Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-303/2008:

S-303/2008:

Ákæruvaldið

(Karl Ingi Vilbergsson fulltrúi)

gegn

Brynjari

Bergmann Guðmundssyni

Upptaka.

Ákærði var dæmdur í 1 mánaðar fangelsi, skilorðsbundið í 2 ár, fyrir fíkniefnalagabrot.

Mál þetta, sem dómtekið var í dag, er höfðað með ákæru útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 4. mars 2008 á hendur Brynjari Bergmann Guðmundssyni, kt. […], Skriðustekk 9, Reykjavík, fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa að kvöldi mánudagsins 15. október 2007 að Dvergabakka 34 í Reykjavík haft í vörslum sínum í söluskyni 114,08 g af maríhúana, sem ákærði framvísaði og lögreglan fann við leit.

Þetta er talið varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985, sbr. lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og að gerð verði upptæk ofangreind fíkniefni sem hald var lagt á, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001. Þá er einnig krafist upptöku grammavogar, skæra og 17.000 króna sem lagt var hald á, samkvæmt 7. mgr. 5. mgr. sömu laga.

Af hálfu ákærða er krafist vægustu refsingar er lög leyfa.

Farið var með mál þetta samkvæmt 125. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

Ákærði hefur skýlaust játað brot sitt. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að hann er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og er brot hans rétt heimfært til refsiákvæða í ákæru.

Ákærði er fæddur í ágúst 1988. Í sakavottorði ákærða kemur fram að sam kvæmt dómi 16. september 2005 var ákvörðun refsingar frestað skilorðsbundið í 2 ár fyrir þjófnað. Hinn 13. september 2006 gekkst ákærði undir greiðslu 70.000 kr. sektar með lögreglustjórasátt fyrir umferðarlagabrot. Þá gekkst hann hinn 8. júní 2007 undir greiðslu 28.000 kr. sektar með lögreglustjórasátt fyrir fíkniefnalagabrot. Með hliðsjón af skýlausri játningu ákærða, magni efnanna og þess að þau voru ætluð til sölu þykir refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í 1 mánuð, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og hún niður falla að liðnum tveimur árum frá upp kvaðningu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

Að kröfu ákæruvaldsins og með vísan til framangreindra laga- og reglu gerðarákvæða skulu upptæk til ríkissjóðs 114,08 g af maríhúana, grammavog, skæri og 17.000 krónur, sem lögregla lagði hald á við rannsókn málsins.

Karl Ingi Vilbergsson, fulltrúi lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins, flutti málið af hálfu ákæruvaldsins.

Dóm þennan kveður upp Sandra Baldvinsdóttir, settur héraðsdómari.

D ó m s o r ð :

Ákærði, Brynjar Bergmann Guðmundsson, sæti fangelsi í 1 mánuð, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og hún niður falla að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

Upptæk eru gerð til ríkissjóðs 114,08 g af maríhúana, grammavog, skæri og 17.000 krónur, sem lögregla lagði hald á við rannsókn málsins.

Sandra Baldvinsdóttir