Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-961/2006:

Ákæruvaldið

(Hulda María Stefánsdóttir fulltrúi)

gegn

Gunnari Þór Grétarssyni

(Guðmundur Óli Björgvinsson hdl)

Fjársvik.

26 ára karlmaður dæmdur í 6 mánaða fangelsi fyrir fjölmörg hegningarlagabrot, fíkniefnalagabrot og umferðarlagabrot.

Ár 2006, mánudaginn 4. september, er dómþing Héraðsdóms Reykjavíkur háð í Dómhúsinu við Lækjartorg af Jónasi Jóhannssyni héraðsdómara og dómur kveðinn upp í máli nr. S-961/2006: Ákæruvaldið gegn Gunnari Þór Grétarssyni, sem dómtekið var 31. ágúst sem játningarmál samkvæmt 125. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.

Málið er höfðað með tveimur ákærum Lögreglustjórans í Reykjavík, útgefnum 13. júní og 18. júlí 2006, á hendur ákærða, Gunnari Þór Grétarssyni, kt. 000000-0000, skráðum til lögheimilis að Höfðabakka 1, Reykjavík.

A.

Með ákærunni 13. júní er málið höfðað til refsingar fyrir eftirgreind fíkniefna lagabrot, umferðarlagabrot og brot á almennum hegningarlögum:

I.

Fyrir fíkniefnalagabrot, svo sem nánar er lýst í ákæru, með því að hafa:

  1. Sunnudaginn 11 desember 2005 haft í vörslum sínum 0,72 grömm af amfeta míni og 3,25 grömm af hassi.
  2. Fimmtudaginn 22. desember 2005 haft í vörslum sínum 1 gramm af amfeta míni.
  3. Laugardaginn 7. janúar 2006 haft í vörslum 0,2 grömm af amfetamíni.
  4. Sunnudaginn 5. febrúar 2006, haft í vörslum 2,69 grömm af amfetamíni.
  5. Mánudaginn 6. febrúar 2006, haft í vörslum 2,49 grömm af marihuana.

    Eru umrædd brot talin varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni með áorðnum breytingum og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001 um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni með áorðnum breytingum. Auk refsingar er þess krafist að ákærði sæti upptöku á nefndum fíkniefnum, sbr. 6. mgr. 5. gr. nefndra laga og 2. mgr. 14. gr. tilvitnaðrar reglu gerðar.

    Með játningu ákærða fyrir dómi, sem samrýmist rannsóknargögnum málsins, er framangreind háttsemi sönnuð og þykir hún rétt færð til refsiákvæða í ákæru.

II.

Fyrir brot á 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, með því að hafa, að morgni laugardagsins 7. janúar 2006, ekið bifreiðinni LJ-298 utan vegar við Gylfaflöt í Garðabæ, þrátt fyrir að hann væri sviptur ökurétti.

Með játningu ákærða fyrir dómi, sem samrýmist rannsóknargögnum málsins, er framangreind háttsemi sönnuð og þykir hún rétt færð til refsiákvæða í ákæru.

III.

Fyrir þjófnað samkvæmt 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, svo sem nánar er lýst í ákæru, með því að hafa:

  1. Föstudaginn 6. janúar 2006, stolið posavél að verðmæti um 80.000 krónur á veitingastaðnum Rikki Chan að Smáratorgi í Kópavogi.
  2. Laugardaginn 28. janúar 2006, stolið 69.514 krónum í reiðufé úr sjóðvél bensínafgreiðslustöðvar Olís við Skúlagötu í Reykjavík.
  3. Miðvikudaginn 1. febrúar 2006, stolið stafrænni myndavél að verðmæti 38.385 krónur á veitingastaðnum Prikinu að Bankastræti 12 í Reykjavík.
  4. Fimmtudaginn 2. febrúar 2006, brotist inn í íbúð að Grettisgötu 12 í Reykjavík og stolið kveikjuláslykli að óþekktu verðmæti og 170 evrum í reiðufé.
  5. Sama dag, farið í heimildarleysi inn í húsnæði Ársels að Smiðsbúð 8 í Garða bæ og stolið kveikjuláslykli að óþekktu verðmæti.
  6. Sama dag, farið í heimildarleysi inn í bifreiðina KL-192 á bifreiðastæði við Smiðsbúð 8 og stolið farsíma að verðmæti um 19.900 krónur.
  7. Föstudaginn 3. febrúar 2006, farið í heimildarleysi inn í bifreiðina MY-356 á bifreiðastæði við Bitruháls 1 í Reykjavík og stolið greiðslukorti.
  8. Miðvikudaginn 1. febrúar 2006, stolið samtals 23.000 krónum af greiðslukorta reikningi, með því að nota í sex skipti greiðslukort og leyninúmer viðkomandi reikningseiganda í hraðbanka til skuldfærslu af reikningi hans.

    Með játningu ákærða fyrir dómi, sem samrýmist rannsóknargögnum málsins, er framangreind háttsemi sönnuð og þykir hún rétt færð til refsiákvæða í ákæru.

    Við ákvörðun refsingar í C. kafla hér á eftir verður litið til þess að myndavélin í 3. tölulið komst óskemmd til skila, sem og kveikjuláslykill og 170 evrur í 4. tölulið, kveikjuláslykill í 5. tölulið og farsími og greiðslukort í 6. og 7. tölulið.

IV.

Fyrir nytjastuld samkvæmt 1. mgr. 259. gr. almennra hegningarlaga, með því að hafa, fimmtudaginn 2. febrúar 2006, tekið bifreiðina KL-192 í heimildarleysi fyrir utan Smiðsbúð 8 í Garðabæ og ekið henni að Lindargötu 32 í Reykjavík.

Með játningu ákærða fyrir dómi, sem samrýmist rannsóknargögnum málsins, er framangreind háttsemi sönnuð og þykir hún rétt færð til refsiákvæða í ákæru.

V.

Fyrir hylmingu samkvæmt 1. mgr. 254. gr. almennra hegningarlaga, svo sem nánar er lýst í ákæru, með því að hafa:

  1. Tekið við eftirgreindu þýfi, haft í vörslum sínum og þannig haldið því gegn betri vitund fyrir réttum eigendum til 9. desember 2005: Fartölvu að verðmæti 109.900 krónur, tveimur Electrolux helluborðum að verðmæti 98.462 krónur og loftpressu að óþekktu verðmæti.
  2. Haft í vörslum sínum eftirgreint þýfi og þannig haldið því gegn betri vitund fyrir réttum eigendum til 6. febrúar 2006: Eyrnalokkum, hring og vekjaraklukku að óþekktu verðmæti, leðurboxi að óþekktu verðmæti, úlpu að verðmæti 4.500 krónur og vegabréfi að óþekktu verðmæti.

    Með játningu ákærða fyrir dómi, sem samrýmist rannsóknargögnum málsins, er framangreind háttsemi sönnuð og þykir hún rétt færð til refsiákvæða í ákæru.

    Við ákvörðun refsingar í C. kafla hér á eftir verður litið til þess að tilgreindir munir í 1. og 2. tölulið komust allir óskemmdir til skila.

VI.

Fyrir fjársvik samkvæmt 248. gr. almennra hegningarlaga, svo sem nánar er lýst í ákæru, með því að hafa:

  1. Föstudaginn 9. desember 2005, fengið leigubifreiðastjóra hjá Hreyfli til að aka með hann frá Reynimel að Laugavegi 24 í Reykjavík án þess að eiga fyrir og greiða ökugjald, krónur 3.870.
  2. Fimmtudaginn 2. febrúar 2006, svikið út vörur og þjónustu að andvirði 74.881 krónur með því að láta skuldfæra heimildarlaust af debetkorti sem hann hafði komist yfir á ólögmætan hátt á eftirgreindum stöðum í Reykjavík:

    2.1. Í verslun Select við Grjótháls, krónur 9.791.

    2.2. Í verslun Skalla við Grjótháls, krónur 11.460.

    2.3. Í bensínafgreiðslu Esso við Bíldshöfða, krónur 7.802.

    2.4. Í verslun ÁTVR við Holtagarða, krónur 6.075.

    2.5. Í verslun Select við Kleppsveg, krónur 23.483.

    2.6. Í söluturninum Sunnutorgi við Langholtsveg, krónur 16.270.

    Með játningu ákærða fyrir dómi, sem samrýmist rannsóknargögnum málsins, er framangreind háttsemi sönnuð og þykir hún rétt færð til refsiákvæða í ákæru.

    B.

    Með ákærunni 18. júlí 2006 er kveðið á um málshöfðun á hendur ákærða til refsingar fyrir brot á 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni með áorðnum breytingum og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001 um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni með áorðnum breytingum og auglýsingu nr. 232/2001, með því að hafa, aðfaranótt miðvikudagsins 8. desember 2005, haft í vörslum sínum 2,30 grömm af amfetamíni og 8,80 grömm af kókaíni í bifreiðinni ZX-627, sem lögregla haldlagði sömu nótt, en málsatvikum er nánar lýst í ákæru. Auk refsingar er þess krafist að ákærði sæti upptöku á nefndum fíkniefnum samkvæmt 6. mgr. 5. gr. nefndra laga og 2. mgr. 14. gr. tilvitnaðrar reglugerðar.

    Með játningu ákærða fyrir dómi, sem samrýmist rannsóknargögnum málsins, er framangreind háttsemi sönnuð og þykir hún rétt heimfærð til refsiákvæða.

    C.

    Ákærði er 26 ára gamall. Samkvæmt sakavottorði á hann að baki langan sakaferil, sem nær aftur til ársins 1996. Hann var fyrst dæmdur í fangelsi, 18 mánuði, með dómi 6. maí 1998, fyrir líkamsárásir, þjófnaði og nytjastuld, auk annarra smærri brota. Hinn 2. desember sama ár hlaut ákærði fangelsi 3 mánuði fyrir umferðarlaga- og hegningarlagabrot, þar á meðal nytjastuld og þjófnað. Næst fékk ákærði 12 mánaða fangelsisdóm, 30. maí 2001, fyrir fjölmörg hegningarlagabrot, þar á meðal þjófnaði og hylmingu. Hinn 5. apríl 2002 var ákærði á ný dæmdur í 12 mánaða fangelsi, þá fyrir þjófnaðar- og fjársvikabrot, auk fíkniefnalagabrota. Næst hlaut hann dóm í Svíþjóð 6. ágúst 2004, fangelsi 4 mánuði, fyrir líkamsárás, þjófnað og fíkniefnalagabrot. Í kjölfarið var fimm málum á hendur ákærða lokið með sektar ákvörðun, á tímabilinu frá 15. desember 2004 til 14. júní 2005, hinu síðasta með 60.000 króna sekt fyrir sviptingarakstur. Næst hlaut ákærði 150.000 króna sekt fyrir lyfjaakstur, auk sviptingar ökuréttar í 18 mánuði frá 16. desember 2005, með dómi uppkveðnum þann dag. Þá var ákærði, með dómi 3. febrúar 2006, dæmdur í 7 mánaða fangelsi fyrir þjófnaði, fjársvik, skjalafals, fíkniefnalagabrot og sviptingarakstur, auk þess sem honum var gert að greiða 400.000 króna sekt. Loks var ákærði, með dómi 15. febrúar 2006, dæmdur í 220.000 króna sekt fyrir fíkniefnalaga- og umferðarlagabrot, þar á meðal sviptingarakstur.

    Brot þau, sem ákærði er nú sakfelldur fyrir, voru framin á tímabilinu frá 8. desember 2005 til 6. febrúar 2006. Er alls um 30 brot að ræða og eru mörg þeirra smáfelld og engin stórfelld, virt ein og sér. Ákærði hefur gengist greiðlega við öllum brotunum og fallist á greiðslu skaðabóta, þar sem þeirra er krafist. Þá hefur þorri þess þýfis, sem málið snýst um, komist óskemmt í hendur eigenda. Ber að líta til þessara atriða við ákvörðun refsingar, sbr. 1., 2. og 5. töluliður 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sem og þess að í flestum tilvikum er um hegningarauka að ræða við 7 mánaða fangelsisdóminn frá 3. febrúar 2006, í öllum tilvikum hegningarauka við dóminn frá 15. febrúar 2006 og í nær öllum tilvikum einnig hegningarauka við dóminn frá 16. desember 2005, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga.

    Á hinn bóginn horfir nefndur sakaferill ákærða honum einnig til refsiþyngingar, einkum að því er varðar þjófnaðarbrotin, en ákærði hefur margsinnis áður verið dæmdur fyrir sams konar afbrot. Kemur að því leyti til skoðunar niðurlagsákvæði 2. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga. Þá verður ekki horft framhjá aldri ákærða, sbr. 4. töluliður 1. mgr. 70. gr. laganna. Á móti kemur sú staðreynd að langflest brotanna voru framin á tímabilinu frá 1.-6. febrúar 2006, þegar ákærði var í gríðarlegri óreglu, en hann er heimilislaus, hefur um árabil átt við alvarlegan áfengis- og fíkniefnavanda að stríða og fremur iðulega brot sín undir áhrifum slíkra vímugjafa. Þótt ekki réttlæti það hegðun ákærða á nokkurn hátt horfir sá vandi til nokkurrar skýringar á framferði hans, sbr. 6. og 7. töluliður 1. mgr. 70. gr. hegningarlaganna.

    Með framangreind atriði öll í huga og að teknu tilliti til 77. gr. títtnefndra laga þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin í einu lagi fangelsi í 6 mánuði.

    Að kröfu ákæruvaldsins og með vísan til 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni með áorðnum breytingum og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001 um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni með áorðnum breytingum ber að gera upptæk til ríkissjóðs þau 4,61 grömm af amfetamíni, 3,25 grömm af hassi og 2,49 grömm af marihuana, sem vísað er til í kafla A.-I. að framan, sem og þau 2,30 grömm af amfetamíni og 8,80 grömm af kókaíni, sem fjallað er um í B. kafla dómsins.

    Þá ber að dæma ákærða til að greiða eftirtöldum skaðabætur, sbr. 1. og 2. mgr. 172. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála, en ákærði hefur í öllum tilvikum fallist á bótaskyldu og samþykkt kröfurnar í einu og öllu.

  3. Ólafi Ágústi Lange, 3.870 krónur vegna fjársvikabrots samkvæmt 1. tölulið kafla A.-I. Krafan var birt ákærða 31. ágúst 2006 og ber hún því vexti samkvæmt 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 9. desember 2005 til 30. september 2006, en dráttarvexti samkvæmt 9. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags.
  4. Olíuverslun Íslands hf., 69.514 krónur vegna þjófnaðarbrots samkvæmt 2. tölulið kafla A.-III. Sú krafa var einnig birt ákærða 31. ágúst 2006 og ber hún því sömuleiðis vexti samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu frá 28. janúar til 30. september 2006, en dráttarvexti samkvæmt 9. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags.

    Loks ber samkvæmt 1. mgr. 165. gr. laga um meðferð opinberra mála að dæma ákærða til greiðslu alls sakarkostnaðar. Nemur áfallinn sakarkostnaður 10.450 krónum vegna þess umferðarlagabrots, sem lýst er í kafla A.-II. að framan, en við hann bætist nú þóknun Guðmundar Óla Björgvinssonar héraðsdómslögmanns, skipaðs verjanda ákærða. Með hliðsjón af eðli og umfangi máls þykir sú þóknun hæflega ákveðin 100.000 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti.

    Hulda María Stefánsdóttir fulltrúi Lögreglustjórans í Reykjavík sótti málið af hálfu ákæruvaldsins.

DÓMSORÐ:

Ákærði, Gunnar Þór Grétarsson, sæti fangelsi í 6 mánuði.

Ákærði sæti upptöku á 8,80 grömmum af kókaíni, 6,91 grammi af amfetamíni, 3,25 grömmum af hassi og 2,49 grömmum af marihuana.

Ákærði greiði Ólafi Ágústi Lange 3.870 krónur með vöxtum samkvæmt 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 9. desember 2005 til 30. september 2006, en með dráttarvöxtum samkvæmt 9. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðslu dags.

Ákærði greiði Olíuverslun Íslands hf. 69.514 krónur með vöxtum samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu frá 28. janúar til 30. september 2006, en með dráttarvöxtum samkvæmt 9. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags.

Ákærði greiði 110.450 krónur í sakarkostnað, þar með talda 100.000 króna þóknun skipaðs verjanda síns, Guðmundar Óla Björgvinssonar héraðsdómslögmanns.

Jónas Jóhannsson