Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-189/2008:

Ákæruvaldið

(Hrannar Már Sigurðsson Hafberg fulltrúi)

gegn

Birgi

Páli Auðunssyni

(Björn Lárus Bergsson hrl)

Játningarmál. Líkamsárás. Skaðabætur.

Ákærði var dæmdur í 1 mánaðar fangelsi, skilorðsbundið í 3 ár, fyrir líkamsárás. Afleiðingar árásarinnar voru taldar ákærða til sakar vegna gáleysis. Þá var hann dæmdur til greiðslu bóta.

Mál þetta, sem dómtekið var 10. mars sl., er höfðað með ákæru útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 6. febrúar 2008 á hendur Birgi Páli Auðunssyni, kt. […], Ingólfsstræti 8, Reykjavík. Ákærða er gefin að sök líkamsárás, með því að hafa árla morguns sunnudaginn 1. júlí 2007 við Laugaveg 18 í Reykjavík hrint Ragnari Inga Ingasyni, kt. […], svo að hann féll í jörðina, með þeim afleiðingum að vinstri upphandleggur hans brotnaði.

Þetta er talið varða við 1. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 11. gr. laga nr. 20/1981 og 111. gr. laga nr. 82/1998.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.

Í ákæru kemur fram að Ragnar Ingi Ingason geri kröfu um að ákærði verið dæmdur til að greiða honum „skaða- og miskabætur samtals að fjárhæð kr. 548.328,- með vöxtum skv. 8. gr. vaxtalaga nr. 38/2001 frá 2. júlí 2007, en síðan með dráttarvöxtum skv. 9. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr. vaxtalaga“.

Verjandi ákærða krefst vægustu refsingar er lög leyfa og hæfilegrar þóknunar sér til handa. Ákærði samþykkir greiðslu bóta en mótmælir kröfunni sem of hárri.

Farið var með mál þetta samkvæmt 125. gr. laga nr. 19/1991 og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

Ákærði hefur skýlaust játað brot sitt. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og er brot hans rétt heimfært til refsiákvæða í ákæru.

Ákærði er fæddur í febrúar 1980. Samkvæmt sakavottorði ákærða hefur hann ekki áður sætt refsingu. Við ákvörðun refsingar er til þess að líta, og er óumdeilt af hálfu málflytjenda, að brotaþoli var að áreita kærustu ákærða, er hann ýtti við brotaþola. Verða afleiðingar árásarinnar taldar ákærða til sakar vegna gáleysis. Samkvæmt fyrirliggjandi áverkavottorði mun brotaþoli ná sér að fullu. Þá er til þess að líta að hann hefur skýlaust játað brot það sem hann er sakfelldur fyrir. Einnig ber að horfa til þess að náðst hefur samkomulag um greiðslu skaðabóta. Að öllu þessu virtu þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 1 mánuð, sem verður bundin skilorði, eins og í dómsorði greinir.

Í málinu liggur fyrir skaðabótakrafa brotaþola, Ragnars Inga Ingasonar, að fjárhæð 548.328 kr., auk vaxta. Við meðferð málsins fyrir dómi gerðu ákærði og brotaþoli samkomulag um bætur sem felur í sér að ákærði greiði honum 150.000 kr. Verður ákærði samkvæmt þessu dæmdur til að greiða honum þá fjárhæð.

Með vísan til 1. mgr. 165. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála ber að dæma ákærða til að greiða allan sakarkostnað, alls 66.984 kr. Samkvæmt yfirliti um sakarkostnað er um að ræða kostnað vegna læknisvottorðs, 13.200 kr. Þá þykir þóknun verjanda ákærða hæfilega ákveðin 53.784 kr., að meðtöldum virðisaukaskatti.

Dóm þennan kveður upp Sandra Baldvinsdóttir, settur héraðsdómari.

D ó m s o r ð :

Ákærði, Birgir Páll Auðunsson, sæti fangelsi í 1 mánuð, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og hún niður falla að liðnum þremur árum frá birtingu dómsins haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

Ákærði greiði Ragnari Inga Ingasyni 150.000 krónur.

Ákærði greiði 66.984 krónur í sakarkostnað, þar með talin 53.784 króna þóknun skipaðs verjanda hans, Björns Lárusar Bergssonar hæstaréttarlögmanns.

Sandra Baldvinsdóttir