Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 27. nóvember 2007.
Mál nr. S-736/2007:
S-736/2007:
Ákæruvaldið
(Karl Ingi Vilbergsson fulltrúi)
gegn
Hans Ögmundi Stephensen
Mál
þetta, sem dómtekið var 12. nóvember sl., er höfðað með ákæru útgefinni af
ríkissaksóknara 14. maí 2007 á hendur Hans Ögmundi Stephensen, kt. […],
Tröllavegi 1, Neskaupstað, fyrir stórfellda líkamsárás með því að hafa, að
morgni laugardagsins 18. febrúar 2006, á horni Pósthússtrætis og Austurstrætis,
slegið Joaquim António Branco Pica, kt. […], nokkur hnefahögg í andlit með þeim
afleiðingum að hann nefbrotnaði, hlaut glóðarauga og sár undir vinstra auga og
brot í vinstri augnbotn, sem leiddi til langvarandi sjónskerðingar og
varanlegrar tvísýni á vinstra auga.
Þetta er talið varða við
2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. lög nr. 20/1981 og
lög nr. 82/1998.
Þess er krafist að ákærði
verði dæmdur til refsingar.
Verjandi ákærða krefst
þess að ákærði verði sýknaður af kröfum ákæruvalds og að sakarkostnaður, þ.m.t.
málsvarnarlaun, verði greiddur úr ríkissjóði.
Samkvæmt skýrslu
lögreglunnar í Reykjavík frá kl. 07.12 aðfaranótt laugardagsins 18. febrúar
2006 fékk lögregla á þeim tíma boð um að fara að mótum Pósthússtrætis og
Austurstrætis í Reykjavík þar sem maður hafi verið kýldur niður. Er
lögreglumenn hafi komið á staðinn hafi maður legið í blóði sínum á tröppum við
veitingastaðinn Apótekið. Á móti lögreglu hafi komið maður að nafni Hans
að hann hafi lamið viðkomandi einstakling. Hafi ákærði lýst yfir að hann
viðurkenndi að hafa slegið manninn og að hann vissi engin deili á honum.
Manninn hafi ákærði slegið fjórum sinnum í andlitið. Ákærði hafi sagt að hann
hafi verið að spjalla við manninn á veitingastað. Hafi þeir gengið út og haldið
áfram að ræða saman. Er þeir hafi verið staddir á mótum Pósthússtrætis og
Austurstrætis hafi Joaquim farið að æsa sig. Samkvæmt lögregluskýrslu kom í ljós
að hinn slasaði héti Joaquim António Branco Pica. Í frumskýrslu kemur fram að
með ákærða og Joaquim hafi verið kona að nafni Rósa Sigurðardóttir. Ákærði hafi
verið blóðugur í framan og sennilega bólginn á nefi. Þá hafi hann verið
Lykilorð
Útdráttur
Ákærði sakfelldur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás. Refsing 8 mánaða fangelsi.
Mál þetta, sem dómtekið var 12. nóvember sl., er höfðað með ákæru útgefinni af ríkissaksóknara 14. maí 2007 á hendur Hans Ögmundi Stephensen, kt. […], Tröllavegi 1, Neskaupstað, fyrir stórfellda líkamsárás með því að hafa, að morgni laugardagsins 18. febrúar 2006, á horni Pósthússtrætis og Austurstrætis, slegið Joaquim António Branco Pica, kt. […], nokkur hnefahögg í andlit með þeim afleiðingum að hann nefbrotnaði, hlaut glóðarauga og sár undir vinstra auga og brot í vinstri augnbotn, sem leiddi til langvarandi sjónskerðingar og varanlegrar tvísýni á vinstra auga.
Þetta er talið varða við 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. lög nr. 20/1981 og lög nr. 82/1998.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.
Verjandi ákærða krefst þess að ákærði verði sýknaður af kröfum ákæruvalds og að sakarkostnaður, þ.m.t. málsvarnarlaun, verði greiddur úr ríkissjóði.
Samkvæmt skýrslu lögreglunnar í Reykjavík frá kl. 07.12 aðfaranótt laugardagsins 18. febrúar 2006 fékk lögregla á þeim tíma boð um að fara að mótum Pósthússtrætis og Austurstrætis í Reykjavík þar sem maður hafi verið kýldur niður. Er lögreglumenn hafi komið á staðinn hafi maður legið í blóði sínum á tröppum við veitingastaðinn Apótekið. Á móti lögreglu hafi komið maður að nafni Hans Ögmundur Stephensen, ákærði í máli þessu. Formálalaust hafi ákærði sagt við lög reglumenn að hann hafi lamið viðkomandi einstakling. Hafi ákærði lýst yfir að hann viðurkenndi að hafa slegið manninn og að hann vissi engin deili á honum. Manninn hafi ákærði slegið fjórum sinnum í andlitið. Ákærði hafi sagt að hann hafi verið að spjalla við manninn á veitingastað. Hafi þeir gengið út og haldið áfram að ræða saman. Er þeir hafi verið staddir á mótum Pósthússtrætis og Austurstrætis hafi Joaquim farið að æsa sig. Samkvæmt lögregluskýrslu kom í ljós að hinn slasaði héti Joaquim António Branco Pica. Í frumskýrslu kemur fram að með ákærða og Joaquim hafi verið kona að nafni Rósa Sigurðardóttir. Ákærði hafi verið blóðugur í framan og sennilega bólginn á nefi. Þá hafi hann verið blóðugur á báðum höndum. Hann hafi greinilega verið undir áhrifum áfengis. Ákærði hafi lýst atburðum svo að er hann hafi verið að ræða við Joaquim hafi Joaquim farið að æsa sig. Síðan hafi hann tekið út úr sér falskar tennur og sett þær í vasa sinn. Í framhaldi hafi Joaquim lamið ákærða eitt hnefahögg og höggið komið í andlit ákærða á nefið. Blætt hafi úr. Hafi ákærða grunað að hann væri nefbrotinn, en mikið hafi blætt úr nefinu. Við það hafi ákærði orðið reiður og lamið Joaquim fjórum sinnum í andlitið. Er ákærði hafi lamið Joaquim hafi Joaquim fallið í götuna. Í framhaldi hafi ákærði hringt í lögreglu. Í því hafi vinur Joaquim komið að og reynt að koma í veg fyrir að ákærði hringdi í lögreglu. Fram kemur að ákærða hafi verið ekið á slysadeild. Rósa Sigurðardóttir hafi lýst því yfir að hún hafi verið vitni að líkamsárásinni. Rósa hafi greinilega verið undir áhrifum áfengis og hafi ekki reynst unnt að fá upplýsingar frá henni. Reynt hafi verið að ræða við Joaquim. Það hafi ekki gengið þar sem Joaquim hafi ,,ruglað eitthvað”. Sjúkraflutningamenn hafi sagt að Joaquim væri með mikið bólgið vinstra auga og skurð fyrir neðan augað. Einnig hafi hann verð bólginn á nefi. Joaquim hafi verið ekið á slysadeild.
Föstudaginn 17. mars 2006 mætti Joaquim António Branco Pica á lögreglustöð og lagði fram kæru á hendur ákærða fyrir líkamsárás. Við það tilefni greindi hann svo frá atvikum að hann hafi verið á ferð í miðbæ Reykjavíkur að morgni laugardagsins 18. febrúar 2006. Hafi Joaquim ekki verið undir áhrifum áfengis. Hann hafi verið að koma frá vini sínum og leið legið heim til Joaquim þar sem hann hafi ætlað að skipta um föt þar sem hann væri að fara til vinnu. Í miðbænum hafi Joaquim hitt par þar sem a.m.k. karlmaðurinn hafi verið frá Portúgal. Hafi Joaquim verið að ræða við fólkið og þau öll gengið saman um 100 metra í átt að Pósthússtræti. Er þangað kom hafi ákærði komið að þeim. Ákærði hafi sennilega verið undir áhrifum áfengis, en hann hafi haldið á bjórglasi og gert sig líklegan til að slá Joaquim. Engin tjáskipti, hvorki munnleg eða öðruvísi, hafi farið fram á milli Joaquim og ákærða, sem hann hafi ekki þekkt. Kvaðst Joaquim hafa ýtt ákærða frá sér með báðum höndum og sparkað til hans. Hafi spark Joaquim líklega komið í hægri hendi ákærða en með þeirri hendi hafi ákærði haldið á bjórglasinu. Hafi Joaquim ætlað að ganga burt frá þessu en þá hafi ákærði hrint Joaquim inn á pall við inngang að veitingastaðnum Apótekinu. Hafi Joaquim fallið á bakið. Þar hafi ákærði kýlt Joaquim nokkrum sinnum í andlitið og hugsanlega sparkað í hann. Kvaðst Joaquim hafa ,,dottið út” og kvaðst hann ekki minnast þess að hafa náð að svara fyrir sig nema í upphafi er hann hafi ýtt ákærða frá sér. Hafi Joaquim legið á vettvangi þar til lögregla og sjúkraflutningamenn hafi komið á staðinn. Í framhaldi hafi Joaquim farið með sjúkrabifreið á slysadeild. Teknar hafi verið röntgenmyndir af Joaquim og sári undir vinstra auga verið lokað með saumi. Við endurkomu á slysadeild hafi Joaquim verið lagður inn en kinnbein undir vinstra auga hafi verið styrkt. Einar Thoroddsen sérfræðingur á háls-, nef- og eyrnalækningadeild Land spítala háskólasjúkrahúss hefur 18. apríl 2006 ritað læknisvottorð vegna Joaquim. Í vottorðinu kemur fram að Joaquim hafi fengið högg í andlitið 18. febrúar 2006 og þar af leiðandi stórt glóðarauga vinstra megin og stuttan grunnan skurð undir auganu, auk nefbrots með innkýlingu vinstra megin á nefi. Röntgenmynd sem tekin hafi verið 24. febrúar 2006 hafi sýnt talsvert stórt ,,blowout” brot á vinstri augnbotni. Ákveðið hafi verið að gera aðgerð þar sem smeygt hafi verið skífu undir augnbotninn þar sem Joaquim hafi haft tvísýni. Í aðgerðinni hafi skífu verið smeygt undir augnfituna og augnbotninum þannig lyft. Ekki hafi verið öruggt að skífan myndi halda og því hafi aðgerðin verið endurtekin viku síðar þar sem stærri skífa hafi verið sett. Við saumatöku hafi Joaquim verið með dálítinn bjúg um neðra augnlok, sem ekki hafi verið undarlegt vegna skurðarins sem hafi þurft að gera í aðgerðunum.
Ófeigur T. Þorgeirsson sérfræðingur í lyf- og heimilislækningum á Landspítala háskólasjúkrahúsi hefur 12. desember 2006 ritað læknisvottorð vegna komu Joaquim á slysadeild að morgni laugardagsins 18. febrúar 2006. Í vottorðinu kemur m.a. fram að við skoðun hafi Joaquim verið með stórt glóðarauga á vinstra auga. Um 1 ½ til 2ja cm langt sár ekki mjög djúpt hafi verið undir auga. Nef hafi verið bólgið en ekki merki um önnur sár. Nokkrum dögum síðar hafi Joaquim komið á göngudeild háls-, nef- og eyrnalækninga. Hafi Joaquim þá verið kominn með sjóntruflanir og tvísýni. Tekin hafi verið sérstök mynd af andlitsbeinum sem sýndi allstórt brot á beinum augnhvelfingar vinstra megin og merki um að einn af ytri hreyfivöðvum augans hafi gengið niður í gegnum brotið. Þann 24. febrúar hafi verið gerð aðgerð á því þar sem þetta hafi verið lagað. Þá aðgerð hafi þurft að endurtaka.
Óskar Jónsson augnlæknir hefur 17. janúar 2007 ritað áverkavottorð vegna Joaquim. Í vottorðinu kemur fram að Joaquim sé almennt hraustur karlmaður sem hafi ekki átt við nein augnvandamál að stríða. Hann hafi orðið fyrir líkamsárás 18. febrúar 2006 og hlotið við það ,,blow out” brot á vinstri augntóft og brot í medial vegg vinstri augntóftar. Hafi honum verið sinnt af háls-, nef- og eyrnalæknum Landspítala háskólasjúkrahúss. Óskar hafi séð Joaquim fyrst 24. febrúar 2006. Hafi hann þá kvartað undan lélegri sjón á vinstra auga auk tvísýni. Hafi hann verið með minnkað skyn á neðra vinstra augnloki og vinstra auga innfallið. Við skoðun á augnhreyfingum hafi ,,elevation” á vinstra auga verið minnkuð en augnhreyfingar að öðru leyti eðlilegar. Á vinstra auga hafi verið blæðing undir slímhimnu og sjónhimnu. Joaquim hafi gengist undir tvær augntóftaðgerðir á háls-, nef- og eyrnalækningadeild. Við læknisskoðun sem gerð hafi verið á Joaquim 22. nóvember 2006 hafi komið fram að Joaquim væri stundum aumur undir vinstra auga. Í vottorðinu er tekið fram að vinstra auga Joaquim sé innfallið um 4 mm. Munur á hreyfingu augnloka hafi ekki sést. Hann hafi verið með skerta ,,elevation” á vinstra auga og tvísýni er hann horfi upp á við. Án glerja hafi hann neitað tvísýni þegar augu hafi verið í réttstöðu en með glerjum hafi hann 1 PD ,,vertical” tvísýni í réttstöðu. Líklegt sé að ástand Joaquim sé orðið stöðugt og mjög litlar líkur á því að sjón á vinstra auga eigi eftir að hraka í framtíðinni vegna áverkans.
Einar Hjaltason læknir á slysadeild Landspítala háskólasjúkrahúss hefur í september 2006 ritað læknisvottorð vegna komu ákærða á slysadeild að morgni laugardagsins 18. febrúar 2006. Í lýsingu á slysi er fært í vottorðið að ákærði hafi skýrt frá því að hann hafi verið í miðbæ Reykjavíkur þar sem hann hafi séð Portúgala á ferð með dauðadrukkinni konu. Hafi hann talið rétt að hann skærist í leikinn og bjargaði konunni frá Portúgalanum. Við það hafi upphafist slagsmál og hafi ákærði verið sleginn í andlitið. Hafi hann slegið á móti í andlitið á Portúgalanum. Í vottorðinu kemur fram að ákærði hafi verið aðeins drukkinn. Hafi hann verið blóðugur á höndum. Svolítið blóð hafi verið í andliti og storkið blóð í vinstri nös. Nef virðist beint, en aðeins þrútið. Ekki hafi verið eymsli yfir beinum. Hafi ákærði verið með eymsli og bólgu í hægri hendi.
Ákærði kvaðst hafa verið einn á göngu í Pósthússtræti umrædda nótt þegar hann hafi veitt því athygli að tveir menn hafi verið að draga á eftir sér stúlku. Hafi ákærða fundist þetta óeðlilegt, kallað til stúlkunnar og spurt hvort ekki væri allt í lagi. Stúlkan hafi hlaupið í fangið á ákærða og þakkað honum fyrir. Þá hafi fokið í báða mennina sem hafi verið í för með stúlkunni. Kvaðst ákærði hafa bakkað og fyllilega gefið til kynna að hann vildi ekki slagsmál. Annar mannanna hafi hins vegar hlaupið fram, tekið út úr sér falskar tennur og gert sig líklegan til að ráðast á ákærða. Því næst hafi maðurinn slegið ákærða eitt hnefahögg og höggið komið í andlit ákærða neðan við annað augað. Þá hafi farið af stað ,,kýtingar” á milli þeirra. Kvaðst ákærði hafa fyllst hræðslu um hvað myndi gerast næst enda hafi virst sem árásarmaðurinn væri vanur átökum og hugsanlega vopnaður. Ákærði kvaðst ósjálfrátt hafa slegið árásarmanninn fjögur högg með krepptum hnefa. Hafi höggin komið í andlit árásarmannsins. Höggin hafi ákærði slegið í sjálfsvörn. Hafi ákærði ,,panikerað”. Kvaðst hann aðspurður eftir á að hyggja ef til vill hafa fengið of langt, en hann hafi verið hræddur. Árásarmaðurinn hafi náð að slá ákærða nokkrum sinnum til viðbótar en ekki vissi ákærði hvar þau högg hafi lent í líkamanum. Sá maður sem verið hafi með árásarmanninum hafi blandað sér í átökin með því að hlaupa ógnandi að ákærða. Hafi ákærði náð að snúa manninn niður án frekari átaka. Þegar ráðist hafi verið á ákærða hafi hann haldið á gsm síma sínum. Hafi hann fyrst náð að hringja í lögreglu eftir að átökum hafi lokið. Eftir að lögregla hafi verið komin á svæðið og ekið hafi verið með ákærða og árásarmanninn á slysadeild hafi ákærði sagt lögreglumönnum þeim er ekið hafi ákærða þangað að árásarmaðurinn hafi tekið út úr sér falskar tennur í átökunum. Hafi lögreglumennirnir sagt ákærða að tennur hafi fundist í vasa árásarmannsins á slysadeild. Ákærði kvaðst hafa verið undir áhrifum áfengis þessa nótt. Það hafi þó ekki verið neitt að ráði. Ekki hafi verið margt fólk á ferli í miðbæ Reykjavíkur þessa nótt. Ekki kvaðst ákærði hafa séð að Joaquim hafi verið undir áhrifum áfengis. Kona sem komið hafi að hafi hins vegar verið mjög ölvuð.
Rósa Sigríður Sigurðardóttir kvaðst hafa verið á göngu í Austurstræti umrædda nótt ásamt vinkonu sinni en Rósa hafi veri að skemmta sér. Hafi maður af erlendu bergi brotinn slegist í för með þeim. Er þau þrjú hafi verið komin að inngangi veitingastaðarins Apótekið á horni Austurstrætis og Pósthússtrætis hafi einhver ,,vitleysingur” komið að og farið að uppnefna manninn sem hafi verið með þeim í för. Hafi henni virst mennirnir ekki þekkjast neitt. Ákærði hafi síðan farið að stugga við manninum sem hafi verið með henni í för. Hafi ákærði m.a. togað í peysu hans. Því næst hafi ákærði slegið manninn hnefahögg í andlitið algerlega að tilefnislausu. Maðurinn hafi fallið í götuna við höggið. Eftir það hafi ákærði slegið manninn aftur hnefahögg í andlitið og hafi höggin í allt verið að minnsta kosti þrjú. Blætt hafi úr nefi mannsins og hann verið alblóðugur. Eftir að fólk hafi streymt að hafi ákærði hætt árásinni. Sjúkraflutningamenn og lögregla hafi komið að stuttu síðar. Rósa kvað ákærða á engum tíma hafa þurft að verja sig gegn árás mannsins og að um enga sjálfsvörn af hans hálfu hafi verið að ræða. Hafi maðurinn ekki slegið ákærða. Rósa kvaðst ekki hafa tekið eftir bjórglasi í hendi ákærða fyrir árásina. Rósa kvað vinkonu sína sem verið hafi með henni í för nú búsetta erlendis. Rósa kvaðst muna þessa atburði mjög vel. Hún hafi verið undir áhrifum áfengis en ekki verið ofurölvi.
Óskar Jónsson augnlæknir staðfesti áverkavottorð sitt frá 17. janúar 2007 og gerði grein fyrir einstökum atriðum í vottorðinu. Kvaðst Óskar hafa sinnt máli Joaquim sem augnlæknir á vakt er Joaquim hafi komið á slysadeild að morgni 18. febrúar 2006. Joaquim hafi síðar farið í aðgerðir, en þær hafi verið framkvæmdar af læknum á háls-, nef- og eyrnalækningadeild. Óskar kvaðst síðar hafa skoðað Joaquim. Hafi verið greinanlegt að vinstra augnlok hafi opnast hægar eftir þá áverka er Joaquim hafi fengið. Þá hafi Joaquim verið með tvísýni er hann hafi litið upp. Tvísýnin hafi verð mæld. Einnig hafi vinstra auga Joaquim verið innfallið um 4 mm. Innfallið augað hafi verið hluti af tvísýnisvanda Joaquim. Bæði tvísýnin og innfallið augað hafi verið afleiðingar af höggi er Joaquim hafi fengið í miðbæ Reykjavíkur. Innfallið auga væri dæmigerðar afleiðingar af höggi sem kæmi beint á augað. Bæði tvísýni og innfallið auga væri varanleg sjónskerðing. Gæti sá skaði virkilega háð viðkomandi einstaklingi. Tvísýni hefði áhrif á gæði sjónar og gæti valdið erfiðleikum bæði í leik og starfi. Tvísýni væri hins vegar unnt að leiðrétta með gleraugum.
Sigfús Rúnar Eiríksson, sem ritað hefur frumskýrslu lögreglu, staðfesti þátt sinn í rannsókn málsins.
Niðurstaða:
Ákærði hefur viðurkennt að hafa slegið Joaquim Pica fjögur hnefahögg í andlitið að morgni laugardagsins 18. febrúar 2006 á horni Pósthússtrætis og Austurstrætis í Reykjavík. Um aðdraganda þess hefur ákærði reyndar orðið tvísaga að því leyti að samkvæmt frumskýrslu lögreglu hefur hann sagt við lögreglumenn að hann hafi orðið reiður við Joaquim eftir að Joaquim hafi lamið ákærða í andlitið. Þess vegna hafi ákærði lamið Joaquim. Fyrir dómi bar ákærði við sjálfsvörn, að hann hafi orðið hræddur við Joaquim, ,,panikerað” og lamið hann eftir að Joaquim hafi að fyrra bragði lamið ákærða í andlitið. Ákærði viðurkenndi fyrir dómi, að eftir á að hyggja, hafi hann ef til vill gengið of langt í atlögu sinni gagnvart Joaquim.
Joaquim Pica gaf skýrslu hjá lögreglu er hann lagði fram kæru í málinu. Sækjandi upplýsti að Joaquim, sem er frá Portúgal, hafi hins vegar farið af landi brott fyrir einhverju síðan og væri ekki vitað um verustað hans í útlöndum. Af þessum ástæðum kom Joaquim ekki fyrir dóminn til skýrslugjafar við aðalmeðferð málsins. Þar sem svo háttar til sem hér hefur verið rakið verður við mat á niðurstöðu málsins litið til framburðar Joaquim hjá lögreglu, sbr. 3. mgr. 48. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.
Verulega ber í milli í frásögn ákærða og Joaquim um upphaf átaka þeirra á milli. Þá er ekki fullkomið innbyrðis samræmi í framburðum Joaquim og Rósu Sigurðardóttur um einstök atriði í aðdragandanum. Af framburðum þeirra verður þó ráðið að þau eru sammála um að þau hafi verið saman á ferð um Austurstræti allt þar til þau hafi komið að gatnamótum Austurstrætis og Pósthússtrætis við inngang að veitingastaðnum Apótekinu. Joaquim ber að ákærði hafi komið að með glas í hendi og farið að áreita Joaquim. Joaquim hafi þá ýtt ákærða frá sér og sparkað til hans þannig að sparkið hafi komið í hendi ákærða. Í framhaldi hafi ákærði ráðist að sér og slegið sig ítrekað hnefahögg í andlitið. Rósa kvaðst ekki hafa séð ákærða með bjórglas í hendi, né Joaquim ýta honum frá sér eða sparka í hendi ákærða. Hún kveður ákærða hafa verið að angra Joaquim og toga í peysu hans. Síðan hafi hann skyndilega ráðist að Joaquim og slegið hann a.m.k. þrjú hnefahögg í andlitið. Rósa hefur viðurkennt að hafa verið undir áhrifum áfengis þessa nótt en kveðst þrátt fyrir það muna atburðina vel. Ákærði hefur sömuleiðis viðurkennt að hafa verið undir áhrifum áfengis.
Þegar litið er til samhljóða framburða Joaquim og Rósu Sigurðardóttur um að Joaquim hafi ekki gefið ákærða tilefni til að ráðast á sig er það niðurstaða dómsins að leggja framburði þeirra tveggja til grundvallar um þetta atriði. Verður því talið að ákærði hafi að fyrra bragði ráðist á Joaquim og veitt honum þá áverka sem í ákæru greinir, en ákærði hefur viðurkennt að hafa slegið Joaquim fjögur högg í andlitið. Joaquim hlaut ýmsa alvarlega áverka umrætt sinn, en hann m.a. nefbrotnaði og hlaut brot í vinstri augnbotni. Samkvæmt læknisvottorði og vætti Óskars Jónssonar augnlæknis leiddi atlaga ákærða til þess að vinstra auga Joaquim er varanlega innfallið um 4 mm og að hann hefur varanlega tvísýni á vinstra auga. Hefur Óskar lýst yfir að hér sé um varanlega sjónskerðingu að ræða sem virkilega geti valdið erfiðleikum bæði í leik og starfi. Í ljósi þess að Joaquim hefur hlotið varanlegan skaða á sjón, en augu eru eitt viðkvæmasta og á sama tíma mikilvægasta skynfæri líkamans, verður talið að hér sé um stórfellt líkams- og heilsutjón að ræða. Verður ákærði því sakfelldur samkvæmt ákæru og er háttsemin þar rétt heimfærð til refsiákvæða.
Ákærði er fæddur í september 1974. Hefur hann ekki áður sætt refsingu svo kunnugt sé. Árás ákærða á Joaquim var með öllu tilefnislaus. Var hún fyrirvaralaus og harkaleg. Leiddi hún til varanlegs sjónskaða fyrir Joaquim. Varð Joaquim að gangast undir endurteknar aðgerðir til að lagfæra tvísýnina og innfallið augað, sem þrátt fyrir það hefur ekki bætt skaða Joaquim að fullu. Á ákærði sér engar málsbætur. Er refsing hans ákveðin fangelsi í 8 mánuði. Verður refsingin ekki bundin skilorði. Er um refsimat m.a. litið til refsimats Hæstaréttar Íslands í máli nr. 342/2007, en í því tilviki var um hættulegri aðferð að ræða en í því máli sem hér er til meðferðar en ekki nærri eins alvarlegir áverkar.
Ákærði greiði sakarkostnað samkvæmt yfirliti lögreglustjóra. Þá greiði hann málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, að viðbættum virðisaukaskatti, með þeim hætti er í dómsorði greinir.
Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Karl I. Vilbergsson fulltrúi lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu.
D ó m s o r ð:
Ákærði, Hans Ögmundur Stephensen, sæti fangelsi í 8 mánuði.
Ákærði greiði 219.868 krónur í sakarkostnað, þ.m.t. málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns Guðmundar Ómars Hafsteinssonar héraðsdómslögmanns 207.168 krónur.
Símon Sigvaldason.