Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-1624/2006:

Ákæruvaldið

(Dagmar Arnardóttir fulltrúi)

gegn

Arturas Ravoitas

Danlord Ragmat Mayubay

Eric Baldvinssyni

Jonas Kaminskas

Junierey Kenn Pardillo Juarez

Michael Jade Canada Aratea

Sadun Lankathilaka

(Sveinn Andri Sveinsson hrl)

Ávana- og fíkniefni. Umferðarlagabrot. Þjófnaður.

Sjö ungmenni dæmd fyrir þjófnaði, fíkniefnalagabrot og umferðarlagabrot. Frestað var ákvörðun refsingar yfir þeim flestum en eitt ungmennið dæmt í 2ja mánaða fangelsi þar sem einn mánuður var skilorðsbundinn.

Mál þetta, sem dómtekið var í dag, er höfðað með ákæru útgefinni af lögreglustjóranum í Reykjavík 26. september 2006, á hendur Arturas Ravoitas, kt. [...], Skúlagötu 56, Reykjavík, Danlord Ragmat Mayubay, kt. [...], Hólabraut 10, Reykjanesbæ, Eric Baldvinssyni, kt. [...], Laugavegi 20b, Reykjavík, Jonasi Kaminskas, kt. [...], Laugavegi 135, Reykjavík, Junierey Kenn Pardillo Juarez, kt. [...], Jórufelli 12, Reykjavík, Michael Jade Canada Aratea, kt. [...], Tunguseli 10, Reykjavík, Sadun Lankathilaka, kt. [...], Snorrabraut 22, Reykjavík, fyrir eftirtalin brot framin í Reykjavík á árinu 2006, nema annað sé tekið fram:

I

Ákærðu Eric, Junierey og Jonasi fyrir tilraun til þjófnaðar í félagi, með því að hafa aðfaranótt mánudagsins 1. maí í auðgunarskyni brotist inn í veitingastaðinn Papinos-pizzur að Núpalind 1 í Kópavogi, ákærðu Junierey og Jónasi fóru inn á staðinn með því að spenna upp glugga og reyndu að brjóta upp peningakassa án árangurs en hurfu af vettvangi vegna hávaða frá þjófavarnarkerfi og ákærði Eric ók meðákærðu Junierey og Jonasi að Papinos-pizzum og beið meðan á innbrotinu stóð og ók meðákærðu frá vettvangi, þrátt fyrir að honum væri ljóst hvað gerst hafði.

Þetta er talið varða við 244. gr., sbr. 1. mgr. 20. gr., almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

II

Ákærða Sadun fyrir hlutdeild í ofangreindu broti í lið I með því að hafa liðsinnt meðákærðu Eric, Junierey og Jonasi, og skipulagt með þeim innbrotið og verið farþegi í bifreiðinni er henni var ekið að og frá vettvangi, þrátt fyrir að ákærða væri ljóst hvað fram færi.

Þetta er talið varða við 244. gr., sbr. 1. mgr. 20. gr., sbr. 1. mgr. 22. gr., almennra hegningarlaga.

III

Ákærðu Junierey, Arturas og Sadun fyrir þjófnað í félagi, með því að hafa aðfaranótt laugardagsins 17. september 2005 brotist inn í söluturninn Videóholtið að Melabraut í Hafnarfirði, ákærðu Junierey og Arturas fóru inn á staðinn, með því að brjóta rúðu, og stálu 3.600 kr. í skiptimynt og sælgæti að verðmæti kr. 1.570 og ákærði Sadun ók meðákærðu að Videoholtinu og beið meðan á innbrotinu stóð og ók meðákærðu frá vettvangi með þýfið, þrátt fyrir að ákærða væri ljóst hvað fram færi.

Þetta er talið varða við 244. gr. almennra hegningarlaga.

IV

Ákærðu Michael og Jonas fyrir hlutdeild í ofangreindum þjófnaði í lið III með því að hafa liðsinnt meðákærðu Junierey, Arturas og Sadun og skipulagt með þeim innbrotið og verið farþegar í bifreiðinni er henni var ekið að og frá vettvangi þrátt fyrir að ákærðu væri ljóst hvað gerst hafði, auk þess sem fyrir lá að hluti ágóðans skyldi koma í þeirra hlut.

Þetta er talið varða við 244. gr., sbr. 1. mgr. 22 .gr.,  almennra hegningarlaga.

V

Ákærða Eric, Danlord, Jonas og Junierey fyrir þjófnað, með því að hafa í félagi aðfaranótt mánudagsins 22. maí brotist inn í húsnæði Hársnyrtistofu Hafdísar að Rangárseli 4, ákærði Eric braut rúðu á vettvangi, ákærði Junierey fór inn í húsnæðið og stal kr. 3.700 í skiptimynt og ákærðu Eric, Danlord og Jonas stóðu vörð fyrir utan meðan á innbrotinu stóð.

Þetta er talið varða við 244. gr. almennra hegningarlaga.

VI

Ákærðu Danlord og Eric fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa aðfaranótt föstudagsins 30. júní í bifreiðinni ZS-266 í Stakkahrauni í Hafnarfirði í félagi haft í vörslum sínum 9,89 g af marihuana, sem lögreglumenn fundu við leit í bifreiðinni.

Þetta er talið varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65, 1974, sbr. lög nr. 13, 1985 og lög nr. 68, 2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233, 2001, sbr. reglugerð nr. 848, 2002.

VII

Ákærða Arturas fyrir fíkniefnalagabrot með því að hafa aðfaranótt laugar dagsins 17. september 2005 í Lækjargötu í Hafnarfirði í bifreiðinni TJ-321 haft í vörslum sínum 0,09 g af tóbaksblönduðu kannabisefni, sem lögreglan fann við leit á ákærða á lögreglustöð.

Þetta er talið varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.

VIII

Ákærða Danlord fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa fimmtudaginn 23. mars við Skúlagötu 68 í Reykjavík haft í vörslum sínum 2,48 g af marihuana, sem lögreglumenn fundu við leit á ákærða.

Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni, sbr. lög nr. 13, 1985 og lög nr. 68, 2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni, sbr. reglugerð nr. 848, 2002.

IX

Ákærða Eric fyrir umferðarlagabrot:

  1. Fimmtudaginn 18. maí ekið bifreiðinni ST-976 með 181 km hraða á klst. vestur Reykjanesbraut í Vatnleysustrandarhreppi, á vegarkafla við Strandarheiði, þar sem leyfður hámarkshraði var 90 km á klst.

    Þetta er talið varða við 2. mgr. 37. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987.

  2. Föstudaginn 30. júní ekið bifreiðinni ZS-266 sviptur ökurétti, um Stakkahraun í Hafnarfirði, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.

    Þetta er talið varða við 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr., umferðarlaga.

  3. Föstudaginn 28. júlí ekið bifreiðinni JR-139 sviptur ökurétti, norður Hofsvallagötu, yfir Hringbraut og að Sólvallagötu við Bræðraborgarstíg þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.

    Þetta er talið varða við 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr., umferðarlaga.

X

Ákærði Jonasi fyrir þjófnaði:

  1. Miðvikudaginn 14. desember 2005 í versluninni Hagkaup í Kringlunni 4-12 stolið 2 tölvuleikjum samtals að verðmæti kr. 10.698.
  2. Sunnudaginn 29. janúar í versluninni Nóatúni að Nóatúni 17 stolið matvörum fyrir samtals kr. 2.928.

    Eru brot þessi talin varða við 244. gr. almennra hegningarlaga.

    XI Ákærða Junierey fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa miðvikudaginn 17. maí í bifreiðinni ST-976 sem stöðvuð var af lögreglu í Hafnarstræti haft í vörslum sínum 0,13 g af amfetamíni.

    Þetta er talið varða við 2. gr., sbr. 5. gr., laga um ávana- og fíkniefni, sbr. lög nr. 13/1985, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni, sbr. reglugerð nr. 848, 2002.

    XII Þess er krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar og jafnframt að gerð verði upptæk 0,09 g af tóbaksblönduðu kannabisefni, 12,37 g af marihuana og 0,13 g af amfetamíni, sem hald var lagt á, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.  Jafnframt er þess krafist að ákærði Eric verði dæmdur til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 101. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 25. gr. laga nr. 44/1993.

    Í málinu gerir Gunnar Árni Þorleifsson, kt. [...], kröfu um að ákærðu Junierey, Arturas, Sadun, Michael og Jonas verði dæmdir til greiðslu skaðabóta að fjárhæð kr. 74.982.

    Af hálfu ákærðu er krafist vægustu refsingar er lög leyfa.

    Farið var með mál þetta samkvæmt 125. gr. laga nr. 19/1991 og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og verjanda ákærðu hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

    Ákærðu hafa allir skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærðu og öðrum gögnum málsins að ákærðu eru sekir um þá háttsemi sem þeim er gefin að sök og eru brot þeirra rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.

    Ákærði, Arturas Ravoitas, er fæddur í maí 1988. Hann gekkst undir sátt 14. janúar 2005 fyrir fíkniefnalagabrot. Hann gekkst aftur undir sátt 19. apríl sama ár fyrir samskonar brot. Loks gekkst hann undir sátt 9. febrúar 2006 fyrir sama brot. Ákærði, Danlord Ragmat Mayubay, er fæddur í nóvember 1988. Hann hefur ekki áður sætt refsingu svo kunnugt sé. Ákærði, Eric Baldvinsson, er fæddur í desember 1986. Frestað var ákvörðun refsingar yfir honum 2003 fyrir líkamsárás. Hann gekkst undir viðurlagaákvörðun 2. nóvember 2005 fyrir fíkniefnalagabrot. Hann gekkst undir sátt 22. maí 2006 fyrir hraðakstur. Þá gekkst hann undir sátt hjá lögreglustjóra 30. maí 2006 fyrir réttindaleysisakstur. Hann gekkst aftur í tvígang undir sáttir mánuði síðar fyrir sama brot, sem og fyrir fíkniefnalagabrot. Ákærði, Jonas Kaminskas, er fæddur í apríl 1989. Hann hefur ekki áður sætt refsingu svo kunnugt sé. Ákærði, Junierey Kenn Pardillo Juarez, er fæddur í júní 1988. Hann hefur ekki áður sætt refsingu svo kunnugt sé. Ákærði, Michael Jade Canada Aratea, er fæddur í september 1989. Hann hefur ekki áður sætt refsingu svo kunnugt sé. Ákærði, Sadun Lankathilaka, er fæddur í október 1985. Hann gekkst undir sátt hjá lögreglustjóra 12. maí 2005 fyrir fíkniefnalagabrot. Hann gekkst undir sátt 9. desember 2005 fyrir ölvunar- og réttindaleysisakstur. Hann var dæmdur í sekt 26. apríl 2006 fyrir hraðakstur og réttindaleysisakstur. Loks gekkst hann undir viðurlagaákvörðun 6. september 2006 fyrir brot gegn umferðarlögum, þ.á m. vegna réttindaleysisaksturs og vegna brota gegn lögum um ávana- og fíkniefni. Brot ákærða Arturas samkvæmt III. kafla ákæru er framið áður en ákærði gekkst undir sátt hjá lögreglustjóra 9. febrúar 2006 og því hegningarauki. Brot ákærða Eric, samkvæmt I., V. og 1. tl. IX. kafla ákæru er framið fyrir fjórar sáttir hjá lögreglustjóra, en brot hans samkvæmt VI. og 2. og 3. tl. IX. kafla fyrir þrjár sáttir hjá lögreglustjóra. Eru brotin hegningarauki að því leyti. Loks eru brot ákærða Sadun samkvæmt II. kafla ákæru framið fyrir dóm og viðurlagaákvörðun frá árinu 2006, en brot samkvæmt III. kafla framið fyrir sáttina frá í desember 2005 og dóminn og viðurlagaákvörðunina frá árinu 2006. Eru brotin hegningarauki að þessu leyti. Dómurinn telur fært, í ljósi sakaferils ákærðu og þeirra brota sem þeir hafa verið sakfelldir fyrir, að fresta ákvörðun refsingar ákærðu Arturas, Danlord Ragmat, Jonas, Junierey, Michael Jade og Sadun. Er nánar kveðið á um það í dómsorði. Í ljósi sakaferils ákærða Eric verður hann dæmdur í tveggja mánaða refsingu. Verður einungis einn mánuður refsingarinnar skilorðsbundinn.

    Í ljósi samþykkis bótakröfu greiði ákærðu Arturas, Jonas, Junierey, Michael og Sadun í félagi Gunnari Árna Þorleifssyni 74.982 krónur ásamt vöxtum samkvæmt 8. gr. laga nr. 38/2001 frá 17. september 2005 til 21. desember 2006 en vöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 frá þeim degi til greiðsludags.

    Með vísan til lagaákvæða í ákæru skulu upptæk gerð til ríkissjóðs 0,09 g af tóbaksblönduðu kannabisefni, 12,37 g af marihuana og 0,13 g af amfetamíni sem lagt var hald á við rannsókn málsins.

    Ákærði Eric er sviptur ökuréttindum í 6 mánuði frá 18. maí 2006 að telja.

    Ákærði Danlord greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Sveins Andra Sveinssonar hæstaréttarlögmanns 62.250 krónur. Ákærði Eric greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Sveins Andra Sveinssonar hæstaréttarlögmanns 62.250 krónur. Ákærði Jonas greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Sveins Andra Sveinssonar hæstaréttarlögmanns 62.250 krónur. Ákærði Sadun greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Sveins Andra Sveinssonar hæstaréttarlögmanns 109.560 krónur.

D ó m s o r ð :

Frestað er ákvörðun refsingar ákærðu, Arturas Ravoitas, Danlord Ragmat Mayubay, Jonas Kaminskas, Junierey Kenn Pardillo Juarez, Michael Jade Canada Aratea og Sadun Lankathilaka og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá birtingu dómsins, haldi ákærðu hver um sig almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

Ákærði, Eric Baldvinsson sæti fangelsi í tvo mánuði. Frestað er fullnustu eins mánaða af refsivistinni og falli sá hluti refsingarinnar niður að tveimur árum liðnum frá birtingu dómsins, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

Ákærðu Arturas, Jonas, Junierey, Michael og Sadun greiði í félagi Gunnari Árna Þorleifssyni 74.982 krónur ásamt vöxtum samkvæmt 8. gr. laga nr. 38/2001 frá 17. september 2005 til 21. desember 2006 en vöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 frá þeim degi til greiðsludags.

Upptæk eru gerð til ríkissjóðs 0,09 g af tóbaksblönduðu kannabisefni, 12,37 g af marihuana og 0,13 g af amfetamíni sem lagt var hald á við rannsókn málsins.

Ákærði Eric er sviptur ökuréttindum í 6 mánuði frá 18. maí 2006 að telja.

Ákærði Danlord greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Sveins Andra Sveinssonar hæstaréttarlögmanns 62.250 krónur. Ákærði Eric greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Sveins Andra Sveinssonar hæstaréttarlögmanns 62.250 krónur. Ákærði Jonas greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Sveins Andra Sveinssonar hæstaréttarlögmanns 62.250 krónur. Ákærði Sadun greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Sveins Andra Sveinssonar hæstaréttarlögmanns 109.560 krónur.

Símon Sigvaldason.