Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 18. janúar 2007.
Lykilorð
Útdráttur
Ákærði sakfelldur fyrir að framvísa fölsuðu vegabréfi í lögskiptum á Íslandi. Refsing 30 daga fangelsi.
Mál þetta, sem dómtekið var í dag, er höfðað með ákæru útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 15. janúar 2007 á hendur Dan Sava, f. 14. mars 1969, fyrir skjalafals og brot á lögum um útlendinga, með því að hafa haft í vörslum sínum falsað ítalskt vegabréf, með nafni Daniele Morati, og framvísað því í blekkingarskyni í lögskiptum sínum hér á landi, sem hér greinir:
- Þann 29. ágúst 2006 hjá Hagstofu Íslands, Borgartúni 24, Reykjavík, og þannig fengið skráða íslenska kennitölu á nafni Daniele Morati.
- Þann 13. október 2006 hjá Landsbanka Íslands, Laugavegi 77, Reykjavík og þannig stofnað bankareikning á nafn Daniele Morati.
Þetta er talið varða við h-lið 2. mgr. 57. gr. laga um útlendinga nr. 96/2002, sbr. c. lið 16. gr. laga nr. 20/2004 og 1. mgr. 155. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og sæti upptöku á hinu falsaða vegabréfi sem hald var lagt á samkvæmt 2. tl. 1. mgr. 69. gr. laga nr. 19/1940.
Verjandi ákærða krefst vægustu refsingar er lög leyfa og hæfilegrar þóknunar sér til handa.
Farið var með mál þetta samkvæmt 125. gr. laga nr. 19/1991 og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.
Ákærði hefur skýlaust játað brot sitt. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.
Ákærði er fæddur í mars 1969. Ekki liggja fyrir upplýsingar um sakaferil hans. Með vísan til skýrra og afdráttalausra dómafordæma Hæstaréttar Íslands í hliðstæðum málum, m.a. dóm réttarins í máli nr. 86/2006, sem upp var kveðinn 4. maí 2006, er refsing ákærða ákveðin fangelsi í 30 daga, sem ekki þykir unnt að skilorðsbinda.
Með vísan til lagaákvæða í ákæru skal upptækt gert vegabréf, er lögregla lagði hald á við rannsókn málsins.
Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Bjarna Haukssonar héraðs dómslögmanns, svo sem nánar greinir í dómsorði. Hefur þá verið tekið tillit til virðisaukaskatts.
D ó m s o r ð :
Ákærði, Dan Sava, sæti fangelsi í 30 daga.
Upptækt er gert til ríkissjóðs vegabréf, sem lagt var hald á við rannsókn málsins.
Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Bjarna Haukssonar héraðsdómslögmanns, 64.740 krónur.
Símon Sigvaldason.