Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjaness

Mál nr. S-3115/2024:

Ákæruvaldið

(Sigurður Ólafsson aðstoðarsaksóknari)

gegn

Damian Wlodarczyk

(Guðbjarni Eggertsson lögmaður)

Ávana- og fíkniefni. Fangelsi. Gæsluvarðhald. Upptaka.

Ákærði dæmdur í fangelsi fyrir innflutning á OxyContin töflum.

Dómur

Mál þetta, sem dómtekið var 11. desember 2024, höfðaði Héraðssaksóknari með ákæru 5. desember 2024, á hendur Damian Wlodarczyk, f.d. […], ríkisborgara […]; „fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot, með því að hafa föstudaginn 1. nóvember 2024 flutt hingað til lands 805 stk. af OxyContin 80 mg töflum (virkt efni: oxýkódon), ætluðum til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni en fíkniefnin flutti ákærði innvortis til Íslands sem farþegi með flugi […] frá Varsjá, Póllandi, til Keflavíkurflugvallar.

Telst brot þetta varða við 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. lög nr. 64/1974 og 32/2001.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Jafnframt er krafist er upptöku 805 stk. af OxyContin 80 mg töflum með vísan til 6. og 7. mgr. 5. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. 2. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.“

Ákærði krefst þess í málinu að honum verði gerð sú vægasta refsing sem lög leyfa.

Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði máls og ákvörðun viðurlaga.

Ákærði mætti við fyrirtöku málsins 11. desember sl. og játaði brot sitt án undandráttar og samþykkti upptökukröfu. Játning hans fær stoð í framlögðum gögnum. Samkvæmt því þykir sannað að ákærði hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar er réttilega heimfærð til refsiákvæða.

Ákærði er fæddur í […]. Sakavottorð ákærða, sem er […] ríkisborgari, liggur ekki frammi í málinu. Engra gagna nýtur um að ákærði hafi áður gerst sekur um refsiverða háttsemi. Verður við ákvörðun refsingar tekið mið af þeirri staðreynd.

Við ákvörðun refsingar verður horft til skýlausrar játningar ákærða og samvinnu hans við rannsókn málsins. Á hinn bóginn verður að horfa til þess að ákærði flutti til landsins hættulegt efni, sem ætlað var til sölu og dreifingar hér á landi í ágóðaskyni. Með hliðsjón af framangreindu, atvikum máls og 1., 3., 5. og 8. tl. 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 12 mánuði. Til frádráttar þeirri refsingu komi gæsluvarðhald sem ákærði hefur sætt frá 5. nóvember 2024 að fullri dagatölu, sbr. 76. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Þá sæti ákærði upptöku á OxycContin töflum sem haldlagðar voru af lögreglu líkt og nánar greinir í dómsorði.

Samkvæmt 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 ber að dæma ákærða til að greiða allan sakarkostnað, alls 901.920 krónur. Um er að ræða kostnað vegna matsgerðar Háskóla Íslands, þóknun skipaðs verjanda ákærða á rannsóknarstigi, Birkis Más Árnasonar lögmanns, 386.880 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti og þóknun skipaðs verjanda ákærða á rannsóknarstigi og fyrir dómi, Guðbjarna Eggertssonar lögmanns, 354.640 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti. Við ákvörðun þóknunar var tekið tillit til tímaskýrslu, eðlis og umfang málsins.

Erna Björt Árnadóttir, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóm þennan.

DÓMSORÐ:

Ákærði, Damian Wlodarczyk, sæti fangelsi í 12 mánuði. Til frádráttar þeirri refsingu komi gæsluvarðhald ákærða frá 5. nóvember 2024 að fullri dagatölu.

Ákærði sæti upptöku á 805 OxyContin 80 mg töflum.

Ákærði greiði 901.920 krónur í sakarkostnað þar meðtalda þóknun skipaðs verjanda síns Guðbjarna Eggertssonar lögmanns 354.640 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti og þóknun Birkis Más Árnasonar lögmanns 386.880 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.

Erna Björt Árnadóttir

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 1. mgr. 70. gr.76. gr.173. gr. a
Lög nr. 64/1974
Lög nr. 65/1974 Lög um ávana- og fíkniefni 6. mgr. 5. gr.7. mgr. 5. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 164. gr.1. mgr. 235. gr.