Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-107/2008:

D

Ó M U R

nr. S-107/2008:

Ákæruvaldið

(Eyjólfur Ármannsson fulltrúi)

gegn

Hendriki

Birni Hermannssyni

(Brynjar Níelsson hrl)

Staðgreiðsla opinberra gjalda. Virðisaukaskattur.

Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn skattalögum.

Mál þetta, sem dómtekið var í dag, er höfðað með ákæru útgefinni af ríkislögreglustjóra 29. janúar 2008 á hendur Hendriki Birni Hermannssyni, kennitala […], Naustabryggju 27, Reykjavík, Fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum í eftirtöldum tilvikum:

                                                                       A.

Sem stjórnarmaður og framkvæmdastjóri einkahlutafélagsins HBH Veitinga, kennitala […], með því að hafa:

  1. Eigi afhent á lögmæltum tíma virðisaukaskattsskýrslur vegna uppgjörs tímabilanna janúar til og með apríl 2006 og hafa eigi staðið ríkissjóði, í samræmi við fyrirmæli í IX. kafla laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt, skil á virðisaukaskatti sem innheimtur var í nafni einkahlutafélagsins vegna uppgjörstímabilanna frá nóvember 2005 til og með apríl 2006, samtals að fjárhæð kr. 5.859.214,- og sundurliðast sem hér greinir:

Uppgjörstímabil:

Árið 2005

              Vangoldinn

VSK:

Nóvember - desember kr. 2.479.725
Samtals kr. 2.479.725
Árið 2006
Janúar - febrúar kr. 1.632.973
Mars - apríl kr. 1.746.516
Samtals kr. 3.379.489
Samtals: kr. 5.859.214
  1. Eigi afhent á lögmæltum tíma skilagreinar staðgreiðslu opinberra gjalda vegna greiðslutímabilanna frá mars til og með júlí, september og desember 2006, og hafa eigi staðið ríkissjóði, í samræmi við fyrirmæli í III. kafla laga nr. 45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda, skil á staðgreiðslu opinberra gjalda sem haldið var eftir af launum starfsmanna einkahlutafélagsins vegna greiðslutímabilanna október 2005 til og með desember 2006, samtals að fjárhæð kr. 11.166.074,- og sundurliðast sem hér greinir:
Greiðslutímabil: Árið 2005 Vangoldin staðgreiðsla:
Október kr. 726.065
Nóvember kr. 800.500
Desember kr. 865.708
Samtals kr. 2.392.273
Árið 2006
Janúar kr. 722.889
Febrúar kr. 802.757
Mars kr. 749.638
Apríl kr. 738.763
Maí kr. 737.034
Júní kr. 593.008
Júlí kr. 610.562
Ágúst kr. 716.884
September kr. 764.968
Október kr. 610.805
Nóvember kr. 757.841
Desember kr. 968.652
Samtals kr. 8.773.801
Samtals kr. 11.166.074

                                                          B.

Sem stjórnarmaður og framkvæmdastjóri einkahlutafélagsins H. Hermannssonar, kennitala […], með því að hafa:

  1. Eigi staðið ríkissjóði, í samræmi við fyrirmæli IX. kafla laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt, skil á virðisaukaskatti sem innheimtur var í nafni einkahlutafélagsins vegna uppgjörstímabilanna frá janúar til og með júní 2007, samtals að fjárhæð kr. 12.809.837,- og sundurliðast sem hér greinir:

Uppgjörstímabil:

Vangoldinn VSK:

Árið 2007 Janúar - febrúar kr. 2.565.726 Mars - apríl kr. 5.000.923 Maí - júní kr. 5.243.188 Samtals: kr. 12.809.837

  1. Eigi afhent á lögmæltum tíma skilagreinar staðgreiðslu opinberra gjalda vegna greiðslutímabilanna janúar, apríl og maí 2007, og hafa eigi staðið ríkissjóði, í samræmi við fyrirmæli í III. kafla laga nr. 45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda, skil á staðgreiðslu opinberra gjalda sem haldið var eftir af launum starfsmanna einkahlutafélagsins vegna greiðslutímabilanna janúar til og með september 2007, samtals að fjárhæð kr. 11.173.116,- og sundurliðast sem hér greinir:

Greiðslutímabil:

Vangoldin staðgreiðsla:

Árið 2007 Janúar kr. 443.160 Febrúar kr. 1.263.772 Mars kr. 1.580.247 Apríl kr. 1.865.317 Maí kr. 1.351.392 Júní kr. 1.348.498 Júlí kr. 1.122.836 Ágúst kr. 915.718 September kr. 1.282.176 Samtals: kr. 11.173.116 Framangreind brot ákærða eru talin varða við 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 39/1995, sbr. einnig:

a)       1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt, sbr. 3. gr. laga nr. 42/1995 og 3. gr. laga nr. 134/2005 að því er varðar 1. tölulið A og B hluta ákæru.

b)       2. mgr. 30. gr. laga nr. 45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda, sbr. 2. gr. laga nr. 42/1995 og 1. gr. laga nr. 134/2005 að því er varðar 2. tölulið A og B hluta ákæru.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.

Verjandi ákærða krefst vægustu refsingar er lög leyfa og hæfilegrar þóknunar sér til handa.

Farið var með mál þetta samkvæmt 125. gr. laga nr. 19/1991 og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.

Ákærði er fæddur í mars 1975. Hann hefur ekki áður sætt refsingu svo kunnugt sé.

Með hliðsjón af sakarefnum málsins sæti ákærði fangelsi í sex mánuði, sem bundið verður skilorði með þeim hætti er í dómsorði greinir.

Ákærði greiði 77.300.000 krónur í sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dóms þessa að telja, en sæti ella fangelsi í 10 mánuði.

Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Brynjars Níelssonar hæstaréttarlögmanns,  74.700 krónur.

D ó m s o r ð :

Ákærði, Hendrik Björn Hermannsson, sæti fangelsi í sex mánuði en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

Ákærði, greiði 77.300.000 krónur í sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dóms þessa að telja, en sæti ella fangelsi í 10 mánuði.

Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Brynjars Níelssonar hæstaréttarlögmanns,  74.700 krónur.

Símon Sigvaldason.