Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 13. febrúar 2007.
Mál nr. S-143/2007:
Ákæruvaldið
(Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir fulltrúi)
gegn
Viktoras Kaubrys
(Björgvin Jónsson hrl)
Lykilorð
Játningarmál. Skilorð. Ávana- og fíkniefni.
Útdráttur
Ákærði var dæmdur í 4 mánaða fangelsi, skilorðsbundið í 3 ár, fyrir að hafa í vörslum sínum 118,85 g af amfetamíni. Þá var honum gert að sæta upptöku á efninu.
Mál þetta, sem dómtekið var í dag, er höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 2. febrúar 2007, á hendur Viktoras Kaubrys, kt. [...], Flétturima 3, Reykjavík, fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa miðvikudaginn 10. janúar 2007, á heimili sínu að Flétturima 3 í Reykjavík, haft í vörslum sínum 118,85 g af amfetamíni, sem lögregla fann við leit.
Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 5. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og jafnframt að framangreind fíkniefni, sem hald var lagt á, verði gerð upptæk samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/ 1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.
Farið var með mál þetta samkvæmt 125. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.
Ákærði hefur skýlaust játað brot sitt. Sannað er með játningu ákærða og rannsóknargögnum málsins að hann er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og er brot hans rétt heimfært til refsiákvæða í ákæru.
Ákærði er fæddur í desember 1982. Samkvæmt sakavottorði ákærða hefur hann ekki áður gerst brotlegur við lög. Ákærði hefur játað sök. Við ákvörðun refsingar er jafnframt til þess að líta að hann er sakfelldur fyrir vörslur efnanna en ekki sölu þeirra. Magn efnanna er töluvert og styrkur amfetamínbasa í sýni var 39%, sem samsvarar 53% af amfetamínsúlfati, eins og fram kemur í matsgerð rannsóknarstofu Háskóla Íslands í lyfja- og eiturefnafræði 24. janúar 2007. Ákærði á fjölskyldu og stundar vinnu. Að öllu þessu virtu þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fjögurra mánaða fangelsi, sem rétt þykir að binda skilorði eins og í dómsorði greinir.
Að kröfu ákæruvaldsins og með vísan til fyrrnefndra laga- og reglugerðar ákvæða skulu gerð upptæk til ríkissjóðs þau 118,85 grömm af amfetamíni sem lögregla haldlagði.
Loks ber samkvæmt 1. mgr. 165. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála að dæma ákærða til greiðslu alls sakarkostnaðar, samtals 202.334 kr. Samkvæmt yfirliti um sakarkostnað er hér um að ræða áfallinn kostnað vegna rannsóknar á fíkniefnunum, 173.334 kr., og þóknun skipaðs verjanda hans fyrir dómi, Björgvins Jónssonar hrl., sem þykir hæfilega ákveðin 65.000 kr., að meðtöldum virðisaukaskatti.
Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, fulltrúi lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins, sótti málið af hálfu ákæruvaldsins.
Dóm þennan kveður upp Sandra Baldvinsdóttir, settur héraðsdómari.
D ó m s o r ð:
Ákærði, Viktoras Kaubrys, sæti fangelsi í 4 mánuði, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og hún niður falla að liðnum 3 árum frá birtingu dómsins haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Ákærði sæti upptöku á 118,85 grömmum af amfetamíni.
Ákærði greiði 202.334 krónur í sakarkostnað, þar með talin 65.000 króna þóknun skipaðs verjanda hans, Björgvins Jónssonar hæstaréttarlögmanns.
Sandra Baldvinsdóttir