Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-2206/2006:

Ákæruvaldið

(Karl Ingi Vilbergsson fulltrúi)

gegn

Halldór Agli Kristjánssyni

(Herdís Hallmarsdóttir hdl)

Líkamsárás.

Ákærði sakfelldur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás með því að slá annan mann með glerflösku í andlitið. Refsing fangelsi í 6 mánuði.

Mál þetta, sem dómtekið var 7. maí sl., er höfðað með ákæru útgefinni af ríkissaksóknara 13. desember 2006 á hendur Halldóri Agli Kristjánssyni, kt. [...], Andrésbrunni 14, Reykjavík, fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, með því að hafa, aðfaranótt fimmtudagsins 20. apríl 2006, á veitingastaðnum Hressingarskálanum í Austurstræti, Reykjavík, slegið Jóhannes Ragnar Jóhannesson, kt. [...], með glerflösku í andlitið, en við þetta brotnaði flaskan með þeim afleiðingum að Jóhannes Ragnar hlaut tvö 2 sm löng og alldjúp skurðsár á vinstri augabrún og varð að sauma hvort sár með 6 til 7 sporum.

Þetta er talið varða við 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 11. gr. laga nr. 20/1981.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.

Af hálfu Jóhannesar Ragnars Jóhannessonar er krafist skaðabóta að fjárhæð 390.921 króna auk vaxta frá 20. apríl 2006, en síðan dráttarvaxta frá 2. desember 2006 til greiðsludags, samkvæmt vaxtalögum nr. 38/2001.

Verjandi ákærða krefst þess að ákærði verði sýknaður af kröfum ákæruvalds, að skaðabótakröfu verði vísað frá dómi og að sakarkostnaður, þ.m.t. málsvarnarlaun, verði felldur á ríkissjóð.

Samkvæmt skýrslu lögreglu var lögreglumaður á vakt á slysadeild Landspítala háskólasjúkrahúss aðfaranótt fimmtudagsins 20. apríl 2006. Fram kemur að kl. 06.28 hafi Jóhannes Ragnar Jóhannesson komið á deildina. Í skýrslunni er rakið að Jóhannes hafi verið blóðugur og með tvo skurði fyrir ofan vinstra auga. Þá hafi augað verið bólgið. Hefur lögreglumaður skráð eftir Jóhannesi að hann hafi verið á dansgólfi veitingastaðarins Hressingarskálans í Austurstræti í Reykjavík. Með honum á dansgólfinu hafi verið bróðir Jóhannesar, kona bróður síns og vinkona hennar. Hafi Jóhannes ekki vitað fyrr en maður hafi gengið að honum og slegið hann einu sinni. Hafi Jóhannes ekki verið viss um hvort maðurinn hafi verið með flösku í hendi eða hvort maðurinn hafi einungis notað hnefa. Eftir höggið hafi fólk á staðnum gengið á milli þeirra. Hafi Jóhannes lýsti því að hann hafi þekkt árásarmanninn sem Halldór, ákærða í máli þessu, eiganda tiltekins fyrirtækjareksturs. Ekki hafi Jóhannes vitað af hverju nefndur Halldór hafi slegið sig.

Jóhannes mætti á lögreglustöð næsta dag og lagði fram kæru á hendur ákærða. Við það tækifæri greindi Jóhannes svo frá að hann hafi farið á veitingastaðinn Hressingarskálann í Austurstræti aðfaranótt fimmtudagsins 20. apríl 2006. Með honum í för hafi verið bróðir Jóhannesar og kona bróður Jóhannesar. Jóhannes kvaðst hafa neytt áfengis þessa nótt en ekki hafa verið ofurölvi. Á dansgólfi staðarins hafi Jóhannes hitt fyrir ákærða. Kvaðst Jóhannes hafa þekkt hann þar sem ákærði hafi verið meðeigandi að fyrirtæki sem Jóhannes hafi nýtt sér í sambandi við rekstur á eigin fyrirtæki. Kvað Jóhannes þau viðskipti hafa verið án vandkvæða og Jóhannesi ekki kunnugt um nein ágreiningsmál vegna þeirra. Hafi Jóhannes kastað kveðju á ákærða á dansgólfinu og spurt hann hvernig gengi. Um klukkustund hafi liðið frá því Jóhannes hafi komið inn á staðinn þar til hann hafi orðið fyrir árásinni. Hafi hann verið búinn að dansa nokkrum sinnum á dansgólfinu og þá m.a. við Bjarneyju Steinunni Einarsdóttur. Jóhannes hafi síðan staðið úti í horni á dansgólfinu og snúið að bróður sínum. Hafi ákærði þá komið á vinstri hlið Jóhannesar og hafi hann slegið Jóhannes þungt högg á höfuðið, líklegast með flösku. Höggið hafi lent vinstra megin á enni við augabrún. Einungis hafi verið um eitt högg að ræða. Sprungið hafi fyrir og mikið blætt. Hafi ákærði verið rifinn frá af einhverju fólki á staðnum. Ekki kvaðst Jóhannes vita hvað orðið hafi af ákærða. Hafi Bjarney, sem ekki hafi verið búin að drekka áfengi, ekið Jóhannesi upp á slysadeild. Á slysadeild hafi allmörg spor verið tekin til að loka tveim sárum við vinstri augabrún Jóhannesar. Er fært í skýrsluna að Jóhannes sé við skýrslugjöfina með sáraumbúðir við augað og með áberandi glóðarauga.

Ákærði gaf skýrslu hjá lögreglu fimmtudaginn 2. nóvember 2006. Eftir að honum hafði verið kynnt kæruefnið kvaðst ákærði ekki kannast við umrætt atvik ,,í fljótu bragði, en það er langt síðan þetta var.” Kvaðst ákærði muna eftir að hafa farið nokkrum sinnum á veitingastaðinn Hressingarskálann í Austurstræti, en ekki kvaðst ákærði kannast við að hafa lent í átökum við neinn. Undir ákærða var borin lýsing er Jóhannes og vitni gáfu á atvikum hjá lögreglu. Kvaðst hann eftir sem áður ekki kannast við atvikið. Er undir hann var borin lýsing Bjarneyjar Steinunnar Einarsdóttir á atvikum hjá lögreglu, þar sem hún bar m.a. að ákærði hafi lamið Jóhannes, kvaðst ákærði ekki hafa farið út með henni.

Fyrir dómi greindi ákærði svo frá að hann kannaðist við að hafa verið á veitingastaðnum Hressingarskálanum í Austurstræti í Reykjavík aðfaranótt fimmtu dagsins 20. apríl 2006. Kvaðst ákærði muna talsvert eftir atvikum þessarar nætur. Hann hafi ekki lamið Jóhannes Ragnar í andlitið með flösku, svo sem honum væri gefið að sök, né hafi hann séð einhverja aðra gera slíkt hið sama. Ákærði kvaðst hafa komið á veitingastaðinn um kl. 2.00 um nóttina, en honum samferða hafi verið Bjarney Steinunn Einarsdóttir og Heiðdís Erla Hermóðsdóttir. Þá kvaðst ákærði kannast við Jóhannes Ragnar, en ákærði hafi einhverju sinni unnið verk fyrir Jóhannes. Einnig kvaðst ákærði vita hver Bjarni Guðni, bróðir Jóhannesar væri.

Kvaðst ákærði muna eftir að hafa hitt Jóhannes stutt á staðnum og hafi engin leiðindi verið á milli þeirra. Kvaðst ákærði hafa yfirgefið staðinn um kl. 4.00 til 4.30 um nóttina. Ákærði kvaðst hafa verið ölvaður um nóttina. Hafi hann dansað eitthvað inni á staðnum. Þá hafi hann hitt tiltekna kunningja sína á staðnum, þá Daða Þór Jónsson, Elvar Þór Grétarsson og Brynjar Loga Þórisson. Kvaðst ákærði ekki hafa munað eftir kvöldinu er hann hafi gefið lögregluskýrslu vegna málsins, en hafa rifjað það upp eftir að málið hafi komið fyrir dóminn. Væri það ástæða þess hvernig hann hafi borið við skýrslugjöf hjá lögreglu.

Jóhannes Rúnar Jóhannesson bar fyrir dómi um atvik í aðalatriðum með sama hætti og er hann haf skýrslu hjá lögreglu. Kvaðst Jóhannes hafa verið að dansa við Bjarneyju Steinunni Einarsdóttir á dansgólfinu um nóttina. Hafi hann drukkið áfengi þessa nótt en ástand hans samt sem áður verið eðlilegt. Hafi ákærði gengið að Jóhannesi og slegið hann í höfuðið. Á þeirri stundu hafi Jóhannes snúið að hálfu að bróður sínum og að hálfu á móti ákærða, sem hafi komið aðvífandi. Hafi Jóhannes séð ákærða rétt áður en ákærði hafi slegið Jóhannes. Um hafi verið að ræða eitt högg og hafi Jóhannes ekki tekið eftir því hvort flaska hafi verið notuð. Hann hafi hins vegar séð gler er hann hafi snúið sér að ákærða. Hafi Jóhannes fallið í gólfið við höggið. Bróðir Jóhannesar hafi þá ætlað að rjúka í ákærða. Því hafi hins vegar verið afstýrt. Ákærði hafi horfið á brott og Bjarney ekið Jóhannesi, Bjarna Guðna og Margréti á slysadeild. Jóhannes kvaðst ekki hafa þekkt Bjarneyju fyrir þennan atburð. Hafi hann verið frá vinnu eftir atburðinn, en hann hafi fengið tvo slæma skurði á höfuðið. Sárið grói vel, en lýtalæknir hafi greint Jóhannesi frá því að ekkert væri unnt að aðhafast varðandi skurðina fyrr en ári eftir að áverkinn hafi komið til. Bjarni Guðni Jóhannesson kvaðst hafa verið að skemmta sér umrætt sinn með kærustu sinni, Margréti Kristjánsdóttur, og bróður sínum. Hafi Bjarni drukkið áfengi um kvöldið og nóttina en ekki orðið mjög ölvaður. Á veitingastaðnum Hressingarskálanum hafi Bjarni séð mann er hann hafi kannast við. Viðkomandi hafi verið að vinna hjá tilteknu fyrirtæki sem hafi tekið að sér verk á vinnustað Jóhannesar Ragnars. Bjarni hafi ekkert rætt við manninn, einungis kastað kveðju á hann, en Jóhannes heilsað honum og rætt lítillega við hann. Bjarni, Jóhannes og Margrét hafi einhverju síðar verið á dansgólfinu og verið búin að vera þar um stund. Hafi vinkona mannsins, Bjarney Einarsdóttir, dansað við Bjarna og Jóhannes. Þá hafi viðkomandi maður komið aðvífandi og slegið Jóhannes í höfuðið með flösku sennilega undan bjór sem maðurinn hafi verið með í hendi. Um hafi verið að ræða eitt högg. Hafi atburðarásin átt sér stað beint fyrir framan Bjarna og hann séð hana mjög vel. Kvaðst Bjarni þegar hafa snúið sér að manninum, en þá hafi Margrét gengið á milli þeirra. Auk þess hafi vinir mannsins gripið í manninn og leitt hann í burtu. Þá hafi hann séð hvar Jóhannes hafi hallað sér upp að vegg og haldið um höfuðið. Eftir árásina hafi maðurinn staðið rétt utan við dansgólfið en stuttu síðar látið sig hverfa. Bjarney hafi í framhaldinu ekið Jóhannesi, Bjarna og Margréti upp á slysadeild. Bjarney hafi verið að skemmta sér á veitingastaðnum ásamt árásarmanninum og vitað full deili á honum.

Bjarney Steinunn Einarsdóttir kvaðst hafa verið að skemmta sér umrætt kvöld ásamt vinafólki sínu, þeim Heiðdísi Erlu Hermóðsdóttur og ákærða. Hafi þau farið á nokkra skemmtistaði um kvöldið og nóttina og síðan farið á Hressingarskálann. Kvaðst Bjarney ekki hafa drukkið áfengi þetta kvöld, en hún hafi ekið bifreið um kvöldið. Er þau hafi verið búin að vera inni á veitingastaðnum Hressingarskálanum í stuttan tíma hafi hún og Heiðdís farið á dansgólfið. Stuttu síðar hafi ákærði komið þangað einnig. Á dansgólfinu hafi hún hitt Bjarna Guðna Jóhannesson, Margréti Kristjánsdóttur og Jóhannes Ragnar Jóhannesson. Hafi hún rætt nokkuð við þau og Heiðdís Erla orðið pirruð við það. Þá hafi Heiðdís og ákærði farið að ,,kýta” eitthvað og hafi Bjarney þá snúið sér við og dansað áfram við Bjarna, Margréti og Jóhannes. Á einum tímapunkti hafi hún séð Heiðdísi benda ákærða á Jóhannes með fingri. Hafi hún því næst séð ákærða ganga að Jóhannesi, taka upp tvær flöskur undan bjór, og hafi hann reitt þær til höggs og slegið Jóhannes. Hafi ákærði misst eina flöskuna en hin hafi hafnað í andliti Jóhannesar. Hafi hún strax séð að Jóhannes hafi verið með skurð í andliti og hafi fossblætt úr honum. Jóhannes hafi gripið strax um andlitið og hnigið niður. Ákærði hafi gengið út af staðnum strax eftir höggið og Heiðdís fylgt honum eftir. Hafi Bjarney ekki farið með honum og Heiðdísi þar sem henni hafi ekki fundist það rétt sem ákærði hafi gert. Hafi Bjarney séð allt sem fram hafi farið á milli ákærða og Jóhannesar og hafi árásin verið með öllu tilefnislaus. Eftir þetta hafi hún, ásamt Jóhannesi, Bjarna og Margréti, farið upp á slysadeild. Hafi Bjarney ekið þeim þangað. Allan þann tíma hafi Heiðdís verið að reyna að hringja í Bjarneyju, en hún ekki viljað taka það símtal. Á slysadeild hafi hún loks svarað Heiðdísi, sem hafi spurt hana hvað hún væri að gera. Hafi hún tjáð henni að hún hafi ekið Jóhannesi á slysadeild.

Margrét Kristjánsdóttir kvaðst umrædda nótt hafa verið að skemmta sér með Bjarna og Jóhannesi. Þau, ásamt stúlku að nafni Bjarney, hafi verið á dansgólfi veitingastaðarins Hressingarskálans. Hafi henni verið litið yfir til Jóhannesar og þá séð hvar flaska hafi lent á andliti hans. Höggið hafi greinilega verið þungt og hafi Jóhannes gripið um andlitið. Kvaðst Margrét ekki viss um hvort flöskunni hafi verið hent í andlit Jóhannesar eða hvort hann hafi verð laminn með henni. Hafi hún ekki séð árásarmanninn fyrr en rétt eftir að Jóhannes hafi fengið flöskuna í andlitið. Þá hafi árásarmaðurinn staðið rétt hjá þeim. Hafi hún gengið á milli mannsins og Bjarna til að varna því að til frekari átaka kæmi. Hafi maðurinn látið sig hverfa mjög fljótlega. Bjarney hafi síðan ekið þeim upp á slysadeild þar sem Jóhannes hafi verið skoðaður og gert að sárum hans.

Heiðdís Erla Hermóðsdóttir kvaðst einungis einu sinni hafa farið út að skemmta sér með Bjarneyju Steinunni Einarsdóttur og ákærða. Hafi þau farið á veitingastaðinn Hressingarskálann. Þar hafi hún, ákærði og Bjarney verið að dansa saman. Ákærði hafi þar hitt einhverja vini sína. Bjarney hafi á einhverjum tíma horfið. Eftir það hafi þau farið á veitingastaðinn Gauk á Stöng. Hafi Heiðdís Erla ekki séð ákærða lenda í átökum þetta kvöld. Hafi hún þó ekki séð ákærða í einhverja stund á meðan hún hafi verið að dansa.

Daði Þór Jónsson, Elvar Þór Grétarsson og Brynjar Logi Þórisson kváðust hafa hitt ákærða á veitingastaðnum Hressingarskálanum aðfaranótt fimmtudagsins 20. apríl 2006. Kváðust þeir hafa komið á staðinn um kl. 2.00 um nóttina og verið þar í um eina til eina og hálfa klukkustund. Hafi þeir allir, sem og Heiðdís Erla, setið við borð og drukkið áfengi. Ekki kváðust þeir hafa séð ákærða æsa sig eða lenda í átökum þessa nótt. Hann hafi að mestu leyti verið með þeim, þó svo hann og þeir hafi farið á barinn eða á snyrtinguna. Þá hafi ákærði sennilega fari að dansa á einhverjum tíma. Þeir hafi farið með ákærða út af staðnum síðar um nóttina og þau öll farið á veitingastaðinn Gauk á Stöng.

Theodór Friðriksson læknir staðfesti læknisvottorð er frá honum stafar og er í rannsóknargögnum málsins. Theodór kvað erfitt að fullyrða eftir hvað sár á höfði Jóhannesar hafi verið. Það hafi þó getað komið heim og saman við sögu sjúklings. Sárið hafi verið eins og eftir þungt högg. Gæti höggið hafa verið eftir hnefa eða flösku.

Niðurstaða:

Ákærði neitar sök og kveðst ekki hafa veitt Jóhannesi Ragnari þá áverka er um getur í ákæru.

Í máli þessu liggur fyrir framburður nokkurra aðila sem telja sig hafa verið vitni að atburðinum. Jóhannes Ragnar kveður sig hafa borið kennsl á ákærða, auk þess sem Bjarney Steinunn, sem vel þekkti ákærða og var að skemmta sér með honum þessa nótt, hefur fullyrt að ákærði hafi veist að Jóhannesi Ragnari á veitingastaðnum. Þá liggur fyrir framburður Bjarna Guðna, sem einnig fullyrti að hann hafi kannast við ákærða frá fyrri tíð. Framburður þessara þriggja vitna er á einn veg um að ákærði hafi veist að Jóhannesi þessa nótt og valdið honum áverkum. Jóhannes hefur sjálfur ekki getað fullyrt hvort ákærði hafi verið með flösku í hendi er hann hafi slegið Jóhannes, en borið að hann hafi séð gler í hendi ákærða rétt í þann mund er hann hafi slegið sig. Bjarney Steinunn og Bjarni Guðni fullyrða hins vegar að ákærði hafi verið með flösku í hendi við atlöguna. Framburður Bjarneyjar er einkar áreiðanlegur þar sem hún var ekki undir áhrifum áfengis þessa nótt, auk þess sem hún var í vináttutengslum við ákærða. Áverkar Jóhannesar Ragnars samkvæmt ákæruskjali eru í samræmi við læknisvottorð sem ritað hefur verið eftir að Jóhannes leitaði á slysadeild Landspítala háskjólasjúkrahúss í framhaldi af árásinni. Þegar virt eru þessi atriði sem hér að framan eru rakin er að mati dómsins sannað að ákærði hafi valdið Jóhannesi þeim áverkum er um getur í ákæru. Fær framburður ákærða og annarra vitna þessu ekki haggað, enda áttu flest hin vitnin ekki órofna samverustund með ákærða á veitinga staðnum þessa nótt. Þá verður ekki fram hjá því litið að framburður ákærða í málinu hefur verið nokkuð á reiki. Vildi hann ekki kannast við að hafa verið að skemmta sér með Bjarneyju Steinunni er tekin var af honum lögregluskýrsla eða að hafa hitt Jóhannes á veitingastað í miðbæ Reykjavíkur. Fyrir dómi mundi ákærði þetta skýrt og bar þá á annan veg. Dregur þetta nokkuð úr trúverðugleika framburðar hans. Í ljósi þess að ákærði beitti flösku sem vopni var árásin sérstaklega hættuleg. Verður ákærði því sakfelldur samkvæmt ákæru og er háttsemin þar rétt heimfærð til refsiákvæða.

Ákærði er fæddur í mars 1976. Á árunum 1997 til 2000 var hann þrisvar sinnum dæmdur fyrir brot gegn almennum hegningarlögum. Þá gekkst hann tvisvar sinnum undir sáttir fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni annars vegar og umferðarlögum hins vegar. Á árinu 2004 gekkst ákærði undir sátt vegna ölvunar aksturs. Hann gekkst undir viðurlagaákvörðun á árinu 2005 fyrir samskonar brot. Loks gekkst hann undir sátt 13. júlí 2006 fyrir akstur sviptur ökurétti. Brot ákærða í þessu máli var framið áður en ákærði gekkst undir síðastgreindu sáttina. Ber því að tiltaka refsingu eftir 78. gr. laga nr. 19/1940, sbr. 77. gr. laganna. Árás ákærða á Jóhannes Ragnar var með öllu tilefnislaus. Var hún fyrirvaralaus, harkaleg og gat leitt til mjög alvarlegra varanlegra meiðsla. Á ákærði sér engar málsbætur. Er refsing hans ákveðin fangelsi í 6 mánuði. Í ljósi framgöngu ákærða umrætt sinn verður refsingin ekki bundin skilorði.

Af hálfu Jóhannesar Ragnars hefur verið krafist skaðabóta að fjárhæð 390.921 króna, auk vaxta. Er krafist miskabóta að fjárhæð 300.000 krónur, útlagðs kostnaðar að fjárhæð 23.400 krónur og kostnaðar við lögmannsaðstoð að fjárhæð 67.521 króna. Um miskabótakröfu er vísað til 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 og þess að Jóhannes hafi orðið fyrir töluverðum meiðslum vegna tilhæfulausrar árásar. Hafi hann þurft að taka sér frí frá vinnu til að jafna sig eftir árásina. Hafi hann verið mjög kvalinn og þurft að jafna sig bæði líkamlega og andlega. Árás ákærða á Jóhannes var til þess fallin að valda honum miska. Eru bætur vegna háttseminnar hæfilega ákveðnar 250.000 krónur. Að því er varðar kröfu um bætur vegna útlagðs kostnaðar þá hafa verið lögð fram gögn vegna læknisvottorðs. Þá hefur verið lagt fram afrit af kvittun vegna fatnaðar. Jóhannes fullyrðir að skyrta, bindi og skór hafi eyðilagst vegna blóðs. Er þessi kröfuliður að mati dómsins fullnægjandi rökstuddur og verður allur tekinn til greina.

Niðurstaða alls þessa er því sú að ákærði greiði skaðabætur að fjárhæð 273.400 krónur. Um vexti fer sem í dómsorði greinir. Þá verður ákærði dæmdur til að greiða Jóhannesi kostnað sem hann hefur haft af því að halda fram kröfu sinni, sbr. 4. mgr. 172. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991 með áorðnum breytingum. Lögmannskostnaður telst hæfilega ákveðinn 60.000 krónur.

Ákærði greiði sakarkostnað samkvæmt yfirliti lögreglustjóra. Þá greiði hann málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, að viðbættum virðisaukaskatti, með þeim hætti er í dómsorði greinir.

Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Karl Ingi Vilbergsson fulltrúi lögreglu stjórans á höfuðborgarsvæðinu.

D ó m s o r ð:

Ákærði, Halldór Egill Kristjánsson, sæti fangelsi í 6 mánuði.

Ákærði greiði Jóhannesi Ragnari Jóhannessyni, kt. [...], 273.400 krónur í skaða bætur ásamt vöxtum skv. 1. mgr. 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001, frá 20. apríl 2006 til 2. desember 2006, en dráttarvöxtum skv. 1. mgr. 6. gr. laganna frá þeim degi til greiðsludags og 60.000 krónur í lögmannskostnað.

Ákærði greiði 284.660 krónur í sakarkostnað, þ.m.t. málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns Herdísar Hallmarsdóttur héraðsdómslögmanns 258.960 krónur.

Símon Sigvaldason.