Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 21. maí 2007.
Mál nr. S-463/2007:
D Ó M U R
Ákæruvaldið
(Guðjón Magnússon fulltrúi)
gegn
Kári Kristjánssyni
Lykilorð
Útdráttur
Ákærði sakfelldur fyrir að hafa dregið sér 5.284 krónur. Refsing 40.000 króna sekt.
Mál þetta, sem dómtekið var í dag, er höfðað með ákæru útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 27. mars 2007 á hendur Kára Kristjánssyni, kt. [...], Hlíðartúni 8, Hornafjarðarbæ, fyrir fjárdrátt með því að hafa í starfi sem verslunarmaður í verslun 10/11 hf., Barónsstíg 2-4, Reykjavík, á tímabilinu frá 4. til 23. nóvember 2004 dregið sér alls 5.284 krónur með 15 fjártökum úr afgreiðslukössum verslunarinnar.
Þetta er talið varða við 247. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.
Í málinu er af hálfu 10/11 hf. krafist skaðabóta að fjárhæð 8.078 krónur ásamt vöxtum samkvæmt 8. gr. vaxtalaga nr. 38/2001 frá 23. nóvember en síðan dráttarvöxtum samkvæmt 9. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.
Ákærði sótti ekki þing og boðaði ekki forföll en í fyrirkalli, sem var gefið út 25. apríl sl. og löglega birt fyrir honum, var tekið fram að yrði ekki sótt þing að forfallalausu gæti hann búist við að dómur yrði lagður á málið að honum fjarstöddum sbr. 1. mgr. 126. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.
Dómurinn telur þannig sannað með vísan til ofanritaðs og gagna málsins að öðru leyti, að ákærði hafi framið þá háttsemi sem ákært er út af og er brot ákærða rétt heimfært til refsiákvæða í ákærunni Ákærði er fæddur í nóvember 1977. Hann gekkst undir sátt á árinu 2000 fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni. Hann var dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi 2001 fyrir þjófnað. Hann var 28. júní 2002 dæmdur í 45 daga skilorðsbundið fangelsi til tveggja ára fyrir þjófnað. Loks var hann 20. ágúst 2004 dæmdur fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni. Með hliðsjón af sakarefni málsins er refsing ákærða hæfilega ákveðin 40.000 króna sekt í ríkissjóð sem greiða skal innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dómsins að telja en ella skal ákærði sæta fangelsi í 4 daga. Skaðabótakröfu 10/11 hf. er vísað frá dómi, en um hana verður ekki dæmt í útivistarmáli sem þessu.
Sakarkostnað hefur ekki leitt af málinu.
D ó m s o r ð:
Ákærði, Kári Kristjánsson, greiði 40.000 króna sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dóms þessa að telja, en sæti ella fangelsi í 4 daga.
Skaðabótakröfu 10/11 hf. er vísað frá dómi.
Símon Sigvaldason.