldsson hrl.) og Unnari Þór Lárussyni (Kristján Stefánsson hrl.), sem tekið var til dóms í sama þinghaldi.
Málið er höfðað með ákæru Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, dagsettri 18. mars sl. á hendur ákærðu, Kristjáni Haraldssyni, [...], Funalind 11, Kópavogi, Gylfa Jónssyni, [...], Karlsbraut 19, Dalvík og Unnari Þór Lárussyni, [...], Birkiholti, Álftanesi, „fyrir eftirgreind brot á almennum hegningarlögum:
I. Ákærðu Kristjáni og Unnari fyrir skjalafals með því að hafa, í desember 2005, svikið út vörur á eftirgreindum stöðum, sem ákærðu pöntuðu heimildarlaust í nafni Og fjarskipta hf. og framvísuðu fölsuðum úttektarbeiðnum frá fyrirtækinu. Ákærði Kristján falsaði beiðnirnar og pantaði vöruna en ákærði Unnar Þór framvísaði beiðnunum og sótti vörurnar. Ákærði skiptu með sér ágóðanum:
Þann 21. desember svikið út 2 farsíma að andvirði 79.176 kr. í verslun BT í Firði, Hafnarfirði, samkvæmt falsaðri úttektarbeiðni falsaðri með nafnrituninni ....... (ólæsilegt) Kristj....
Sama dag svikið út 3 farsíma að andvirði samtals 109.164 kr. í verslun BT í Spönginni, Reykjavík, samkvæmt falsaðri úttektarbeiðni undirritaðri með nafninu .......(ólæsilegt) Kristj....
Þann 27. desember svikið út 3 farsíma samtals að verðmæti 109.164 kr. í verslun BT í Spönginni, Reykjavík, samkvæmt falsaðri úttektarbeiðni með nafnárituninni Anna Kristj.
Sama dag svikið út 4 farsíma samtals að verðmæti 139.963 í verslun BT í Skeifunni, Reykjavík, samkvæmt falsaðri úttektarbeiðni með nafnárituninni Anna Kristjá...
II. Ákærðu Kristjáni og Gylfa fyrir fjársvik og skjalafals með því að hafa, 28. desember 2005, svikið í félagi út 10 farsíma, samtals að andvirði 574.899 kr. í verslun Hátækni hf., Ármúla 26, Reykjavík, með því að láta skuldfæra þá heimildarlaust í reikning Og fjarskipta hf. hjá versluninni og á hendur ákærða Gylfa jafnfram fyrir skjalafals með því að hafa falsað nafnáritunina Ólafur Jakobsson á reikning fyrir móttöku vörunnar.
III. Ákærða Kristjáni er gefið að sök:
Skjalafals með því að hafa þann 27. desember 2005, svikið út 11 farsíma í verslum Tölvudreifingar hf., Stórhöfða 27, Reykjavík, í félagi við annan mann með því að panta vörurnar heimildarlaust í nafni Og fjarskipta hf., falsa úttektarbeiðnir í nafni fyrirtækisins og fá óþekktan mann til að framvísa beiðnunum í versluninni og sækja vöruna.
Skjalafals með því að hafa, þann 28. desember 2005, svikið út 11 farsíma og fylgihluti í verslun BT í Firði, Hafnarfirði, samtals að andvirði 163.149 kr. í félagi við annan mann því að panta heimildarlaust vöru í nafni Og fjarskipta hf. og afhenda óþekktum manni beiðnir í nafni fyrirtækisins um úttektirnar, sem ákærði hafði falsað, og fengið hann til að sækja vöruna.
Telst þetta varð við 1. mgr. 155. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940, nema háttsemi Kristjáns samkvæmt II. kafla ákæru sem telst varða við 248. gr. hegningarlaganna.
Þjófnað með því að hafa, í desember 2005, stolið 9 farsímum í starfsstöð Og Vodafone í Síðumúla 32, Reykjavík.
Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga.
Þess er krafist að ákærðu verði dæmdir refsingar.
Í málinu er þess krafist af hálfu eftirgreindra að ákærðu verði dæmdir til greiðslu skaðabóta:
Árdegis hf., [...], skaðabóta að fjárhæð 576.619 kr. ásamt vöxtum samkvæmt 8. gr. vaxtalaga nr. 38, 2001 frá 8. október 2006 til greiðsludags en síðan dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr., sbr. 9. gr., sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.
Hátækni hf., [...], skaðabóta að fjárhæð 574.899 kr. ásamt vöxtum samkvæmt 8. gr. vaxtalaga frá 28. desember 2005 og dráttarvaxta frá 30. janúar 2006 til greiðsludags og jafnframt 89.432 kr. vegna útlagðs lögmannskostnaðar.“
Málavextir
Ákærðu hafa skýlaust játað þá verknaði sem þeir eru saksóttir fyrir. Hafa þeir orðið sekir um brot þau sem lýst er í ákærunni og réttilega eru þar færð til refsiákvæða.
Ákærði Kristján á að baki nokkurn brotaferil. Refsing hans verður hegningarauki við níu skilorðsbundna fangelsismánuði samkvæmt dómi 6. júní 2007. Ber að dæma upp þann dóm og gera ákærða refsingu í einu lagi. Refsingin þykir þannig hæfilega ákveðin fangelsi í 15 mánuði.
Ákærði Gylfi hefur verið sektaður margsinnis fyrir fíknilagabrot og einu sinni fyrir þjófnað. Þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 4 mánuði. Frá refsingu ákærða ber að draga 9 daga gæsluvarðhald sem hann sætti.
Ákærði Unnar Þór hefur verið sektaður þrisvar sinnum fyrir fíknilagabrot og einu sinni fyrir ölvun við akstur. Þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 4 mánuði.
Mál þetta hefur dregist óhæfilega og ákærðu hafa játað brot sín greiðlega. Þá er að gæta að því að þeir hafa snúið baki við óreglu. Rétt er því að fresta því að framkvæma refsingu ákærðu og ákveða að hún falli niður að liðnum 2 árum frá dómsuppsögu að telja, haldi ákærðu almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
Skaðabótakröfur Árdegis hf. og Hátækni hf. eru vanreifaðar og óljósar í ljósi málavaxtanna. Ber að vísa þeim frá dómi.
Dæma ber ákærða Kristján til þess að greiða verjanda sínum, Sveini Andra Sveinssyni hrl., 50.000 krónur í málsvarnarlaun, ákærða Gylfa til þess að greiða verjanda sínum, Jóni Höskuldssyni hrl., 396.503 krónur í málsvarnarlaun og ákærða Unnar Þór til þess að greiða verjanda sínum, Kristjáni Stefánssyni hrl., 50.000 krónur í málsvarnarlaun. Dæmast málsvarnarlaunin með virðisaukaskatti.
DÓMSORÐ:
Ákærði, Kristján Haraldsson, sæti fangelsi í 15 mánuði.
Ákærði, Gylfi Jónsson, sæti fangelsi í 4 mánuði. Frá refsingunni dregst 9 daga gæsluvarðhald.
Ákærði, Unnar Þór Lárusson, sæti fangelsi í 4 mánuði.
Frestað er því að framkvæma refsingu ákærðu og fellur hún niður að liðnum 2 árum, haldi ákærðu almennt skilorð.
Ákærði Kristján greiði verjanda sínum, Sveini Andra Sveinssyni hrl., 50.000 krónur í málsvarnarlaun.
Ákærði Gylfi greiði verjanda sínum, Jóni Höskuldssyni hrl., 396.503 krónur í málsvarnarlaun.
Ákærði Unnar Þór greiði verjanda sínum, Kristjáni Stefánssyni hrl., 50.000 krónur í málsvarnarlaun.
Pétur Guðgeirsson