Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjaness

Mál nr. S-325/2023:

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi)

gegn

Aroni Gunnarssyni

Dómur:

I

(Snorri Sturluson lögmaður)

Akstur sviptur ökurétti. Fangelsi. Of hraður akstur. Ölvunarakstur. Svipting ökuréttar.

Ákærði sakfelldur fyrir of hraðan akstur, ölvunarakstur og akstur sviptur ökurétti.

Mál þetta, sem dómtekið var 9. maí 2023, að lokinni aðalmeðferð, er höfðað með tveimur ákærum lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu á hendur ákærða Aroni Gunnarssyni, kt. 000000-0000, […].

Með ákæru dags. 31. janúar 2023 er ákærða gefið að sök umferðarlagabrot með því að hafa, mánudaginn 27. júní 2022, ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti og undir áhrifum áfengis (í blóðsýni mældist vínandamagn 0,99 ‰) um Elliðavatnsveg í Garðabæ, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn. M: […].

Telst háttsemi þessi varða við 1., sbr. 2. mgr. 49. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

Samkvæmt I. tölulið ákæru dags. 28. febrúar 2023 er ákærða gefið að sök umferðarlagabrot með því að hafa, laugardaginn 13. ágúst 2022, ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti, undir áhrifum áfengis (í blóðsýni mældist vínandamagn 1,40 ‰) og með 131 km hraða á klukkustund um Vesturlandsveg við Hafnarskóg í Borgarbyggð, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn, en leyfður hámarkshraði á veginum var 90 km á klukkustund. M: […].

Telst háttsemi þessi varða við 3. mgr. 37. gr., 1., sbr. 3. mgr. 49. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. Samkvæmt II. tölulið ákæru dags. 28. febrúar 2023 er ákærða gefið að sök umferðarlagabrot með því að hafa, fimmtudaginn 29. desember 2022, ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti um Selvogsgötu í Hafnarfirði, þar sem lögregla hafði afskipti af ákærða. M: […].

Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar samkvæmt 99. og 101. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

Verjandi ákærða krefst þess aðallega að ákærði verði sýknaður af II. ákærulið í ákæru dags. 28. febrúar 2023 en til vara, komi til sakfellingar, er krafist vægustu refsingar sem lög frekast heimila svo og fyrir brot samkvæmt I. tölulið ákærunnar og ákæru dags. 31. janúar 2023 þar sem ákærði hefur játað sök. Þá er þess krafist að allur sakarkostnaður verði lagður á ríkissjóð þ.m.t. málsvarnarlaun verjandans samkvæmt mati dómsins.

II

Ákæra dags. 31. janúar 2023 og I. ákæruliður ákæru dags. 28. febrúar 2023.

Ákærði hefur fyrir dómi afdráttarlaust játað þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru dags. 31. janúar 2023 og í I. ákærulið í ákæru dags. 28. febrúar sama ár. Þar sem játning ákærða er í samræmi við rannsóknargögn málanna telst hafið yfir skynsamlegan vafa og þar með sannað að ákærði hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru dags. 31. janúar 2023 og í I. ákærulið í ákæru dags. 28. febrúar sama ár og þar er réttilega heimfærð til refsiákvæða. Hefur ákærði unnið sér til refsingar samkvæmt því.

Ákæruliður II í ákæru dags. 28. febrúar 2023.

Málavextir.

Samkvæmt frumskýrslu lögreglu veittu lögreglumenn í almennu umferðareftirliti bifreiðinni […] athygli þar sem henni var ekið Selvogsgötu til vesturs yfir gatnamótin við Hringbraut í Hafnarfirði en ökumaður stöðvaði síðan bifreiðina við hús nr. 22 við Selvogsgötu. Hann steig síðan út úr bifreiðinni og ætlaði að ganga á brott en lögreglumennirnir stöðvuðu för hans og var um að ræða ákærða í máli þessu. Farþegi var í farþegasæti bifreiðarinnar. Ákærði var handtekinn grunaður um ölvun við akstur og færður á lögreglustöð. Hann neitaði því að hafa ekið bifreiðinni. Eftir að blóðsýni hafði verið dregið úr ákærða var hann frjáls ferða sinna.

Framburður ákærða og vitna fyrir dómi.

Ákærði neitar sök og kvaðst hann ekki hafa ekið bifreiðinni í umrætt sinn. Hann hafi setið í bifreiðinni, sem ekki hafi verið í gangi, ásamt félaga sínum þegar lögregla hafi komið á vettvang. Hann sagði að kærasta hans hafi líklega lagt bifreiðinni þar sem hún var fyrr um kvöldið. Þegar lögreglan hafi komið hafi hann ýtt á hemla bifreiðarinnar og hemlaljós hennar hafi þá kviknað. Hann kvaðst ekki hafa séð forgangsljós á lögreglubifreiðinni. Félagi hans, sem hafi verið með ákærða í bifreiðinni, hafi verið með kveikjuláslykla hennar.

Vitnið, Daníval Heikir Sigurðsson, kvaðst hafa verið með ákærða í bifreiðinni og verið að leita þar að húslyklum. Kærasta ákærða hafi átt bifreiðina og líklega lagt henni þar sem hún hafi verið. Vitnið mundi ekki hvað það hafi verið lengi í bifreiðinni áður en lögreglan hafi komið á vettvang. Vitnið kvaðst hafa verið með kveikjuláslykla bifreiðarinnar en lögreglan hafi tekið þá.

Vitnið, lögreglumaður nr. 1833, kvaðst hafa verið í eftirliti ásamt öðrum lögreglumanni og vitnið hafi séð bifreiðinni ekið eftir Selvogsgötu og síðan lagt í stæði. Þá hafi lögreglumennirnir haft tal af ákærða og hann hafi neitað að hafa ekið bifreiðinni. Vitnið sagði útilokað að annar en ákærði hafi ekið bifreiðinni og það hafi enginn vafi verið á því að bifreiðin hafi verið í akstri. Vitnið, lögreglumaður nr. 1832, sagði að það og annar lögreglumaður hafi verið í eftirliti og ekið eftir Hringbraut í Hafnarfirði. Vitnið kvaðst hafa séð bifreið aka um gatnamót Hringbrautar og Selvogsgötu og síðan hafi henni verið lagt í stæði við hús nr. 22. Vitnið kvaðst aðeins hafa misst sjónar af bifreiðinni í nokkrar sekúndur. Vitnið kvaðst hafa séð bifreiðina í akstri og enginn vafi sé á því að ákærði hafi verið ökumaður hennar. Farþegi í bifreiðinni hafi verið með kveikjuláslykla hennar.

Niðurstaða.

Samkvæmt frumskýrslu lögreglu sáu lögreglumenn bifreiðinni […] ekið um Selvogsgötu, yfir gatnamótin við Hringbraut en síðan var hún stöðvuð við hús nr. 22. Ökumaður hafi þá stigið út úr bifreiðinni og var það ákærði. Hann neitar að hafa ekið bifreiðinni en hann var sviptur ökurétti þegar atvikið varð.

Báðir lögreglumennirnir sem höfðu afskipti af ákærða í umrætt sinn hafa lýst því fyrir dómi að þeir hafi séð bifreiðina […] í akstri og ökumaður hennar hafi verið ákærði. Útilokað sé að annar en ákærði hafi verið ökumaður. Á upptöku úr lögreglubifreiðinni sést ákærði stíga út úr ökumannssæti bifreiðarinnar en hún var þá kyrrstæð.

Að ofanrituðu virtu þykir hafið yfir skynsamlegan vafa og þar með sannað að ákærði hafi ekið bifreiðinni […] í umrætt sinn en hann var þá sviptur ökurétti. Háttsemi ákærða varðar við 1. mgr. 58. gr. umferðarlaga nr. 77/2019 og hefur ákærði unnið sér til refsingar samkvæmt því.

Samkvæmt sakavottorði ákærða nær sakarferill hans aftur til ársins 2012 en þá var hann dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás. Á árunum 2013 og 2014 gekkst ákærði fimm sinnum undir viðurlög þ.e. sektir og ökuréttarsviptingu fyrir akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna og fyrir akstur sviptur ökurétti. Í janúar 2015 var ákærði dæmdur í 45 daga fangelsi fyrir ölvunarakstur og akstur sviptur ökurétti. Í júlí 2015 var ákærði dæmdur í þriggja mánaða fangelsi fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur og akstur sviptur ökurétti. Í maí 2018 var ákærði dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir ölvunarakstur og akstur sviptur ökurétti. Í apríl 2019 var ákærði dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir akstur sviptur ökurétti (í sakavottorði segir ranglega án ökuréttinda). Loks var ákærði dæmdur í febrúar 2022 í 345 daga fangelsi fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur og akstur sviptur ökurétti. Ákærði hefur unnið sér til refsingar samkvæmt 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. Við ákvörðun refsingar í máli þessu er miðað við að ákærði hafi nú verið sakfelldur fyrir að aka undir áfengisáhrifum í sjöunda skipti og í áttunda skipti fyrir akstur sviptur ökurétti. Að þessu virtu og með vísan til 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 18 mánuði. Þá ber að árétta ævilanga ökuréttarsviptingu ákærða frá birtingu dóms þessa að telja, sbr. 99. og 101. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

Ákærði greiði allan sakarkostnað málsins þ.m.t. málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Snorra Sturlusonar lögmanns, sem þykja hæfilega ákveðin með hliðsjón af umfangi málsins 451.980 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti. Ákærði greiði annan sakarkostnað 67.604 krónur Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi.

Ingi Tryggvason héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

D ó m s o r ð:

Ákærði, Aron Gunnarsson, sæti fangelsi í átján mánuði.

Ákærði er sviptur ökurétti ævilangt frá birtingu dóms þessa að telja.

Ákærði greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Snorra Sturlusonar lögmanns, 451.980 krónur og annan sakarkostnað 67.604 krónur.

Ingi Tryggvason

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 77. gr.
Lög nr. 77/2019 Umferðarlög 3. mgr. 37. gr.2. mgr. 49. gr.3. mgr. 49. gr.1. mgr. 58. gr.1. mgr. 95. gr.99. gr.101. gr.