Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. E-7031/2007:

Kaupþing banki hf.

(Bjarni Aðalgeirsson hdl)

gegn

Ísrós ehf.

Díanu Símonardóttur

Smára Bjarna Ólafssyni

(Kristján Stefánsson hrl)

Sjálfskuldarábyrgð. Skuldamál.

Stefndu dæmd til þess að greiða stefnanda skuld vegna yfirdráttar á bankareikningi.

Mál þetta, sem dómtekið var hinn 25. nóvember sl., að loknum munnlegum málflutningi, var höfðað fyrir dómþinginu af Kaupþingi banka hf., Borgartúni 19, Reykjavík, á hendur Ísrós ehf., Brúnastöðum 52, Reykjavík, Smára Bjarna Ómarssyni, Brúnastöðum 52, Reykjavík, og Díönu Símonardóttur, Brúnastöðum 52, Reykjavík, með stefnu birtri hinn 9. október 2007.

Dómkröfur stefnanda eru þær, að stefndu verði in solidum dæmd til að greiða stefnanda 2.050.985 krónur, ásamt dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 frá 31. maí 2006 til greiðsludags, að frádreginni innborgun að fjárhæð 2.003.900 krónur.

Þá er krafist málskostnaðar, að skaðlausu, að viðbættum virðisaukaskatti á málflutningsþóknun, úr hendi stefndu.

Dómkröfur stefndu eru þær aðallega, að málinu verði vísað frá dómi, en til vara að stefndu verði sýknuð af öllum kröfum stefnanda, og til þrautavara að dómkröfur stefnanda verði lækkaðar verulega.  Þá krefjast stefndu málskostnaðar úr hendi stefnanda, að skaðlausu, en til vara að málskostnaður verði felldur niður.

II

Stefnandi lýsir málavöxtum svo í stefnu, að hinn 3. febrúar 1989 hafi stefnandi samþykkt umsókn stefndu, Ísrósar ehf., um stofnun tékkareiknings í útibúi stefnanda að Suðurlandsbraut 2, Reykjavík.  Tékkareikningurinn hafi borið númerið xxxx-xx-xx.  Stefnda, Ísrós ehf., hafi verið veitt yfirdráttarheimild á tékkareikning sinn.  Síðast hafi verið veitt yfirdráttarheimild á tékkareikning stefndu, Ísrósar ehf. nr. xxx-xx-xx, að fjárhæð 2.072.000 krónur, hinn 30. desember 2005, sem gilt hafi til 31. janúar 2006.  Ekki hafi verið veitt yfirdráttarheimild á tékkareikning stefndu síðan.

Stefnda kveðst um árabil hafa átt viðskipti við stefnanda, útibú xxx, Háaleitisbraut.  Stefndu, Smári og Díana, hafi afhent stefnanda ábyrgðaryfirlýsingu, dagsetta 25. janúar 2005. Stefnda, Ísrós ehf., hafi verið í skuld við stefnanda og hafi orðið að samkomulagi aðila að gera upp skuldina með veðskuldabréfi.  Hafi stefnandi tekið að sér að sjá um frágang bréfsins.

III

Stefnandi byggir kröfur sínar á hendur stefndu á því, að stefnda, Ísrós ehf., hafi gerst brotleg við reglur um reikningsviðskipti og hafi verið tilkynnt um vanskil með bréfi, dagsettu 23. maí 2006.  Hinn 31. maí 2006 hafi skuldin á reikningnum verið 2.050.985 krónur.  Hinn 25. janúar 2005 hafi stefndu, Díana og Smári Bjarni, undirritað yfirlýsingu um sjálfskuldarábyrgð vegna yfirdráttarheimildar á framangreindum reikningi, að fjárhæð 2.500.000 krónur.  Tékkareikningurinn hafi lent í vanskilum og hafi stefndu verið tilkynnt um vanskilin með bréfum, dagsettum 15. júní 2006.  Inn á skuldina hafi verið greiddar, hinn 26. júlí 2006, 2.003.900 krónur, og verði tekið tillit til greiðslunnar við uppgjör kröfunnar.  Eftirstöðvar skuldarinnar hafi ekki fengist greiddar þrátt fyrir innheimtutilraunir og sé því nauðsynlegt að höfða mál til greiðslu hennar.

Um lagarök vísar stefnandi til almennra reglna kröfuréttarins og meginreglna samningaréttarins, sbr. lög nr. 7/1936, um samningsgerð, loforð og ógilda löggerninga.

Kröfu um dráttarvexti byggir stefnandi á lögum nr. 38/2001, um vexti og verðtryggingu.

Kröfu um málskostnað byggir stefnandi á lögum nr. 91/1991, um meðferð einkamála.

Kröfu um virðisaukaskatt á málflutningsþóknun byggir stefnandi á lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt.  Stefnandi sé ekki virðisaukaskattsskyldur og því beri honum nauðsyn til að fá dóm fyrir skattinum úr hendi stefnda.

IV

Stefndu byggja sýknukröfu sína á því, að með samkomulagi málsaðila hafi verið samþykkt að skuld stefndu yrði gerð upp með veðskuldabréfi.  Allur frágangur uppgjörs hafi verið á hendi stefnanda.  Stefndu hafi efnt skyldur sínar með útgáfu skuldabréfsins og afhendingu þess til stefnanda.

Varakröfu sína um lækkun  dómkröfu kveðast stefndu setja fram ex tuto.

V

Í máli þessu krefur stefnandi stefndu um greiðslu á skuld samkvæmt tékkareikningi.  Byggir stefnandi kröfu sína á hendur stefndu, Ísrós ehf., á því, að yfirdráttarheimild á umræddum tékkareikningi hafi fallið niður hinn 31. janúar 2006, en stefndi hafi gerst brotlegur við reglur um reikningsviðskipti.  Kröfur á hendur stefndu, Smára Bjarna og Díönu, byggir stefnandi á ábyrgðaryfirlýsingu þeirra á tékkareikningi stefndu, Ísrósar ehf.  Byggir stefnandi á því, að á þeim tíma hafi skuld á tékkareikningnum verið 2.050.985 krónur.

Stefndu hafa ekki andmælt þessum fullyrðingum stefnanda, en borið fyrir sig, að stefnandi hafi samþykkt að skuldin yrði gerð upp með veðskuldabréfi.

Með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur hinn 4. mars 2008, var málinu vísað frá dómi, þar sem stefna var ekki talin fullnægja lágmarksskilyrðum e-liðar 1. mgr. 80. gr. laga nr. 91/1991, um meðferð einkamála.  Með dómi Hæstaréttar Íslands, dagsettum 17. apríl 2008, var úrskurðurinn felldur úr gildi og lagt fyrir héraðsdómara að taka málið til efnismeðferðar.

Stefndu hafa ekki andmælt þeirri fullyrðingu stefnanda, að reikningseigandi, stefnda, Ísrós ehf., hafi farið upp fyrir heimild sína til yfirdráttar og að skuld á reikningnum hafi, hinn 31. maí 2006, verið 2.050.985 krónur.  Þá er óumdeilt að stefndu, Díana og Smári Bjarni, tókust á hendur sjálfsskuldarábyrgð vegna yfirdráttarheimildarinnar.  Samkvæmt yfirlýsingunni ábyrgjast stefndu, Díana og Smári Bjarni, sem sjálfskuldarábyrgðaraðilar, greiðslu yfirdráttar á tékkareikningi stefndu, Ísrósar ehf., allt að 2.500.000 krónum.  Í skilmálum yfirlýsingarinnar kemur fram að stefnanda sé heimilt að innheimta skuldina hjá sjálfskuldarábyrgðaraðilum við vanskil, fari reikningseigandi yfir heimild sína eða brjóti á annan hátt gegn skilmálum bankans um yfirdráttarheimildir, þegar heimild fellur niður eða reikningi er lokað.

Fyrir liggur að hinn 14. júlí 2006 gaf stefnda, Ísrós ehf., út veðskuldabréf á hendur stefnanda, að fjárhæð 2.050.000 krónur.  Sjálfskuldarábyrgðarmenn á skuldabréfinu voru stefndu, Díana og Smári Bjarni.  Þá liggur og fyrir að andvirði bréfsins, að frádregnu lántökugjaldi og kostnaði, eða 2.003.900 krónur, var lagt inn á áðurgreindan reikning stefndu, Ísrósar ehf., hinn 26. júlí 2006 og kemur sú skuld til frádráttar höfuðstól skuldarinnar á innborgunardegi, en ósönnuð er fullyrðing stefndu, að greiðsla sú, þ.e. 2.003.900 krónur, hafi átt að vera fullnaðargreiðsla á skuld stefndu við bankann.

Með vísan til alls framanritaðs verður því krafa stefnanda tekin til greina eins og hún er fram sett.

Eftir þessari niðurstöðu þykir rétt að stefndu greiði in solidum stefnanda málskostnað, sem þykir hæfilega ákveðinn 150.000 krónur.  Við ákvörðun málskostnaðar hefur verið tekið tillit til virðisaukaskattsskyldu stefndu.

Hervör Þorvaldsdóttir, héraðsdómari, kvað upp dóm þennan.

D Ó M S O R Ð:

Ísrós ehf., Smári Bjarni Ómarsson, og Díana Símonardóttir,  greiði in solidum stefnanda, Nýja Kaupþing banka hf., 2.050.985 krónur, ásamt dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 frá 31. maí 2006 til greiðsludags, að frádreginni innborgun að fjárhæð 2.003.900 krónur, sem greidd var hinn 26. júlí 2006.

Stefndu greiði in solidum stefnanda 150.000 krónur í málskostnað, þ.m.t. virðisaukaskattur.

Hervör Þorvaldsdóttir.