Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-302/2007:

Ákæruvaldið

(Jóhann Svanur Hauksson fulltrúi)

gegn

Eyjólfi Konráði Elíassyni

Hylming.

Karlmaður dæmdur í 30 daga fangelsi, skilorðsbundið 2 ár, fyrir kaup á stolinni tölvu.

Ár 2007, föstudaginn 30. mars, er dómþing Héraðsdóms Reykjavíkur háð í Dóm húsinu við Lækjartorg af Jónasi Jóhannssyni héraðsdómara og dómur kveðinn upp í máli nr. S-302/2007: Ákæruvaldið gegn Eyjólfi Konráði Elíassyni, sem dómtekið var samdægurs á grundvelli 125. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu höfðaði málið með ákæru útgefinni 6. mars 2007 á hendur ákærða, Eyjólfi Konráði Elíassyni, kt. 120977-5129, Hraunbæ 107, Reykjavík, til refsingar fyrir hlymingu samkvæmt 1. mgr. 254. gr. almennra hegningarlaga nr. 1971940, með því að hafa, föstudaginn 1. desember 2006, haft á heimili sínu nýlega fartölvu, sem hann hafði tekið við af ótilgreindum manni, þrátt fyrir að hafa vitað að um þýfi væri að ræða og þannig haldið tölvunni ólöglega frá réttum eiganda, en tölvunni var stolið úr íbúðarhúsnæði í Reykjavík 22. október 2006.

Með játningu ákærða fyrir dómi, sem samrýmist frásögn hans hjá lögreglu og öðrum rannsóknargögnum málsins, er framangreind háttsemi sönnuð og þykir hún rétt færð til refsiákvæða í ákæru.

Samkvæmt sakavottorði ákærða var hann 6. júní 2003 dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir húsbrot og líkamsárásir. Hann lauk afplánun refsingar 20. janúar 2004 og fékk þá reynslulausn á 60 daga eftirstöðvum refsingar, skilorðsbundið eitt ár. Ákærði stóðst umrætt skilorð. Hann er nú í fastri atvinnu og í sambúð. Með hliðsjón af þessum atriðum, greiðri játningu ákærða og því að um óveruleg verðmæti var að ræða, sem komust óskemmd til skila, þykir refsing hæfilega ákveðin fangelsi í 30 daga, sem eftir atvikum þykir rétt að skilorðsbinda, eins og nánar greinir í ákæru.

Jóhann Hauksson fulltrúi lögreglustjórans sótti málið af hálfu ákæruvaldsins.

DÓMSORÐ:

Ákærði, Eyjólfur Konráð Elíasson, sæti fangelsi í 30 daga, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og hún falla niður að liðnum tveimur árum frá dómsuppsögu haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

Jónas Jóhannsson