Héraðsdómur Reykjaness
Dómur 21. nóvember 2024.
Mál nr. S-1351/2024:
Ákæruvaldið
(Arnfríður Gígja Arngrímsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
X,
(Erlendur Þór Gunnarsson lögmaður)
Y,
(Ólafur Valur Guðjónsson lögmaður)
Imad El Moubarik,
(Guðbrandur Jóhannesson lögmaður)
Mohamed Hicham Rahmi og
(Leifur Runólfsson lögmaður)
Sunnevu Isis Hoffmann
(Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Lykilorð
Útdráttur
Sakfellt fyrir fíkniefnalagabrot
Dómur
Mál þetta, sem dómtekið var að lokinni aðalmeðferð 26. september 2024, er höfðað með ákæru héraðssaksóknara, útgefinni 30. maí 2024, á hendur X, kt. 000000- 0000, […], Y, kt. 000000-0000, […], Imad El Moubarik, kt. 000000-0000, […], Mohamed Hicham Rahmi, kt. 000000-0000, […], og Sunnevu Isis Hoffmann, kennitala, 000000-0000, […], „fyrir eftirtalin brot framin árið 2023:
I
Á hendur ákærða Mohamed Hicham Rahmi fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot og á hendur ákærðu Sunnevu Isis Hoffmann, Y og X, fyrir tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrots, með því að hafa í sameiningu staðið að innflutningi á 1.988,99 g af kókaíni með 87% styrkleika, sem samsvarar 97% af kókaínklóríði, ætluðum til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni. Fíkniefnin voru falin í tveimur pakkningum inni í tölvuturni, sem pakkað var í pappakassa ásamt tölvuskjá, en sendingin kom hingað til lands með hraðsendingafyrirtækinu FedEx frá Bandaríkjunum og var A, til heimilis að […], skráður móttakandi sendingarinnar. Fíkniefnin fundust fimmtudaginn 20. júlí við eftirlit tollvarða í aðstöðu tollgæslunnar í vöruhúsi Icetransport að Selhellu 9 í Hafnarfirði og lagði lögreglan hald á fíkniefnin sama dag, rannsakaði þau og skipti þeim út fyrir gerviefni sem komið var fyrir inni í tölvuturninum, ásamt hlustunarbúnaði og kom pakkanum fyrir á starfsstöð Fedex að Selhellu 9 í Hafnarfirði til afhendingar. Þátttaka ákærðu Mohamed, Sunnevu, Y og X í framangreindu broti er hér sem nánar greinir í liðum 1-3:
1) Ákærði Mohamed kom að skipulagningu innflutningsins og var í samskiptum við óþekktan mann eða menn í gegnum samskiptaforritið Telegram, tímabilin 5. júlí til 18. júlí og 19. júlí til 24. júlí, auk þess sem ákærði Mohamed gaf ákærðu Sunnevu, Y og X, peninga, fyrirmæli og leiðbeiningar, munnlega og í gegnum aðrar samskiptaleiðir varðandi fyrirkomulagið við sækningu pakkans, allt frá aðdraganda þess að pakkinn var sóttur og þar til ákærðu voru handtekin en þriðjudaginn 25. júlí bað ákærði Mohamed ákærðu Sunnevu, gegn peningagreiðslu, um að útvega mann til að sækja pakka í Fedex gegn peningagreiðslu, ásamt því að biðja Y um að hitta sig við verslunar- og þjónustumiðstöðina Mjódd í Reykjavík til að sækja pakka gegn peningagreiðslu og sama dag fóru ákærðu Mohamed og Sunneva, á bifreiðinni […], að Mjódd í Reykjavík þar sem að ákærðu Mohamed og Sunneva hittu ákærðu Y og X og afhentu þeim peninga til að greiða fyrir pakkann og í kjölfarið fóru ákærðu Mohamed og Sunneva, á bifreiðinni […], að starfsstöð FedEx í Hafnarfirði og eftir að ákærðu Y og X voru komnir með pakkann í fórur sínar, fóru ákærðu Mohamed og Sunneva, á bifreiðinni […], aftur að Mjódd í Reykjavík þar sem þau voru handtekin skömmu síðar.
2) Ákærða Sunneva átti, gegn peningagreiðslu og að undirlagi ákærða Mohamed, að útvega mann til að sækja pakkann, og fór síðan þriðjudaginn 25. júlí ásamt ákærða Mohamed, á bifreiðinni […], að Mjódd í Reykjavík, þar sem hún og ákærði Mohamed hittu ákærðu Y og X og afhentu þeim peninga til að greiða fyrir pakkann, auk þess sem ákærða Sunneva tók við peningum, fyrirmælum og leiðbeiningum frá ákærða Mohamed, munnlega og í gegnum aðrar samskiptaleiðir, eins og nánar er lýst í lið 1, ásamt því að gefa ákærðu Y og X, peninga, fyrirmæli og leiðbeiningar munnlega og í gegnum aðrar samskiptaleiðir varðandi fyrirkomulagið við sækningu pakkans, eins og nánar er lýst í lið 3.
3) Ákærðu Y og X tóku við peningum, fyrirmælum og leiðbeiningum frá ákærða Mohamed, og ákærðu Sunnevu munnlega og í gegnum aðrar samskiptaleiðir, allt frá aðdraganda þess að pakkinn var sóttur og þar til ákærðu öll voru handtekin, en ákærðu Y og X voru þriðjudaginn 25. júlí fengnir, gegn peningagreiðslu og að undirlagi ákærða Mohamed, til að taka á móti pakkanum að starfsstöð Fedex í Hafnarfirði, en sama dag hittu ákærðu Y og X ákærðu Mohamed og Sunnevu við Mjódd í Reykjavík þar sem þeir tóku við fyrirmælum og peningum til að sækja og greiða fyrir pakkann, að því búnu fóru ákærðu Y og X með leigubifreið að starfsstöð Fedex í Hafnarfirði þar sem ákærði X fór inn til að sækja pakkann en kom skömmu síðar aftur út og ræddi þar bæði við ákærða Y og ákærðu Sunnevu, sem kom gangandi til þeirra, og í framhaldi afhenti ákærða Sunneva ákærða X meiri pening og sótti ákærði X síðan pakkann. Í framhaldi fóru ákærðu Y og X til baka með leigubifreiðinni að Breiðholtskirkju við Mjódd í Reykjavík, samkvæmt fyrirmælum frá ákærðu Mohamed og Sunnevu, þar sem ákærði X yfirgaf bifreiðina, með pakkann meðferðis, fór að kirkjunni þar sem hann opnaði pakkann, henti tölvuturninum í ruslatunnu, gekk að hvítri BMW bifreið með númerið […], sem staðsett var á bifreiðastæði við Breiðholtskirkju, og ræddi þar við ákærðu Mohamed og Sunnevu og gekk síðan aftur að kirkjunni, þar sem pakkinn var staðsettur, þar sem hann var handtekinn en skömmu síðar var ákærði Y handtekinn í leigubifreið á Miklubraut við Klambratún.
Telst ofangreind háttsemi ákærða Mohamed, varða við 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940, ásamt síðari breytingum en ofangreind háttsemi ákærðu Sunnevu, Y og X telst varða við 173. gr. a sömu laga, ásamt síðari breytingum, sbr. 1. mgr. 20. gr. sömu laga.
II
1) Gegn ákærðu Imad El Moubarik og Mohamed Hicham Rahmi, fyrir fíkniefnalagabrot, með því að ákærði Imad hafði, að beiðni ákærða Mohamed Hicham eiganda efnanna, í vörslum sínum í farangursrými bifreiðarinnar […], samtals 226,55 g af kókaíni, þar af 159,37 g með 85% styrkleika og 49,72 g með 49% styrkleika, sem ætlað var til sölu og dreifingar, sem lögregla fann í íþróttatösku og í peningaskáp, við leit í bifreiðinni þriðjudaginn 1. ágúst.
Telst ofangreind háttsemi ákærðu varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 ásamt síðari breytingum og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.
2) Gegn ákærða Mohamed Hicham Rahmi, fyrir fíkniefnalagabrot, brot gegn lyfjalögum og lögum um bann við tilteknum frammistöðubætandi efnum og lyfjum, með því að hafa miðvikudaginn 26. júlí á þáverandi dvalarstað sínum að […], […], haft í vörslum sínum í sölu- og dreifingaskyni samtals 234, 45 g af kókaíni, þar af 223,57 g af kókaíni með 59- 60 % styrkleika, 498,33 g af hassi, þar af 488,88 g af hassi með 347 mg/g af magni tetrahýdrókannabínóls að styrkleika, 4,75 g metamfetamíni, 555 stykki af alprazolam Krka 1 mg töflum og 4 ml af testosteron en allt framangreint fann lögregla við leit í íbúðinni.
Telst ofangreind háttsemi ákærða Mohamed Hicham Rahmi varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 ásamt síðari breytingum og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002, 1. mgr. 33. gr., sbr. b. lið 2. mgr. 103. gr. lyfjalaga nr. 100/2020, 1. mgr. 2. gr., sbr. 1. og 3. mgr. 4. gr. laga um bann við tilteknum frammistöðubætandi efnum og lyfjum nr. 84/2018. Þess er krafist að ákærðu verði dæmd til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar. Krafist er upptöku á samtals 2449,99 g af kókaíni, 498,33 g af hassi, 4,75 g af metamfetamíni, 555 stykki af alprazolam Krka 1 mg töflum, 4 ml af testosteron, 298,12 g af teracaine efni, 8,84 g af inositol efni, 938,17 g af procaine efni, 2 g af kreatin efni, 102 stykki af kreatín töflum, 1197,58 g af laktósa efni, munur nr. 613445 svartur iPhone farsími, munur nr. 613448 svartur iPhone 14 Pro Max farsími, munur nr. 613449 hvítur iPhone 14 farsími, munur nr. 613451 fjólublár iPhone farsími, munur nr. 613452 Samsung Galaxy Fold farsími, munur nr. 613655 töflupressa, munur nr. 613951 svartur SentrySafe peningaskápur, munur nr. 615267 tölvuturn og munur nr. 615902 Dell tölvuskjár, með vísan til 6. og 7. mgr. 5. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002, 2. mgr. 104. gr. lyfjalaga nr. 100/2020, 4. mgr. 4. gr. laga um bann við tilteknum frammistöðubætandi efnum og lyfjum nr. 84/2018 og 1. mgr. 69. gr., 1. mgr. 69. gr. a. og 2. mgr. 69. gr. f. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 2. gr. laga nr. 149/2009.“
Ákærðu Mohamed, Y og X neita sök. Ákærðu Imad og Sunneva játa sök.
Málavextir Ákæruliður I Samkvæmt skýrslu tollvarðar, dags. 21. júlí 2023 var nánar greind sending í vöruhúsi Icetransport tekin til skoðunar daginn áður. Var sendingin samkvæmt vörulýsingu FedEx sögð innihalda nánar greindan tölvubúnað, alls rúmlega 13 kg. Í skýrslunni segir að í ljós hafi komið að sendingin innihéldi meint fíkniefni en varningur hafi verið falinn í tveimur svörtum pokum í tölvuturni. Rannsókn á efninu hafi verið jákvæðar á kókaín. Haft hafi verið samband við lögreglu sem hafi komið og tekið við pakkanum. Fram kemur í gögnum málsins að HAWB-númer sendingarinnar hafi verið […]. Skráður viðtakandi A, […].
Í upplýsingaskýrslu lögreglu, dags. 25. júlí 2023, sem rannsóknarlögreglumaður [L-1] skrifar undir, segir að í sendingunni hafi verið kókaín sem hafi vegið um 2 kg. Þá segir í skýrslunni: „Rannsóknardeild hefur fylgst með pakkanum frá því hann kom til landsins og í dag, fimm dögum síðar, kom ungur maður og sótti sendinguna í starfstöðvar Fedex í Hafnarfirði. Rannsóknardeild veitti athygli ungri konu við Fedex á sama tíma og pakkinn var sóttur. Pakkann sótti ungur drengur sem var klæddur í […] joggingföt. Hann fór inn og sagðist vera að sækja pakkann. Þessi drengur reyndist vera X. Hann þurfti að greiða fyrir pakkann og kom þá aftur út og ræddi við konuna. Eftir að hann ræddi við konuna þá gekk hann að leigubílnum og talaði við farþegann þar sem reyndist vera bróðir hans, Y, og fékk pening frá honum. X fór svo aftur inn og greiddi fyrir sendinguna, tók pakkann, fór út og afhenti leigubílstjóranum sem setti pakkann í farangursrými bifreiðarinnar og ók á brott. Unga konan gekk í burtu í átt að Hertz bílasölunni [svo]. Lögreglumenn fylgdu eftir leigubifreiðinni og þegar hún var stödd við N1 Lækjargötu í Hafnarfirði þá veittu lögreglumenn athygli hvítri BMW bifreið sem var að fylgja eftir leigubílnum. Lögreglumenn sáu að farþeginn í þeirri bifreið reyndist vera þessi unga kona sem X hitti fyrir utan Fedex. Lögreglan fylgdi eftir leigubílnum á Reykjanesbraut og alltaf var þessi hvíti BMW bíll að fylgja eftir leigubílnum. Leigubílnum var ekið í Mjóddina og stöðvaði við kirkjuna. Þar fór X út úr bifreiðinni og tók pakkann með sér. X fór með pakkann að kirkjunni þar sem hann opnaði pakkann og tölvuturninn. [Tölvuturninum] henti X í ruslatunnu og kassann skildi hann eftir undir stiga. Lögreglumenn sáu að hvítu BMW bifreiðinni var ekið í átt að Seljahverfinu en snúið strax við og [ekið] rakleitt að bifreiðastæði við kirkjuna í Mjódd. X kom þangað gangandi og ræddi við ökumanninn, Mohamed Hicham Rahmi og ungu konuna, Sunnevu Isis Hoffmann. Eftir að hafa rætt við þau þá fór X aftur að kirkjunni þar sem pakkinn var og var hann þá handtekinn. Mohamed og Sunneva voru einnig handtekin stuttu síðar í Mjóddinni. Leigubílstjórinn og farþeginn, Y, voru handteknir á Miklubraut við Klambratún. Allir sakborningar, nema Mohamed Hicham Rahmi, heimiluðu húsleit og afritun farsíma.“ Þá segir í skýrslunni „að fyrr í þessum mánuði kom sending eins og þessi frá sama sendanda í Bandaríkjunum. Sú sending var sótt, eins og þessi, á starfstöð Fedex í Hafnarfirði þann 12. júlí sl. Strax daginn eftir var þessi sending, sem lögregla hefur haldlagt, send af stað (13. júlí) frá Bandaríkjunum.“
Í gögnum málsins er að finna útprentaðar ljósmyndir sem lögregla mun hafa tekið og segir í upplýsingaskýrslu að þær sýni „afhendingu á pakka við FedEx í Hafnarfirði“. Í skýringartexta lögreglu við fyrstu myndina segir: „Rétt fyrir klukkan 16:00 kemur leigubifreið að FedEx og strákur klæddur í svartan […] heilgalla gengur úr bílnum og inn í afgreiðslu FedEx. Sá reyndist vera X. Þar óskar hann eftir að sækja pakkann sem lögregla hafði skipt gerviefnum út fyrir þau fíkniefni sem flutt voru til landsins.“ Við næstu mynd, sem mun sýna ákærða X standa við leigubifreið, skrifar lögregla: „Klukkan 16:01 gengur X aftur út og að leigubílnum.“ Tvær myndir munu sýna ákærða X standa við leigubifreið og lögregla skráir: „X á samræður við farþega í leigubílnum. Farþeginn reyndist vera bróðir hans, Y.“ Við mynd sem sýnir leigubifreið og við hægri hlið hennar mann sem mun vera ákærði X og við vinstri hlið bifreiðarinnar konu, skrifar lögregla: „Kona sem reyndist vera Sunneva Isis Hoffmann gengur að leigubílnum.“ Við mynd, sem virðist sýna manninn og konuna ganga í átt frá leigubifreiðinni, skrifar lögregla: „Sunneva lætur X hafa eitthvað, að öllum líkindum peninga.“ Við myndir sem virðast sýna fyrst konuna ganga í átt frá leigubifreiðinni, í gagnstæða átt við þá sem konan gekk á fyrri mynd, og svo fara upp tröppur, skrifar lögregla: „Sunneva gekk svo aftur til baka upp tröppurnar sem hún kom.“ Tvær myndir sýna mann, sem mun vera ákærði X, með kassa í höndum og lögregla skrifar við fyrri myndina: „X gengur svo út með pakkann í höndunum“ og við síðari „X gengur að leigubílnum og færir leigubílstjóranum pakkann sem setur hann í skottið á bílnum.“ Við mynd af manni sem gengur á bifreiðastæði skrifar lögregla: „Mohamed gengur rólega meðfram Hertz klukkan 15:52“. Við myndir af manni, sem virðist sá sami, sem virðist hlaupa í gagnstæða átt eftir bifreiðastæði, skrifar lögregla: „Mohamed hleypur til baka klukkan 16:05“. Þá eru tvær myndir sem sýna hvíta BMW-bifreið, […] að því er virðist í akstri. Við fyrri myndina, sem virðist sýna konu við stýri en karlmann í farþegasæti við hlið hennar, skráir lögregla að myndin sé tekin 25. júlí „klukkan 15:27 í átt að Völlunum“ og við þá síðari, sem virðist sýna sama karlmann, en þá við stýrið, og sömu konu, en þá í farþegasæti við hlið hans, skráir lögregla að myndin sé tekin sama dag „klukkan 16:15 frá Völlunum“. Á öðrum stað í gögnunum er að finna sambærilega mynd af konunni við stýrið og karlinn við hlið hennar og þar skráir lögregla: „Bifreiðin […] ekur frá Reykjanesbraut inn í Hlíðartorg, við N1 í Hafnarfirði til suðurs kl. 15:27. Ökumaður er Sunneva og farþegi er Mohamed.“
Í málinu liggur skýrsla lögreglu um skoðun á Apple Iphone síma sem sagður er hafa verið í eigu ákærða Y. Lögregluþjónn B mun hafa undirritað skýrsluna með númeri sínu. Í skýrslunni segir að unnt hafi verið „að sjá samskipti [símans] við [ákærða Mohamed]. Sjá má á gögnum að þeir ræða saman á snjallforritunum Instagram, Signal, Whatsapp, Snapchat, smáskilaboð, símtöl. Í símtölum og smáskilaboðum ræðir Y vði Mo í gengum símanúmerin: […] […] - […] […] - […] […]. Við skoðun á þeirra samskiptum má sjá að allra fyrstu samskipti þeirra eru 30.04.2023 klukkan 15:17 og var það við […]númerið. Þeir ræða allra fyrst saman í gegnum […] númerið þann 09.07.2023 klukkan 21:23. Þeir ræða allra fyrst saman gegnum […] númerið þann 25.07.2023 klukkan 14:37. Þá segir að hinn 25. júlí 2023 eigi ákærði Y „178 samskipti í gegnum allar ofangreindar samskiptaleiðir og eru flest þeirra við Mohamed. Klukkan 14:10 ræða þeir saman í gegnum Instagram forritið. Y að þeir séu að klæða sig og spyr hvar þeir eigi að hittast. Mo sendir honum mynd og hringir svo símtal kl. 14:22. Þeir hringjast svo aftur á klukkan 14:26. Klukkan 14:28 sendir Y að hann eigi ekki pening heldur og biður Mo að hringja í sig. Klukkan 14:31 sendir Y svo að hann sé mættur í Mjóddina. Mo hringir svo í hann á sömu stundu. Þeir hringjast svo á klukkan 14:32 og 14:33. Y sendir Mo svo farsímanúmerið sitt ([…]) og biður um númerið hans Mo. Við skoðun lögreglu var Y búinn að eyða ofangreindum samskiptaþræði út af Instagram hjá sér. Y og Mo ræða svo eftir þetta einungis á Signal frá 14:47 og upp að handtöku klukkan 16:30.“
Fyrir liggja í málinu útprentuð instagram-samskipti af síma ákærða Y 25. júlí 2023 og eru þau skráð milli „[…] (owner)“ og „[…]“. Samskiptin eru á spænsku en í gögnum málsins fylgir þeim þýðing sem lögregla aflaði. Klukkan 14:10 skrifar R: „Við erum að klæða okkur“. og „Hvar eigum við að hittast?“ Klukkan 14:19 skrifar R: „???“. Klukkan 14:22 skrifar […]: „Já“ og sendir mynd og aðra klukkan 14:23. Klukkan 14:26 er skráð að R hafi hafið hljóðsímtal og klukkan 14:27 er skráð að hljóðsímtali sé lokið. Klukkan 14:28 er skráð að myndbandssamtali sé lokið. Klukkan 14:28 skrifar R: „Hvernig tek ég þetta ef ég veit ekki“ og „Ég á ekki pening heldur“. Klukkan 14:29 skrifar R: „Hringdu í mig“. Klukkan 14:31 skrifar R: „Okey“ og „Ég er í mjóddinni“. Klukkan 14:31 er skráð að […] hafi hringt hljóðsímtal. Klukkan 14:32 er skráð að hljóðsímtali sé lokið. Klukkan 14:32 er skráð hljóðsímtal frá R, á sömu mínútu, tuttugu og fjórum sekúndum síðar, að hljóðsímtali sé lokið. Sekúndu síðar skrifar R: „Hringdu í mig“ og klukkan 14:33 er skráð hljóðsímtal frá […]. Klukkan 14:36 skrifar R: „Hringdu í mig“, klukkan 14:37 skrifar R: „[…]“ og klukkan 14:37: „Gefðu mér þitt númer“.
Þá liggur í málinu upplýsingaskýrsla lögreglu um skoðun á umræddum farsíma sem sagður er sími ákærða Y. Í skýrslunni, sem lögregluþjónn B mun undirrita með númeri sínu, segir að „nánar voru samskipti skoðuð á milli [ákærða Y] og Don...Moha, sem lögregla er fullviss um að sé Mohamed Hicham Rahmi.“ Sjá megi að upphaf þeirra hafi verið 13. apríl 2023 kl. 02:04 með skilaboðum og að fyrsta símtal þeirra hafi verið 30. apríl 2023 klukkan 15:17. Er því næst birt skjámynd þar sem meðal annars er skráð tímasetningin 13. apríl 2023 kl. 02:04:33 og þátttakendur sagðir vera „owner“ og „[…]“ sem sé með instagram-númerið […]. Í skýrslunni kemur fram að hinn 23. júlí 2023 hafi „owner“ og „[…]“ hafið „spjallþráð með því að samþykkja hvorn annan á whatsapp. Þeir eiga þó engin samtöl sín á milli þar.“ Í skýrslunni er skrá um símtöl „á milli Y og Mo af Signal“. Kemur þar fram að „owner“ notar þar nafnið „[…]“ og eru skráð samskipti hans við „el flaco“ hinn 25. júlí 2023. Verður þar ráðið að […] hafi hringt til […] kl. 14:37 en símtalið er skráð sem „Missed“. Fyrsta símtalið sem er skráð svarað er frá […] til […] kl. 14:39 og er sagt hafa varað í eina mínútu og tuttugu og átta sekúndur. Klukkan 14:41 er skráð annað símtal frá el flaco og sagt hafa staðið í tólf sekúndur. Eru svo skráðar þrjár hringingar sem „Not answered“ en því næst eru skráðar sjö hringingar „Answered“ og með nánar greindum tíma sem þær hafi varað. Er fyrsta þessara símtala skráð kl. 14:51 frá el flaco og sagt hafa varað í tvær mínútur og 48 sekúndur en það síðasta til el flaco klukkan 15:03 og sagt hafa staðið í fjórtán sekúndur. Því næst eru skráðar hringingar milli kl. 15:08 og 15:08 þar sem ekki hafi verið svarað. Eru svo skráð átta símtöl þar sem svarað hafi verið og skráð tímalengd hvers og eins. Hið fyrsta kl. 15:15 frá el flaco og sagt hafa varað tuttugu og tvær sekúndur, hið næsta kl. 15:17 frá el flaco og hafa varað í þrjátíu og eina sekúndu, því næst kl. 15:18 frá el flaco og hafa varað í fimmtán sekúndur, þá annað kl. 15:18 og hafa varað í tuttugu og sjö sekúndur, því næst kl. 15:29 frá el flaco og sagt hafa varað í tuttugu og tvær sekúndur, þá kl. 15:38 og sagt hafa varað í tuttugu sekúndur. Næst er skráð ósvöruð hringing frá el flaco kl. 15:39 en því næst símtal frá el flaco, einnig kl. 15:39 og sagt hafa varað í átján sekúndur. Þá er skráð símtal frá el flaco kl. 15:44 og sagt hafa varað í tuttugu og sjö sekúndur, skráð er ósvöruð hringing frá S kl. 15:48 en símtal frá S kl. 15:49 og sagt hafa varað í nítján sekúndur. Þá kemur ósvöruð hringing frá S kl. 15:51 og símtal frá el flaco kl. 15:56 sem sagt er hafa varað í tuttugu og sex sekúndur. Skráð er símtal frá el flaco kl. 16:00 og sagt hafa varað í ellefu sekúndur og símtal frá S kl. 16:04 og sagt hafa varað í þrjátíu og fimm sekúndur. Skráð er símtal frá S kl. 16:08 og sagt hafa varað í fjörutíu og tvær sekúndur. Skráð er símtal frá el flaco kl. 16:15 og sagt hafa varað í eina mínútu og þrjátíu sekúndur og annað símtal frá el flaco er skráð kl. 16:19 og sagt hafa varað í þrjátíu sekúndur. Skráð er símtal frá el flaco kl. 16:20 og sagt hafa varað í tuttugu og fjórar sekúndur. Skráð er ósvöruð hringing frá S kl. 16:23 og skráð símtal frá S einnig kl. 16:23 og sagt hafa varað í tuttugu og fimm sekúndur. Skráð er símtal frá El flaco kl. 16:23 og sagt hafa varað í átján sekúndur og loks er skráð ósvöruð hringing frá S kl. 16:31.
Í málinu er ljósmyndaskýrsla lögreglu og segir þar að ljósmyndir sýni „skilaboð úr farsíma“ ákærða Y. Segir í skýrslunni að myndir sýni „Telegram aðgang Y þar sem hann hefur einungis átt samskipti við einn aðila undir nafninu „El Flaco“ sem lögregla er fullviss um að sé Mohamed Hicham Rahmi, [...]. En farsímanúmerið […] er skráð á þann farsíma.“ Lögregluþjónn [L-3] mun rita undir skýrsluna með númeri sínu. Fyrir dómi sagði lögregluþjónninn að um misritun væri að ræða í skýrslunni, samskiptin hefðu verið á „signal“ en ekki „telegram“.
Samkvæmt haldlagningarskýrslu lögreglu var ákærða Sunneva með þrjá farsíma í veski sínu við handtöku, hvítan Apple Iphone með númerið […], fjólubláan Iphone í svörtu hulstri með númerið […] sem sagt er skráð á ákærða Mohamed og Samsung Galaxy Fold með tveimur SIM-kortum, annað þeirra […] og segir í skýrslunni: „Sagður í eigu Mohamed“.
Samkvæmt lögregluskýrslu sem sérfræðingurinn [S-1] skrifar undir, var nánar greindur Apple Iphone farsími tekinn til rannsóknar. Kemur fram í skýrslunni að innskráð hafi verið í símann „Sunneva I Hoffmann“. Í skýrslunni segir: „Sunneva Isis Hoffmann heimilaði lögreglu að skoða farsíma sinn en við skoðun á farsíma hennar má sjá að hún er í samskiptum við Mohamed Hicham Rahmi á samfélagsmiðlinum „Instagram“. Í samtali þeirra á milli á „Instagram“ sem hefst kl. 12:14 þriðjudaginn 25. júlí 2023 má sjá að Mohamed hringir í Sunnevu og sendir henni myndir og biður hana um að finna einhvern til að sækja pakka frá á pósthúsinu.“ Af skjámyndum má sjá að samskipti eru við „Don...Moha“ og undir því nafni jafnan ritað með smærra letri: [...]. Á einum stað í samskiptunum skrifar Don...Moha: „The [svo] have to pick Up fram Post“ og með fylgir mynd af kassa. Skömmu síðar bætir Don...Moha við: „Just find someone don‘t talk if something wrong“.
Í málinu liggur skýrsla um rannsókn Samsung Galaxy Fold símans sem sérfræðingur [S-1] skrifar undir. Þar kemur fram að innskráður á símanum hafi verið [...] og að WhatsApp númer símans sé […] og nafnið Chico en „Signal Private Messenger“ sé […] og nafnið el flaco. Þá segir að símanúmer sé […].
Í málinu liggur skýrsla lögreglu um rannsókn Samsung Galaxy Fold farsíma sem lögregla segir hafa verið í eigu ákærða Mohamed. Síminn hafi verið læstur en lögregla náð að opna hann. Í gögnum málsins eru rakin samskipti úr símanum sem sögð eru hafa farið fram „á spænsku á Telegram forritinu“ 24. júlí 2023. Jafnframt liggur fyrir í gögnunum þýðing sem lögregla aflaði. Er þar skráð að aðilinn, sem lögregla segir vera ákærða Mohamed, spyr hvort „stóri pakkinn“ hafi komið til Íslands. „Ha?“ spyr viðmælandinn. „Hvernig gekk pakkanum, er hann kominn“ segir ætlaður Mohamed. Viðmælandi svarar játandi, hann sé „hér“ og hafi komið á föstudaginn. Svo virðist samband hafa slitnað. Skráð er „(Símtal hefst)“ og svo segir viðmælandinn: „Sambandið slitnaði, ég skal senda þér þetta“. Ætlaður Mohamed segir: „Sendu mér númerið til að tjekka á þessu“. Viðmælandinn svarar: „[…] Fedex“. Í skýrslunni eru einnig skráð samskipti, sem sögð eru hafa farið fram „á spænsku á Telegram forritinu“ 6. júlí 2023. Jafnframt liggur fyrir þýðing sem lögregla aflaði. Þar segir ætlaður Mohamed meðal annars: „hann er kominn Í hverju kemur hann!! Prentara(?)“. Viðmælandi svarar: „Tölva alveg eins Eins og hin geturðu passað upp á þetta plís“. Ætlaður Mohamed segir: „Ok, betri í einum Printer (?) Hversu margir koma!! 2 eða 3“. Viðmælandi svarar: „Þarna koma 2 En á mánudaginn kemur næsti með 3“. Ætlaður Mohamed segir: „Ok, ekki með fedex Sendu þetta frekar eins og þetta kom í fyrsta skipti Eða í einhverju öðru“. Næsta samtal er skráð 12. júlí 2023. Meðal þess sem þar kemur fram er að viðmælandinn sendir nafnið „[…]“, heimilisfangið […]og símanúmerið […]. Þá er skráð samtal 18. júlí 2023, þar segir viðmælandinn „Það er búið að senda, hún fór áðan Hún kemur á föstudaginn En þetta er síðasti sem kemur svona, seinna verða þeir öðru vísi Geturðu sent mér fleiri heimilisföng og svoleiðis fyrir næstu“. Ætlaður Mohamed svarar: „Hvernig sendu þeir þetta Í gegnum fedex! Í sömu tölvunni Láttu mig vita hversu margir eru“. Viðmælandi svarar: „Já en ok þeir eru búnir að senda , ég veit ekki hvort það séu 2 eða 3. En þetta er síðasti svona, svo mun það breytast“.
Fyrir liggur upplýsingaskýrsla lögreglu, sem lögregluþjónn [L-3] mun hafa ritað númer sitt undir. Er þar birt mynd af manni og lögregla skráir við myndina: „Neðangreind mynd fannst í myndaalbúmi Samsung Galaxy Fold munanúmer [...]. Myndin er greinilega sjálfsmynd tekin á farsímann. Myndin var borin undir Mohamed, og var beðinn um að gera grein fyrir hver maðurinn væri á myndinni í framburðarskýrslu 4.“ Ákærði Mohamed gaf skýrslu hjá lögreglu 2. október 2024. Í samantekt lögreglu um skýrslutökuna segir: „Borin voru undir Mohamed gögn úr farsíma sem haldlagður var í málinu. Gögnin sýna samtal þar sem innflutningurinn er skipulagður. Mohamed neitaði alfarið að tjá sig um gögnin. Mohamed var sýnd mynd af honum, mynd sem fannst í farsímanum. Mohamed endurþekkti sjálfan sig á myndinni og sagði að þetta væri hann. (Túlkurinn skildi svo að Mohamed hafi neitað að þetta væri hann á myndinni og túlkaði svo að Mohamed kvaðst ekki þekkja manninn, túlkurinn bað svo Mohamed að segja aftur hvað hann sagði og neitaði þá Mohamed að tjá sig alfarið um myndina og svara spurningum um hana).“ Í upphafi skýrslunnar, þar sem skráðar eru ýmsar upplýsingar um ákærða, svo sem heimili og dvalarstaður, er einnig skráð í reitinn „Farsími“ númerið […].
Ákærði Mohamed gaf skýrslu hjá lögreglu 26. júlí 2023. Í samantekt lögreglu er haft eftir ákærða að hann sé „skutlari og sali á áfengi.“ Daginn áður hafi hann „skutlað manni“ frá Mjóddinni og að FedEx. Í samantektinni segir að ákærði hafi ekki viljað tjá sig um manninn frekar eða hvernig samskiptum þeirra hafi verið háttað. Haft er eftir ákærða að vinkona hans, Sunneva, hafi verið með honum í bifreiðinni og hafi þau farið saman með manninn að FedEx. Ákærði hafi ekki viljað tjá sig um hvað hafi átt sér stað við FedEx en sagt að maðurinn hafi yfirgefið bifreiðina og ákærði og Sunneva hafi ekið aftur í Mjódd. Þau hafi „orðið svöng og ákveðið að fá sér að borða í Nettó og ætlað að kaupa Oxycontin af einhverjum þar.“ Haft er eftir ákærða að hann hafi fengið sér contalgin töflur daginn áður. Haft er eftir ákærða að hann hafi ekið BMW bifreið en að hann hafi neitað að tjá sig frekar að öðru leyti.
Ákærði Mohamed gaf skýrslu hjá lögreglu að nýju 1. ágúst 2023. Samkvæmt samantekt var honum í upphafi gefinn kostur á að breyta fyrri framburði en hélt sig við hann. Segir að ákærði hafi neitað að svara spurningum „tengt staðsetningu hans, háttsemi og gjörningum við FedEx“. Hann hafi ekki viljað tjá sig um hvað hann hafi rætt í síma þann dag og ekki um hvern eða hverja hann hafi hitt í Mjóddinni eftir pakkinn hafi komi þangað. Í samantektinni segir að ákærða hafi verið sýndar myndir er sýnt hafi hann sem farþega í bifreið að Völlunum og sem ökumann bifreiðar frá þeim. Hann hafi sagt sig þekkja meðákærðu Sunnevu á myndunum en neitað að tjá sig hver væri með henni. Þá hafi honum verið sýndar myndir er sýni hann ganga framhjá bílaleigunni Hertz við hliðina á FedEx og hafi hann neitað að tjá sig um þær. Haft er eftir ákærða að hann og meðákærða Sunneva töluðu stundum saman í síma eða sendi skilaboð sín á milli á „instagram“.
Ákærða Sunneva gaf skýrslu hjá lögreglu 26. júlí 2023. Í samantekt er haft eftir henni að meðákærði Mohamed hafi beðið hana um að útvega einhvern til að sækja pakka í FedEx. Hún hafi ekki vitað hvað væri í pakkanum en hana hafi grunað að það væri kókaín. Hún hafi verið að reyna að finna einhvern til að sækja pakkann þegar meðákærði Mohamed hafi hringt og sagt að hann væri fyrir utan hjá henni og væri búinn að finna einhverja. Þau hafi ekið Laugaveg og ákærði tekið peninga úr hraðbanka. Næst hafi þau ekið í Hafnarfjörð að FedEx. Ákærða hafi verið hrædd í bifreiðinni með honum og hafi tekið við akstrinum um stund. Meðákærði hafi þó ekið þeim inn á bifreiðastæðið við Hertz á Völlunum. Meðákærði hafi verið í símanum allan tímann og talað mál sem hún skildi ekki. Þegar þau hafi verið fyrir utan Hertz hafi þau beðið einhverjar mínútur en svo hafi ákærði sent hana með fimm þúsund krónur sem hún hafi átt að láta ungan strák fá fyrir utan FedEx. Hún hafi svo farið aftur í bifreiðina og sofnað þar. Hún hafi vaknað í Mjóddinni og þau hitt unga strákinn þar. Hún hafi verið pirruð og svöng og með rafmagnslausan síma. Meðákærði hafi sagt henni að fara í Nettó og kaupa sér eitthvað að borða og hafi hann látið hana fá kort sitt. Í framhaldinu hafi hún verið handtekin. Haft er eftir ákærðu að hún hafi ekki þekkt strákana sem hefðu náð í pakkann, hennar tengsl væru við meðákærða Mohamed. Hún hafi átt að fá greitt fyrir að finna menn til að sækja pakkann en hún hafi ekki vitað hve mikið. Hana hafi vantað pening.
Ákærða Sunneva gaf skýrslu að nýju 1. ágúst 2023. Í samantekt er haft eftir henni í upphafi að hún sé saklaus. Þau hafi komið að FedEx á hvítri BMW-bifreið og verið ein í henni allan tímann. Meðákærði Mohamed hafi ekið að mestu en hún stutta stund og verið þá alveg að sofna og hann tekið við. Meðákærði hafi farið úr bifreiðinni og hafi rétt henni fimm þúsund krónur og sagt sér að rétta stráknum peningana. Meðákærði hafi sagt henni að ganga þar til hún sæi leigubifreið. Meðákærði hafi svo farið í bifreiðina aftur. Ákærða hafi þurft að ganga nokkurn spöl til að láta strákinn fá peningana. Hún hafi látið hann fá peningana og farið aftur að BMW-bifreiðinni. Þau hafi svo ekið að Mjóddinni.
Í samantektinni segir að ákærðu hafi verið kynnt að samkvæmt framburði annarra hafi hún hitt strákana í Mjóddinni og er þá haft eftir henni að þau hafi farið í Mjóddina áður en þau hafi farið í Hafnarfjörð og hitt tvo stráka við Rauðakross búðina. Meðákærði hafi látið þá fá peninga sem þau hafi tekið út í hraðbanka á Laugavegi stuttu áður. Hún hafi haldið að þetta væru tuttugu þúsund krónur til að leysa út pakkann. Ákærða hafi ekki talað neitt við strákana, hvorki í Mjóddinni né í síma.
Ákærði X gaf skýrslu hjá lögreglu 25. júlí 2023. Í samantekt er haft eftir honum að hann hafi verið heima hjá sér þegar meðákærði Y hafi vakið hann kl. 14:00 og spurt hvort hann vildi fara með honum að kaupa eitthvað. Þeir hafi farið út og í Mjóddina. Ákærði hafi farið í Nettó og þegar hann hafi komið út hafi meðákærði sagt að þeir hafi verið beðnir um að sækja einhvern pakka. Svo hafi einhver stelpa komið og talað við meðákærða og sagt að þeir þyrftu að fara að sækja pakkann. Ákærði hafi aldrei séð stelpuna áður. Þeir hafi hitt hana í Vape búð kl. 15:10. Þau hafi talað saman á ensku. Þeir hafi átt að fá borgað fyrir að sækja pakkann. Ákærði hafi spurt meðákærða hvað væri í pakkanum en hann hafi ekki vitað það. Þeir hafi spurt stelpuna og hún hafi sagt að það væru föt sem hún hafi keypt á netinu. Þá hafi þeir ákveðið að sækja pakkann. Þeir hafi farið með leigubifreið, ákærði farið inn og náð í pakkann og þeir farið með sömu leigubifreið til baka. Ákærði hafi svo hringt í stelpuna til að spyrja hvað hann ætti að gera við pakkann og þá hafi hann átt að afhenda hann í Mjóddinni. Stelpan hafi verið á leiðinni að hitta þá þegar lögreglan hafi komið og tekið þá með pakkann. Haft er eftir ákærða að sá sem hafi beðið þá um að fara í FedEx hafi ekið um á hvítri BMW-bifreið og að ákærði hafi ekki séð hann vel þar sem hann hefi ekið í burtu þegar stelpan hafi komið að ræða við þá. Ákærði hafi ekkert rætt við hann. Í samantektinni er haft eftir honum að í FedEx hafi átt að greiða 13.200 krónur fyrir pakkann. Ákærði hafi ekki verið með nægt fé og hafi farið út og talað við meðákærða sem hafi verið í leigubifreiðinni. Þeir hafi verið nálægt því að gefast upp þegar stelpan hafi hringt og spurt hvort þeir væru komnir með pakkann. Hann hafi neitað þar sem þeir væru ekki búnir að greiða fyrir hann. Stelpan hafi sagt þeim að bíða, sagt að hún væri á leiðinni og myndi láta þá fá peninga. Hann hafi sagt að þeir væru að fara og þá hafi hún komið frá stiganum sem væri skammt frá og farið að leigubifreiðinni og rétt honum peninga. Hann hafi farið inn og náð í pakkann og farið að leigubifreiðinni. Stelpan hafi ekki leyft honum að afhenda pakkann fyrir utan FedEx og hafi sagt honum að fara með pakkann aftur í Mjóddina og setja pakkann á staðinn sem hún hafi sagt honum að setja pakkann á. Maðurinn hafi einnig verið fyrir utan FedEx með stelpunni. Loks er haft eftir ákærða að hann hafi tekið pakkann og sett undir stiga, sem búið hafi verið að biðja hann um að gera. Hann hafi opnað pakkann og séð að í honum hafi verið tölvuskjár og tölvuturn. Stelpan hafi beðið hann um að opna pakkann og skilja innihaldið eftir ofan í pakkanum undir stiganum.
Ákærði Y gaf skýrslu hjá lögreglu 25. júlí 2023. Í samantekt lögreglu er haft eftir honum að hann hafi fyrr um daginn fengið símtal frá aðila sem hann þekkti ekki, manni sem hafi talað spænsku og þekkt ákærða og bróður hans með nafni. Maðurinn hafi beðið ákærða um að hitta sig í Mjóddinni og sækja fyrir sig pakka gegn greiðslu, á milli 100.000 og 200.000 króna. Ákærði hafi farið í Mjóddina ásamt meðákærða X og þeir hitt þar dökkhærða konu fyrir utan Vape búðina. Ákærði hafi þá verið beðinn um að ná í signalappið í farsíma sínum og eiga þar samskipti við mann að nafni Flaco. Konan hafi látið hann fá 15.000 krónur. Ákærði hafi pantað leigubifreið á „facebook“ til að skutla þeim á Vellina. Hann hafi átt að greiða 4.000 krónur fyrir leigubifreiðina en afganginn fyrir afhendingu pakkans. Við FedEx hafi ákærði sent meðákærða til að sækja pakkann á meðan ákærði hafi beðið í bifreiðinni og átt samskipti við Flaco. Meðákærði hafi komið út þar sem hann hafi ekki verið með næga peninga til að greiða fyrir pakkann. Ákærði sagði að konan, sem hafi verið bak við FedEx, hafi látið meðákærða hafa meiri peninga. Ákærði hafi svo fengið fyrirmæli frá Flaco að fara með pakkann í Sundhöll Reykjavíkur en á miðri leið hafi Flaco breytt því og beðið þá að fara aftur í Mjóddina og þar hafi hann beðið meðákærða X að yfirgefa bifreiðina með pakkann og opna hann. Flaco hafi svo viljað hitta ákærða við Sundhöllina og ætlað að greiða honum þar. Haft er eftir ákærða að hann hafi ekki vitað hvað væri í pakkanum en haldið að það væru húsgögn fyrir heimili vinar Flaco. Hann viti ekki hver Flaco sé. Loks segir í samantektinni: „Aðspurður kvaðst Y þekkja til manns að nafni Mohamed Hicham Rahmi, kallaður „Mo“.“
Ákærði Y gaf skýrslu að nýju hjá lögreglu 10. janúar 2024. Samkvæmt samantekt lögreglu var fyrri framburður hans borinn undir ákærða, sem hafi aðspurður sagt að hann hefði engu við að bæta eða breyta. Lesin hafi verið upp fyrir ákærða samskipti, sem í samantektinni eru sögð hafa verið milli ákærða og „Mo“, og borinn undir ákærða sá framburður hans að hann þekkti Mo ekki, og sagt að samkvæmt farsímagögnum tali þeir mikið saman gegnum þrjú mismunandi símanúmer. Í framhaldi af þessu er haft eftir ákærða að hann hafi í raun aldrei hitt „Mo“ en viti hver hann sé. Hann hafi byrjað að tala við ákærða tveimur til þremur vikum fyrir atvikið. Í samantektinni segir að þá hafi verið borið undir ákærða að fyrstu samskipti þeirra hafi verið í apríl 2023. Haft er eftir ákærða að þeir hafi vissulega verið í símasambandi frá þeim tíma, vegna þess að þeir hafi átt sameiginlega vini. Varðandi samskipti þeirra, daginn sem ákærði hafi verið handtekinn, hafi ákærði sagt að hann hafi eytt skilaboðunum þar sem „Mo“ hafi sagt honum að gera það. Hann hafi beðið ákærða að sækja „Signal“, sækja pakkann og eyða svo öllu. Ákærði hafi gert þetta, af hræðslu við „Mo“ og vini hans. Haft er eftir ákærða að „Mo“ hafi skipulagt þetta frá upphafi. Dökkhærða konan sem þeir hafi hitt í Mjóddinni hafi aðeins látið þá fá peninga og fyrirmæli um hvert þeir ættu að fara. Í samantektinni segir að ákærði hafi verið spurður hvað hann hafi átt að fá greitt fyrir verkið og er haft eftir honum að hann haldi að þetta hafi bara átt að vera greiði. Hafi þá verið borið undir hann að í fyrri skýrslutöku hafi hann sagt að hann ætti að fá 100.000 til 200.000 krónur fyrir og er í framhaldinu haft eftir honum að hann muni það ekki vel, en muni vel að þetta hafi aðeins átt að vera greiði. Spurður hvað honum hafi verið sagt að væri í pakkanum hafi ákærði sagt að þar hafi átt að vera einhver hlutur, skrifborð eða tölva.
Í málinu liggur matsgerð Rannsóknarstofu Háskóla Íslands í lyfja- og eiturefnafræði, dags. 1. ágúst 2023, undirrituð af U verkefnisstjóra og V sérfræðingi. Þar segir að efnissýni 1 hafi verið „hvítur köggull, 5,140 g að þyngd.“ Komið hafi í ljós að „sýnið innihélt kókaín. Efnapróf bentu til þess að kókaínið væri að mestu á formi kókaínklóríðs. Styrkur kókaíns í sýninu var 87%, sem samsvarar 97% af kókaínklóríði.“ Þá segir að efnissýni 2 hafi verið „hvítur köggull, 4,720 g að þyngd.“ Í ljós hafi komið „að sýnið innihélt kókaín. Efnapróf bentu til þess að kókaínið væri að mestu á formi kókaínklóríðs. Styrkur kókaíns í sýninu var 87%, sem samsvarar 97% af kókaínklóríði.“
Ákæruliður II Í lögregluskýrslu, sem lögregluþjónn [L-3] skrifar undir, segir að hinn 1. ágúst 2023 hafi lögreglan leitað í bifreiðinni […]. Viðstaddur leitina hafi verið Imad El Moubarik. Hann hafi vísað á „peningaskáp og tösku í afturhlera bifreiðarinnar. Þar fannst blá íþróttataska og peningaskápur í bláum poka.“ Þá hafi lögregla fundið í hólfi milli sæta „kvittun frá costco um kaup á peningaskáp“ 12. júlí 2023. Einnig hafi lögregla fundið „tímabundið aðilakort frá costco stílað á Imad El Moubarik.“ Í skýrslunni segir jafnframt að lyklar „sem haldlagðir voru í málinu gengu að peningaskápnum. Lyklar í eigu Mohamed Hicham Rahmi.“
Ákærði Mohamed gaf skýrslu hjá lögreglu 4. september 2023. Í samantekt lögreglu er haft eftir honum að hann eigi umbúðir um öryggishólf sem lögregla hafi fundið. Hann hafi keypt hólfið í Costco og hafi hólfið verið í íbúðinni í […]. Í samantektinni segir að ákærða hafi verið kynnt að lögregla hafi leitað hjá meðákærða Imad og fundið öryggishólfið og hafi ákærði játað að eiga það. Í því væri ein og hálf milljón króna í seðlum. Honum hafi þá verið kynnt að lögregla hafi enga peninga fundið í hólfinu, aðeins fíkniefni. Hann hafi verið spurður hvaða fíkniefni hafi verið í hólfinu og hafi hann svarað að það væri kókaín. Hann hafi sagt sig eiga allt sem í hólfinu hefði verið. Honum hafi verið kynnt að meðákærði Imad hefði sagt ákærða einan hafa notað töflupressuna til að blanda fíkniefnum og hafi ákærði ekki viljað tjá sig um það. Hann hafi neitað að hafa notað töflupressuna.
Ákærði Imad gaf skýrslu hjá lögreglu 1. ágúst 2023. Í samantekt lögreglu er haft eftir honum að 11-12 dögum áður hafi meðákærði Mohamed beðið sig um að geyma öryggishólf. Ákærði hafi fyrst sett hólfið í bílskúr tengdaforeldra sinna en síðan fært það í bifreið sína, […]. Í hólfinu væru skjöl, peningar og fíkniefni. Ákærði hafi ekki haft aðgang að skápnum, hann hafi aðeins séð meðákærða opna hann.
Í málinu liggja útprentaðar myndir, í ljósmyndaskýrslu lögreglu sagðar teknar „úr upptökuvélum Costco“ og „sýna Mohamed og Imad kaupa öryggisbox í Costco“ hinn 12. júlí 2023 klukkan 15:39. „Á upptöku sést Mohamed greiða fyrir kassann og taka kassakvittun. Imad heldur á kassanum er þeir ganga út.“
Í málinu liggur matsgerð rannsóknarstofu Háskóla Íslands í lyfja- og eiturefnafræði, dags. 30. nóvember 2023, undirrituð af Q og U verkefnastjórum. Í matsgerðinni kemur fram að rannsökuð hafi verið tvö sýni. Fyrra sýni hafi verið hvítt duft og kögglar, 1,154 g að þyngd. Í ljós hafi komið að sýnið hafi innihaldið „kókaín, laktósa og vott af tetrakaini. Efnapróf bentu til þess að kókaínið væri að mestu á formi kókaínklóríðs. Styrkur kókaíns í sýninu var 85%, sem samsvarar 95% af kókaínklóríði.“ Síðara sýni hafi verið hvítt duft og kögglar. Í ljós hafi komið að sýnið hafi innihaldið „kókaín, laktósa og vott af tetrakaini. Efnapróf bentu til þess að kókaínið væri að mestu á formi kókaínklóríðs. Styrkur kókaíns í sýninu var 49%, sem samsvarar 55% af kókaínklóríði.“ Loks segir: „Tetrakain er lyf sem notað er til staðdeyfingar. Það telst ekki til ávana- og fíkniefna, sbr. lög nr. 65/1974“.
Ákæruliður III Samkvæmt lögregluskýrslu sem rannsóknarlögreglumaður [L-2] skrifar undir, var gerð húsleit á […], íbúð ákærða Mohamed, hinn 26. júlí 2023. Var verjandi ákærða viðstaddur leitina. Í skýrslunni er íbúðinni meðal annars lýst þannig að í henni séu tvö svefnherbergi, þvottahús, baðherbergi og í einu rými eldhús og stofa. Í skýrslunni segir: „Íbúðin var mjög ósnyrtileg. Eitthvað virðist hafa gengið á inni í stofu/eldhúsi þar sem hlutir voru á hvolfi, sófasett á hliðinni og fleira úti um allt. Þá var gólfið mjög skítugt og mikið af hreinsiefnum úti um allt eins og reynt hafi verið að hreinsa það upp. Þegar inn í íbúðina var komið tóku á móti okkur litlir frauðsplast kubbar á gólfi. Alveg eins kubbar og voru í þeirri sendingu sem nú er til rannsóknar en þess ber að geta að pakkinn í þessari sendingu sem er til rannsóknar fór aldrei þangað inn. Við leitina fannst töluvert magn af fíkniefnum og munum sem voru haldlagðir“. Er svo rakið að inni á salerni hafi lögregla meðal annars fundið 28 kúlur af meintu kókaíni, húslykil að íbúðinni ásamt tveimur lyklum sem líklega gangi að peningaskáp og tómar umbúðir utan um meint fíkniefni. Þá er talið upp það sem lögregla hafi fundið í „aðal svefnherbergi“: „Hvít kúla í ljós brúnum buxum í fataskáp. Svart box, ætlað fíkniefna flutninga box. Meintir sterar. Reikningur úr búð stílaður á Mohamed Hicham Rahmi. Svartur kassi með seglum á, ætlaður flutningskassi fíkniefna. MasterCard debetkort stílað á Mohamed Hicham Rahmi. Tveir svartir Samsung farsímar, óvirkir. Ferðaskírteini, útgefið af íslenska ríkinu, stílað á Mohamed Hicham Rahmi. Spænskt útrunnið vegabréf stílað á [...]. Reikningur fyrir sendingu um pakka frá Texas síðan í maí á þessu ári. Útdraganleg kylfa.“ Þá segir að í „aukasvefnherbergi“ hafi lögregla fundið útrunnið vegabréf, sektargerð, fyrirtækjaðild að Costco, tvö dvalarleyfiskort og útrunnið vegabréf frá Marokkó, allt stílað á Imad El Moubarik. Í þvottahúsi hafi lögregla fundið fjóra poka með hvítu dufti, hvítt duft í poka, eina meinta hasskúlu og töflupressu. Í „eldhúsi/stofu“ hafi lögregla fundið fimmtíu kúlur með meintu hassi, hvítt box með hvítu efni, hvíta dollu með hvítu efni, bláar töflur kasalol 1 mgr, seðlaveski með skilríkjum merkt Imad El Moubarik, grammavog með hvítum efnisleyfum, kreditkort stílað á Mohamed Hicham Rahmi og kort að […] bifreið.
Ákærði Mohamed gaf skýrslu hjá lögreglu 1. ágúst 2023. Í samantekt lögreglu er haft eftir honum að hann hafi búið í íbúðinni á […] í um hálfan mánuð, en vinur hans, ákærði Imad El Moubarik leigi hana af eigandanum. Í samantektinni segir að ákærði Mohmed hafi getað lýst íbúðinni mjög vel og hverju herbergi fyrir sig. Haft er eftir honum að hann sjálfur hafi lagt allt í rúst í íbúðinni þegar hann hafi verið undir miklum áhrifum fyrir nokkurum dögum. Spurður um fíkniefnin sem lögregla hafi fundið á baðherberginu, í svefnherberginu og eldhúsinu, hafi ákærði sagt sig hafa stolið þeim niðri í bæ, fimm til sjö dögum fyrir handtökuna. Hann hafi ekki getað svarað með hverjum eða hvar hann hafi stolið þeim. Hann hafi sagt að efnin væru hass, ketamín, kókaín og crystal meth. Töflurnar væru Anavar sterar. Ákærði hafi játað eignarhald sitt á efnunum og að hann hafi ætlað að nota þau sjálfur og gefa vinum sínum. Hann hafi alfarið neitað að svara spurningum um töflupressuna. Haft er eftir honum að hann hafi áður fengið pakka frá FedEx en ekki pakka með fíkniefnum.
Ákærði Imad gaf skýrslu hjá lögreglu 1. ágúst 2023. Í samantekt lögreglu er haft eftir honum að þeir meðákærði Mohamed hafi flutt inn á […], en ákærði hafi leigt íbúðina á 300 þúsund krónur og meðákærði greitt 200 þúsund krónur þar af. Þeir tveir hafi einir haft lyklavöld. Unnusta ákærða hafi komið þangað tvisvar en stöðugur straumur gesta hafi verið til meðákærða. Haft er eftir ákærða að hann hafi treyst á fjárhagslegan stuðning meðákærða sem ætti jafnan nægt fé. Haft er eftir ákærða að þvottaherbergi íbúðarinnar hafi verið skrifstofa meðákærða sem hafi pakkað þar og blandað saman fíkniefnum og meðal annars notað töflupressuna við það. Ákærði hafi ekki átt neitt í íbúðinni annað en það sem hafi verið í herbergi hans. Öll fíkniefni og töflur sem lögregla hafi fundið í íbúðinni væru eign meðákærða. Meðákærði reykti stundum hass en sjálfur notaði ákærði aðeins kókaín. Haft er eftir ákærða að meðákærði hafi beðið hann um að koma fíkniefnum, sem ættu að koma til landsins, í dreifingu og fengi hann eina milljón króna fyrir. Ákærði hafi neitað að gera þetta. Nánar spurður um hvað hann hafi átt að gera hafi ákærði sagt að hann hafi átt að ferja hálft kíló í einu milli staða og koma svo með peningana til meðákærða. Þetta hafi verið í fyrsta skipti sem meðákærði hafi beðið ákærða um slíkt. Af hálfu ákærða var lagt fram tölvubréf ákærða til verjanda síns, sent 23. september 2023, þar sem hann framsendir tilkynningu um flugbókun. Kemur þar fram að ákærði átti bókað flug frá París hingað til lands 24. júlí 2023. Ákærði sendi tölvubréfið úr netfanginu […].
Í málinu liggur matsgerð Rannsóknarstofu Háskóla Íslands í lyfja- og eiturefnafræði, dags. 1. ágúst 2023, undirrituð af U verkefnisstjóra og V sérfræðingi. Greinir þar frá rannsókn þriggja sýna. Þar segir að fyrsta sýni hafi verið hvítur köggull, 1,726 g að þyngd. Í ljós hafi komið að sýnið hafi innihaldið „kókaín, fenasetín og tetramísól. Efnapróf bentu til þess að kókaínið væri að mestu á formi kókaínklóríðs. Styrkur kókaíns í sýninu var 60%, sem samsvarar 67% af kókaínklóríði.“ Annað sýni hafi verið hvítur köggull, 2,030 g að þyngd. Í ljós hafi komið að sýnið hafi innihaldið „kókaín, fenasetín og tetramísól. Efnapróf bentu til þess að kókaínið væri að mestu á formi kókaínklóríðs. Styrkur kókaíns í sýninu var 60%, sem samsvarar 67% af kókaínklóríði.“ Þriðja sýni hafi verið hvítir kögglar, 0,988 g að þyngd. Í ljós hafi komið að sýnið hafi innihaldið „kókaín, fenasetín og tetramísól. Efnapróf bentu til þess að kókaínið væri að mestu á formi kókaínklóríðs. Styrkur kókaíns í sýninu var 59%, sem samsvarar 66% af kókaínklóríði.“ Þá segir í matsgerðinni: „Fenasetin er hitalækkandi og verkjadeyfandi lyf, sem löngu er hætt að nota hér á landi. Tetramísól er dýralyf (ormalyf). Þau teljast ekki til fíkniefna, sbr. lög nr. 65/1974“.
Í málinu liggur matsgerð rannsóknarstofu Háskóla Íslands í lyfja- og eiturefnafræði, dags. 30. nóvember 2023, undirrituð af Q og U verkefnastjórum. Segir þar að rannsakað hafi verið sýni, brúnir molar, 51,57 g að þyngd. Sýnið hafi verið kannabis. „Magn tetrahýdrókannabinóls í þurru sýni: 347 mg/g“. Skýrslur fyrir dómi Ákærði Mohamed Hicham Rahmi kvaðst, spurður um starf sitt nú, vera í atvinnuleit nú en kvaðst ekki muna hvort hann hefði verið í vinnu á þeim tíma þegar atvik málsins urðu, líklega hefði hann verið í hlutastarfi á veitingastað um tveggja mánaða skeið.
Ákærði sagði aðspurður að þau meðákærða Sunneva væru vinir. Hann hefði fyrst hitt hana um ári fyrir atvik málsins. Ákærði sagðist ekki þekkja meðákærða Y. Hann hefði hvort hitt hann né talað við hann. Ákærði sagðist ekki muna til þess að hafa átt við hann samskipti á rafrænum miðlum. Ákærði sagðist ekki þekkja meðákærða X og hefði hvorki hitt hann né talað við hann. Ákærði sagðist hafa verið vinur meðákærða Imad. Upphaf kynna þeirra hefði verið einu eða einu og hálfu ári fyrir atvik málsins. Spurður hvort þeir hefðu búið saman svaraði ákærði að hann hefði „flutt inn í viku eða svo“, á heimilisfang sem ákærði myndi ekki hvert hefði verið, en hefði verið í [...]. Hann kvaðst ekki muna nákvæmlega hvenær þetta hefði verið, en það hefði verið í „endaðan júní“ eða í júlí.
Ákæruliður I
Ákærði sagðist ekki hafa átt þau fíkniefni sem málið varðaði. Spurður hvort hann vissi hver hefði átt þau svaraði ákærði „Eiginlega ekki“. Spurður hvað hann vissi um þau svaraði ákærði að hann vissi lítið um þau en að hann vissi þó að hann hefði átt að „sækja einhvern eða finna einhvern til að sækja pakka“. Ákærði sagðist ekki geta sagt hver hefði beðið sig um það, hann vildi ekki koma sér „í vandræði“. Ákærði hefði verið beðinn um þetta samdægurs, um morguninn eða hádegið. Ákærði sagðist ekki hafa náð að finna neinn til verksins, hann hefði reynt án árangurs. Spurður um tilraunir sínar svaraði ákærði að hann hefði spurt meðákærðu Sunnevu hvort hún þekkti einhvern sem gæti náð í pakka. Hún hefði reynt án árangurs að finna einhvern til þess. Ákærði hefði leitað til meðákærðu Sunnevu vegna þess að hún hefði verið hjá honum á þeim tíma og hefði gist hjá honum um nóttina, eftir því sem hann teldi. Hann hefði bæði talað við hana bein og átt samskipti við hana um „instagram“.
Ákærði sagði að þennan dag, 25. júlí 2023, hefði hann ekið meðákærðu Sunnevu heim til hennar en svo hitt hana aftur og þau fengið sér að borða og svo tekið inn „einhverjar pillur“. Eftir það hefði ákærði fengið „textaskilaboð um að það ætti að sækja einhverja náunga eða pakka sem þeir væru með nú þegar“, og í framhaldi af því hefði hann verið handtekinn. Spurður hvar hann hefði fengið skilaboðinn svaraði ákærði að hann hefði fengið þau „í einhverju appi“. Fyrst hefði sér verið sagt að sækja mennina hjá FedEx en svo hefði því verið breytt í Mjóddina. Þau hefðu ekið hvítri bifreið af BMW gerð. Ákærði sagði að þau hefðu hitt „náungann sem bað mig um að gera þetta“ og hefði sá maður verið bifreiðinni stutta stund. Ákærði sagðist hafa verið með meðákærðu Sunnevu í Mjóddinni. Þau hefðu verið í bifreiðinni en ekki að gera neitt sérstakt, „bara bíða“. Þau hefðu beðið þess að „einhver myndi koma“ með pakka, en ákærði hefði ekki vitað hver kæmi. Ákærði sagðist ekki muna hvað klukkan hefði þá verið. Sjálfur hefði hann engan hitt í Mjóddinni og meðákærða Sunneva ekki heldur. Hún hefði beðið i bifreiðinni með ákærða. Spurður hvers vegna hann hefði beðið eftir manni sem kæmi með pakka svaraði ákærði að hann hefði verið „beðinn um það“ og verið „tilneyddur“ af því að hann væri „í skuld“.
Ákærði sagði að þau meðákærða Sunneva hefðu talað saman á blöndu af ensku og íslenzku en ekki spænsku. Ákærði sagðist telja að meðákærða talaði ekki spænsku.
Ákærði sagði aðspurður að hann hefði engin samskipti átt við meðákærða Y þennan dag. Ákærði hefði ekki beðið hann um að koma í Mjóddina. Ákærði hefði ekki beðið hann um að sækja pakka þennan dag. Ákærði sagðist ekki hafa látið meðákærða fá upplýsingar svo hann gæti vitjað pakkans. Hann hefði ekki beðið meðákærða þennan dag um að setja upp signal-forrit í síma meðákærða. Ákærði sagði, sérstaklega spurður, að hann hefði ekki heldur haft samband við hann á neinum öðrum degi.
Ákærði sagðist ekki hafa sett sig í samband við meðákærða X þennan dag. Ákærði sagðist ekki hafa látið meðákærðu Y eða X fá peninga þennan dag til að geta náð í pakkann. Ákærði sagðist ekki hafa beðið meðákærðu Sunnevu um að hitta meðákærðu Y og X í Mjóddinni þennan dag. Ákærði sagðist hafa verið beðinn um að afhenda peninga en hann hefði ekki vitað hver ætti að fá þá. Hann kvaðst hafa beðið meðákærðu Sunnevu um að afhenda fimm þúsund krónur og það hefði verið hjá FedEx. Hann sagðist ekki muna hvenær dagsins það hefði verið, en það hefði verið áður en hann hefði farið í Mjóddina, líklega klukkutíma fyrir handtökuna. Ákærði sagðist ekki hafa farið oftar en einu sinni í Mjóddina þennan dag. Ákærði sagði að þarna hefði hann verið svefnlaus í tvo daga og auk þess undir áhrifum og myndi því ekki nákvæmlega einstakar staðsetningar og tímasetningar. Spurður hvort hann hann hefði verið nálægt Hertz bílaleigunni í Hafnarfirði, skammt frá FedEx, sagðist ákærði ekki muna það. Aðspurður sagðist hann engan hafa hitt við FedEx en meðákærða Suneva „afhenti peningana“. Spurður hverjum hún hefði afhent þá, svaraði ákærði: „Við vitum það ekki, við vorum bara beðin um að gera það.“ Fyrirmælin um það hefðu komið gegnum eitthvert app, sem ákærði sagðist ekki muna hvað héti, en hann hefði verið beðinn um „að sækja það þennan dag“.
Ákærði var spurður hvort hann hefði beðið meðákærðu Sunnevu að finna einhvern til að sækja pakkann og hvort ákærði hefði lofað að sá sem vitjaði pakkans fengi greitt. Hann svaraði að „alltaf“ hefði verið gert ráð fyrir að það yrði „greitt fyrir þetta, ég myndi fá þessa skuld og þau myndu fá borgað.“ Spurður hvort hann hefði látið meðákærðu Sunnevu fá leiðbeiningar, fyrirmæli eða peninga varðandi það að sækja pakkann, svaraði ákærði „eiginlega ekki“ og sagðist telja „svo ekki vera“. Spurður hvort hann hefði látið ákærðu X eða Y slíkt í té sagðist ákærði ekki þekkja þá og hafa ekki hitt þá.
Ákærði sagði að enginn hefði verið í bifreiðinni með sér og meðákærðu Sunnevu á leið í Mjóddina. Á leiðinni til FedEx hefði þriðji maður verið í bifreiðinni en ákærði neitaði að svara hver það hefði verið. Sá aðili „hoppaði út“ áður en komið hefði verið að FedEx.
Spurður hvers vegna aðrir ákærðu hefðu bent á hann sem skipuleggjanda og ákvörðunaraðila í málinu, svaraði ákærði að hann hefði verið beðinn um að „finna einhvern“ en að sér hefði ekki orðið ágengt. Hann hefði upplýst þann aðila, sem beðið hefði um þetta, um að hann hefði ekki fundið neinn. Ákærði hefði boðið að hann næði sjálfur í pakkann en aðilinn hefði sagt að hann hefði fundið fólk í þetta.
Ákærði sagði aðspurður að á þessum tíma hefði hann átt tvö símtæki, báða af Iphone-gerð. Hann sagðist ekki muna hvaða símanúmer hann hefði verið með. Hann var spurður hvaða nafn hann notaði „á instagram“ og svaraði „moha“ og hefði hann einnig gert á þessum tíma. Einnig notaði hann nafnið „don moha“. Hann var spurður hvort hann þekkti símanúmerið […] og kvaðst hann ekki gera það. Hann sagðist ekki vera með erlend símanúmer. Aðspurður sagðist hann ekki muna hvort hann ætti svartan iphone síma í svörtu hulstri, með númerinu […]. Hann hefði skipt nokkurum sinnum um síma en það gæti verið. Spurður hvort hann ætti fjólubláan iphpne síma í svörtu hulstri, með númerinu […], svaraði hann að það gæti verið en hann myndi ekki eftir númerinu. Aðspurður neitaði ákærði að hann ætti „Samsung galaxy fold“ síma með númerinu […].
Ákærði sagðist ekki nota „signal“. Hann hefði hins vegar notað „telegram“. Hann sagðist ekki muna hvaða númer hann hefði notað. Hann hefði notað það „til að kaupa pillur“.
Ákærði kvaðst aðspurður hafa komið við sögu í fíkniefnamálum hjá lögreglu.
Ákærði neitaði að hann hefði beðið meðákærða Imad um að taka þátt í dreifingu fíkniefna sem væntanleg væru til landsins.
Ákærði sagðist ekki nota fíkniefni nú, en hafa gert töluvert af því áður. Hann væri nú allsgáður. Spurður hvernig hann hefði fjármagnað það svaraði ákærði að fíkill fyndi leiðir til fjármagna notkunina. Þess vegna væri hann í skuld.
Ákærði sagðist aðspurður ekki hafa komið á nokkurn hátt að skipulagningu þess brots sem fjallað er um á fyrsta ákærulið. Hann hefði aðeins verið beðinn um að „finna fólk til að sækja þetta og skutla þeim.“ Hann hefði ekki átt efnin.
Borin voru undir ákærða Mohamed skilaboð af „instagram“ 25. júlí 2023 kl. 14:22, milli „Don...Moha“ og meðákærða Y. Ákærði sagðist ekki kannast við símanúmerið sem í hlut ætti. Ákærði sagðist ekki muna eftir samtalinu. Spurður hvort hann væri „Don...Moha“ sem átt hefði í samskiptunum svaraði hann „kannski, ég veit það ekki“.
Borin voru undir ákærða skilaboð milli Don...Moha og meðákærðu Sunnevu Hann sagðist „eiginlega ekki“ kannast við skilaboðin en tók fram að hann hefði verið „á rivotril“. Ákærði sagðist vera „Don...Moha“ sem í hlut ætti. Spurður um hvað rætt væri í skilaboðunum svaraði ákærði að hann hefði verið „líklega að reyna að finna einhvern til þess að sækja pakkann.“ Nánar spurður sagði ákærði: „Ég sé að þetta er ég en ég man ekki eftir samtölunum.“
Borin voru undir ákærða samskipti milli „el flaco“ og ákærða Y. Ákærði sagðist ekki kannast við nafnið „el flaco“ Hann sagðist ekki kannast við farsímanúmerið sem í hlut ætti.
Borið var undir ákærða að meðákærði Y hefði hjá lögreglu borið að þessi samskipti sín hefðu verið við ákærða. Ákærði sagði að líklega hefðu sér verið send textaskilaboð „á instagram“ en ákærði „talaði ekki við hann eða hitti hann“.
Borin voru undir ákærða samskipti við óþekktan aðila á spænsku. Ákærði sagðist ekki kannast við þau. Borið var undir ákærða að þau hefðu verið á símtæki sem lögregla teldi vera í eigu ákærða. Ákærði neitaði því. Ákærði var spurður hvort hann þekkti númerið […] og sagðist hann ekki gera það.
Borið var undir ákærða að meðákærða Sunneva hefði borið að hann hefði látið hana fá tvö símtæki rétt fyrir handtöku þeirra. Ákærði sagðist ekki muna eftir slíku og bætti við: „Hinn gleymdi síma sínum í bílnum, það er allt sem ég veit.“ Spurður um tegund símtækisins sagðist ákærði ekki hafa séð það og vita það ekki. Spurður hvernig hann vissi að maðurinn hefði gleymt símtæki í bifreiðinni svaraði ákærði að hann vissi það vegna þess að lögreglan hefði spurt sig að því, hún hefði spurt um „alla símana“, síma ákærða og „aukasímana“.
Borin var undir ákærða mynd, sem mun hafa verið tekið nálægt Hertz bílaleigunni, skammt frá FedEx og kannaðist hann þar við mynd af sér. Hann var spurður hvers vegna hann hefði hjá lögreglu neitað að svara hver væri á myndinni. Ákærði sagðist hafa haft rétt til þess og að hann hefði þá verið „í áfalli og undir áhrifum lyfja“. Borið var undir ákærða að hann hefði verið yfirheyrður 1. ágúst og hann spurður hvort hann hefði þá enn verið undir áhrifum lyfja og í áfalli. Ákærði svaraði: „Já, smá“. Hann hefði notað „fíkniefni í fangelsinu“. Ákærði var spurður hverju hann héldi á á myndinni og sagði hann að líklega væri um farsíma að ræða, hann hefði líklega verið að fá fyrirmæli. Spurður hvaða fyrirmæli það hefðu verið sagðist hann ekki vita það nákvæmlega, „það átti að sækja, síðan var sagt ‚nei frekar leigubíl‘, síðan með peningana og ég lét [meðákærðu] Sunnevu fá peningana svo hún gæti látið þau fá, en svo átti að sækja en svo var planinu breytt þannig ég veit það ekki alveg.“ Borið var undir ákærða að meðákærða Sunneva hefði borið hjá lögreglu að ákærði hefði farið út úr bifreiðinni og komið aftur og rétt Sunnevu fimm þúsund krónur og leiðbeint henni hvert hún ætti að fara með peningana. Ákærði var spurður hvernig hann hefði vitað hvert hún ætti að fara. Ákærði sagðist hafa fengið „textaskilaboð um að hin manneskjan væri fyrir utan dyrnar og í hvernig fötum manneskjan væri“. Borið var undir ákærða að meðákærða Sunneva hefði borið að þau hefðu allan tímann verið aðeins tvö í bifreiðinni. Ákærði sagði að meðákærða Sunneva hefði verið „ennþá vímaðri“ en hann og hefði hún sofnað um tíma. Borið var undir ákærða hvort hann hefði rætt við meðákærða X við Breiðholtskirkju eftir að meðákærði hefði skilið pakkann eftir þar, og meðákærði hefði svo gengið aftur að staðnum þar sem pakkinn var. Ákærði var spurður hvað þeim hefði farið á milli. Ákærði sagðist ekki hafa hitt neinn við kirkjuna, hann hefði verið handtekinn hjá bifreiðinni og aldrei séð pakkann. Meðákærða Sunneva hefði verið í Nettó á sama tíma. Borið var undir ákærða að meðákærða Sunneva hefði sagt að ákærði hefði farið út og hitt strákinn við kirkjuna eftir að þau hefðu komið úr Hafnarfirði. Ákærði sagðist ekki hafa „hitt manneskjuna“ og ekki tekið við pakkanum. Borið var undir ákærða það sem eftir meðákærðu Sunnevu er haft, að þau hafi farið tvívegis í Mjódd og að ákærði hafi hitt ‚tvo stráka við Rauðakrossbúðina‘og látið þá fá peninga sem teknir hefðu verið úr hraðbanka skömmu áður. Ákærði sagðist ekki muna þetta nákvæmlega en tók fram að hann hefði ekki sagt að hann hefði aðeins farið einu sinni í Mjóddina. „Við fórum einu sinni til að leita að pillum áður en við fórum þarna í FedEx en ég man ekki nákvæmlega eftir þessu. Við fórum í FedEx, keyrðum til baka alla leiðina og vorum þá handtekin í Mjódd.“
Borið var undir ákærða að meðákærði Y hefði borið að ákærði hefði gefið meðákærða fyrirmæli um að eyða samskiptum þeirra á „signal“ og „instagram“. Ákærði sagðist aldrei hafa „hitt hann í eigin persónu og talað við hann“. Sérstaklega spurður hvort hann hefði talað við meðákærða gegnum samfélagsmiðla eða með öðrum hætti. Ákærði sagðist ekki vita hvern hann hefði talað við, hann hefði fengið „tengilið“ og verið sagt að sækja. Spurður hvort hann hefði sagt einhverjum, í tengslum við þetta mál, að eyða skilaboðum sagðist ákærði ekki muna eftir slíku. Hann hefði sjálfur eytt skilaboðum samkvæmt beiðni.
Borið var undir ákærða það sem eftir meðákærða Imad er haft hjá lögreglu að ákærði hafi beðið meðákærða um að koma í dreifingu fíkniefnum sem hefðu átt að koma til landsins, og hefði meðákærði Imad átt að fá milljón krónur fyrir. Ákærði sagði að ef hann ætti milljón myndi hann ekki gera þetta heldur greiða skuld sína.
Ákærða Sunneva Isis Hoffmann kom fyrir dóm og nýtti sér rétt sinn til að tjá sig ekki um sakarefnið.
Ákærði Y sagðist ekki vera í sambandi við meðákærða Mohamed. Ákærði sagðist hafa „heyrt um hann en hafði aldrei talað við hann“ og nánar spurður sagði hann: „Ég bara þekkti nafnið hans og ég vissi af honum ég kynntist honum aldrei persónulega.“ Aðspurður hvort hann hefði átt í samskiptum við meðákærða Mohamed gegnum samfélagsmiðla svaraði ákærði að hann héldi að hann hefði átt „í samskiptum við hann án þess að vita hver hann væri og hélt að þetta væri annar aðili.“ Ákærði sagðist ekki viss um hvern hann hefði talið sig eiga í samskiptum við, en hefði haldið að það væri ekki meðákærði Mohamed, „vegna þess að þetta var annað nafn“, sem ákærði sagðist ekki muna hvert hefði verið. Ákærði var sérstaklega spurður hvort hann hefði verið í samskiptum við meðákærða Mohamed gegnum „instagram“ eða eftir öðrum leiðum umræddan dag, 25. júlí 2023. Ákærði sagði að það gæti „vel verið“ þó hann myndi það „ekki alveg nákvæmlega“. Aðspurður sagðist ákærði ekki muna hvort hann hefði verið beðinn um að setja upp forritið „signal“ þennan dag.
Ákærði lýsti atburðarásinni 25. júlí 2023 þannig að hann hefði verið heima hjá sér og þá hefði hann fengið „margar símhringingar“ og sér hefði verið sagt að „fara niður í Mjódd að sækja einhvern pakka og ég fengi pening“ fyrir. Hefði sér verið sagt að fara í leigubifreið sem biði í Mjóddinni. Spurður hver hefði beðið um þetta sagðist ákærði ekki vita það. Ákærði hefði farið í Mjóddina með yngri bróður sínum, meðákærða X, og hefðu verið „að sækja pakkann og það sem gerðist var að lögreglan stoppaði okkur.“ Ákærði sagðist hafa tekið bróður sinn með sér vegna þess að þeir færu allt saman. Ákærði hefði ekki vitað „hvað var að fara að gerast“. Ákærði hefði sagt meðákærða X að þeir væru að fara að sækja pakka. Spurður hvenær sér hefði verið sagt að hann ætti að fara í leigubifreið sagðist ákærði ekki muna þetta vel. Ákærði var spurður hvort hann hefði hitt einhvern í Mjóddinni og sagðist muna eftir „einni stelpu“ en hann hefði ekki talað við hana. Meðákærði X hefði hitt hana en ákærði sagðist ekki vita hvort hann hefði talað við hana. Spurður um fyrirmælin sem hann hefði fengið sagði ákærði að sér hefði verið sagt að „fara niður í Mjódd og þar myndi ég finna leigubíl og ég ætti að fara upp í hann og síðan myndi ég fara með pakkann og síðan bara koma beint til baka“. Hann var spurður hvort hann hefði gert þetta og neitaði að svara. Aðspurður sagðist hann ekki hafa fengið peninga í Mjóddinni til þess að leysa út pakkann, einungis fyrir leigubifreiðinni. Hann sagðist ekki muna upphæðina en hann hefði skilið hana eftir í leigubifreiðinni. Með bifreiðinni hefði verið farið að ná í pakkann en ákærði sagðist ekki vita „hvað það heitir þar sem við fórum“. Ákærði sagðist ekki hafa þekkt leigubifreiðarstjórann. Ákærði sagðist ekki muna hvort hann sjálfur hefði verið í símanum eða slíkt á leiðinni. Meðákærði X hefði ekki átt síma, ákærði sagðist ekki muna til þess að meðákærði hefði notað síma ákærða.
Ákærði sagði meðákærða X hafa náð í pakkann á FedEx. Spurður hvernig meðákærði hefði vitað hvaða pakka átti að sækja sagði ákærði að „þessi aðili sem að gerði þessa pöntun sendi okkur lykilkóða“, sem ákærði sagðist ekki muna hver hefði verið. Ákærði sagðist ekki muna hvernig kóðinn hefði verið sendur. Ákærði sagðist hafa beðið í leigubifreiðinni en meðákærði hefði verið „heillengi inni“ hjá FedEx. Spurður hvort meðákærði hefði hitt einhvern fyrir utan FedEx sagðist ákærði ekki vita það og ekki muna það. Spurður hvort hann sjálfur hefði átt í samskiptum við einhvern fyrir utan FedEx, í síma eða með öðrum hætti, svaraði ákærði að hann héldi svo ekki hafa verið. Hann hefði verið allan tímann í leigubifreiðinni. Ákærði sagðist ekki muna til þess að nokkur hefði komið þangað til að láta meðákærða fá peninga. Ákærði sagðist gera ráð fyrir að greiða hafi þurft fyrir pakkann, en ítrekaði að sjálfur hefði hann verið í bifreiðinni. Meðákærði X hefði komið út með pakkann. Ákærði sagðist ekki hafa séð hvað var í pakkanum. Hann sagðist ekki muna „nógu vel“ hvað sér hefði verið sagt að væri þar. Hann hefði haldið að þar væru „munir, eða eitthvað svoleiðis“. Hann hefði talið um löglegan innflutning að ræða, enda hefði hann fengið „bara venjulega símhringingu, bara biðja mig um venjulegan greiða.“ Símtölin hefðu verið mörg enda sambandið slæmt. Ákærði var spurður hvers vegna hringt hefði verið í hann, hvort hann væri vanur að taka að sér að sækja pakka fyrir aðra. Ákærði svaraði að hann vissi ekki hvers vegna hringt hefði verið í sig. Hann hefði ekki verið beðinn um slíkt áður. Ákærði sagðist hafa reynt að kanna hver hefði beðið sig um þetta „en hann sagði mér eitthvert annað nafn og ég man það nafn ekki.“ Ákærði sagði að hann hefði talið að „bara nafnið Mo væri svolítið hættulegt en ég spurði aldrei hver hann væri vegna þess að ég var svolítið smeykur.“ Ákærði sagðist hafa heyrt um „Mo“ sem væri varhugaverður. Aðspurður sagðist ákærði hafa spurt hvers vegna aðilinn gæti ekki náð í pakkann sjálfur og hefði sér verið svarað að „vinur hans væri ekki heima og hann gæti það ekki sjálfur og hvort ég gæti gert honum þennan greiða.“ Ákærði sagðist ekki vita hver hefði átt pakkann, sér hefði verið sagt „að þetta væri fyrir einhvern vin“ aðilans sem hefði hringt. Spurður hvort hann hefði átt að fá greitt fyrir að sækja pakkann svaraði ákærði: „Ég held það en ég man það ekki nógu vel.“ Hann hefði ekki fengið greitt.
Ákærði sagði að eftir að náð hefði verið í pakkann hefðu þeir ætlað „niður í bæ“, en þeim hefði svo verið „sagt að snúa til baka í Mjóddina“ og hefðu þeir farið þangað. Ákærði sagðist ekki vita hver hefði sagt þeim þetta og sagðist ekki muna hvernig þeim hefði verið sagt það. Ákærði sagðist ekki muna hvaða tungumál hefði verið notað. Hann sagðist ekki vita hvað þeir hefðu átt að gera í Mjóddinni. Ákærði sagðist ekki muna vel atvik í Mjóddinni en meðákærði X hefði orðið eftir með pakkann en ákærði farið með leigubifreiðinni. Lögreglan hefði stöðvað bifreiðina.
Ákærði sagði að hugsanlega hefði sér verið sagt að eyða „signal“ samskiptum. Spurður hvort hann hefði ekki talið undarlegt að vera beðinn um að eyða samskiptum svaraði hann: „Það var þess vegna sem ég vildi ekki fara úr leigubílnum.“ Ákærði sagði að þetta hefði verið eftir að hann hefði leyft meðákærða X að fara. Spurður hvers vegna hann hefði fylgt fyrirmælunum svaraði ákærði að hann hefði ekki hugsað um það sem hann gerði.
Ákærði sagðist ekki vita hvað meðákærði Mohamed kallaði sig á „instagram“. Ákærði var spurður hvort hann kannaðist við nafnið „el flaco“ og svaraði að sig rámaði í það en hann myndi þetta ekki vel. Borin voru undir ákærða instagram-samskipti milli sín og Don...Moha og sagði ákærði sig ráma í þau en sagðist ekki muna það vel. Hann sagðist ekki muna við hvern hann talaði „en það stendur þarna á myndinni“. Borið var undir ákærða að fram kæmi að hann talaði við Don...Moha og var hann spurður hvort það væri sá sem hann hefði verið smeykur við. Ákærði sagðist ekki vita hvernig Mo liti út eða hver hann væri, hann hefði aðeins átt samskipti við hann gegnum síma. Spurður hvort hér ætti hann samskipti við ákærða Mohamed sagðist hann ekki muna þetta vel og hefði auk þess verið hræddur við lögregluna, „að hún myndi góma okkur“. Spurður hvers vegna hann hefði verið hræddur við það sagði ákærði að hann hefði ekki orðið hræddur fyrr en lögreglan hefði stöðvað bifreiðina. Borið var undir ákærða að í lögregluskýrslu hafi hann talað á þá leið að þeir Mo hafi átt í samskiptum frá apríl 2023. Ákærði sagði að hann myndi þetta ekki vel, hann vissi ekki hver þessi aðili væri og hann hefði aldrei hitt hann. Borið var undir ákærða að í skýrslutöku hjá lögreglu í janúar 2024 hefði hann sagt að Mo hefði beðið sig um að setja upp „signal“ og eiga samskipti þar í framhaldi af samskiptum á „instagram“. Ákærði sagðist ekki muna þetta vel, langt væri liðið frá skýrslutökunni.
Bornar voru undir ákærða skjámyndir sem samkvæmt lögregluskýrslu eru úr farsíma ákærða og sýna að samskipti hafi verið á „signal“ milli ákærða og „el flaco“ og var ákærði spurður hvort hann kannaðist við samskiptin. Ákærði sagðist halda það en vita það ekki. Hann sagðist ekki vita við hvern samskiptin hefðu verið. Borið var að undir ákærða að í skýrslutöku hjá lögreglu hafi hann sagt að Mo hafi beðið sig um að setja „signal“ upp og hafi ákærði gert það af hræðslu við Mo og vini hans. Ákærði sagðist ekki muna þetta.
Borið var undir ákærða að hjá lögreglu hefði hann sagt þá meðákærða X hafa hitt stúlku sem hefði látið þá fá peninga fyrir leigubifreið og að sækja pakkann og sagt þeim hvert þeir ættu að fara. Ákærði sagðist ekki muna þetta í smáatriðum. Ákærði sagðist ekki muna hvort hann hefði hitt stúlkuna. Borið var undir ákærða að í skýrslutöku hjá lögreglu hefði hann sagt að þeir hefðu farið í FedEx og ákærði sent meðákærða X til að sækja pakkann og hann hafi komið út og ekki verið með nægan pening og þá hafi stúlkan komið og látið hann fá peninga og hann farið aftur inn. Ákærði sagði að hugsanlega hefði þá vantað peninga fyrir leigubifreið, hann myndi þetta ekki nægilega vel. Borið var undir ákærða að eftir honum væri haft í lögregluskýrslu að á meðan meðákærði X hefði farið inn að sækja pakkann hefði ákærði verið í samskiptum við „el flaco“. Ákærði sagðist ekki muna þetta. Borið var undir ákærða að leigubifreiðarstjórinn hefði borið að ákærði hefði verið í símanum á leiðinni, til og frá FedEx. Ákærði sagðist ekki muna þetta. Borið var undir ákærða að leigubifreiðarstjórinn segði einnig að þeir hefðu verið á leiðinni niður í bæ þegar ákærðu hefðu skipað honum að fara aftur í Mjóddina. Ákærði svaraði að hann vissi „ekki hvernig það fór, en allavega þá ætluðum við að fara aftur í Mjódd og vorum á leiðinni niður í miðbæ þegar löggan stoppaði okkur.“
Borið var undir ákærða að meðákærði X hefði í lögregluskýrslu sagt að sá sem hefði beðið þá um að fara í FedEx og sækja pakkann hefði ekið um á hvítri BMW-bifreið. Ákærði sagðist ekki muna þetta og ekki vita hvort einhver bifreið hefði fylgt þeim eftir.
Borið var undir ákærða hvort rétt væri skilið að hann vissi hver Mo væri og grunað að hann væri í samskiptum við hann en gæti ekki staðfest það. Ákærði svaraði að þetta væri rétt skilið. Borið var undir ákærða hvort með Mo væri átt við meðákærða Mohamed. Ákærði sagðist ekki vita fullt nafn hans.
Ákærði sagði að á umræddum tíma hefði hann ekki verið í vinnu.
Aðalmeðferð málsins fór fram á tveimur dögum og gaf ákærði skýrslu á fyrri degi svo sem rakið hefur verið. Á síðari degi aðalmeðferðar gaf hann skýrslu að nýju að eigin ósk. Var borin undir hann skýrsla lögreglu um farsímaskoðun þar sem meðal annars eru rakin ætluð samskipti 25. júlí 2023 milli ákærða og „El Chico Mo“. Ákærði sagðist nú „muna betur eftir þessum degi og þessum símhringingum og ég hringdi í hann margoft þennan dag vegna þess að ég gat ekki náð sambandi og hann hringdi líka margoft í mig vegna þess að hann við náðum ekki sambandi. Það var svo lélegt samband. Og það var erfitt fyrir mig að skilja nákvæmlega hvað hann vildi og líka erfitt fyrir hann að skilja mig af því að sambandið var lélegt. Og hann hringdi í mig margoft til þess að útskýra fyrir mér hvað ég ætti að gera.“ Spurður hvort þeir hefðu náð saman í þeim samtölum svaraði ákærði: „Já, en samt ekki alveg, sambandið var lélegt en ég náði þeim upplýsingum að ég ætti að fara niður í Mjódd og sækja einhvern pakka.“ Nánar spurður sagði ákærði: „Já við náðum sambandi, í einni af þessum mörgu tilraunum til að ná sambandi, og þá fékk ég þær upplýsingar að ég ætti að fara niður í Mjódd og hann myndi láta mig hafa pening. Og ástæðan fyrir því að það eru svona margar símhringingar var að það var svo lélegt samband. Hann sagði mér að ég ætti að fara niður í Mjódd og taka þennan leigubíl“. Ákærði var spurður hvort þeir hefðu rætt hvað væri í pakkanum og svaraði að „hann sagði mér að þetta væru einhvers konar heimilisáhöld.“ Ákærði var spurður hvort rætt hefði verið um að hann fengi greitt fyrir að sækja pakkann og ákærði svaraði að sig minnti að talað hefði verið um hundrað eða tvö hundruð evrur. Ákærði var spurður hvort samtalið hefði verið við meðákærða Mohamed. Ákærði svaraði: „Alla vega er hann kallaður Mo, sem að hringdi í mig margoft.“ Spurður hvern hann teldi þetta hafa verið, svaraði ákærði að hann hefði á þeim tíma ekki vitað hver þetta var en síðan hefði honum orðið ljóst „að þetta væri hann“, ákærði hefði haldið „að þetta væri annar aðili.“ Ákærði nánar spurður sagði ákærði að sér hefði verið sagt að um „Mo“ væri að ræða. Hann var spurður hvort hann ætti þar við ákærða Mohamed og svaraði ákærði að hann vissi það ekki. „Ég get ekki sagt að þetta sé sami aðilinn vegna þess að ég hef aldrei séð hann í persónu, ég hef bara verið í símasambandi.“ Ákærði sagði aðspurður að maðurinn hefði í þessum símtölum beðið hann um að færa sig yfir á „signal“. Maðurinn hefði beðið sig um það, „vegna þess að símasambandið var svo lélegt.“ Þeir hefðu eftir það talað saman á „signal“.
Ákærði var spurður hvenær hann hefði byrjað að tala við „Mo“ og svaraði að hann vissi það ekki. Hann hefði átt við hann samskipti á „samfélagsmiðlum, símleiðis og sms-skilaboð en aldrei í persónu“. Aðspurður sagðist hann telja að þeir hefðu átt samskipti gegnum „instagram“. Spurður hvað maðurinn hefði heitað á instagram svaraði hann „don mo eitthvað svoleiðis, ég man þetta ekki nákvæmlega, hann skipti líka um notendanafn.“ Spurður hvort nafnið gæti hafa verið „Don...Moha“ svaraði ákærði að það mætti vera. Ákærði var spurður hvort „Don...Moha,“ „El Chico Mo“ og „el flaco“ væru sami aðilinn. Ákærði svaraði að hann teldi svo vera „vegna þess að ég vissi ekki hver þessi Chico Mo en hann var með mitt nafn og mínar upplýsingar, sem sagt það notendanafn.“ Ákærði var spurður hvernig hann hefði fengið símanúmer El Chico Mo og svaraði: „Hann hringdi í mig að fyrra bragði, ég man ekki nákvæmlega hvenær og ég veit ekki hvernig hann fékk númerið mitt.“ Borið var undir ákærða að í skýrslunni um farsímaskoðunina væri að sjá að ákærði hefði þennan dag sjálfur hringt fyrst í El Chico Mo. Ákærði svaraði að einnig mætti sjá „að hann hringdi í mig einhverjum dögum áður.“ Þess vegna hefði ákærði haft númer hans „og líka vegna þess að hann lét mig hafa símanúmerið sitt í gegnum instagram.“ Borið var undir ákærða að í síðari skýrslutöku hjá lögreglu hefði hann borið að hann hefði ekki fyrst vitað hver þetta væri, en þegar hann hefði séð hann á „instagram“ þá hefði hann vitað fullt nafn hans. Ákærði sagðist ekki muna þetta nógu vel, hann væri að ganga í gegnum erfitt tímabil. Borið var undir ákærða það sem í skýrslu um farsímarannsókn er fjallað um símtöl ákærða og el flaco á signal 25. júlí 2023, þar sem skráð er að fyrsta svaraða símtalið hafi farið fram kl. 14:39, en síðasta svaraða símtal er klukkan 16:23 og hann var spurður hvar hann hefði verið þegar þessi samskipti hefðu farið fram. Ákærði svaraði að maðurinn hefði talað við sig um klukkan hálf tólf til tólf, „og síðan fór ég niður í Mjódd um eittleytið og var þar niður frá milli eitt og hálf tvö þangað til að leigubílstjórinn kom og þá var ég í samskiptum við hann. Og síðan kom leigubíllinn og ég fór frá Mjóddinni.“ Ákærði var nánar spurður hvar hann hefði verið á tímabilinu 14:39 til 16:23. Ákærði sagði að hann héldi að hann hefði „bara verið að bíða eftir pakkanum“. Ákærði var spurður hvort hann hefði átt í samskiptunum í leigubifreiðinni, á leiðinni að FedEx, fyrir utan Fedex og á leið frá FedEx.Ákærði sagði svo hafa verið, „vegna þess að hann átti eftir að segja mér hvert ég ætti að fara“ og maðurinn hefði hringt í sig „margoft til þess að spyrja mig hvar pakkinn væri og hvar við værum.“
Ákærði var sérstaklega spurður hvort hann vissi með vissu að þessi samskipti hefðu verið við ákærða Mohamed. Ákærði sagðist ekki geta gert það, vegna þess að hann hefði aldrei séð í eigin persónu né á mynd þann sem hefði átt samskiptin við. Ákærði var spurður hvort hann hefði heyrt rödd viðmælandans í samskiptunum og svaraði hann því játandi. Hann sagðist telja að það gæti verið að um sama mann væri að ræða.
Borið voru undir ákærða að í „instagram“samskiptum milli hans og „Don...Moha“ komi fram að þeir hafi átt myndsamtal kl. 14:28. Ákærði sagði að það væri rétt en sambandið hefði verið svo lélegt að hann hefði ekki séð neitt.
Ákærði X var spurður um upphaf kynna þeirra meðákæðra Mohamed og sagði það hafa verið „eitthvað í gegnum símann, gegnum instagram“ um tveimur mánuðum fyrir atvikið. Meðákærði hefði þar notað nafnið [...]. Í upphafi hefðu þeir ekki spjallað, meðákærði hefði einfaldlega fylgt ákærða og skoðað „myndirnar mínar“. Þeir hefðu ekki talað um að sækja pakka.
Spurður um atburðarásina 25. júlí 2023 sagðist ákærði hafa náð í pakkann af því að stelpa, sem hann hefði aldrei séð áður, hefði sagt sér að gera það. Bróðir hans hefði verið með honum. Þeir hefðu farið fótgangandi í Mjódd til þess að kaupa í matinn í Nettó. Það hefði verið sín hugmynd, enginn hefði sagt þeim að fara í Mjódd til að hitta konuna. Ákærði hefði vakið meðákærða Y. Þegar þeir hefðu komið í Mjóddina hefði stelpan komið að þeim og beðið ákærða um að gera sér „þann greiða að fara með þennan pakka með leigubílnum og hún myndi borga mér fyrir leigubílinn.“ Hún hefði sagt að þau myndu „hittast í Mjódd til þess að afhenda pakkann“. Meðákærði Y hefði verið við hlið ákærða á meðan. Stelpan hefði látið ákærða fá ellefu þúsund krónur fyrir leigubifreiðinni. Spurður hver hefði átt pakkann svaraði ákærði: „Stelpan sagði mér bara að þetta væri fyrir sig, það er það eina sem hún sagði mér.“ Ákærði var spurður hvort hún hefði gefið skýringu á því að hún næði ekki sjálf í pakkann. Ákærði svaraði: „Hún sagði mér bara einfaldlega að hún gæti ekki farið sjálf vegna þess að henni leið eitthvað illa og ég bara trúði því.“ Hún hefði afhent ákærða kóða til að fá pakkann afhentan. Stelpan hefði svo farið frá þeim og í hvíta BMW bifreið sem hefði verið lagt nokkuð langt frá. Ákærði hefði náð í pakkann. „Fór þarna inn í fyrirtækið, fór með kóðann, leysti út pakkann, fór með pakkann í leigubílinn, fór niður í Mjódd og þá kom löggan.“ Nánar spurður bætti hann við: „Ég fór frá FedEx, fór niður í Mjódd, var með pakkann í höndunum og stíg niður úr bílnum, held á pakkanum og lögreglan kemur.“ Enn nánar spurður bætti ákærði við að hann hefði opnað pakkann í Mjóddinni, og hent umbúðunum í rusl. Hann hefði opnað pakkann til þess „að sjá hvað væri inni í honum.“ Enginn hefði sagt sér að opna pakkann. Nánar spurður sagði ákærði: „Ég opnaði pakkann til að láta stelpuna hafa innihaldið“. Spurður hvort hann hefði látið hana fá innihaldið svaraði hann: „Nei, löggan kom.“ Ákærði sagðist ekki hafa talað við neinn þarna. Ákærði var spurður hvort meðákærði Y hefði gefið honum leiðbeiningar eða fyrirmæli frá því þeir hefðu farið úr Mjódd til að ná í pakkann og þar til þeir hefðu komið aftur. Ákærði svaraði neitandi, „bróðir minn talaði aldrei við þessa stelpu, það var ég sem talaði við hana.“ Ákærði sagði aðspurður að meðákærði Y hefði ekki fengið fyrirmæli frá neinum öðrum.
Ákærði sagðist hafa þurft að greiða fyrir að leysa pakkann út en kvaðst ekki muna fjárhæðina. Ákærði sagðist ekki hafa hitt stúlkuna fyrir utan FedEx. Ákærði sagði aðspurður að hvorki hann né meðákærði Y hefðu verið í samskiptum við aðra á leiðinni. Sjálfur hefði hann ekki átt síma á þessum tíma. Hann hefði fengið síma móður sinnar lánaðan til að vera á „instagram“.
Ákærði sagði að hann hefði ekki náð í pakkann hefði hann vitað að í honum væru fíkniefni. Þeir bræður hefðu verið „svo ungir og vitlausir á þessum tíma“ að þá „grunaði þetta ekki einu sinni.“ Spurður hvort hann hefði gert eitthvað í þessa veru áður svaraði ákærði neitandi, en bætti við að á Íslandi hjálpaðist fólk að og gerði öðrum greiða. Ákærði sagði að þeir bræður hefðu ekki átt að fá greitt fyrir að sækja pakkann.
Ákærði sagðist hafa reynt að hlaupa í burtu þegar lögregla hefði komið að. Hann hefði ekki vitað „að þetta væri löggan, þetta voru bara eins og venjulegar vopnaðar manneskjur og ég var hræddur.“
Borið var undir ákærða að meðákærði Y hefði borið að hann hefði beðið ákærða um að koma í Mjóddina til að sækja pakkann og þess vegna hefðu þeir farið í Mjóddina. Ákærði sagðist ekki muna eftir að meðákærði hefði sagt neitt slíkt við sig.
Borið var undir ákærða að hann hefði í skýrslutöku hjá lögreglu borið að hann hefði farið með leigubifreiðinni í FedEx og ekki haft næga peninga til að greiða fyrir pakkann og því farið aftur til meðákærða Y og sagt honum frá því. Í framhaldinu hafi stelpan komið og látið þá fá peninga. Ákærði sagði þetta rétt eftir sér haft en að þetta rifjaði ekkert upp fyrir sér. Borið var undir ákærða að hann hefði sagt hjá lögreglu að sá sem beðið hefði þá að fara í FedEx að ná í pakka hefði ekið um á hvítri BMW-bifreið en að ákærði hefði ekki séð hann vel þar sem hann hefði ekið í burtu þegar stelpan hefði komið að ræða við þá. Ákærði játaði þessu. Borið var undir ákærða að hann hefði sagt að stelpan hefði ekki leyft honum að afhenda henni pakkann fyrir utan FedEx. Ákærði sagðist ekki muna eftir þessu og sagði langan tíma vera liðinn. Borið var undir ákærða að hann hefði sagt að hann hefði hvorki talað í síma né notað samskiptaforrit, en í skýrslutöku hjá lögreglu hefði hann sagt að stelpan hefði hringt í hann þegar hann hefði verið í leigubifreiðinni og sagt að hún væri að fylgjast með þeim. Ákærði sagðist ekki vita um þetta en sagði að lögreglan vissi að hann hefði ekki verið með síma. Þó hefði „eina leiðin fyrir mig að vera í samskiptum við þessa stelpu var greinilega samt í gegnum síma.“ Ákærði var spurður hvort mögulegt væri að meðákærði Y hefði talað við einhvern og fengið fyrirmæli. Ákærði svaraði því játandi, meðákærði hefði talað við einhvern í leigubílnum, en ákærði sagðist ekki vita við hvern. Það hefði þó ekki verið um afhendingu pakkans, hvert þeir ættu að fara og hvað þeir ættu að gera.
Ákærða voru sýndar mynd sem lögregla tók við rannsókn málsins og kvaðst hann þekkja sig. Þar biði hann „fyrir utan“ en „stelpan sem fór með okkur þurfti að tala við samstarfsfélaga sinn varðandi þennan pakka og ég var að bíða eftir pakkanum.“ Ákærða var sýnd mynd er sýnir hann, leigubifreið og stúlku. Hann sagðist ekki þekkja stúlkuna. Borið var undir ákærða að mynd sýndi þau ganga saman og sagði ákærði spurður að þetta væri sú sem hefði afhent peninga.
Vitnið T kvaðst hafa á umræddum tíma starfað sem leigubifreiðarstjóri. Vitnið sagðist ekki þekkja ákærða Mohamed, ákærða Y, ákærða X og ákærðu Sunnevu.
Vitnið lýsti atburðarásinni þannig að einhver karlmaður hefði hringt í sig og beðið sig um „að keyra þessa einstaklinga“ frá Mjódd til Hafnarfjarðar og til baka. Ekið hefði verið á Vellina. Farþegarnir hefðu setið í aftursæti. Vitnið sagðist telja farþegana hafa talað töluvert, bæði í síma af og til og hvor við annan. Sérstaklega spurt sagðist vitnið telja báða hafa talað í síma en ekki geta staðfest það. Vitnið sagðist telja mennina hafa talað spænsku eða portúgölsku, hann hefði ekki skilið þá. Vitnið var nánar spurt hvort það gæti fullyrt að þeir hefðu talað í síma fremur en hvor við annan. Vitnið svaraði: „Það er ekki erfitt ef maður er í bílnum að sjá þetta, því stundum missa þeir símann á gólfið eða eitthvað og það verður ekki erfitt að fullyrða að þeir voru að tala í símann líka.“ Aðspurður sagðist vitnið ekki hafa séð í spegli að talað væri í síma en sagði: „Þeir voru nálægt mér“. Vitnið sagðist ekki geta fullyrt að það hefði heyrt síma hringja.
Vitnið sagðist hafa lagt bifreiðinni á stæði fyrir framan pósthús og annar farþeginn hefði farið út en hinn verið kyrr í bifreiðinni. Sá sem farið hefði út hefði komið aftur með pakka og ætlað að hafa hann í aftursæti. Þetta hefði verið nokkuð stór pakki og vitnið hefði sagt að betra væri að hafa hann í farangursrýminu.
Vitnið sagði að þegar beðið hefði verið hefði það séð „tvær stelpur“. Önnur hefði staðið eitthvað frá en hin komið nálægt bifreiðinni og talað við þann farþega sem hefði farið úr bifreiðinni. Vitnið hefði hins vegar ekki tekið sérstaklega vel eftir þessu.
Vitnið sagði að á bakaleiðinni hefðu farþegarnir fyrst viljað fara niður í miðbæ en breytt því og beðið um að verða ekið í Mjódd. Þar hefði annar farið með pakkann en hinn vildi að ekið yrði niður í miðbæ. Á leið þangað hefði lögreglan stöðvað bifreiðina.
Vitnið sagði að fyrst hefði verið samið um að greiddar yrðu þrjú þúsund krónur fyrir ferðina úr Mjódd til Hafnarfjarðar og þrjú þúsund fyrir bakaleiðina. En þar sem þeir hefðu breytt um áfangastað, viljað fara á Vellina, hefði hann beðið um fjögur þúsund krónur fyrir hvora leið. Vitnið hefði hins vegar aðeins fengið fjögur þúsund krónur greiddar. Vitnið sagði að þetta væri eðlilegt verð.
Borið var undir vitnið að í skýrslutöku hjá lögreglu hafi það sagt að á Völlunum hafi farþegarnir spurt þeir gætu fengið fjögur þúsund krónurnar til baka og myndu svo greiða honum átta þúsund krónur í einu lagi í lok ferðarinnar. Vitnið sagði að þeir hefðu í upphafi greitt fjögur þúsund krónur, á Völlunum hefðu þeir þurft að fá tvö þúsund krónur til baka og hefðu ætlað að greiða í lokin. Þeir hefðu fengið tvö þúsund krónur aftur.
Vitnið rannsóknarlögreglumaður [L-4] kvaðst hafa unnið upplýsingaskýrslur sem liggja fyrir í málinu, annars vegar um ferðir BMW bifreiðar og hins vegar um samskipti ákærðu „Mohamed og Sunnevu á instagram, þar sem Mohamed virðist vera að fá Sunnevu til þess að fá einhvern til þess að sækja pakkann á pósthúsið og reyna að leiðbeina henni með það.“ Um akstur bifreiðarinnar sagði vitnið að ákærði „Mohamed er þarna að keyra með henni í bifreiðinni, fyrr um daginn einhvers staðar í Kópavogi, svo seinna um daginn þá er hún að keyra bifreiðina og Mohmed farþegi og það er á leiðinni á Reykjanesbraut í átt á Vellina. Svo rúmlega þremur korterum seinna er Mohamed að keyra bifreiðina og Sunneva farþegi.“ Vitnið sagði að strax eftir að náð hefði verið í pakkann hefði bifreiðin vakið athygli, „og svo virðist hann hitta strákinn sem er með pakkann þarna rétt hjá Breiðholtskirkju og þar stoppa Sunneva og Mohamed bifreiðina. Þannig að þau greinilega tengdust eitthvað og voru alltaf á eftir pakkanum.“ Hvíta bifreiðin hefði fylgt leigubifreiðinni „sem pakkinn var í“.
Vitnið staðfesti gögn sem frá því stafa. Vitnið var spurt hvernig það gæti vitað að ákærði Mohamed hefði átt í „instagram“-samskiptum við ákærðu Sunnevu. Vitnið svaraði það væri „annað hvort það að hún staðfesti það, að hann var bak við þennan instagram reikning en það voru myndir af honum á þessum instagram reikningi sem bentu til þess að hann ætti þennan instagram reikning.“ Vitnið sagðist muna að ákærða Sunneva hefði staðfest við lögreglu að hún talaði í samskiptunum við ákærða Mohamed en kvaðst ekki muna „alveg hvort það voru myndir af honum.“
Vitnið tollvörður [...] kvaðst hafa ásamt fleiri tollvörðum tekið umrædda sendingu til skoðunar. Þar hefðu tvær pakkningar með meintum fíkniefnum komið í ljós. Prófun á efnunum hefði orðið „jákvæð á kókaín“. Málinu hefði verið vísað til lögreglunnar. Vitnið staðfesti skýrslu sína.
Vitnið sérfræðingur lögreglu nr. [S-1] sagðist hafa séð um afritun símagagna. Gögn hefðu verið lesin úr fimm símtækjum. Vitnið var spurt um Samsung Galaxy Z-fold símtæki og sagði vitnið að sjá mætti hvaða tölvupóstaðganga og öpp hefðu verið notuð. Borið var undir vitnið það sem segi í gögnum málsins, að innskráður hafi verið [...] og svaraði vitnið að það væri þá „sá notandi sem er innskráður“.
Vitnið staðfesti skýrslur sem frá því stafa.
Vitnið starfsmaður lögreglu nr. [S-2] staðfesti þær skýrslur sem frá því stafa.
Vitnið lögregluþjónn nr. [L-6] kvaðst hafa tekið þátt í aðgerðum lögreglu. Vitnið sagði að við eftirlit lögreglu á leiðinni frá FedEx í Mjódd hefði lögregla orðið vör við bifreið sem hefði fylgt leigubifreiðinni.
Vitnið sagðist hafa fylgt leigubifreiðinni úr Mjóddinni og handtekið bifreiðarstjórann og ákærða Y. Vitnið hefði séð um fyrstu skýrslutöku af ákærðu Sunnevu. Vitnið sagði aðspurt að ákærða Sunneva hefði „alveg klárlega“ verið til samvinnu um að upplýsa málið. „Í skýrslutökunni sagði hún mér að hennar hlutverk hefði verið að finna einhverja aðila þarna einmitt sem áttu að sækja þennan pakka og hún hafi svona verið eitthvað að draga þar inn, finna ýmsa aðila, svo hafi hann allt í einu mætt þarna fyrir utan, ,ég er bara búinn að redda þessu‘. Þau fóru síðan saman í hraðbanka og mér fannst alveg eins og hún væri að fylla í ákveðið púsl“. Á upphafsstigi málsins hefði ákærða verið „klárlega að upplýsa um einhver ákveðin atriði“.
Vitnið staðfesti skýrslur sínar.
Vitnið rannsóknarlögreglumaður nr. L-2 sagðist hafa ásamt öðrum farið fyrir rannsókn málsins. Vitnið sagðist hafa farið ásamt lögregluþjóni nr. L-3 og náð í efnin og farið með til tæknideildar eftir að tollverðir hefðu fundið þau. Í framhaldinu hefði gerviefni verið sett í pakkann ásamt hlustunarbúnaði og eftirfararbúnaði, og pakkinn færður á pósthúsið. Ekkert markvert hefði komið fram við hlustunina.
Tveir ungir menn hefðu komið á leigubifreið og náð í fíkniefnin á FedEx í Hafnarfirði. Annar hefði komið inn, beðið um pakkann, farið svo út, komið inn, greitt fyrir pakkann, fengið hann afhendan og farið út. Lögregla hefði fylgt pakkanum eftir. Á Reykjanesbraut hefði lögregla séð að hvít BMW-bifreið fylgdi „í humátt á eftir“ og hefði síðar komið í ljós að ökumaður væri ákærði Mohamed en farþegi ákærða Sunneva. Farið hefði verið í Mjóddina „þar sem pakkinn fór út úr bílnum, úr leigubílnum, farið með hann fyrir aftan kirkjuna“. Vitnið sagði að „annar aðilinn“, en vitnið tók fram að það myndi ekki nafn hans, sem hefði farið með pakkann, „greinilega rífur tölvuturninn upp úr kassanum, hendir í ruslið og fer síðan og ræðir eitthvað við Mohamed, leigubíllinn heldur áfram og för hans er stöðvuð á Miklubraut. Við fylgjumst aðeins með þarna í Mjóddinni og handtökum síðan þrjá aðila þar, annan drenginn [...], Mohamed og Sunnevu.“ Lögregla hefði fundið „tölvuturninn og tölvuskjáinn sem var ofan í kassanum, finnum það ofan í ruslatunnu sem var þarna rétt hjá og kassann undir einhverjum tröppum sem voru þarna við kirkjuna.“ Vitnið sagði að „ungi strákurinn“ hefði reynt að hlaupa undan lögreglu en hinir ekki. Vitnið sagði að sig minnti „að þeir hafi verið tveir bræður þarna, annar bróðirinn fór áfram með leigubílnum og hinn varð eftir í Mjóddinni.“
Vitnið sagði að ákærða Sunneva hefði verið með tvo síma við handtökuna, sinn síma og annan sem hún hefði sagt ákærða Mohamed eiga. Vitnið sagðist halda að ákærði Mohamed hefði verið með einn síma. Vitnið og annar rannsóknarlögreglumaður hefðu komið að rannsókn símanna. Í síma ákærða Mohamed hefðu komið „upplýsingar um aðrar póstsendingar og sölu og dreifingu fíkniefna.“ Þá hefði komið í ljós að ákærði hefði verið „í samskiptum við Sunnevu. Að mig minnir eins og hann hafi gefið það hlutverk að redda einhverjum til þess að sækja pakkann á pósthúsið.“
Vitnið sagði aðspurt að ekkert hefði komið fram um bein tengsl ákærða Xs við ákærð, önnur en ákærða Y, að öðru leyti en því að þeir hefðu verið „beðnir um þetta“ í Mjóddinni.
Vitnið var spurt hvort ákærða Sunneva hefði verið samvinnuþýð við rannsókn málsins og svaraði því játandi, „hún gaf okkur alveg einhverjar upplýsingar þarna í allavega seinni skýrslutökunni, þá sagði hún okkur bara sinn hlut í málinu.“
Borið var undir vitnið það sem segir í lögregluskýrslu að ákærði X hafi farið með pakkann undir stiga og BMW-bifreið verið ekið inn á bifreiðastæði við Breiðholtskirkju og ákærði X hafi gengið að henni og rætt við ökumanninn, ákærða Mohamed og farþegann ákærðu Sunnevu. Var vitnið spurt hvort hún hefði þá verið í bifreiðinni. Vitnið sagði að sig minnti „að hún hafi verið í bifreiðinni á þeim tíma og gengið síðan í burtu í átt að Nettó og þar, þar sem hún var handtekin.“ Ákærði X hefði farið „eitthvað að kirkjunni, Mohamed fer að kirkjunni líka [...] og hann er handtekinn þegar hann er að ganga bara aftur að ökutækinu sínu.“ Vitnið sagðist ekki geta staðfest að ákærði Mohamed hefði farið alveg þar að sem pakkinn hefði verið, vitnið sagðist halda „að það hafi verið sem sagt hinu megin við.“
Vitnið staðfesti skýrslur sínar.
Vitnið rannsóknarlögreglumaður [L-3] sagði póstsendingu hafa komið með FedEx og innihaldið tæplega tvö kg af kókaíni. Lögreglan hefði tekið við sendingunni, og skipt út efnunum. Pakkanum hefði í framhaldinu verið komið fyrir á pósthúsi. Ungur drengur hefði svo komið inn og farið aftur út og farið að leigubifreið. Hann hefði átt „einhver orðaskipti við konu sem gengur að bílnum, sem reyndist svo vera Sunneva Hoffmann. Svo gengur strákurinn aftur inn í FedEx og fær pakkann afhentan, setur í skottið á leigubílnum og keyrir burtu.“ Lögregla hefði tekið eftir hvítri BMW-bifreið og talið hana fylgja leigubifreiðinni. Ekið hefði verið á bifreiðastæði í Mjóddinni og í framhaldinu hefði pakkinn verið „tekinn út og leigubíllinn hélt áfram“. Vitnið hefði fylgt leigubifreiðinni. Spurður hvar lögregla hefði fundið pakkann svaraði vitnið: „Hann var ofan í einhverri svona ruslatunnu.“ Vitnið hefði ekki séð hver hefði sett hann þar.
Vitnið sagði að í ljós hefði komið að í leigubifreiðinni hefði verið „strákur að nafni X“ ásamt „eldri bróður sínum Y og Yfór þarna áfram og X var eftir með pakkann og í þessum hvíta bíl reyndust vera Mohamed og Sunneva og þau hittu þarna X á bílastæðinu og voru svo handtekin þar, allavega Mohamed hann var handtekinn í hvíta bílnum og X var handtekinn þarna við pakkann og Sunneva handtekin þarna í Rauðakrossbúð, eða hún var að koma úr Rauðakrossbúð þarna í Mjóddinni og svo Yí leigubílnum einhvers staðar á Miklubraut.“
Vitnið sagðist telja að ákærðu hefðu öll verið með farsíma á sér við handtöku, ákærða Sunneva mögulega með tvo og að ákærði Mohamed hafi mögulega afhent henni annan símann „á vettvangi til geymslu“. Vitnið sagðist telja að ákærða Sunneva hefði sagt lögreglu það, „þetta væri hans sími og hann hafi gefið henni til að geyma“.
Vitnið sagði að einn Samsung Fold sími hefði verið „atkvæðamestur í rannsókninni og gat gefið okkur upplýsingar um pakkasendinguna. Og svo mátti sjá ýmis dulkóðuð nöfn í símanum eins og El flaco, að það hafði verið signal aðgangurinn hans meðal annars, og að hann hafði verið í samskiptum við Y fram að handtöku.“ Vitnið sagði að sími ákærða Y hefði verið rannsakaður „og það mátti sjá samskipti milli þeirra sem náðu nokkra mánuði aftur í tímann.“ Spurt hvort lögregla hefði staðreynt að samskiptin hefðu verið við síma ákærða Mohamed svaraði vitnið: „Já, það var margt sem benti til þess að þetta væri síminn hans og það kemur væntanlega fram í skýrslunni sem var gerð um símann.“ Vitnið sagðist ekki muna smáatriðin.
Vitnið sagði að við rannsókn á síma ákærða Mohameds hefðu vakið athygli „signal samskipti hans við einhverja erlenda aðila, allavega tvo, og það voru upplýsingar um pakkasendinguna, sendingarnúmerið, nafnið á pakkanum, símanúmer viðtakanda og email, og svo bara mjög mörg söluskilaboð, skilaboð um sölu og dreifingu fíkniefna hérlendis“.
Vitnið sagðist aðspurt telja að ákærða Sunneva hefði aðeins haft einn síma „sér til umráða“. Vitnið var spurt hver hefði átt aðra síma sem hún hefði verið með við handtöku og svaraði: „Ég man það ekki alveg í smáatriðum en gott ef ekki að Mohmed hafi átt allavega tvo af þeim símum.“
Borin var undir vitnið skýrsla um rannsókn á síma ákærða Y. Vitnið sagðist ekki muna sérstaklega eftir þeirri rannsókn. Borið var þá undir vitnið að í skýrslunni segði að lögregla telji að ákærði ræði ákærða Mohamed í gegnum nöfnin „el flaco“, „Don...Moha“ og „El Chico Mo“ Vitnið sagði að „þegar síminn var speglaður þá komu upp þessi nöfn“. Borið var undir vitnið að í skýrslunni segi að lögregla telji að fyrstu samskipti milli ákærðu Mohamed og Y hafi átt sér stað 30. apríl 2023. Vitnið sagði þetta byggt á því sem vitnið hefði séð við speglun símanna, „að þá byrjuðu þeir að tala saman í gengum þetta [...]-númer, Don...Moha“. Ekki væri hins vegar mynd af þeim samskiptum í gögnum málsins. Borið var undir vitnið það sem segir í skýrslunni að eftir kl. 14:37 ræði ákærðu Y og Mohamed einungis saman á „signal“. Vitnið svaraði á þá leið að það hefði komið fram í „símanum hans Mo, Samsung Fold símanum“. Vitnið sagði að ranglega segði í gögnum að nánar greind samskipti hefðu verið á „telegram“ en ætti að standa „signal“. Vitnið var spurt hvort gögn sýndu að þeir hefðu raunverulega talað saman og svaraði vitnið því játandi. „Þetta eru ósvöruð símtöl í bland við símtöl sem hafa verið að koma inn og fara frá símtækinu.“ Vitnið sagði að „allavega eitthvað milli 14:37 og 16:30, þá má allavega leiða líkur að því að þeir hafi rætt eitthvað saman á þessum tíma“. Vitnið sagði sérstaklega spurt að ekkert nákvæmt væri í gögnum málsins sem sýndi fram á að raunverulegt samtal hefði farið fram milli þeirra á „signal“ á þessum tíma. Instagramsamskiptin 25. júlí væru „í raun það eina sem við eigum um samskipti þeirra.“ Vitnið sagði að fram kæmi í gögnum að kl. 14:37 gæfi ákærði Y upp símanúmer sitt „og segir Mo að hringja í sig, og síðan er þarna á signalinu á sömu mínútu þannig að þá greinilega færir hann sig þá yfir á signal. Það má leiða líkur að því að þeir hafi rætt saman á signal.“
Borið var undir vitnið það sem segir í skýrslu að í símtölum og smáskilaboðum ræði ákærði Y við „Mo“ gegnum símanúmerin El Flaco og Don...Moha og El Chico Mo. Vitnið var spurt hvernig það gæti vitað að um ákærða Mohamed væri að ræða. Vitnið sagðist telja „að það hafi verið einhverjir símar í málinu sem voru með þessi númer, eins og bara Fold síminn hann var með tveimur af þessum númerum og hvort að hinn síminn hafi verið þá hjá Sunnevu.“ Vitnið tók fram að það myndi ekki hvort ákærða Sunneva hefði verið með símann. Ákærða Sunneva hefði verið „með þrjá síma, og hvort að það hafi verið sko Samsung Fold síminn hafi verið með tveimur af þessum númerum“. Vitnið bætti við að það myndi ekki „hvernig við fengum út að [...]-númerið hafi verið Mohamed“. Vitnið var spurt hvort það væri visst um að ákærðu Mohamed og Y hefðu talað saman 30. apríl kl. 15:17 og svaraði:„Já, þá var allavega verið að ræða við [...]- númerið og ég held að það sé Mo.“ Vitnið sagðist standa við þá niðurstöðu skýrslunnar að ákærði Mohamed væri Mo.
Borin var undir vitnið upplýsingaskýrsla þar sem vitnið skrái að ákærði Y hafi átt að sækja pakkann á pósthúsið og koma honum „frá a til b“ og að miðað við samskipti þeirra ákærða Mohamed sé hægt að „áætla að Yhafi vitað að eitthvað ólöglegt hafi verið í sendingunni þar sem hann hafi átt að fá ríflega greitt fyrir að sækja pakkann.“ Vitnið sagðist byggja þetta á að ákærði Y hafi sagt að hann ætti að fá nokkur hundruð þúsund krónur fyrir að ná í sendinguna. Vitnið var spurt hvað í samskiptum ákærðu hefði gefið ákærða Y til kynna að eitthvað ólöglegt væri í sendingunni. Vitnið svaraði að það væri „í rauninni bara þetta stöðuga flakk á milli forrita og fara frá venjulegum samskiptaforritum yfir á signal er öruggara og dulkóðaðara og ræða mögulega einhverja pakkasendingu og vera að hringjast svona ítrekað á gegnum signal á meðan þú ert í bílnum með pakkann“.
Vitnið var spurt hvort lögregla hefði getað tengt Samsung Fold Galaxy símann einhverju símanúmeri og nefnt að í rannsóknarskýrslu kæmi fram númerið [...]. Vitnið sagðist ekki muna hvort það númer hefði verið tengt við ákærða Mohamed.
Borin var undir vitnið upplýsingaskýrsla þar sem segir að ákærði X hafi haft það hlutverk að sækja pakkasendinguna og greiða fyrir hana á pósthúsinu og að ekkert bendi til þess að ákærði X viti nákvæmlega hvað hafi verið í sendingunni. Vitnið sagði að þetta væri byggt á framburði ákærða X frá upphafi, en ákærði hefði sagt að hann hefði ekki vitað hvað væri í pakkanum, hefði haldið að þar væri eitthvað annað en var þar, og að „hann hafi elt bara litla [svo] bróður sinn Yþarna niður í Mjóddina“.
Borið var undir vitnið það sem segir í gögnum málsins að umræddan dag, 25. júlí 2023, hafi verið 178 samskipti gengum ýmsar leiðir við þrjú nánar greind númer. Vitnið svaraði að „eitt símtal, eða ein tilraun að símtali, eða eitt sms eða ein skilaboð að það væri þá ein samskipti.“ Símtal sem ekki hefði verið svarað teldist til samskipta.
Vitnið sagði að samskipti við óþekktan aðila væru tekin úr Galaxy Fold síma sem verið hefði í eigu ákærða Mohamed. Númerið […] væri annað númera sem tengt hefði verið „við Fold símann“.
Vitnið staðfesti skýrslur sem frá því stafa.
Vitnið gaf skýrslu að nýju á síðara degi aðalmeðferðar og var spurt um mynd sem liggur fyrir í málinu, sögð tekin úr myndaalbúmi Samsung Galaxy Fold farsíma. Vitnið sagði að myndin hefði verið borin um ákærða Mohamed og hefði hann þekkt sig á myndinni. Vitnið sagði að myndin virtist tekin á símann. Vitnið sagðist ekki vita hvort hann sjálfur eða einhver annar hefði tekið myndina.
Borin var undir vitnið skýrsla um rannsókn á farsíma ákærða Y. Vitnið sagði að þar væri fjallað um „samskipti við Samsung Fold símann á signal og hringingar á signal sem komu fram í öðrum gögnum máls.“ Væri um að ræða ýtarlega skýrslu um lengd hvers símtals og fjölda þeirra, „frá því þau hófust annars vegar á signal, svo eru þarna einhver samskipti líka sem áttu sér stað á undan því, sem sagt 25. 7., sem þá aftur til apríl 2023“ og auk þess hefði verið „eitt spjall á whatsapp“. Öll gögnin hefðu verið á farsíma ákærða Y. Væri hér um ræða gögn sem vitnið hefði vísað til í upplýsingaskýrslu sinni, dags. 20. desember 2023. Vitnið sagði lögreglu telja að þarna hefði ákærði Y átt samskipti við ákærða Mohamed.
Borið var undir vitnið að í inngangi skýrslunnar segði meðal annars að lögregla væri fullviss um að „Don...Moha“ sé ákærði Mohamed. Vitnið sagði að þetta væri byggt á því „að hann kallaði sig Don Moha á instagram“ og að ákærða Sunneva hefði verið „í samskiptum við Don...Moha á instagram og hún segir að það sé“ ákærði Mohamed. Þá kæmi „fram í speglun á Samsung Fold símanum að hann kalli sig það líka á instagram“. Vitnið sagði að allt benti til þess að ákærði Mohamed ætti Samsung Fold símann. Vitnið vísaði til þess að í signal samskiptum kynnti hann sig sem Mo í byrjun samskipta, og mynd af honum væri tekin á símann. Vitnið sagði að „Don...Moha“ hefði notað Samsung Fold símann til að „á instagram við að tala við Y.“ Vitnið sagði að á símanum hefði verið notað signal-nafnið „El Flaco“. El Flaco hefði verið í samskiptum við ákærða Y „út frá þessum Samsung Fold síma“. Bornar voru undir vitnið ljósmyndir sem samkvæmt lögregluskýrslu voru teknar af síma ákærða Y og sýndu mismunandi skjámyndir og skýrslu tölvurannsóknardeildar um Samsung Galaxy Fold símann. Vitnið sagði að ljósmyndir sýndu síma ákærða Y þar sem hann hefur talað við aðila sem nefndur er „el flaco“ og þar sé skráð nánar greint símanúmer, […] en sama númer væri skráð sem „tengt signal og WhatsApp reikningi hjá Samsung Fold símanum“. Vitnið sagði að fram kæmi í skoðun á síma ákærða Y að WhatsApp númer Mo væri símanúmerið […].
Vitnið staðfesti skýrslur sínar.
Vitnið U verkefnastjóri hjá Rannsóknarstofu í lyfja- og eiturefnafræði staðfesti matsgerðir sem stafa frá stofunni.
Vitnið lögregluþjónn nr. [L-7] kvaðst hafa kannað ferðir ákærða Mohamed í júlí 2023. Hann hefði átt þrjú bókuð flug, 5., 19., og 24. dag mánaðarins. Allar ferðirnar hefðu verið bókaðar með mjög skömmum fyrirvara. Fyrst hefði ákærði átt bókað til Íslands frá París, svo bókað til Barcelona og loks bókað til Íslands frá Amsterdam eða París. Vitnið sagðist vita að ákærði hefði farið utan 19. júlí og kvaðst telja líklegt að hann hafi einnig farið samkvæmt hinum bókununum. Vitnið staðfesti skýrslu sína.
Ákæruliður II, fyrri hluti
Ákærði Mohamed sagðist ekki kannast við málið og spurður hver hefði átt fíkniefnin svaraði ákærði að hann hefði verið í fangelsi á þessum tíma. Hann hefði ekkert haft með þau að gera. Aðspurður sagðist hann ekki hafa beðið meðákærða Imad um að geyma efnin.
Ákærði var spurður um peningaskáp, nokkurs konar öryggishólf, sem lögregla hefði fundið í bifreiðinni. Hann sagðist ekki vita hver ætti hann og sjálfur ætti hann ekki slíkan skáp. Ákærði sagðist aðspurður ekki eiga bláa íþróttatösku.
Borið var undir ákærða tölvubréf sem lagt var fram í málinu af hans hálfu, og kvað hann það sýna að hann hefði komið til landsins „um nóttina“, eftir að hafa verið „í burtu í tvær þrjár vikur“. Hann hefði verið „undir miklum áhrifum“ og aðeins verið „einn klukkutíma í húsinu“ og ekki séð nein fíkniefni og ekki séð „hvort hann væri með dótið í bílnum“. Ákærði hefði verið handtekinn sama dag. Nánar spurður um utanlandsferð sína sagði ákærði að hann hefði verið í fjórtán eða fimmtán daga, og hann hefði því farið út sjöunda eða níunda júlí, hann myndi það ekki nákvæmlega. Hann hefði farið til Spánar og ekki komið til Íslands fyrr en 24. júlí.
Ákærði staðfesti að hann hefði úr eigin netfangi sent verjanda sínum tölvubréf það sem lagt hefði verið fram.
Borið var undir ákærða það sem eftir honum er haft í lögregluskýrslu, að hann eigi öryggishólfið sem lögregla hafi fundið í bifreið meðákærða Imad. Ákærði sagðist nú vera allsgáður og ekki játa á sig það sem hann hefði ekki gert.
Ákærði sagðist aðspurður þekkja sig og meðákærða Imad á mynd sem mun tekin í Costco 12. júlí 2023 Borið var undir ákærða að hjá lögreglu hefðu þeir báðir sagt að ákærði hefði keypt öryggishólfið. Ákærði svaraði: „Ef hann segir það.“ Borið var undir ákærða að samkvæmt myndinni hefði hann verið staddur á Íslandi 12. júlí 2023. Ákærði sagðist hafa sagt að hann héldi sig hafa verið í útlöndum frá 7. eða 9. júlí, en hugsanlega hefði það verið frá 12. eða 13. júlí. Hann gæti ekki sagt til um það nákvæmlega.
Borið var undir ákærða að bæði meðákærði Imad og ákærði sjálfur hefðu hjá lögreglu borið að ákærði hefði átt það sem lögregla hefði fundið í öryggishólfinu. Ákærði sagði að „þegar þetta gerðist þá var ég þá þegar kominn inn, þannig að þetta er ekkert sem ég veit um.“ Borið var undir ákærða að meðákærði Imad hefði sagt að ákærði hefði beðið sig um að geyma öryggishólfið og íþróttatöskuna. Ákærði neitaði þessu, en bætti við: „Ég sagði honum líklega það sem ég sagði honum, en svo skipti ég um skoðun af persónulegum ástæðum“. Ákærði sagðist ekki vilja skýra þær sérstaklega.
Borið var undir ákærða að lögregla hefði fundið lykil að öryggishólfinu með lyklum, sem taldir væru lyklar ákærða, að íbúðinni við […]. Ákærði sagðist ekki vita hvort um sína lykla eða meðákærða væri að ræða, ákærði hefði ekki tekið lykla sína með sér. Þegar hann hefði komið heim hefði allt verið á rúi og stúi í íbúðinni og ekkert á sínum stað.
Borið var undir ákærða tölvupóstfangið [...]sem kom fram í nánar greindum samskiptum í síma, Samsung Galaxy, sem rannsakaður var. Ákærði sagðist kannast við póstfangið og hefði hann notað þetta netfang. Borið var undir ákærða að þetta póstfang hefði verið „sett upp“ á haldlögðum síma sem hann segðist ekki hafa átt. Ákærði sagðist ekki skýra þetta. Hann sagði ekki um að ræða sinn síma og ekki síma sem hann hefði notað.
Ákærði Imad El Moubarik sagði að á þeim tíma sem atvik málsins hefðu orðið hefði hann starfað sem barþjónn. Hann hefði um það leyti átt heima hjá þáverandi unnustu sinni, því næst leigt herbergi í Reykjavík en svo íbúð með meðákærða Mohamed í [...]. Þeir meðákærði hefðu ekki leigt lengi saman, þeir hefðu líklega ekki verið búnir að leigja saman í einn mánuð „þegar allt gerðist“.
Ákærði sagði þá meðákærða Mohamed hafa átt sameiginlega vini. Þeir ættu ekkert samband nú. Ákærði sagðist ekki þekkja önnur meðákærðu.
Ákærði sagði að meðákærði Mohamed, þá staddur á Spáni, hefði beðið sig um að fara með öryggishólfið úr íbúðinni, og hefði ákærði farið með það í íbúð tengdaforeldra sinna en kvaðst ekki vita af hverju hann hefði gert það. Þetta hefði verið helgina fyrir handtöku meðákærða. Ákærði hefði svo fært hólfið í bifreið sína, því hann hefði gert ráð fyrir handtöku eftir að meðákærði Mohamed hafði verið handtekinn, og hefði ekki viljað valda tengdaforeldrum sínum vandræðum.
Ákærði sagði að meðákærði Mohamed hefði átt fíkniefnin í bifreiðinni. Ákærði sagðist ekki hafa vitað hvað var í öryggishólfinu. Meðákærði Mohamed hefði átt hólfið. Hann hefði keypt það í sama mánuði, þeir hefðu farið saman í Costco og þar hefði hólfið verið keypt. Ákærði sagðist ekki hafa getað opnað hólfið. Meðákærði hefði getað það.
Ákærði sagði að meðákærði Mohamed hefði átt íþróttatöskuna sem lögregla fann í bifreiðinni. Hún hefði verið í bifreiðinni af því að ákærði hefði sett öryggishólfið í töskuna. Taskan hefði verið íbúðinni. Ákærði sagðist ekki hafa vitað um fíkniefni í töskunni. Meðákærði hefði átt öll fíkniefni sem verið hefðu í íbúðinni. Ákærði sagðist ekki vita hvaðan hann hefði fengið þau. Meðákærði hefði verið fíkniefnasali. Spurður hvernig hann vissi að meðákærði hefði selt fíkniefni svaraði ákærði að meðákærði hefði haft herbergi í íbúðinni og hefði skilið eigur sínar eftir þar. Ákærði hefði séð „fólk koma inn og hluti“. Ákærði, sem sjálfur hefði þá verið fíkill, hefði oft fengið fíkniefni frá meðákærða. Meðákærði hefði látið ákærða fá fíkniefni til að hafa not af honum. Meðákærði hefði oft látið sig fá kókaín til eigin afnota en aldrei fengið sig til að selja fíkniefni, en ákærði hefði verið í vinnu og hefði auk þess ekki viljað selja fíkniefni. Meðákærði hefði einhvern tímann, löngu áður en þeir hefðu farið að búa saman, spurt hvort ákærði vildi „vera hluti af þessu og selja fyrir hann“ en ákærði hefði ekki viljað það. Þar hefði verið um kókaín að ræða.
Vitnið rannsóknarlögreglumaður [L-2] sagði lögreglu hafa leitað í bifreið ákærða Imad og fundið peningaskáp og í honum fíkniefni. Einnig hefði lögregla fundið kvittun fyrir kaupum á skápnum í Costco og í öryggismyndavélakerfi Costco hefði mátt sjá ákærðu Mohamed og Imad „kaupa skápinn saman“. Ákærði Imad hefði verið með aðildarkort að Costco en ákærði Mohamed hefði greitt fyrir hann.
Vitnið sagði að ákærði Imad hefði verði samstarfsfús við rannsókn málsins.
Vitnið rannsóknarlögreglumaður [L-3] sagði að peningaskápur með fíkniefni hefði verið í bifreiðinni en umbúðir utan af pakkanum um skápinn hefðu verið í íbúðinni við […]. Vitnið sagði að einnig hefði blá taska verið í bifreiðinni og í henni fíkniefni. Ákærði Imad hefði átt bifreiðina og hann hefði sagt við skýrslutöku að ákærði Mohamed ætti skápinn og töskuna. Ákærði Mohamed hefði við yfirheyrslu viðurkennt að hann ætti skápinn og það sem í honum væri. Vitnið sagði að ákærði Mohamed hefði keypt skápinn með ákærða Imad í Costco.
Ákæruliður II, síðari hluti
Ákærði Mohamed var spurður hvernig hann skýrði að lögregla hefði fundið fíkniefni á […], og neitaði hann að svara því. Hann sagðist ekki vita hvaða efni það væru og ekki hver ætti þau. Hann sagði að þegar hann hefði komið heim hefði allt verið „í rúst“ í íbúðinni, eins og þar hefði eldfjall gosið. Ákærði sagðist hafa átt heima í eina viku í íbúðinni á þessum tíma. Spurður hvort fleiri hefðu þá átt heima þar svaraði ákærði: „Ég veit það ekki, líklega þegar ég fór, en ég hafði ekki verið þarna.“ Meðákærði Imad hefði átt heima þarna með ákærða og hefði meðákærði haft lykil að henni. Ákærði sagðist ekki muna hvort hann sjálfur hefði tekið lykil sinn með sér þegar hann hefði farið utan.
Ákærði sagðist aðspurður ekki vita hver ætti töflupressu sem lögregla hefði fundið í íbúðinni. Hann hefði aldrei séð slíka pressu þar. Ákærði sagðist ekki vita hver ætti grammavog sem lögregla hefði fundið í íbúðinni. Hann hefði hvorki blandað né pakkað fíkniefnum í íbúðinni.
Borið var undir ákærða það sem eftir honum er haft í lögregluskýrslu þess efnis að hann hefði, fimm til sjö dögum fyrir handtöku, stolið þeim fíkniefnum sem lögregla hefði fundið á heimili hans. Ákærði sagðist ekki muna eftir þessari skýrslutöku. Borið var undir ákærða að hann hefði sagt í skýrslutöku að efnin, sem lögregla hefði fundið á heimili hans, hefðu verið hass, kókaín, crystalmeth og ketamín og að töflurnar væru sterar, og var ákærði spurður hvernig hann hefði vitað þetta. Ákærði svaraði: „Ég sagði bara að ég ætti þetta allt, af einhverri ástæðu.“ Spurður öðru sinni hvernig hann hefði vitað um hvaða efni væri að ræða svaraði ákærði að lögregla hefði sagt sér það. Borið var undir ákærða að hann hefði í skýrslutöku sagt að hann ætlaði að nota efnin sjálfur og gefa vini sínum. Ákærði svaraði að hann hefði notað efnin, ef hann hefði fundið þau. Nánar spurður ítrekaði ákærði að hann hefði ekki vitað af efnunum.
Borið var undir ákærða að meðákærði Imad hefði sagt að ákærði hefði notað þvottaherbergi íbúðarinnar til að pakka og blanda saman fíkniefnum og meðal annars notað töflupressuna við það. Ákærði sagðist aðeins hafa átt heima þarna í fáa daga. Spurður hvers vegna meðákærði Imad bæri hann þessum sökum sagðist ákærði ekki vita það, sjálfsagt myndi ákærði sjálfur gera það sama, „að bera þetta á næstu manneskju“. Borið var undir ákærða það sem eftir honum er haft í lögregluskýrslu, þess efnis að hann einn hefði haft lyklavöld að íbúðinni síðustu tvær vikurnar fyrir handtökuna. Ákærði sagðist hafa logið þessu og benti á að lögregla hefði fundið lyklana í íbúðinni en ekki á ákærða. Borið var undir ákærða að meðákærði Imad hefði sagt að meðákærði hefði komið í íbúðina í tólf daga fyrir þetta og borið var undir ákærða að ákærði hefði sagt að hann sjálfur hefði lagt íbúðina í rúst. Ákærði sagði að meðákærði Imad gæti skýrt þetta.
Ákærði var spurður hvers vegna hann hefði hjá lögreglu sagt að hann hefði einn haft lyklavöldin og að hann sjálfur hefði lagt íbúðina í rúst, en segði fyrir dómi að hann hefði verið í útlöndum og komið að íbúðinni í rúst. Ákærði sagði að það hefði hann gert af ástæðum sem hann vildi ekki skýra.
Ákærði Imad El Moubarik sagði þá meðákærða Mohamed hafa leigt íbúðina saman. Spurður um hvers vegna fíkniefni hefðu verið í íbúðinni sagði ákærði að meðákærði „geymdi dótið sitt þarna og var með sitt eigið herbergi“. Borið var undir ákærða að lögregla hefði fundið fíkniefni á fleiri stöðum en í herbergi meðákærða og sagði ákærði að herbergi meðákærða hefði verið „hluti af íbúðinni“ en ákærði hefði ekki verið „meðvitaður um allt sem hann var með þarna, en sumt af hans dóti var þarna.“ Í íbúðinni hefði verið þvottaherbergi og þar hefði meðákærði geymt dót á litlu borði, meðal annars vog, kókaín og allskonar poka. Ákærði sagðist ekki hafa vitað að töflupressa væri í íbúðinni. Meðákærði hefði blandað og pakkað fíkniefnum í íbúðinni.
Ákærði sagði að meðákærði Mohamed hefði átt fíkniefnin sem lögregla hefði fundið í íbúðinni. Ákærði sagði að um hefði verið að ræða kókaín, hass og „einhverjar pillur“, og eitthvað annað sem hann sagðist ekki vita hvað hefði verið.
Ákærði sagði að þeir meðákærði hefðu báðir haft lyklavöld að íbúðinni á þessum tíma. Ákærði sagðist hafa verið í íbúðinni helgina fyrir handtöku meðákærða en eftir að hann hefði heyrt um handtöku hans hefði hann ekki farið í íbúðina „fyrr en ég fór þangað síðan til þess að þrífa.“
Ákærði var spurður hvort hann kannaðist við hvíta bifreið af BMW-gerð, RMN-
- Ákærði sagðist hafa átt þessa bifreið á umræddum tíma. Meðákærði Mohamed hefði fengið hana lánaða af og til. Borið var undir ákærða það sem eftir honum er haft í lögregluskýrslu, þess efnis að þvottaherbergi íbúðarinnar hafi verið skrifstofa meðákærða sem hafi pakkað og blandað fíkniefnum þar og notað töflupressuna. Ákærði sagðist ekki muna eftir töflupressunni en að öðru leyti væri þetta rétt. Borið var undir ákærða það sem eftir honum er haft í lögregluskýrslu að meðákærði Mohamed hafi beðið hann um að koma fíkniefnum í dreifingu og boðið honum eina milljón króna fyrir, en ákærði neitað. Ákærði sagði að þar hefði verið um að ræða kókaín sem meðákærði hefði átt heima. Ákærði sagðist hafa verið undir miklu álagi daginn sem hann hefði gefið skýrsluna. Hann hefði meðal annars reynt sjálfsvíg þann dag.
Ákærði sagði þá meðákærða Mohamed hafa yfirleitt talað saman gegnum „telegram“ eða „instagram“. Meðákærði Mohamed hefði á „instagram“ borið nafnið mo- eitthvað, en ákærði sagðist ekki muna það nákvæmlega, en ákærði hefði „eytt honum og lokað á hann“. Ákærði sagðist ekki muna nafn meðákærða á „telegram“. Þeir hefðu ekki notað „signal“.
Ákærði sagðist hafa verið allsgáður í tæplega eitt ár. Spurður hvernig hann hefði fjármagnað fíkniefnanotkun sína sagðist hann hafa átt vini eins og meðákærða Mohamed sem hefðu gefið sér fíkniefni. Eftir að málið hefði komið upp hefði ákærði verið illa staddur, neytt fíkniefna mjög og reynt sjálfsvíg. Guð hefði svo bjargað sér og ákærði fundið trúna og væri líf hans gjörbreytt. Hann væri nú í föstu starfi.
Vitnið rannsóknarlögreglumaður [L-2] sagði að á þáverandi heimili þeirra ákærðu Mohameds og Imads á […] hefði lögregla fundið „töluvert af efnum og skilríkjum og þess háttar.“ Greinilegt hefði verið að íbúðin hefði verið útbúin til að „taka á móti burðardýrum eða eitthvað svoleiðis“, útgangurinn á íbúðinni hefði verið þannig. „Mikið skítugt og mikið af hreinsiefnum og mikið af svona bullet sem er oftast tekið innvortis og fólk skilar því af sér, fíkniefni þannig, það var mikið af hassi þannig í íbúðinni, í svona bullet heitir það.“ Vitnið sagði að einnig hefði „komið fyrir sjónir“ eins og væri „magainnihald á gólfinu“ og „eins og þetta væri annað hvort saur eða einhver hafi kastað upp á gólfið eða eitthvað svoleiðis, þannig var þetta á gólfinu og inni á baðherbergi þá var inni í sturtunni fundust einhver svona hylki líka, bæði neðst í þvottakörfu og líka bara minnir mig einhvers staðar í kringum sturtuna, íbúðin leit þannig út fyrir okkur.“ Vitnið sagði að fíkniefnin sem lögregla hefði fundið hefðu verið „eitthvað í eldhúsinu, eitthvað inni á baði, eitthvað inni í þvottahúsi og þeir voru með sitthvor herbergin, það var eitthvað smá inni í herberginu hjá Mohamed man ég, ég man ekki hvort það var eitthvað inni á herberginu hjá Imad“, en vitnið vísaði einnig til lögregluskýrslu. Vitnið sagði að lögregla hefði fundið töflupressu í íbúðinni og kassa utan af öryggisskáp. Á gólfinu hefðu verið frauðplastkubbar, sambærilegir við þá sem hefðu verið í þeirri sendingu sem málið varðar.
Vitnið sagði að við rannsókn málsins hefði komið í ljós, einkum við skoðun á síma ákærða Mohameds, að hann hefði verið í samskiptum við einhvern „og þá einmitt voru þeir að tala um að þetta yrði síðasta svona sendingin og síðan ætluðu þeir að breyta eitthvað til“.
Vitnið sagðist ekki geta sagt með vissu hver hefði átt þau fíkniefni sem lögregla hefði fundið í íbúðinni. Fíkniefnin hefðu að mestu leyti verið í sameiginlegu rými íbúðarinnar, eitt hylki eða svo inni í herbergi ákærða Mohamed og vitnið sagðist ekki muna eftir að fíkniefni hefðu verið í herbergi ákærða Imad.
Borið var undir vitnið að í húsleitarskýrslu sé talað um „aðalsvefnherbergi“ og „aukasvefnherbergi“ og talið upp hvað lögregla hafi fundið þar. Vitnið sagði að ákærði Mohamed hefði verið með aðalsvefnherbergið en ákærði Imad aukasvefnherbergið „af skilríkjunum og þess háttar að dæma.“ Lögregla hefði nefnt stærra herbergið aðalsvefnherbergi en minna herbergið aukasvefnherbergi.
Vitnið sagðist ekki vita hver hefði átt húslykil og tvo lykla, sem taldir hefðu verið að peningaskáp, sem lögregla hefði fundið.
Vitnið rannsóknarlögreglumaður [L-3] sagði ákærða Mohamed hafa haft íbúð til umráða og þar hefði lögregla leitað. Þar inni hefðu verið á baðherbergi „kókaínbullet“ en fólk gleypti slíkt og væri með innvortis. Þau hefðu verið „í einum poka inni á baðherberginu líkt og það væri búið að skola af þeim, og síðan voru svona hassbullet, hassefni í bullet í eldhúsinu falið ofan í kaffidós og svo á gólfinu voru líka svona plastnúðlur bara í íbúðinni og það voru eins plastnúðlur í sendingunni sem tölvuturninn og skjárinn voru í“. Vitnið sagði að efni hefðu verið „í flestum herbergjum þarna. Það var eitt bullet sem fannst í buxnavasa inni í herberginu sem Mohamed átti og það voru þarna efni inni á baðherberginu, svo voru einhver efni inni í“ litlu þvottahúsi „og svo voru einhver efni í eldhúsinu“. Vitnið sagði að kókaínið hefði verið í „ruslahrúgu þarna inni á baðherbergi í einhverjum poka, þannig að það þurfti að gramsa svolítið eftir því.“ Kókaínið og hassið, sem hefði verið í kaffidós, hefðu verið „ágætlega falin“.
Vitnið var spurt hver hefði átt efnin sem lögregla hefði fundið og svaraði að ákærði Mohamed hefði átt þau. Ákærði Mohamed hefði viðurkennt að eiga efnin, „uppruni þeirra hafi verið að hann hafi stolið þeim niður í bæ einhvers staðar“. Vitnið var spurt ekki mætti ætla að þeir sem ættu heima í íbúðinni yrðu varir við efnin sem þar væru. Vitnið sagði að það mætti ætla. Vitnið sagði aðspurt að það byggði þá skoðun sína, að ákærði Mohamed hefði átt efnin, á framburði ákærðu Mohamed og Imad hjá lögreglu, „það stóðst það sem Imad sagði með lýsinguna á herberginu og að það myndi ekki finnast neitt inni í hans herbergi í íbúðinni, sem að gerði ekki, það voru bara skilríki og einhver fæðubótarefni þar. Svo voru náttúrulega fæðubótarefni í skápunum og Imad er svona sterklega byggður maður og búinn að vera í vaxtarrækt og hann gat gefið greinargóða lýsingu á því sem var þarna inni, augljóslega bjó hann þar, og segir þarna að Mohamed sé svo eigandi efnanna.“ Vitnið var spurt hvort verið gæti að ákærði Imad hefði verið búinn að tæma herbergi sitt áður en lögregla hefði komið til leitar. Vitnið svaraði að það teldi það „afar ólíklegt“ og að hann „hefði þá tæmt örugglega allt sem var þarna inni ef hann hefði tæmt eitthvað“.
Vitnið sérfræðingur lögreglu [S-3] var spurt um efnaskýrslu er fjallar um efni sem lögregla hafi fundið í þvottahúsi íbúðarinnar við […] og sagði þar um að ræða efni, sem skilgreint hefði verið sem óþekkt efni en væri íblöndunarefni í til dæmis kókaín og væri heiti þess ekki skilgreint í kerfi lögreglunnar. Vitnið staðfesti skýrsluna.
Vitnið var spurt um efnaskýrslu er fjallar um efni er lögregla hafi fundið í svefnherbergi íbúðarinnar við […] og sagði þar lýst glærum belgjum með hvítu efni í, belgirnir hefðu verið opnaðir og rannsókn gefið til kynna að um kreatín væri að ræða. „Svo er bara kókaínið forprófað á hefðbundinn hátt og svarar sem slíkt.“ Vitnið sagði að töluvert væri flutt inn af kreatíni og væri notað sem íblöndunarefni „og er í kókaíni og öllum þessum fíkniefnum.“ Einnig væri efnið notað til vöðvauppbyggingar og því ekki eingöngu ætlað til að blanda í fíkniefni.
Vitnið var spurt um efnaskýrslu er fjallar um efni sem lögregla hafi fundið á baðherbergi íbúðarinnar við […]. Vitnið sagði að um væri að ræða kókaín í einingum sem yfirleitt væri smyglað innvortis.
Vitnið staðfesti skýrslur sínar.
Niðurstaða Ákæruliður I Samkvæmt gögnum málins kom til landsins sending, sem sögð var innihalda nánar greindan tölvubúnað. Við rannsókn tollvarða 20. júlí 2023 kom í ljós að í henni var einnig það kókaín sem rakið er í ákæru. Þá liggur fyrir að lögregla fjarlægði kókaínið úr sendingunni, kom gerviefni fyrir í þess stað og í framhaldi af því var sendingunni komið fyrir hjá FedEx. Þangað var hennar svo vitjað 25. júlí 2023.
Þau fjögur, sem ákærð eru í ákærulið I, hafa fyrir dómi borið um að hafa komið að málinu, hvert með sínum hætti.
Fyrir dómi sagði Mohamed að hann hefði fengið skilaboð um að „það ætti að sækja einhverja náunga eða pakka sem þær væru með“. Sér hefði verið sagt að sækja mennina hjá FedEx en svo hefði því verið breytt í Mjóddina. Hann hefði ásamt Sunnevu beðið í Mjódd eftir þeim sem kæmi með pakkann. Ákærði hefði verið tilneyddur að gera þetta, vegna skuldastöðu sinnar. Við FedEx hefði Sunneva afhent peninga, „við vorum bara beðin um að gera það“.
Bræðurnir X og Y hafa báðir borið um að hafa farið saman í leigubifreið að FedEx til að sækja pakka. X hafi farið inn náð í pakkann og þeir flutt hann með leigubifreiðinni í Mjódd. Báðir segja að þeir hafi ekki vitað hvað væri í pakkanum, hvor um sig hafi talið löglegan varning þar.
Sunneva gaf ekki skýrslu fyrir dómi. Á hinn bóginn kom hún fyrir dóm og játaði sök samkvæmt því sem að henni snýr.
Við rannsókn málsins lagði lögregla meðal annars hald á farsíma, Samsung Galaxy Fold. Mun hann þá hafa verið í veski Sunnevu. Samkvæmt rannsókn á símanum var þar skráð „Signal Private Messenger“ með notandaupplýsingunum el flaco. Þá liggur fyrir að úr síma Y voru ítrekuð samskipti á „signal“ við notandann el flaco þann dag sem sendingarinnar var vitjað, bæði fyrir það og eftir. Er þar fyrst skráð svarað símtal klukkan 14:39 og eru síðan fjölmörg samskipti sem rakin hafa verið, allt til þeirra síðustu klukkan 16:23. Síðast er skráð ósvarað símtal kl. 16:31.
Við rannsókn á Samsung Galaxy Fold símanum kom í ljós að notandi hans hafði átt í samskiptum við óþekktan aðila áður en málið kom upp. Notandinn fær sent svokallað HAWB númer sendingarinnar daginn áður en pakkans var vitjað og hinn 12. júlí fékk notandinn sent það nafn og heimilisfang sem skráð var á pakkann sem viðtakandi. Hinn 18. júlí fær notandi símans send skilaboð um að búið sé að „senda“ og „hún kemur á föstudaginn“.
Þegar á framanritað er horft verður að telja fram komnar verulegar líkur á því að notandi Samsung Galaxy Fold símans hafi átt ríkan þátt í skipulagningu móttöku sendingarinnar.
Síminn fannst í fórum Sunnevu. Hún var einnig með á sér síma sem telja verður ljóst að hafi verið hennar sími. Síðustu klukkustundirnar fyrir handtökuna hafði hún verið með Mohamed. Hann sagði fyrir dómi að hann hefði um daginn ekið henni heim til hennar, hitt hana svo aftur og þau fengið sér að borða og þau hefðu ekið um í BMW- bifreiðinni.
Af rannsókn á síma Y verður ráðið að hann hafi átt í samskiptum á „instagram“ við aðilann „Don...Moha“ hinn 25. júlí. Samskiptin hefjast kl. 14:10 og lýkur kl. 14:37 á skilaboðum úr síma Y: „Gefðu mér þitt númer“. Klukkan 14:37 er skráð fyrsta signalhringing úr síma Y til el flaco og fyrsta svaraða símtal þeirra kl. 14:39. Fyrir dómi sagðist Mohamed nota instagram-nöfnin moha og don moha. Af rannsókn á síma Sunnevu verður ráðið að hún hafi átt í samskiptum við aðilann „Don...Moha“ með notandanafnið [...], þar sem „Don...Moha“ sendir meðal annars skilaboðin „The have to pick Up from Post“ með mynd af kassa, og stuttu síðar „Just find someone don‘t talk if something wrong“. Fyrir dómi sagði Mohamed að hann hefði spurt Sunnevu hvort hún þekkti einhvern sem gæti náð í pakka. Þegar á þetta er horft þykir óhætt að leggja til grundvallar að Mohamed hafi notað nafnið Don...Moha í samskiptum, þar á meðal þeim instagramsamskiptum við Y 25. júlí, sem lauk kl. 14:37 þann dag.
Fyrir dómi sagði X að hann hefði átt í instagram-samskiptum við mann sem nefnt hefði sig [...] um tveimur mánuðum fyrir atvikið.
Við rannsókn á Samsung Galaxy Fold símanum kom í ljós að innskráður var [...]. Fyrir dómi kannaðist Mohaemd við að hafa notað það netfang.
Samskiptin úr Samsung Galaxy Fold símanum við óþekktan aðila þar sem fram komu meðal annars sendingarnúmer og nafn viðtakanda fóru fram á spænsku. Leigubifreiðarstjórinn T sem ók X og Y til og frá FedEx sagði þá hafa, annan eða báða, talað í síma á leiðinni. Þeir hefðu talað mál sem hann hefði ekki skilið en talið vera spænsku eða portúgölsku. Fyrir dómi sagði Mohamed að þau Sunneva hefðu ekki talað saman á spænsku. Hann teldi hana ekki tala spænsku.
Við rannsókn á Samsung Galaxy Fold símanum fannst mynd sem telja verður að sé af Mohamed. Verður ekki fullyrt hvort hann hafi tekið hana sjálfur eða einhver annar, en myndin er frekar því til stuðnings að tengsl séu milli símans og Mohameds.
Fyrir dómi sagði Mohamed að þau Sunneva hefðu ekki verið tvö ein í bifreiðinni allan tímann. Um tíma hefði verið með þeim sá maður sem hefði beðið hann um að finna menn til að fara í FedEx, en sá aðili „hoppaði“ út. Maðurinn hefði gleymt síma sínum í bifreiðinni. Ekkert hefur frekar komið fram í málinu um slíkan mann. Myndir af bifreiðinni í akstri gefa ekki til kynna að neinn annar en Mohamed og Sunneva hafi verið í bifreiðinni, þó þær taki ekki af tvímæli um það. Að öllu samanlögðu þykir ekki verða lagt til grundvallar að slíkur maður hafi verið í bifreiðinni og þar gleymt Samsung Galaxy Fold farsímanum sem Sunneva hafi svo verið með í veski sínu.
Þegar á allt framanritað er horft þykja hafa verið færðar yfirgnæfandi líkur að því að Mohamed hafi í raun verið notandi Samsung Galaxy Fold farsímans. Hann hafi því fengið upplýsingarnar um sendingarnúmer og skráðan viðtakanda pakkans og átt í samskiptunum við Y þegar þeir bræður fóru að FedEx og X vitjaði pakkans.
Þegar á þetta er horft verður að leggja til grundvallar að ákæruvaldið hafi fært lögfulla sönnun fyrir því að Mohamed hafi komið að skipulagningu innflutningsins og verið í samskiptum við óþekktan mann vegna hennar, og að peningar, fyrirmæli og leiðbeiningar hafi komið frá honum til annarra ákærðu svo sem rakið er í ákærulið I. Mohamed er sannur að sök samkvæmt ákærulið I og háttsemi hans rétt færð til refsiheimildar.
Með vísan til framburðar X og Y fyrir dómi er ljóst að þeir fóru í leigubifreið að FedEx, X fór þar inn og náði í pakka, og þeir fóru með pakkann til baka í Mjóddina. Verður að telja ljóst að fyrirmæli um þetta og peningar fyrir afhendingu pakka og fargjaldi hafi í raun komið frá Mohamed þó Sunneva hafi komið hluta þess á framfæri við þá bræður. X og Y neita sök og segjast ekki hafa vitað hvað væri í pakkanum. Við mat á því verður að hafa í huga að verkið sem þeir taka að sér er afar óvenjulegt. Þeir taka að sér að sækja pakka fyrir aðra aðila sem skipuleggja verkið og senda þá í leigubifreið þó sjálfir séu þeir á bifreið. Ljóst er X fór í FedEx en hvarf frá þar sem hann hafði ekki næga peninga til að leysa út pakkann, en Sunneva kom þá til hans og lét hann hafa peninga. Þeim bræðrum hlaut því að vera ljóst að henni hefði verið í lófa lagið að sækja pakkann sjálf eða fara með X inn þegar pakkans yrði vitjað. Skipulagning fór að miklu leyti fram gegnum „signal“. Þeim X og Y hlaut að vera ljóst að miklar líkur voru á því að í sendingunni væri ólöglegur varningur og að afar ósennilegt væri að staðið væri með þessum hætti að því að sækja hversdagslega sendingu. Þrátt fyrir þetta ákváðu þeir X og Y að sækja sendinguna og koma henni í hendur þess sem fengið hafði þá til verksins. Verður að telja sök þeirra sannaða í málinu og rétt færða til refsiheimildar.
Ákærða Sunneva játar sök samkvæmt því sem að hanni snýr. Játning hennar fær næga stoð í því sem fyrir liggur í málinu og telst Sunneva sönn að sök samkvæmt ákærunni og háttsemi hennar rétt færð til refsiheimildar.
Ákæruliður II, fyrri hluti Fyrir liggur að umrædd fíkniefni fundust í íþróttatösku og öryggisskáp í bifreið Imad.
Ákærði Imad játar sök fyrir sitt leyti. Játning hans fær næga stoð í því sem fyrir liggur í málinu og telst hann sannur að sök og háttsemi hans rétt færð til refsiheimildar.
Af gögnum málsins er ljóst að Mohamed og Imad fóru saman í Costco 12. júlí 2023 og þar var keyptur öryggisskápur sem Mohamed greiddi fyrir. Er það töluverð vísbending um að Mohamed hafi átt skápinn, að minnsta kosti ekki síður en Imad. Ákærði gaf skýrslu hjá lögreglu og kvaðst eiga skápinn og allt sem í honum væri. Er haft eftir honum að fíkniefnin í skápnum væru kókaín. Fyrir dómi sagði hann að nú væri hann allsgáður og tæki ekki á sig annarra sakir. Ekkert hefur komið fram sem bendir til að Mohamed hafi vegna ástands verið ómarktækur í skýrslugjöfinni. Fyrir dómi var borið undir Mohamed að Imad hefði sagt að Mohamed hefði beðið sig um að geyma öryggisskápinn og íþróttatöskuna. Mohamed neitaði þessu, en bætti við: „Ég sagði honum líklega það sem ég sagði honum, en svo skipti ég um skoðun af persónulegum ástæðum“. Mohamed sagðist ekki vilja skýra þær sérstaklega.
Þegar horft er á framanritað þykir verða að leggja til grundvallar að Imad hafi tekið fíkniefnin til geymslu að beiðni Mohameds, þó Mohamed hafi ekki sérstaklega vitað hvar þau yrðu geymd. Teljast báðir sannir að sök og háttsemi þeirra rétt færð til refsiheimildar.
Ákæruliður II, síðari hluti Á umræddum tíma áttu Mohamed og Imad báðir heima í íbúðinni við […]. Hefur ekki komið fram að aðrir hafi þar haft lyklavöld á sama tíma. Þegar Mohamed gaf skýrslu hjá lögreglu sagðist hann eiga fíkniefnin sem lögregla fann í íbúðinni og hafa stolið þeim. Hann sagði að efnin væru hass, ketamín, kókaín og crystal meth, töflurnar væru sterar. Fyrir dómi sagðist hann ekki vita hvaða efni hefðu verið í íbúðinni og hver ætti þau. Í ljósi þess að Mohamed átti heima í íbúðinni og hafði þar lyklavöld og tilgreindi í lögregluskýrslu ýmis efni sem hann sagðist eiga sjálfur, þykir ákæruvaldið hafa fært lögfulla sönnun fyrir sök ákærða og er háttsemi hans rétt færð til refsiheimildar.
Samkvæmt sakavottorðum hefur þeim X og Y ekki verið gerð refsing.
Samkvæmt sakavottorði var Imad í júní 2021 dæmdur í eins mánaðar fangelsi fyrir brot gegn 1. mgr. 2. gr. sbr. 1. mgr. 4. gr. laga 84/2018 um bann við tilteknum frammistöðubætandi efnum og lyfjum og 170. gr. sbr. 169. gr. tollalaga. Í maí 2023 var gerð við hann sátt sem fól í sér 125.000 króna sekt fyrir brot gegn 1. mgr. 7. gr. umferðarlaga og 2. sbr. 5. og 6. gr. laga nr. 65/1974.
Samkvæmt gögnum málsins var Mohamed í september 2019 dæmdur í áfrýjunarrétti Vestur-Svíþjóðar í átján mánaða fangelsi fyrir eiturlyfjasmygl og jafnframt vísað frá Svíþjóð og bönnuð endurkoma fyrir 7. október 2024. Samkvæmt sakavottorði var Mohamed í júní 2021 dæmdur á Íslandi í þriggja ára fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot.
Samkvæmt sakavottorði var Sunnevu fimm sinnum á árunum 2013 til 2019 gerð refsing vegna umferðarlagabrota. Hún var í október 2020 dæmd til sex mánaða fangelsis fyrir brot gegn 1. sbr. 3. mgr. 37. gr., 1. sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr. umferðarlaga nr. 77/2019 og fyrir brot gegn 2. sbr. 5. og 6. gr. laga nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni. Á árunum 2021 og 2022 var hún tvívegis dæmd til refsingar fyrir umferðarlagabrot og loks var hún í febrúar 2024 dæmd í tólf mánaða fangelsi fyrir brot gegn 1. sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. Það brot sem Sunneva er nú sakfelld fyrir er framið fyrir uppkvaðningu þess dóms og ber því að tiltaka refsingu sem hegningarauka.
Við ákvörðun refsingar er til þess að líta að í ákærulið I er fjallað um innflutning töluverðs magns af hættulegu fíkniefni af umtalsverðum styrkleika. Ákærðu vinna verkið í félagi og þó þáttur þeirra sé mjög mismikill er hvert og eitt hlekkur í þeirri keðju sem ætluð var til að flytja efnið til Íslands þar sem það var ætlað til söludreifingar. Ákærði Mohamed er í ákærulið I sakfelldur fyrir brot gegn 173. gr. a almennra hegningarlaga en þau Sunneva, X og Y fyrir brot gegn 173. gr. a sbr. 20. gr. almennra hegningarlaga.
Þau Imad og Sunneva játa bæði sök. Lögregluþjónar sem komu fyrir dóm báru að þau hefðu verið samvinnufús og gert sitt til að upplýsa málið. Fram kom við aðalmeðferð að Sunneva reyndi nú að snúa við blaðinu og væri komin í meðferð. Imad er í fullri vinnu og liggja fyrir í málinu lofsamleg vottorð vinnuveitenda hans. Að því er varðar þá bræður X og Y hefur hvorugum þeirra verið gerð refsing áður og báðir voru mjög ungir þegar þeir frömdu brot sitt, X aðeins fimmtán ára og Y sautján ára. Verður sérstaklega horft til þessa unga aldurs þeirra. Mohamed hefur tvívegis áður verið gerð fangelsisrefsing fyrir fíkniefnalagabrot, síðast þriggja ára fangelsi árið 2021. Þegar á allt er horft ákveðst refsing Mohamed fangelsi í fjögur ár, en refsing hvers þeirra Sunnevu, X og Y átján mánaða fangelsi. Fullnustu refsingar þeirra X og Y skal frestað og falli refsing hvors um sig niður að liðnum þremur árum haldi hann almennt skilorð. Frá refsingu Mohamed og Sunnevu skal draga svo sem í dómsorði greinir. Refsing Imad ákveðst fangelsi í sex mánuði en fullnusta hennar falli niður að liðnum tveimur árum haldi hann almennt skilorð. Fallast ber á gerða upptökukröfu.
Ákærða Mohamed verður gert að greiða málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Leifs Runólfssonar lögmanns, 3.586.700 krónur með virðisaukaskatti. Ákærða Y verður gert að greiða málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Ólafs Vals Guðjónssonar lögmanns, 3.546.400 krónur með virðisaukaskatti. Ákærðu Sunnevu verður gert að greiða málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Guðmundar St. Ragnarssonar lögmanns, 1.805.440 krónur með virðisaukaskatti. Ákærða X verður gert að greiða málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Erlendar Þórs Gunnarssonar lögmanns, 1.886.040 krónur með virðisaukaskatti. Ákærða Imad verður gert að greiða málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Guðbrands Jóhannessonar lögmanns, 1.321.840 krónur með virðisaukaskatti. Fyrir liggur sakarkostnaðaryfirlit ákæruvaldsins. Ekki þykja efni til að gera ákærðu að greiða kostnað vegna bifreiðaleigu. Verður ákærðu gert að greiða annan sakarkostnað sem hér segir. Ákærða Mohamed verður gert að greiða 388.190 krónur, ákærðu Mohamed, Sunnevu, X og Y verður gert að greiða í sameiningu 181.419 krónur og ákærðu Mohamed og Imad verður gert að greiða í sameiningu 202.569 krónur. Að öðru leyti greiðist sakarkostnaður úr ríkissjóði. Gætt var 1. mgr. 184. gr. laga nr. 88/2008. Af hálfu ákæruvaldsins fór Arnfríður Gígja Arngrímsdóttir aðstoðarsaksóknari með málið.
Dómsorð:
Ákærði Mohamed Hicham Rahmi sæti fangelsi í fjögur ár.
Ákærða Sunneva Isis Hoffmann sæti fangelsi í átján mánuði.
Ákærði X sæti fangelsi í átján mánuði. Fullnustu refsingarinnar skal frestað og niður skal hún falla að liðnum þremur árum frá dómsuppsögu haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940.
Ákærði Y sæti fangelsi í átján mánuði. Fullnustu refsingarinnar skal frestað og niður skal hún falla að liðnum þremur árum frá dómsuppsögu haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940.
Ákærði Imad El Moubarik sæti fangelsi í sex mánuði. Fullnustu refsingarinnar skal frestað og niður skal hún falla að liðnum tveimur árum frá dómsuppsögu haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940.
Frá refsingu ákærða Mohamed og ákærðu Sunnevu skal draga með fullri dagatölu gæzluvarðhald sem hvort um sig sætti frá 26. júlí 2023 til 2. ágúst 2023.
Upptæk eru gerð 2.449,99 g af kókaíni, 498,33 g af hassi, 4,75 g af metamfetamíni, 555 stykki af alprazolam Krka 1 mg töflum, 4 ml af testosteron, 298,12 g af teracaine efni, 8,84 g af inositol efni, 938,17 g af procaine efni, 2 g af kreatin efni, 102 stykki af kreatín töflum, 1197,58 g af laktósa efni, svartur iPhone farsími, svartur iPhone 14 Pro Max farsími, hvítur iPhone 14 farsími, fjólublár iPhone farsími, Samsung Galaxy Fold farsími, töflupressa, svartur SentrySafe peningaskápur, tölvuturn og Dell tölvuskjár.
Ákærði Mohamed greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Leifs Runólfssonar lögmanns, 3.586.700 krónur. Ákærði Y greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Ólafs Vals Guðjónssonar lögmanns, 3.546.400 krónur. Ákærða Sunneva greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Guðmundar St. Ragnarssonar lögmanns, 1.805.440 krónur. Ákærði X greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Erlendar Þórs Gunnarssonar lögmanns, 1.886.040 krónur. Ákærði Imad greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Guðbrands Jóhannessonar lögmanns, 1.321.840 krónur.
Ákærði Mohamed greiði 388.190 króna sakarkostnað, ákærðu Mohamed, Sunneva, X og Y greiði í sameiningu 181.419 króna sakarkostnað og ákærði Mohamed og Imad greiði í sameiningu 202.569 króna sakarkostnað. Að öðru leyti greiðist sakarkostnaður úr ríkissjóði.
Þorsteinn Davíðsson