Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 4. desember 2008.
Mál nr. E-1442/2008:
Helga
Haraldsdóttir
gegn
Ólöfu, Ósk Erlendsdóttur,
(Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson hdl)
Magnúsi, Einarssyni og
(Ástríður Gísladóttir hdl)
Erlu, Hlynsdóttur
(Gunnar Ingi Jóhannsson hdl)
Lykilorð
Útdráttur
Krafist var ómerkingar 14 tilgreindra ummæla sem birtust í grein í DV, refsingar og miskabóta, auk greiðslu kostnaðar vegna birtingar dómsins. Ein ummælin voru dæmd dauð og ómerk. Einn þriggja stefndu var dæmdur til greiðslu miskabóta, en sýknað að öðru leyti.
- Að eftirfarandi ummæli, í stafliðum a til j, sem stefnda Ólöf og stefnda Erla viðhöfðu og birtu um stefnanda á blaðsíðum 16 og 17 í 134. tbl., 97. árgangs DV, 2. ágúst 2007, verði ómerkt: a. „Ólöf Ósk Erlendsdóttir, ..., segist hafa stundað kynlíf með þeim hjónum.“ b. „Ólöf Ósk Erlendsdóttir, ..., segir Helgu hafa tekið þátt í kynlífsathöfnum með sér og Guðmundi.“ c. „Ólöf Ósk Erlendsdóttir segir Helgu hafa verið virka í kynlífsleikjum þeirra Guðmundar til að byrja með en þegar líða tók á hafi Helga orðið mjög afbrýðisöm og þá hafi Guðmundur ekki lengur viljað hafa hana með.“ d. „Hún tók þátt í fyrstu skiptunum okkar saman.“ e. „Síðan fór hún að hringja í mig og senda mér skilaboð um að hún vildi hitta mig eina.“ f. „Ólöf segir að Helga hafi leitað eftir kynferðislegu samneyti við hana í einrúmi.“ g. „Hann laug hana líka fulla, ...“ h. „Hann sagði líka að hann væri að skilja við konuna sína.“ i. „... þessi manneskja er kolrugluð. Ég get ekki séð að hún hafi nokkuð að bjóða sem stuðningsfulltrúi eða í hjálparstarfi yfirhöfuð. Ég veit ekki hvað hún er að gera í þessum skóla ... ... ekki við hæfi að sú sem veiðir fyrir hann vinni í grunnskóla.“ j. „ ...hafi dreift ljótum sögum um hana. „Konan hans gerði þetta líka. Þau komu jafnvel með nýjar sögur á hverjum degi.““
- Að eftirfarandi ummæli, í stafliðum k til n, sem stefndi Magnús og stefnda Erla viðhöfðu og birtu um stefnanda á blaðsíðum 16 og 17 í 134. tbl., 97. árgangs DV 31. ágúst 2007, verði ómerkt: k. „Þær voru í þjálfun sem drottnarar í lesbísku kynlífi. Að sögn Magnúsar var kona hans þáttakandi í þessu.“ l. „Að sögn Magnúsar Einarssonar, ..., var misnotkun Guðmundar á vistmönnum með fullri vitneskju hennar og tók hún á tíðum þátt í kynlífsleikjunum.“ m. „Þau djöfluðust bæði á þeim með tólum og tækjum“ n. „Magnús telur undarlegt að kona í þessari stöðu vinni með börnum.“
- Að stefndu verði dæmd til refsingar vegna ofangreindra ummæla og birtingar þeirra, samkvæmt 234., 235. og 236 gr. almennra hegningarlaga.
- Að stefndu greiði stefnanda 3.000.000 króna, in solidum, í miskabætur og beri dómkrafan vexti skv. 8. gr. laga nr. 38/2001, frá 31. ágúst 2007 til 28. mars 2008, en dráttarvexti frá þeim degi til greiðsludags, sbr. 9. gr. laga nr. 38/2001.
- Að stefndu greiði stefnanda 800.000 krónur, in solidum, til að kosta birtingu dóms í málinu, þ.e. forsendna og dómsorðs, í þremur dagblöðum.
Þá krefst stefnandi málskostnaðar.
Stefndu gera þær kröfur að þau verði sýknuð af öllum kröfum stefnanda og til vara að fjárhæðir verði lækkaðar verulega. Þá krefjast öll stefndu málskostnaðar sér til handa.
Með úrskurði 14. júlí s.l. var hafnað kröfum stefndu um frávísun í málinu, en í upphaflegri kröfugerð kröfðust stefndu Ólöf Ósk og Magnús þess að refsikröfu stefnanda yrði vísað frá dómi, en stefnda Erla krafðist þess að öllum kröfum á hendur sér yrði vísað frá dómi.
Málavextir:
Í stefnu er málsatvikum lýst þannig að í helgarblaði DV 31. ágúst – 2. september 2007 hafi birst grein á bls. 16 og 17 um eiginmann stefnanda. Stefnda Erla sé nafngreind sem höfundur greinarinnar og stefndu Ólöf og Magnús séu nafngreind sem viðmælendur. Greinin sé að mestu byggð á ummælum og sögum viðmælenda um eiginmann stefnanda en þar séu einnig alvarlegar fullyrðingar þar sem vegið sé að persónu, æru og starfsheiðri stefnanda. Þá sé stefnandi einnig sökuð um háttsemi sem geti talist refsiverð samkvæmt íslenskum lögum. Í fyrirsögn greinarinnar, sem beri heitið Árásir satans, sé m.a. nafn stefnanda feitletrað ásamt upplýsingum um starfsstað hennar og starfsheiti. Í greininni sem nái yfir tvær heilar blaðsíður dagblaðsins, séu fjórar myndir en ein þeirra sé af heimili stefnanda og önnur af stefnanda inni á heimili sínu.
Málsástæður og lagarök stefnanda:
Stefnandi byggir, að því er varðar aðild stefndu Ólafar Óskar og Magnúsar, á nafngreiningu þeirra sem viðmælenda höfundar. Þau hafi með því að hafa haft í frammi ærumeiðandi aðdróttanir í garð stefnanda, gegn betri vitund, unnið sér til sakar samkvæmt 236. gr. samanber 234. og 235. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Aðild stefndu Erlu og ábyrgð hennar á ummælum í kröfugerð byggir stefnandi á nafngreiningu hennar sem höfundar á nefndri blaðagrein, samkvæmt 15. gr. laga nr. 57/1956 um prentrétt. Stefnda hafi opinberað og borið út tilhæfulausar og ærumeiðandi aðdróttanir sem hafi falið í sér meingerð gegn friðhelgi stefnanda, gegn betri vitund, eða án þess að hafa sennilega ástæðu til að halda aðdróttanirnar réttar. Stefnda Erla beri því einnig ábyrgð samkvæmt 236. gr. samanber 234. og 235. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Stefnandi byggir á því að öll ummælin sem krafist er ómerkingar á séu tilhæfulaus meingerð, þar sem vegið sé að persónu, æru og faglegum heiðri stefnanda. Í þeim felist gróf aðdróttun sem sé til þess falin að verða virðingu hennar til hnekkis. Ummælin teljist því óviðurkvæmileg og beri að ómerkja þau á grundvelli 1. mgr. 241. gr., samanber 234. gr. og 235. gr. laga nr. 19/1940.
Að því er varðar ummælin í stafliðum a til d sérstaklega, er þar haft eftir stefndu Ólöfu Ósk að stefnandi hafi tekið þátt í kynlífi með Ólöfu Ósk og eiginmanni stefnanda. Ummæli þessi séu ósönn og órökstudd og tilgangur þeirra virðist vera sá einn að sverta ímynd stefnanda með persónulegum árásum er tengjast kynferðislegum samskiptum. Þá hafi óviðurkvæmilegar og ósannaðar fullyrðingar einnar manneskju ekkert fréttagildi og eigi ekki erindi til blaðamanns eða til almennings.
Í ummælum í stafliðum e og f séu hafðar eftir stefndu Ólöfu Ósk fullyrðingar um að stefnandi hafi leitað eftir kynferðislegum samskiptum við hana eina, án eiginmanns stefnanda. Þetta sé úr lausu lofti gripið og með öllu órökstutt og geti tilgangur með slíkum fullyrðingum ekki verið annar en að koma af stað ósönnum orðrómi um persónu stefnanda, kynhneigð hennar og fjölskyldulíf. Stefnandi sé ekki þjóðþekkt persóna og hafi umfjöllun um hennar persónulegu hagi ekki fréttagildi eða eigi erindi til almennings.
Fullyrðingar sem koma fram í stafliðum g og h um að eiginmaður stefnanda ljúgi að henni og vilji skilja við hana séu órökstuddar og ósannaðar, enda séu þau enn gift. Tilgangur þessa geti ekki verið annar en sá að koma óorði á og sverta ímynd stefnanda án þess að hún hafi til sakar unnið. Slíkar fullyrðingar hafi ekki fréttagildi og eigi ekki erindi til almennings.
Stefnandi byggir á því að með ummælum í staflið i séu stefndu Ólöf Ósk og Erla að vega með svívirðilegum hætti að starfsheiðri stefnanda. Af samhenginu sé ljóst að þarna sé verið að fullyrða að stefnandi nýti stöðu sína sem starfsmaður í grunnskóla til að ginna ungar stúlkur til eiginmanns síns til kynferðislegra samskipta. Til viðbótar sé, af hálfu stefndu Erlu, síðari hluti þessara ummæla tekinn út og settur með stórum rauðum stöfum fyrir ofan texta greinarinnar í þeim tilgangi að vekja athygli á greininni. Slíkar fullyrðingar séu með eindæmum svívirðilegar og ásökun um háttsemi sem sé refsiverð og siðferðislega ámælisverð. Stefnandi geti ekki verið látin sæta slíkum röngum og órökstuddum ásökunum sem viðhafðar séu í þeim eina tilgangi að koma höggi á persónu hennar og vega að starfi hennar og siðferðisvitund. Við því sé búist að höfundar blaðagreina vinni í góðri trú og byggi á traustum staðreyndagrunni. Ljóst sé að slíkar ásakanir geti haft mjög alvarlegar afleiðingar fyrir alla þá sem ummælin varða, einkum stefnanda og möguleika hennar á því að sinna starfi sínu. Með þessari háttsemi hafi stefnda Erla sérstaklega lagt sig í líma við að dreifa grafalvarlegum og órökstuddum ásökunum í þeim eina tilgangi að níðast á mannorði stefnanda. Skoðun Ólafar á stefnanda og hæfni hennar til að sinna starfi sínu sé ekki fréttnæm, en hvorug þeirra sé þjóðþekkt persóna né almennt nafntogaður einstaklingur og eigi því ummælin ekkert erindi við almenning.
Í staflið j hafi stefnda Erla eftir stefndu Ólöfu Ósk að stefnandi dreifi ljótum sögum um hana. Séu ummælin ósönn og órökstudd og til þess fallin að sverta ímynd stefnanda, séu gróf aðdróttun um heiðarleika stefnanda og eigi ekkert erindi til almennings.
Í stafliðum k, l, og m, hefur stefnda Erla eftir stefnda Magnúsi, að stefnandi hafi haft vitneskju um og tekið þátt í kynferðislegri misnotkun eiginmanns hennar á vistmönnum meðferðarstofnunar. Þessi ósmekklegu ummæli eigi sér enga stoð í raunveruleikanum, enda liggi ekkert þeim til staðfestingar. Stefnandi sé þarna ásökuð um refsiverða háttsemi, en gera verði þá kröfu til höfunda greina í jafnvíðlesnu dagblaði og DV, að gerð sé óháð könnun á staðreyndum á ásökunum um kynferðislega misnotkun áður en þeim er dreift til almennings eins og sannleika. Hugarórar stefnda Magnúsar um meinta refsiverða hegðun stefnanda eigi ekkert erindi til almennings, enda tilhæfulausir með öllu.
Ummælin í staflið n hafi stefnda Erla eftir stefnda Magnúsi um skoðanir hans á stefnanda og starfi hennar. Magnúsi sé fullfrjálst að hafa skoðanir á stefnanda og starfi hennar, en í því samhengi sem stefnda Erla setji skoðanir hans fram, sé opinberuð svívirðing á stefnanda og hæfni hennar til að sinna starfi sínu sem auk þess sé byggð á hinum röngu ummælum í stafliðum k, l og m. Slíkt eigi ekkert erindi til almennings.
Refsikröfu sína kveðst stefnandi byggja á því að ummæli stefndu og birting þeirra hafi verið mjög alvarleg árás á friðhelgi einkalífs stefnanda. Þá séu ummælin þess efnis að beinlínis sé verið að bera á stefnanda refsiverða háttsemi, m.a. kynferðisbrot sem teljist til allra alvarlegustu brota. Þegar svo alvarlegar ásakanir séu hafðar uppi sé ekki hjá því komist að krefjast fullrar refsingar samkvæmt ákvæðum 234., 235. og 236. gr. almennra hegningarlaga.
Miskabótakröfu sína byggi stefnandi á b-lið 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993, enda beri stefndu ábyrgð á ólögmætri meingerð gegn stefnanda í skilningi ákvæðisins. Af hálfu stefnanda sé á því byggt að öll þau ummæli sem krafist sé ómerkingar á og refsingar fyrir séu ærumeiðandi með þeim hætti að þau feli í sér móðgun í orðum og með þeim sé dróttað að stefnanda þannig að það verði virðingu hennar til hnekkis. Beri stefndu því fébótaábyrgð vegna tjóns sem þau hafi valdið stefnanda með háttsemi sinni. Stefndu hafi mátt vera ljóst að ummæli þeirra gætu valdið hættu fyrir orðspor, æru, persónu, einkalíf og starfsheiður stefnanda og hefði þeim verið í lófa lagið að kanna frekar sannleiksgildi ummælanna áður en þeim var dreift til almennings. Þrátt fyrir ábendingar frá lögmanni stefnanda, sem stefnda Erla hafi leitað til vegna skrifa sinna, um að ummælin væru röng, hafi hún tekið ákvörðun um að opinbera þau almenningi. Slík vinnubrögð beri vott um einbeittan vilja til að rógbera stefnanda gegn betri vitund.
Athafnir stefndu sem hafi ráðist ítrekað á fjölskyldulíf, kynferðislega friðhelgi og starfsheiður stefnanda, hafi valdið verulegum skaða á tilfinninga- og sálarlífi stefnanda og fjölskyldu hennar, sem hafi orðið fyrir verulegri röskun, óþægindum og ýmiskonar þjáningum. Stefnandi eigi erfitt með að sækja vinnu og verði við ákvörðun miskabóta að líta til þeirra röskunar á umhverfi stefnanda sem stefndu beri ábyrgð á. Aldrei hafi verið gerður reki að því að leita álits stefnanda á þeim rætnu og andstyggilegu staðhæfingum sem opinberaðar hafi verið um hana. Framsetning efnis og ítrekaðar ásakanir um óheilindi og refsiverða háttsemi hafi verið með þeim hætti að almenningi hafi verið gert auðvelt að trúa ósönnuðum fullyrðingum um stefnanda. Líta verði til þess að DV sé í mikilli útbreiðslu um allt land og auk þess á Netinu og hafi fullyrðingar stefndu um stefnanda þannig náð til fjölda fólks, auk þess sem greinin hafi verið forsíðugrein, en DV birti gjarnan forsíðu sína í auglýsingaskyni. Brot gegn stefnanda hafi verið framin í atvinnustarfsemi stefndu Erlu og í því skyni að afla tekna og hvatinn að baki greininni þar sem ummælin birtust aukin hagnaðarvon. Telur stefnandi að miskabætur verði að miðast við þessar staðreyndir.
Varðandi kröfu sína um greiðslu á 800.000 krónum til að kosta birtingu dóms í málinu í þremur dagblöðum, vísar stefnandi til 241. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Stefndu verði að bæta stefnanda þann kostnað sem hljótist af réttmætum tilraunum hennar til að draga úr andstyggilegum og röngum fullyrðingum sem hafi verið opinberaðar almenningi.
Stefnandi byggir á því að tjáningarfrelsi stefndu sem byggist á 73. gr. stjórnarskrár, takmarkist af réttindum og mannorði annarra samkvæmt 3. mgr. sömu greinar. Tjáningarfrelsi sé ávallt á ábyrgð þess sem það nýti samkvæmt 2. mgr.; ærumeiðingar, aðdróttanir og rógburður stefndu eigi ekkert skylt við tjáningarfrelsi.
Stefnandi vísar til 234., 235., 236. og 1. og 2. mgr. 241. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og grunnraka þeirra sem búa að baki þeim. Til laga nr. 57/1956 um prentrétt, einkum 2. mgr. 15. gr. og 22. gr. og til 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 og almennra skaðabótareglna, svo sem sakarreglunnar.
Málsástæður og lagarök stefndu:
Af hálfu stefndu Ólafar Óskar og Magnúsar er byggt á því að því er varðar refsikröfu stefnanda að krafan sé of óskýr til þess að hægt sé að leggja á hana dóm. Þegar refsikrafa sé höfð uppi í ærumeiðingarmáli þurfi að heimfæra hana með nákvæmari hætti undir ákveðið hegningarlagaákvæði. Almenn tilvísun til ærumeiðingarákvæða almennra hegningarlaga sé ekki fullnægjandi. Þegar af þeirri ástæðu beri að vísa refsikröfu stefnanda frá dómi. Verði ekki fallist á frávísunarkröfu sé krafist sýknu með vísan til sömu röksemda.
Stefndu Ólöf Ósk og Magnús byggja sýknukröfur sínar fyrst og fremst á því að ekki sé lagastoð fyrir aðild þeirra að málinu og beri að sýkna þau vegna aðildarskorts, sbr. 2. mgr. 16. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Í máli þessu hafi stefnda Erla nafngreint sig sem höfund greinarinnar sem hér er fjallað um og beri hún því ábyrgð á efni hennar samkvæmt prentlögum, sbr. 15. gr. laga nr. 57/1956 um prentrétt.
Í öðru lagi byggja stefndu Ólöf Ósk og Magnús sýknukröfur sínar á því að stefnda Erla hafi ekki haft rétt eftir þeim ummæli, frásagnir og lýsingar sem fram koma í greininni og stefnandi krefst að verði dæmd dauð og ómerk. Stefndu hafi ekki viðhaft ummælin sem krafist sé verið að dæmd verði dauð og ómerk og geti því ekki borið refsi- eða fébótaábyrgð á þeim eins og þau birtust í umræddri grein í DV. Að því er varðar stefnda Magnús sérstaklega, þá hafi ekki komið fram í samtali hans og stefndu Erlu að samtalið væri hljóðritað, hvað þá heldur að það yrði grundvöllur að opnuumfjöllun og forsíðufrétt í DV þar sem stefndi yrði nafngreindur sem heimildarmaður.
Í þriðja lagi byggja stefndu Ólöf Ósk og Magnús sýknukröfur á því að ummælin feli ekki í sér ærumeiðingu eða brot gegn friðhelgi einkalífsins í skilningi 234., 235. og 236. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Túlka beri framangreind ákvæði almennra hegningarlaga með hliðsjón af ákvæði stjórnarskrár um tjáningarfrelsi og mannréttindasáttmála Evrópu. Í því felist að sérhver maður eigi rétt á tjáningarfrelsi sem feli í sér frelsi til að hafa skoðanir og lýsa reynslu sinni af mönnum og málefnum á opinberum vettvangi. Stefndu byggi á því að umrædd ummæli hafi byggst á reynslu þeirra og upplifun og feli hvorki í sér refsiverða móðgun né aðdróttun gagnvart stefnanda, né hafi þau verið látin falla gegn betri vitund. Um hafi verið að ræða lýsingu stefndu Ólafar Óskar á staðreyndum og upplifun á þeim raunveruleika sem hún hafi þurft að búa við sem skjólstæðingur eiginmanns stefnanda á meðferðarstofnun og lýsingu stefnda Magnúsar á staðreyndum sem hann taldi vera fyrir hendi á þeim tíma og upplifun hans á þeim raunveruleika sem hann varð vitni að þegar hann starfaði með eiginmanni stefnanda á meðferðarstofnun. Því beri að telja að ummælin séu ekki óviðurkvæmileg eða sönn og beri að sýkna stefndu þar sem þau hafi ekki farið út fyrir mörk tjáningarfrelsis.
Hvað varðar miskabótakröfu stefnanda, byggja stefndu Ólöf Ósk og Magnús sýknu kröfu sína á sömu sjónarmiðum og fram koma að framan varðandi ómerkingu ummæla, stefndu beri ekki ábyrgð á ummælunum og ekki séu til staðar skilyrði b- liðar 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 til greiðslu miskabóta. Þá sé meintur miski stefnanda ósannaður. Ef ekki verði fallist á sýknu krefjast stefndu þess að miskabótakrafa verði lækkuð verulega.
Stefndu Ólöf Ósk og Magnús byggja kröfu sína um sýknu af kröfu um greiðslu kostnaðar vegna birtingar dóms í málinu í fjölmiðlum á því að stefnandi hafi ekki lagt fram nein gögn sem sýni fram á kostnað, fjölmiðlar á Íslandi sýni dómum í meiðyrðamálum yfirleitt það mikinn áhuga að ekki sé þörf á að vekja sérstaka athygli þeirra á niðurstöðum slíkra mála með auglýsingum. Þá sé til þess að líta að þegar dæmdur hafi verið kostnaður hjá dómstólum, hafi þær fjárhæðir í fæstum tilvikum verið nýttar til þess að kosta birtingu dómsforsendna í fjölmiðlum. Verði ekki fallist á sýknukröfu, krefjast stefndu þess að greiðsla vegna þessa kostnaðar verði lækkuð verulega.
Þá mótmæla stefndu vaxta- og dráttarvaxtakröfu stefnanda sérstaklega og krefjast þess að ef til kemur verði vextir dæmdir frá dómsuppsögu.
Stefnda Erla Hlynsdóttir byggir sýknukröfu sína á því að hvorki beri hún ábyrgð á hinum umstefndu ummælum á grundvelli laga um prentrétt nr. 57/1956, né hafi hún gerst brotleg við 234., 235. eða 256. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, hvorki með beinum eða óbeinum hætti. Löggjafinn hafi ásamt dómstólum játað fjölmiðlum verulegt svigrúm til almennrar umfjöllunar um menn og málefni, enda sé tjáningarfrelsi í landinu varið af stjórnarskrá, sbr. 73. gr. laga nr. 33/1944, sbr. 11. gr. laga nr. 97/1995.
Viðtal það sem er grundvöllur þessa máls hafi verið hluti af almennri umfjöllun, sem farið hafi fram í flestum íslenskum fjölmiðlum, um málefni meðferðarstofnunarinnar Byrgisins. Orð viðmælenda hafi í viðtalinu verið tekin upp og endursögð og séu viðtöl sem þessi í engu frábrugðin því þegar viðtal sé tekið upp á myndavél og sýnt í sjónvarpi eða ummælum sem sögð séu í útvarp, miðillinn sé einungis annar. Stefnda Erla hafi ekkert lagt efnislega sjálfstætt til ummælanna sem stefnt er vegna og séu öll ummæli í viðtalinu sem hafi verið innan gæsalappa komin beint frá meðstefndu og birt óbrengluð og geti hún ekki borið ábyrgð á þeim.
Að því er varðar dómkröfu nr. 1, um ómerkingu nánar tilgreindra ummæla í stafliðum a til j, byggir stefnda Erla sýknukröfu sína á því að hún sé ekki höfundur ummælanna og beri ekki ábyrgð á þeim á grundvelli 15. gr. laga nr. 57/1956. Ómögulegt sé að líta á blaðamann, sem semur blaðagrein og nafngreinir sig, sem höfund ummæla sem séu réttilega höfð eftir nafngreindum viðmælendum. Í nefndri lagagrein felist hlutlæg ábyrgðarregla, ekki sé skýrt hver eigi að teljast höfundur samkvæmt greininni, en í ljósi kröfu um skýrleika sem verði að gera til hlutlægra ábyrgðarreglna sé útilokað að fella ábyrgð á ummælum nafngreindra viðmælenda á stefndu sem blaðamann. Um skilgreiningu á því hver skuli teljast höfundur sé einnig til 8. gr. höfundarlaga nr. 73/1972 að líta. Telur stefnda að með hliðsjón af þessum lagaákvæðum sé ljóst að blaðamaður skuli teljast höfundur ummæla ef enginn annar er lýstur höfundur að þeim. Því er mótmælt að nafngreining stefndu Erlu feli það sjálfkrafa í sér að hún teljist höfundur. Að mati stefndu skuli sá sem raunverulega leggur til efnið í formi ummæla, bera refsi- og bótaábyrgð á grundvelli 15. gr. laga nr. 57/1956, enda sé hann hinn eiginlegi höfundur ummælanna.
Stefnda Erla mótmælir því sérstaklega að með því að hafa ummælin eftir stefndu Ólöfu Ósk hafi þær báðar haft uppi ásakanir á hendur stefnanda, með vísan til þess að ummælin séu höfð eftir stefndu Ólöfu Ósk og engu af því sem felst í ummælunum sem stefnt sé út af, sé haldið fram af stefndu Erlu. Ákvæði prentlaga geti með engu móti breytt því hver teljist höfundur ummæla ef fyrir liggi hver hafi látið hin umstefndu ummæli falla. Í málinu sé viðurkennt af hálfu stefnanda að hin umstefndu ummæli séu frá stefndu Ólöfu Ósk og eigi hún því að bera ábyrgð á þeim.
Varðandi dómkröfu nr. 2 um tilgreind ummæli í stafliðum k til n, krefst stefnda Erla sýknu með vísan til allra sömu málsástæðna sem fram koma varðandi dómkröfu nr. 1 í kaflanum hér á undan.
Í dómkröfu nr. 3 er þess krafist að stefnda Erla verði dæmd til refsingar vegna ummælanna í stafliðum a til n, á grundvelli 236. gr., sbr. 234. og 235. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Stefnda vísar varðandi sýknukröfu sína að þessu leyti, til sömu málsástæðna sem taldar voru hér á undan varðandi dómkröfur nr. 1 og 2. Hún geti með engu móti talist höfundur ummælanna eða borið ábyrgð á þeim og því útilokað að gera henni refsingu vegna þeirra. Þá geti hún sem blaðamaður aldrei borið ábyrgð á útbreiðslu ummælanna, slíkri refsikröfu verði að beina að útgefanda eða ritstjóra. Verði ekki fallist á sýknukröfu á þessum forsendum, krefst stefnda þess að hún verði sýknuð á grundvelli refsileysis sannaðra ummæla. Þar sem allt sem fram hafi komið í umræddri blaðagrein sé satt og rétt verði stefndu ekki gerð refsing vegna þeirra. Í þriðja lagi krefst stefnda Erla sýknu á þeim grundvelli að því hafi ekki verið slegið föstu að meintar ærumeiðandi aðdróttanir hafi verið viðhafðar eða birtar gegn betri vitund stefndu. Refsing á grundvelli 236. gr. almennra hegningarlaga hljóti að þurfa að byggjast á ásetningi, sem ekki hafi verið, stefnda hafi talið og telji enn að öll ummælin hafi verið og séu sönn og rétt, enda hafi komið fram að stefnandi í máli þessu hafi haft réttarstöðu sakbornings við opinbera rannsókn á kynferðisbrotamáli. Það hvíli á stefnanda að sanna að stefnda hafi brotið gegn ákvæðum almennra hegningarlaga af ásetningi, sem stefnandi hafi ekki sannað eða gert líklegt og verði því að sýkna stefndu. Þá telur stefnda ekki koma til greina að gera refsingu með vísan til 234. gr. almennra hegningarlaga, þar sem það ákvæði eigi ekki við þegar krafist sé refsingar á grundvelli 236. gr. laganna.
Sýknukröfu sína að því er varðar miskabótakröfu stefnanda á grundvelli b-liðar 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993, byggir stefnda Erla á því að þar sem hún sé ekki höfundur ummælanna í dómkröfum 1 og 2, geti hún ekki borið á þeim bótaábyrgð. Í tilvitnuðu ákvæði sé gert ráð fyrir að um ólögmæta meingerð gegn friði, frelsi, æru eða persónu manns sé að ræða og geti það þannig ekki átt við þátt stefndu í málinu.
Verði stefnda þrátt fyrir þetta talin ber ábyrgð á einhverjum þeim ummælum sem um ræðir, byggir hún sýknukröfu sína á því að með ummælunum hafi hún ekki farið út fyrir stjórnarskrárbundinn rétt til tjáningarfrelsis og vísar til 73. gr. stjórnarskrár Íslands.
Varakröfu um verulega lækkun miskabóta frá því sem krafist er byggir stefnda Erla á því að kröfufjárhæðin sé ekki í neinu samræmi við dómvenju, tilefni hafi verið til umfjöllunarinnar og hún átt erindi til almennings.
Varakröfu um verulega lækkun á fjárhæð dómkröfu nr. 6, ef ekki verði fallist á sýknukröfu, byggir stefnda Erla á því að krafan sé alltof há miðað við þann kostnað sem fylgja myndi birtingu dómsins.
Niðurstaða:
Í dómkröfu nr. 1 er krafist ómerkingar 10 aðskilinna ummæla sem stefnda Erla hafi birt um stefnanda og haft eftir stefndu Ólöfu Ósk og eru þau talin í stafliðum a til j.
Að því er varðar ummæli í stafliðum a, b og d, þar sem haft er eftir stefndu Ólöfu Ósk að stefnandi hafi tekið þátt í kynlífsathöfnum með henni og eiginmanni stefnanda, er til þess að líta að í dómi Héraðsdóms Suðurlands í máli ákæruvaldsins gegn eiginmanni stefnanda, Guðmundi Jónssyni, er að finna skýrar lýsingar stefndu og fleiri aðila á því að stefnandi hafi tekið þátt í slíkum athöfnum ásamt eiginmanni sínum og skjólstæðingum hans. Þetta fær einnig stoð í vitnisburði þriggja vitna sem komu fyrir dóm við aðalmeðferð málsins og staðfestu lögregluskýrslur sem teknar voru af þeim við rannsókn og/eða framburði fyrir dómi í tengslum við sakamálið sem er til umfjöllunar í ofangreindum dómi Héraðsdóms Suðurlands. Þó að ofangreindur dómur þar sem eiginmaður stefnanda var sakfelldur, hafi verið kveðinn upp eftir að viðtalið birtist í DV í ágúst 2007, er til þess að líta að rannsókn málsins var í gangi á þessum tíma og fram hefur komið að stefnandi hafði á þessum tíma stöðu sakbornings í málinu. Ekki verður því litið svo á að stefndu hafi brotið gegn tilvitnuðum ákvæðum almennra hegningarlaga með því að viðhafa og birta ummælin í stafliðum a, b og d.
Varðandi staflið c, þá kemur þar fram auk þess sama og í stafliðum a og b, að stefnandi hafi orðið afbrýðisöm og maður hennar þá ekki lengur viljað hafa hana með í kynlífsleikjum hans og stefndu Ólafar Óskar lengur.
Í stafliðum e og f er gefið í skyn að stefnandi hafi sýnt áhuga á að hitta stefndu Ólöfu Ósk eina og hafa kynferðisleg samskipti við hana í einrúmi. Ekki verður litið svo á að þessi ummæli, í framhaldi af því sem áður greindi um samskipti aðila, feli í sér slíka móðgun eða aðdróttun í garð stefnanda að fella megi undir 234. eða 235. gr. laga nr. 19/1940.
Ummælin í stafliðum g og h eru um að eiginmaður stefnanda hefði logið hana fulla og sagt að hann væri að skilja við hana. Þrátt fyrir að stefnandi og eiginmaður hennar séu ennþá gift og hafi ekki skilið, eins og fram kom í skýrslutöku af stefnanda við aðalmeðferð málsins, verður ekki séð að þessi ummæli feli í sér aðdróttun eða móðgun í garð stefnanda þannig að eigi undir 234. eða 235. gr. laga nr. 19/1940. Sama verður talið eiga við um ummæli í staflið j.
Þá standa eftir ummælin í staflið i: . „...þessi manneskja er kolrugluð. Ég get ekki séð að hún hafi nokkuð að bjóða sem stuðningsfulltrúi eða í hjálparstarfi yfirhöfuð. Ég veit ekki hvað hún er að gera í þessum skóla... ... ekki við hæfi að sú sem veiðir fyrir hann vinni í grunnskóla.“
Þessi ummæli eru nokkuð annars eðlis en hin, að því leyti að þarna er fjallað um atriði sem ekki er að finna sambærilega umfjöllun um í dómi Héraðsdóms Suðurlands í máli nr. S-15/2008. Þó að stefnandi hafi um tíma haft stöðu sakbornings í rannsókn þess máls, var hún ekki ákærð og þó að skilja megi af lestri dóms í því máli að stefnandi hafi tekið þátt í kynlífi með eiginmanni sínum og fleiri aðilum, verður ekki séð að það leiði af sjálfu sér að það feli í sér að hún sé kolrugluð eða hafi nauðsynlega áhrif á starfshæfni hennar. Þá er ljóst að ekki hefur verið sýnt fram á að hún hafi „veitt“ fyrir eiginmann sinn, en í því orðalagi er óneitanlega að finna aðdróttun um að stefnandi hafi tekið þátt í ólöglegum athöfnum, refsiverðu athæfi, að minnsta kosti að mati viðmælandans í viðtalinu eins og orð hans eru þar fram sett. Verður því að samþykkja kröfu stefnanda um ómerkingu ummæla í staflið i.
Í dómkröfu 2 er krafist ómerkingar ummæla í stafliðum k til n, sem stefndu Magnús og Erla hafi viðhaft og birt um stefnanda.
Að því er varðar ummælin í stafliðum k, l og m, er vísað til þess sem segir hér á undan í umfjöllun um stafliði a, b og d. og verður því ekki orðið við kröfu um ómerkingu þeirra.
Að því er varðar ummælin í staflið n, má segja að um þau eigi við að nokkru leyti það sama og að ofan greinir í umfjöllun um staflið i, en hins vegar er til þess að líta hér að stefndi Magnús er hér einungis að lýsa skoðun sinni og ekki er að finna í þessum ummælum aðdróttun um refsivert athæfi, eins og áður hefur komið fram varðandi staflið i. Verður því ekki talið að hér hafi verið gengið það langt með tjáningarfrelsi að eigi undir áðurnefnd ákvæði í XXV. kafla laga nr. 19/1940 og er því heldur ekki unnt að verða við kröfu stefnanda um ómerkingu þessara ummæla.
Að því er varðar kröfu stefnanda um refsingu stefndu samkvæmt ákvæðum 234., 235. og 236. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, verður í ljósi ofangreindrar niðurstöðu að sýkna stefnda Magnús af refsikröfu, en auk þess þykir rétt að sýkna aðra stefndu af refsikröfu, meðal annars með vísan til þess að reifun stefnanda á refsikröfunni er mjög almenns eðlis; einstök ummæli eru ekki tengd við tiltekin ákvæði laganna og ekki er fjallað um þátt hvers og eins hinna stefndu og hvernig þau og meint ummæli þeirra tengist einstökum ákvæðum.
Stefnandi krefst miskabóta úr hendi stefndu á grundvelli b-liðar 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993. Í ljósi þess að engin þeirra ummæla sem krafist var ómerkingar á og rakin eru til stefnda Magnúsar, verða dæmd dauð og ómerk, verður að sýkna hann af þessum kröfum stefnanda einnig. Hins vegar verður ekki hjá því komist að skoða hvaða rétt stefnandi á til miskabóta úr hendi stefndu Ólafar Óskar og Erlu, vegna ummæla í staflið i, en eins og að framan er rakið verða þau dæmd dauð og ómerk. Líta verður svo á að stefnda Erla beri sem blaðamaður og nafngreindur höfundur greinar þeirrar, sem hin umstefndu ummæli birtust í, ábyrgð á ummælunum. Þau ummæli sem birtust í staflið i, birtust innan gæsalappa í greininni og eru þar sögð höfð eftir stefndu Ólöfu Ósk. Við skýrslutöku af stefndu Erlu við aðalmeðferð málsins kom fram að hún hefði hljóðritað samtal sitt við stefndu Ólöfu Ósk og haft beint eftir henni, en hins vegar hefði hún ekki geymt hljóðritaða samtalið. Stefnda Ólöf Ósk kannaðist aðspurð í aðalmeðferð við að hafa átt samtal við stefndu Erlu og vitað að hún væri blaðamaður og væri að undirbúa grein um Byrgismálið, en hún neitaði því hins vegar fyrir dómi að hafa sagt orðrétt það sem eftir henni var haft, þar á meðal þau ummæli sem rakin eru í staflið i. Ekki verður talið nægilega sannað, gegn neitun stefndu Ólafar Óskar, að hún hafi viðhaft ummælin orðrétt, þannig að dæma megi hana til greiðslu miskabóta vegna þeirra. Er það því niðurstaða málsins varðandi miskabótakröfu stefnanda, að stefnda Erla verður ein dæmd til að greiða stefnanda miskabætur. Með hliðsjón af því að lítið hefur komið fram um raunverulegt tjón stefnanda vegna ummælanna, en sú hætta fyrir orðspor, æru og starfsheiður stefnanda sem ummælin geta hafa haft í för með sér getur varla hafa verið veruleg, umfram það sem hlýtur að hafa verið afleiðing af áðurnefndu dómsmáli og þeim atburðum sem þar er fjallað um, þykja miskabætur hæfilega ákveðnar 100.000 krónur, með dráttarvöxtum eins og segir í dómsorði.
Stefnandi krefst þess að stefndu verði dæmd til að greiða henni 800.000 krónur til að kosta birtingu dóms í málinu í dagblöðum. Engin gögn eru lögð fram til stuðnings kröfunni og hafa stefndu mótmælt fjárhæð hennar sem of hárri, auk þess sem þau krefjast aðallega sýknu af henni. Með hliðsjón af því að einungis lítill hluti þeirra ummæla sem krafist er ómerkingar á verða nú dæmd dauð og ómerk og í ljósi þess að dómar héraðsdóms eru birtir opinberlega, þykir ekki ástæða til að verða við þessari kröfu stefnanda. Verða stefndu því sýknuð af henni.
Eins og atvikum máls þessa er háttað og með vísan til 3. mgr. 130. gr. laga nr. 91/1991, þykir rétt að málskostnaður falli niður á milli stefnanda Helgu Haraldsdóttur og stefndu Erlu Hlynsdóttur, en stefnandi greiði stefndu Ólöfu Ósk og Magnúsi helming málskostnaðar þeirra. Stefndu Ólöf Ósk og Magnús fengu gjafsóknarleyfi vegna málsins 2. júlí 2008 og greiðist því kostnaður þeirra af málinu úr ríkissjóði og telst hann hæfilega ákveðinn 600.000, vegna hvors þeirra um sig og hefur þá verið tekið tillit til virðisaukaskatts. Við ákvörðun máls kostnaðarfjárhæðar er meðal annars tekið mið af því að vörn stefndu Magnúsar og Ólafar Óskar var til að byrja með sameiginleg og einnig er haft í huga að af hálfu stefndu var í málinu höfð uppi frávísunarkrafa, sem var hafnað.
Dóminn kveður upp Anna M. Karlsdóttir, settur héraðsdómari.
Dómsorð:
Eftirfarandi ummæli, sem birtust í 134. tölublaði DV árið 2007, eru dæmd dauð og ómerk: „ ...þessi manneskja er kolrugluð. Ég get ekki séð að hún hafi nokkuð að bjóða sem stuðningsfulltrúi eða í hjálparstarfi yfirhöfuð. Ég veit ekki hvað hún er að gera í þessum skóla ... ... ekki við hæfi að sú sem veiðir fyrir hann vinni í grunnskóla.“
Stefndu, Ólöf Ósk Erlendsdóttir, Magnús Einarsson og Erla Hlynsdóttir, eru sýknuð af refsikröfu stefnanda.
Stefndu Ólöf Ósk Erlendsdóttir og Magnús Einarsson eru sýknuð af miskabótakröfu stefnanda.
Stefnda Erla Hlynsdóttir, greiði stefnanda, Helgu Haraldsdóttur 100.000 krónur með vöxtum samkvæmt 8. gr. laga nr. 38/2001, frá 31. ágúst 2007 til 28. mars 2008, en með dráttarvöxtum frá þeim degi til greiðsludags, sbr. 9. gr. laga nr. 38/2001.
Stefndu eru öll sýknuð af kröfu um greiðslu fjárhæðar til að kosta birtingu dóms.
Stefnandi, Helga Haraldsdóttir, greiði stefndu Ólöfu Ósk Erlendsdóttur og Magnúsi Einarssyni, 300.000 krónur hvoru um sig í málskostnað, þ.m.t. virðisaukaskatt, sem rennur í ríkissjóð. Gjafsóknarkostnaður stefndu Ólafar Óskar og Magnúsar, 600.000 krónur til hvors um sig, þ.m.t. virðisaukaskattur, greiðist úr ríkissjóði. Máls kostnaður milli stefnanda og stefndu Erlu Hlynsdóttur fellur niður.
Anna M. Karlsdóttir