Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. E-7408/2006:

E-7408/2006:

Dóra Dröfn Skúladóttir

(Gísli Guðni Hall hrl)

gegn

Landspítala -

háskólasjúkrahúsi

(Sigurður Gísli Gíslason hdl)

Stjórnsýsla. Ógilding stjórnarathafnar.

Ákvörðun stefnda, um að flytja stefnanda til í starfi, var dæmd ógild.

Mál þetta var höfðað 4. desember 2006. Stefnandi er Dóra Dröfn Skúladóttir, Hraunbæ 56, Reykjavík. Stefndi er Landspítali - háskólasjúkrahús, Eiríksgötu 5, 101 Reykjavík.

Málið var dómtekið 18. maí 2007 og dómur kveðinn upp 25. maí 2007. Með dómi Hæstaréttar 15. ágúst 2007 í máli nr. 3323/2007 var frávísunarþáttur héraðsdóms, er laut að kröfu stefnanda um ógildingu ákvörðunar stefnda um að flytja hana til í starfi, felldur úr gildi, og lagt fyrir héraðsdóm að taka hana til efnislegrar meðferðar. Málið var endurupptekið í þessu skyni 27. september sl. og tekið til dóms að nýju að loknum munnlegum málflutningi.

Dómkrafa stefnanda, sem lagt hefur verið fyrir héraðsdóm að taka til efnismeðferðar, er að ógilt verði ákvörðun sviðsstjóra hjúkrunar á geðsviði stefnda um að flytja stefnanda af deild 33-C á Landspítala - háskólasjúkrahúsi við Hringbraut yfir á deild 15 á Kleppi, sem var tilkynnt stefnanda með bréfi dagsettu 17. október 2006. Þá krefst stefnandi málskostnaðar.

Stefndi krefst sem fyrr sýknu auk málskostnaðar.

Um atvik máls, málsástæður og lagarök aðila vísast til dóms héraðsdóms frá 25. maí 2007.

Niðurstaða

Stefnandi krefst þess að ákvörðun stefnda um tilfærslu hennar milli deilda á Landspítala – háskólasjúkrahúsi verði ógilt með dómi. Jafnframt krefst hún miskabóta. Með dómi héraðsdóms 25. maí 2007 voru stefnanda dæmdar miskabætur, en kröfu um ógildingu ákvörðunar um tilfærslu í starfi var vísað frá dómi. Eins og fram kemur í dómi Hæstaréttar í máli nr. 3323/2007 hefur krafa um ógildingu á ákvörðun stefnda, um að flytja stefnanda til í starfi, sjálfstæða þýðingu fyrir hana.

Héraðsdómari lítur svo á að krafa stefnanda um ógildingu feli ekki í sér að þess sé krafist að hún verði sett aftur í starf sitt á deild 33-C á Landspítala - háskólasjúkrahúsi, heldur geti hún átt aðra hagsmuni af því að fá slíkan dóm, eins og að krefjast skaðabóta vegna fjártjóns, en hún hefur haft uppi áskilnað um slíka kröfu. Í dómi héraðsdóms 25. maí 2007 var komist að þeirri niðurstöðu að málefnalegar ástæður hefðu ekki verið færðar fram þegar ákvörðun var tekin um að flytja stefnanda til í starfi og að ákvörðunin hafi verið meira íþyngjandi fyrir hana en efni stóðu til. Þannig var ákvörðunin haldin verulegum annmörkum og fól hún í sér brot gegn æru og persónu stefnanda. Að öllu þessu virtu verður fallist á ógildingarkröfu stefnanda, eins og nánar greinir í dómsorði.

Eftir þessum úrslitum verður stefndi dæmdur til að greiða stefnanda 168.075 krónur í málskostnað, að virðisaukaskatti meðtöldum.

Dóm þennan kveður upp Sandra Baldvinsdóttir, settur héraðsdómari.

D ó m s o r ð:

Ákvörðun stefnda, Landspítala - háskólasjúkrahúss, um að flytja stefnanda, Dóru Dröfn Skúladóttur, af deild 33-C á deild 15 á Kleppi, sem var tilkynnt stefnanda með bréfi dagsettu 17. október 2006, er ógild.

Stefndi greiði stefnanda 168.075 krónur í málskostnað.

Sandra Baldvinsdóttir