Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 11. júní 2008.
Mál nr. E-8239/2007:
Hákon
Bergmann Óttarsson
(Guðbjarni Eggertsson hdl)
gegn
Eignasögu
- Trausti ehf.
Lykilorð
Útdráttur
Stefnandi höfðaði mál til greiðslu víxils og byggði málatilbúnað sinn á 17. kafla laga nr. 91/1991. Þar sem stefnandi gat ekki sýnt fram á að hann væri réttur handhafi víxilsins með óslitinni framsalsröð var málinu vísað frá dómi.
- Að stefndi verði dæmdur til að greiða stefnanda skuld að fjárhæð 4.824.463 krónur ásamt dráttarvöxtum samkvæmt III. kafla vaxtalaga nr. 38/2001, af 4.722.063 krónum frá 4. maí 2007 til 8. nóvember 2007, af 4.734.763 krónum frá þeim degi til 15. nóvember 2007 og af 4.824.463 krónum frá þeim degi til greiðsludags.
- Að staðfest verði með dómi kyrrsetning Sýslumannsins í Reykjavík frá 14. nóvember 2007 á fasteigninni Skólabrú 2, Reykjavík, fastanr. 200-2769, til fullnustu á fyrrnefndri kröfu.
- Að stefnda verði gert að greiða málskostnað í samræmi við hagsmuni málsins, vinnu málflytjanda og annan kostnað af málinu, auk lögmælts virðisaukaskatts, en málskostnaðaryfirlit verður lagt fram á síðari stigum. Þess er krafist að dráttarvextir leggist á málskostnaðarkröfu í samræmi við ákvæði laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála og leggist við höfuðstól hennar á tólf mánaða fresti.
Dómkröfur stefnda eru þær aðallega að málinu verði vísað frá dómi en til vara er krafist sýknu af öllum kröfum stefnanda. Krafist er málskostnaðar samkvæmt 131. gr. laga nr. 91/1991.
Málsatvik og málsástæður stefnanda Stefnandi kveðst byggja kröfu sína á víxli að fjárhæð 5.000.000 króna. Víxillinn hafi verið útgefinn þann 28. mars 2006 og samþykktur til greiðslu í Landsbanka Íslands hf. í Reykjavík. Víxillinn sé án afsagnar. Víxill þessi sé samkvæmt skýru ákvæði kaupsamnings aðila til tryggingar áhvílandi skattaskuld við Tollstjórann í Reykjavík og til tryggingar yfirdrætti á nafni stefnanda í Íslandsbanka. Yfirdrátturinn hafi verið gerður upp af hálfu stefnda en skuldin við Tollstjóra ekki. Greiðandi víxilsins sé Eignasaga-Traust ehf., en Jóhann B. Jacobsson samþykki hann f.h. Eignasögu-Trausts ehf. Útgefendur víxilsins séu Einar Ben ehf. og Jóhann B. Jacobsson.
Samkvæmt skýru ákvæði samningsins skyldi stefndi greiða upp skuldina eigi síðar en 12. apríl 2006. Stefndi hafi ekki greitt skuldina og þar sem um hafi verið að ræða vörsluskatta hafi vanskil á opinberum gjöldum verið send til rannsóknar skattrannsóknarstjóra samkvæmt almennum reglum þar um. Þar sem boðaðar hafi verið aðgerðir á hendur stefnanda persónulega hafi ekki annað verið í stöðunni en að hann greiddi kröfuna að fjárhæð 4.722.063 krónur og endurkrefði svo stefnda um þá fjárhæð auk vaxta og kostnaðar. Krafan hafi verið greidd af stefnanda þann 4. maí 2007 og sé það gjalddagi kröfunnar.
Þrátt fyrir ítrekaðar innheimtutilraunir hafi stefndi ekki fengist til að standa við skuldbindingar sínar samkvæmt kaupsamningnum og hafi stefnandi því neyðst til að höfða mál þetta til greiðslu þeirra skulda sem stefndi hafi átt að greiða fyrir hið selda félag. Stefndi hafi ekki gert athugasemdir við stefnanda um skuldastöðu sína. Stefnufjárhæðin sé sundurliðuð með eftirfarandi hætti:
Höfuðstóll kr. 4.722.063,- Kyrrsetningargjald kr. 12.700,- Stimpilgjald og þinglýsingagjald v/ kyrrsetningar kr. 89.700,- Auk þessa séu áfallandi dráttarvextir, málskostnaðar og lögmæltur virðisaukaskattur.
Samtals kr. 4.824.463,- Grundvöllur kröfu stefnanda um staðfestingu á kyrrsetningu fasteignarinnar að Skólabrú 2 er sá að stefnandi hafi ástæðu til að ætla að stefndi hafi gerst sekur um svik með því að selja rekstur sinn til annars félags að nafni Highlander PUB ehf., sem sé í eigu sömu aðila, í þeim tilgangi að skjóta undan eignum án þess að hafa greitt að fullu kaupverð rekstursins, sbr. stefnufjárhæð máls þessa. Þá hafi stefnandi ástæðu til að ætla að stefndi skjóti fyrrnefndri fasteign sinni undan í þeim tilgangi að koma í veg fyrir innheimtur skuldanna. Í því sambandi megi benda á að stefndi sé á vanskilaskrá vegna vangoldinna skulda að höfuðstól rúmlega 20 milljónir króna. Auk þess sé félag í eigu sömu aðila, Einar Ben ehf., sem hafi verið ábyrgðaraðili á víxlinum, gjaldþrota. Samkvæmt upplýsingum stefnanda sé hér um að ræða einu eign stefnda og því hægðarleikur fyrir hann að gera félagið eignarlaust á mjög skömmum tíma og stefnanda því nauðsynlegt að tryggja hagsmuni sína með því að kyrrsetja þær eignir sem enn séu í eigu stefnda.
Stefnandi byggi kröfur sínar á áðurgreindum víxli og vísar til víxillaga nr. 93/1933, einkum 7. kafla laganna, um fullnustu vegna greiðslufalls. Stefnandi reki málið samkvæmt 17. kafla laga nr. 91/1991. Kröfur um dráttarvexti, þ.m.t. vaxtavexti, styður stefnandi við reglur III. kafla vaxtalaga nr. 38/2001. Krafan um staðfestingu á kyrrsetningu byggi á lögum nr. 31/1990, um kyrrsetningu, lögbann o.fl., einkum VI. kafla laganna. Krafan um málskostnað styðst við ákvæði laga 91/1991, um meðferð einkamála, einkum 1. mgr. 130. gr. Krafa um virðisaukaskatt af málskostnaði sé reist á lögum nr. 50/1988. Stefnandi sé ekki virðisaukaskattsskyldur og beri því nauðsyn til að fá dóm fyrir skatti þessum úr hendi stefnda. Varðandi varnarþing vísist til 33. gr. laga nr. 91/1991.
Málsástæður stefnda fyrir frávísunarkröfu
Stefndi bendir á að stefnandi segi kröfu sína vera samkvæmt víxli og reisi málatilbúnað sinn á XVII. kafla laga um meðferð einkamála. Á sama tíma byggi hann á öðrum grundvelli sem sé ósamþýðanlegur, þ.e. viðskiptin á bak við víxilinn. Mál á þeim grunni verði ekki rekið samkvæmt XVII. kafla en stefnandi marki málinu þann farveg. Þegar af þessari ástæðu sé ekkert annað að gera en að vísa málinu frá dómi.
Það varði einnig frávísun að krafist er staðfestingar kyrrsetningar sem gerð hafi verið á grundvelli skjals sem sé ekki víxill, sbr. dskj.nr. 25. Sé það skjal merkt „fylgiskjal nr. 6 við kyrrsetningargerð“ og geymi hvorki útgáfudag né gjalddaga. Það uppfylli því ekki það skilyrði víxillaga um að teljast víxill, sbr. 7. tl. 1. gr. víxillaga nr. 93/1993, sbr. 1. mgr. 2. gr. Stefnandi hafi ekki gert grein fyrir umboði sínu til að fylla víxilinn út en hann sé ekki víxilhafi í skilningi víxillaga eins og sjáist á skjalinu. Í stefnu hafi heldur ekki verið gerð grein fyrir misræminu milli skjalsins sem lagt hafi verið til grundvallar við staðfestingu kyrrsetningargerðar og hins breytta skjals sem lagt sé fram í máli þessu sem dómskjal nr. 10 og krafist greiðslu á.
Að öðru leyti sé allur málatilbúnaður stefnanda í þoku, ósamþýðanlegum málsástæðum lýstur saman og málið sé ekki dómhæft.
Niðurstaða
Stefnandi byggir kröfur sínar á víxli og höfðar málið á grundvelli 17. kafla laga nr. 91/1991. Hann hefur lagt fram í málinu víxil þann sem hann byggir kröfur sínar á. Víxillinn sem er að fjárhæð 5.000.000 króna er útgefinn 28. mars 2006 af Einari Ben ehf. og samþykktur af Eignasögu ehf. með gjalddaga 4. maí 2007. Þar sem gert er ráð fyrir framsali útgefanda á víxlinum er einungis ritað Einar Ben ehf. en engin undirritun. Hefur víxillinn því ekki verið framseldur af útgefanda.
Stefnandi málsins, Hákon Óttarsson, hefur því ekki sýnt fram á handhöfn sína að víxlinum með óslitinni framsalsröð, sbr. 16. gr. víxillaga nr. 93/1933, og telst því ekki réttur handhafi víxilsins.
Stefnandi krefst staðfestingar á kyrrsetningu Sýslumannsins í Reykjavík sem gerð var 14. nóvember 2007 í fasteigninni Skólabrú 2, Reykjavík til tryggingar dómkröfu sinni. Í kyrrsetningarbeiðni er krafist kyrrsetningar til tryggingar kröfu m.a. samkvæmt víxli. Samkvæmt endurriti úr gerðabók Sýslumannsins í Reykjavík var lagður fram við kyrrsetninguna kaupsamningur og afrit víxils. Hefur stefnandi enga grein gert fyrir misræmi á milli þess skjals sem hann byggir kröfur sínar á í málinu og þeirra krafna sem kyrrsetningin virðist byggjast á.
Eins og áður greinir hefur stefnandi ekki sýnt fram á að hann sé réttur handhafi þess víxils sem hann byggir kröfur sínar á. Málatilbúnaður hans er óljós og ruglingslegur og virðist ýmist byggt á víxlinum eða lögskiptunum að baki. Ber samkvæmt framansögðu að vísa máli þessu frá dómi.
Stefnandi greiði stefnda málskostnað sem ákveðst 150.000 krónur.
Kristjana Jónsdóttir héraðsdómari kvað upp úrskurð þennan.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Máli þessu er vísað frá dómi.
Stefnandi, Hákon Óttarsson, greiði stefnda, Eignasögu-Trausti ehf., 150.000 krónur í málskostnað.
Kristjana Jónsdóttir