Héraðsdómur Reykjaness
Dómur 6. júní 2025.
Mál nr. S-1636/2025:
Ákæruvaldið
(Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Maxence Yannick Bertrand
(Elisabeth Matthíasdóttir lögmaður)
Lykilorð
Útdráttur
Sakfellt fyrir fíkniefnalagabrot
Dómur
Mál þetta, sem dómtekið var 4. júní, er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Suðurnesjum, útgefinni 28. maí, á hendur Maxence Yannick Bertrand, fæddum […], ríkisborgara […], „fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot, með því að hafa fimmtudaginn 10. apríl 2025, staðið að innflutningi á samtals 13.032,33 g af kókaíni, með styrkleika 83- 87%, ætluðu til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni en fíkniefnin flutti ákærði til Íslands sem farþegi með flugi nr. FI555 frá […], til Keflavíkurflugvallar, falin í tösku sem ákærði hafði meðferðis. Telst brot þetta varða við 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Krafist er upptöku á samtals 13.032,33 g af kókaíni með vísan til 6. mgr. 5. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.“
Ákærði játar sök samkvæmt ákæru og samþykkir upptökukröfu sem verður tekin til greina. Með hliðsjón af játningunni, sem ekki þykir ástæða til að draga í efa, og gögnum málsins telst ákærði sannur að sök og er háttsemi hans réttilega færð til refsiheimildar. Ákærða hefur ekki verið gerð refsing svo vitað sé. Horft er til þess og skýlausar játningar hans en einnig til aldurs ákærða. Ákærði lýsti iðrun sinni fyrir dómi. Ákærði flutti sterk fíkniefni til landsins ætluð til söludreifingar. Horfa verður til magns og styrkleika efnanna. Ekkert hefur komið fram sem bendir til þess að ákærði hafi fjármagnað eða skipulagt innflutninginn og verður miðað við að hans hlutverk hafi verið það eitt að flytja efnin hingað til lands. Engu að síður var hann hlekkur í þeirri keðju sem ætluð var til að koma efnunum til söludreifingar á Íslandi. Þegar á allt er horft ákveðst refsing ákærða fangelsi í sex og hálft ár með frádrætti eins og í dómsorði greinir. Ákærði verður dæmdur til greiðslu málsvarnarþóknunar verjanda síns, Elisabeth Matthíasdóttur lögmanns, 1.674.000 króna með virðisaukaskatti, 127.746 króna ferðakostnaðar lögmannsins og 1.264.803 króna annars sakarkostnaðar. Ríkissaksóknari fól lögreglustjóranum á Suðurnesjum meðferð málsins. Af hálfu ákæruvalds fór Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari með málið.
Dómsorð:
Ákærði, Maxence Yannick Bertrand, sæti fangelsi í sex og hálft ár. Frá refsingunni skal draga með fullri dagatölu gæzluvarðhald sem ákærði hefur sætt frá 11. apríl 2025 til dómsuppsögudags.
Upptæk eru gerð 13.032,33 g af kókaíni.
Ákærði greiði 1.674.000 króna þóknun verjanda síns, Elisabeth Matthíasdóttur lögmanns, 127.746 króna ferðakostnað lögmannsins og 1.264.803 króna annan sakarkostnað.
Þorsteinn Davíðsson