Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-19/2008:

Ákæruvaldið

(Erna Sigríður Sigurðardóttir fulltrúi)

gegn

Reyni Ragnarssyni

Upptaka. Ávana- og fíkniefni.

Ákærði dæmdur til sektargreiðslu vegna fíkniefnabrots. Fíkniefnin gerð upptæk.

Mál þetta, sem dómtekið var í dag, er höfðað með ákæru útgefinni af lögreglu stjóranum á höfuðborgarsvæðinu 18. desember 2007 á hendur Reyni Ragnarssyni, [ ], Asparfelli 12, Reykjavík, fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa laugardaginn 18. nóvember 2006, í íbúðarhúsnæði að Víkurás 2 í Reykjavík, haft í vörslum sínum 2,49 g af amfetamíni, 0,45 g af hassi og 0,95 g af kókaíni, sem ákærði hafði geymt í sokkum sínum, og lögreglumenn fundu við leit í umræddu húsnæði.

Þetta er talið varða við 2. gr., sbr. 5. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. og 6. gr. sömu laga, að því er varðar meðferð ákærða á hassi og kókaíni, sbr. lög nr. 13, 1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002 og auglýsingu nr. 232/2001 varðandi meðferð ákærða á kókaíni.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og jafnframt að 2,49 g af amfetamíni, 0,45 g af hassi og 0,95 g af kókaíni sem hald var lagt á, verði gert upptækt samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.

Ákærði sótti ekki þing og boðaði ekki forföll en í fyrirkalli, sem var gefið út 10. janúar sl. og löglega birt fyrir honum, var tekið fram að yrði ekki sótt þing að forfallalausu gæti hann búist við að dómur yrði lagður á málið að honum fjarstöddum sbr. 1. mgr. 126. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.

Dómurinn telur þannig sannað með vísan til ofanritaðs og gagna málsins að öðru leyti, að ákærði hafi framið þá háttsemi sem ákært er út af og er brot ákærða rétt heimfært til refsiákvæða í ákærunni Ákærði er fæddur í desember 1984. Samkvæmt fyrirliggjandi sakavottorði hefur hann frá árinu 2000 tvisvar gengist, með lögreglustjórasátt, undir að greiða sektir vegna fíkniefnabrota. Auk þess hefur hann tvívegis áður hlotið sektardóm fyrir fíkniefnabrot og í tvígang fengið skilorðsbundinn fangelsisdóm, annars vegar fyrir þjófnað en hins vegar fyrir líkamsárás.

Þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin

D ó m s o r ð:

Ákærði, Reynir Ragnarson, greiði 92.500 króna sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá birtingu dóms þessa að telja, en sæti ella fangelsi í 8 daga.

Upptæk eru gerð 2,49 g af amfetamíni, 0,45 g af hassi og 0,95 g af kókaíni.

Ásgeir Magnússon