Héraðsdómur Reykjaness
Dómur 29. september 2025.
Mál nr. S-2073/2025:
Málið nr. S-2073/2025:
Ákæruvaldið
(Sigurður Ólafsson saksóknari)
gegn
Kendry Ariel Agramonte Moreta
Dómur:
(Ólafur Valur Guðjónsson lögmaður)
Lykilorð
Fangelsi. Fíkniefnalagabrot. Tilraun.
Útdráttur
Fertugur karlmaður var sakfelldur fyrir tilraun til að taka á móti og varsla tæplega 2.900 grömm af sterku kókaíni og dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir sinn hlut að málinu.
Mál þetta var þingfest 15. júlí 2025 og dómtekið 17. september. Málið höfðaði Héraðssaksóknari 9. júlí 2025 með ákæru á hendur X, […] ríkisborgara, fæddum […] 1985 og Kendry Ariel Agramonte Moreta, […] ríkisborgara, fæddum […] 1985, fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot, framið „í félagi“ þriðjudaginn 22. apríl 2025:
Gegn ákærða X fyrir brot gegn 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með því að hafa staðið að innflutningi á 2.897,61 grammi af kókaíni með 82-85% styrkleika, sem samsvarar 92-95% kókaínklóríði, ætluðu til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni, en fíkniefnin flutti ákærði X til Íslands, falin í ferðatösku sem hann kom með sem farþegi með flugi […] frá Frankfurt í Þýskalandi til Keflavíkurflugvallar og skömmu eftir komuna afhent ákærða Kendry töskuna, sbr. 2. töluliður ákæru.
Gegn ákærða Kendry, með því að hafa gert tilraun til að taka á móti og varsla þau 2.897,61 gramm af kókaíni, ætluðu til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni, sem meðákærði X flutti til landsins, sbr. 1. töluliður ákæru, en áður en X afhenti ákærða efnin hafði lögregla lagt hald á þau „og skipt úr fyrir gerviefni“.
Er háttsemin talin varða við 173. gr. a, sbr. 20. gr. almennra hegningarlaga og þess krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til upptöku á 2.897,61 grammi af haldlögðu kókaíni og til greiðslu alls sakarkostnaðar.
Við þingfestingu máls 15. júlí sl. játaði ákærði X þá háttsemi sem honum er gefið að sök í 1. tölulið ákæru, en þvertók fyrir að hafa framið sitt brot „í félagi“ við ákærða Kendry. Í ljósi þess framburðar X breytti ákæruvaldið ákæru á þann veg að fallið var frá orðunum „í félagi“ í inngangi ákæru og teldist málið með svo breyttri ákæru höfðað gegn ákærða X fyrir þann verknað og háttsemi sem lýst er í 1. tölulið ákæru og gegn ákærða Kendry fyrir þann verknað og háttsemi sem lýst er í 2. tölulið. Við svo búið var þáttur ákærða X klofinn frá og X dæmdur í 30 mánaða fangelsi 17. júlí í játningarmáli réttarins nr. S-2094/2025. Með sama dómi voru haldlögð 2.897,61 gramm af kókaíni gerð upptæk og X dæmdur til greiðslu 670.415 króna útlagðs sakarkostnaðar.
Á aðalmeðferðardegi 17. september sl. breytti ákæruvaldið verknaðarlýsingu samkvæmt 2. tölulið ákæru á þann veg að fallið var frá orðunum „og skipt úr fyrir gerviefni“.
Ákærði Kendry krefst sýknu af kröfum ákæruvaldsins og að allur sakarkostnaður verði felldur á ríkissjóð, þar með talin málsvarnarlaun verjanda samkvæmt tímaskýrslu.
I. - Upphaf lögreglurannsóknar og rannsóknaraðgerðir.
Þriðjudaginn 22. apríl sl. lenti flugvél […] á Keflavíkurflugvelli kl. 12:43. Meðal farþega var X. Á leið sinni um grænt tollhlið í komusal flugstöðvarinnar var X beðinn að setja farangur sinn í gegnumlýsingarvél tollgæslunnar og vaknaði þá grunur um að ferðataska hans væri með fölskum botni og að þar undir væri fastur massi. Í framhaldi var X færður í leitarklefa. Þar gekkst X við því að hafa móttekið töskuna í Porto í Portúgal, flutt hana til Frankfurt í Þýskalandi, þaðan til Íslands og átt að fá greitt fyrir. X tjáði tollvörðum að einhver ætti að taka á móti honum á flugvellinum og sýndi þeim bókun fyrir sjö nátta gistingu á […] hótelinu í Reykjavík. Er tollverðir stungu á botn töskunnar kom hvítt duft í ljós og var málið þá tilkynnt til lögreglu.
Samkvæmt frumskýrslu lögreglumanns A fóru hann og lögreglumaður B til viðræðna við X í flugstöðinni og féllst hann á samvinnu við lögreglu um að ná til þeirra sem skipulögðu innflutninginn og þess aðila sem átti að móttaka fíkniefnin hér á landi. Í framhaldi var skorið á ferðatösku X og úr henni teknar fjórar pakkningar með meintum fíkniefnum. Er óumdeilt að í pakkningunum voru 2.897,61 gramm af kókaíni, með þeim styrkleika sem frá greinir í ákæru.
Í frumskýrslunni segir að þar sem X var reiðubúinn til samstarfs við lögreglu hafi honum verið afhentur farsími og önnur ferðataska, X síðan farið út af tollsvæði, hringt í aðila sem skipulagði ferðalag X til Íslands, fengið hjá þeim aðila fyrirmæli um að taka leigubifreið til Reykjavíkur, hafa aftur samband þegar hann nálgaðist borgina og fá þá upplýsingar um hvaða heimilisfang hann ætti að fara á. Áður en lögregla skildi við X aflaði hún dómsúrskurðar um heimild til að koma fyrir eftirfararbúnaði í ferðatöskunni. Lá sú heimild fyrir kl. 16:02. Staðsetningarbúnaði var síðan komið fyrir í ferðatöskunni á lögreglustöð í Hafnarfirði og því næst pöntuð leigubifreið, sem ók X úr Hafnarfirði að […] í Reykjavík í samræmi við fyrirmæli skipuleggjanda innflutningsins, sem X taldi að væri í Hollandi. Í frumskýrslu segir og að lögregla hafi fylgst með bílferð X, séð hann fara inn í íbúð að […], „hitti þar fyrir [ákærða Kendry] og afhenti honum töskuna.“ Eftir afhendingu töskunnar hafi X komið út úr íbúðinni, lögreglumenn þá farið inn og handtekið ákærða. Í skýrslunni er haft eftir X að hann þekkti ekki ákærða, hefði aldrei séð hann áður og vissi engin deili á honum.
Samkvæmt húsleitarskýrslu lögreglumanns C hófst leit í kjallaraíbúð að […] kl. 16:43. Þar segir að ákærði Kendry hafi verið með íbúðina til umráða, leigt hana gegnum vefsíðu airbnb, hann samþykkt leitina og verið viðstaddur hana. Í eldhúsi hafi fundist poki undan prótín dufti og hvítt duft vafið í kúlu í plastfilmu. Í svartri ferðatösku ákærða, sem var í svefnherbergi, hafi fundist fimm Revolut greiðslukort. Þá hafi ákærði haft í sínum fórum […] kennivottorð og reiðufé í íslenskri og erlendri mynt, auk ótilgreinds farsíma sem lögregla haldlagði. Húsleit lauk kl. 17:00. Samkvæmt skýrslunni unnu lögreglumenn D, B og A einnig að málinu.
Fyrir liggur myndaskýrsla lögreglumanns E um húsleitina. Af þeim myndum virðist umrædd íbúð vera á jarðhæð tvílyfts húss að […]. Samkvæmt skýrslunni sést opin ferðataska ákærða á rúmi í svefnherbergi, inn af stofu og á baðherbergisgólfi, fyrir framan opna þvottavél, sést opin ferðataska X, þ.e. taskan sem lögregla lét honum í té. Verður nánar vikið að myndaskýrslunni síðar.
Samkvæmt upplýsingskýrslu lögreglu átti X bókaða gistingu á fyrrgreindu […] hóteli með innritunardegi 22. apríl. Bókunin var staðfest með Visa greiðslukorti þriðja aðila 21. apríl gegnum hotels.com. Greiðsla fékkst ekki gegnum umrætt kort.
Einnig liggur fyrir lögregluskýrsla um afritun og skoðun gagna í farsíma X. Voru meðal annars tekin út 207 hringd og móttekin símtöl á tímabilinu 15.-23. apríl 2025, auk samskipta gegnum Facebook Messenger, WhatsApp og fleiri samfélagsmiðla. Er ekkert í skýrslunni sem tengir X við ákærða Kendry.
Þá liggur fyrir upplýsingaskýrsla lögreglu um haldlagðan iPhone farsíma ákærða Kendry (munur nr. 666832). Þar segir að síminn hafi ekki verið afritaður við rannsókn máls þar sem ákærði synjaði um aðgang að PIN númeri símans og tækjabúnaður lögreglu byði ekki upp á að komast fram hjá læsingu símans.
Óháð meintri synjun ákærða liggur fyrir að ákærði samþykkti að kvöldi 22. apríl rannsókn lögreglu á ótilgreindum „Iphone“ farsíma hjá […] og gaf upp PIN númerið […] og til vara númerin […] og […].
II. - Skýrslugjöf X og ákærða Kendry hjá lögreglu.
Við skýrslugjöf hjá lögreglu að kvöldi 22. apríl sl. gekkst X við því að hafa flutt kókaín til landsins, kvaðst í fyrstu hafa haldið að um væri að ræða 7-10 grömm, sem hann ætti að kyngja og hann látið tilleiðast vegna fjárhagsvandræða. Hann kvað aðila sem hann þekkti í […], Y og Z, hafa komið honum í kynni við menn sem greiddu öðrum fyrir að flytja kókaín frá Porto til Íslands, Y og Z sagst hafa gert þetta sjálfir og fengið greitt fyrir. Þegar X síðan kom til Porto hafi áætlanir breyst og ókunnur Spánverji afhent honum ferðatösku með fíkniefnum í. Á þeim tímapunkti hafi X enn haldið að um væri að ræða 7-10 grömm af kókaíni, óskað eftir að sjá fíkniefnin en Spánverjinn sagt að það væri ekki í boði. Þegar X var síðan stöðvaður af tollvörðum á Keflavíkurflugvelli hafi komið í ljós að í töskunni var mun meira magn fíkniefna, falið undir gömlum fötum og reimalausum skóm, X þá orðið ljóst að logið hafði verið að honum og hann því samþykkt að aðstoða lögreglu við að upplýsa um afhendingu efnanna hér á landi. X kvaðst hafa fengið þau fyrirmæli frá aðila í Hollandi að þegar hann kæmi út úr flugstöðinni skyldi hann taka leigubifreið til Reykjavíkur, láta sama aðila vita þegar hann nálgaðist borgina og þá fengi hann nánari upplýsingar um hvert hann ætti að fara með ferðatöskuna. X hafi átt að fá 5.000 evrur fyrir sinn þátt í fíkniefnainnflutningnum og hann aðeins verið peð í umræddu smygli, líkt og sá ókunni aðili, ákærði Kendry, sem hann afhenti töskuna.
X var yfirheyrður öðru sinni 27. maí. Hann kvaðst ekkert hafa við fyrri framburð að bæta og í engu vilja breyta honum. Aðspurður kvaðst X hafa móttekið ferðatöskuna á flugvellinum í Porto úr hendi fyrrgreinds Spánverja. Jafnframt hafi X verið í sambandi við einhvern Hollending, sem Y kom honum í samband við. Samkvæmt fyrstu fyrirmælum frá Hollendingnum hafi X átt að hitta einhvern á flugvellinum í Keflavík, sá átt að fara með X á hótel og þangað myndi einhver sækja ferðatöskuna og X fá greitt fyrir sinn hlut að málinu.
Ákærði Kendry var yfirheyrður af lögreglu að kvöldi 22. apríl sl. Hann þvertók fyrir að eiga aðild eða aðkomu að fíkniefnainnflutningi X eða annarra og ekki skilja hvað væri í gangi. Ákærði kvaðst fyrir 15 dögum hafa kynnst manni að nafni Jonatan á hóteli í miðbæ Reykjavíkur þar sem ákærði gisti, hann sagt Jonatan að hann vantaði samastað og Jonatan boðið honum að gista í 5-6 nætur í airbnb íbúð sem Jonatan var með á leigu að […]. Í staðinn hafi Jonatan beðið hann um þann greiða að taka á móti manni sem væri væntanlegur 22. apríl. Það hafi ákærði gert og X verið nýkominn inn í íbúðina þegar lögreglu dreif að. Ákærði kvaðst aldrei hafa séð X áður, ekki þekkja til hans og ákærði sjálfur verið á leið til Spánar næsta dag.
Ákærði áréttaði að hann hafi tekið á móti ókunna manninum (X) að beiðni Jonatan og Jonatan hringt í ákærða að því tilefni, beðið ákærða að leyfa X að vera í svefnherbergi airbnb íbúðarinnar og ákærða að færa sig í stofusófa. Ákærða hafi fundist það í góðu lagi, enda á leið til Spánar morguninn eftir. X hafi svo birst fyrir utan […], virst óviss hvert hann væri að fara, X síðan komið inn í airbnb íbúðina, ákærði spurt hvort hann vildi eitthvað að borða, en X ekki skilið hann, þó gefið til kynna að hann vildi bjór, eftir það opnað ferðatösku og því næst sagst ætla út að reykja. Í sömu andrá hafi lögregla komið inn í íbúðina og þá vart verið liðin mínúta frá komu X.
Nánar aðspurður kvaðst ákærði ekkert vita um ferðatösku X, annað en það að X hafi opnað hana fyrir framan ákærða og sett föt úr töskunni í þvottavél. Ákærði kvaðst ekkert hafa átt við ferðatösku X, en þegar X tók föt úr töskunni hafi ákærði séð svart tæki á rúminu, tekið það sér í hönd og ætlað að spyrja X hvað þetta væri, en í sömu andrá hafi lögregla komið á staðinn. Þegar ákærða var kynnt að hann hafi verið með svarta tækið í buxnavasa sínum er lögregla kom inn í íbúðina kvaðst ákærði hafa verið á leið út að spyrja X um tækið þegar lögregla kom inn. Ákærða var kynnt að þegar lögregla kom inn í íbúðina hafi hún séð opna ferðatösku X og „þá var búið að spenna hana upp eins og það hefði verið búið að leita að einhverju í töskunni“. Ákærði kvaðst ekki vita hvað lögregla ætti hér við og sagðist ekkert hafa átt við töskuna.
Nánar aðspurður um Jonatan kvað ákærði hann vera frá […], að eigin sögn hafa búið á Íslandi í 10 ár og þeir síðast ræðst við sama dag og ákærði var handtekinn. Hann sagði þá yfirleitt talast við gegnum WhatsApp og Jonatan oft hafa hringt umræddan dag út af X. Ákærði kvaðst ekkert hafa að fela og bauð lögreglu að skoða farsíma sinn.
Aðspurður um nafn á því hóteli sem ákærði gisti á, þar sem hann og kynntist Jonatan, kvaðst ákærði ekki muna hvað hótelið heiti. Hann hafi gist þar í 3-4 nætur og […] bróðir hans bókað gistinguna fyrir hann.
III. - Upplýsingar sem fram komu við meðferð gæsluvarðhaldskrafna.
Ákærði hefur setið í gæsluvarðhaldi frá 23. apríl. Við gæsluvarðhaldsfyrirtöku þann dag, sem og 30. apríl, 7. maí og 3. júní, segir í kröfugerðum rannsóknara að X hafi greint sinn hringt dyrabjöllu að […], ákærði komið til dyra, tekið á móti ferðatösku og lokað dyrunum. Í kjölfarið hafi ákærði opnað töskuna og lögreglumenn þá brotist inn í íbúðina og handtekið ákærða. Er ekkert í fyrirliggjandi málsgögnum sem beinlínis styður slíka atburðarás.
IV. - Framburður ákærða og vitna við aðalmeðferð máls.
Ákærði Kendry kvaðst hafa komið til Íslands frá Kanada í febrúar 2025 og átt flug með […] til Frankfurt og þaðan til Bilbaó á Spáni um kl. 16 miðvikudaginn 23. apríl. Þegar nær dró brottfarardegi hafi ákærði verið orðin peningalítill, ekki haft efni á frekari hótelgistingu og Jonatan vinur hans því útvegað honum ókeypis afnot af airbnb íbúð að […] síðustu dagana hér á landi. Ákærði kvaðst ekki vita hvað Jonatan heiti fullu nafni, en þeir hafi kynnst á hótelinu, sem ákærði kvaðst ekki vita hvað heiti, en sé nálægt Bónus verslun í miðbænum. Jonatan hafi reddað íbúðinni með einu símtali, sagt ákærða að hann þyrfti bara að „hreinsa“ eftir sig áður en hann færi úr íbúðinni, sagt honum hvar íbúðin væri og hvernig hann gæti nálgast húslykil í lyklaboxi utan á húsinu.
Ákærði kvaðst hafa verið búinn að dvelja í íbúðinni í fimm daga áður en X kom þangað 22. apríl. Fyrr um daginn hafi Jonatan ítrekað hringt í ákærða til að segja honum að von væri á manni; fyrst um kl. 13, svo um kl. 14, sem ákærði ætti að hleypa inn í íbúðina, leyfa manninum að gista í svefnherbergi íbúðarinnar, ákærði að sofa í stofusófa síðustu nóttina sína hér á landi og afhenda manninum lykil að íbúðinni. Ákærði bar að þegar maðurinn (X) loksins kom að […] hafi ákærði verið á rölti fyrir utan húsið og hleypt honum inn í airbnb íbúðina. Ákærði hafi ekki vitað af hverju X væri þangað kominn, ákærði aldrei séð hann áður og tekið á móti honum af greiðasemi við Jonatan velgerðarmann sinn. Ákærði kvaðst hafa boðið X drykk, hann beðið um bjór, því næst farið út að reykja og örskömmu síðar hafi lögregla komið inn. Allt hafi þetta gerst mjög hratt og X vart verið tvær mínútur í íbúðinni áður en lögregla birtist. Nánar aðspurður um samskipti við X bar ákærði að X hafi gengið inn í íbúðina, þeir lítt getað ræðst við vegna tungumálaörðugleika, ákærði þó náð að bjóða honum drykk, X spurt um þvottavél, því næst farið út að reykja og lögregla þá komið inn. X hafi ekki rætt um ferðatösku sína, á engum tímapunkti afhent ákærða töskuna og ákærði aldrei snert hana. Ákærði hafi hins vegar séð X opna töskuna á svefnherbergisgólfinu til að setja fatnað úr henni í þvottavél, X svo skilið töskuna eftir á gólfinu og farið út til að reykja eða skreppa í búð.
Ákærða voru sýndar myndir af opinni ferðatösku á svefnherbergisrúminu og af opinni og tómri ferðatösku fyrir framan opna þvottavél á baðherbergisgólfi íbúðarinnar, sbr. kafli I.-3. dómsins að framan. Ákærði staðfesti að hann ætti töskuna sem sjáist á rúminu, að X ætti töskuna á baðherbergisgólfinu og bar að sú taska hafi verið fyrir framan þvottavélina þegar lögreglu bar að. Þegar sækjandi benti ákærða á að myndin af tösku X bæri með sér að búið væri að opna innra byrði töskunnar og eiga þannig við hana kvaðst ákærði ekkert um það vita og taldi X hljóta að eiga þar hlut að máli.
Aðspurður af hverju hann hafi verið með svartan staðsetningarbúnað lögreglu eða „tracker“ í vasa sínum þegar lögregla kom að kvaðst ákærði hafa séð tækið á rúminu við hlið bakpoka X og ætlað að spyrja X hvað þetta væri þegar lögregla kom inn í íbúðina.
Ákærði taldi að rannsókn á þeim farsíma sem lögregla tók af honum á vettvangi hefði leitt í ljós sönnur fyrir símhringingum Jonatan 22. apríl. Ákærði hafi á vettvangi leyft lögreglu að skoða símann, einhver lögreglumaður borið símann að andliti ákærða til andlitsauðkenningar, síminn þannig opnast, ákærði síðar sama dag látið lögreglu í té PIN númer til að opna símann og hefði leyft lögreglu að bera símann aftur upp að andliti hans til auðkenningar ef farið hefði verið fram á það. Aðspurður kvaðst ákærði hafa fengið símann að láni frá Jonatan, þar sem farsími ákærða hafi verið í vörslum lögreglu, og tekið við símanum frá Jonatan á hótelinu í miðbæ Reykjavíkur.
X bar fyrir dómi að eftir lendingu á Keflavíkurflugvelli 22. apríl sl. hafi hann fengið SMS skilaboð um hvar hann ætti að afhenda ferðatöskuna með kókaíninu í og í því sambandi fengið uppgefið heimilisfangið […]. Í fyrstu hafi ekki staðið til að X gisti þar, heldur hafi hann átt bókaða hótelgistingu, en sú gisting ekki gengið eftir og honum verið sagt að hann ætti að gista að […] í eina viku og snúa síðan til síns heima. Í samvinnu við lögreglu hafi X svo farið að […], hann séð ákærða Kendry fyrir utan húsið og þeir farið inn í airbnb íbúðina. Er þangað kom hafi tengiliður X, sá er sendi hann á þetta heimilisfang, hringt í ákærða og sagt honum að kanna innihald ferðatöskunnar. Í kjölfarið hafi ákærði opnað töskuna í viðurvist X, X í beinu framhaldi farið út úr íbúðinni og hann því ekki séð hvað ákærði gerði við það sem í töskunni var. X kvað ákærða fara með rangt mál þegar hann héldi því fram að X hafi opnað töskuna og sett fatnað úr henni í þvottavél. Aðspurður bar X að ákærði hafi ekki tekið við ferðatöskunni úr höndum hans; X bara lagt töskuna á gólf við hlið rúms í svefnherbergi íbúðarinnar, ákærði fengið símhringingu frá tengilið X, ákærði síðan opnað töskuna, X þá gengið út úr húsinu, lögregla beðið fyrir utan og farið inn í íbúðina. Nánar aðspurður bar X að umræddur tengiliður hafi hringt í hann fyrir utan […] og sagt honum að fara inn í airbnb íbúðina, sami tengiliður svo hringt í ákærða þar inni og sagt honum að opna ferðatöskuna og skoða hvað í henni væri. Kvaðst X hafa heyrt það símtal og greint á rödd viðmælanda ákærða að þar væri á ferð tengiliður X.
X kvaðst hafa átt að fá greitt fyrir sína aðkomu að málinu eftir afhendingu ferðatöskunnar, án þess að ákveðin fjárhæð væri nefnd í því sambandi. Þegar X var kynnt sú frásögn hans hjá lögreglu að hann hefði átt að frá 5.000 evrur fyrir fíkniefnaburðinn kvaðst hann ekki muna þetta nákvæmlega, en gat þess að í Porto hafi verið talað um að hann fengi jafnvel um 5.000 evrur, án þess þó að sú fjárhæð væri fast ákveðin.
Fyrir dóminn komu lögreglumenn A, B, C, E og D. Enginn þeirra kannaðist við að hafa stýrt lögreglurannsókn máls. Verður nú rakið annað það helsta sem fram komi í vitnisburði lögreglumannanna og máli getur skipt við úrlausn málsins.
3.1.
Lögreglumaður A staðfesti frumskýrslu sína, sbr. kafli I.-1. dómsins og bar að hann og lögreglumaður B hafi verið kvaddir í flugstöðina á Keflavíkurflugvelli vegna gruns um fíkniefnainnflutning X. Þar hafi B rætt við X, þeir tveir lögreglumenn síðan farið í lögreglubifreið að […] 4 til að fylgjast með för X inn í húsið, A ekki farið inn, en tekið á móti X og gætt hans eftir að X kom út úr airbnb íbúðinni.
3.2.
Lögreglumaður B kvaðst hafa rætt við X í flugstöðinni og úr orðið að X myndi aðstoða lögreglu. Í framhaldi hafi eftirfararbúnaði verið komið fyrir í ferðatösku, lögregla fylgt X eftir að […] og hann afhent þar sömu tösku. Nánar aðspurður kvaðst B ekki hafa orðið vitni að afhendingu töskunnar eða öðrum samskiptum X og ákærða í airbnb íbúðinni, því þegar lögregla knúði dyra að […] hafi […] ára stúlka opnað útidyr hússins, hún hlaupið upp á efri hæð og lögreglumaðurinn fylgt á eftir. Þegar hann hafi svo komið niður í airbnb íbúðina hafi ákærði og nokkrir lögreglumenn verið þar fyrir, B séð opna ferðatösku X á rúmi í svefnherbergi, búið að taka úr henni fatnað og einhver fatnaður verið í þvottavél íbúðarinnar. Í framhaldi bar B að X hafi komið út úr húsinu til að reykja og lögregla þá farið inn í húsið.
3.3.
Lögreglumaður C bar að hann hafi greint sinn séð X fara inn í húsið að […], lögregla beðið fyrir utan á meðan, hún eftir smá stund knúið þar dyra, […] ára stúlka opnað útidyr, stúlkan hlaupið upp á efri hæð hússins, C fylgt á eftir og í ljós komið að þar væri á ferð dóttir húseiganda og leigusala airbnb íbúðarinnar á neðri hæð. Þegar C fór síðan þangað niður hafi verið búið að handtaka ákærða, en C séð tóma ferðatösku X á baðherbergisgólfi airbnb íbúðarinnar, einhvern fatnað þar í þvottavél og skófatnað við hlið töskunnar. Lögreglumaðurinn bar að áður en knúið var dyra að […] hafi X verið kominn út úr húsinu, töskulaus, hann verið tekinn afsíðis og lögregla strax í kjölfarið knúið dyra.
3.4.
Lögreglumaður E staðfesti þær skýrslur sem frá greinir í köflum I.-3. og I.-4. dómsins, en kvaðst ekki hafa tekið þátt í lögregluaðgerðum að […].
3.5.
Lögreglumaður D kvaðst greint sinn hafa tekið þátt í aðgerðum að […], hann farið inn í airbnb íbúðina og í kjölfarið flutt ákærða til yfirheyrslu í Keflavík. Lögreglumaðurinn kvaðst ekki hafa rætt við X fyrir þá aðgerð, en verið í lögreglubifreið fyrir utan […] þegar X fór þangað inn með ferðatösku, séð X koma út án töskunnar, lögregla síðan knúið dyra og einhver stúlka hleypt lögreglu inn í húsið.
Loks kom fyrir dóminn F eigandi fasteignarinnar að […] og þáverandi leigusali að airbnb íbúðinni á neðri hæð hússins. Hann kvaðst í apríl síðastliðnum hafa verið að stíga sína frumraun í útleigu íbúðarinnar gegnum airbnb, skráður leigutaki verið „Þ“ og leigutímabilið verið frá 16.-23. apríl. Ekki hafi þó verið flutt inn í íbúðina fyrr en að kvöldi 21. apríl, en þá hafi grannur maður, dökkur á hörund og með svart hár, birst á rafskútu, með fötin sín í poka, fengið upplýsingar hjá F um talnakóða að lyklaboxinu og maðurinn þannig komist inn í íbúðina. Lítið hafi farið fyrir þessum manni og enginn heimsótt hann fyrr en daginn eftir þegar annar maður birtist með ferðatösku. F kvað skilmála airbnb kveða svo á um að húseigandi þrífi alltaf eftir leigutaka og taki gjald fyrir.
V. - Málatilbúnaður ákæruvaldsins og ákærða.
Af hálfu ákæruvaldsins er einkum á því byggt að X hafi frá upphafi verið stöðugur og trúverðugur í frásögn um aðkomu sína að innflutningi fíkniefnanna, samskiptum við erlendan tengilið sinn og um samskipti við ákærða Kendry og aðra atburðarás í airbnb íbúðinni að […]. X hafi þegar hlotið dóm fyrir aðild sína að málinu og hafi því enga ástæðu til eða ávinning af því að bera rangar sakir á ákærða. Ákærði hafi á hinn bóginn verið reikull og óstöðugur í frásögn og sé framburður hans í heild ótrúverðugur og ekki studdur ytri sönnunargögnum. Einkar trúverðugur framburður F hnekki jafnframt ýmsu í framburði ákærða, svo sem hve lengi ákærði dvaldi í airbnb íbúðinni og hvernig hann fékk aðgang að henni. Þá sé fjarstæðukenndur sá framburður ákærða að X hafi tekið fatnað úr ferðatösku sem lögregla afhenti honum og sett í þvottavél þegar X vissi að lögregla biði fyrir utan húsið og að hann myndi aldrei staldra þar lengi við. Umrædd taska hafi staðið tóm á baðherbergisgólfi þegar lögregla ruddist inn, greinilegt af myndum að búið var að opna innra byrði töskunnar og komi enginn annar en ákærði til greina í því sambandi við leit að földum fíkniefnum. Engu breyti þótt lögregla hafi verið búin að fjarlægja efnin, enda snúist sönnun í málinu um ásetning ákærða til að móttaka tösku með fíkniefnum í. Andvirði umrædds magns af sterku kókaíni, í neysluskömmtum á markaði hér á landi, nemi um 63 milljónum króna og sé fjarstæðukennt að ætla að slík verðmæti séu fengin ákærða í hendur nema hann komi með beinum hætti að hinu stórfellda fíkniefnalagabroti. Þegar við allt þetta bætist sá nýi og ótrúverðugi dómsframburður ákærða að nefndur Jonatan hafi lánað honum, nær ókunnugum manni, iPhone farsíma, án tilefnis, telur ákæruvaldið að heildstætt mat á fyrirliggjandi sönnunargögnum taki af allan skynsamlegan vafa um sekt ákærða og því beri að sakfella hann samkvæmt hinni breyttu ákæru. Skipti þar engu þótt gagnrýna megi ákveðna þætti í lögreglurannsókn máls, enda breyti slík vanhöld engu um þá staðreynd hve ótrúverðugur framburður ákærða sé í heild um sakarefni máls.
Af hálfu ákærða er einkum á því byggt að lögreglurannsókn máls sé svo stórlega ábótavant að leiða beri til sýknu. Lögregla hafi frá upphafi gefið sér sekt ákærða, strax í upphafi ranglega fullyrt að hann hafi tekið umrædda airbnb íbúð á leigu, ekkert gert til að rannsaka hvort sú væri raunin, ekki rannsakað farsíma ákærða þótt hann veitti til þess heimild, ekki tekið fingraför af ferðatösku X til að staðreyna hvort ákærði hafi snert hana, ekki tryggt að hljóð- og/eða myndupptökur væru gerðar um atburðarás í íbúðinni, ekki hirt um að taka viðbótarskýrslu af ákærða eftir fyrstu skýrslugjöf hans 22. apríl og ekki reynt að staðreyna eða hrekja frásögn hans um Jonatan. Þessa í stað byggi málatilbúnaður ákæruvaldsins á órökstuddum fullyrðingum og hreinum getgátum um sekt ákærða, sem fái ekki haldbæra stoð í fyrirliggjandi gögnum. Sönnunarstaða málsins sé sú að ákærði og X eru einir til frásagnar um hvað gerðist í airbnb íbúðinni áður en lögregla ruddist inn. Standi þar ekki aðeins orð gegn orði um atburðarás heldur orð eins sakbornings gegn öðrum sakborningi. Þegar af þeirri ástæðu verði sakfelling ekki reist á frásögn X gegn eindreginni sakarneitun ákærða. Meta verði framburði þeirra heildstætt. Slíkt mat geti ekki leitt til annars en að framburður X verði metinn afar ótrúverðugur og framburður ákærða trúverðugur í öllum aðalatriðum. Skynsamlegan vafa í því sambandi beri að meta ákærða í hag. Óháð því hvort dómurinn telji framburð ákærða ótrúverðugan að hluta standi eftir að hvorki framburður X né önnur sakargögn hreki frásögn ákærða eða veiki svo nokkru nemi og því sé ótæk önnur niðurstaða en að sýkna ákærða af sakargiftum í málinu.
VI. - Niðurstöður.
Samkvæmt 108. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála hvílir sönnunarbyrði um sekt ákærða og atvik sem telja má honum í óhag á ákæruvaldinu og verður ákærði því aðeins sakfelldur að nægileg sönnun, sem ekki verði vefengd með skynsamlegum rökum, teljist fram komin um hvert það atriði er varðar sekt, sbr. 1. mgr. 109. gr. Metur dómari enn fremur, eftir því sem þörf krefur, hvert sönnunargildi þær staðhæfingar hafa sem varða ekki beinlínis það atriði sem sanna skal en ályktanir má leiða af um það, sbr. 2. mgr. 109. gr. Samkvæmt 1. mgr. 111. gr. gildir og sú grundvallarregla að dómur skuli reistur á sönnunargögnum sem færð eru fram við meðferð máls fyrir dómi.
Ákærða Kendry er gefið að sök að hafa gert tilraun til að taka á móti og varsla 2.897,61 gramm af kókaíni, ætluðu til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni, sem X flutti til Íslands þriðjudaginn 22. apríl sl., falin í ferðatösku, en áður en X afhenti ákærða efnin hafði lögregla lagt hald á þau.
Í málinu liggur fyrir að umræddan dag flutti X til landsins tilgreint magn kókaíns, falið í ferðatösku sem lögregla skipti út fyrir aðra ferðatösku, án fíkniefna eða gerviefna í þeirra stað, kom fyrir staðsetningarbúnaði í nýju ferðatöskunni og fylgdist með ferðum X og töskunnar að airbnb íbúð á jarðhæð hússins að […]. Af framburði X og ákærða Kendry er ljóst að þeir hittust fyrir utan húsið og vissu þá ekki deili hvor á öðrum, að í framhaldi hleypti ákærði X inn í airbnb íbúðina með ferðatöskuna og lokaði á eftir þeim. Ákærða og X ber saman um að X hafi ekki dvalið lengi í íbúðinni og hann vart verið stiginn út fyrir hús, án ferðatöskunnar, þegar lögregla knúði dyra. Verður við allt þetta miðað við úrlausn máls, sbr. 2. mgr. 109. gr. laga um meðferð sakamála. Jafnframt þykir mega leggja til grundvallar þann dómsframburð ákærða, sem samrýmist öðru sem fram er komið í málinu, að X hafi vart verið tvær mínútur inni í íbúðinni áður en hann fór út og lögreglu dreif að.
Samkvæmt framburði lögreglumanna A, B, C og D komu þeir allir að lögregluaðgerðum að […]. Af framburði B og C er ljóst að táningsstúlka, dóttir F eiganda airbnb íbúðarinnar, hleypti lögreglu inn í húsið, hljóp í framhaldi upp á efri hæð þar sem fjölskylda hennar bjó og að báðir lögreglumenn fylgdu stúlkunni þangað áður en þeir fóru niður og inn í airbnb íbúðina. Óháð því sem fram kemur í frumskýrslu lögreglumanns A sáu hvorki hann né hinir lögreglumennirnir X afhenda ákærða þá ferðatösku sem hér um ræðir. Hvað sem því líður verður lagt til grundvallar að þegar lögregla fór inn í airbnb íbúðina og handtók ákærða hafi ferðataska hans legið á rúmi í svefnherbergi íbúðarinnar og ferðataska X legið opin og tóm á baðherbergisgólfi fyrir framan þvottavél. Samrýmist sú ályktun því sem fram kemur í leitar- og myndaskýrslum lögreglu sem frá greinir í köflum I.-2. og I.-3. dómsins, sem og dómsframburði ákærða sjálfs.
Eftir stendur að ákærði og X eru einir til frásagnar um hvað gerðist inni í íbúðinni þær örfáu mínútur sem X var inni og stendur þar orð gegn orði. Fyrir dómi bar X að hann hafi lagt ferðatösku sína frá sér á gólfi við hlið rúms í svefnherbergi íbúðarinnar, fylgst með ákærða opna töskuna þar og strax á eftir farið út og í fang lögreglu. Jafnframt hafnaði X því alfarið að hafa sjálfur opnað töskuna og sett fatnað úr henni í þvottavél. Á móti stendur sá framburður ákærða hjá lögreglu að X hafi komið inn í íbúðina, viljað bjór, í framhaldi opnað ferðatöskuna, tekið úr henni svart tæki (staðsetningarbúnað lögreglu) og fatnað, lagt tækið á rúmið í svefnherberginu, sett föt úr töskunni í þvottavél, því næst farið út að reykja, ákærði á sama tíma stungið tækinu í vasa sinn, ætlað að spyrja X hvað þetta væri og lögregla í sömu andrá ruðst inn í íbúðina. Enn fremur, framburður ákærða fyrir dómi, sem er samhljóða fyrri frásögn í öllum meginatriðum, þó þannig að X eigi að hafa spurt ákærða um þvottavél, opnað ferðatöskuna á svefnherbergisgólfi til að setja fatnað úr henni í vélina, skilið töskuna eftir á gólfinu og farið út til að reykja eða skreppa í búð. Ákærði hvikaði aldrei frá því að hann hafi á engum tímapunkti móttekið töskuna, hvað þá snert hana og þvertók fyrir að hafa opnað innra byrði tómrar töskunnar.
Það er álit dómsins að ofangreindur framburður X, virtur einn og sér, sé trúverðugur og styðji þær sakargiftir á hendur ákærða að hann hafi í airbnb íbúðinni gert tilraun til að móttaka og varsla fíkniefni sem X hafði sama dag smyglað til landsins í annarri ferðatösku.
Við mat á trúverðugleika ákærða um sömu atriði er í fleiri horn að líta. Fyrir það fyrsta þykir með ólíkindum sú frásögn ákærða að hann hafi í apríl gist 3-4 nætur á hóteli í miðbæ Reykjavíkur, svo sem hann bar hjá lögreglu, eða jafnvel mun lengur, svo sem ráða má af dómsframburði hans, án þess að vita hvað hótelið heiti eða hvar það sé nánar staðsett. Verður í því sambandi ekki annað ráðið en að ákærði hafi sjálfur greitt fyrir meinta gistingu. Í annan stað þykir með miklum ólíkindum sú frásögn ákærða að á hótelinu hafi hann kynnst manni að nafni Jonatan, sá maður séð aumur á ákærða vegna fjárskorts og ekki aðeins útvegað honum endurgjaldslaus afnot af airbnb íbúðinni að […] í 5-6 daga gegn því einu að ákærði hleypti ókunnum manni inn í íbúðina, heldur einnig lánað ákærða, af góðsemi einni, iPhone farsíma. Í þriðja liggur fyrir sá dómsframburður F eiganda airbnb íbúðarinnar, sem hefur engra hagsmuna að gæta af málsúrslitum og dómurinn metur trúverðugan, að enginn hafi flutt inn í íbúðina fyrr en að kvöldi 21. apríl, þá er karlmaður, sem svarar sterklega til útlits ákærða, kom að […] og fékk hjá F talnakóða til að nálgast lykil að íbúðinni. Þykir þessi trúverðugi framburður F hrekja öndverðan framburð ákærða um hvenær og hvernig hann fékk lykil í hendur og er það álit dómsins að sá framburður ákærða sé rangur og haldlaus við úrlausn máls. Þegar við þetta bætist sú staðreynd að X vissi að lögregla biði eftir að ryðjast inn í airbnb íbúðina þegar X fór þangað inn, þykir sá framburður ákærða með hreinum ólíkindum að X hafi óskað eftir að þvo fatnað úr ferðatösku þeirri sem lögregla hafði skömmu áður afhent honum. Þá verður ekki dregin önnur haldbær ályktun en sú að X hafi skilið við ferðatöskuna á svefnherbergisgólfi íbúðarinnar og ákærði eftir það fært töskuna inn á baðherbergisgólf. Að því gættu og með vísan til myndaskýrslu lögreglu, sem sýnir glöggt að taskan stóð þar tóm og búið að opna innra byrði hennar, verður ekki dregin önnur haldbær ályktun en sú að ákærði hafi opnað innra byrðið og það í þeim tilgangi að kanna hvort þar væri að finna fíkniefni.
Samkvæmt öllu framansögðu er það álit dómsins að framburður ákærða í heild og skýringar hans á dvöl sinni í airbnb íbúðinni séu afar ótrúverðugar og að engu hafandi við úrlausn máls. Að því sögðu telur dómurinn einsætt að ákærða hafi verið falið það hlutverk í fíkniefnainnflutningi X að taka á móti ferðatösku með fíkniefnum í og ákærði þannig verið hlekkur í framkvæmd þess brots sem ákært er fyrir. Óháð því hvort hlutverk ákærða hafi eingöngu falist í því að móttaka fíkniefnin og varsla þau tímabundið áður en þau væru öðrum afhent til söludreifingar, þykir óhætt að slá því föstu að ásetningur ákærða hafi náð til þess að taka þátt í fíkniefnainnflutningi og honum staðið á sama um hvaða efni væri að ræða og í hvaða magni. Er ákærði þannig sannur að þeirri sök sem hann er borinn í málinu og þykir réttilega heimfærð til refsiákvæða í ákæru.
Dómurinn telur engu geta breytt í því sambandi þótt lögreglurannsókn máls hafi verið áfátt í ýmsum atriðum, svo sem gagnrýnt er af hálfu ákærða og tekið er undir af hálfu ákæruvaldsins, sbr. V. kafli dómsins, enda dómsniðurstaða fyrst og fremst reist á þeim sönnunargögnum sem færð voru fram við aðalmeðferð máls.
Ákærði hefur ekki áður orðið uppvís að refsiverðri háttsemi. Ber að taka tillit til þessa við ákvörðun refsingar. Hann á sér ekki málsbætur. Að gættum þessum atriðum og með vísan til 1., 3., 4., 7. og 9. töluliðs 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga, þess að ákærði er sannur að þátttöku í innflutningi og ætlaðri söludreifingu á umtalsverðu magni af mjög sterku kókaíni, þess að ákvæði 2. mgr. 20. gr. almennra hegningarlaga þykja ekki réttlæta vægari refsingu en fyrir fullframið brot og loks með hliðsjón af dómaframkvæmd Landsréttar í málum nr. 874/2023 nr. 23/2024 nr. 226/2024 og nr. 228/2024, þar sem sök var í öllum tilvikum játuð, þykir refsing hæfilega ákveðin þriggja ára fangelsi. Til frádráttar þeirri refsingu komi að fullri dagatölu gæsluvarðhald ákærða frá 23. apríl 2025, sbr. 76. gr. almennra hegningarlaga.
Haldlögð fíkniefni voru gerð upptæk með óáfrýjuðum dómi réttarins í máli nr. S- 2094/2025. Í því máli var X einnig dæmdur til greiðslu útlagðs sakarkostnaðar. Að því gættu verður ákærði Kendry aðeins dæmdur til að greiða 214.884 króna aksturskostnað Ólafs Vals Guðjónssonar verjanda síns, sem og málsvarnarlaun hans hjá lögreglu og hér fyrir dómi. Með hliðsjón af eðli og umfangi máls og að teknu tilliti til tímaskýrslu verjanda og viðmiðunarreglna Dómstólasýslunnar nr. 1/2025 þykja málsvarnarlaun hæfilega ákveðin 2.678.400 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.
Dómurinn er kveðinn upp af Jónasi Jóhannssyni héraðsdómara.
Dómsorð:
Ákærði, Kendry Ariel Agramonte Moreta, sæti fangelsi í þrjú ár. Til frádráttar þeirri refsingu komi gæsluvarðhald ákærða frá 23. apríl 2025, að fullri dagatölu.
Ákærði greiði 2.678.400 króna málsvarnarlaun Ólafs Vals Guðjónssonar verjanda síns og 214.884 króna aksturskostnað.
Jónas Jóhannsson