Héraðsdómur Reykjaness
Úrskurður 31. mars 2026.
Lykilorð
Útdráttur
Staðfest var akvörðun sýslumanns, um að endursenda sóknaraðila lögbannsbeiðni, með vísan til þeirra forsendna að bersýnlegt væri að beiðnin uppfyllti ekki skilyrði lögbanns og væri of víðtæk.
Mál þetta var þingfest 6. febrúar 2026 og tekið til úrskurðar 26. mars 2026.
Sóknaraðili er NetApp Inc., 3060 […], […], Bandaríkjunum.
Varnaraðili er Vast Data Iceland ehf., kt. […], […], […].
Dómkröfur sóknaraðila eru eftirfarandi:“
I.
Aðallega:
- Að felld verði úr gildi ákvörðun sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 26. janúar 2026, um að hafna kröfu sóknaraðila um að leggja lögbann við því að varnaraðili afhjúpi, dreifi, afhendi, geri aðgengilegt og/eða noti í starfsemi sinni eða þjónustu, eða hagnýti í eigin þágu eða í þágu þriðja aðila með öðrum hætti: a. Hvers konar trúnaðargögn í eigu sóknaraðila sem varnaraðili býr yfir; b. Kóða og annað höfundavarið efni sem felst í skýjaþjónustukerfi sóknaraðila sem virkar óháð skýjalausnum og staðsetningu, hvort sem er að hluta eða í heild. c. Hvers konar viðskiptaleyndarmál sem felast í skýjaþjónustukerfi sóknaraðila sem virkar óháð skýjalausnum og staðsetningu, svo sem uppbyggingu og arkitektúr að baki kerfinu. d. Önnur viðskiptaleyndarmál sóknaraðila, þ.m.t. upplýsingar um viðskiptavini sóknaraðila, sem og upplýsingar um einstaka samninga og skilmála viðskiptavina sóknaraðila. og um að hafna kröfu sóknaraðila um að leggja lögbann við því að varnaraðili framleiði, bjóði, setji á markað eða flytji inn, flytji út eða geymi í því skyni hugbúnað eða aðra afurð sem byggir á hvers konar viðskiptaleyndarmálum sem felast í skýjaþjónustukerfi sóknaraðila sem virkar óháð skýjalausnum og staðsetningu, svo sem uppbyggingu og arkitektúr að baki kerfinu.
- Að héraðsdómur leggi fyrir sýslumanninn á höfuðborgarsvæðinu að leggja lögbann við því að varnaraðili afhjúpi, dreifi, afhendi, geri aðgengilegt og/eða noti í starfsemi sinni eða þjónustu, eða hagnýti í eigin þágu eða í þágu þriðja aðila með öðrum hætti: a. Hvers konar trúnaðargögn í eigu sóknaraðila sem varnaraðili býr yfir; b. Kóða og annað höfundavarið efni sem felst í skýjaþjónustukerfi sóknaraðila sem virkar óháð skýjalausnum og staðsetningu, hvort sem er að hluta eða í heild. c. Hvers konar viðskiptaleyndarmál sem felast í skýjaþjónustukerfi sóknaraðila sem virkar óháð skýjalausnum og staðsetningu, svo sem uppbyggingu og arkitektúr að baki kerfinu. d. Önnur viðskiptaleyndarmál sóknaraðila, þ.m.t. upplýsingar um viðskiptavini sóknaraðila, sem og upplýsingar um einstaka samninga og skilmála viðskiptavina sóknaraðila. og að lagt verði fyrir sýslumanninn á höfuðborgarsvæðinu að leggja lögbann við því að varnaraðili framleiði, bjóði, setji á markað eða flytji inn, flytji út eða geymi í því skyni hugbúnað eða aðra afurð sem byggir á hvers konar viðskiptaleyndarmálum sem felast í skýjaþjónustukerfi sóknaraðila sem virkar óháð skýjalausnum og staðsetningu, svo sem uppbyggingu og arkitektúr að baki kerfinu.
- Að héraðsdómur leggi fyrir sýslumanninn á höfuðborgarsvæðinu að ákvarða að varnaraðila verði gert afhenda sóknaraðila öll eintök og afrit af kóða skýjaþjónustukerfis sóknaraðila sem virkar óháð skýjalausnum og staðsetningu, og hvers konar trúnaðargögnum og viðskiptaleyndarmálum í eigu sóknaraðila, hvort sem varnaraðili býr yfir þeim eða hann hefur afhent til þriðju aðila.
- Að sóknaraðila verði dæmdur málskostnaður úr hendi varnaraðila að skaðlausu.
II.
Til vara:
- Að felld verði úr gildi ákvörðun sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 26. janúar 2026, um að hafna kröfu sóknaraðila um að leggja lögbann við því að varnaraðili afhjúpi, dreifi, afhendi, geri aðgengilegt og/eða noti í starfsemi sinni eða þjónustu, eða hagnýti í eigin þágu eða í þágu þriðja aðila með öðrum hætti: a. Hvers konar trúnaðargögn í eigu sóknaraðila sem varnaraðili býr yfir; b. Kóða og annað höfundavarið efni sem felst í skýjaþjónustukerfi sóknaraðila sem virkar óháð skýjalausnum og staðsetningu, hvort sem er að hluta eða í heild. c. Hvers konar viðskiptaleyndarmál sem felast í skýjaþjónustukerfi sóknaraðila sem virkar óháð skýjalausnum og staðsetningu, svo sem uppbyggingu og arkitektúr að baki kerfinu. d. Önnur viðskiptaleyndarmál sóknaraðila, þ.m.t. upplýsingar um viðskiptavini sóknaraðila, sem og upplýsingar um einstaka samninga og skilmála viðskiptavina sóknaraðila. og um að hafna kröfu sóknaraðila um að leggja lögbann við því að varnaraðili framleiði, bjóði, setji á markað eða flytji inn, flytji út eða geymi í því skyni hugbúnað eða aðra afurð sem byggir á hvers konar viðskiptaleyndarmálum sem felast í skýjaþjónustukerfi sóknaraðila sem virkar óháð skýjalausnum og staðsetningu, svo sem uppbyggingu og arkitektúr að baki kerfinu.
- Að lagt verði fyrir sýslumanninn á höfuðborgarsvæðinu að taka lögbannsbeiðni sóknaraðila til efnismeðferðar.
- Að sóknaraðila verði dæmdur málskostnaður úr hendi varnaraðila að skaðlausu.“
Dómkröfur varnaraðila eru þær aðallega að krafist er frávísunar málsins frá dómi. Til vara er krafist höfnunar á öllum kröfum sóknaraðila. Til þrautavara er þess krafist, ef lögbannskrafan er samþykkt, að sóknaraðila verði gert að leggja fram tryggingu, 100.000.000 króna. Í öllum tilfellum er þess krafist að sóknaraðili greiði varnaraðila málskostnað samkvæmt mati dómsins, að viðbættum virðisaukaskatti.
Helstu atvik að baki máli og ágreiningsefni:
Með lögbannsbeiðni, dags. 16. janúar 2026, sem send var sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu, krafðist sóknaraðili þess að lögbann yrði gert hjá varnaraðila. Beiðnin var móttekin af sýslumanni sama dag og fékk málsnúmer 2026-….
Með bréfi sýslumanns, dags. 26. janúar 2026 var beiðnin endursend lögmanni sóknaraðila, með vísan til 2. mgr. 8. gr, sbr. 3. mgr. 26. gr. laga nr. 31/1990, á þeim forsendum að beiðnin uppfyllti ekki skilyrði 1. mgr. 24. gr. og 2. tölul. 1. mgr. 26. gr. sömu laga. Að mati sýslumanns væru þær athafnir sem krafist væri lögbanns um þegar liðnar og ekki væri því tilgreint nægilega hvaða byrjuðu eða yfirvofandi athöfnun beiðnin beindist, en að öðru leyti væri beiðnin of víðtæk.
Með tilkynningu til dómsins, dags. 30. janúar 2026, krafðist sóknaraðili úrlausnar vegna synjunar sýslumanns á lögbannsgerðinni. Sýslumaður óskaði ekki eftir því að senda héraðsdómara athugasemdir sínar, sbr. 5. mgr. 86. gr. laga nr. 90/1989 um aðför.
Helstu málsástæður og réttarheimildir sóknaraðila:
Sóknaraðili bendir á að í 8. gr. laga nr. 31/1990 sé að finna þrönga heimild til handa sýslumanni til að synja lögbannsgerð af sjálfsdáðum án fyrirtöku og að endursenda beiðnina. Í ákvæðinu segi að þegar kyrrsetningarbeiðni hafi borist sýslumanni kanni hann hvort hún sé í lögmætu horfi og hvort hún hafi komið fram í réttu umdæmi. Ef svo er geti sýslumaður ekki synjað um kyrrsetningu af sjálfsdáðum, nema hann telji bersýnilegt að skilyrðum 5. gr. sé ekki fullnægt.
Af 1. mgr. 8. gr. leiðir að eingöngu í þremur tilvikum sé sýslumanni heimilt að hafna lögbannsbeiðni af sjálfdáðum, þ.e. ef hún er ekki í lögmæltu horfi, lögbannsbeiðni er sett fram í röngu umdæmi, og ef ætla má af fyrirliggjandi gögnum að gerðarbeiðandi eigi ekki þau réttindi sem hann hyggst tryggja með lögbanninu. Ljóst sé að um algjöra undantekningarreglu sé að ræða, sem skuli túlka þröngt í samræmi við almennar túlkunarreglur. Megi af dómaframkvæmd sjá að sýslumaður hafi í örfáum tilvikum beitt þessari heimild og í þau fáu skipti sem sýslumaður hafi beitt henni hafi þeirri niðurstöðu verið snúið við af dómstólum.
Sýslumaður hafi sérstaklega tekið fram í ákvörðun sinni að sóknaraðili hefði gert það sennilegt að athafnir gerðarþola hafi brotið gegn lögvörðum hagsmunum sóknaraðila. Því virðist vera að lögbannsbeiðninni hafi verið hafnað á þeim grundvelli að sýslumaður hafi talið að hún væri ekki í lögmæltu horfi.
Sýslumaður vísi í ákvörðun sinni til þess að lögbannsbeiðninni hafi verið hafnað þar sem ekki hafi komið fram lýsing á þeim athöfnum sem lögbanns var krafist við. Taki sýslumaður jafnframt fram að beiðnin hafi ekki beinst að tiltekinni athöfn heldur sé þar óskað með víðtækum hætti að lagt verði lögbann við frekari brotum gerðarþola á tilteknum lagareglum.
Sóknaraðili fái ekki séð hvernig hægt sé að greina betur frá þeim athöfnum sem krafist hafi verið lögbanns við en gert var. Fram komi með skýrum hætti að lögbanns sé beiðst við afhjúpun, dreifingu, afhendingu, notkun og það að gera aðgengilegt í starfsemi sinni og þjónustu eða hagnýta með öðrum hætti tiltekin réttindi sem gerðarbeiðandi nýtur réttar yfir, þ.e. yfir trúnaðargögnum, kóða og öðru höfundavörðu efni sem felist í tilgreindu hugbúnaðarkerfi gerðarbeiðanda, viðskiptaleyndarmálum sem felast í kerfinu og önnur tilgreind viðskiptaleyndarmál gerðarbeiðanda.
Í fræðiskrifum og dómaframkvæmd hafi verið við það miðað að athöfn í skilningi 24. gr. laga nr. 31/1990 sé virk aðgerð gerðarþola eða ástand sem leiðir af slíkri aðgerð. Það sé því jöfnum höndum heimilt að leggja lögbann við einni tiltekinni athöfn eða til að stöðva ástand sem leiðir af athöfnum. Sóknaraðili telur ljóst að athafnir varnaraðila hafi leitt til þess ástands sem nú er uppi, þ.e. að verið sé að brjóta freklega gegn réttindum sóknaraðila sem hann nýtur verndar yfir samkvæmt höfundalögum nr. 73/1972, sbr. einkum 4. mgr. 1. gr. og 2. gr., lögum um viðskiptaleyndarmál nr. 131/2020, sbr. einkum 4. og 9. gr. og samningum sínum við varnaraðila.
Sóknaraðili telur ljóst að vegna starfa sinni hafi allir stofnendur varnaraðila búið yfir upplýsingum um hugverkaréttindi sem felast í skýjaþjónustukerfi sóknaraðila, þ.m.t. um kóða og viðskiptaleyndarmál, auk þess sem þeir hafi haft upplýsingar um önnur viðskiptaleyndarmál sóknaraðila s.s. um viðskiptavini og kjör þeirra. Einn stofnenda varnaraðila hafi hlaðið niður eintökum af kóða skýjaþjónustukerfisins og öðrum skrám sem innihéldu höfundavarið efni og viðskiptaleyndarmál með ólögmætum hætti og annar hafi hlaðið niður skrám sem innihéldu upplýsingar um viðskiptaleyndarmál sóknaraðila, m.a. um viðskiptavini hans. Umræddir aðilar sem stofnuðu varnaraðila höfðu því umráð yfir þessum upplýsingum með ólögmætum hætti. Með hliðsjón af því og á hve skömmum tíma stofnendum varnaraðila tókst að búa til kerfi sem hafi sambærilega virkni og kerfi sóknaraðila, telur sóknaraðili augljóst að varnaraðili hafi jafnframt fengið umráð yfir og nýtt kóða sóknaraðila, höfundavarið efni og viðskiptaleyndarmál hans, í heild eða að hluta, til þróunar á kerfi varnaraðila, sem síðar hafi verið selt til Vast Data Inc. Með því að hafa umráð yfir og nýtt hin höfundavörðu verk og viðskiptaleyndarmál með þeim hætti sé varnaraðili með viðvarandi hætti að brjóta gegn lögvörðum réttindum sóknaraðila sem honum séu tryggð með höfundalögum nr. 73/1972 og lögum um viðskiptaleyndarmál nr. 131/2020.
Hafi varnaraðili ekki nú þegar gert fleiri eintök af, gert aðgengilegt, fengið umráð yfir eða nýtt hið höfundavarða efni með öðrum hætti í eigin þágu eða þágu þriðja aðila, sé ljóst að slík háttsemi sé yfirvofandi, enda leiðir það af kaupum Vast Data Inc. á varnaraðila og yfirlýsingum Vast Data Inc. og stofnenda varnaraðila í tengslum við kaupin. Yrði niðurstaða sýslumanns lögð til grundvallar sé ljóst að það yrði aldrei hægt að stöðva viðvarandi brot þar sem athöfnin sjálf yrði alltaf talin liðin þegar lögbanns væri krafist.
Fjölmörg dæmi megi finna í dómaframkvæmd þar sem lögbann sé lagt við ástandi sem leiðir af tilteknum athöfnum, s.s. við hagnýtingu höfundaréttar, vörumerkja og einkaleyfa og lögbann. Einnig megi nefna í þessu samhengi lög um viðskiptaleyndarmál nr. 131/2020 geri sérstaklega ráð fyrir heimild til að fá lagt lögbann við öflun, notkun eða afhjúpun viðskiptaleyndarmála.
Með sambærilegum hætti sé hér farið fram á lögbann við því að varnaraðili geri eintök af, geri aðgengilegt, afhjúpi, dreifi, afhendi eða nýti með öðrum hætti kóða tiltekins forrits og viðskiptaleyndarmál sem njóta verndar á grundvelli höfundalaga nr. 73/1972, sbr. einkum 4. mgr. 1. gr. og 2. gr. og laga um viðskiptaleyndarmál nr. 131/2020. sbr. einkum 4. og 9. gr. Jafnframt er þess krafist að lögbanns verði lagt við því að varnaraðili framleiði, bjóði, setji á markað eða flytji inn, flytji út eða geymi í því skyni hugbúnað eða aðra afurð sem byggir á viðskiptaleyndarmálum sem felast í skýjaþjónustukerfinu, en umræddar athafnir njóta sömuleiðis verndar á grundvelli laga um viðskiptaleyndarmál nr. 131/2020, sbr. 5. mgr. 4. gr. Gerðarbeiðandi telur ljóst að lögbannsbeiðni hans hafi haft að geyma nægilega skýringu á því hverjar þær athafnir voru sem lögbanns var krafist við og beiðnin að öðru leyti uppfyllt öll skilyrði 1. mgr. 26. gr. laga nr. 31/1990. Sýslumaður hafi þannig ekki haft neina heimild til að vísa málinu frá af sjálfsdáðum án fyrirtöku.
Niðurstaða sýslumanns um synjun af sjálfsdáðum virðist í annan stað byggja á því að þær athafnir sem lögbanns var krafist við séu allar liðnar og að lögbann verði ekki lagt við því sem liðið er. Vísar sýslumaður í þessu samhengi til 24. gr. laga nr. 31/1990 um skilyrði lögbanns. Athygli sé vakin á því að sýslumaður taki fram í rökstuðningi sínum að athafnir stofnenda gerðarþola séu í fortíð. Ekki verði séð hvaða þýðingu það hafi fyrir málið, enda beint að athöfnum varnaraðila, hvort sem athafnir stofnenda varnaraðila séu liðnar eða ekki. Engan rökstuðning sé að finna hvernig athafnir varnaraðila sjálfs, sem lögbanns er krafist við séu liðnar. Svo virðist sem sýslumaður byggi á því að lögbann verði aðeins lagt við yfirvofandi athöfnum en ekki þeim sem byrjaðar eru og séu enn í gangi, ólíkt því sem komi skýrt fram í 1. mgr. 24. gr. laga nr. 31/1990. Þess utan hafi sýslumaður ekki heimild til að hafna lögbanni af sjálfsdáðum telji hann að skilyrðum 24. gr. laga nr. 31/1990 ekki fullnægt. Hafi sýslumaður talið rétt að synja um lögbannsbeiðnina á þeim grundvelli að athafnirnar væru liðnar, hafi honum verið skylt að gefa aðilum kost á fyrirtöku til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri og eftir atvikum að synja þá beiðninni en ekki hafna henni af sjálfsdáðum.
Með hliðsjón af rökstuðningi sýslumanns sé ljóst að hann hafi tekið efnislega afstöðu til þess að sóknaraðili hafi gert það sennilegt að stofnendur og fyrrum eigendur varnaraðila hafi brotið gegn lögvörðum hagsmunum sóknaraðila, en að ekki sé hægt að leggja á lögbannið þar sem athafnirnar séu liðnar. Með því að tiltaka að þær athafnir sem lögbanns er krafist við séu liðnar, hafi sýslumaður jafnframt tekið afstöðu til þess að varnaraðili hafi í raun nýtt kóða og annað höfundavarið efni, trúnaðargögn og viðskiptaleyndarmál sóknaraðila með þeim hætti sem greinir í kröfugerð sóknaraðila.
Byggir sóknaraðili á því að framangreindur rökstuðningur sé þess eðlis að sýslumaður hafi þegar tekið efnislega afstöðu til kröfunnar. Yrði málið sent aftur til sýslumanns sé ljóst að efnisleg niðurstaða hans yrði sú sama. Það væri því þýðingarlaust fyrir sóknaraðila að krefjast efnislegrar úrlausnar sýslumanns.
Með vísan til framangreinds gerir sóknaraðili þá kröfu að ákvörðun sýslumanns um að hafna lögbanninu verði felld úr gildi og að héraðsdómur feli sýslumanni að leggja lögbannið á í samræmi við kröfugerð sóknaraðila. Sóknaraðili byggir á því að öll skilyrði 24. gr. laga nr. 31/1990 séu uppfyllt og því beri að fallast á kröfur hans um lögbann.
Telji héraðsdómur að sýslumaður hafi ekki tekið efnislega ákvörðun í málinu byggir sóknaraðili á því að fella eigi ákvörðun sýslumanns um synjun lögbannsgerðarinnar úr gildi, og að lagt verði fyrir sýslumann að taka málið til efnismeðferðar. Byggir sú krafa á öllum sömu málsástæðum og aðalkrafan og vísast til þess sem þar greinir.
Til stuðnings kröfum sínum vísar sóknaraðili til 8., 24. og 26. gr. laga nr. 31/1990, ákvæða höfundalaga nr. 73/1972, einkum 4. mgr. 1. gr. og 2. gr., og ákvæða laga um viðskiptaleyndarmál nr. 131/2020, sbr. einkum 4. og 9. gr. Krafa sóknaraðila um málskostnað byggir á 129. og 130. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga nr. 31/1990 um kyrrsetningu, lögbann o.fl., sbr. 1. mgr. 91. gr. laga nr. 90/1989 um aðför.
Helstu málsástæður og réttarheimildir varnaraðila:
Varnaraðili telur einsýnt að vísa beri málinu frá dómi sökum þess að kröfugerðin er vanreifuð, sbr. d-liður 1. mgr. 80. gr. laga um meðferð einkamála nr. 91/1991. Synjun sýslumanns byggi á því, en úr þeim annmörkum hafi ekki verið bætt með málskoti til héraðsdóms. Þá verði ekki séð að sóknaraðili hafi lögvarða hagsmuni af því að fá lögbannskröfuna samþykkta.
Varnaraðili bendir á að sóknaraðili geri þrjár efniskröfur í málinu auk málskostnaðarkröfu. Kröfur skv. kröfuliðum 1-2 snúi að ógildingu synjunar sýslumanns og staðfestingu lögbanns en kröfur skv. kröfulið 3 að afhendingu gagna. Síðastnefndu kröfunni verði ekki haldið uppi í máli á grundvelli 33. gr. laga um kyrrsetningu, lögbann o.fl. nr. 31/1990, líkt og eigi við um þetta mál. Eingöngu sé heimilt að bera undir dómstóla ákvarðanir sýslumanns. Þá verður ekki séð að unnt sé að beita undanþáguákvæði 10. gr. laga um viðskiptaleyndarmál nr. 131/2020, enda er enginn greinarmunur gerður á. Þá þegar beri að vísa kröfu skv. kröfulið 3 frá dómi.
Með kröfuliðum 1-2 sé efnislega gerð sú krafa að ákvörðun sýslumanns um synjun lögbanns verði hnekkt og fyrir hann lagt að leggja á lögbann við afhjúpun, hagnýtingu, geymslu eða annars konar afnotum gagna sem skilgreind eru með þeim hætti sem greinir í stafliðum a.-d. í kröfugerð sóknaraðila og lögbann við því að varnaraðili framleiði, bjóði, setji á markað, flytji út eða geymi í því skyni hugbúnað eða aðra afurð sem byggir á hvers konar viðskiptaleyndarmálum, s.s. uppbyggingu og arkitektúr að baki kerfi sóknaraðila.
Ljóst er að sú tilgreining sem geti í kröfugerð sóknaraðila sé ekki í neinu samræmi við ákvæði 26. gr. laga nr. 31/1990 né 1. mgr. 80. gr. laga nr. 91/1991. Engin grein sé gerð fyrir þeim meintu trúnaðargögnum sem eigi að vera í vörslum varnaraðila. Þá sé í greinargerð sóknaraðila látið nægja að vísa til þess að í þjappaðri safnskrá með heitið „[…]“, sem í eru yfir 300.000 skrár, hafi verið fimm söfn gagna sem málið virðist snúast um. Hvert og eitt þeirra safna sem tilgreind séu í lögbannsbeiðni, innihaldi þúsundir skráa, ef marka megi fylgiskjal nr. 12 með lögbannsbeiðninni. Ekki sé hins vegar tilgreint hvaða gögn það séu sem sóknaraðili telur innihalda höfundaréttarvarið efni eða viðskiptaleyndarmál. Nokkra furðu veki að þau gögn sem málið snúist um séu ekki tilgreind. Ekkert sé því til fyrirstöðu að sóknaraðili tilgreini þau í lögbannsbeiðni, eða í öllu falli tilgreini þau í fylgiskjali með henni. Það hafi hins vegar ekki verið gert.
Varnaraðili bendir á að lögbann sé bráðabirgðagerð sem leggi bann við tiltekinni yfirstandandi eða yfirvofandi athöfn. Strangar kröfur séu gerðar til skýrleika kröfu um lögbann, enda þurfi að vera ljóst hvers sé krafist lögbanns við og hvað gerðarþola er bannað að gera. Einnig þurfi krafa um lögbann að vera nægilega skýr til þess að sýslumaður geti framfylgt lögbanninu þegar og ef á reynir.
Í kröfugerð sóknaraðila sé hins vegar engin afmörkun á því til hvaða upplýsinga, gagna eða annarra hugverka lögbannið á að taka til. Kröfuliðir 1 og 2 vísi til hvers konar trúnaðargagna, hvers konar viðskiptaleyndarmála og annarra viðskiptaleyndarmála. Framsetningin sé beinlínis með þeim hætti að svo virðist sem sóknaraðili viti ekki hvaða gögn um ræðir.
Tilvísun sóknaraðila til safnskráa, eða þess að í þeim leynist að einhverju leyti, svokallaðir „source kóðar“, breyta engu um að kröfugerðin er svo óljós og ónákvæm að engin leið er að átta sig á til hvers lögbannið á að taka. Úrskurðarorði um lögbann á grundvelli kröfugerðar sóknaraðila er því ómögulegt að framfylgja, bæði fyrir varnaraðila og sýslumann ef til þess kæmi. Þá er í því samhengi bent á að samkvæmt málavaxtalýsingu og gögnum málsins snúi lögbannskrafan að gögnum sem finna megi inni á fimm safnskrám eða möppum.
Samkvæmt gögnum málsins innhaldi hver þessara mappa þúsundir skráa, og það sem meira er, lögbannskrafan er alfarið takmörkuð við gögn sem er að finna á þessum skrám, sem ekki eru tilgreind með nokkrum hætti. Efni sínu samkvæmt er lögbannsbeiðnin því takmörkuð við ótilgreind gögn sem finna megi inni á þessum skrám. Um er að ræða færanleg gögn ef marka má sóknaraðila. Að mati varnaraðila er því beinlínis ómögulegt að fylgja umkröfðu lögbanni, hvað þá framfylgja því. Ekki þurfi annað en að líta til þess að skyldi sóknaraðili krefjast aðgerða á grundvelli lögbanns, yrði ekkert hægt að gera væri meint notkun ekki framkvæmd í gegnum þessar sömu safnskrár. Um leið og meint gögn yrðu færð yfir á aðra safnskrá með öðru yfirheiti, yrði ómögulegt að framfylgja lögbanninu. Þá þegar sé enginn tilgangur með lögbannsbeiðninni og engir lögvarðir hagsmunir fyrir hendi af því að fá hana samþykkta.
Varakrafa varnaraðila um höfnun krafna sóknaraðila grundvallast á sömu forsendum og greinir um aðalkröfu, enda hafi upphaflegri kröfu verið hafnað á þeim grundvelli að kröfugerð sóknaraðila væri of víðtæk til að fallast mætti á hana. Undir það sé tekið og á því er byggt, sbr. 26. gr. laga nr. 31/1990.
Til viðbótar framangreindu byggir varnaraðili á því að sýslumanni hafi borið að hafna beiðninni á þeim grundvelli að skilyrði 24. gr. laga nr. 31/1990 séu ekki uppfyllt í málinu. Samkvæmt 1. mgr. þess ákvæðis megi leggja lögbann við byrjaðri eða yfirvofandi athöfn. Líkt og bent sé á í forsendum sýslumanns snúi málatilbúnaður sóknaraðila fyrst og fremst að meintum athöfnum [G], og annarra stofnenda varnaraðila, sem eigi að hafa átt sér stað áður en varnaraðili var stofnaður. Engar sönnur eru færðar fyrir því að þeir meintu atburðir hafi átt sér stað, að minnsta kosti er varðar meinta hagnýtingu trúnaðargagna, en hvað sem því líður geti það ekki varðað lögbannskröfuna í málinu hvort heldur sem er. Samkvæmt skýrum ákvæðum 26. gr. laga nr. 31/1990 beri sóknaraðili sönnunarbyrði fyrir því að þær athafnir sem lögbannsbeiðni snýr um séu annað hvort yfirstandandi eða yfirvofandi. Sóknaraðili hafi hins vegar hvorugt gert og í raun ekki leitast við að sýna fram á það. Því verði að leggja til grundvallar að umrædd skilyrði séu ekki uppfyllt í málinu.
Á það sé réttilega bent í niðurstöðu sýslumanns að engum slíkum athöfnum er lýst í beiðni um lögbann. Úr því hefur ekki verið bætt í greinargerð sóknaraðila til héraðsdóms. Telji sóknaraðili að meint brot hafi þegar verið framin sé honum unnt að höfða skaðabótamál. Ljóst er að ekki verður lagt lögbann á varnaraðila til öryggis, heldur ber sóknaraðila að sýna fram á að athöfn sé þegar hafin eða sé yfirvofandi. Hvorugt sé raunin og af þeim sökum beri að hafna lögbannsbeiðninni.
Á því er byggt í lögbannsbeiðni að í framangreindum gagnasöfnum leynist viðskiptaleyndarmál sóknaraðila. Varnaraðili hefur engar upplýsingar um það hvaða leyndarmál það eigi að vera. Sóknaraðili ber sönnunarbyrði fyrir því að inni á safnskrám sé að finna slík leyndarmál, sem og að varnaraðili sé að nýta sér þau eða yfirvofandi sé að hann muni nýta sér þau. Engin slík sönnunarfærsla hafi farið fram og ólíklegt að slík sönnunarfærsla geti farið fram í málinu eins og það er fram sett. Kjarni málsins er sá að sóknaraðili hafi ekki bent á svo mikið sem eitt meint viðskiptaleyndarmál sem eigi að leynast í framangreindum safnskrám, eða varnaraðili fengið afhent. Úr því verður ekki bætt undir rekstri málsins fyrir héraðsdómi, enda ber sóknaraðila að setja fram málsástæður sínar eins fljótt og unnt er skv. e-lið 1. mgr. 80. gr. laga nr. 91/1991. Málatilbúnaður sóknaraðila er því alfarið ósannaður.
Lögbannsbeiðni sóknaraðila byggir öðrum þræði á meintum brotum gegn höfundarétti, án þess að þau meintu brot séu reifuð með nokkrum hætti í gögnum málsins og því er það alfarið ósannað að fyrir hendi sé yfirstandandi brot á meintum höfundarétti sóknaraðila eða að það sé yfirvofandi, sbr. aftur fyrrgreind skilyrði 24. gr. laga nr. 31/1990, og því sem fram var komið um viðskiptaleyndarmál. Hafna ber kröfu sóknaraðila í 3. tölulið kröfugerðar hans um afhendingu ótilgreindra gagna. Sóknaraðili hefur engar sönnur fært fyrir því að umrædd gögn séu í vörslum varnaraðila. Þvert á móti verði ekki annað ráðið af vörnum [G] að hið gagnstæða sé sannað og að leggja verði það til grundvallar.
Verði fallist á kröfu sóknaraðila um að beina því til sýslumanns að leggja á lögbann að hluta til eða öllu leyti í samræmi við dómkröfur sóknaraðila er fyrirséð að slíkt lögbann muni valda varnaraðila umtalsverðu tjóni, fari svo að lokum að dómstólar muni á endanum hafna staðfestingu lögbannsins. Fari svo sé sóknaraðili bótaskyldur gagnvart varnaraðila, sbr. ákvæði VI. kafla laga nr. 31/1990.
Varnaraðili telur að hafa beri í huga hversu víðtæk lögbannsbeiðni sóknaraðila er og að sóknaraðili byggir sjálfur á því að öll starfsemi varnaraðila grundvallist á meintum viðskiptaleyndarmálum og höfundaréttarvörðum eignum sóknaraðila. Verði fallist á það muni það hafa þau áhrif að rekstri varnaraðila verði teflt í tvísýnu á meðan endanlega er leyst úr ágreiningi um lögbann. Þar fyrir utan er fyrirséð að til þess að lögbannskrafa sóknaraðila geti haldið, hvort sem það er fyrir dómi eða í framkvæmd sýslumanns, mun þurfa að fara fram umtalsverð sönnunarfærsla, sem ekki hefur enn farið fram, þ.m.t. um það hvaða meintu upplýsingar, viðskiptaleyndarmál og höfundaverk séu undir í málinu og falli undir lögbannið. Slík málsmeðferð yrði óumflýjanlega mjög kostnaðarsöm og tímafrek.
Með hliðsjón af öllu framangreindu telur varnaraðili að tjón hans vegna fyrirsjáanlegrar rekstrarstöðvunar og málskostnaðar nemi aldrei undir 100.000.000 króna, og sé þá m.a. tekið mið af þrautavarakröfu [G] í því máli sem rekið er samhliða þessu. Telur varnaraðili því fjárhæð þrautavarakröfu sinnar varlega áætlaða.
Varnaraðili reisir kröfur sínar meðal annars á ákvæðum laga nr. 31/1990, einkum 24. gr., 26. gr. og VI. kafla laganna. Þá byggir varnaraðili á ákvæðum höfundalaga nr. 72/1973, einkum 2. og 3. gr. laganna, og á ákvæðum laga um viðskiptaleyndarmál nr. 131/2020, einkum 10. gr. laganna. Málskostnaðarkrafa byggir á reglum XXI. kafla laga um meðferð einkamála, einkum 129. og 130. gr.
Niðurstaða:
Um ágreininginn gilda ákvæði laga nr. 31/1990 um lögbann, kyrrsetningu o.fl., auk ákvæða 86.-91. gr. laga nr. 90/1989 um aðför, sbr. 35. gr. laga nr. 31/1990.
Samkvæmt 33. gr. laga nr. 31/1990 er heimilt að leita úrlausnar héraðsdómara um ákvarðanir sem sýslumaður tekur um einstök atriði lögbanns, jafnharðan og þær hafa verið teknar. Ákvörðun sýslumanns var sú að endursenda lögbannsbeiðni sóknaraðila án fyrirtöku hennar, með vísan til 2. mgr. 8. gr., sbr. 3. mgr. 26. gr. laga nr. 31/1990.
Í 2. mgr. 90. gr. aðfararlaga nr. 90/1989 segir að í úrskurði héraðsdómara skuli kveðið á um staðfestingu eða ómerkingu ákvörðunar sýslumanns. Í athugasemdum með ákvæðinu kemur fram að þessi afmörkun á efni úrlausnar héraðsdómara hafi sjálfgefin áhrif á það hvernig málsaðilum beri að haga kröfugerð sinni.
Framangreind ákvæði hafa þá þýðingu að sá ágreiningur sem lagður er fyrir dóminn getur eingöngu varðað ákvörðun sýslumanns um einstök atriði, og hvort sú ákvörðun verði staðfest eða ómerkt af dómnum. Til grundvallar því hvort sýslumaður hafi tekið rétta eða ranga ákvörðun getur því aðeins komið til skoðunar sú lögbannsbeiðni sem lá fyrir sýslumanni, og þau gögn sem lágu henni til grundvallar og sýslumaður studdi ákvörðun sína við, sbr. 3. mgr. 86. gr. aðfararlaga nr. 90/1989.
Sönnunarfærsla um efnislegan rétt fer að jafnaði ekki fram í ágreiningsmálum sem þessum, sbr. 1. mgr. 90. gr. laga nr. 90/1989, og úrlausn þess hvort sóknaraðili eigi þann lögvarða og efnislega rétt sem hann ber, yrði að meginstefnu til leyst með dómi í staðfestingarmáli, sbr. 36. gr. laga nr. 31/1990. Kröfugerð sóknaraðila leiðir hins vegar til þess að óhjákvæmilegt er annað en að dómari leggi mat á einstök efnisleg atriði, sbr. 3. mgr. 90. gr. laga nr. 90/1989.
----- Varnaraðili krefst þess aðallega að málinu verði vísað frá dómi, með vísan til d- liðar 1. mgr. 80. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Er á því byggt að krafan sé vanreifuð og skorti skýrleika um tilgreiningu, og hver sú athöfn sé sem lögbanns sé krafist við.
Frávísunarkrafa varnaraðila snýr með þeim hætti í reynd að því hvort skilyrðum 24. gr. laga nr. 31/1990 sé fullnægt eða ekki, sem og öðrum forsendum er lágu fyrir um ákvörðun sýslumanns skv. 26. gr. sömu laga. Samkvæmt því og efni fyrrgreindrar 2. mgr. 90. gr. laga nr. 90/1989, um að í úrskurði skuli kveða á staðfestingu eða ómerkingu ákvörðunar sýslumanns, verður aðalkröfu varnaraðila hafnað.
----- Í 1. mgr. 24. gr. laga nr. 31/1990 segir að leggja megi lögbann við [1] byrjaðri eða yfirvofandi athöfn einstaklings ef [2] gerðarbeiðandi sannar eða gerir sennilegt að athöfnin brjóti eða muni brjóta gegn lögvörðum rétti hans, og [3] að gerðarþoli hafi þegar hafist handa um athöfnina eða muni gera það, og [4] að réttindi hans muni fara forgörðum eða verða fyrir teljandi spjöllum verði hann knúinn til að bíða dóms um þau.
Sóknaraðila ber að sanna að öll framangreind skilyrði séu uppfyllt svo lögbann verði lagt á. Þá verður lögbann ekki lagt við athöfn ef skilyrði 3. mgr. 24. gr. eru til staðar, þ.e. ef skaðabætur tryggja rétt gerðarbeiðanda nægilega eða ef stórfelldur munur er á hagsmunum aðila, þótt framangreindum skilyrðum 1. mgr. sé fullnægt [5].
Samkvæmt 2. tölul. 1. mgr. 26. gr. laga nr. 31/990, skal koma svo skýrt fram sem verða má hver sú athöfn sé, sem lögbanns er krafist við, og í 2. mgr. 26. gr. sömu laga segir að þau gögn skulu fylgja lögbannsbeiðni sem gerðarbeiðandi byggir kröfur sínar á.
Í 3. mgr. 26. gr. segir að um upphafsaðgerðir sýslumanna á lögbannsbeiðni skuli fara eftir fyrirmælum 8. gr. laga nr. 31/1990 eftir því sem við getur átt.
----- Í 8. gr. laga nr. 31/1990 kemur fram að sýslumanni beri að kanna hvort kyrrsetningarbeiðni sé í lögmætu horfi og hvort hún hafi komið fram í réttu umdæmi. Sé svo getur sýslumaður ekki synjað um kyrrsetningu af sjálfsdáðum nema hann telji bersýnilegt að skilyrðum kyrrsetningar skv. 5. gr. sé ekki fullnægt, og er sýslumanni þá heimilt að endursenda beiðnina ásamt stuttum rökstuðningi fyrir þeirri ákvörðun, sbr. 2. mgr. 8. gr. sömu laga.
Af framangreindu leiðir að sýslumanni er heimilt að endursenda lögbannsbeiðni telji hann bersýnilegt að skilyrði lögbanns skv. 24. gr. sé ekki fullnægt. Önnur og þrengri lögskýring verður ekki ráðin af fyrrgreindu né öðrum lögskýringargögnum. Hér þykir mega vísa í „Handbók, aðför, kyrrsetning og lögbann o.fl.“ bls. 199: „Synji sýslumaður um lögbann sendir hann tilkynningu til gerðarbeiðanda þess efnis, með stuttum rökstuðningi á sama hátt og þegar synjað er um kyrrsetningu“. Lögbannskrafa þessa máls var endursend sóknaraðila ásamt fylgigögnum og stuttum rökstuðningi. Réttilega var því staðið að ákvörðun um endursendingu beiðninnar af hálfu sýslumanns.
----- Í rökstuðningi sýslumanns fyrir þeirri ákvörðun að endursenda lögbannsbeiðni sóknaraðila er vísað til þess að beiðnin hafi ekki uppfyllt skilyrði 1. mgr. 24. gr. og 2. tölul. 1. mgr. 26. gr. laga nr. 31/1990, og þess getið að athafnir væru liðnar. Einnig kemur fram að ekki væri tilgreint nægilega hvaða byrjuðu eða yfirvofandi athöfnum beiðnin beindist að, og að lögbannsbeiðnin væri of víðtæk.
Í lögbannsbeiðni sóknaraðila er þess krafist að lögbann verði lagt við að varnaraðili afhjúpi, dreifi, afhendi, geri aðgengilegt og/eða noti í starfsemi sinni eða þjónustu, eða hagnýti í eigin þágu eða í þágu þriðja aðila með öðrum hætti, atriði er greinir í stafliðum a.-d., og að hann framleiði, bjóði, setji á markað eða flytji inn, flytji út eða geymi hugbúnað eða aðra afurð sóknaraðila.
Sóknaraðila ber að sanna eða gera sennilegt að allar þær athafnir sem hann krefst lögbanns við, brjóti eða muni brjóta gegn lögvörðum rétti hans [2].
Eins og dómurinn skilur málavaxtalýsingu sóknaraðila þá hafi sóknaraðili keypt félagið NetApp Iceland ehf. á árinu 2017. Í júlí 2025 hafi nokkrir fyrrverandi starfsmenn NetApp Iceland stofnað félagið [R.] Starfsmennirnir hefðu búið að ýmsum upplýsingum um sóknaraðila, og þá hafi starfsmaðurinn [G] afritað um 300.000 skrár 24. og 25. maí 2025, og geymt sem „Zip-skrá“. Um tveimur mánuðum eftir stofnun [R] hefði bandarískt félag, [V. Inc.], samkeppnisaðili sóknaraðila, keypt félagið og breytt í nafn varnaraðila, Vast Data Iceland ehf. Varnaraðili hafi síðan verið keyptur af [V. Ltd.], sem hafi sett á markað kerfið [P].
Samhliða greindum málavöxtum var af hálfu sóknaraðila farið yfir ýmis tæknileg atriði tengd kerfis- og tölvumálum í nokkuð löngu máli, sem og um aðkomu aðila sem enga aðild eiga að þessu máli. Ekki þykir ástæða til að rekja þá málavexti frekar en meginstef þeirrar samantektar byggði á tilgátum sóknaraðila um að allt framangreint benti til einhvers, án þess að sýnt væri fram á einhverjar þær athafnir sem sóknaraðili krefst lögbanns um hefðu átt sér stað.
Hvort sennilegt sé að varnaraðili hafi hagnýtt sér hugverkarétt sóknaraðila eða ekki, þykir nægja að vísa til þess sem fram var komið að félag að nafni [V. Ltd.] hafi sett á markað kerfið [P]. Af málatilbúnaði sóknaraðila verður ætlað að það byggi að öllu eða a.m.k. að hluta á upplýsingum, kerfum eða gögnum sóknaraðila, sem hafi komið frá varnaraðila. Ekkert liggur fyrir um það, og engin gögn hafa verið lögð fram sem sýna fram á einhver líkindi með því kerfi og meintum hugverkum sóknaraðila.
Sóknaraðili ber sönnunarbyrði fyrir því að hann eigi þau lögvörðu réttindi sem hann ber að hann eigi, þ.e., a. hvers konar trúnaðargögn, b. kóða og annað höfundavarið efni, c. hvers konar viðskiptaleyndarmál, d. önnur viðskiptaleyndarmál. Engin gögn liggja fyrir í málinu um eignarheimildir sóknaraðila eins og skylt er, sbr. 2. mgr. 26. gr. laga nr. 30/1991, né heldur tilvísun í heiti, dagsetningar eða annað til afmörkunar eða sérgreiningar. Enn síður er með einhverjum hætti sýnt fram á að þær heimildir njóti sérstakra réttinda, um höfundarétt og/eða viðskiptaleyndarmál. Sóknaraðila ber að sanna að athöfn sé byrjuð eða yfirvofandi, og að gerðarþoli hafi þegar hafist handa um athöfnina eða muni gera það [1], [3].
Ágreiningslaust er að [G] hafi afritað gögn í maí 2025, sem hann ber að hafa ekki farið inn í frá starfslokum, og liggur ekki annað fyrir. Ekki hefur verið sýnt fram á að varnaraðili hafi í fórum sínum einhver þau gögn eða upplýsingar sem sóknaraðili krefst lögbanns um. Jafnvel þótt varnaraðili hefði einhver rafræn gögn sóknaraðila í fórum sínum þá leiðir það ekki sjálfkrafa til þess að hann hafi hafist handa um einhverja þá athöfn sem lögbanns er krafist um, eða muni gera það. Þótt eitthvað sé kannski mögulegt, þá heimilar það ekki fyrirbyggjandi aðgerðir með lögbanni. Varsla gagna er ekki viðvarandi ástand í skilningi 24. gr. laga nr. 30/1991 nema að öðrum skilyrðum uppfylltum, sem eins og fram er komið hefur ekki verið fallist á. Þá er á það fallist með sýslumanni að hafi varnaraðili framkvæmt þær athafnir sem sóknaraðili krefst lögbanns um, verður að ætla að þær séu þegar um garð gengnar, sbr. framangreint.
Svo lögbann verði lagt á athafnir, þarf að uppfylla öll skilyrði 24. gr. laga nr. 30/1991. Með engum hætti er hins vegar getið um í máli sóknaraðila hvernig skilyrðið um að réttindi hans muni fara forgörðum séu til staðar, eða að þau verði fyrir teljandi spjöllum verði honum meinuð sú neyðarráðstöfun sem lögbann er, og hann knúinn til að bíða dóms um þau [4], né hvort uppfyllt séu skilyrði 3. mgr. 24. gr. sömu laga [5].
Sýslumaður taldi bersýnilegt að beiðni sóknaraðila uppfyllti ekki skilyrði 24. gr. laga nr. 30/991, og að hún væri of víðtæk með því að krafist er lögbanns um hvers konar trúnaðargögn og hvers konar viðskiptaleyndarmál, sem og önnur viðskiptaleyndarmál. Eins og fram var komið hefur sóknaraðili ekki sýnt fram á hvaða gögn eða upplýsingar er um að ræða, enda hvorki afmörkuð eða sérgreind, né hvort þau er þá að finna í vörslum varnaraðila. Kröfugerð með framangreindum hætti hefur í úrlausnum dómstóla verið talin of víðtæk. Þá verður lögbann ekki lagt við notkun gagna og/eða upplýsinga sem ekki er vitað hver eru, og ómögulegt væri að halda uppi slíku lögbanni, sbr. 1. mgr. 32. gr. laga nr. 31/1990.
----- Sóknaraðili gerir einnig þá kröfu í beiðni til sýslumanns, „að gerðarþola verði gert að afhenda gerðarbeiðanda öll eintök og afrit af kóða skýjaþjónustukerfis gerðarbeiðanda sem virkar óháð skýjalausnum og staðsetningu, og hvers konar trúnaðarupplýsingum og viðskiptaleyndarmálum í eigu gerðarbeiðanda, hvort sem gerðarþoli býr yfir þeim eða hann afhent til þriðja aðila.“ Í kröfu sóknaraðila fyrir dóminum er þess krafist að héraðsdómur leggi fyrir sýslumann að afhenda sóknaraðila allt framgreint.
Í 2. mgr. 25. gr. laga nr. 30/1991 kemur fram að við lögbannsgerð geti sýslumaður eftir kröfu gerðarbeiðanda tekið muni úr vörslum gerðarþola og varðveitt þá að nánari skilyrðum uppfylltum uns dómur eða sátt kveði á um réttindin. Engin heimild stendur til þess í lögum nr. 30/1991 að sýslumaður eða dómari geti ákveðið að taka og afhenda muni til sóknaraðila sem varnaraðili og/eða aðrir búi yfir, fyrr en staðreynt hefur verið um þau lögvörðu réttindi hans. Óháð sömu forsendum og gat um afmörkun eða sérgreiningu, og því að ekkert liggur fyrir um vörslur varnaraðila, þá virðist krafan fremur varða aðför til fullnustu kröfu, þ.e. innsetningu, sem færi eftir öðrum heimildum en eiga við um lögbann.
----- Með vísan til alls framangreinds, og með hliðsjón af fyrrgreindum ákvæðum 2. mgr. 90. gr. laga nr. 90/1989, verður ákvörðun sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu frá 26. janúar sl. staðfest, þ.e. sú ákvörðun að endursenda lögbannsbeiðni sóknaraðila, í máli sýslumanns nr. 2006-…., og um þær forsendur sem sú ákvörðun byggði á.
----- Eftir úrslitum og umfangi málsins, 130. gr. laga nr. 91/1991, sbr. 1. mgr. 91. gr. laga nr. 90/1989, verður sóknaraðila gert að greiða varnaraðila málskostnað sem hæfilegur þykir 868.000 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.
Bogi Hjálmtýsson héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.
Ú r s k u r ð a r o r ð :
Staðfest er ákvörðun sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu frá 26. janúar 2026, um að endursenda sóknaraðila, NetApp Inc. lögbannsbeiðni í máli nr. 2026-…. .
Sóknaraðili greiði varnaraðila, Vast Data Iceland ehf., 868.000 krónur í málskostnað.
Bogi Hjálmtýsson